Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Sjöundi kafli

Refsingar innan Bræðralagsins

um 5 mín. lestur

Elaine segir frá:

Innan reglunnar var kynlíf frjálst og óheft, og stundað svotil hvenær sem var. Einnig misnotkun á börnum. Mikill hluti allra barna innan reglunnar eru misnotuð reglulega frá því þau eru mjög ung. Reglumeðlimir para sig oftast saman eftir valdastigi. Hér um bil allar athafnir eða samkomur enda með kynsvalli. Vanalega hafa einstakir meðlimir, rétt á að taka þátt í kynlífi ef þeir vilja.

Samfarir við djöfla voru einnig stundaðar. Djöfla sem hægt var að sjá og heyra og finna fyrir á líkamlegan hátt. Það gerðist venjulega á samkomum og í messum þar sem mikið var af eiturlyfjum. Djöflar áttu líka samfarir við fólk gegn vilja þess. Fólk sem verið var að refsa fyrir að gera ekki það sem Satan eða djöflarnir vildu að það gerði. Oft var eiginmaðurinn neyddur til að horfa á, meðan fleiri en einn djöfull höfðu ruddaleg mök við eiginkonu hans. Það var mjög áhrifarík refsing.

Ótti er sú aðferð sem er notuð oftar en allt annað. Ótti við dauðann, ótti við að fjölskyldu manns yrði misþyrmt að manni ásjáandi. Bæði fólk og djöflar voru pyntuð. Oft voru djöflar neyddir til að líkamnast og síðan voru þeir píndir og rifnir í tætlur af öðrum sterkari djöflum, vegna minniháttar óhlýðni. Minningarnar um þessar grimmilegu uppákomur voru greyptar inn í hugskot allra viðstaddra. Síðan var hópnum sagt að þetta væri sýnishorn af því sem mundi verða gert við þá ef þeir dirfðust að óhlýðnast Satan eða djöflunum.

Í miðjum athöfnum, sérstaklega í svokölluðum "æðri" athöfnum þar sem mannfórnir voru viðhafðar, tóku djöflar á sig líkamlegt, mannlegt form. Stundum var erfitt að segja til um það hver væri djöfull og hver væri manneskja. Samt sem áður eru augu djöfla köld og líflaus, snerting þeirra er eins og brennandi kol, en samt er eins og þeir séu lífvana.

Misþyrming ástvina, sérstaklega barna, er aðferð sem er mikið notuð til að tryggja algjöra hlýðni. Foreldrar eru neyddir til að horfa á meðan börnin þeirra eru barin til bana, beitt kynferðislegu ofbeldi á hrottalegan hátt, eða að húðinni er flett af þeim. Ef barnið lifir þetta af, geta foreldrarnir ekki farið með það á sjúkrahús vegna þess að þá yrðu þau sett í fangelsi fyrir ofbeldi gegn barninu. Þau gætu aldrei sannað að þau hefðu ekki misþyrmt barninu, því aðrir Satanistar voru reiðubúnir að vitna um að þeir hefðu séð foreldrana misþyrma því. Læknarnir innan reglunnar vilja heldur ekki annast barnið, nema foreldrarnir geti greitt gífurlegar fjárhæðir.

Mannfórnir eru líka algeng refsing. Rétt á undan öllum mannfórnum er hræðilegt tímabil ótta og örvæntingar þar sem allir í söfnuðinum halda niðri í sér andanum og bíða eftir að sjá hverjum verði fórnað. Mörg fórnarlambanna eru fólk sem hefur óhlýðnast eða reynt að draga sig út úr reglunni.

Varúlfar, uppvakningar (zombies), blóðsugur (vampires) og álíka skepnur eru raunverulega til. Ég hef séð margar slíkar. Þessa leyndarmáls er vandlega gætt af Satan. Enginn stjórnar þessum verum nema Satan eða tignustu djöflarnir hans. Hann notar þær aðallega í refsingarskyni. Ég gleymi aldrei atviki á einni samkomu þegar Satan sigaði varúlfi á mann. Maðurinn stökk á fætur og hljóp af stað með urrandi varúlfinn á eftir sér. Hann hafði engan möguleika á að hlaupa manndýrið af sér. Hann gerði sér grein fyrir því og snéri sér við og tæmdi úr .357 magnum skammbyssu beint á varúlfinn. Varúlfurinn hikaði ekki einu sinni. Hann reif manninn í tætlur. Enginn á samkomunni dirfðist að hreyfa sig eða láta í sér heyra, vegna hræðslu um að varúlfurinn mundi snúa sér næst að honum.

Þessar verur eru manneskjur, sem sérstök tegund af voldugum djöflum, hafa náð á sitt vald. Þeir geta framkallað ákveðnar breytingar á mannslíkamanum. Sum handrit kristinna manna frá hinum myrku miðöldum, sem fjalla um þessar verur í Evrópu eru mjög nákvæm. Ég hef aldrei fundið neinar nákvæmlega réttar lýsingar á þeim, nema í fornum ritum Satanista sem geymd eru í hvelfingum setursins sem Satanistar eiga í hlíðum Kaliforníu. Allir innan reglunnar hata og óttast þessar verur. Þær eru einfarar, 100% ofurseldar Satan. Ég býst við, að á þrengingatímabilinu muni fjöldi þeirra aukast verulega og þá muni Satan nota þær á augljósan hátt.

Aðrar aðferðir, sem eru mikið notaðar til refsinga, eru sjúkdómar af völdum illra anda. Einnig slys, atvinnumissir, o.s.frv. Sjúkdómar af völdum illra anda eru venjulega í miklu uppáhaldi, vegna þess að fáir læknar geta sjúkdómsgreint sjúklinginn sem deyr hægt og rólega á mjög kvalafullan hátt, meðan læknirinn heldur að sjúklingurinn sé að ímynda sér sjúkdómseinkennin.

Flest þeirra barna sem eiga foreldra í reglunni eru vígð Satan, á svipaðan hátt og börn eru blessuð í kristnum kirkjum. Athöfnin felur í sér “skírn” ungbarnsins í blóði fórnardýrs. Þessi börn verða andsetin áður en þau fæðast. Þetta heldur áfram kynslóð eftir kynslóð nema einhverjir foreldrarnir geri Jesú Krist að Drottni og leiðtoga lífs síns og leyfi blóði hans að hreinsa burt allar syndir sínar.

Blóð Jesú er svo máttugt og verk hans á krossinum svo fullkomið, að jafnvel varúlfarnir gætu frelsast ef þeir vildu. Jesús getur reist þá dauðu upp í dag á sama hátt og hann gerði þegar hann gekk um á jörðinni sem maður, og þetta fólk undir stjórn Satans er dautt. Ég lofa Guð fyrir að ég er fullkomlega frjáls í dag. Ég tilheyri Jesú einum, og það er engin leið fyrir Satan eða hans fólk að koma í veg fyrir að ég segi frá hvað er að gerast í konungsríki hans.

Lesandi minn, ef þú ert meðlimur í Bræðralaginu, þá getur þú einnig frelsast úr þessum fjötrum. Þú þarft ekki að tilheyra konungsríki Satans sem er ríki illsku, myrkurs og ótta. Jesús getur og vill frelsa þig. Það eina sem þú þarft að gera er að biðja hann að þvo burtu syndir þínar með blóði sínu og verða Drottinn þinn og leiðtogi. Ekki bíða, tíminn er mjög stuttur. Jesús kemur skjótt aftur. Það er ekki langur tími til stefnu. Flýttu þér á meðan tími er til. Verður þú skilinn eftir þegar Jesús kemur til að sækja sinn lýð og færir hann heim? Ég bið þig, snúðu þér til hans núna!

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

7. kafli af 20 · 5 mín. eftirRefsingar innan Bræðralagsins