Viðauki
Eftirmáli
Ég vil að lesandinn skilji að ég er ekki rithöfundur að atvinnu. Ég biðst afsökunar, ef það kemst ekki til skila sem ég er að reyna að segja. Ég ákvað að bæta þessum kafla við, vegna þeirra mörgu spurninga sem ég hef fengið um þau hryllilegu átök sem ég átti við illu andana í Elaine. Drottinn krefst alltaf fullkominnar hreinskilni. Ég varð að skrifa um mistök mín á sama hátt og þegar vel gekk. Baráttan við djöflana í Elaine var sú þjálfun sem ég fékk. Ég viðurkenni alveg, að ég vissi ekki hvað ég var að gera. Ég lærði fljótt með því að leita í orði Guðs og með beinni handleiðslu Heilags anda. Það dásamlega við þetta er að Drottinn heiðrar þrár hjartna okkar! Drottinn vissi að ég þráði að þjóna honum, og Elaine þráði það líka. Þannig að þrátt fyrir hversu óhæfar við vorum, þá var Jesús trúfastur!
Ég þarf ekki lengur að glíma við illa anda eins og ég þurfti þegar Elaine var að losna. Ég hef lært mikið síðan þá og er enn að læra. Þeim lærdómi er lýst í næstu tveimur bókum mínum, “Prepare For War” og “Becoming A Vessel of Honor In The Master´s Service.” Já, ég hef þjáðst mikið, og ég hef glímt mikið En þetta er bók um Sigur, en ekki ósigur. Elaine og margir aðrir hafa verið leystir með krafti Jesú Krists. Við erum öll ófullkomnir þjónar, en Jesús Kristur er fullkominn! Kraftur hans er fullkominn og takmarkalaus! Hann er trúfastur við þjóna sína, nú og að eilífu.