Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Átjándi kafli

Sjúkdómar af völdum illra anda

um 35 mín. lestur

Rebekka segir frá:

Þau málefni, sem snúa að því hvernig illir andar koma við sögu varðandi hina ýmsu sjúkdóma sem hrjá mannslíkamann, eru mjög umdeild og misskilin. Ég ætla ekki að reyna að leysa úr þeim ágreiningsmálum hér, vegna þess að ég veit að það er ekki hægt. Ég vil kynna fyrir ykkur; lesendur góðir, nokkur ritningarvers og mína persónulega reynslu sem læknir, á þessu sviði, og deila með ykkur því sem Drottinn hefur kennt mér um þetta vandamál.

Mér er full kunnugt um það að einhverjir kirkjuleiðtogar kenna að allir líkamlegir sjúkdómar séu bein afleiðing illra anda, og eina leiðin til lækninga sé í gegnum endurfæðingu. Aðrir segja, aftur á móti, að illir andar geti ekki snert kristið fólk. Skoðum Guðs orð.

Sem læknir nýt ég þess sérstaklega að lesa Lúkasarguðspjallið, vegna þess að ég sé svo marga staði þar sem Lúkas kemur með sjónarhorn læknisins inn í skrif sín. Hann sýnir á varfærnislegan hátt mismuninn á sviðum sjúkdóma, þar sem aðrir sýndu ekki sama skilning.

“Hann gekk ofan með þeim og nam staðar á sléttri flöt. Þar var stór hópur lærisveina hans og mikill fjöldi fólks úr allri Júdeu, frá Jerúsalem og sjávarbyggðum Týrusar og Sídonar, er komið hafði til að hlýða á hann og fá lækning meina sinna. Einnig voru þeir læknaðir, er þjáðir voru af óhreinum öndum." Lúkas 6:17-18

Takið eftir, að hér er gerður greinarmunur á því að sumir sjúkdómar voru læknaðir, og aðrir læknuðust þegar óhreinum öndum var kastað út af þeim.

“Á þeirri stundu læknaði hann [Jesús] marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn." Lúkas 7:21

Aftur er sami greinarmunur gerður. Einnig eru tvö önnur skýr dæmi gefin í Lúkasarguðspjalli, sem sýna fram á það sama - það er, að sumir sjúkdómar eru einfaldlega líkamlegs eðlis, og sumir eru af völdum illra anda.

“Þegar hann var að koma, slengdi illi andinn honum flötum og teygði hann ákaflega. En Jesús hastaði á óhreina andann, læknaði sveininn og gaf hann aftur föður hans." Lúkas 9:42

“Úr samkundunni fór hann í hús Símonar. En tengdamóðir Símonar var altekin sótthita, og báðu þeir hann að hjálpa henni. Hann gekk að, laut yfir hana og hastaði á sótthitann, og fór hann úr henni. En hún reis jafnskjótt á fætur og gekk þeim fyrir beina." Lúkas 4:38-39

Breiða letrið sýnir muninn á augljósan hátt, því í fyrra tilfellinu læknaði Jesús með því að hasta á óhreina andann, en í öðru tilfellinu læknaði hann með því að hasta á líkamshitann.

Illir andar geta valdið og valda veikindum. Veikindi eru ekki öll af völdum óhreinna anda, en í mjög mörgum tilfellum. Við verðum að muna að afleiðingin af falli Adams var líkamlegur dauði, engu síður en andlegur dauði. Breytingarnar í líkama okkar af völdum syndar, gera okkur berskjaldaða fyrir hinum ýmsu líkamlegu sjúkdómum. Drottinn hefur kennt mér margt á þessu sviði. Illir andar eru sérfræðingar í að meðhöndla bakteríur og vírusa og valda mörgum sjúkdómum með því að koma þeim fyrir í mannslíkamanum, en þeir geta líka beinlínis valdið skemmdum.

Óhreinir andar tæta í sundur mólekúl líkamans. Þeir gera það á þann hátt að hin ýmsu líffæri eyðileggjast án þess að frumubreytinganna verði vart í smásjánni okkar. Skemmdirnar, sem þeir valda, kalla yfirleitt á lyfjameðferð, sérstakt mataræði, o.s.frv., en læknirinn getur eingöngu vitað hvað er að slíkum sjúklingi, ef hann fær beina opinberun um það frá Drottni, og þá hvaða meðferð hann á að beita. Fáir kristnir læknar eru tilbúnir að taka þá áhættu að reiða sig algjörlega á Drottin. Ég er ekki að ráðleggja meðferð án þess að sjúkdómsgreina sjúklinginn með tilheyrandi rannsóknum, en allir læknar, hvort sem þeir viðurkenna það eða ekki, sjá óþægilega mörg tilfelli, þar sem sjúkdómsgreiningar gefa engin svör um hvað sé að sjúklingnum. Í þeim tilfellum er það á ábyrgð læknisins að leita sérstaklega eftir handleiðslu Drottins með föstu og bæn.

Eitt athyglisverðasta dæmið um þess háttar eyðileggingu af völdum illra anda var tilfelli, sem gerðist þegar ég var að ljúka þjálfun minni. Ég var á þeim tíma yfirmaður innvortis lækninga á gjörgæsludeildinni. Dag einn var komið með þrjátíu og fimm ára gamlan mann á deildina, sem hét Björn, en hann hafði legið í eina viku á sjúkrahúsi í einum af smábæjunum í nágrenninu. Hann hafði skyndilega orðið veikur og var með mjög mikinn hita. Læknarnir hans höfðu ekki fundið orsökina. Þegar ég rannsakaði hann, daginn sem hann var skráður inn, þá gat ég ekki heldur fundið neitt að, en hann var auðsjáanlega mjög illa haldinn. Þegar við hófum þessar venjulegu prófanir, og báðum aðra sérfræðinga einnig um að líta á hann, þá bað ég Drottin ákaft um að opinbera fyrir mér, hvað væri að honum.

Næsta morgun stökk hann skyndilega upp úr rúminu og sagðist ætla að yfirgefa sjúkrahúsið eins og skot, því ef hann gerði það ekki þá yrði hann drepinn. Það var ekki hægt að telja honum hughvarf. Að lokum sá heimilislæknirinn hans til þess að hann væri sviptur sjálfræði í 72 klukkutíma, svo að halda mætti honum á sjúkrahúsinu. Þegar sjálfræðissviptingunni var framfylgt, “fór hann gjörsamlega yfir um” og lagðist í rúmið og starði upp í loftið, muldrandi eitthvað óskiljanlegt, og sýndi engin viðbrögð við áreiti. Hann var í þessu ástandi næstu tvo daga á meðan líkamlegu ástandi hans hnignaði hratt.

Loksins þriðja morguninn, þegar ég var að búa mig í vinnuna, talaði Faðirinn við mig og sagði mér að Björn væri í rauninni æðsti prestur úr nærliggjandi borg. Veikindi hans stöfuðu af því að það væri verið að refsa honum fyrir að óhlýðnast Satan á einhvern hátt. Björn hafði viljað yfirgefa sjúkrahúsið vegna þess að hann var kominn inn á valdasvæði “Davíðs”, æðsta prests þessa svæðis, sem var læknir á Memoríal-sjúkrahúsinu. Tveir æðstu prestar fara aldrei inn á sama valdasvæði, nema með gagnkvæmu samþykki, án þess að heyja einvígi til dauða. Björn vissi, að í hans veika ásigkomulagi átti hann ekki möguleika gegn Davíð. Drottinn sagði mér að fara og binda anda hugar-fjöturs og anda-glundroða og síðan ætti ég segja Birni að ég vissi hver hann væri og hvað væri um að vera, síðan ætti ég að deila með honum fagnaðarerindinu. Í von um að ég hefði heyrt rétt frá Drottni, fór ég þennan morgun og gerði það sem hann bað mig um.

Þegar ég kom í stofu Björns, snemma þennan morgun, fullvissaði ég mig um að enginn annar væri inni í stofunni og lokaði hurðinni. Ég reyndi að fá hann til að sýna einhver viðbrögð, en það gekk ekki. Hann hélt áfram að muldra eitthvað óskiljanlegt. Þá setti ég höndina á rimlana á rúminu og sagði:

“Þið andar hugar-fjöturs og glundroða, Leiðtogi minn, Jesús, hefur sent mig til þess að binda ykkur, og það geri ég nú í nafni Jesú Krists. Þið megið ekki lengur starfa í þessum manni.”

Viðbrögðin urðu áhrifamikil. Á sömu stundu hætti Björn að muldra, snéri höfðinu og leit á mig, alveg skýr. ”Góðan daginn,” sagði hann, “var það eitthvað sérstakt?”

“Já, ég hef skilaboð til þín frá Guði hinum hæsta.” Ég hélt áfram og sagði honum frá því sem Faðirinn hafði sagt mér. Þá deildi ég með honum fagnaðarerindinu.

“Björn, þú verður að gera þér grein fyrir að eina vonin, sem þú átt, er Jesús. Satan er ákveðinn í að drepa þig. Að halda áfram að þjóna honum mun aðeins tortíma þér, og það versta er eilífð í helvíti.”

Hann leit á mig með uppgerðar undrunarsvip. “Hver ert þú?! Þú ert brjáluð! Ég veit ekki hvað þú ert að tala um!”

“Ó jú, þú veist það vel, minn Guð lýgur ekki.”

“O farðu; ég vil ekkert af Jesú vita!”

“Þú um það. Þitt er valið.”

Að því búnu yfirgaf ég sjúkrastofuna. Frá þeirri stundu var Björn alveg skýr í hugsun. Ég verð að viðurkenna, að ég skemmti mér ágætlega við að ýta á sérfræðingana þennan morgun, og spyrja þá hver væri skýringin á því að Björn hefði komið svona skyndilega til sjálfssín, þar sem líkamlegt ástand hans væri enn það sama. Enginn af þeim gat gefið mér viðunandi svar.

Ég hélt áfram að fasta og biðja staðfastlega fyrir Birni, og bað ég Drottin um að gefa honum að minnsta kosti eitt tækifæri í viðbót. Fjórum dögum seinna var Björn við dauðans dyr. Nýru hans höfðu hætt að starfa tveimur dögum áður, lifur hans var óstarfhæf að mestu, hjartað var að gefa sig og lungun voru að fyllast af vatni.

Blóðþrýstingurinn var svo lágur, að honum var gefið lyf í æð til að reyna að halda blóðþrýstingnum eðlilegum. Ég vissi að innan mjög skamms tíma yrði að setja hann í öndunarvél. Hann var með stöðugar kvalir sem við réðum ekkert við. Þá talaði Faðirinn við mig aftur og sagði mér að deila fagnaðarerindinu einu sinni enn með Birni.

Eins og áður, fullvissaði ég mig um að við værum ein í stofunni. “Björn, þú ert að deyja! Gerir þú þér grein fyrir því? Er ekki kominn tími til að þú sért hreinskilinn við mig?”

“Jú, kannski hefur þú rétt fyrir þér.”

“Manstu eftir samtali okkar fyrir fjórum dögum síðan?”

“Já, mjög vel. Þú hafðir rétt fyrir þér, ég er æðsti prestur, og ég vildi fara af því að ég vissi að Davíð mundi drepa mig.”

“Björn, þú hlýtur að sjá að þín eina von er Jesú. Viltu ekki biðja hann um að fyrirgefa þér og vera Leiðtogi þinn í staðinn fyrir Satan?”

“Jú, en heldur þú að mér verði leyft það.”

“Af hverju?”

“Vegna þess að Satan stendur þarna.” Hann hreyfði höndina í þá átt sem var gegnt mér. Ég gat ekki séð neitt, en andi minn skynjaði nærveru hans.

“Nei, Drottinn hefur bundið hann. Vantar þig tákn um að svo sé?” (Drottinn sagði mér að ég gæti kastað út anda - sársauka, sem tákni um að það sem ég segði væri sannleikanum samkvæmt. Ef ég myndi kasta þessum illa anda út, þá hyrfi sársaukinn samstundis).

“Nei, bara sú staðreynd að þú sért nógu rugluð til að taka áhættuna á því að koma á þennan hátt hérna inn, er nóg fyrir mig.”

Síðan, með tárin rennandi niður kinnarnar, tók hann í hönd mína og bað Jesú, með skjálfandi röddu, um að fyrirgefa sér og vera leiðtogi sinn. Þá snéri hann sér á hina hliðina og ávarpaði Satan beint og sagði honum að hann mundi ekki þjóna honum lengur, hvað svo sem mundi gerast.

Eftir leiðbeiningum Drottins, þá kastaði ég út nokkrum illum öndum sem báru ábyrgð á hitanum í honum, sársauka, nýrnastoppinu, o.s.frv. Verkirnir hurfu samstundis, og hann var verkjalaus í fyrsta sinn í marga daga. Innan tveggja klukkutíma var hann án blóðþrýstingslyfjanna. Tveimur dögum síðar var hann útskrifaður af gjörgæsludeildinni og innan tveggja vikna var hann skráður af sjúkrahúsinu, alheilbrigður! (Sérfræðingarnir röktu sjúkdóm hans til “víruss.” Það er sjúkdómsgreining sem oft er notuð, þegar enginn veit í raun hvað er að).

Ég spyr sjálfa mig oft að því hversu margir sjúklingar, sem ég hef séð í gegnum tíðina, hafa dáið úr hrörnunarsjúkdómum án þess að hafa verið sjúkdómsgreindir almennilega. Vanalega eru slík tilfelli rakin til “vírusa.” Kristnir læknar ættu í einlægni, með mikilli föstu og bæn, að leita handleiðslu Drottins og opinberunar í slíkum tilfellum. Einnig er allt of oft litið framhjá 5. kafla Jakobsbréfsins, bæði af kirkjum og læknum. Oft er bæn í trú og smurning með olíu eina ráðið til að lækna áverka illra anda.

Önnur algeng aðferð, sem illir andar nota til að þjaka líkama fólks, er sársauki. Sársauki, sem er mismunandi mikill en vanalega mjög slítandi og yfirleitt þannig að ekki er hægt að finna neina læknisfræðilega orsök fyrir honum. Í hvert sinn sem ég sé sjúkling, er þjáist af miklum sársauka sem ég finn ekki neina líkamlega skýringu á, byrja ég strax að biðja Drottin um opinberun á orsökunum. Vanalega er það vegna illra anda. Þegar Satanistar nota galdra sína í innbyrðis baráttu, þá endar sá, sem tapar, oft á gjörgæslu einhvers sjúkrahússins með mikla verki sem ekki er hægt að finna neina líkamlega orsök fyrir. Illir andar valda ekki alltaf líkamsskaða á sama tíma og þeir valda sársauka, og þeir þurfa ekki að vera inni í líkamanum til þess að valda sársauka.

Oft er kristið fólk einnig þjakað af slíkum sársauka. Vanalega hefur það ekki hugmynd um að vandamálið sé af völdum illra anda. Illir andar, sem sendir eru af nornum, þjaka vanalega persónuna utan frá - sérstaklega þá sem eru endurfæddir. Einnig geta andar fólks (sjá mynd F í 14. kafla) herjað utan frá á sama hátt og illir andar, en samt sem áður eru illir andar vanalega orsökin, nema þegar um hatur er að ræða. Ég hef séð fjöldann allan af tilfellum þar sem sjúklingurinn þjáðist vegna haturs, sem beint var gegn honum af annarri persónu. Í þeim tilfellum smurði ég einfaldlega með olíu og bað fyrir þeim þjáða, að Drottinn mundi skýla honum fyrir hvers konar hatri sem beindist gegn honum. Sú aðferð hefur dugað, þegar allar aðrar brugðust.

Gott dæmi um slíkan sársauka er tilfelli ungs manns á miðjum fertugsaldri, sem ég ætla að kalla Jón. Jón kom á gjörgæsludeildina eitt kvöldið og kvartaði um heiftarlegan verk í brjóstinu, sem er alvanalegt þegar um hjartaáfall er að ræða. Ég skráði hann inn á sjúkrahúsið og setti hann í ýmis próf - sem öll gáfu þá niðurstöðu að allt væri í lagi. Tveimur vikum eftir að hann útskrifaðist kom hann á stofuna mína, auðsjáanlega þjáður af sama sársaukanum og áður. Mig grunaði að hann væri Satanisti sem hefði tapað orrustu, en hafði ekki á þeim tíma skýra opinberun frá Drottni. Þar sem ég hafði nýverið sett hann í öll þau próf, sem voru tiltæk fyrir mig á sjúkrahúsinu, þá sendi ég hann til stórrar borgar í næsta nágrenni til að láta meta hann nánar hjá hjartasérfræðingum þar. Þeir skráðu hann inn á sjúkrahúsið þar og settu hann í fleiri próf. Þeir settu hann einnig í hjartaþræðingu, en allt reyndist í lagi.

Þegar Jón kom til baka til mín eftir þessa allsherjarskoðun, var hann mjög óöruggur vegna þess að hann var ennþá með mjög slæman brjóstverk. Með leiðsögn Drottins að leiðarljósi, settist ég niður og talaði við hann. Ég ögraði honum með því að segja við hann beint, að ég héldi að hann væri Satanisti og að brjóstverkurinn væri afleiðing af valdabaráttu hans við annan Satanista. Honum var brugðið, jafnvel svo brugðið, að hann hafði ekki fyrir því að reyna að bera á móti þessu. Ég talaði um margt við hann, deildi með honum fagnaðarerindinu og sagði honum að hans eina von væri Jesús Kristur. Því miður þráði þessi ungi maður vald, hvað sem það kostaði. Þrátt fyrir allt sem hafði komið fyrir hann var hann alveg ákveðinn í því að vera áfram í Satanisma. Hann viðurkenndi að verkurinn, sem hann væri með, væri af völdum baráttu illra anda. Að lokum flutti hann frá Bandaríkjunum til að komast undan öðrum sterkari Satanista og til að koma sér fyrir í annarri reglu, þar sem hann ætlaði að reyna að öðlast meira vald. Ég bið oft fyrir þessum unga manni og hugsa um það, hvað verði um hann. Hversu sorglegt er það ekki, að sjá lífi kastað svona á glæ vegna löngunar í vald!

Fjölbreytileiki hinna ýmsu tilfinningavandamála, sem gætu verið af völdum illra anda, er endalaus. En hér, eins og áður, getum við ekki gert ráð fyrir að allt ójafnvægi á tilfinningasviðinu sé vegna illra anda. Ég hef séð nokkur mjög sorgleg dæmi um kristna einstaklinga, sem urðu fyrir miklum skaða vegna þess að einhver sagði þeim að vandamálið væri af völdum illra anda, þótt þeir væru bara með algeng streitueinkenni. Við skulum aldrei gleyma því að við erum mannlegar verur, og þótt við verðum kristin, þá breytumst við ekki í einhverjar ofur-verur og verðum ónæm fyrir veikleikum eða streitu.

Hér er við hæfi að minnast á eitt algengasta vandamál sem hrjáir mannkynið - þunglyndi. Margt er ritað um þunglyndi í Biblíunni.

“Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að ennmun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn. Guðminn, sál mín er beygð í mér, fyrir því vil ég minnast þín frá Jórdan-og Hermonlandi, frá litla fjallinu."Sálmur 42:6-7

Það eru fjölmargir staðir í Sálmunum og annars staðar þar sem talað er um þunglyndi. Baráttan er raunveruleg, og við erum mjög mannleg! Ég er svo þakklát fyrir að Drottinn hafði slík vers í Biblíunni. Skoðum eftirfarandi vers:

“Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur!Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun? Sál vor erbeygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina."Sálmur 44:24-26

Ef einhver endurfædd persóna reynir að segja mér, að hann eða hún hafi aldrei upplifað svipaðar tilfinningar og í sálmunum hér á undan, þá verð ég að segja að annað hvort hefur viðkomandi aldrei staðið með Drottni og þurft að heyja andlega baráttu, eða þá að hann segir ekki satt!

Lítum á skrif Páls postula, sem rituð eru af svo mikilli einlægni:

“Vér viljum ekki, bræður mínir, að yður sé ókunnugt um þrenging þá, sem vér urðum fyrir í Asíu. Vér vorum aðþrengdir langt um megn fram, svo að vér jafnvel örvæntum um lífið. Já, oss sýndist sjálfum, að vér hefðum þegar fengið vorn dauðadóm. Því að oss átti að lærast það að treysta ekki sjálfum oss, heldur Guði, sem uppvekur hina dauðu." 2. Korintubréf 1:8-9

Það eru mjög margar orsakir fyrir þunglyndi. Því miður þá eru allt of margir sem taka þátt í “fyrirbæna-þjónustu”, er halda því fram að allt þunglyndi sé vegna illra anda. Ég held að það sé vegna þess að við mannfólkið erum alltaf að leita að auðveldustu leiðinni út úr öllum vandræðum. Ef allt þunglyndi er vegna illra anda, þá er lausnin auðveld, þeim er kastað út, og amen - þunglyndið er horfið! Mín reynsla er sú að flest alvarleg þunglyndistilfelli eru ekki afleiðing þess að andi þunglyndis hafi hertekið viðkomandi.

Algengasta orsökin fyrir alvarlegu þunglyndi, sem ég hef séð, hefur verið svo til, algjör skortur á hugarstjórnun. Guðs orð segir okkur ákveðið að við eigum að hertaka hverja hugsun til hlýðni við Krist (2. Korintubréf 10:5). Alvarlega þunglynt fólk (þar á meðal kristið fólk) hlýðir hér um bil aldrei þessari beinu skipun Drottins. Það leyfir hverri hugsun, sem Satan og /eða illir andar hans kjósa, að dvelja í huganum. Það staldrar aldrei við til þess að meta hvernig hugsanir þess samræmist raunveruleikanum, eða aðstæðunum í ljósi Guðs orðs. Það samþykkir allar hugsanir eins og þær séu frá því sjálfu, í stuttu máli, það þjáist af leti! Það leyfir huganum að fara í óvirkt letiástand, þar sem það verður fyrir gífurlegum árásum á tilfinningasviðinu af völdum illra afla.

Baráttan við að ná aftur stjórn á huga þínum er ein sú erfiðasta, sem þú munt nokkur tíman lenda í, en hún er vel þess virði. Ég sá mörg þunglyndistilfelli, þar sem það var fljótt að berast út að ég væri kristinn læknir. Ég get fullyrt að öll þunglyndistilfellin sem ég sá, nema þau fáu sem stöfuðu í rauninni af andsetningu, löguðust stórlega þegar viðkomandi lærðu að stjórna hugsunum sínum (sjá aðferðirnar í 16. Kafla). Takið eftir hvernig Davíð fór að í 42. sálmi þar sem hann segir, ”... því að enn mun ég fá að lofa hann ...” Hann beitti vilja sínum til þess að yfirvinna daprar hugsanir í sál (huga) sinni, með því að lofa Drottin. Lofgjörðin er mjög mikilvægur þáttur í því að yfirvinna þunglyndi. (Athugið reynsluna sem ég varð fyrir í lok 14. kafla).

Aðrar algengar orsakir þunglyndis eða depurð eru allskonar áföll, til dæmis ástvinamissir, líkamleg veikindi eða slappleiki, neikvæðar breytingar á aðstæðum í lífinu, og auðvitað, þreyta - sérstaklega hjá fólki, sem er í andlegu stríði. Við, sem erum í andlegum hernaði, þurfum stöðugt að vera næm fyrir og hlýðin, handleiðslu Drottins á þessu sviði. Þegar Drottinn skipar þér að stansa og hvílast, þá er betra að hlýða, hversu ónauðsynlegt sem þú telur það vera á þeirri stundu, eða þú verður án efa skotinn niður og það fljótt. Það sem ég meina er að þú munt annaðhvort lenda í alvarlegum líkamlegum eða tilfinningalegum erfiðleikum, (sérstaklega í samskiptum við annað fólk), eða að þú munt lenda á villigötum og verða blekktur, vegna þess að þú ert ekki jafn vakandi og þú þyrftir að vera. Allt of margt fólk gleymir því að það er ennþá manneskjur með mannlega veikleika og takmarkanir. Ef við leyfum Drottni að leiða okkur á þessum sviðum, munum við komast hjá ýmsum erfiðleikum.

Sumir af öflugustu illu öndunum, sem ég hef komist í kynni við, hafa komist inn í fólk vegna blóðskammar í fjölskyldunni og kynferðislegs siðleysis - sérstaklega kvalalosta og sjálfspíslarhvöt, en slíkt er orðið svo vinsælt í dag vegna áhrifa þungarokksins.

Þessir kröftugu andar eru oft í þeim flokki illra anda sem geta hertekið öll þrjú svið mannsins í einu - anda, sál og líkama. Leyfið mér að gefa ykkur dæmi um þetta.

Predikari úr nálægri borg hringdi í mig á stofuna einn eftirmiðdag. Hann spurði hvort ég væri “læknirinn, sem væri í fyrirbænaþjónustum.” Eftir að hafa heyrt svar mitt, sagðist hann vera með unga konu hjá sér sem ég yrði að hitta samdægurs. Ég samþykkti það, og þau komu seinna þann dag.

Jana (ekki hennar rétta nafn) var 25 ára kona sem hafði verið gift í tvö ár. Maðurinn hennar var mjög greindur maður, aðeins eldri en hún. Þau höfðu bæði gefið Jesú líf sitt um það bil ári áður en þau giftust, og þau sóttu kirkju reglulega. Þau höfðu leitað ráðlegginga hjá prestinum og aðstoðarprestinum, vegna þess að Jana var alveg kynköld. Þau höfðu ekki getað fullkomnað hjónabandið.

Þremur dögum áður en þau komu til mín, hafði presturinn og nokkrir aðrir meðlimir kirkjunnar réttilega komist að þeirri niðurstöðu, að vandamálið væri af völdum illra anda, og höfðu reynt að reka þá út. Það hafði ekki tekist, og afleiðingarnar urðu þær að Jana hafði nú ekki haft neina stjórn á hugsunum sínum í 48 klukkustundir. Hún bablaði stanslaust einhverja vitleysu, gat ekki stjórnað líkamanum og hvorki borðaði né drakk. Hún vissi ekki hver hún var, eða hvar hún var.

Þeir voru allir mjög hræddir af því að eiginmaður hennar hafði fengið símhringingu frá mjög svo ráðríkum foreldrum hennar þennan dag og var sagt að þau ætluðu að koma daginn eftir til þess að fara með Jönu heim með sér og “... setja hana á geðsjúkrahús, þar sem hún ætti heima.” Vist á slíkum stað var það síðasta sem Jana þurfti á að halda á þessu stigi málsins. Meðferð með alls konar sterkum lyfjum og jafnvel rafmagnsmeðferð mundi bara gera illt verra. Þvílík vandræði! Lagalegar forsendur málsins voru vafasamar, og mest af öllu langaði mig að segja þeim öllum að fara! En ég dáðist að því hvað maðurinn hennar var trúfastur, að hann skyldi sætta sig við að lifa í þessu ófullkomna hjónabandi í tvö ár, og ég sá að hann var alveg ráðþrota. Ég sagði þeim að ég þyrfti 20 mínútur til þess að leita vilja Drottins varðandi hvað ég ætti að gera.

Ég fór ein afsíðis og féll á kné frammi fyrir Föðurnum og leitaði vilja hans í einlægri bæn. Hér um bil samstundis gaf hann mér fullkominn frið yfir því að hann ætlaði að leysa Jönu. Síðan opinberaði hann fyrir mér að Jana væri andsetin af einum af þessum voldugu öndum sem setjast að á öllum þremur sviðum mannsins í einu. Þetta fólk hafði ekki gert sér grein fyrir þessu og þess vegna hafði því mistekist í viðleitni sinni við að leysa Jönu. Þau höfðu styggt andann þannig að hann ætlaði á skipulegan hátt að drepa hana áður en hún yrði laus. Drottinn opnaði andleg augu mín og leyfði mér að sjá hvað væri að gerast í líkama hennar. Heilinn í henni var skrámaður og tættur, eins og einhver með stórar klær hefði ætlað að rífa hann. Önnur svæði líkama hennar voru í samskonar ásigkomulagi. Drottinn sagði mér að smyrja Jönu með olíu og leggja hendur mínar á höfuð hennar og biðja þangað til hann væri búinn að leysa hana. Hann sagði mér einnig að í þessu sérstaka tilfelli mætti ég ekki leyfa neinum öðrum að snerta hana.

Þegar ég kom aftur á stofuna mína, reyndi ég að lýsa persónueinkennum illa andans fyrir þeim og útskýra hvers vegna þau hefðu ekki getað kastað honum út. Síðan gerði ég það sem Drottinn hafði skipað mér, settist á arm stólsins, sem Jana sat í, og lagði hendur á höfuð hennar. Um leið byrjaði baráttan. Fyrst varð ég að ná stjórn á minniháttar anda, sem bablaði stöðugt í gegnum munn hennar og olli því að hún var svona óróleg. Um leið og Drottinn hafði fjarlægt hann, þagnaði Jana. Hún var samt ennþá algerlega rugluð. Nokkrir aðrir minniháttar andar reyndu að streitast á móti og færa Jönu frá mér, en þeim var fljótlega kastað út. Sá síðasti fór út æpandi:

“Þú heldur að þú sért svo fær, en þú nærð aldrei Yurashuha út! Hann er allt of sterkur og hann er búinn að vera þarna allt of lengi!”

“Hvernig komst Yurashuha inn?” spurði ég stutt í spuna. Illi andinn hló: “Það var auðvelt, aulinn þinn, hann kom inn meðan faðir hennar hafði samfarir við hana þegar hún var barn.” Drottinn hafði áður opinberað það fyrir mér að þetta væri einmitt dyragáttin þar sem þessi voldugi illi andi hafði komið inn í Jönu.

Það er vel þekkt á meðal lækna að sálrænt áfall af völdum kynferðislegs ofbeldis í æsku er algengasta ástæðan fyrir kynkulda hjá konum seinna í lífinu - sérstaklega blóðskömm. Okkur var kennt á námskeiðum okkar í geðlækningum að fáum af þessum konum væri hægt að hjálpa.

Eftir um það bil tuttugu mínútur eða svo, fór presturinn og hinir með honum afsakandi, sig að þeir hefðu ekki meiri tíma. Ég verð að viðurkenna að mér létti við það. Mér er það minnisstætt að þar sem ég sat þarna, með hendurnar á höfði Jönu, biðjandi og lofandi Drottin, þá fann ég kraft hans flæða í gegnum mig og út í handleggina og hendurnar á mér. Mér varð svo heitt, sérstaklega á handleggjunum og höndunum, að það var óþægilegt. Eftir á kvartaði Jana yfir því að hendurnar á mér hefðu brennt á henni höfuðið, og hún virtist vera með fyrsta stigs brunasár á höfðinu. Þau hurfu eftir klukkutíma eða svo. Baráttan harðnaði og ég hélt þessari stellingu í rúmlega tvo klukkutíma. Eins og alltaf var Drottinn trúfastur, og að lokum missti illi andinn tökin og kom út, æpandi og hreytandi út úr sér blótsyrðum.

Um leið og illi andinn var kominn út varð mikil breyting á Jönu, og hún varð næstum alveg skýr á ný. Örlítið eimdi þó eftir af ruglinu, smávegis rugluð og þess vegna var eiginmaður hennar efins um að hún væri alveg leyst. Ég útskýrði fyrir honum skaðann, sem hún hefði orðið fyrir, og sagði honum að það tæki einhvern tíma fyrir hana að ná sér líkamlega. Ég gerði á henni margar læknisfræðilegar athuganir næstu daga, bæði til þess að þau yrðu róleg og til þess að fullvissa mig um að mér yfirsæist ekki neitt. Ástand Jönu batnaði með hverjum deginum, og eins og ég hafði búist við, þá sýndu öll próf að hún væri orðin eðlileg. Það tók Jönu um það bil mánuð að ná sér fullkomlega. Síðast sá ég þau um það bil þremur mánuðum eftir lausn hennar. Þau voru mjög hamingjusöm, og eiginmaður Jönu sagði mér glaðlega að hjónalíf þeirra væri orðið eðlilegt og Jana ætti von á þeirra fyrsta barni. Ég get ekki þakkað Drottni nægilega fyrir það stórkostlega verk sem hann hefur unnið í lífi þessara ungu hjóna.

Konungsveldi Satans nær langt út fyrir okkar skilning. Við verðum daglega að treysta algjörlega á Drottin í sambandi við handleiðslu og vísdóm. Engar tvær manneskjur eru eins, og hver árás Satans er einstaklingsbundin. Við erum ekki nógu fær til þess að átta okkur á táli Satans af sjálfsdáðum. Ég bið þess stöðugt að Drottinn gefi okkur vísdóm, vegna þess að þessi barátta er raunveruleg, og ef við erum ekki í sambandi við “Skipstjórann” okkar, getum við valdið því fólki, sem við erum að reyna að hjálpa, miklum skaða.

Tilfelli Jönu sýnir okkur að sorglega margir, sem eru í fyrirbænaþjónustu og eru að leysa fólk, eiga það til að gleyma þessu. 42. kafli Jesaja útskýrir þetta best í spádómslegri lýsingu sinni á Jesú.

“Sjá þjón minn, sem ég leiði mér við hönd, minn útvalda, sem ég hefi þóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun boða þjóðunum rétt. Hann kallar ekki og hefir ekki háreysti og lætur ekki heyra raust sína á strætunum. Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur, og dapran hörkveik slekkur hann ekki. Hann boðar réttinn með trúfesti. Hann daprast eigi og gefst eigi upp, uns hann fær komið inn rétti á jörðu, og fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap hans." Jesaja 42:1-4

"Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum, heldur í verki og sannleika." 1. Jóhannesarbréf 3:18

Ég hef séð mjög margt fólk sem fær ekki lausn eða aðeins takmarkaða lausn, vegna kærleiksskorts fyrirbænafólksins. Ég spyr alla þá, sem eru á einhvern hátt tengdir þeirri þjónustu að leysa fólk úr ánauð illra anda; Hve mikinn kærleika berðu til persónunnar sem þú ert að reyna að hjálpa? Berðu nægilega mikinn kærleika til hennar, til þess að sitja þolinmóður og vinna af þolinmæði í nokkra klukkutíma í einu, jafnvel oftar en einu sinni, til þess að hún öðlist frelsi?

Elskar þú hana nægilega mikið til þess að taka hana inn á þitt eigið heimili um tíma, ef það er nauðsynlegt til þess að halda baráttunni áfram? Elskar þú hana nægilega mikið til þess að þú gefir þér tíma og leggir það á þig að fara með hana afsíðis til að hlífa henni við því að verða sér til skammar? Hafið þið, karlmenn, nægilegan kærleika til þess að kyngja stolti ykkar og yfirgefa herbergið, þegar um er að ræða sérstaka kynlífsanda í konum og láta konurnar einar um þau tilfelli? Og öfugt. Eða mundi stolt þitt jafnvel koma í veg fyrir að þú heyrðir slík tilmæli frá Drottni?

Jesús mundi ekki brjóta brákaðan reyr. Kærleikurinn verndar alltaf. Því skyldir þú þá ekki hugsa um og reyna því á allan hátt að vernda þann sem verið er að leysa, oft á tíðum frá ákaflega vandræðalegum aðstæðum? Þjáningarnar er nógu miklar þótt ekki sé verið að auka við þær. Lausn frá djúprættum og öflugum öndum er vanalega ekki hægt að öðlast á 5-10 mínútum uppi við altarið, fyrir framan allan söfnuðinn, eða fyrir framan sjónvarpsmyndavélina. Okkar Guð er Guð kærleika og samúðar. Ef þú berð ekki kærleika hans og samúð til allra, sem þú átt samskipti við, þá ert þú ekki hæfur til þess að gegna þeirri þjónustu að leysa fólk undan illum öndum. Ef þú ert "of upptekinn" til þess að gefa þér tíma með einstaklingum, þá skalt þú ekki leitast við að fara í áðurnefnda þjónustu.

Sömu reglur eiga við um lækningar, hvort sem um er að ræða veikindi af völdum illra anda, eða venjulega líkamlega sjúkdóma. Í 5. Kafla Jakobsbréfsins og 16. Kafla Markúsarguðspjalls er hvergi minnst á tímatakmarkanir.

“En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma, og þó að

þeir drekki eitthvað banvænt, mun þeim ekki verða meint af. Yfirsjúka munu þeir leggja hendur, og þeir verða heilir.``Markús 16:17-18

"Sé einhver sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni Drottins og biðjast fyrir yfir honum. Trúarbænin mun gjöra hinn sjúka heilan, og Drottinn mun reisa hann á fætur. Þær syndir, sem hann kann að hafa drýgt, munu honum verða fyrirgefnar." Jakobsbréf 5:14-15

Af hverju erum við mennirnir alltaf að flýta okkur? Af hverju höldum við yfirleitt að Guð sé að flýta sér? Sýnir sjálf Biblían okkur ekki spjaldanna á milli að Guð flýtir sér aldrei? Ég skal segja þér af hverju við erum alltaf að flýta okkur - vegna sjálfselsku. Tími okkar er það síðasta, sem við viljum missa. Hversu margir fara ekki upp að altarinu í trú, biðja öldungana að biðja fyrir lækningu sinni, en læknast ekki? Okkur mundi bregða í brún ef við vissum prósentutöluna, en slæmt álit heimsins á kirkjunni ætti að gefa okkur góða vísbendingu. Í Postulasögunni sjáum við að heimurinn mat kirkjuna á allt annan veg áður fyrr:

“Og miklum ótta sló á allan söfnuðinn og alla, sem heyrðu þetta. Fyrir hendur postulanna gjörðust mörg tákn og undur meðal lýðsins. Allur söfnuðurinn kom einum huga saman í Súlnagöngum Salómons. Engir aðrir þorðu að samlagast þeim, en fólk virti þá mikils." Postulasagan 5:11-13

Öldungar, eru þið tilbúnir að þreyja í kærleika og bæn í hálftíma, klukkutíma, tvo tíma, ef þess þarf til þess að einhver geti læknast? Guð er svo máttugur að hann getur læknað á einu augnabliki og gerir það stundum. En, vegna síns mikla kærleika og samúðar, þá gerir hann það oft ekki, vegna þess sársauka og þeirra sálarkvala sem slíkar frumubreytingar myndu hafa í för með sér á svo stuttum tíma. Hversu margt fólk fer heim ólæknað, vegna þess að öldungurinn, sem bað fyrir því, var svo eigingjarn á tíma sinn að hann vildi ekki þreyja í bæn á meðan Drottinn starfaði?

“Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninnvarð heill frá þeirri stundu. Þá komu lærisveinarnir til Jesú ogspurðu hann einslega: „Hvers vegna gátum vér ekki rekið hannút?`` Hann svaraði þeim....En þetta kyn verður eigi út rekið nemameð bæn og föstu.``Matteus 17:18-19 & 21

Það þarf bæði tíma og kærleika til þess að biðja og fasta mikið. Guð kýs að nota ekki sömu aðferðirnar í hvert sinn sem einhver læknast eða leysist. Ef svo væri, mundum við treysta frekar á aðferðirnar en á Drottin. Ef við erum nísk á tíma okkar, getum við ekki áttað okkur á leiðsögn Drottins á þessu sviði. Guðs verk verður að vinna á þeim hraða sem Guð vill, ekki á okkar hraða!

Það er annað svið varðandi lækningar sem fáir eru tilbúnir til þess að ræða, svo ekki sé talað um að framkvæma, á skynsamlegan hátt. Lesum Jesaja:

“Nei, sú fasta, sem mér líkar, er að leysa fjötra rangsleitninnar, láta rakna bönd oksins, gefa frjálsa hina hrjáðu og sundurbrjóta sérhvert ok, það er, að þú miðlir hinum hungruðu af brauði þínu, hýsir bágstadda, hælislausa menn, og ef þú sér klæðalausan mann, að þú þá klæðir hann og firrist eigi þann, sem er hold þitt og blóð. Þá skal ljós þitt bruna fram sem morgunroði og sár þitt gróa bráðlega, þá mun réttlæti þitt fara fyrir þér, dýrð Drottins fylgja á eftir þér." Jesaja 58:6-8

"Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists.”Galatabréfið 6:2

Í ljósi þessara ritningarversa og annarra, þá er ég sannfærð um að ástæðan fyrir fáum kraftaverkalækningum í kristnum kirkjum í dag er sjálfselska Guðs fólks, sem neitar að bera hvers annars byrðar.

“Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína." Jóhannes 15:12-13

Hefur þú einhvern tíma hugleitt, hvernig þú getir fórnað lífi þínu fyrir bróður þinn eða systur á annan hátt en þann að stíga fram fyrir byssuhlaup og verða skotinn í þeirra stað? Það eru margar aðrar leiðir! Sjáið allar leiðirnar, sem Guð telur upp í Jesaja 58:6-8 hér á undan. Hvað um að taka einhvern inn á heimili þitt, til þess að búa hjá þér? Þarna fórstu alveg með það! Fólk vill hafa heimili sitt út af fyrir sig. En heimili okkar tilheyra Guði, og hann má nota þau. Það þýðir að við höfum ekki lengur rétt á neinu “út af fyrir okkur”, vegna þess að það er fólk þarna úti sem þarf á því að halda að fá skjól á heimilum okkar. Mjög fáir kristnir heyra Drottin biðja um að þeir taki einhvern inn á heimili sitt, vegna þess að þeir eru svo eigingjarnir á þessu sviði.

Ertu reiðubúinn, þegar bróðir er sjúkur, til að segja, “Drottinn, leyfðu mér að bera byrðar bróður míns, láttu mig bókstaflega fá eitthvað af veikleika hans og / eða sársauka, til þess að þú getir læknað hann hraðar.” Já, við biðjum fyrir lækningu og Guð læknar, já, við höstum á Satan, en viljum við einnig bera byrðarnar? Sjáið til, kæru vinir, ég held að það sé á þennan hátt sem við getum fórnað lífi okkar hvert fyrir annað, og ég held að þegar við gerum það, þá séum við að gefa Guði frjálsar hendur í því að framkvæma miklu fleiri kraftaverkalækningar. Í Jesaja 58 segir Drottinn, að ef við gerum þetta, muni “....ljós þitt bruna fram sem morgunroði og sár þitt gróa bráðlega.....” (vers 8). Guð hefur svo sannarlega allt vald á himni og jörðu! Hann hefur vald til þess að lækna og reisa þá dauðu í öllum tilfellum, en ég trúi því í alvöru að í mörgum tilfellum sé hann hindraður í að starfa á frjálsan hátt, vegna þess hve ófús við erum að bera hvers annars byrðar og “uppfylla þannig lögmál Krists.” (Galatabréfið 6:2).

Fyrir stuttu síðan varð kristinn bróðir, sem ég vann með daglega, fyrir því að slasast í baki. Meiðslin voru það alvarleg, að læknirinn hans sagði honum að halda kyrru fyrir í rúminu. Ég vissi að hans var mjög þörf í vinnunni, og þegar ég bað fyrir lækningu hans, sagði ég Drottni að ef það væri hans vilji, þá væri ég tilbúin til þess að bera bakmeiðsli bróður míns með honum. Ég gleymdi síðan bæninni, þegar ég fór að vinna.

Seinna um daginn þegar ég ætlaði að stökkva upp úr stól, í flýti eins og vanalega, féll ég aftur í stólinn, mér til undrunar. Mér var svo illt í bakinu, að ég gat varla hreyft mig! Á samri stundu spurði ég Drottin hvað hefði gerst, og hann minnti mig strax á bænina sem ég hafði beðið um morguninn. Drottinn var að leyfa mér að bera bakmeiðslin með mínum kristna bróður. Þetta kvöld hringdi þessi bróðir fagnandi í vinnuna og sagðist geta stigið upp úr rúminu þótt hann væri ennþá með verki.

Næstu fimm daga læknaði Drottinn bakið á honum fullkomlega, lækninum hans til mikillar furðu. Ég skal segja ykkur, að það kom ekki fyrir í eitt skipti, þessa fimm daga, að ég gleymdi að biðja fyrir honum! Í hvert sinn, sem ég reyndi að hreyfa mig, mundi ég eftir því að biðja, vegna sársaukans sem ég bar. Ég varð einnig algjörlega verkjalaus þegar Drottinn var búinn að lækna bróður minn. Þetta er raunverulegt dæmi um það sem ég var að tala um. Vegna þjálfunar minnar í læknisfræði, þá veit ég að lækning getur verið sársaukafullt ferli. Ég trúi því að Drottinn verði oft að hægja á því ferli, vegna sársaukans sem lækningin hefur í för með sér. Ef við erum tilbúin að bera byrðar, getur lækningin tekið skemmri tíma.

Þetta stríð er raunverulegt, og sárin eru raunveruleg. Við verðum að vera tilbúin til þess að hjálpa hvert öðru. Þegar einhver þjónar með því að flytja Guðs orð, og annar hefur þá þjónustu að frelsa og leysa fólk, þá þurfa aðrir að vera bak við tjöldin og segja, “Drottinn, leyfðu mér að bera byrðarnar með þessari persónu.”

Leyfið mér að gefa ykkur eitt dæmi. Það kom falleg ung kona heim til mín fyrir nokkrum mánuðum síðan, sem ég talaði heillengi við. Hún hafði verið viðriðin galdra, en var komin út úr því og var fullkomlega frelsuð. Hún er með það sem ég kalla “ljúft hjartalag.” Hún er mjög yndisleg og elskuleg persóna. Vegna þátttöku sinnar í göldrum, á Satan eftir að herja á hana það sem hún á eftir ólifað. Þannig er það með alla sem hafa einu sinni þjónað Satan á þennan hátt - þetta er alvara. Þessi unga kona var orðin hryllilega illa farin og hún er ekki líkamlega sterk persóna. Hún er sterk í Drottni, en persónuleiki hennar er ljúfur að eðlisfari. Hún ber svo ljúfan kærleika til annarra.

Nú er sumt fólk þannig að það er einfaldlega meiri stríðsmenn en aðrir. Guð hefur allskonar fólk í þjónustu sinni. Þessi kona er ekki baráttumanneskja af náttúrunnar hendi og þarf þess vegna að eyða öllum sínum tíma og allri sinni orku eingöngu í að “standa gegn” árásum illu andanna. Þessi unga kona var sköpuð til að gefa kærleika og ást, en ekki til að berjast.

Ég var svo miður mín eftir að hafa talað við hana, að ég fór niðurbrotin fram fyrir Guð Föður og grét vegna hennar. Ég spurði, “Faðir, hvers vegna? Fólk með hennar hjartalag er svo sjaldgæft, og fólkið þitt þarf svo mjög á slíkum kærleika að halda, af hverju þarf hún að eyða öllum sínum tíma og orku í að verjast?” Svar hans var, “Vegna þess að fólkið mitt vill ekki bera með henni byrðarnar.” Ef fólkið í kirkjunni hennar væri fúst til að bera með henni byrðarnar, þá væri hún frjáls til að gefa af sér kærleika og ást, vegna þess að þá þyrfti hún ekki að berjast eins mikið. Þeir sem Guð hefur gefið baráttuanda og baráttustyrk mundu berjast fyrir hana, og hún mundi í staðinn þjónusta með þeim gjöfum sem Guð gaf henni, og þegar fólkið deildi því, sem það á, yrði það öllum til mikillar blessunar. Þá mundi Satan fljótlega sjá að þetta væri tilgangslaust og láta hana í friði. Það er ekki þannig, að hún hafi ekki vald Krists til þess að standast þessar árásir, hún hefur það, heldur er það þannig að við þurfum að standa saman.

Þetta er slítandi stríð! Við skulum læra að bera hvers annars byrðar, þannig er það að vera limir á líkama, líkama Krists, um það snýst málið.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

18. kafli af 20 · 35 mín. eftirSjúkdómar af völdum illra anda