Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Sjötti kafli

Brúðkaupið

um 9 mín. lestur

Sem æðsti kvenprestur naut ég ýmissa forréttinda, sem höfðu mjög mikil áhrif á mitt daglega líf en samt hélt mig áfram að þyrsta í enn meira vald. Nokkrum árum eftir að ég varð æðsti kvenprestur náði ég því takmarki mínu að verða svæðisbundin brúður Satans. Margir æðstu kvenprestarnir kalla sjálfa sig brúði Satans, og á vissan hátt eru þær það, en Satan á einnig nokkrar útvaldar konur, sem verða brúðir hans á mun nánari hátt. Aðeins fimm til tíu, og venjulega aðeins fimm, eru brúðir á sama tíma í Bandaríkjunum. Þessi staða er æðsta og ein "virðingarverðasta" staða sem kona í Satanistareglunni getur náð. Ein kona er valin af Satan af stóru svæði í landinu. Sú kona er álitin sú valdamesta, virðingarverðasta og sú mest elskaða á öllu svæðinu. Þessar konur sitja einnig á landsráðstefnum, sem ákvarða öll málefni Satanista í Bandaríkjunum, sem og alþjóðlega, sökum þess hversu auðug Bandaríkin eru.

Satan kom sjálfur til að segja mér að hann hefði kosið mig til þessarar virðingar. Hann birtist mér í líkamlegu gervi manns sem var mjög myndarlegur. Í rauninni var hann ímynd hins “fullkomna" manns sem ég hafði í huga mínum. Hann sagðist hafa valið mig vegna þess að hann elskaði mig meira en allar hinar, og að honum bæði líkaði og virti hugrekki mitt og hæfileika. Hann kom fram á mjög elskulegan og rómantískan hátt, sagði mér frá ást sinni og hversu yndislegan tíma við ættum eftir að eiga saman í framtíðinni. Hann lofaði því einnig, að gefa mér enn meiri vald og mörg sérstök forréttindi.

Ég varð hreykin og spennt, aðallega spennt vegna þess að ég vonaði að loksins væri ég raunverulega elskuð. Ég hélt að ég væri sú voldugasta og virðingarverðasta af öllum konum. Ég hélt að Satan hefði valið mig vegna hæfileika minna og vegna ástar minnar á honum, sem hafði vaxið ár frá ári. Ég sá ekki, á þeim tíma, að Satan var eingöngu að notfæra sér ást mína á honum í eigin tilgangi. Hann notaði mig til að fá annað fólk til að gera það sem hann vildi og notaði ást mína á honum til að tortíma sjálfri mér. Allar yfirlýsingar hans um að hann elskaði mig voru lygi!

Athöfnin var haldin í stórri borg í nágrenninu. Ein stærsta og fallegasta kirkja borgarinnar var tekin á leigu af reglunni sakir tilefnisins. Ég er viss um að eigendur kirkjunnar höfðu enga hugmynd um til hvaða nota kirkjan þeirra hafði verið leigð. Ég hafði ráðstafað helginni þannig að ég átti þriggja daga frí frá vinnunni. Athöfnin átti sér stað á föstudagskvöldi, fyrsta kvöldi, sem tungl var fullt. Mín var vandlega gætt og sérhverri ósk minni var fullnægt. Ég var rosalega spennt og full tilhlökkunar!

Þegar ég og föruneyti mitt komum að kirkjunni, fannst mér skyndilega eins og mikið myrkur grúfði yfir henni, en ég bægði tilfinningunni frá mér og beindi huganum að ást minni og aðdáun á Satan.

Það var farið með mig í hliðarherbergi í kirkjunni og þar var ég vandlega undirbúin og klædd fyrir athöfnina. Ég var með sítt, ljóst og hrokkið hár á þessum tíma, og konurnar festu lifandi blóm í það. Ég var klædd í hvítan, síðan og víðan, kyrtillaga kjól með gullbryddingum sem krossuðust yfir bringuna. Rauður litur var í hjartastað og yfir lífbeinið. Ég var með kórónu úr skíragulli á höfðinu. Ég bar blómvönd gerðan úr stráum, þistlum og eitruðum berjum, allt bundið saman með svörtum borða.

Þar sem ég stóð rétt utan við salinn og gægðist inn, sá ég mér til undrunar, og mikillar ánægju, að þar var ekki einungis fjöldi fólks frá næsta fylki og frá Kaliforníu, heldur var einnig mikið af eldri meðlimum sem voru komnir frá Austurlöndum. Þetta var mjög mikill heiður. Salurinn fylltist óhugnanlegri tónlist frá stóra pípuorgelinu. Gullhásæti Satans hafði verið flutt í kirkjuna og var sett á pallinn fremst. Athöfnin átti að hefjast með því að Satan mundi skyndilega birtast í efnislíkama í hásætinu.

Enn á ný birtist hann sem maður, klæddur í hvítt frá hvirfli til ilja, með gullkórónu, steinum prýdda. Allur söfnuðurinn stóð og lofaði Satan með miklum köllum og látum. Þá gaf Satan merki og allir snéru höfðum sínum aftur, þar sem ég gekk fram með bekkjaröðunum. Ég var í fylgd æðsta prests, og á eftir fylgdu Systur Ljóssins. Þegar ég var komin á enda, staðnæmdist ég við hásæti Satans og beygði mig niður og veitti honum lotningu. Þá gaf hann mér skipun um að rísa á fætur. Er ég hafði gert það, stóð hann upp úr hásætinu og kom niður og stóð við hlið mér. Æðsti presturinn framkvæmdi giftingarathöfnina, sem var aðallega falin í söng, galdraseið og tilbeiðslu til Satans. Systur Ljóssins stóðu fyrir aftan okkur í hálfhring, söngluðu hljóðlega og fóru með seið allan tímann.

Athöfnin tók hátt í tvo tíma, ég stóð allan tímann. Ég undirritaði aftur samning með blóði mínu. Þá var mér gefinn vökvi að drekka, úr gullnum bikar. Ég veit ekki hvaða vökvi þetta var, en ég býst við að í honum hafi verið einhver lyf þar sem ég varð eitthvað undarleg í höfðinu eftir að hafa drukkið hann. Allavega hugsaði ég ekki skýrt á eftir. Mér var sagt að samningurinn væri bindandi. Það væri engin leið að slíta honum. Satan trúir nefnilega ekki á hjónaskilnað!

Satan gaf sjálfur ekkert af blóði sínu, né heldur drakk hann neitt af eitrinu. Hann sagði mér að hann mætti það ekki þar sem hann yrði að " halda sér hreinum " fyrir mig. En ég yrði að drekka til þess að verða hrein fyrir hann. Hann var fallegri en ég hafði nokkurn tíma séð hann. Hann var klæddur, að því er virtist, í skjannahvítan smóking, bryddaðan með gulli. Hár hans var gullið af þessu tilefni, og húðin með fallegri bronsáferð eins og eftir sólböð. Augu hans voru dökk, en ástin sem hann sýndi og brosið sem hann gaf mér virtist aldrei ná til augnanna. En ég vildi trúa því að hann elskaði mig raunverulega og að hann væri í raun og veru eiginmaður minn. Hann kom fram við mig af mikilli virðingu. Hann strauk á mér kinnina, hárið og handleggi. Hann lýsti því hvernig ég liti út í augum hans: mjög falleg, valdamikil, og að ég gæti orðið það sem hann hefði í raun og veru alltaf vonast eftir, móðir sonar hans, "Krists" frelsara heimsins. Ég féll kylliflöt fyrir blekkingum hans.

Satan gaf mér fallegt breitt gullarmband sem tákn um giftingu okkar með grafskrift að innan og þar stóð: "Sjáið brúði Prins alheimsins."

Þrátt fyrir að Satan sýndi mér engan fjandskap, var ekki svo hvað aðra snerti. Hver sem gerði sig líklegan til að koma við hann, eða ætlaði að bugta sig og beygja fyrir honum, varð fyrir sparki, eða var barinn og ýtt í burtu.

Strax eftir athöfnina fóru Systur Ljóssins með mig, og ég var færð í glæsilegan kvöldkjól, flauelsherðaslá, skreytta með skíragulli. Síðan var farið með okkur í glæsibíl á flugvöllinn þar sem við tókum á leigu lúxus-einkaþotu, ásamt nokkrum æðstu prestum og kvenprestum, og flugum til Kaliforníu. Brúðkaupsveislan var haldin um borð á leiðinni.

Satan borðaði engan mat, en hann saup nokkra sopa af mjög dýrum vínum og kampavíninu, sem á boðstólum var. Hann hafði mjög lítið að segja. Þegar við komum að setrinu í hlíðum Kaliforníu, var ég orðin illa rugluð af dópinu sem mér hafði verið gefið. Okkur var fylgt með pompi og prakt að stórri herbergisálmu. Í svefnherberginu var stórt, gullið rúm. Eftirá var ég þakklát fyrir dópið, sem mér hafði verið gefið, vegna þess að þegar við vorum orðin ein hvarf falleg framkoma Satans og samfarir okkar urðu ruddalegar. Satan var farinn þegar ég vaknaði daginn eftir. Ég var sárkvalin, með marga áverka frá því um nóttina. Ég var þakklát fyrir að hann skyldi ekki birtast aftur þá helgi. Ég flaug heim á sunnudeginum. Meðan ég dvaldist þarna var komið fram við mig eins og konungsborna manneskju. Mér var þjónað í bak og fyrir og gefið allt, sem ég vildi.

Ég öðlaðist mikla yfirburði með nýrri stöðu minni. Ég hafði algjört vald yfir öllum nornum og seiðkörlum og jafnvel yfir æðsta prestinum. Ég var ósnertanleg. Ég fékk meira vald og nýja djöfla. Aðeins ein norn var nógu vitlaus til að ráðast gegn mér. Með aðeins einni augngotu ýtti ég henni inn í vegginn. Bókstaflega inn í vegginn sjálfan, þannig að það þurfti að höggva hana lausa. Hún uppskar mörg brotin bein og aðra áverka. Hún reyndi aldrei aftur að skaða mig, né nokkur önnur manneskja.

Fljótlega náði ég þeirri stöðu að verða aðalbrúðurin og ábyrgð mín jókst einnig. Ég varð einn af fulltrúum Satans. Ég fór margar ferðir innan Bandaríkjanna og einnig til annarra landa. Ferðir mínar höfðu þann tilgang að hjálpa til við að endurskipuleggja áætlanir Satans varðandi Satanistahreyfingar í öðrum löndum. Ég sá mjög stórar peningaupphæðir ganga manna á milli og aðild margra stjórnmálamanna. Allar ferðir mínar voru "óopinberar" í einkaþotum. Mörg öflugustu og ríkustu samtök heimsins þjóna Satan. "Litli maðurinn " í samtökunum veit ekki af því, en topparnir vita það.

Ég var algerlega blekkt af Satan. Hann lýgur að öllum þjónum sínum. Ég hélt að ég væri sú voldugasta og að ég vissi allt um samtök hans. Eftir að ég komst út gerði ég mér grein fyrir því að Satan segir engum af þjónum sínum sannleikann um athafnir sínar eða samtök sín. Öllum, í hvaða stöðu sem er innan konungsdæmis Satans, er sagt að hann eða hún séu best og valdamest. Það er allt saman lygi!

Á þessum tíma hitti ég margar velþekktar rokkstjörnur. Þær skrifuðu allar undir samning við Satan í skiptum fyrir frægð og ríkidæmi. Framþróun rokktónlistarinnar í Bandaríkjunum var vandlega skipulögð af Satan og framkvæmd af þjónum hans skref fyrir skref.

Þrátt fyrir háa stöðu mína og mikið vald lifði ég í stöðugum ótta. Ég varð að lifa algjörlega tvöföldu lífi. Ég lifði á félagsmálastofnun að hluta til, vegna þess að ég var svo hrædd um að aðrir myndu gera sér grein fyrir hvað ég var flækt í. Ég afsakaði mig með allskyns sögum þann tíma sem ég var í burtu á ferðalögum. Ég gætti þess vandlega að fjölskylda mín og vinir kæmust ekki að því hvað ég væri að gera. Ég vildi njóta þess að eiga fullt af peningum, en var of hrædd til þess að gera það. Mér voru stöðuglega gefin innantóm loforð um ríkidæmi "seinna í lífinu." Loforð Satans eru sjaldan uppfyllt. Ég hafði engan innri frið, og mér fannst ég vera eins og í gildru. Ég átti í mestum vandræðum með hina gífurlegu og endalausu illsku innan reglunnar. Hrottalegar refsingar og það versta af öllu - mannfórnir!

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

6. kafli af 20 · 9 mín. eftirBrúðkaupið