Tólfti kafli
Orrustan
Rebekka segir frá:
Næsti kafli í lífi okkar var stanslaus barátta sem varði í átta vikur. Þegar ég lít til baka, sé ég að Drottinn lét okkur ganga í gegnum strangt þjálfunarferli þar sem hann leiddi okkur stig af stigi í þekkingunni á konungsveldi Satans og hvernig átti að berjast gegn því. Fram að þessum tíma vissi ég mjög lítið um andaheiminn, og Drottinn var einnig að þjálfa mig á því sviði. Mörgum sinnum á þessum átta vikum spurði ég Drottin, hversu lengi þessi barátta þyrfti að halda áfram, og svar hans var alltaf, “Þangað til þið hafið lært nóg.” Vegna þess hversu djúpt Elaine hafði verið sokkin í Satanisma, þá var mjög margt sem við þurftum að læra áður en hún gat fullkomlega losnað við illu andana.
Á þessu átta vikna tímabili fengum við hvorugar meira en eins til tveggja tíma óslitinn svefn á nóttu. Ég hélt auðvitað áfram að vinna fullan vinnudag á sjúkrahúsinu, en sem betur fer var vinnutilhögunin þannig að ég þurfti ekki að taka næturvaktir og ég vann að mestu leyti við rannsóknir. Á hverjum morgni, er ég bjó mig undir að fara í vinnuna, magnþrota eftir enn eina svefnlausa nótt, stoppaði ég aðeins og las í Jesaja 40:31 og stóð á þeim loforðum sem voru þar:
“En þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki."
Dag hvern, er ég tileinkaði mér þessi loforð, gaf Drottinn mér, einhvern veginn, styrk til að halda áfram það sem eftir var dagsins. Ég þorði ekki að segja neinum frá því hvað væri um að vera. Það myndi enginn skilja það, og allir voru hvort sem var fjandsamlegir við mig. Elskulegir foreldrar mínir voru það auðvitað ekki, en ég vildi ekki valda þeim áhyggjum. Við Elaine börðumst því einar okkar liðs, með hjálp Drottins. Undir lok þessa tímabils benti Drottinn mér á að lesa Nehemíabók. Þar fann ég kafla, þar sem óvinir Nehemía hótuðu að ráðast á Gyðingana í þeim tilgangi að hindra endurbyggingu múra Jerúsalemborgar. Í kafla 4:21-23 stendur:
“Þannig unnum vér að verkinu, en helmingur þeirra hélt á lensunum, frá því er morgunroðinn færðist upp á himininn og þar til er stjörnurnar komu fram. Þá sagði ég og við lýðinn: „Allir skulu vera í Jerúsalem á næturnar, ásamt sveinum sínum, til þess að þeir séu vörður fyrir oss á nóttunni, en vinni að verkinu á daginn.`` En ég og bræður mínir og sveinar mínir og varðmennirnir, er fylgdu mér, vér fórum aldrei af klæðum, og sérhver hafði skotspjót sitt við hægri hlið sér.”
Í Nehemía 6:15 stendur að það hafi tekið 52 daga að endurreisa múrinn. Ég hugsaði með mér að ef Drottinn gat látið Nehemía og allt fólkið ganga daga og nætur án svefns í 52 daga, þá gæti hann einnig gefið mér styrk til þess. Þessi ritningarstaður var mjög mikil huggun fyrir mig, sérstaklega þegar fólk var að segja mér að ég liti þreytulega út og að það væri “á mína ábyrgð gagnvart Drottni að sjá til þess að ég fengi nægilegan svefn, Drottinn færi ekki fram á annað.”
Baráttan var háð á þrem vígstöðum samtímis: gegn djöflum, gegn öndum reglumeðlima og gegn meðlimum Bræðralagsins sem voru sendir til að reyna að drepa okkur.
Orrustan hófst viku eftir að rekið hafði verið út af Elaine. Ég var nýbúin að tala við Pat prest seinni hluta dags, eins og lýst var í kaflanum á undan. Hann hafði ráðlagt mér að eiga ekki við neina djöfla sjálf, þar sem hann var hræddur um að þeir gætu verið of öflugir fyrir mig. Elaine fékk aftur verk í axlirnar þennan dag, án þess að segja mér frá því.
Þetta kvöld, eftir að presturinn var farinn, fékk hún annan harkalegan verk í axlirnar. Ég gleymi því ekki hvað við vorum óöruggar og langt niðri þar sem við sátum á sófanum í stofunni minni á eftir. Ég snéri mér að Elaine og sagði:
“Elaine, þessi verkur hlýtur að vera frá illum öndum, þeir hljóta að vera komnir aftur. Af hverju sagðir þú ekki neitt á meðan Pat var hérna áðan?”
Það sem ég vissi ekki þá var að djöflarnir höfðu auðvitað varnað því að Elaine gæti sagt nokkuð á meðan presturinn var hjá okkur. Við sátum þögular í nokkrar mínútur. Þá sagði rödd Elainar,
“Ja, ég læt ekki sigra mig í annað sinn!”
“En Elaine, hvenær varst þú sigruð í fyrsta sinn?”
Ekkert svar. Þannig að ég teygði mig í hönd hennar til að ná athygli hennar. Hún stökk upp og snéri sér að mér, andlit hennar afskræmdist í grettu, hendurnar teygðu sig eftir hálsi mínum. Á svipstundu skildi ég að þetta hafði ekki verið Elaine sem ég var að tala við, heldur illur andi í henni. Ég stökk afturábak, setti hendurnar fram fyrir mig og hrópaði:
“Ég set skjöld trúarinnar á milli okkar, "í Jesú nafni". Þú mátt ekki snerta mig, þú illi andi!”
Hranaleg, kotroskin rödd sagði, “Nafn mitt er Hersing. Ég ætla að drepa þig! Þú ert einsömul og fyrir fjórum tímum síðan sagði presturinn þinn þér að þú skyldir ekki reyna að fara gegn okkur sjálf, þú ert ekki nógu sterk. Þar sem þú ert ein, þá ætla ég að drepa þig! Þú ert búin að skipta þér nógu lengi af brúði Satans.”
Ég held að ég hafi aldrei verið eins hrædd á ævi minni. Ég fann fyrir yfirþyrmandi nærveru hins illa í herberginu. Ég vissi allt of vel, að illi andinn hafði verið að hlusta á hvert orð af samræðum okkar Pats fyrr um daginn. Hann vissi um þunglyndi mitt og eins um kjarkleysið. Samstundis vissi ég einnig að ég mætti alls ekki láta hann sjá hversu hrædd ég var. Ég efaðist ekki um að ef ég leyfði honum að ná yfirhöndinni, þá mundi hann sannarlega drepa mig. Auk þess var Elaine miklu sterkari líkamlega en ég, og ég efaðist ekki um að undir algjörri stjórn djöfla, yrði hún margfalt sterkari. Ég kyngdi stórum og svaraði, að því er ég vonaði, skipandi röddu:
“Ó nei, illi andi, Elaine er ekki lengur brúður Satans. Þú ert inni á röngu yfirráðasvæði. Ég kann að vera einsömul, en Jesús er með mér og það er kraftur hans, sem sigrar ykkur, ekki minn. Ég þarf ekki að vera sterkari en þið, því að Jesús er það.”
“Þú veist ekki, hvað þú ert að tala um. Ég ætla að njóta þess að sjá þig engjast á meðan ég kyrki þig til dauða. Sjáðu bara!”
Á meðan hann talaði, teygði hann sig aftur eftir mér. Á ný setti ég hendurnar fyrir framan mig og tók í trú, skjöld trúarinnar "í Jesú nafni". Mér til mikillar gleði varð illi andinn að stoppa. Það var ósýnileg hindrun milli okkar, og hann komst ekki í gegnum hana, hversu mikið sem hann reyndi. Hann varð mjög reiður, þegar ég lofaði Drottin fyrir trúfesti hans í því að verja mig.
Baráttan hélt áfram í 45 mínútur. Ég bað, söng sálma, las og fór með ritningarvers. Aftur og aftur skipaði ég illa andanum að koma út. Mörgum sinnum reyndi hann að nota líkama Elainar til að skaða mig líkamlega, en hann var alltaf stöðvaður þegar ég nefndi skjöld trúarinnar.
Heilagur andi minnti mig á ritningarvers eftir ritningarvers. Ég vitnaði í Lúkas 10:19 og Kólossusbréfið 2:15 yfir honum hvað eftir annað, og það kvaldi hann. Ég las upp úr 18. kafla Opinberunarbókarinnar sem segir frá falli Babýlons, og ég sagði honum að á þessu augnabliki væri hann einnig fallinn. Hann öskraði á mig, bölvaði mér, hótaði, og að lokum bað hann mig með smjaðri að láta sig í friði; en ég hélt mínu striki. Að lokum kom hann út af Elaine, með reiðiöskri og hastarlegum hósta.
Léttirinn og spennufallið var svo mikið þegar þetta var afstaðið, að ég brast í grát. Aumingja Elaine, hún hafði verið meðvitundarlaus allan tímann. Hún skildi ekki hvers vegna ég grét svona óstjórnlega. Ég hristist og skalf frá hvirfli til ilja, ég hafði verið svo ofboðslega hrædd. En þar sem ég sat þarna og sagði Elaine frá því hvað gerst hafði, þá fyllti sú sannfæring sálu mína að Jesús hafði verið trúfastur og svo sannarlega gefið mér sinn eigin mátt og yfirráð yfir þessum ófögnuði. Eins hrædd og ég hafði verið, hafði Jesús staðið með mér og bjargað mér úr klóm óvina minna. Elaine leið miklu betur eftir að Hersing var farinn út, og við fórum í rúmið og sváfum síðasta óslitna nætursvefninn í átta vikur.
Næstu dagar og nætur runnu saman í eitt, þar sem hver djöfullinn á fætur öðrum fór í Elaine og reyndi að drepa hana, mig eða okkur báðar. Árásirnar héldu látlaust áfram. Til allrar hamingju var sjúkrahúsið aðeins í tveggja mínútna ökufæri frá heimili mínu. Mörgum sinnum á dag talaði Drottinn til mín og sagði mér að flýta mér heim, Elaine væri í hættu. Alltaf fann ég hana liggjandi meðvitundarlausa á gólfinu þegar ég kom, oft með belti um hálsinn, bláa af súrefnisskorti. Hendur hennar voru undir stjórn djöfla, og þær hertu beltið svo fast, að hún gat ekki andað. Stundum var hún með hníf í höndunum og blæddi vegna hnífsstungu. Stundum var hún í svo djúpu dái að hún andaði varla. Stundum hafði hún næstum verið kyrkt með eigin höndum þegar illu andarnir höfðu reynt að kremja á henni barkakýlið. Ég veit að Drottinn hafði komið því svo fyrir að vinna mín var aðallega falin í rannsóknum, þannig að ég gat komið og farið að vild.
Daginn eftir að ég hitti Hersingu fyrst, gaf Drottinn mér ritningarversið í öðru Tímóteusarbréfi 1:14, þar sem stendur:
“Varðveittu hið góða, sem þér er trúað fyrir, með hjálp heilags anda, semí oss býr.”
Drottinn sýndi mér að Elaine væri hið góða sem mér væri trúað fyrir - að ég yrði að varðveita hana vandlega með mínu eigin lífi.
Eftir því sem leið á baráttuna, varð ég æ forvitnari að vita hvernig djöflarnir, sem kastað hafði verið út, gátu alltaf komist til baka í Elaine, eftir mjög stuttan tíma. Eftir að hafa hugleitt ástandið og beðið fyrir þessu, þá minnti Drottinn mig á kafla í bók sem ég hafði lesið nokkrum mánuðum áður. Hún heitir Kanaansland tekið herskildi (The Conquest of Canaan), eftir Jessie Penn-Lewis. Hún skrifaði:
"Galatabréfið 5:24 er einnig ritningarvers sem fjallar um málefnið á réttan hátt. ”En þeir sem tilheyra Kristi Jesú hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.“ Lagalega séð, þá er þetta staða allra barna Guðs, en þetta verður einnig að iðka. Í þessari andlegu baráttu verður að nota hnífinn á það sem ritningarnar kalla "holdið", ef það á ekki að verða sú jörð sem óvinurinn ræðst á og dregur úr baráttuþreki okkar. “Holdið” verður að vera undir hnífi krossins vegna þess að ef það er einhver undanlátsemi við það, eða eitthvað vafasamt í lífi þínu, og þú tekur þá áhættu að taka hressilega á móti andstæðingnum, þá kemur óvinurinn á móti þér og festir sig við þetta óumskorna hold þitt og þrýstir á þig með miklu afli. Þú verður að hafa hníf krossins stöðuglega, óþreytandi og án afláts á holdinu; gegn girndum holdsins, gegn allri hugsanlegri undanlátsemi og gegn drambsemi holdsins” bls. 9.
Þar sem ég sat, íhugaði og bað um skilning á því, hvernig þessi kafli ætti við núverandi aðstæður okkar í sambandi við djöflana í Elaine, sýndi Drottinn mér í leiftursýn skýra mynd, sem Heilagur andi staðfesti að væri andleg sýn. Í þessari sýn stóð Elaine í miðjum hring dýra sem litu út eins og risastórir, grimmir kettir, og gengu í kringum hana. Þeir voru mjög ljótir. Þeir hringsóluðu hring eftir hring og þefuðu án afláts. Skyndilega staðnæmdist einn þeirra, þefaði, og stökk beint inn í hana. Þá skildi ég hvað um var að vera.
Dýrin, sem voru eins og kettir, táknuðu djöfla. Þeir hringsóluðu stöðugt í kringum Elaine, til að finna leið, eða dyragátt til að fara inn um. Þegar þeir fundu leið stukku þeir beint inn og birtust mér um leið. Ég sagði Elaine frá sýninni og sýndi henni kaflann í bókinni. Mér fannst ég vera leidd af Drottni þegar ég sagði henni að hún þyrfti að biðja hann um hjálp í leit sinni og að opinbera sér hvar væru opnar dyragáttir í lífi hennar, sem þyrfti að loka með játningu, fyrirgefningu og með blóði Jesú. Ég dáðist mikið að hugrekki hennar og þrautseigju.
Hún gekk í gegnum tveggja sólarhringa langa rannsókn á sjálfri sér. Ég er viss um að það hefur verið hryllilega sársaukafull reynsla fyrir hana. Ég sá sýnina allan þann tíma. Í hvert skipti, sem eitt af dýrunum stökk inn í Elaine, kom illur andi upp á yfirborðið, og baráttan hélt áfram þar til honum var kastað út. Í kjölfarið kom tímabil þar sem við þurftum að bíða í bæn eftir því að Drottinn opinberaði fyrir okkur, hvernig hann hefði komist inn. Hægt en örugglega var hverri dyragáttinni á fætur annarri lokað, eftir að Elaine játaði ýmis atriði og syndir sem hún hafði tekið þátt í, tók á móti fyrirgefningu og bað síðan Drottin að loka þeirri inngönguleið að eilífu með blóði sínu. Loks um klukkan tvö aðfaranótt mánudags, uppgötvaði ég skyndilega að “dýrin” voru farin að hringsnúast í öfuga átt. Ég hrópaði undrandi:
“Elaine, af hverju eru þau að fara í öfuga átt núna?”
“Hvers vegna er hvað að fara í öfuga átt?”
Ég bað Föðurinn um að láta Elaine einnig sjá sýnina, sem hann og gerði samstundis. Hún varð hugsi um stund. Síðan sagði hún:
“Sennilega vegna þess að þeir finna ekki lengur neina inngönguleið í þeirri átt sem þau fóru.”
Á meðan hún sagði þetta, sáum við báðar einn af djöflunum rísa upp á afturlappirnar og fálma, að því er virtist, eftir ósýnilegri hindrun.
“Elaine!” æpti ég, “við verðum að loka fyrir að ofan!”
En ég var of sein. Illi andinn var búinn að stökkva upp og yfir ósýnilegu hindrunina og inn að ofan, og Elaine féll í djúpt dá. Hún var undir stjórn tveggja djöfla sem hétu Dá og Endalaus Svefn. Þessir tveir ollu mér ólýsanlegum vandræðum! Þeir voru mjög öflugir, og þeir komu Elaine í svo djúpt dá að hjartsláttur hennar hægði á sér niður í um það bil 30 slög á mínútu, og stundum hætti hún að anda. Það var líka erfitt að eiga við þá, vegna þess að þeir töluðu ekki við mig, og þeir virtust ekki heyra í mér, vegna þess að líkami Elaine var í svo djúpu dái.
Það var allt óbreytt. Ég var hrædd um líf hennar. Ekkert virkaði. Ég bað, söng sálma, öskraði á þá og löðrungaði Elaine. Dásvefninn virtist aðeins verða dýpri. Loks í örvæntingu, þegar ég vissi ekki hvað ég ætti að gera, tók ég upp Biblíuna mína og byrjaði að lesa upp úr Opinberunarbókinni. Illir andar hata þá bók. Ég las og las, ég var orðin vonlaus en ég stóð samt í þeirri trú að Drottinn mundi bjarga lífi Elainar. Þegar ég hafði lesið um það bil hálfa bókina, reyndu djöflarnir skyndilega að rífa Biblíuna úr höndunum á mér með höndum Elainar.
“Haltu kjafti!” hvæsti annar þeirra. “Við þolum ekki að hlusta á meira af þessu.”
“Það var verra, djöfull, þessi bók segir frá endalokum ykkar og eilífri glötun. Ef þú staldrar aðeins við, þá skal ég lesa afganginn fyrir ykkur. Ég ætla að lesa hana aftur og aftur, og það sem meira er, ég ætla að biðja Föðurinn að koma í veg fyrir að þið setið eitthvað í eyrun á ykkur, svo að þið heyrið ekki í mér. Þið skuluð fá að hlusta á hana, ég veit að hann neyðir ykkur til þess.”
“Þú getur það ekki.”
“Ó jú, það get ég! Og síðan bað ég Föðurinn um að láta þessa djöfla heyra hvert orð sem ég las. Ég byrjaði að lesa aftur. Áhrifin urðu skjót.
“Haltu kjafti!!” illi andinn var svo ergilegur að hann öskraði á mig. Auðvitað hélt ég bara áfram og að lokum varð hann að koma út. Ég hafði uppgötvað lykil í viðureigninni við þessa erfiðu djöfla. Ég gat beðið Föðurinn um að gera eitthvað við þá, eins og að láta þá heyra, og hann gerði það.
Dyragáttinni að ofanverðu var erfitt að loka, þar sem þar var svæði í lífi Elaine sem var henni kært. En hugrekki og skuldbinding hennar við Drottin skiluðu árangri og að lokum lokaðist það svæði. Hér um bil samstundis sá ég í sýninni eitt af “dýrunum” grafa í jörðina við fætur Elaine.
“Ó nei! Botninn!” Aftur var ég of sein. Illi andinn var kominn inn. Ég var í nokkra klukkutíma í viðbót að berjast, áður en honum var kastað út. Við Elaine báðum Drottin að útlista fyrir okkur, hverjar botndyrnar væru. Drottinn opinberaði það fyrir okkur samtímis. Dramb. Aftur hafði ég fengið að kenna á þrjósku Elainar, rétt eins og í fyrsta atvikinu með Mann-Chan. Fram að þessu hafði Elaine þverskallast við að fara niður á hnén til að biðja. Drottinn hafði talað til mín um þetta atriði nokkrum árum áður. Það er auðmýkjandi að fara niður á hnén, en ég hafði einnig lært, hvílík huggun það er. Svo voru önnur atriði sem einnig flokkuðust undir dramb, en þeir virtust beina sjónum sínum að þessu eina atriði í augnablikinu. Ég sagði Elaine að ég héldi að Drottinn væri einfaldlega að biðja hana að fara niður á hnén til að biðja hann fyrirgefningar og takast á við drambið í sér. Hún þverneitaði því. Ég var svo örvæntingarfull, vegna þess að í hvert sinn sem hún neitaði, komst einn djöfull inn í hana til viðbótar, og ég þurfti að berjast við hvern þeirra í um það bil klukkustund áður en þeir fóru út. Að lokum tók ég fram bókina Kanaansland tekið herskildi og lét hana lesa kaflann sem ég minntist á áður. Síðan sagði ég við hana:
“Nú skalt þú fara inn í stofu og kljást um þetta málefni við Drottin. Ekki koma aftur fyrr en þú ert búin!”
Ég veit ekki og hef aldrei spurt hvað þeim fór á milli, Drottins og Elaine í myrkvaðri stofunni klukkan fimm þennan morgun, en þegar Elaine kom til baka til mín, kindarleg á svip, var yfir henni friður sem ég hafði ekki séð áður.
Skyndilega “sáum” við báðar verkið fullkomnað. Ótrúlega fallegan, skínandi ljósgeisla. Hann fyllti herbergið af björtu, hlýju, yndislegu ljósi. Ég sá djöfladýrin flýja inn í skuggana. Við settumst báðar niður og böðuðum okkur í hlýjunni og ljósinu frá geislanum, eins og þetta væri hádegissólin. Á þeirri stundu gerðum við okkur ekki grein fyrir því að við vorum að sjá og finna fyrir dýrð Jesú, þar sem þessum hluta verks hans í lífi Elaine var lokið.
Það var ekki þannig að við sæjum ljósgeislann með okkar náttúrulegu augum, heldur sáum við hann í huganum með anda okkar, og Heilagur andi gaf okkur þá sýn. En auk þess upplifðum við hlýjuna og elskuna streyma frá honum inn í náttúrulega líkamann (sjá kafla 14). Við sofnuðum báðar í fyrsta sinn í fjóra daga. Klukkustund seinna, þegar ég fór á fætur til þess að fara í vinnuna, varð ég mjög glöð að “sjá” að ljósgeislinn var enn til staðar. Hlýjan og kærleikurinn sem skein frá honum var stórkostleg huggun fyrir okkur báðar. Þá hélt ég að baráttunni væri lokið. Hvílíkur misskilningur. Ég gerði mér ekki ljóst að hann stóð aðeins fyrir einn hluta hreinsunarverksins í lífi Elaine.
Ég varð skelfd þegar ég kom heim síðdegis og fann Elaine á sófanum. Hún var blá í framan og andaði ekki og var með beltisól utan um hálsinn á sér, höndum hennar var stjórnað af djöflum og hertu þeir þétt að, þannig að hún gat ekki andað. Miður mín reyndi ég að kljást við djöfulinn sem vildi drepa hana. Hvernig gat þetta átt sér stað? Ég sá ennþá fullkominn ljósgeislann í anda mínum. Hvernig gat þá enn einn illur andi komist inn? Aftur og aftur komust djöflar inn þetta kvöld, alltaf komu þeir mér að óvörum. Ég gat ekki sætt mig við að þeir kæmust inn. Ég var örmagna, og ég hafði reitt mig á að ljósgeislinn væri tákn um að þeir kæmust ekki lengur inn fyrir. Að lokum, eftir mikið táraflóð, þá bað ég Drottin að fjarlægja sýnina þar sem ég gerði mér grein fyrir að ég treysti á hana í staðinn fyrir Drottin og þá gæti Satan notað það til að ráðskast með mig. Jafnskjótt og ég bað, þá hvarf þessi yndislegi ljósgeisli. Þetta kvöld byrjuðum við að berjast á nýjum vígstöðvum.
Ég var í eldhúsinu að matreiða, þegar Elaine kom undir stjórn, að því er ég hélt, ills anda. Ég vissi að hún var í eldhúsinu þegar ég var stungin í bakið með stórum hníf sem ég hafði verið að nota til að skera með kjötið. Ég greip í höndina á henni og sagði:
“Nei, djöfull, ég bind þig í Jesú nafni. Þú munt láta mig fá hnífinn.”
Ég varð undrandi, þegar ég heyrði mjög kvenlega rödd svara mér:
“Þú getur ekki skipað mér fyrir eins og ég sé einhver djöfull! Ég þarf ekki að hlýða þér og þínum heimskulegu skipunum, af því að ég er ekki andi! Nú ætla ég að kenna ykkur báðum lexíu.”
Það hófust stimpingar þar sem ég fékk nokkur djúp stungusár. Allt eldhúsið var útatað í blóði. Á meðan ég barðist fyrir lífi okkar, sagði ég hvað eftir annað:
“Mér er sama, hver eða hvað þú ert, ég mun sigra þig með valdi Jesú nafns.” Að lokum tókst mér að ná hnífnum úr höndum hennar. Þar Ég stóð á öndinni, algjörlega búin, og neyddi hana til að setjast í stól.
“Nú, skipa ég þér, í Jesú nafni, að segja mér hver og hvað þú ert!”
“Ég er Sally.”
Ég var hissa. Ég vissi að Sally hafði verið vinkona Elaine og nornin sem Elaine hafði verið að þjálfa. Hún varð arftaki Elaine sem æðsti kvenprestur. Hún var hrokafyllri en nokkur óhreinn andi sem ég hafði rekist á og jafn banvæn. Ég fann fyrir hatri hennar.
“Jæja, Sally, mennsk eða djöfulleg, þú munt beygja hné þín fyrir Jesú. Þú hefur ekki um neitt annað að velja, þar sem Guðs orð segir það. Í Filippíbréfinu 2:6-11 segir Guð:
“Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur. Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi. Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn."
Þegar ég fór með þessi fallegu vers, fann ég hvernig kraftur Drottins styrkti líkama minn.
“Þarna sérðu Sallý, þú hefur ekkert um annað að velja. Sú staðreynd, að þú ert manneskja en ekki illur andi, skiptir engu máli. Þín hné verða einnig að beygja sig fyrir Jesú.”
Hún hló hæðnislega að mér: “Þú heldur að þessi svokallaði Jesús sé svo æðislegur. Það er eintóm lygi. Ég mun aldrei beygja mig fyrir honum!”
Ég gjörsamlega trylltist! Án þess að hugsa, teygði ég mig til hennar og greip í öxlina á henni, bókstaflega lyfti henni upp úr stólnum og þrýsti henni á hnén niður á gólfið. Síðan setti ég hendurnar á bak hennar og höfuð, og þrýsti nefi hennar í gólfið.
“Hvað finnst þér núna um staðhæfingu þína um að þú munir aldrei beygja þig fyrir Jesú?! Það er nákvæmlega það sem þú ert að gera núna, vegna þess að hann stendur nefnilega hérna!”
Ég veit ekki hvor varð meira undrandi, Sallý eða ég. Elaine er ekki beinlínis létt og ég var þá þegar alveg uppgefin eftir hamslausa baráttuna um hnífinn rétt áður. Ég lét Sally lyfta nefinu á aumingja Elaine frá gólfinu, en ég hélt henni áfram á hnjánum.
“Sally, þú verður að vita það. Satan lýgur að þér nákvæmlega eins og hann laug að Elaine. Jesús er sigurvegarinn, ekki Satan. Satan vill aðeins tortíma þér. Ef hann væri sá sterkari, eins og hann heldur fram, af hverju ert þú þá á gólfinu en ekki ég? Sally, þín eina von er að gefa Jesú líf þitt!”
“Ég hlusta ekki á þig lengur, en ég kem aftur, og þið munuð báðar iðrast þessa!” Samstundis var hún farin, og meðvitundarlaus líkami Elaine lyppaðist niður. Þá rankaði hún við sér og leit upp til mín.
“Heyrðu, hvað er að gerast, af hverju er ég á gólfinu - er þetta enn ein lexían í undirgefni?”
Ég hló, svolítið óstyrk, og dustaði ryk af nefbroddinum á Elaine.
“Fyrirgefðu, en ég er hrædd um að ég hafi gleymt því í hita leiksins að þetta var líkami þinn, ég var svo reið út í Sally.”
“Út í hverja?!!”
“Út í Sally. Hún móðgaði Jesú og hélt því fram að hún myndi aldrei beygja hné sín fyrir honum og, jæja, ég neyddi hana til þess.”
“Já, ég skil. En hvað var hún að reyna að gera?”
“Drepa okkur báðar með kjöthnífnum.”
“Ja hérna! Jæja, henni tókst það ekki sé ég, samt hef ég séð þig líta betur út.”
Á meðan Elaine hjálpaði mér að þrífa bæði mig og eldhúsið, spurði ég hana:
“Elaine, gerðir þú einhvern tíman svona lagað, fórstu inn í líkama annarra og hreyfðir þig og talaðir í gegn um þá, á ég við?”
“Auðvitað, það var auðvelt.”
“Varstu meðvituð um hvað þú gerðir og hvað var sagt og gert?”
“Já.”
“En hvernig fórstu að þessu? Ég held að þetta geti verið enn önnur opin dyragátt. Hvernig ætti hún annars að hafa komist inn?”
“Ég veit í raun og veru ekki hvernig ég fór að því, ég gerði það bara. Það var eitt af því fyrsta sem ég lærði. Þegar vald mitt óx, gat ég yfirgefið líkama minn og farið hvert sem var og gert hvað sem ég vildi, og samtímis verið meðvituð um hvað væri að gerast og hvað ég var að gera í líkamanum.”
Skyndilega kviknaði á perunni. Heilagur andi minnti mig á bók sem ég hafði lesið meira en ári áður. Ég hljóp æst að bókaskápnum mínum til að sækja hana. Ég sagði Elaine að ég héldi að í henni gætum við kannski fundið leið út úr ógöngum okkar. Í henni er talað um “vald sálarinnar” sem er reyndar valdið sem mannsandinn hefur þegar hann er undir stjórn sálarinnar. Það eru tvær bækur sem taka á þessu málefni. The Latent Power Of The Soul, eftir Watchman Nee, og Soul And Spirit, eftir Jessie Penn-Lewis. Næstu tvo daga lásum við Elaine upphátt saman alla bókina The Latent Power Of The Soul (Dulið vald sálarinnar).
Við fórum báðar að skilja, hvaða undarlega vald það var sem Elaine hafði verið að nota í samvinnu við illa anda í svo mörg ár. Satan kennir aldrei fólkinu sínu, hvað það er að nota, heldur eingöngu hvernig það getur notað þetta vald innra með sér (fjallað verður nánar um stjórn sálarinnar á mannsandanum í kafla 14). Elaine hafði stjórnað andlegum líkama sínum á meðvitaðan hátt.
Þegar við lærðum um mannsandana, fór ég að kynnast mörgum nornum og galdrakörlum úr næsta nágrenni, þar sem nokkur þeirra komu í andalíkama sínum inn í Elaine og reyndu að drepa okkur báðar. Einn af þeim skæðustu, sem gekk undir dulnefninu Davíð, var æðsti prestur í stórri og öflugri reglu í borginni sem við bjuggum í. Hann var læknir við sjúkrahúsið, þar sem ég var í þjálfun, og hann sagði mér að hann hefði svarið að drepa mig, hvað sem það kostaði. Miklu erfiðara var að berjast við mannsandana, heldur en illu andana, þar sem þeir báru alls enga virðingu fyrir Guði. Ég var minnt á Jakobsbréfið 2:19, “En illu andarnir trúa því líka og skelfast” og Júdasarbréf 8-13:
“Á sama hátt saurga og þessir draumvilltu menn líkamann, meta að engu drottinvald og lastmæla tignum. Eigi dirfðist einu sinni höfuðengillinn Míkael að leggja lastmælisdóm á Djöfulinn, er hann átti í orðadeilu við hann um líkama Móse, heldur sagði: „Drottinn refsi þér!” En þessir menn lastmæla öllu því, sem þeir þekkja ekki, en spilla sér á því sem þeir skilja af eðlisávísun eins og skynlausar skepnur. Vei þeim, því að þeir hafa gengið á vegi Kains og hrapað í villu Bíleams fyrir ávinnings sakir og tortímst í þverúð Kóra. Þessir menn eru blindsker við kærleiksmáltíðir yðar, er þeir sitja að veislum með yður og háma í sig blygðunarlaust. Þeir eru vatnslaus ský, sem rekast fyrir vindum, tré, sem bera ekki ávöxt að hausti, tvisvar dauð og rifin upp með rótum. Þeir eru ofsalegar hafsbylgjur, sem freyða eigin skömmum, reikandi stjörnur, sem eiga dýpsta myrkur í vændum til eilífðar. “
Það var sama hversu baráttan var vonlaus, alltaf gaf Drottinn mér þann líkamlega styrk sem ég þurfti. Á meðan við lásum og lærðum, fór Drottinn að leiða mér stöðugt fyrir sjónir að Elaine yrði að gefa algjörlega upp á bátinn hæfileika sinn til að stjórna andlegum líkama sínum. Hann leiddi mér fyrir sjónir, að hún hefði verið að nota andalíkama sinn í baráttunni allan tímann. Loksins byrjaði ég að skilja, hvað hafði gengið á þann tíma sem hún var sjúklingur á sjúkrahúsinu. Hún og hjúkrunarkonurnar höfðu verið að heyja “galdraeinvígi” fyrir framan nefið á mér og ég hafði ekki vitað af því. Stykkin í púsluspilinu fóru að falla saman. Það var enginn furða, að hjúkrunarkonurnar hefðu verið svona fjandsamlegar. Elaine sigraði alltaf!
Þá þurfti Elaine að horfast í augu við eina erfiðustu prófraun í tengslum við skuldbindingu sína við Krist. Meðvituð stjórn hennar á andlegum líkama sínum gerði henni ekki eingöngu kleift að nota hann, heldur gat hún einnig séð og átt samskipti við andaheiminn hvenær sem hún vildi. Það gerði henni auðvitað fært að sjá, með anda sínum, allar þær árásir sem í vændum voru. Ég sagði henni, eftir leiðbeiningu Drottins, að ég héldi að eina leiðin til að loka dyragáttunum, svo mannsandarnir kæmust ekki inn, væri að biðja Drottin að taka í burtu allt vald hennar og kunnáttu í göldrum, og stjórn hennar á andlegum líkama sínum. Að taka þetta allt svo algjörlega frá henni, að jafnvel þótt hún gerði uppreisn og tæki þá ákvörðun að nota þetta aftur, þá mundi hún ekki geta það.
Elaine var mjög angistarfull yfir þessari ákvörðun mestan hluta dagsins. Hún vissi það alltof vel að ef hún gæfi upp allt vald sitt, yrði hún gjörsamlega varnarlaus gagnvart þeim mörgu sem voru að reyna að misþyrma henni og drepa. Þá yrði hún algjörlega upp á Drottin komin. En ást hennar og trúfesti við Drottin sigraði að lokum, og þetta kvöld var enn eitt skrefið tekið þegar við krupum á kné, og hún bað Drottin að taka frá sér allt vald og skilja á milli anda síns og sálar, eins og talað er um í Hebreabréfinu 4:12.
Við lærðum enn aðra mikilvæga lexíu þetta kvöld. Ég var nýlega sofnuð þegar Drottinn vakti mig, og ég hljóp inn í svefnherbergið og kom að Elaine sitjandi uppi, undir stjórn ills anda. Illi andinn hélt hendinni útréttri og benti. Drottinn gerði mér kleift að heyra hrjúft muldur hans, og mig hryllti við er ég uppgötvaði að hann var að nota andalíkama Elaine gegn Sallý, í þeim tilgangi að drepa hana. Samstundis teygði ég mig yfir hana og setti höndina fyrir framan illa andann og sagði:
“Nei, þú illi andi, ég hindra þig í Jesú nafni! Þú hefur ekki lengur neinn rétt á því að nota anda Elaine, af því að hún bað Drottin um að innsigla hann.” Hversu þakklát var ég fyrir að hún var búin að taka þetta mikilvæga skref. Annars hefði illi andinn haft möguleika á að nota anda hennar.
Öskureiður snéri hann sér að mér og öskraði. ”Hvernig dirfist þú að stoppa mig! Andi hennar tilheyrir mér, ég ætla að nota hann eins og mér sýnist.”
“Nei, þú mátt það ekki. Hann er undir blóði Jesú og innsiglaður, og enginn má nota hann að eilífu. Farðu nú! Ég skipa þér í Jesú nafni, farðu.”
Hann hörfaði, og úr augunum skein hatur. “Ég, prinsinn Yahshun, mun koma aftur, ég mun drepa þig fyrir það sem þú gerðir í nótt!” Að svo búnu fór hann.
Þegar hann var farinn, lyppaðist líkami Elaine niður, og síðan komst hún til meðvitundar. Ég sagði henni frá þessu og hvernig Yahshun hefði verið að reyna að nota anda hennar.
"Segðu mér, Elaine, notuðu djöflarnir anda þinn á þennan hátt, áður en þú tókst á móti Jesú?"
"Ó, já, oft. Ég gat ekki stoppað þá. Mér var refsað oft og mörgum sinnum fyrir að reyna það. Yahshun er mjög háttsettur illur andi. Hann og aðrir hans líkar, nota anda reglumeðlima eins og þeim sýnist. Oft stafa af þessu mikil veikindi og slappleiki fyrir þá, sem fyrir þessu verða. Satan biður aldrei leyfis, hann tekur bara!"
Seinna þessa nótt vaknaði ég með andfælum er hendur Elaine, undir stjórn Yahshun, læstu sig um hálsinn á mér. (Ég var alveg uppgefin og nýsofnuð og hafði ekki heyrt þegar Elaine kom inn í herbergið). Ég barðist um á hæl og hnakka við að losa krumlurnar sem voru alveg að kyrkja mig. Drottinn gaf mér styrk til þess, þegar ég hrópaði hljóðlaust til hans. Einhvern veginn tókst mér að losa hálstakið rétt áður en það leið yfir mig vegna súrefnisskorts. Við veltumst af rúminu og niður á gólfið í örvæntingarfullri baráttu. Hræðslubylgjur fóru um mig alla. Í miðjum andköfunum sagði ég :
“Ég mun sigra í Jesú nafni. Þú skalt fara núna!”
Hann barðist í örvæntingu, blótandi og hótandi. En ég hélt áfram að skipa honum að fara í nafni og valdi Jesú Krist. Að lokum kom reiðióp og síðan var hann farinn. Jafnskjótt kom mikil þögn og friður inn í herbergið sem við höfðum ekki fundið fyrir síðan ljósgeislinn kom í fyrsta sinn. Eins og alltaf hafði Drottinn gefið mér þann styrk sem ég þurfti. En áverkarnir, sem ég hafði fengið, voru nokkrar vikur að gróa. Raddböndin höfðu skaddast þannig að ég átti í erfiðleikum með að tala í nokkrar vikur.
Aftur önduðum við léttar og héldum að vandræðin væru yfirstaðin og búið væri að loka öllum dyragáttum fyrir mannsöndum. En enn á ný höfðum við rangt fyrir okkur. Næstu daga komu hvað eftir annað andar norna og galdramanna til að misþyrma okkur. Eftir mikla leit og bænir, skildum við að það eru þrjú svið sálarinnar sem stjórna andanum - meðvitundin, undirmeðvitundin og enn dýpri ómeðvituð undirvitund (þetta eru hin þrjú svið hugans). Það er þriðja sviðið, hið leynda djúp sálarinnar, sem illu andarnir nota á svo árangursríkan hátt. Elaine varð að biðja Drottin um að eiga við öll þrjú sviðin sem stjórnuðu anda hennar. Þegar hún hafði gert það, innsiglaði Drottinn hana. Hvorki hún né nokkur illur andi né nokkur önnur persóna hefur getað notað andlegan líkama hennar eða farið inn um þá dyragátt frá þeim degi.
Eftir því sem á baráttu okkar leið, varð ég ekki aðeins meira og meira meðvituð um andaheiminn, heldur einnig um engla Guðs. Nótt eina, stuttu eftir stimpingarnar við Yahshun, var ég mjög veik og uppgefin og miklu slappari en vanalega. Illu andarnir sáu þetta og urðu miklu árásargjarnari. Þegar einn illi andinn kom upp á yfirborðið og teygði sig eftir hálsi mínum, gortandi af því að hann væri miklu sterkari en hinir, gaf Heilagur andi mér skipun:
“Ekki veita mótspyrnu, ég sé um þennan.”
Ég hlýddi samstundis og vonaði innilega að ég hefði heyrt rétt, þar sem fingur illa andans, sem stjórnaði líkama Elaine, voru farnir að læsa sig um hálsinn á mér. Skyndilega voru þeir, einn af öðrum, losaðir af hálsi mínum. Þá var höndum hans ýtt frá mér, síðan niður, og að lokum krosslagðar á þann hátt að hann var algjörlega hjálparlaus. Ég gat ekki séð aflið sem hélt illa andanum, en hann var auðsjáanlega að slást við eitthvað og blótaði hátt. Þar sem örmum hans var haldið föstum, þrátt fyrir öll mótmælin, leit hann á mig og urraði:
“Taktu þessa engla af mér, þeir meiða mig!”
Ég lofaði Drottin með mikilli gleði fyrir umsjá hans og sagði glettnislega, “ Ó, nei, djöfsi, ég skipa þeim ekki fyrir. Það er aðeins Drottinn sem gefur þeim fyrirmæli. Ef þú vilt að þeir losi þig, þá verður þú að biðja Jesú, ekki mig.”
Illi andinn flýði eins og skot. Næstu dagana hjálpuðu englarnir mér hvað eftir annað. Stundum nefndu illu andarnir englana með nafni. Stundum svöruðu þeir með urri einhverri spurningu sem ég gat ekki heyrt með náttúrulegum eyrum mínum, en hafði augljóslega komið frá einhverjum engli. Oftar en einu sinni var hönd ills anda stöðvuð á miðri leið þegar hann ætlaði að slá mig. Það var mjög mikil huggun og uppörvun að vita að englarnir voru viðstaddir.
Eina nóttina, þegar þessi átta vikna barátta var um það bil hálfnuð, gaf Drottinn okkur nýjar leiðbeiningar. Klukkan var þrjú um nótt. Ég var búin að vera að berjast við illu andana í Elaine stanslaust frá því að ég kom heim úr vinnunni kvöldið áður. Elaine var uppgefin, og nýlega sofnuð, og ég sat í sófanum, hvíldi höfuðið á hnjánum og hugleiddi nýafstaðna baráttu. Illu andarnir voru orðnir miklu sterkari og erfiðari viðureignar og ég var orðin miklu slappari líkamlega. Ég var orðin mjög óróleg vegna þessa og hafði vikunni áður verið að biðja Drottin að sýna mér hvað ég gæti gert frekar til þess að ná styrk gegn illu öndunum.
Skyndilega fann ég fyrir "nærveru" við hliðina á mér í sófanum, þó ekkert hljóð heyrðist. Ég hrökk við og leit upp. Þarna á sófanum við hliðina á mér sat sá stærsti og sterkbyggðasti ungi maður sem ég hafði nokkurn tíma séð. Ég vissi samstundis að hann var ekki mennskur.
Hann var með skínandi gullið hár, djúp blá augu og það fallegasta bros sem ég hef nokkurn tíma séð. Hann var skegglaus, og bros hans til mín myndaði djúpa spékoppa í kinnarnar. Hann var í skínandi hvítum klæðum og með gullið belti, og stórt sverð hékk við síðu hans. Yfirhöfn hans minnti á kyrtil og var skreytt gullbryddingum, sem ég efast ekki um að hafi verið úr skíragulli. Hann var einnig í víðum fötum, hvítum buxum og í gullnum sandölum. Húð hans var bronslituð eins og eftir sólböð. Ljós geislaði af honum með krafti sem ég hafði aldrei áður kynnst. Hann sagði:
"Kona, ég er með skilaboð til þín frá Föðurnum."
Áður en hann gat haldið áfram, þá greip ég fram í og ekki mjög kurteisislega, er ég hrædd um.
"Stopp! Hver ert þú?"
"Ég er verndarengillinn þinn"
Mér þótti mikið til hans koma, ekki bara vegna stærðar hans og skínandi hvíts klæðnaðar, heldur einnig vegna hreinleika augna hans. Hvað sem því leið, þá kom ritningarversið í 2. Korintubréfi 11:14 upp í huga mér:
"Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd."
Einnig duttu mér í hug ritningarversin í 1. Jóhannesarbréfi 4:1-3:
“Þér elskaðir, trúið ekki sérhverjum anda, heldur reynið andana, hvort þeir séu frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn. Af þessu getið þér þekkt anda Guðs: Sérhver andi, sem játar, að Jesús sé Kristur kominn í holdi, er frá Guði. En sérhver andi, sem ekki játar Jesú, er ekki frá Guði.
Með þessi vers í huga, svaraði ég snubbótt:
"Það er nú það, til mín hafa komið illir andar sem reyndu að telja mér trú um að þeir væru verndarar mínir. Hver er þinn leiðtogi? Hverjum þjónar þú."
"Ég þjóna Drottni Hersveitanna."
"Það er ekki nógu gott, Satan kallar sig það."
Hann brosti aftur og sagði, "Ég þjóna Drottni Drottna og Konungi Konunganna. Jesú Kristi sem fæddur var af hreinni mey, kom til jarðar í holdi, dó á krossinum og reis upp úr gröfinni þremur dögum seinna. Þessi sami Jesús sem er Guð og situr núna á himnum, til hægri handar Föðurnum, sá Jesús er Drottinn minn og Leiðtogi."
Mér létti, vegna þess að ég vissi að hann hafði staðist prófið sem Drottinn hefur gefið okkur í 1. Jóhannesarbréfi 4.1. Ég vissi að enginn illur andi mundi dirfast að fara með slíka yfirlýsingu, Satan mundi rífa hann í tætlur á staðnum, ef hann gerði það.
"Ó, allt í lagi, mér þykir það leitt, en ég varð að vera viss um hver þú værir. Ég var hrædd um að þú værir illur andi, líkamnaður í þetta form til að blekkja mig.”
Hann kinkaði kolli, “Faðirinn sendi mig til að segja þér að vera hugrökk. Vertu ekki hrædd eða áhyggjufull, vegna þess að við erum með þér og verndum þig í hverju fótmáli alla leið. Baráttan á eftir að verða jafnvel enn harðari héðan í frá, og Faðirinn segir að þú verðir að vera viss um að íklæðast alltaf hertygjum Guðs.”
“Ertu að meina herklæði Guðs, sem talað er um í 6. Kafla Efesusbréfsins?”
“Já, það er hann, sem ég vitna í.”
Bréf Páls til Efesusmanna 6:10-18 segir: “Að lokum: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins. Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum. Takið því alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli, þegar þér hafið sigrað allt. Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins og skóaðir á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðskap friðarins. Takið umfram allt skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda. Takið við hjálmi hjálpræðisins og sverði andans, sem er Guðs orð. Gjörið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið því árvakrir og staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum.”
“En segðu mér,” spurði ég, “hvernig set ég á mig herklæðin?”
“Biddu á þennan hátt: Elsku Faðir, viltu nú klæða mig alvæpni þínu, ég bið og þakka þér fyrir það, í Jesú nafni.”
“Hversu oft á ég að biðja um herklæðin?”
Hann sat og horfði upp í nokkrar sekúndur, kinkaði síðan kolli og snéri sér að mér.
“Faðirinn segir, að einu sinni á 24 tíma fresti sé fullnægjandi. Eins og Drottinn Jesús sagði, þegar Hann var hérna á jörðinni, að þið skylduð taka upp krossinn daglega, þannig verðið þið að fara í herklæðin og búa ykkur undir baráttu daglega. Þú verður að skilja, að þetta er mjög mikilvægt. Ekki gleyma að biðja um þau daglega. Ef þú ert ekki í herklæðunum, þá geturðu orðið fyrir skakkaföllum.”
“En ég skil ekki, ég get ekki séð þessi herklæði, og í ritningunum virðist þetta vera svona frekar táknrænt. Hvert fara þessi herklæði?”
“Þú klæðir þinn andlega mann í herklæði Guðs. Orð Guðs segir það berlega að þú sért þátttakandi í andlegri baráttu, þannig að herklæðin eru einnig andleg. Þú þarft að rannsaka ritningarnar nánar varðandi þetta atriði.”
(Næsta dag fann ég vers í 1. korintubréfi 15:44 þar sem segir: ”Sáð er jarðneskum líkama, en upp rís andlegur líkami. Ef jarðneskur líkami er til, þá er og til andlegur líkami.")
Þá sagði engillinn léttari í bragði: “Þið hafið alltaf svo margar spurningar, Faðirinn segir að þú megir spyrja mig hvers sem þú vilt, ég mun svara.”
Margar spurningar komu upp í huga minn. En það var eitt sem mig langaði að vita mest af öllu: “Segðu mér, hvernig er Jesús í raun og veru? Gerðu það, getur þú sagt mér meira um hann? Ég þrái svo að þekkja hann betur.”
Engillinn sat afslappaður, með krosslagða fætur. “Ja, Jesús er svo fallegur! Eitt augnabliksbros frá honum lýsir upp allan alheiminn með hlýju og kærleika. Jesús er óþreytandi og vinnur kröftuglega og sleitulaust fyrir kirkju sína. Ekkert smáatriði í starfi hvers og eins af fólki hans er of smávægilegt fyrir óskipta athygli hans. Hann vinnur látlaust, bæði við að sjá fyrir sínu eigin fólki og við að ná öðrum inn í kirkju sína. Dýrð hans breiðist út gegnum allan alheiminn og út fyrir hann. Hún endar aldrei.”
Ég sat og hugleiddi orð hans og reyndi að sjá skýra mynd af þessu öllu í huga mér. “Ég hef oft velt því fyrir mér hvort dýrð Jesú væri eitthvað í líkingu við fallega sólarupprás. Ég á við: það er niðamyrkur, og þá byrjar fallegt ljós að skína yfir sjóndeildarhringinn. Ljósið og litirnir vaxa og aukast að birtu og fegurð eftir því sem sólin kemur nær og nær og birtist svo í allri sinni dýrð yfir sjóndeildarhringi. Og þegar hún er komin upp, er hún svo björt og falleg. Er dýrð Jesú eitthvað í líkingu við það, þegar hann nálgast þig?”
“Já, það er nákvæmlega þannig!”
Við sátum og töluðum saman í nær tvo tíma. Ég gleymi aldrei þeirri yndislegu reynslu. Ást Guðs streymdi frá þessari veru á svo sterkan hátt að ég öðlaðist nýjan skilning á því hversu mikið Guð elskar okkur. Engillinn sagði mér að Drottinn bæri svo mikla umhyggju fyrir börnum sínum að í hvert skipti sem eitthvert þeirra gréti, sendi hann engil til að halda þeirri persónu í örmum sér og hugga hana. Fólk gerir sér þetta auðvitað aldrei ljóst, en þetta gerist engu að síður.
Engillinn sagði mér einnig að Guð hefði skapað engla sína með svo mikinn kærleika að sérhver persóna hefði sinn sérstaka verndarengil sem verndar hann eða hana, af því að hann ber svo mikinn kærleika til þess einstaklings, að hann biður Föðurinn um að fá að vernda hann frá fæðingu. Ég var minnt á Hebreabréfið 1:13-14, þar sem stendur:
“En við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt: set þig mér til hægri handar, uns ég gjöri óvini þína að fótskör þinni? Eru þeir ekki allir þjónustubundnir andar, útsendir í þeirra þarfir, sem hjálpræðið eiga að erfa?
Þá nótt öðlaðist ég dýpri skilning á versunum í 1. Korintubréfi 2:9, en þar stendur:
“En það er eins og ritað er: Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns, allt það sem Guð fyrirbjó þeim, er elska hann. En oss hefur Guð opinberað hana fyrir andann, því að andinn rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs.
Engillinn hafði benti mér á mörg ritningarvers, og þegar ég hafði rannsakað þau og beðið yfir þeim, opinberuðu þau mér miklu meira af þeim stórkostlegu áætlunum sem hann hefur fyrir fólk sitt í framtíðinni.
Baráttan varð miklu harðari, eftir þessa stund mína með englinum, en ég fann að hvern dag sem ég bað Föðurinn um herklæðin, hafði ég meiri styrk og þjáðist ekki líkamlega vegna stöðugra átaka við illu andana.
Meðan á þessum átökum stóð, varð mér það ljóst að ég var komin á þann stað að mér var orðið sama um þjóðfélagsstöðu mína og það félagslíf sem ég hafði áður svo mikla ánægju af. Ég var að verða allt öðruvísi en fólkið í kringum mig. Ég gat ekki deilt reynslu minni með neinum, nema einstöku sinnum með Pat presti.
Ég þekkti ekki neinn annan sem mundi skilja þetta. Ég hafði áhyggjur af því að það vantaði jafnvægi í líf mitt. Ég fól Föðurnum vandamálið í bæn, hellti úr skálum efasemda minna og tjáði honum hræðslu mína. Ég vissi að ég mundi aldrei verða nógu kæn til að sjá fyrir blekkingar Satans. Ég varð að treysta því að Drottinn sýndi mér ef ég væri að falla í snörur hans.
Þá ráðlagði Drottinn mér að lesa 1. Pétursbréf. Ég verð að viðurkenna að ég varð frekar vonsvikin þar sem ég gat ekki séð hvernig það hjálpaði, en ég hlýddi, ég gerði það sem Faðirinn ráðlagði mér. Á meðan ég las, gaf Drottinn mér nýjan skilning á þessum dýrmætu versum:
“...sem eru dreifðir sem útlendingar...”1. Pétursbréf 1:1“Þér elskuðu, ég áminni yður sem gesti og útlendinga....”1. Pétursbréf 2:11
Þá sýndi Drottinn mér tvö önnur vers:
“Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt, sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orrustu. Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari, skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.” Sálmur 144:1-2
“Þrenging vor er skammvinn og léttbær og aflar oss eilífrar dýrðar sem stórum yfirgnæfir allt. Vér horfum ekki á hið sýnilega, heldur hið ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft.” 2. Korintubréf 4:17-18
Við greiðum gjald fyrir að festa augu okkar (eða athygli) á því, sem er “ósýnilegt.” Við verðum útlendingar og ókunnug í heiminum. Heimili okkar er í raun og veru ekki hér á jörðu. Það verður ekki fyrr en Jesús kemur aftur til að sækja okkur og leyfir okkur að vera með sér, að við komum loks heim.
Eftir því sem vikurnar liðu fór ég að hafa vaxandi áhyggjur af því að þessi hörðu átök við illu andana væru að eyðileggja líkama Elaine. Ég spurði Drottin mörgum sinnum hversu lengi þetta yrði, og alltaf var svarið, “Þangað til þið hafið lært nóg.” Að lokum kom sá dagur að Faðirinn sagði mér að hafa samband við Pat prest til þess að skipuleggja tíma fyrir lokalausn Elaine. Ég gerði það, en sagði Elaine ekki frá því. Ég vissi að ef ég gerði það, myndu andarnir í henni heyra það og gera allt sem þeir gætu til þess að hindra okkur.
Eftir því sem dagurinn færðist nær, ullu bæði illu andarnir og andar norna og galdramanna meiri og meiri vandræðum. Við gátum ekki séð þá, og fengum því enga viðvörun áður en þeir gerðu árás. Okkur Elaine var oftsinnis fleygt þvert yfir herbergið, húsgögnum og öðrum hlutum var oft kastað í okkur - allt af ósýnilegum verum. Við vorum báðar marðar frá hvirfli til ilja, vegna árása þeirra.
Að lokum kom kvöldið fyrir lokalausn Elaine. Við vorum báðar algjörlega úrvinda af þreytu, og ég var mjög áhyggjufull þar sem Elaine var einnig mjög veik. Við reyndum að liggja útaf en okkur var stöðugt ýtt út úr rúminu til skiptis af ósýnilegri andaveru og hent niður á gólf eða upp að vegg. Vaxandi nærvera hins illa í húsinu lagðist þungt á sál mína. Jafnvel loftið virtist orðið svo þykkt af illsku, að erfitt var orðið um andardrátt.
Seint þetta kvöld sat ég á brúninni á rúmi Elaine, vaggaði henni í fanginu á mér og reyndi í örvæntingu að halda henni og skýla með líkama mínum fyrir látlausum árásunum. Hún var þá orðin svo máttfarin að hún hafði enga orku til þess að reyna einu sinni að hamla á móti árásunum. Tár streymdu niður kinnarnar á mér þegar ég hrópaði á Jesú eftir hjálp.
“Flýðu!” Skyndilega birtist þetta orð í anda mínum og huga með miklum mætti. “Flýðu!” Síðan sló Drottinn inn í huga mér öðrum kaflanum í Matteusi þar sem engill Drottins sagði Jósef um miðja nótt að taka Maríu og Jesúbarnið og flýja til Egyptalands. Þá vissi ég að ég yrði að taka Elaine og flýja, annars yrðum við báðar drepnar.
Ég bað Drottin að umlykja okkur til þess að andar, bæði manna og djöfla, gætu ekki séð þegar við færum. Samstundis voru andleg augu mín opnuð og ég sá volduga stríðsengla hringinn í kringum okkur. Elaine var varla með meðvitund og gjörsamlega ófær um gang. Ég var ekki mikið sterkari en hún, en vissi að við yrðum að hlýða þessari áríðandi skipun. Svo ég skjögraði fram úr rúminu með Elaine í fanginu. Þegar ég byrjaði að síga undan þunga hennar, heyrði ég einn englanna skipa fyrir og á samri stundu lyftu tveir englar okkur. Þeir bókstaflega báru okkur út í bílinn. Þeir settu Elaine í farþegasætið og gættu þess vandlega að festa á hana öryggisbeltið, síðan lokuðu þeir hurðinni vandlega. Þá var hún orðin alveg meðvitundarlaus.
Ég vissi ekki hvert við ættum að fara, þannig að ég lagði bara af stað. Það var falleg og heiðskír nótt. Þar sem ég keyrði eftir hraðbrautinni leyfði Drottinn mér að sjá í anda mínum hvað væri að gerast í íbúðinni minni. Illu andarnir og þeir mennsku leituðu að okkur bókstaflega út um alla íbúðina, þumlung fyrir þumlung. Ég lofaði Drottin fyrir gæsku hans og miskunn við okkur. Satan og þjónar hans höfðu enga hugmynd um hvar við vorum. Við vorum algjörlega huldar! Þá sagði Drottinn mér að fara til bróður míns. Við komum þangað klukkan 3 um nóttina og vorum þar það sem eftir var nætur.
Næsta morgun setti ég Elaine aftur í bílinn og stefndi til kirkjunnar. Þegar við vorum um það bil kílómetra frá kirkjunni, snéri Elaine sér að mér og sagði:
“Rebekka, þú hefur ekki sagt mér hvert við erum að fara. Vertu nú einlæg og segðu mér hvað í veröldinni er að gerast?”
“Ja, við erum á leiðinni í kirkjuna. Í dag er dagurinn, sem Drottinn hefur valið fyrir loka-lausn þína.”
“Frábært!” Það var eina orðið sem henni tókst að stynja út úr sér. Á samri stundu komu illu andarnir upp á yfirborðið. Þeir voru bandsjóðandi brjálaðir. Ég var þakklát fyrir að hafa farið eftir fyrirmælum Drottins og fest Elaine vandlega með öryggisbeltinu og læst hurðunum. Annars hefðu þeir hent henni út úr bílnum. Þegar við komum að innkeyrslunni að kirkjunni, varð barátta þeirra ofsafengin. En Drottinn var búinn að skipuleggja þetta allt vel og vandlega. Þegar ég stoppaði og snéri mér við til að reyna að aðstoða Elaine, kom vinkona mín, Judy, sem var þarna til að hjálpa okkur, og gekk hratt að bílnum mínum með opna Biblíu í hendinni. Hún opnaði dyrnar hjá Elaine og sagði:
“Hlustið bara á ritninguna sem Drottinn hefur gefið okkur fyrir daginn í dag:
“Ég vil lofa þig af öllu hjarta, lofsyngja þér frammi fyrir guðunum. Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti, því að þú hefir gjört nafn þitt og orð þitt meira öllu öðru. Þegar ég hrópaði, bænheyrðir þú mig, þú veittir mér hugmóð, er ég fann kraft hjá mér. Allir konungar á jörðu skulu lofa þig, Drottinn, er þeir heyra orðin af munni þínum. Þeir skulu syngja um vegu Drottins, því að mikil er dýrð Drottins. Því að Drottinn er hár og sér þó hina lítilmótlegu og þekkir hinn drambláta í fjarska. Þótt ég sé staddur í þrengingu, lætur þú mig lífi halda, þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér. Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig, Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef eigi verk handa þinna." Sálmur 138.
Þegar Judy las þessi fallegu orð, þá þögnuðu illu andarnir í Elaine og urðu meðfærilegir. Þá hjálpuðum við Judy Elaine út úr bílnum. Þegar við komum að kirkjudyrunum, byrjuðu þeir aftur að berjast á hæl og hnakka. En aftur var Drottinn með allt í sínum höndum. Pat og aðstoðarmaður hans mættu okkur á kirkjutröppunum. Þeir gripu í sitt hvora höndina á Elaine.
“Ég sé að hér höfum við mjög óánægða djöfla,” sagði Pat. “ Þið illu andar, þegið þið og verið rólegir. Við bindum ykkur í Jesú nafni!” Ef Drottinn hefði ekki haft mennina við dyrnar til að hjálpa okkur, efast ég um að við Judy hefðum verið nógu sterkar til að koma Elaine að skrifstofu prestsins. Um leið og við fimm vorum komin inn á skrifstofuna og höfðum lokað hurðinni, byrjaði baráttan. Hún geisaði næstu tíu klukkutímana. Illu andarnir voru eins og villt dýr í búri, og þeir börðust í örvæntingu vegna þess að þeir vissu að þeir yrðu að fara. Þeir höfðu ekki möguleika, vegna þess að máttur og nærvera Drottins í þessu herbergi var alveg sérstök.
Þessi dagur mun alltaf vera í huga mínum sem ein fallegasta reynsla sem ég hef upplifað. Drottinn var við fullkomna stjórn, og allt gekk greiðlega fyrir sig þegar hann notaði okkur til skiptis. Við höfðum ekki getað hreinsað Elaine fullkomlega áður, vegna þess að við vissum ekki um allar dyragáttirnar sem þurfti að loka. Þennan dag gaf Drottinn okkur opinberun á opinberun ofan.
Þegar manneskja, sem er eins andsetin og Elaine, þá þarf að hreinsa hana innan frá og út. Hér á eftir hef ég skráð niður í hvaða röð þarf að loka dyragáttunum. Drottinn sýndi okkur þennan dag og mörgum sinnum síðar, að það væri miklu auðveldara og áhrifameira að hreinsa út á hverju svæði fyrir sig hjá viðkomandi persónu, heldur en að reka út hvern anda fyrir sig. Á þann hátt eru þeir, sem eru að reka út, við stjórn, í stað þess að þurfa að bíða og sjá hvaða andar koma upp á yfirborðið. Leiðtoga eða foringja á hverju svæði er kastað út ásamt öllum undiröndum í einu lagi. Illu andarnir eru einfaldlega of margir til þess að það sé reynandi að kasta þeim út hverjum fyrir sig. Það mundi taka allt of langan tíma. (Til dæmis gæti illi andinn Hersing haft allt upp í 4000 lægri setta anda með sér. Drottinn okkar, Jesús Kristur, gaf okkur fordæmi þegar hann kastaði þeim öllum út í einu lagi í Lúkasarguðspjalli 8. kafla.)
1) Í flestum manneskjum sem eru djúpt sokknar í dulspekikukl, er opin dyragátt fyrir Satan sjálfan. Þessari innstu dyragátt er haldið opinni af mjög háttsettum illum anda, sem titlar sig “son Satans.” (Ath: þessi titill er breytilegur eftir landsvæðum og einnig nöfn hinna ýmsu illu anda og eru of margvísleg til að reyna að skrá þau. Að tilgreina þá eftir verkan þeirra er fullnægjandi til þess að ná valdi yfir þeim). Þessi dyragátt gerir Satan sjálfum kleift að yfirtaka persónuna og tala og hegða sér að vild í gegnum hana.
2) Næsta svið er andi mannsins. Einn háttsettur illur andi ríkir yfir öllum mannsandanum. Þessi illi andi er oftast kallaður “leiðsöguandi”, en getur verið undir öðrum nöfnum á mismunandi stöðum. Mann-Chan var leiðsöguandi Elaine. Þá skiptist andi mannsins í þrjú svið, og hvert svið hefur sinn foringja ásamt lægra settum illum öndum sem eru undir hans stjórn. Þessi þrjú svið mannsandans eru:
Samviskan - hæfileikinn til að greina rétt frá röngu. Innsæi - hæfileikinn til að skynja nærveru Drottins. Lofgjörð - það svið þar sem við lofum Drottin “í anda” eins og segir í Jóhannesarguðspjalli 4:23 : “En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja Föðurinn í anda og sannleika...”
3) Sálin skiptist í nokkur svið. Illi andinn, sem drottnar yfir allri sálinni, vitnar oftast um sjálfan sig sem “kraft-anda.” Fjallað verður meira um þessa svokölluðu kraft-anda í 14. kafla, þar sem rætt verður um sál-stjórnunar-anda. Svið sálarinnar eru sex. Fyrstu þrjú varða stjórn mannsandans:
meðvitund undir-meðvitund ó-meðvitund
Þá eru þrjú önnur svið:
vilji hugur tilfinningar Hvert svið fyrir sig hefur, eins og áður segir, höfuð-anda og undirtyllur.
4) Að lokum er það líkaminn. Höfuð-andinn yfir líkamanum er venjulega “dauða-andi” eins og Yaagog. Þeir eru voldugir og geta auðveldlega valdið þeirri persónu líkamlegum dauða, sem þeir setjast að í, með sjúkdómum á mjög stuttum tíma ef Drottinn heldur ekki aftur af þeim. Svið líkamans eru:
heilinn - þá tölum við um hið líkamlega líffæri Líkaminn - það er, önnur svæði líkamans. kynlíf - höfuð-andi þessa sviðs heldur opnum dyragáttum, sem gefur Satan rétt á að eiga kynferðislegt samneyti við persónuna, sem og öðrum illum öndum.
Það eru mörg ritningarvers sem vitna um og staðfesta ofangreind svið. Tími og rúm leyfa ekki að ég skrái þau öll. Það vers, sem var mikilvægast fyrir okkur var eftirfarandi:
“En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. 1. Þessaloníkubréf 5:23
Ef þú vilt vita meira um þessi svið, þá mæli ég eindregið með því að þú lesir bókina Hinn Andlegi Maður (The Spiritual Man) eftir Watchman Nee. Hann útskýrir þetta ágætlega samkvæmt ritningunum.
Aðstoðarpresturinn hafði aldrei upplifað slíka hreinsunarathöfn áður og hafði ekki vitað um þetta fyrr en klukkutíma áður en við byrjuðum. Mér var mjög skemmt þegar við vorum um það bil hálfnuð og stoppuðum til að hvíla okkur aðeins, en þá sagði hann:
“Vitið þið, að allt þetta gerir hversdagsleikann einhvern veginn afskaplega ómerkilegan!” Síðan hélt hann áfram og sagði okkur frá merkilegri reynslu sem hann hafði orðið fyrir kvöldið áður. Það var mjög seint, og hann sat inni á skrifstofunni sinni í kirkjunni og var að lesa þegar:
“Heilagur andi tók skyndilega bókina úr höndunum á mér, lyfti höndum mínum upp í loft og skipaði mér að standa á fætur. Þegar ég hafði gert það, sagði hann mér að ná í flösku af olíu og fara inn á skrifstofu prestsins. Ég var eina manneskjan í kirkjunni á þeim tíma. Þá skipaði Heilagur andi mér að loka og læsa öllum hurðum og smyrja dyrakarmana, þröskuldana og þá hurðirnar sjálfar og síðan alla glugga með olíu í nafni Föðurins, Sonarins og Heilags anda. Að lokum bað ég Drottin um að innsigla þetta herbergi. Ég gerði það, en hafði ekki hugmynd um hvers vegna. Þetta herbergi var lokað og innsiglað þar til við komum inn í það í morgun. “
Við lofuðum öll Drottin fyrir umsjá hans. Innsiglun þessa herbergis var til þess gerð að tryggja að engin utanaðkomandi afskipti yrðu á meðan lokalausn Elaine átti sér stað.
Í heild stóð baráttan yfir í rúma tíu tíma. Þvílíkur tími lofgjörðar og fagnaðar sem við áttum að lokum! Enn einu sinni hafði Drottinn staðið við orð sitt og var búinn að leysa hinn fjötraða. Frá þessum degi hefur Elaine verið laus við illa anda. Við getum ekki lofað og þakkað Drottni nægilega mikið fyrir stórkostlega frelsun hennar!