Fjórði kafli
Hús Fræðara
Þessu næst bjóst Kristinn til að halda áframm ferð sinni. Sagði Góðvili honum, að er hann væri kominn spölkorn framm hjá hliðinu, mundi hann koma til húss Fræðara; þar skyldi hann drepa að dyrum, og mundi hann sýna honum marga hluti fagra og ágæta. Nú kvaddi Kristinn þenna vin sinn, er bað honum allra farar heilla.
Nú hèlt hann áframm ferðinni, þar til er hann kom að húsi því er Fræðari bjó í; hann drap þar hvað eftir annað að dyrum; og kom loks maðr framm er spurði, hver úti væri.
Kristinn svaraði: Það er langferðamaðr, herra minn. Góðr kunningi húsbóndans hèrna, hefir vísað mèr á hús þetta, og kvað mèr mundu að góðu verða, að koma hingað. Þess vegna óska eg, að fá húsráðandann í tal.
Var svo kallað á húsbóndann; kom hann eftir skamma stund, til Kristins og spurði, hvað hann vildi. Herra minn, sagði Kristinn, eg kem nú frá Glötunarborg, og ætla til Zíons fjalls. Enn maðrinn, sem gætir hliðsins þarna uppi á veginum, sagði mèr, að þèr munduð sýna mèr marga ágæta hluti, ef eg kæmi hèr við, og mundi það verða mèr til hins mesta farargreiða.
Kondu inn, sagði Fræðari, eg skal þá sýna þèr hluti, sem mega verða þèr að gagni nokkuru. Nú skipaði Fræðari þjóni sínum að kveykja ljós, og beiddi Kristinn að koma með sèr. Fór hann nú með Kristinn inn í herbergi nokkurt afsíðis, og beiddi þjón sinn opna dyrnar; þjónninn gjörði svo, og sá Kristinn hanga þar á veggnum málaða mynd af manni nokkurum alvarlegum, og var gengið frá myndinni svo, sem nú skal greina: maðrinn lyfti augum sínum til himins, hèlt í hendinni á bók þeirri, sem bezt er allra bóka; lögmál sannleikans var ritað á varir hans, heimrinn var allr að baki honum; hann stóð eins og hann væri að flytja mönnunum alvarleg erindi, enn gull kóróna hèkk yfir höfði hans.
Hvað á þetta að tákna? sagði Kristinn.
Fræðari: Maðrinn, sem þessi mynd er af, er einn af þúsund. Hann getr tekið undir með postulanum: Þótt þèr hafið ótal lærimeistara í Kristi, þá hafið þèr samt ekki marga feðr, því eg hefi getið yðr í Jesú Kristi með minni kenningu. Börn mín, sem eg á ný með harmkvælum geng með þar til Kristr er myndaðr í yðr. (1 Kor. 4. 15; Gal. 4. 19.) Þú sèrð, að hann er látinn hefja augu til himins, og hafa hina ágætustu allra bóka í hendi sèr, og að lögmál sannleikans er ritað á varir hans; þetta á að sýna þèr, að hans ætlunarverk sè, að þekkja, og skýra syndurunum, dimma hluti; þess vegna er hann og látinn standa eins og maðr sem er að færa öðrum heim sanninn. Heimrinn, sem þú sèrð er látinn liggja bak við hann, og kóronan, sem þú sèrð að hangir yfir höfði honum, eiga að takna það, að hann skuli vissulega hljóta dýrð í endrgjald í öðru lífi, fyrir það, að hann hefir lítils virt og fyrirlitið þessa heims hluti, enn gegnt þjónustu herra síns með ást og tryggð. Eg vildi sýna þèr, fyrst af öllu, þessa mynd, vegna þess, að lávarðr landsins, sem þú ætlar í, hefir fengið þessum manni einum umboð til að veita þèr leiðsögu um alla hina hættusömu staði, er leið þín kann að liggja gegnum. Settu nú vel á þig það, sem eg hefi sýnt þèr, og láttu það ekki líða þèr úr minni; því vel má svo fara, að þú hittir þá á leið þinni, sem þykjast beina þèr á rètta leið, þó að vegr þeirra liggi niðr til dauðans.
Nú tók hann í hönd Kristni, og leiddi hann inn í skála mikinn, er fullr var af ryki, því að aldrei var hann sópaðr. Þegar Kristinn hafði skoðað sig þar um stundarkorn, skipaði Fræðari að sópa húsið. Enn er farið var að sópa, þyrlaði rykinu svo upp, að Kristinn var nærri kafnaðr af því. Fræðari kallaði þá til konu nokkurrar, er nærri stóð, og sagði: Kondu með vatn, og stökktu því um herbergið, og að því búnu var herbergið sópað og fágað og unaðlegt. Enn hvað á þetta að þýða? sagði Kristinn. Þetta herbergi táknar mannlegt hjarta, sagði Fræðari, sem ekki hefir helgast af hinni sætu náð fagnaðarboðskaparins. Rykið er frumsynd hans og eðlis spilling, er saurgað hefir allan manninn.
Sá sem fyrst fór að sópa, er lögmálið; enn konan, sem kom með vatnið og stökkti því um herbergið, er náðarkenning Jesú Krists. Þú sást, að þegar fyrst var farið að sópa, þá þyrlaði rykinu svo upp, að herbergið, varð með engu móti hreinsað, enn þú varst nærri kafnaðr í rykmökknum sjálfr. Þetta á að sýna þèr það, að í stað þess, að hreinsa hjartað af syndinni með áhrifum sínum, vekr lögmálið syndina, eflir hana, eykr henni magn og veitir henni vöxt í sálu mannsins; það segir til hennar, fyrirbýðr hana, enn gefr manninum ekkert afl til að vinna bug á henni. Hins vegar, er þú sást konuna stökkva vatni um herbergið, þá varð það hreint og unaðlegt. Þetta á að sýna þèr það, að þegar hin blíðu og dýrmætu áhrif fagnaðarerindisins gagntaka hjartað, þá fer með syndina eins og með rykið í herberginu, þegar konan stökkti vatninu um gólfið, að hún verðr yfirbuguð og sigruð, og sálin verðr hrein fyrir trúna, og þar af leiðir, að hún verðr hæfilegr bústaðr fyrir konung dýrðarinnar. (Joh. 15. 3; Eph. 5. 26; Post. g. 15. 9; Róm. 16. 25, 26; Joh. 15. 13.)
Nú þótti mèr Fræðari taka í hönd Kristni, og fara með hann inn í herbergi eitt lítið, þar sem sátu tvö börn, hvort á sínum stól. Eldra barnið hèt Ástríða, hið yngra hèt Biðlund. Ástríða virtist vera mjög óánægð, en Biðlund var ofr stillt. Þá mælti Kristinn: Því er Ástríða svo óánægð? Fræðari svaraði: Vegna þess, að fóstri þeirra vill láta hana bíða þess, sem bezt er, þangað til á nýárinu, enn hún vill fá það allt nú þegar; enn Biðlund er fús til að bíða.
Nú kom maðr til Ástríðu og færði henni fullan sekk af gersemum og helti úr honum fyrir fætr henni. Hún þreif þær upp, og var nú hin glaðasta, og hældist um hlægjandi við Biðlund. Enn er eg hafði horft á hana að eins litla stund, hafði hún skutlað öllu hingað og þangað, og var ekkert eftir nema úrgangrinn. Nú segir Kristinn við Fræðara: Skýrðu mèr þessa sýn ýtarlega.
Fræðari sagði: Börn þessi eru þýðingarfullar myndir. Ástríða er fyrirmynd þessa heims barna; enn Biðlund er fyrir mynd barna annars heims. Þú sèrð, að Ástríða vill hafa allt sitt þetta ár, eða með öðrum orðum, í þessum heimi; og þannig eru líka þessa heims menn; þeir vilja fyrir alla muni taka allt hið góða út nú. Þeir geta ekki beðið hins góða hlutskiftis árlangt, eða þangað til hinn næsti heimr kemr framm. Máltækið forna: “Betri er einn fugl í hendinni, enn tveir á þakinu” er í miklu meiri metum hjá þeim, heldr enn allir guðlegir vitnisburðir um sælu ens ókomna heims. Enn eins og þú sást Ástríðu eyða og sukka öllu burt á augabragði, og sèrð nú, að hún á ekkert eftir af öllum sínum gæðum, annað enn lélegan úrgang; eins mun og fara fyrir öllum slíkum mönnum við lok þessa heims.
Kristinn: Eg sè nú að Biðlund er vitrari þeirra tveggja, og það af mörgum ástæðum; því bæði bíðr hún kyrlát eftir enum beztum hlutum, og svo nýtr hún dýrðar sinnar og unaðar, þegar Ástríða sitr að úrganginum einum.
Fræðari: Já, og þú mátt bæta því við enn, að dýrð annars heims fyrnist aldri, en glys þessa heims hverfr skjótt. Ástríða hafði því ekki eins gilda ástæðu til að hlægja að Biðlund, þó hún fengi hina beztu hluti sína fyrst, eins og Biðlund mun hafa, til þess að hlæja að Ástríðu, er hún fær sína beztu hluti síðast. Því að það sem fyrst kemr, verðr að rýma fyrir því, sem á eftir fer, því að hið síðasta kemr, þó það komi síðast. Enn það, sem síðast kemr, þarf ekki að rýma fyrir neinu öðru, því þar fer ekkert á eftir. Sá sem því fær sinn hluta útmældan fyrst, hlýtr að hafa tíma til að eyða honum, enn sá sem öðlast sinn hluta síðast, hlýtr og að njóta hans sífelt. Þess vegna var sagt um hinn ríka mann: Þú nauzt hins góða í lífinu, enn Lazarus hins vonda, því verðr hann nú huggaðr enn þú kvalinn. (Lúk 16. 25.)
Kristinn: Það sè eg nú, að bezt er ekki það, að girnast það sem er, heldr að bíða hins er koma skal.
Fræðari: Þú mælir rètt; því að það sem sèst er tímanlegt, enn það, sem ekki sèst, er eilíft. (2 Kor. 4. 18.) Enn þó að nú svo sè, þá eru hinir sýnilegu hlutir og hin holdlega löngun vor svo náið hvað öðru, og hinir ósynilegu og ókomnu hlutir og veraldar hyggja vor svo fjarstætt hvað öðru, að hið sýnilega verðr oss kært, enn hið ósýnilega og eilífa svo stöðuglega fjarstætt oss.
Nú þótti mèr Fræðari taka í hönd Kristni, og leiða hann þar að, er eldr brann við vegg; stóð þar maðr hjá, og var allt af að hella vatni í hann til þess, að slökkva hann, enn eldrinn brann því heitar og blossaði því hærra.
Þá mælti Kristinn: Hvað þýðir þetta?
Fræðari svaraði: Þessi eldr táknar starfsemi náðarinnar, þegar hún er orðin lifandi í mannlegu hjarta. Sá sem þar stendr og eys vatninu í eldinn, til þess, að slökkva hann, er djöfullinn. Enn nú skal eg sýna þèr orsökina til þess að loginn verðr æ meiri og heitari, þrátt fyrir vatnið sem í hann er ausið. Og nú fór Fræðari með Kristinn að veggnum hinumegin; þar stóð þá maðr með olíuker í hendi sèr, og jós hann stöðugt (enn þó á laun) olíunni úr því í eldinn. Hver er þetta? sagði Kristinn.
Fræðari: Þetta er Kristr, sem með olíu náðarinnar heldr stöðugt áframm í hjartanu starfsemi hennar þegar hún er byrjuð; með henni verða sálir lýðs hans náðar fullar hvað svo sem djöfullinn kann að gjöra til að aftra því. (2 Kor. 12. 9.) Enn það, að maðrinn, sem þú sást ala á eldinum, stóð bak við vegginn, á að kenna þèr, að þeim, sem freistast, er torsýnt, hvernig þessu starfi náðarinnar er haldið við í sálunni.
Eg sá líka, að Fræðari tók hann við hönd sèr og leiddi hann þangað, er fagr staðr var fyrir; þar var skrautleg höll og fögur á að líta. Þótti Kristni það enn mesti unaðr að horfa á sjón þessa. Á hallar mæninum sá hann fólk á gangi og var klætt í gullinn fatnað.
Þá sagði Kristinn: Megum við fara þangað þarna?
Þá tók Fræðari hann við hönd sèr, og fór með hann upp að hallar dyrunum; og sjá, við dyrnar stóð fjöldi mikill folks, er alhugað var, að komast inn, enn þorði það ekki. Þá sat þar og maðr skammt frá dyrunum við borð, og hafði bók og blek fyrir framan sig, og ritaði hann upp nafn hvers er inn kvaðst fara vilja. Hann sá líka, að í dyrunum stóðu margir menn alvopnaðir, er geymdu þeirra, og voru að sjá sem albúnir að gjöra hverjum er inn vildi fara allt það mein og skaðræði er þeir gátu. Nú varð Kristinn hálf-ráðþrota. Enn að lokum er allir hopuðu á hæl af ótta fyrir enum alvopnuðu mönnum, sá Kristinn mann, djarflegan ásýndum, koma upp til þess er sat við borðið, og segja við hann: Færðu inn nafnið mitt, herra. Þegar hann hafði svo mælt, sá Kristinn hann draga sverð úr slíðrum og setja hjálm á höfuð sèr, og rjúka upp að dyrunum á ena vopnuðu menn. Enn þeir lögðu að honum með drápsömu ofrefli. Enn manni þessum brá hvergi, heldr hjó hann og lagði af öllu afli á báðar hendr. Og er hann hafði sjálfr fengið mörg sár, og gefið mörg aftr þeim er reyndu að stía honum úti (Math. 11. 12; Post. g. 14. 22), hjó hann sèr braut gegnum þá alla, og brauzt inn í höllina. Þá mátti heyra þæga rödd frá þeim sem inni voru og þeim sem voru uppi á hallar mæninum, er sagði:
Kom inn! kom inn!Elífrar dýrðar krans sè þinn.
Fór hann þá inn og var ífærðr sömu fötum og þeir. Þá brosti Kristinn, og sagði: Í sannleika held eg að eg skili hvað þetta á að þýða. Láttu mig nú fara, sagði hann. Nei, bíddu, sagði Fræðari, þangað til eg hefi sýnt þèr dálítið meira. Þá máttu fara leiðar þinnar. Nú tók hann Kristinn við hönd sèr aftr, og leiddi hann inn í dimman afkima, þar sem maðr sat í járnbúri. Þessi maðr var dapr útlits; hann sat og einblíndi á gólfið fyrir framan sig, hann helt höndum saman, og andvarpaði eins og hjarta hans ætladi að springa. Þá sagði Kristinn: Hvað þýðir þetta? Fræðari bað hann tala við manninn. Kristinn segir þá við manninn: Hver ertú? Hinn svaraði: Eg er það sem eg ekki var fyrir eina tíð. Maðrinn sagði: Eg var einu sinni maðr góðrar trúar og ávaxtarsamrar (Lúk 8. 13); þóttist vera það sjálfr, og þótti vera það í annarra augum. Eg þóttist eitt sinn vera vel hæfr fyrir ena himnesku borg, og fann unað í því, að hugsa til þess, að eg ætti þangað að komast.
Kristinn: Enn hvað ertu þá nú?
Maðrinn: Nú er eg örvæntingarinnar maðr, og er lokaðr í örvæntingunni eins og í þessu járnbúri. Eg get ekki komizt út. Eg veit að eg get það ekki.
Kristinn: Enn hvað ber til, að hag þínum er nú svo komið?
Maðrinn: Eg hætti að vaka og vera bindindissamr. Eg lagði tauminn lausan á háls lostagirni minni; eg syndgaði gegn ljósi orðsins og gæzku Guðs; eg hefi hryggt Andann og hann er mèr horfinn; eg freistaði djöfulsins og hann er kominn til mín; eg hefi reitt Guð til reiði og hann hefir farið frá mèr; eg hefi hert hjarta mitt svo, að eg fæ ekki iðrast.
Þá mælti Kristinn við Fræðara: Enn er þá engin von um aðra eins menn og þessi er? Spurðu hann, sagði Fræðari.
Kristinn: Þá mælti Kristinn: Er þá engin önnur von um þig, enn að þèr verði haldið alla tíð í þessu járnbúri örvæntingarinnar?
Maðrinn: Nei, alls engin önnur.
Kristinn: Enn Sonr ens Blessaða er miskunnarríkr mjög.
Maðrinn: Eg hefi krossfest hann á mèr að nýju. (Hebr. 6. 6.) Eg hefi fyrirlitið hann. (Lúk 19. 14.) Eg hefi að vettugi virt rèttlæti hans; eg hefi matið blóð hans svo sem vanhelgan hlut; eg hefi þrjóskast gegn Anda náðarinnar. (Hebr. 10. 28, 29.) Eg hefi því lokað sjálfan mig úti frá öllum fyrirheitum, og á ekkert eftir nú, nema ógnanir, óttalegar ógnanir, hræðilegar ógnanir um vissan dóm og eldlega reiði, er mèr mun tortýna eins og fjandmanni.
Kristinn: Með hverju bakaðirðu þèr þessa alls?
Maðrinn: Með girndum, munaði og þessa heims ávinningi; eg bjóst við miklum unaði af nautu þessarra hluta; enn nú stinga þeir mig, hver um sig, og naga eins og brennandi ormr.
Kristinn: Enn getrðu ekki iðrast nú og snúið aftr?
Maðrinn: Guð hefir synjað mèr þess, að geta iðrazt; orð hans veitir mèr enga uppörfun til trúar; já, hann hefir sjálfr læst mig inni í þessu járnbúri, og enda fær ekki alls heimsins mannsafnaðr komið mèr út. Ó, eilífð, ó, eilífð! hvernig fæ eg staðizt alla þá eymd, sem eilífðin hefir mèr búna?
Fræðari: Þá sagði Fræðari við Kristinn: láttu eymd þessa manns þèr í minni loða og verða þeir eilífa viðvörun.
Kristinn: Æ, sagði Kristinn, þetta er óttalegt. Guð hjálpi mèr til þess, að vaka og vera bindindissamr, og að biðja, að eg megi umflýja það allt er ollað hefir eymd þessa manns. Enn, herra minn, er nú ekki mál komið fyrir mig að halda áframm ferð minni?
Fræðari: Bíddu, þangað til eg hefi sýnt þèr einn hlut enn. Þá máttu fara ferða þinna.
Hann tók nú Kristinn við hönd sèr enn einu sinni, og leiddi hann inn í herbergi, þar sem rúm var og í því maðr að fara á fætr. Enn meðan hann var að fara í fötin skalf hann og titraði. Þá mælti Kristinn: Hvað ber til, að þessi maðr skelfr svo? Fræðari beiddi manninn þá segja Kristni hvað til væri um skjálfta hans. Maðrinn hófst máls, og sagði: Í nótt, er eg svaf, dreymdi mig draum; og sjá, himininn varð frábærlega dimmr, þar með fóru ógnir allar þrumu og eldinga, svo að eg varð dauðhræddr. Eg leit upp og sá skýin reka með óvenjulegum hraða. Þá heyrða eg mikið lúðrgjall, og sá mann sitjanda á skýi, og þjónuðu honum þúsundir himnanna hersveita; allt var þetta í loganda eldi, og allr himininn var sem í brennanda bál sæi. Þá heyrða eg rödd mikla kveða við: Rísið upp, þèr dánu, og komið til dómsins. Þá klofnuðu klettar og björg, og grafirnar rofnuðu, og hinir dánu, er í þeim lágu, komu framm. Sumir voru frá sèr af fögnuði og litu upp; enn sumir reyndu að fela sig undir fjöllunum hrynjandi. Þá sá eg, að maðrinn, er sat á skýinu tók framm bókina, og beiddi heimsbúa að koma nær. Enn vegna hins brennandi loga, er fór fyrir honum, var hæfileg fjærð milli hans og þeirra, eins og milli dómara og bandingja fyrir dómvèbönd utan. (1 Kor. 15; 1 Thess. 4. 16; Jud. 15; Joh. 5. 28, 29; 2 Thess. 1. 8–10; Opb. b. 20. 11–14; Es. 26. 21; Mik. 7. 16, 17; Sálm 5. 4; 50. 1–3; Mal. 3. 2, 3; Dan. 7. 9, 10.) Eg heyrði og boð fara meðal þeirra er þjónuðu þeim sem á skýinu sat: Safnið saman illgresi, hismi og fauskum og varpið því í hið brennanda díki. (Math. 3. 12; 13. 30; 24. 30; Mal. 4. 1.) Við þessi orð opnaðist hið botnlausa díki, þar nærri sem eg stóð, og gaus út úr opi þess feikn öll af svælu og eldsíum með ógurlegum nið. Því næst var sömu þjónum sagt: Safnið hveiti mínu í hlöðuna. (Lúk 3. 17.) Þá sá eg, að margir voru teknir upp og hurfu inn í skýin, enn eg stóð einn eftir. (1 Thess. 4. 16, 17.) Eg reyndi nú til að fela mig, enn fèkk hvergi hulizt, því að maðrinn, er á skýinu sat, horfði einlægt á mig; þá runnu mèr í huga syndir mínar og samvizka mín ákærði mig alla vega. (Róm. 2. 14, 15.) Að svo búnu vaknaði eg af svefninum.
Kristinn: Nú, enn hvað var það í þessarri sýn, sem fèkk þèr svo mikillar hræðslu?
Maðrinn: Það, að eg hèlt, að dómsdagr væri kominn, og að eg væri ekki við honum búinn; enn það skelfdi mig þó mest, að englarnir skyldu taka suma að sèr, enn skilja mig eftir, og að helvítis díki skyldi opna gin sitt einmitt þar sem eg stóð. Þá hrelldi og samvizka mín mig, og það, að mèr virtist ekki betr, enn dómarinn hafa einlægt augun á mèr með þykkjufullum svip.
Þá sagði Fræðari við Kristinn: Hefir þú nú íhugað allt þetta?
Kristinn: Já; það fær mèr ýmist vonar eða ótta.
Fræðari: Vel er það. Mundu þá þetta, svo að það verði sem broddr stunginn þèr í hlið, til þess að örfa þig til að halda ötullega áframm þá leið er þú verðr að fara. Þá tók Kristinn að búa sig til ferðar. Fræðari talaði þá, og mælti: Megi Huggarinn jafnan vera með þèr, góði Kristinn, til þess að beina þèr leið til borgarinnar.
Fór svo Kristinn af stað og söng:
Fágæta hluti’ eg fekk hèr sèð og þarfa,Er fögnuð báru og hræðslu’ að minni önd,Sem kenna mèr með þreki og þrótt að starfaAð því, er eg hef’ lagt á gjörfa hönd.Að hugsa’ um þá og þar á skyn að beraEr þessir hlutir voru syndir mèr:Það sè mín iðja. Enn þakklátr að veraÞèr, góði Fræðari, mèr skyldast er.