Sextándi kafli
Baráttuaðferðir
Rebekka segir frá:
Guð kallaði okkur til þess að vera hermenn, ekki friðarsinna. Hvergi í Biblíunni er talað um hinn “mjúka, kristna mann.” Eins og rætt hefur verið um í köflunum á undan, þá eigum við að berjast eins og hermenn, og aðallega í andaheiminum. Við búum í heimi sem stjórnað er af Satan, og tíminn er á þrotum. Satan er að verða djarfari og djarfari.
“Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi ogblóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessamyrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum."Efesusbréfið 6:12
"Þótt vér lifum jarðnesku lífi, þá berjumst vér ekki á jarðneskanhátt, því að vopnin, sem vér berjumst með, eru ekki jarðnesk,heldur máttug vopn Guðs til að brjóta niður vígi."2. Korintubréf 10:3-4
"Þú skalt og að þínu leyti illt þola, eins og góður hermaður KristsJesú. Enginn hermaður bendlar sig við atvinnustörf. Þá þóknasthann ekki þeim, sem hefur tekið hann á mála."2. Tímóteusarbréf 2:3-4
"Bölvaður sé sá, sem slælega framkvæmir verk Drottins, ogbölvaður sé sá, sem synjar sverði sínu um blóð!"Jeremía 48:10
Þegar við göngum í því valdi og umboði, sem Jesús hefur gefið okkur, og sækjum á í stríði okkar við Satan, munu ofsóknirnar, sem óhjákvæmilega koma, ekki koma á þann hátt sem við höldum.
Fólk stendur ekki upp og segir, “Við baktölum þig, vegna þess að þú stendur með Jesú.” Nei, þú verður ásökuð um að gera alls kyns ranga hluti, sem þú gerðir ekki, fyrir að vera of róttæk og að vera ekki í hugarjafnvægi. Geðklofi og ofsóknarbrjálæði eru uppáhalds ásakanir Satans. Þú munt verða ófrægð af kristnum félögum þínum meira en af ókristnu fólki. Satan blekkir alltaf og lýgur. Ekkert er eins og það sýnist vera. Árangursríkustu þjónar hans eru þeir sem virðast vera þeir trúræknustu, þeir sem mæta alltaf reglulega til kirkju, þeir sem eru fjárhagslega best stæðir og eru virtir og dáðir innan samfélagsins. Það eru þeir sem munu ásaka og ofsækja þá sem stunda andlegan hernað fyrir Krist. En við verðum að berjast, ef við eigum að bjarga sálum og leiða þær til Jesú.
“Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki. Sælir eruð þér, þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna. Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar eru mikil á himnum. Þannig ofsóttu þeir spámennina, sem voru á undan yður." Matteus 5:10-12
Undrastu ekki, þegar ofsóknirnar koma frá fólki innan þinnar eigin kirkju, frá þeim sem þú hélst að væru kristnir bræður þínir og systur, og frá fjölskyldu þinni. Ritningarnar eru skýrar.
“Ég veit, að skæðir vargar munu koma inn á yður, þegar ég er farinn, og eigi þyrma hjörðinni. Og úr hópi sjálfra yðar munu koma fram menn, sem flytja rangsnúna kenningu til að tæla lærisveinana á eftir sér." Postulasagan 20: 29-30
"Því að slíkir menn eru falspostular, svikulir verkamenn, er taka á sig mynd postula Krists. Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna. Afdrif þeirra munu verða samkvæmt verkum þeirra." 2. Korintubréfið 11:13-15
Eitt atriði viljum við báðar hafa á hreinu. Við erum ekki að reyna að gefa ykkur fyrirmæli eða að stjórna ykkur á einhvern hátt. Við erum einfaldlega að deila með ykkur því sem Drottinn hefur kennt okkur. Þið verðið að fá endanlega leiðsögn beint frá Drottni. Þið verðið að læra að hlusta eftir Drottni í anda ykkar og huga. Einungis Heilagur andi getur kennt ykkur þetta, en þið verðið að biðja um það og leita eftir samfélagi við hann af einlægni. Sem einstaklingur berð þú þá ábyrgð frammi fyrir Drottni, að rannsaka vandlega allt það sem aðrir segja þér, og athuga hvort það sé í samræmi við ritningarnar. Þar á meðal þessa bók og allt það sem forstöðumaðurinn þinn segir. Páll gaf þau fyrirmæli sjálfur í Fyrra Korintubréfi.
“En spámenn tali tveir eða þrír og hinir skulu dæma um."1. Korintubréf 14:29
Lesandinn ætti að lesa allt fyrra Korintubréfið, þar sem það inniheldur mikið af vanræktum og óframkvæmdum boðum varðandi kirkjuþjónustu okkar í dag.
Hver sá sem tekur þátt í andlegum hernaði verður að vera reiðubúinn að berjast á fleiri en einum vígstöðvum. En munið, að þið stjórnið því ekki hvernig eða hvar þið berjist. Einungis Drottinn stjórnar því. Við erum einfaldlega reiðubúin fyrir hann, til þess að hann noti okkur eins og hann kýs. Hann er hershöfðinginn okkar. Takmark okkar er alltaf að gera vilja Jesú Krists, að vegsama nafn hans og að koma öðrum til þekkingar á Jesú. Munið alltaf eftir því að Jesús er Guð! Hver sá sem segir að hann sé eitthvað minna en það, boðar falska kenningu.
Farðu varlega í því, hvern þú reiðir þig á, vertu vitur, vertu alltaf vakandi fyrir leiðsögn Drottins. Drottinn varaði okkur við:
“Eigi skalt þú fljótráðið leggja hendur yfir nokkurn mann....."1.Tímóteusarbréf 5:22
Bíðið eftir því að sjá ávöxt í lífi fólks; bíðið eftir því að Drottinn gefi ykkur fullkominn frið gagnvart þeim.
“Þér elskaðir, trúið ekki sérhverjum anda, heldur reynið andana, hvort þeir séu frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn." 1. Jóhannesarbréf 4:1
Munið, að Satan og illir andar hans munu alltaf reyna að blekkja ykkur, sérstaklega í andlegum málum.
Það eru að minnsta kosti 8 skref, sem sá þarf að taka, sem er alvarlega að hugsa um að fara í andlega baráttu. Þau eru þessi:
#1) Þú verður að þiggja algjöra yfirstjórn Jesú, á öllum sviðum lífs þíns.
#2) Þú verður að vera tilbúinn til að sættast algjörlega við krossinn í lífi þínu, og ganga veg krossins daglega. Til er bók eftir Dr. A.W. Tozer sem heitir The Pursuit Of God, (Leitin að Guði), sem mér finnst að allir kristnir ættu að lesa. Eftirfarandi tilvitnun skýrir þetta betur en ég gæti gert.
“Allt í Nýja Testamentinu er í samræmi við mynd Gamla Testamentisins. Endurleyst fólk þarf ekki lengur að vera hrætt við að mæta Heilögum anda. Guð vill að við nálægjumst hann og að við lifum öllu okkar lífi í nærveru hans. Það ætti að verða okkur meðvitaður veruleiki. Þetta er ekki aðeins kenning, sem við eigum að fara eftir; þetta er líf sem við ættum að njóta hverja stund, hvern dag..... “Á sama hátt er nærvera Guðs meginkjarni Kristindómsins. Kjarni Kristins boðskapar er Guð sjálfur bíðandi eftir endurleystum börnum sínum, að þau komist til meðvitundar um nærveru hans. Sú tegund Kristindóms, sem er áberandi um þessar mundir, þekkir þessa nærveru aðeins úr kenningum, en ekki sem forréttindi raunverulegrar reynslu. Samkvæmt þeim kenningum þá erum við í nærveru Guðs vegna stöðu okkar, og ekkert er talað um það að þörf sé á að upplifa þessa nærveru........ Hvað er það sem hindrar okkur?
“Svarið, sem vanalega er gefið, það að við séum einfaldlega of “köld,” útskýrir ekki allar staðreyndir málsins. Það er meiri alvara á ferð, heldur en kalt hjarta.... Hvað er það? Hvað annað en hula fyrir hjarta okkar? Hula, sem ekki var fjarlægð á sama hátt og fyrsta hulan, og heldur ljósinu úti og felur fyrir okkur ásjónu Guðs. “Sjálfið er ógagnsæ hula, sem felur auglit Guðs fyrir okkur. Hún fjarlægist eingöngu við andlega reynslu, aldrei með því að fara eftir leiðbeiningum. Við gætum alveg eins reynt að skipa holdsveiki að fara úr líkama okkar. Það er ýmislegt í okkur, sem Guð þarf að rífa niður áður en við verðum frjáls. Við verðum að bjóða krossinum að vinna þetta verk dauðans innra með okkur. Við verðum að koma með syndir okkar að krossinum til dóms. Við verðum að gera okkur reiðubúin fyrir eldraun þjáningarinnar að einhverju marki, á svipaðan hátt og Frelsarinn okkar, þegar hann þjáðist undir Pontíusi Pílatusi. “ Við skulum muna að þegar við tölum um að fjarlægja huluna, þá tölum við um það á myndrænan hátt, og hugsunin um það er ljóðræn, nærri því þægileg, en í veruleikanum er ekkert þægilegt við það. Í lífi einstaklingsins er hulan gerð úr lifandi, andlegum þráðum; hún er úr viðkvæmum hlutum, og að hrófla við henni er sársaukafullt. Ef hún er rifin burt, þá meiðum við okkur og það blæðir. Að segja annað væri það sama og að segja að kross sé ekki kross og að dauði sé alls ekki dauði. Það er aldrei gaman að deyja. Að rífa niður hluti, sem eru manni kærir eins og lífið getur verið, getur aldrei verið öðruvísi en mjög sársaukafullt. Samt var það það, sem krossinn gerði við Jesú, og það er það sem krossinn gerir við alla menn, til að gera þá frjálsa. "Við skulum varast það að káka með okkar innra líf í þeirri von að við sjálf getum rifið huluna. Guð verður að gera allt fyrir okkur. Okkar hlutverk er að láta undan og treysta. Við verðum að játa, yfirgefa, afneita lífi sjálfsins og síðan lýsa það krossfest. En við verðum að gæta þess að greina á milli Hálfvelgjulegs samþykkis okkar og hinnar raunverulegu gjörðar Guðs. Við verðum að vera staðráðin í því að Guð vinni þetta verk í okkur. Við megum ekki láta okkur nægja að meðtaka sjálfs-krossfestinguna sem eintóma kenningu. Með því móti værum við að gera það sama og Sál og skjóta undan besta fénu og uxunum. "Verið staðráðin í því að Guð vinni verkið í raun og veru, og þá mun hann gera það. Krossinn særir og deyðir, en hann vinnur sitt verk. Við munum ekki þurfa að þjást á honum um alla eilífð, Að því kemur að verk hans er fullkomnað, og hið þjáða fórnarlamb deyr. Þá veitist dýrð og máttur upprisunnar, og þjáningin gleymist vegna gleðinnar yfir því að hulan er í burtu tekin og návist hins lifandi Guðs er orðin okkur raunveruleg, andleg upplifun." Bls. 46 & 47 #3) Þú verður að vera fús til að fórna þínu eigin lífi og líf ástvina þinna, ef Drottinn vill. Þú getur sennilega átt von á algjörum umskiptum í lífi þínu.
“Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður. Hver sem tekur ekki sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður." Matteus 10:37-38
"Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það." Matteus 10:39
#4) Þú verður að læra að heyra í Drottni þegar hann talar til þín. Þá á ég ekki við rödd sem heyrist með líkamlegum eyrum, heldur á ég við það þegar Drottinn talar inn í anda þinn og það birtist þér skyndilega í formi hugsunar. Það er ein af ástæðunum fyrir því að það er svo mikilvægt að við skoðum hugsanir okkar og biðjum Drottin að halda huga okkar og hjarta hreinu. “Enn hef ég margt að segja yður, en þér getið ekki borið það nú. En þegar hann kemur, andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikann. Hann mun ekki mæla af sjálfum sér, heldur mun hann tala það, sem hann heyrir, og kunngjöra yður það, sem koma á. Hann mun gjöra mig dýrlegan, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður." Jóhannes 16:12-14
"Og einnig heilagur andi vitnar fyrir oss. Fyrst segir hann: Þetta er sáttmálinn, er ég mun gjöra við þá eftir þá daga, segir Drottinn. Lög mín vil ég leggja í hjörtu þeirra, og í hugskot þeirra vil ég rita þau." Hebreabréfið 10:15-16
Heilagur andi vekur upp hugsanir í huga okkar, það er þannig sem hann talar við okkur og vitnar fyrir okkur. Satan getur einnig skotið hugsunum inn í huga okkar, en munið að Heilagur andi staðfestir í hjarta ykkar og anda, hvað er frá Satan og hvað ekki. Biblían er öryggisnetið okkar. Drottinn segir þér aldrei neitt, nema það sé í samræmi við hans Orð, Biblíuna. Og ef þú ert að biðja og tala við Dottin í huganum, þá getur Satan ekki lesið hugsanir þínar og sett inn hugsanir, sem eru ekki í samræmi við bænir þínar. Þetta er önnur mikilvæg ástæða fyrir því, hvers vegna þú verður að læra að stjórna huga þínum svo að hann sé ekki “út og suður” þegar þú ert að biðja, eða ert í návist Drottins.
“Ég elska þá sem mig elska, og þeir sem leita mín, finna mig.”Orðskviðirnir 8:17
Heilagur andi getur kennt þér að heyra rödd sína. Það getur verið að þú verðir að leita eftir samfélagi við hann með mikilli föstu, tárum og bænum. Munið, að Drottinn gerir aldrei neitt í flýti, og hann mun sennilega prófa hversu einlægur þú ert. Ef þú hefur ekki beðið Drottin um að krossfesta hold þitt, eins og talað er um í grein Tozers hér á undan, og ert ekki fullkomlega skuldbundinn honum, þá munt þú ekki getað þróað slíkt samfélag við hann.
Þegar Drottinn talar til þín, og þú ert búinn að sjá að það sem hann sagði er samhljóða Biblíunni, og Heilagur andi hefur staðfest í hjarta þínu að þú hafir sannarlega heyrt hans röddu, þá verður þú að standa í þeirri trú að svo sé. Annars reynir Satan að sannfæra þig um að þú hafir í raun ekki heyrt í Drottni, að þú sért bara að ímynda þér það.
“Sjálfur Andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn.”
Rómverjabréfið 8:16
“Því er það, eins og Heilagur andi segir: Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar, eins og í uppreisninni á degi freistingarinnar á eyðimörkinni; Hebreabréfið 3:8-9
Heilagur andi talar við okkur ef við hlustum á rödd hans. Og þegar við gerum það, megum við ekki herða hjörtu okkar, heldur standa upp í trú og hlýða því sem Heilagur andi segir okkur. Vanalega byrjar Heilagur andi á því að vekja athygli hins trúaða á einhverju, sem Drottni er ekki að skapi. Það er freistandi að sinna því ekki og halda áfram að gera það sem Drottinn var að benda á að gera ekki. Ef þú gerir það, þá ert þú að “forherða hjarta þitt”, og það stoppar áframhaldandi samband við Drottin.
Heilagur andi vitnar með þínum anda, hvort það, sem þú heyrðir, sé frá honum. Ef það sem þú heyrðir, er ekki frá honum, þá verður þú að læra að vera næm / næmur á það hik, sem þú finnur fyrir og sannprófa hvort það reynist rétt. Allt of oft erum við óþreyjufull að halda áfram og sannreynum ekki hvort við séum að gera rétt eða rangt. Við verðum að vera þolinmóð og bíða eftir staðfestingu áður en við hefjum aðgerðir. Í andlegum hernaði er ekkert pláss fyrir fljótfærni.
#5) Þú verður að læra að stjórna huganum algjörlega. Þetta verður sennilega eitt af því erfiðasta sem þú hefur nokkurn tíma gert. Skipanir Drottins eru skýrar:
“Þótt vér lifum jarðnesku lífi, þá berjumst vér ekki á jarðneskan hátt, - því að vopnin, sem vér berjumst með, eru ekki jarðnesk, heldur máttug vopn Guðs til að brjóta niður vígi. Vér brjótum niður hugsmíðar og allt, sem hreykir sér gegn þekkingunni á Guði, og hertökum hverja hugsun til hlýðni við Krist.”
2. Korintubréf 10:5
“Hegðið yður eigi eftir öld þessari; heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins..............” Rómverjabréfið 12:2
Hugurinn er helsti vígvöllurinn, og Satan ræðst oftar á huga manna, en á nokkuð annað. Sú barátta er þrotlaus, óvægin og stendur eins lengi yfir og við lifum hér á jörðinni. Þú getur ekki lengur leyft hugsunum að fljóta letilega um hugann. Við erum ábyrg frammi fyrir Guði um að kryfja hverja hugsun sem fer í gegnum hugann, til þess að ákvarða hvort hún sé í hlýðni við Krist.
Horfumst í augu við það - við erum löt að eðlisfari. Ég get sagt þér það, að þegar Guð sýndi mér þetta fyrst, þá var þetta eitt af því erfiðasta sem hann hefur beðið mig að gera. Til að komast í gegnum læknanámið, þurfti ég að læra tímunum saman. Ég vissi hvernig það var að einbeita mér algjörlega að einhverju, en ég gat ekki ennþá stjórnað huga mínum. Allir eiga sér hugarheim þar sem hugsanirnar hrærast án afláts, þannig erum við sköpuð. Við berum ábyrgð á því að hertaka allar þessar hugsanir fyrir Jesú Krist.
Þú verður að skilja að Satan getur dælt hugsunum inn í huga þinn á sama hátt og læknir sprautar lyfjum í líkama þinn. Satan og illu andarnir hans geta gert þetta fyrir utan líkama þinn. Þeir þurfa ekki að vera inni í þér til að gera þetta. En þrátt fyrir það, þá geta þeir ekki lesið hugsanir þínar. Einungis Guð getur þekkt hugsanir þínar og fyrirætlanir (sjá Hebreabréfið 4:12-13 og Jeremía 17:9-10). Þess vegna verðum við, eins og Jesús sýndi okkur þegar hann var hér á jörðinni í mannlegum líkama, að hasta upphátt á Satan og illu andana hans.
Satan mun setja hugsanir í huga þinn, sem byrja á “ég" eða "mig”, til þess að láta þig halda að hugsunin hafi upphaflega komið frá þér. Til dæmis, “Mig langar rosalega að__________,” eitthvað, sem þú veist að er synd. Um leið og þú gerir þér grein fyrir að slík hugsun er í huga þínum, þá þarft þú að ráðast gegn hinum raunverulega orsakavaldi. Upphátt segir þú eitthvað á þessa leið: “Satan og þið illu andar, ég hasta á ykkur í Jesú nafni. Ég tek ekki við þessari hugsun. Farið burt!” Síðan neyðir þú þig til að hugsa um ritningarvers, og lest upphátt, ef það er nauðsynlegt til að stjórna huganum.
“Að endingu, bræður, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dyggð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.” Filippíbréfið 4:8
Þetta er annað dæmi um það, hvernig við getum stjórnað huga okkar. Við verðum bókstaflega að endurþjálfa og endurnýja huga okkar, eins og segir í Rómverjabréfinu:
“Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomnað " Rómverjabréfið 12:2
Þetta krefst tíma, þrautseigju og mikillar vinnu!
“Íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartansmeðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi.”Kólossusbréfið 3:12
Veltir þú því aldrei fyrir þér hvernig þú ferð að því að “íklæðast” hlutum eins og góðvild, meðaumkun og svo framvegis? Það gerði ég oft og mörgum sinnum. Loksins gaf Drottinn mér svarið. Við verðum að þjálfa hugann áður, þannig að þegar við lendum í aðstæðum þar sem fólk vill okkur ekki vel, þá bregðumst við ekki einfaldlega við á okkar náttúrulega hátt, þar sem augnablikstilfinningar ráða ríkjum, heldur kjósum við að bregðast við með miskunnsemi Guðs og endurgjöldum illt með góðu.
Hinn vel þekkti kínverski, kristni rithöfundur, Watchman Nee, lýsir baráttu hugans á eftirfarandi hátt: "Samkvæmt Biblíunni er mannshugurinn óvenjulegur að því leyti að hann er orrustuvöllur þar sem Satan og illir andar hans berjast gegn sannleikanum og þar með hinum trúaða. Lýsa má þessu með eftirfarandi hætti. Vilji og andi mannsins eru eins og borgarvirki sem illu andarnir eru að reyna að ná á sitt vald. Orrustuvöllurinn, þar sem barist er um yfirráðin yfir borgarvirkinu, er mannshugurinn. Takið eftir, hvernig Páll postuli lýsir þessu: "Þótt vér lifum jarðnesku lífi, þá berjumst við ekki á jarðneskan hátt, - þvi að vopnin, sem ver berjumst með, eru ekki jarðnesk, heldur máttug vopn Guðs til að brjóta niður vígi. Vér brjótum niður hugsmíðar og allt, sem hreykir sér gegn þekkingunni á Guði, og hertökum hverja hugsun til hlýðni við Krist" (2. Korintubréf 1O:3-5). Hann byrjar á því að tala um baráttu, síðan hvar baráttan á sér stað, og loks um hvað er barist. Barátta þessi er einskorðuð við mannshugann. Postulinn líkir mannlegum röksemdum við óvinavígi. Hann segir að hugurinn Sé á valdi óvinarins; þess vegna verði að gera áhlaup og brjótast inn í hann. Að 1okum segir hann að margar óstýrilátar hugsanir sé að finna i vígjum þessum, og nauðsynlegt sé að hertaka hverja þeirra til hlýðni við Krist. þetta sýnir okkur augljóslega að mannshugurinn er vettvangur orrustunnar þar sem illu andarnir takast á við Guð … Í járnklóm Satans verður mannshugurinn forhertur", og maðurinn lýtur vilja holdsins og hugsana sinna, eins og "reiðinnar börn", og verður "fráhverfur og óvinveittur Guði i hug, "sökum þess að "hyggja holdsins er fjandskapur gegn Guði" (2. Korintubréf 3:14; Efesusbréfið 2:3; Kólossubréfið 1:21; Rómverjabréfið 8:7). "Við lestur þessara ritningargreina verður okkur ljóst að myrkravöldin eru í nánum tengslum við mannshugann og honum er einkar hætt við árásum þeirra. Hvað varðar vilja, tilfinningalíf og líkama mannsins, þá geta myrkravöldin ekki valdið þar neinum beinum skaða, nema þau hafi þegar fest þar nokkrar rætur. En i mannshuganum geta þau leikið lausum hala, án þess að beita einstaklinginn fortölum eða fá samþykki hans á undan. Svo virðist sem hugurinn sé þegar þeirra eign. Þegar postulinn líkir mannshuganum við óvinavígi, virðist hann ganga út frá því að Satan og illir andar hans hafi þegar náð sterku tangarhaldi á huganum og noti hann á einhvern hátt til þess að hneppa fórnarlömb sín i fjötra. Þeir nota mannshugann sem valdatæki sitt og nota huga fórnarlamba sinna til að smita aðra af eitruðum hugsunum og fá þá til þess að rísa gegn Guði. Erfitt er að leggja mat á, hve mikið af heimspeki, siðfræði, þekkingu, rannsóknum og vísindum heimsins er komið frá myrkravöldunum. En eitt getum við verið viss um: allar hugsmíðar og annað; sem hreykir sér gegn þekkingunni á Guði, eru vígi óvinarins. "Eigum við erfitt með að trúa því að hugurinn sé svo nátengdur valdi hins illa? Var fyrsta synd mannsins ekki fólgin í því að vilja vita skyn góðs og ills, og það að tillögu Satans? Af því sjáum við að mannshugurinn er sterklega tengdur Satan. Ef við læsum ritningarnar vandlega og gaumgæfðum reynslu hinna heilögu, myndum við komast að því að öll samskipti manna við djöfulleg öfl fara fram á sviði hugsunarinnar. Athugum til dæmis freistingu Satans. Í hvert sinn sem hann freistar mannsins, gerir hann það í huganum. Satt er það, að Satan notar oft holdið sem beitu til að tryggja sér jáyrði viðkomandi, en í hverju tilviki vekur óvinurinn upp freistandi tilhugsun af einhverjum toga. Allar freistingar mæta okkur íklæddar búningi hugsana… "Upprunaleg skilgreining á iðrun er ekkert annað en "sinnaskipti" eða "breyting hugarfarsins." … "En jafnvel þótt hinn trúaði iðrist, þá er hugur hans ekki fyllilega sloppinn úr klóm Satans. Óvinurinn mun beita huganum fyrir sig í dag með sama hætti og hann gerði forðum daga. Í bréfi sínu til hinna trúuðu í Korintu, segist Páll vera "hræddur um, að eins og höggormurinn tældi Evu með flærð sinni, svo kunni og hugsanir yðar að spillast og leiðast burt frá einlægri og hreinni tryggð við Krist" (2. Korintubréf 11:3). Postulinn gerir sér fulla grein fyrir því, að eins og guð þessa heims blindar hugsun hinna vantrúuðu, muni hann einnig blekkja huga hinna trúuðu … Óvinurinn á auðveldast með að ná takmarki sínu á vettvangi hugans. Hjarta Evu var syndlaust, en samt vakti Satan með henni lokkandi hugsanir. Hún lét tælast af flærð hans, féllst á röksemdir hans og féll í gildru óvinarins. Því skyldi sérhver trúaður gæta þess að stæra sig ekki af heiðarleik sínum og einlægni, því ef hann lærir ekki að hrinda illu öndunum burtu úr huga sínum, mun hann verða fyrir stöðugum freistingum og táli, svo hann missir stjórn á vilja sínum. Bls, 7-10. "Guð vill færa hugarfar okkar í hið sama fullkomna horf og það hafði, þegar hann skapaði það, svo að við gerum Guð ekki einungis dýrlegan með breytni okkar, heldur getum einnig gert hann dýrlegan í hugsun okkar. Hver getur talið öll þau Guðs börn sem, vegna skeytingarleysis um huga sinn, verða þröngsýn, þrjósk og þrákelkin, og stundum jafnvel spillt. Þau missa af dýrð Guðs. Lýður Drottins verður að gera sér ljóst, að ef hann vill eignast líf í fullri gnægð, þá verður hugarfarið einnig að endurnýjast. Hvenær sem eitthvert barna Guðs veitir því athygli að það fær ekki lengur stjórnað hugsunum, ætti það að gera sér grein fyrir því að óvinurinn er farinn að stjórna því … Guð vill að maðurinn stjórni sér sjálfur. Maðurinn hefur vald til þess að stjórna öllum náttúrulegum eiginleikum sínum, og því skyldi hugarstarf hans lúta valdi vilja hans. Sérhver kristinn maður ætti að prófa sjálfan sig og spyrja: Eru þetta mínar hugsanir? Er það ég sem hugsa þetta? Ef það er ekki ég, þá hlýtur það að vera illi andinn sem kann að starfa í huga mannsins. Viðkomandi ætti að gera sér grein fyrir því, að ef hugsanir kvikna í hugskoti hans, þegar hann ætlar sér ekki að hugsa neitt, þá eru þær ekki frá honum komnar, heldur frá hinum illa anda." Bls. 12-13 The Spiritual Man, Volume III, eftir Watchman Nee.
Hér eru nokkur dæmi.
A. Hugsanir hinna endurfæddu eiga sér þrjár uppsprettur: Persónuna sjálfa, Heilagan anda, og Satan og illa anda hans. Næstum alls staðar þar sem við förum og höldum fyrirlestra, er fólk að setja út á okkur og segja að við megum ekki tala um Satan, því að þá séum við að gefa honum dýrðina, o.s.frv., o.s.frv. Hvers vegna? Vegna þess að oftast eru nornir í áheyrendahópnum. Þær sitja baka til, og með einföldum seið senda þær illan anda til hverrar persónu í áheyrendaskaranum (ath. illu andarnir fara ekki inn í fólkið). Illu andarnir fá fólk til að hugsa, “Þessar konur ættu ekki að tala um Satan, því þá eru þær að gefa honum dýrðina.” Persónan heldur að þetta sé hennar eigin hugsun og hljóti þar með að vera sönn.
B. Stelpan, sem bjó með mér í herbergi, þegar ég kynntist Elaine, var ekki kristin, og í hreinskilni sagt þá líkaði mér alls ekki við hana. Ég hafði samþykkt gegn vilja mínum að leyfa henni að búa með mér út skólaárið í þeirri von að ég gæti leitt hana til Drottins, en þetta var mjög erfitt ár. Við vorum mjög ólíkar persónur, og hún fór mikið í taugarnar á mér. Á þessum tíma var Drottinn að kenna mér að stjórna huga mínum. Eitt af því fyrsta, sem Heilagur andi sýndi mér, var að flestalla morgna þegar ég var að búa mig undir að fara í vinnuna og var ekki einu sinni búin að hitta Svövu, þá var ég búin að vera að rífast við hana í huganum, og þegar ég hitti hana, var ég orðin svo reið að ég bauð henni ekki einu sinni góðan daginn. Hvaðan komu þessar hugsanir? Ekki frá mér. Ég átti svo erfitt með að stjórna þeim, og stundum kom að því, að ég sagði við sjálfa mig, “Rebekka, þegiðu!” En það dugði ekki, reiðihugsanirnar héldu aðeins áfram. Hvers vegna? Vegna þess að með því að segja sjálfri mér að þegja, var ég að verjast Satan með mínum eigin mætti. Þegar við reynum að standa gegn Satan í okkar eigin mætti, þá töpum við orrustunni áður en við byrjum.
En þegar Heilagur andi hafði kennt mér og þjálfað mig í að kannast við að þessar hugsanir voru utanaðkomandi og frá Satan, þá vann ég sigur er ég hastaði upphátt á hann í Jesú nafni. Fljótlega lærði ég að mæta fyrstu neikvæðu eða reiðilegu hugsuninni um Svövu, sem kom inn í huga minn, og segja strax upphátt, “Satan og þið illu andar, ég hasta á ykkur í Jesú nafni! Ég ætla ekki að taka við þessari hugsun um Svövu,” og síðan neyddi ég mig til þess að hugsa um einhver vers úr Biblíunni og fara með þau upphátt. Þá vann ég sigur vegna þess að ég stóð í gegn Satan með krafti Jesú, og samband mitt við hana batnaði til muna. Hversu mörg hjónabönd, fjölskyldur, kirkjur og heilu samfélögin hafa ekki verið eyðilögð með þessu einfalda herbragði Satans? (sjá myndir I, II, & III. )
#6) Að læra ritningarvers utanbókar er einnig mikilvægt atriði.
“Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu... Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér. Sálmur 119:9 & 11
Leiðin til að geyma Guðs orð í hjarta sínu er að leggja þau á minnið. Ég get ekki lagt á það nógu mikla áherslu. Trúðu mér, þegar þú berst við illa anda, þá hefur þú ekki tíma til að fletta í gegnum Biblíuna þína. Þú gætir jafnvel týnt lífi þínu eða lífi þess, sem þú ert að reyna að leysa, ef þú tekur þér tíma þó ekki væri nema til þess að opna Biblíuna.
Það er til auðveld leið til þess að leggja á minnið ritningarvers. Finndu þér sérstakan tíma hvern dag. Ég nota u.þ.b. 20 mínútur á hverjum morgni þegar ég blæs á mér hárið. Skrifaðu versið, sem þú ætlar að muna, á lítið spjald. Ég festi spjöldin mín á spegilinn. Best er að takmarka hverja ritningargrein við 2-3 vers. Síðan lestu versin upphátt aftur og aftur þangað til þú getur farið með þau einu sinni eða tvisvar fullkomlega með lokuð augun. T.d .
“Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, tilþess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf."Jóhannes 3:16 “
Gerðu þetta einu sinni á dag, og skiptu út versum einu sinni í viku. Ef þú gerir þetta samviskusamlega á hverjum degi í þrjá mánuði, þá manstu þau vers það sem eftir er. Þú munt komast að því að Heilagur andi minnir þig á þessi vers oft á dag. Þetta er fljótleg og auðveld leið til að muna ritningarvers án mikillar fyrirhafnar.
#7) Yfirvald. Guð setur fólk sitt undir yfirvald. Þetta er lexía, sem við verðum snemma að læra ef við eigum að komast af í andlegri baráttu. Ef við lærum ekki að beygja okkur undir landslög, munum við aldrei almennilega beygja okkur undir Guð, og þar með munum við tapa mörgum orrustum vegna þess að við heyrðum ekki í eða beygðum okkur ekki undir herforingja okkar Jesú Krist. Ég held að hér væri viturlegt að vitna í bók Watchman Nee, Spiritual Authority:
“Börn Guðs ættu ekki aðeins að læra að þekkja yfirvald, heldur ættu þau einnig að leita eftir því hverjum þau ættu að beygja sig fyrir. Hundraðshöfðinginn talaði við Drottin Jesú og sagði: ‘Því að ég er og maður sem yfirvaldi á að lúta og hefi hermenn undir mér’ (Matt.8:9). Hann var sannarlega maður sem viðurkenndi yfirvald. Í dag heldur Guð uppi öllum alheiminum með valdi sínu, og sameinar börn sín með valdi sínu. Ef eitthvert af börnum hans er sjálfstætt og treystir bara á sjálft sig og lýtur ekki því valdi sem Guð hefur skipað, þá getur sá hinn sami aldrei fullkomnað verk Guðs á jörðu. Hvert eitt og einasta barn Guðs verður að leita að yfirvaldi til þess að hlýða, svo hann eða hún geti orðið samstillt öðrum. Það er sorglegt að segja það, en mörgum hefur mistekist þetta.” bls. 115
Ef þú getur ekki beygt þig undir verkstjórann í vinnunni þinni, hvernig getur þú þá beygt þig undir yfirvald Guðs? Einnig skaltu fara varlega í því að ákveða hvaða yfirvald þú beygir þig undir. Ekki flýta þér að velja kirkju, þar til þú veist fyrir víst að þetta er sú kirkja sem Drottinn hefur valið fyrir þig. Þegar þú hefur einu sinni sett þig undir slíkt yfirvald þá lítur Guð það mjög alvarlegum augum ef þú hlýðir síðan ekki því yfirvaldi. Ef þú óhlýðnast því yfirvaldi, þá ert þú að gefa Satan fótfestu í lífi þínu.
Það sama á við um konur. Mjög mörgum ungum konum finnst eins og þær geti ekki lifað án þess að gifta sig, og þess vegna hafa þær tilhneigingu til þess að giftast hverjum þeim sem sýnir þeim áhuga. Ég hef séð svo mörg sorgleg dæmi þess að ungar konur, sem í einlægni vilja þjóna Drottni, eru bundnar í hjónabandi með eiginmanni sem hefur ekki áhuga á að þjóna Drottni. En vegna þess að þær eru búnar að skuldbinda sig í hjónaband, þá heiðrar Guð ekki neina uppreisn af þeirra hálfu gegn eiginmanninum. Þær verða aldrei frjálsar til að þjóna Drottni á þann hátt, sem þær hefðu verið, ef þær hefðu ekki gifst manninum.
Ef sá tími kemur að þú þarft að velja á milli þess að beygja þig fyrir Guði eða stjórnvöldum þá verður þú að velja Guð, en þú verður að gera það fyrir opnum tjöldum og taka síðan afleiðingunum. Til dæmis neitaði Daníel að fara eftir þeirri tilskipun, sem Daríus konungur setti, um að ekki mætti biðja til Guðs í þrjátíu daga, en Daníel gerði það ekki í leyndum.
“En er Daníel varð þess vísari, að þessi skipun var út gefin, gekk hann inn í hús sitt. Þar hafði hann uppi í loftstofu sinni opna glugga, er sneru móti Jerúsalem, og þrem sinnum á dag kraup hann á kné, bað til Guðs síns og vegsamaði hann, eins og hann hafði áður verið vanur að gjöra.” Daníel 6:10
Daníel hlýddi Guði framar en stjórnvöldum, en hann gerði það fyrir opnum tjöldum, reiðubúinn að taka við refsingu. Guð heiðraði Daníel fyrir það og bjargaði honum undan ljónunum í ljónagryfjunni sem honum var varpað í. Margir píslarvottar hafa fórnað lífi sínu fyrir að hlýða Guði framar stjórnvöldum. Hversu mörg ykkar, sem lesið þessa bók, eru tilbúin til að missa vinnuna fyrir það að biðja eða deila fagnaðarerindinu með fólkinu í vinnunni?
Ég mæli eindregið með því að hver sá, sem tekur þátt í andlegri baráttu, lesi bókina Spiritual Authority, eftir Watchman Nee.
#8) Aldrei skyldi vanmeta vald Satans, eða lastmæla honum, eða halda að hann geti ekki, eða sé ekki virkur í lífi þínu.
“Á sama hátt saurga og þessir draumvilltu menn líkamann, meta að engu drottinvald og lastmæla tignum. Eigi dirfðist einu sinni höfuðengillinn Míkael að leggja lastmælisdóm á djöfulinn, er hann átti í orðadeilu við hann um líkama Móse, heldur sagði: „Drottinn refsi þér! En þessir menn lastmæla öllu því, sem þeir þekkja ekki...” Júdasarbréf 8-9
"Verið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um semöskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt.”1. Pétursbréf 5:8
Aldrei má gleyma því að baráttan er raunveruleg. Ef þú ferð í fremstu víglínu, þá verður þú mjög sennilega skotinn niður. Í því nær öllum hörmungum, sem ég hef verið vitni að, þar sem einhver hefur barist fyrir Drottin og síðan verið blekktur af Satan, þá var það þeirra fyrsta ógæfuskref að þeir hættu að meta andstæðing sinn rétt. Við erum ekki að gefa Satan dýrðina eða að heiðra hann á nokkurn hátt! En hann er skelfilegur andstæðingur. Hann er miklu greindari en við. Ekki gleyma því sem Guð sagði um sköpun Satans:
“Svo segir Drottinn Guð: Þú varst ímynd innsiglishrings, fullur af speki og fullkominn að fegurð! “ Esekíel 28:12
Satan er fallegasta og greindasta vera sem Guð hefur skapað. Við getum ekki vonast til þess að sigra Satan með okkar litlu, mannlegu gáfum, eða séð út blekkingar hans. Við verðum að setja alla okkar von á Drottin, að hann opinberi fyrir okkur aðferðir Satans. Við getum einungis sigrað Satan með krafti Jesú Krists.
Um leið og einhver hættir að meta Satan rétt, þá verður hann kærulaus, og dyragátt hrokans er opnuð ásamt ýmsum öðrum af blekkingum Satans.
.......................................
Við ætlum að ræða hér um fimm atriði varðandi baráttu. Við höldum því svo sannarlega ekki fram að hér sé allt upptalið, en Drottinn hefur sagt okkur að deila með ykkur því sem við höfum komist að hingað til. Bæn okkar er sú að Drottinn Sjálfur muni gefa ykkur að fullu andlegan skilning. Atriðin eru: Illir andar, andar Satanista, Vargar (wer beasts), og líkamleg gervi anda, líkamleg barátta og baráttan í andaheiminum..
Tvær sérstakar uppsprettur upplýsinga um hvernig á að berjast í andlegu stríði eru Sálmarnir og Jósúabók. Öll þau vopn, sem minnst er á í Biblíunni, getum við notað í andlega heiminum. Rannsakaðu ritningarnar. Fáðu þér vasabók og skrifaðu niður allt það sem Drottinn opinberar fyrir þér á meðan þú lest. Á þann hátt hefurðu upplýsingar sem þú getur rennt yfir síðan. Annars þarftu að eyða miklum tíma í að lesa upp á nýtt það sem þú vissir en ert búinn að gleyma.
Illir andar
[óhreinir andar, djöflar, ”demons”]
Illir andar eru mjög greindar verur. Þar sem þeir eru andar, þá hafa þeir vanalega ekki efnislegan líkama, þó svo að þeir geti í einhvern tiltekinn tíma líkamnast, og þá getum við séð þá - og fundið fyrir þeim. Þeir voru einu sinni þjónustubundnir englar Guðs. Satan, leiðtogi þeirra, var einu sinni erkiengill (hann hét þá Lúsifer). Hann er ein máttugasta og greindasta vera sem Guð hefur skapað. Greind mannsins er ekkert í samanburði við greind Satans. Fyrir óralöngu síðan ákvað Lúsifer að gera uppreisn gegn Guði og reyndi að hefja sjálfan sig yfir Guð. Óteljandi englar völdu að vera í þjónustu Lúsifers, frekar en að þjóna Guði. Oft er talað um þá sem “fallna engla”, og þeir eru hinir margvíslegu illu andar. Þeir eru allir illir, og þeir eru lygarar. Þeir ganga undir ýmsum nöfnum í mismunandi löndum. Þeir eru missterkir og hafa margvíslega eiginleika. Það er eingöngu hægt að sigra þá í Jesú nafni. Í Jesú höfum við stórkostleg yfirráð yfir illum öndum, og við ættum að nota þessi yfirráð, en alltaf á réttan hátt.
Fjöldi og margbreytileiki tegunda illra anda er svo gríðarlegur að við gætum aldrei nefnt þá alla. Einnig gæti sami andinn haft annað nafn í einhverju öðru landi. Konungsveldi Satans er mjög vel skipulagt og skilvirkt. Mjög háttsettir, illir andar, sem kallaðir eru prinsar í Biblíunni, stjórna hinum ýmsu landssvæðum á jörðinni.
Illir andar þekkja Biblíuna mjög vel, og þess vegna verðum við einnig að þekkja Biblíuna í smáatriðum. Illir andar eru sérfræðingar í því að teygja og rangsnúa ritningarnar til þess að reyna að láta þær þýða eitthvað annað en það sem Guð sagði. Ef við þekkjum ekki ritningarnar, þá verðum við þeim auðveld bráð.
Okkur finnst engin ástæða til þess að skrá eða nefna illu andana, vegna þess að það er í fyrsta lagi ógjörningur og í öðru lagi er ekki þörf á því, þar sem Heilagur andi gefur okkur þann vísdóm sem við þörfnumst í það og það skiptið.
Tími og rúm leyfa okkur ekki að tala mikið um lausn frá illum öndum, að öðru leyti en í tilfelli Elaine og þeim sem fjallað var um fyrr í bókinni. (Fjallað er nánar um lausn undan illum öndum í seinni bókum Rebekku.)
Andar satanista
Að eiga við anda Satanista er mjög svipað og að eiga við illa anda, nema að þú verður alltaf að muna að um mannlegan anda er að ræða. Þess vegna er meginmarkmiðið, endurlausn. Við leyfum öndum manna að ganga lengra en illum öndum án þess að berjast á móti, vegna þess að við viljum ekki valda þeim skaða, og við predikum alltaf fagnaðarerindið fyrir þeim.
Ég man eitt kvöld, stuttu eftir lokalausn Elaine, þegar ég var að þvo upp inni í eldhúsi eftir kvöldmatinn. Ég var ein og grét, svo tárin runnu ofan í uppþvottavatnið, á meðan ég bað. Þetta hafði verið sérstaklega slæmur dagur. Okkur Elaine hafði stöðugt verið misþyrmt af öndum Satanistanna. Ekkert virtist geta stjórnað þeim. Okkur var nær linnulaust lyft upp og fleygt í veggi eða í gólfið, eða þá að hlutum var kastað í okkur. Við vorum gjörsamlega uppgefnar og illa farnar. Við gátum stoppað illu andana frekar auðveldlega, með því að hasta á þá í Jesú nafni, en þessa mannsanda var ekki hægt að stöðva á sama hátt. Ég hrópaði á Drottin í örvæntingu, “Faðir, hvað getum við gert? Mér finnst eins og húsið mitt sé hraðbraut fyrir öll ill öfl sem þurfa að komast leiðar sinnar. Þú veist að þessir andar eru að misþyrma okkur. Ég get þetta ekki lengur!”
Þá minnti Heilagur andi mig á söguna um páskalambið í annarri Mósebók tólfta kafla. Síðan sagði hann, “Eftir dauða Jesú eru engar fleiri blóðfórnir. Svo að hvað mundir þú segja að kæmi í stað blóðsins?”
“Olían?” spurði ég.
“Það er rétt.” Síðan minnti Drottinn mig á ritningarvers í 2. Mósebók 40 þar sem hann hafði einnig sagt Móse að nota smurningarolíu.
“Þá skalt þú taka smurningarolíu og smyrja búðina og allt, sem í henni er, og vígja hana með öllum áhöldum hennar, svo að hún sé heilög. 2. Mósebók 40:9
Þegar ég hugleiddi þessi vers, sýndi Drottinn mér að ég yrði að taka olíu og smyrja húsið mitt og helga það Drottni. Þannig að ég tók þá olíu, sem ég átti (matarolía), og setti smávegis á allar hurðir og dyrakarma og einnig á alla glugga. Þegar ég hafði gert það, bað ég Drottin um að helga sér heimili mitt, og að innsigla það með blóði sínu. Þá fór ég aftur inn í húsið og skildi hurðir eftir opnar og stóð inni í miðju húsinu og bað Drottin um að helga það og reka alla anda út úr húsinu, sem ekki væru frá honum. Samstundis varð mjög mikil breyting á og húsið varð innsiglað og hreint frá þeirri stundu.
Þegar við tökum þátt í erfiðum átökum, er vanalega stöðugur straumur af alls konar fólki inn og út af heimili okkar. Þá finnst okkur stundum nauðsynlegt að smyrja og helga húsið upp á nýtt með olíu, jafnvel reglulega. Allir sem taka þátt í andlegum hernaði komast að því að það er mjög gagnlegt. Drottinn kenndi okkur einnig, að þegar við flytjum í annað húsnæði, þá ættum við að fara út að lóðamörkunum og hertaka landið og biðja Drottin um að helga það fyrir sjálfan sig og innsigla það og vernda.
Ef Drottinn sýnir þér að þú sért undir árásum frá mannlegum anda, (jafnvel frá kristnum, sem leggja hatur á þig), þá er mjög gagnlegt að biðja kristna bræður eða systur að smyrja þig með olíu, og biðja Drottin um sérstaka vernd, ekki aðeins gegn valdi illra anda, heldur einnig gegn öndum fólks.
Vertu meðvituð um þann möguleika að mannsandar tali og tjái sig í gegnum ófrelsaða persónu. Þar, eins og í öðru, mun Heilagur andi leiðbeina þér á persónulegan hátt í hverju tilviki fyrir sig.
Vargar, og líkamleg gervi anda,
Sögusagnir af vampírum og varúlfum hafa verið á kreiki í mjög mörg ár. Mikið hefur verið skrifað um þessar verur og margar kvikmyndir hafa fjallað um þær. Því miður trúa flestallir að þær séu eingöngu tilbúningur, og flest, sem sagt er um þær er mjög ónákvæmt. Þessar verur eru til.
Leyfið mér að útskýra, hvað hér er um að ræða og við skulum byrja á því að líta á athyglisvert ritningarvers.
“Sjá, sekur var ég, er ég var til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.” Sálmur 51:7
Allt frá því er Adam féll hafa menn fæðst syndugir, og líkamar þeirra mótast á sérstakan hátt af illsku. Vegna þessa hafa illir andar mikið vald yfir efnislíkama okkar. Fólk, sem er algjörlega skuldbundið Satan, getur beðið sérstaka illa anda að búa í sér. Þeir geta valdið gífurlegum líkamlegum breytingum. Margir vita að illir andar geta gefið mönnum óvenjulega mikla líkamlega krafta. Munið eftir manninum sem var andsetinn í byggðum Gerasena, og sagt er frá í 8. Kafla Lúkasar. Vargar eru afsprengi þessara illu anda. Illu andarnir koma af stað þeim líkamsbreytingum sem þarf til þess að persónan breytist og fái útlit dýrs með ofurmannlegan kraft og eiginleika.
Nokkrir mjög áhugaverðir ritningastaðir fjalla um þessa hluti. Auðvitað eru þar ekki notuð orð eins og varúlfar eða vampírur, því þau eru tiltölulega ný. En við skulum líta á nokkur dæmi.
“Ég vil gefa frið í landinu, og þér skuluð leggjast til hvíldar ogenginn skal hræða yður. Óargadýrum vil ég eyða úr landinu”3. Mósebók 26:6“Og ég vil hleypa dýrum merkurinnar inn á yður...........3. Mósebók 26:22
Í þessum tveimur tilvitnunum er gerður skýr greinarmunur á óargadýrum og dýrum merkurinnar. Guð er að segja Ísraelsmönnum að ef þeir hlýði boðum hans, þá muni hann eyða úr landi Kanaaníta öllum óargadýrum, en ef þeir haldi ekki boð hans, muni hann senda dýr merkurinnar til þess að drepa þá. Áður fyrr, þegar Guð gaf Móse boðorðin, lýsti hann tiltekin dýr hrein eða óhrein, bæði meðal villtra dýra og húsdýra. Þegar hann talar um óargadýr, er hann augljóslega að tala um eitthvað annað en óhrein dýr.
[Guð talar] “Því að mín eru öll dýrin merkurinnar og skepnurnar á fjöllum þúsundanna.” Sálmur 50:11 (King James Biblían)
Í fjölmörgum ritningargreinum er sagt að dýr merkurinnar eða villidýrin tilheyri Drottni, en aldrei að óargadýrin tilheyri honum. (Í King James: wild beasts og evil beasts ).
Síðan er mjög athyglisverður ritningarstaður í Esekíel. Þar er Drottinn að segja Esekíel að fara inn í musterið í Jerúsalem, til þess að sjá illskuna sem var stunduð þar. Á þeim tíma stunduðu Ísraelsmenn djöfladýrkun ásamt öllu óeðlinu sem henni fylgdi.
“Og hann sagði við mig: „Mannsson, brjót þú gat í gegnum vegginn.`` Og er ég braut gat í gegnum vegginn, þá voru þar dyr. Og hann sagði við mig: „Gakk inn og sjá hinar vondu svívirðingar, sem þeir hafa hér í frammi. ``Ég gekk inn og litaðist um. Voru þar ristar allt umhverfis á vegginn alls konar myndir viðbjóðslegra orma og skepna og öll skurðgoð Ísraelsmanna." Esekíel 8:9-10
Í ritningarversi sem áður hefur verið vísað til, 1. Korintubréfi 10:19-20, er því haldið fram að þessi skurðgoð hafi verið líkneski af illu öndunum sem verið var að dýrka. Ég trúi því að teikningarnar, sem Esekíel sá, hafi ekki aðeins verið af illum öndum, heldur einnig allskonar vörgum t.d.varúlfum. Áður en þetta gerðist höfðu Ísraelsmenn verið í Egyptalandi í meira en 400 ár. Myndletur Forn-Egypta (hýróglýfur) hefur fundist um allt Egyptaland, þar á meðal teikningar af verum, sem eru að hluta til mennskar og að hluta til dýr, og sérstaklega af mennskum líkömum með úlfshöfuð. Margir ritningarstaðir sýna það að Ísraelsmenn fylgdu ýmsum egypskum hefðum og aðferðum í tilbeiðslu sinni.
Tilvitnanir um óargadýr eru einnig í Nýja Testamentinu. Ég trúi því að í eftirfarandi ritningarversum sé verið að tala um það sem í dag er kallað vargar eða varúlfar.
“Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefur svo að orði komist: „Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar.`` Þessi vitnisburður er sannur." Títusarbréf 1:12-13a
“Eins og Sódóma og Gómorra og borgirnar umhverfis þær, sem drýgt höfðu saurlifnað á líkan hátt og þeir og stunduðu óleyfilegar lystisemdir, þær liggja fyrir sem dæmi, líðandi hegningu eilífs elds. Á sama hátt saurga og þessir draumvilltu menn líkamann, meta að engu drottinvald og lastmæla tignum. Eigi dirfðist einu sinni höfuðengillinn Míkael að leggja lastmælisdóm á djöfulinn, er hann átti í orðadeilu við hann um líkama Móse, heldur sagði: „Drottinn
refsi þér!`` En þessir menn lastmæla öllu því, sem þeir þekkja ekki, en spilla sér á því sem þeir skilja af eðlisávísun eins og skynlausar skepnur. Vei þeim, því að þeir hafa gengið á vegi Kains og hrapað í villu Bíleams fyrir ávinnings sakir og tortímst í þverúð Kóra." Júdasarbréf 1:7-11
Hér um bil samskonar vers er að finna í 2. Pétursbréfi 2:10-12. Þessi vers segja frá því hvernig menn spillast og breytast í skepnur vegna dýrkunar á illum öndum.
Margt er falið í ritningunum, og við verðum að leita vísdóms frá Drottni til að skilja þetta allt, en við trúum því að í þessum ritningarversum sé verið að segja frá því fyrirbæri þar sem manneskjur bókstaflega breyttust í óargadýr með tímabundnum, líkamlegum breytingum sem illir andar komu af stað.
Flest fólk telur varúlfa, vampírur og uppvakninga (zombies) hreina ímyndun. Kristið fólk þarf að skilja, að Satan og þjónum hans er dauðans alvara með þessar verur, og að þær eru til. Á hinum myrku miðöldum var Satanismi svo algengur, vegna þess að ljós fagnaðarerindisins um Jesú var næstum því slokknað. Galdrar voru hömlulausir á þessum tíma, þar til Guð framkallaði siðaskiptin, og fagnaðarerindið var predikað á ný. Einu nákvæmu, öruggu heimildirnar um tilvist varúlfa og álíkra varg-dýra, sem okkur hefur tekist að finna, eru þýðingar á skrifum nokkurra þýskra, kristinna manna, sem voru uppi í byrjun siðaskiptanna. Drottinn Jesús Kristur sagði okkur, að á síðustu tímunum fyrir endurkomu hans, myndi illskan magnast gífurlega, og yrði miklu meiri heldur en á hinum myrku miðöldum. Satan er lagður af stað, og við eigum eftir að sjá vald hans aukast meir og meir. Sú sprenging, sem hefur orðið í dulrænum kvikmyndum, satanískri rokktónlist, satanískum hlutverkaleikjum, dulrænni list, austurlenskum trúarbrögðum og hálfvolgu kristnu fólki, sem ekki sér ástæðu til að skuldbinda sig, gefur okkur góða hugmynd um á hvaða tímum við lifum.
“Þá verður sú mikla þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa og mun aldrei verða. Ef dagar þessir hefðu ekki verið styttir, kæmist enginn maður af. En vegna hinna útvöldu munu þeir dagar styttir verða. Ef einhver segir þá við yður: ,Hér er Kristur eða ,þar, þá trúið því ekki. Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur til að leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti." Matteus 24:21-24
Við skulum skoða eitthvað af því sem sagt er um vargana og þá sérstaklega varúlfa. Í fyrsta lagi, þá er sagt að ef manneskja er bitin af varúlfi, þá verði hún sjálf að varúlfi. Ég tel þetta vera fjarstæðu. Í fyrsta lagi gefa ritningarnar í skyn að fólk verði að vera sterklega í sambandi við illa anda, til þess að svona geti farið. Í öðru lagi er reynsla mín og annarra sú, að það sé harla ólíklegt að varúlfar láti sér nægja að bíta. Þessi djöfulmenni þrá aðeins eitt, og það er að tortíma öðrum. Ef varúlfur, eða önnur álíka skepna, kemst nægilega nálægt til þess að bíta einhvern, þá er nánast öruggt að hún rífi þann hinn sama í tætlur en hætti ekki eftir eitt bit. Satan notar þessi óargadýr í refsingarskyni. Ég álít að í þrengingunni miklu muni þeim fjölga mjög mikið.
Aðrar sagnir um þessar verur segja að þær geti eingöngu umbreyst á nóttunni og aðeins þegar tungl er fullt. Ég veit að báðar þessar fullyrðingar eru rangar, vegna þess að ég hef sjálf mætt varúlfi, sem var að fullu umbreyttur, um miðjan dag og einnig á þeim tíma mánaðarins þegar tunglið var ekki orðið fullt.
Sú spurning, sem liggur augljósust fyrir, er hvernig við getum barist gegn þessum verum? Í nafni og mætti og valdi Jesú Krists. Hingað til hef ég ekki vitað til þess að slík skepna hafi frelsast, en verk Krists á krossinum er svo fullkomið, að ég er viss um að slíkt er mögulegt ef persónan, sem á í hlut, er tilbúin til þess að deyja til að frelsast. Þetta fólk hefur gefist illum öndum í svo miklum mæli, að það hlýtur að þurfa kraftaverk frá Drottni til þess að viðkomandi deyi ekki ef illu öndunum er kastað út.
Eins og ég minntist á, hef ég einu sinni, staðið augliti til auglitis við varúlfi fram til þessa. Kannski er gagnlegt að lýsa þeirri reynslu hér. Kvöld eitt í ljósaskiptunum var ég að keyra frá læknastofunni minni til sjúkrahússins, til þess að hitta sjúkling sem hafði versnað. Ég var einsömul í bílnum og var að keyra eftir afskekktum sveitavegi, þar sem engar byggingar voru í að minnsta kosti einnar mílu radíus. Skyndilega kom gríðarstór varúlfur inn á veginn í u.þ.b. húslengd frá mér. Þegar ég kom nær, reis hann upp á afturlappirnar. Ég steig bensíngjöfina í botn í þeim tilgangi að taka krók framhjá honum, en bíllinn haggaðist ekki. Hann hægði á sér og stoppaði með vélina í gangi, þrátt fyrir allar mínar bænir. Ég sat þarna og starði með hryllingi á þá ófrýnilegustu og grimmdarlegustu veru sem ég hafði nokkurn tíma séð. Mér fannst eins og ég væri að drukkna í illskunni sem stafaði frá henni. Hann hnykkti höfðinu aftur og spangólaði - skelfilegt hljóð, sem ég gleymi aldrei.
Þá horfði hann beint í augun á mér og sagði við mig, “Þú kemst ekkert - sjáðu til, ég stoppaði bílinn þinn, og það er ekkert sem þú getur gert við því. Nú ætla ég að njóta þess að rífa af þér hausinn og drekka úr þér blóðið. Þú hefur verið að skipta þér af málefnum Satans nógu lengi; ég ætla að refsa þér. Þú getur ekki staðið gegn mér.” Síðan kom djúpt urr, og hann gekk frá “húddinu” á bílnum og að hurðinni.
Óttinn flæddi yfir mig í bylgjum, en ég vissi að ég varð að standast, því ég var viss um að það væri ekki vilji Drottins að ég myndi deyja á þessari stundu. Ég vissi að ég hafði ennþá verk að vinna. Drottinn hafði kennt mér margt á meðan ég var lífshættulega veik þremur árum áður. Þegar ég hafði tekið þá ákvörðun að standa föstum fótum, flæddi ró, friður og styrkur Heilags anda inn í sál mína. Heilagur andi sýndi mér einnig að varúlfurinn væri að reyna að hræða mig, svo ég færi í uppnám og reyndi að hlaupa burt. Ef ég hefði gert það, þá hefði hann getað drepið mig.
Ég dró andann djúpt, lyfti upp hægri hendinni og benti henni á hann og hrópaði, “stopp! Í Jesú nafni, stoppaðu! þú illi þjónn Satans! Ég er þjónn Jesú Krists sem er Guð Almáttugur! Það er ekki vilji Meistara míns að ég deyi núna. Þú mátt ekki snerta mig, þar sem ég hef ennþá verk að vinna.” Varúlfurinn stoppaði þarna í sömu sporum, urrandi reiður, en gat ekki hreyft sig.
Ég benti aftur á hann, horfði beint í augun á honum og sagði, “Í Jesú nafni skipa ég þér að vera ekki fyrir og farðu frá! Ég á ekki að deyja núna. farðu nú!“ Hann spangólaði einu sinni enn, lét sig falla á fjóra fætur, fór út af veginum og hvarf inn á þéttan kornakur.
Ég skalf svo mikið að ég gat varla keyrt. En þegar ég var komin af stað, lofaði ég Drottin einu sinni enn, “Þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér.” Sálmur 138:7. ( Ég stoppaði eftir um það bil mílu og fékk “taugaáfall” áður en ég fór á sjúkrahúsið.)
Ef fólk bara vissi um þann kraft, sem er tiltækur fyrir það í nafni Jesú. Margt hefur verið skrifað um hinar ýmsu aðferðir til þess að drepa varúlfa á meðan þeir eru í úlfslíki. Ég mundi ekki einu sinni reyna að gera eitthvað slíkt, vegna þess að þá væri ég að drepa manneskju, sem ég myndi vilja að frelsaðist. Og eftir að slík persóna er dáin, þá fer illi andinn samstundis úr líkamanum sem fær á sig mannlegt form að nýju. Það mundi auðvitað leiða til hinna mestu vandræða, því hver mundi trúa að sá látni hefði verið varúlfur? Morðinginn yrði örugglega kærður fyrir morð, og það réttilega.
Vampírur eru einnig til, en orðið er tiltölulega nýtt. Vampíra er persóna sem drekkur blóð, og þeim líkar sérlega vel við manna blóð. Vampírismi er vaxandi tískufyrirbrigði meðal rokkstjarna og aðdáenda þeirra. Mikið af lögum eru samin um þetta efni, og algengt er að blóð sé drukkið á miðjum tónleikum uppi á sviði. Einnig er algengt hjá þessu fólki að láta setja á sig vígtennur. Nýlegar myndir sýna Dee Snider, söngvara rokkhljómsveitarinnar Twisted Sister, sem hefur breytt framtönnum sínum í vígtennur. Það eru tilvitnanir um þetta í ritningunum.
“Ég verð að liggja á meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar, og tungur þeirra bitur sverð...." Sálmur 57:5
Þegar við höfum það hugfast, að mest af skrifum Davíðs í Sálmunum eru tilvitnanir um andlegan hernað, (a.t.h. í King James stendur “My soul is amoung lions: Sál mín er á meðal ljóna), og að hann segir sál mín, ekki líkaminn, varð fyrir árás, þá fær það mig til að spyrja, hvort hann sé að tala um fólk sem er haldið þessum illu öndum vampírismans?
Reyndar eru flest allar getgátur varðandi vampírur rangar. Þær geta svo sannarlega starfað í dagsljósinu og þurfa ekki að sofa í líkkistum, o.s.frv. Ég hef aldrei hitt vampíru persónulega, en ég hef talað við nokkrar manneskjur sem segjast hafa séð þær. Í þessu tilfelli verðum við einnig að standa óbifanleg í nafni og valdi Jesú Krists.
Illir andar geta holdgast, og þeir gera það. Þau form, sem þeir kjósa að holdgast í, geta verið mismunandi, allt frá mikilli fegurð og til viðbjóðslegs ljótleika. Illir andar geta einnig birst í gervi einhverrar manneskju. Satanistar telja þessa illu anda oft vera umskiptinga, möru, eða tvífara (changelings, incubi, eða dopple- gangers). Gegn þessu notum við sömu aðferð og gegn öðrum illum öndum, við stöndum gegn þeim í Jesú nafni.
Líkamleg barátta
Það er ekki margt, sem ég get sagt um þau átök, sem þú lendir óhjákvæmilega í við fólk, þegar þú tekur þátt í andlegri baráttu. Þú verður í einlægni að biðja Föðurinn um að kenna þér að heyra rödd hans skýrt, og þú verður að hlýða, það skiptir engu máli hversu fáránlegt það virðist vera á þeim tíma. Trú og umsvifalaus hlýðni eru tvö lykilatriði.
Ég gleymi aldrei einum eftirmiðdegi í júní, (rétt á eftir lokalausn Elaine), þegar ég kom heim snemma eftir vinnu. Ég fór inn í húsið, til að leggja frá mér nokkra hluti. Þar sem ég hafði um það bil fjörutíu og fimm mínútur til þess að ná í Elaine úr vinnunni, ákvað ég að hlaupa út í matvörubúð. Ég gerði það og var komin heim aftur tuttugu mínútum síðar. Þegar ég ætlaði að stinga lyklinum í skráargatið á framdyrunum, þá sagði Heilagur andi skyndilega “NEI!” Ég leit í kringum mig. Allt virtist kyrrt og hljótt. Fuglarnir kurruðu, hægur andvari bærði laufin á trjánum, kettirnir mínir tveir voru sofandi á veröndinni. Ég leit inn um gluggann við hliðina á hurðinni, en gat ekki séð neitt óvenjulegt.
“Ég hlýt að vera vitlaus!” hugsaði ég. “Ég var aðeins í burtu í tuttugu mínútur og það er hábjartur dagur.” Samstundis kom skipunin aftur: “NEI!”
“Já, en Drottinn,” sagði ég, “ég er með ís og hann bráðnar fljótt í þessum hita.”
“Ekki fara inn”, var síðasta skipunin. Þá varð allt hljótt. Ég vissi í hjarta mínu, að þetta var það síðasta sem Drottinn mundi segja mér varðandi þetta. Drottinn þrasar aldrei við okkur. Ósátt snéri ég við og fór inn í bílinn til að bíða eftir að Elaine væri búin í vinnunni. Ég var orðin of vel skóluð af Drottni til þess að óhlýðnast. Hálftíma síðar, þegar við Elaine og bráðnaði ísinn komum heim, sáum við að öllu hafði verið umturnað í bakherbergjum hússins! Hver sem var þar að verki, hafði verið þar á sama tíma og Heilagur andi varaði mig við. Við lofum Drottin fyrir leiðsögn hans. Ég hefði getað verið drepin, ef ég hefði farið inn fyrr. Ég gæti gefið marga álíka vitnisburði, en Drottinn mun leiða þig á sama hátt í þínu eigin lífi.
Gættu vel að því hverjum þú treystir. Ekki leggja traust á neinn, nema þeir hafi haft tíma til að sanna sig. Hverjir eru ávextirnir í þeirra kristna lífi og göngu. Bíddu alltaf þar til Drottin hefur gefið þér fullkominn frið inn í anda og sál, áður en þú gefur viðkomandi trúnað þinn. Vertu stöðugt á bæn og biddu Drottin um að opinbera fyrir þér lygar, og hverjir séu þjónar Satans. Við getum aldrei séð við Satan. Einungis Drottinn getur sýnt okkur gildrur hans.