Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Fjórði kafli

Upp valdastigann

um 18 mín. lestur

Elaine segir frá:

Nú var ég orðin meðlimur í Bræðralaginu, bar nýtt nafn og var orðin það sem almenningur þekkir sem norn. Um það bil einum mánuði eftir að ég hafði undirritað samninginn við Satan, átti ég minn fyrsta fund með æðsta kvenpresti staðarins. Reglan í heimabæ mínum var fremur fjölmenn, með um það bil 1000 manns. Æðsti kvenpresturinn hafði samband við mig og sagði að hún vildi hitta mig heima hjá sér. Ég var mjög hissa yfir því að svo háttsett manneskja skyldi hafa samband við mig. Mjög fáar stúlkur eru nokkurn tíma kallaðar til æðsta kvenprestsins, nema það sé verið að refsa þeim, eða ef hún hefur eitthvað sérstakt verkefni fyrir þær. Heimili hennar var íburðarmikið og mjög fallegt, og þar ríkti hún með harðri hendi. Hún sagði við mig, ”Þú hefur verið sérstaklega valin af Satan til þess að verða þjálfuð fyrir hann til að verða æðsti kvenprestur, ef þú stenst kröfurnar.”

Innan Satanistareglunnar er þetta mikill heiður. Maður þarf að vera mikils metinn til að fá slíka þjálfun. Æðsti kvenpresturinn var eldri kona. Hún hafði verið æðsti kvenprestur í mjög mörg ár. Hún var mjög falleg, jafnvel þótt hún væri gömul. Persónuleiki hennar var vingjarnlegu, en samt var eitthvað mjög kuldalegt í fari hennar. Hún vissi að ég átti að taka við af henni. Æðsta kvenpresti er alltaf tortímt þegar önnur norn tekur við. Henni er skipað af Satan eða einhverjum háttsettum djöfli hans að þjálfa aðra norn til þess að koma í hennar stað. Hún á ekki um annað að velja en að hlýða skipuninni.

Mér þótti skrýtið að hún skildi biðja mig um að búa mig undir svo háa stöðu, þar sem ég var ung og nýr meðlimur. Það sem ég vissi ekki þá, var að djöflarnir sem ég var búin að fá inn í mig voru miklu voldugri en hennar og að Satan hafði skipað henni að fræða mig um þá og kenna mér að nota þá og hvernig ætti að lokum að tortíma henni.

Innst í hjarta mínu var ég ekki og mundi aldrei verða gefin fyrir það að tortíma einhverjum. Ég naut þess að lifa og ég vildi ekki gera þessari konu mein, en ég vissi að ef ég gerði það ekki, þá myndi hún drepa mig.

Ég fékk mjög mikla þjálfun á ýmsum sviðum næstu 20 mánuðina. Ég hitti æðsta kvenprestinn aðallega heima hjá henni eða á öðrum stöðum, þar sem við gátum verið í næði. Við hittumst oft, að minnsta kosti einu sinni í viku.

Æðsti kvenpresturinn þjálfaði mig aðallega í því að læra galdraþulur. Ég lærði að vekja upp illa anda til þess að framkvæma það sem ég bað um. Hún kenndi mér að framkalla og nota þennan undarlega kraft sem ég hafði fundið svo lengi fyrir innra með mér. Hún fræddi mig um það að þessir kraftar kæmu frá djöflum, sem dveldu í mér. Hún kenndi mér einnig siðareglur og hvernig átti að stjórna samkundu sem æðsti kvenprestur.

Systur Ljóssins tóku einnig þátt í þjálfun minni. Þær báru í raun ábyrgð á því að vald mitt ykist sem skjótast. Við þjálfun þeirra lærði ég marga leynilega hluti, sem fáir æðstu kvenprestar fá að vita um. Þær báðu mig um að ganga í hóp sinn, en ég hafnaði því. Innst inni fannst mér þær vera mjög skrýtnar.

Ráðstafanir voru einnig gerðar fyrir þjálfun í austurlenskum bardagalistum. Ég kunni þegar smávegis í Karate og Judo, en ég kunni ekkert í Kung-Fu. Ég var falin umsjón miðaldra kínverja, sem var meistari í öllum þremur. Hann var vel þekktur lögfræðingur í heimabæ mínum. Hann var vingjarnlegur við mig, en harður þjálfari. Ég lærði mikið af honum. Hann þjálfaði marga reglumeðlimi úr öllu nágrenninu. Honum fannst ég hafa mikla hæfileika og vildi að ég keppti opinberlega. Ég gerði það ekki og mig langaði aldrei til þess.

Það er mjög harkalegt og sársaukafullt að æfa austurlenskar bardagalistir. Ég bað sérstaka djöfla að koma inn í mig til að hjálpa mér á því sviði. Það verður að þjálfa hugann og líkamann, þangað til þeir verða eitt. Ég gat stokkið mjög hátt og lent á fótunum, farið heljarstökk, staðið upp og lagt andstæðinginn að velli með fótunum og/eða höndunum. Ég varð einnig sérfræðingur í að nota hnífa, sverð, byssur, boga og örvar, stjörnur, og margar tegundir austurlenskra vopna sem ekki eru vel þekkt hér á vesturlöndum. Það voru ekki bara háttsettir meðlimir reglunnar sem fengu þessa þjálfun heldur einnig þeir lágt settu, til þess að þeir gætu þjónað sem verðir, launmorðingjar o.s.frv.

Mér var kennt margt varðandi Satan, en flest af því voru lygar. Mér var sagt frá valdi hans, hversu mikið hann elskaði mig. Hvernig mér hafði verið hafnað af Guði. Hversu mikið Satan elskaði mig og að hann vildi fá mig fyrir sig; að ég hefði verið valin af öllum konum til að verða æðsti kvenpresturinn hans. Systur Ljóssins sögðu mér einnig margt um þann möguleika að verða staðbundin brúður Satans.

Það eru einungis 5 til 10 staðbundnar brúðir Satans í Bandaríkjunum á sama tíma. Þeirri stöðu fylgir mikill heiður og völd. Systur Ljóssins sögðu mér að þær væru vissar um að ég hefði það sem þyrfti til að ná svo hárri stöðu. Þær töluðu stöðugt um allan þann ávinning sem mér hlotnaðist ef ég næði því. Ég varð ákveðin í að ná þessu takmarki.

Fyrsti illi andinn, sem ég sá berum augum, birtist mér í líkamlegri mynd á fyrstu samkundunni, þegar ég skrifaði undir samninginn. Næsti illi andinn sem ég sá, var fyrsti djöfullinn sem ég sjálf “töfraði fram”. Þegar ég fór með töfraþuluna, sem til þurfti, birtist hann í reykjarmekki sem lyktaði eins og brennisteinn. Allt atriðið var mjög flott, eins og það væri sviðsett, en mjög raunverulegt. Hann var einnig í líkamlegri mynd.

Hann var stór, um 8 fet á hæð. Líkama hans svipaði mjög til mannslíkama, en var samt öðruvísi. Hann var allur svartur. Við erum farin að nefna þessa tegund djöfla Svarta Stríðsmenn. Hann var með eldrauð augu, stórar hendur, og vopn hans voru í rauninni sjálf húð hans. Hún var úr þykku, svörtu og hörðu hreistri, sem líktist skjaldbökuskel. Hver skel var um það bil einn og hálfur fersentímetri. Ég vissi að þetta var öflugur andi, og ég hafði kallað hann fram eingöngu til að sjá hvort ég gæti það. Á meðan hann stóð og starði þögull á mig, sagði ég honum að ég væri “sú útvalda.” Viðbrögð hans voru: “Ég veit hver þú ert, og ég veit að ég er sendur hingað til að verja þig, og það er ekkert sem getur skaðað þig, svo framarlega sem ég er hér, og eins lengi og þú þjónar almáttugum Satan, drottnara okkar og guði.” Nafn andans var Ri-Chan. Hann háði marga bardaga, bæði fyrir mig og þegar ég var óhlýðin Satan, gegn mér.

Ég sá og umgekkst marga djöfla eftir þetta. Eftir því sem hæfileikar mínir til að sjá andaheiminn jukust, átti ég auðveldara með að sjá og tala við djöfla án þess að þeir tækju á sig líkamlegt form. Raunar bað ég þá sjaldan um að birtast líkamlega, nema í þeim tilfellum þegar ég ætlaði að vekja aðdáun eða hræða einhvern sem var lægra settur í reglunni en ég.

Næsti mikilvægi djöfullinn sem ég gerði boð eftir var Mann-Chan. Þetta var í miðri þjálfunarathöfn með æðsta kvenprestinum heima hjá henni. Hún sagði mér, að ég væri á því stigi í þjálfun minni að ég yrði að læra mjög sérstaka töfraþulu. Hún sagði mér ekki, hvaða tilgang töfraþulan hefði og ég spurði ekki um hann. Ég vissi að þetta var mjög mikilvægur dagur, vegna þess að sérstakar ráðstafanir voru gerðar.

Fyrst teiknaði ég mjög stóran fimmhyrning á gólfið með krít, síðan hring þar utan um. (Tilgangurinn með hringnum er að halda djöflunum innan hringsins, nema að þú gefir þeim leyfi til að fara út fyrir. Hringurinn á að verja nornina fyrir djöflinum sem kemur. En í raun gerðu djöflarnir auðvitað hvað sem þeim sýndist, svo að ég lærði fljótt að gæta mín á að gera ekki boð eftir djöfli sem var sterkari en sá sem var í mér og verndaði mig.) Ég kom svörtum kertum varlega fyrir í öll hornum fimmhyrningsins, og setti síðan mun stærra svart kerti í miðjuna. Kveikt var á öllum kertunum. Borð með heitri plötu var við hliðina á fimmhyrningnum. Áður hafði æðsti presturinn útbúið seið í potti. Potturinn var fullur af vígðu vatni sem búið var að vanvirða, það er að segja, vígðu vatni úr kaþólskri kirkju, sem æðsti presturinn hafði kastað þvagi sínu saman við. Hann hafði einnig drepið hund og látið blóðið úr honum leka í sérstaka krukku, sem hann lét mig fara með heim til æðsta kvenprestsins. Hún lét mig síðan hafa eitthvað duft og jurtir. Vatnið í pottinum var soðið á heitri plötunni rétt áður en ég fór með galdraþuluna.

Ég spurði einskis en hlýddi skipunum æðsta kvenprestsins í hvívetna. Ég sat á gólfinu, starði á kertið í miðjum fimmhyrningnum, muldrandi: “Ó mikli Satan skapari alheimsins, ég bið þig, sendu mér anda sem leiðbeinir mér og er ljós lífs míns - sem gefur mér allan vísdóm og þekkingu. Minn ástkæri, ó meistari, uppfylltu ósk mína!” Á því andartaki opinberaði æðsti kvenpresturinn mér nafnið Mann-Chan.

Þá sagði ég, ”Mann-Chan komdu, þú ert velkominn inn í líkama minn. Ég bið þig, komdu frá þínum leynda stað.” Ég tók duftið, jurtirnar og blóðið og setti það í sjóðandi pottinn. Gufan jókst, og samstundis fylltist salurinn af mjög megnri stybbu. Þá dýfði ég vanhelguðum gullbikar í pottinn og fyllti hann. Ég setti bikarinn varlega á borðið og beið væntandi. Innan um það bil fimm mínútna hafði vökvinn í bikarnum breyst alveg í duft. Þá tók ég bikarinn og henti duftinu inn í logann á stóra kertinu í miðjum fimmhyrningnum.

Samstundis magnaðist loginn upp með miklum hvin. Kertið hvarf í blindandi hvítu ljósi. Eftir að ljósið hvarf á nokkrum sekúndum, sá ég veru sem virtist vera ótrúlega myndarlegur ungur maður. Hann var með kolsvart hár og stingandi svört, greindarleg augu. Ég flýtti mér niður á hnén við hliðina á fimmhyrningnum. Ég þurrkaði burt krítina með klút til að mynda gönguleið út úr fimmhyrningnum.

Ungi maðurinn, sem var raunar djöfullinn Mann-Chan í líkamlegu gervi, gekk út fyrir fimmhyrninginn eftir slóðinni sem ég hafði búið til. Hann talaði kurteislega til mín á fullkominni ensku og að því er virtist, af mikilli ást. Hann sagði mér að hann myndi setjast að í mér, og hann lofaði mér því að ekkert myndi skaða mig. Hann sagðist ætla að gefa mér alla visku og þekkingu, hann yrði kennari minn og leiðbeinandi. Hann kallaði sig “frelsara” minn. Ég samþykkti, full lotningar yfir fagurri ásýnd hans. Þá gekk hann beint inn í mig. En rétt áður en hann kom að mér, breyttist hann úr mannsmynd í djöfulinn sem hann í raun var. Viðbjóður!

Hann var nakinn, andlit hans hafði breyst úr fegurð í viðbjóðslega grimmd. Fallegu, svörtu hárlokkarnir höfðu breyst í líflaust, brúnt hár sem var grófgert, gisið og snöggt eins og á svíni. Augu hans voru hrikalega myrk og ill, munnurinn opinn til þess að það sæist í langar, beittar og skítugar, gular vígtennurnar. Handleggir hans voru mjög langir, og á höndunum voru stuttir fingur með löngum, beittum nöglum. Hann rak upp hryllilegan og háværan sigurhlátur um leið og hann steig rakleiðis inn í mig. Ég öskraði. Fyrst þegar ég sá hann, og síðan af sársaukanum þegar hann kom inn, hrikalegum sársauka sem ég hafði aldrei upplifað áður. Mér fannst eins og líkami minn væri að brenna. Mér fannst eins og ég væri að deyja, og á þeirri stundu vonaði ég innilega að svo væri. Ri-Chan steig fram er hann heyrði öskrin í mér, hann hélt að það væri verið að ráðast á mig. En Mann-Chan talaði við hann og sagði honum að hafa ekki áhyggjur. Þegar sársaukinn dofnaði, sagði Mann-Chan mér að þetta væri bara smá sýnishorn af því sem myndi gerast ef ég myndi nokkurn tíma óhlýðnast honum, og einnig til að láta mig vita að hann væri kominn til að vera, og ekkert og enginn gæti nokkurn tíma hrakið hann burt!

Frá þeirri stundu var Mann-Chan aðal djöfullinn í lífi mínu. Hann átti samskipti við mig með því að senda hugsanir beint inn í huga minn. Ég átti samskipti við hann annaðhvort með því að tala upphátt eða með því að tala með andalíkama mínum. Ég gerði mér það ekki ljóst þá, en Mann-Chan gat ekki lesið hugsanir mínar. Hann stjórnaði mér og hélt öllum dyrum opnum fyrir Satan og hina djöflana til þess að þeir gætu komið og farið að eigin vild og einnig samkvæmt vilja mínum. Líf mitt snérist um hann. Ég eyddi öllum tíma mínum og krafti í að reyna að ná stjórn á honum, en hann hafði meiri stjórn á mér en ég á honum. Oft gerði hann mig rænulausa og stjórnaði líkama mínum algerlega, notaði hann eins og honum þóknaðist, og iðulega talaði hann í gegnum mig. Hann stjórnaði því hvenær ég borðaði og svaf, hversu vel ég vann verk mitt og samskiptum mínum við fólk - lífi mínu frá A til Ö.

Af honum lærði ég hvernig hægt er að nota djöfla í andlegum hernaði. Ég lærði hvernig ég gat notað þá til að efla minn eigin andlega líkama, hvernig hægt var að nota þá í trúarathöfnum, gegn öðru fólki, öðrum nornum, kirkjum og jafnvel boðendum fagnaðarerindis Jesú Krists. Hann gaf mér hæfileika til að tala mörg tungumál og til að framganga og tala með miklu valdi og krafti.

En Mann-Chan var ekki það ljós sem hann hafði lofað mér, né sú ást og fegurð sem ég hafði séð í fyrstu. Hann var eitthvað rotið og illt og var að éta upp sál mína og líkama. Hann olli mér miklum þjáningum og sársauka oft og mörgum sinnum, vegna þess að ég vildi ekki standa fyrir né taka þátt í mannfórnum. Lífið varð stöðug martröð frá þeirri stundu. Ég lifði tvöföldu lífi. Ég var meðlimur í Satanshreyfingunni og einnig á sama tíma meðlimur í mjög stórri, kristinni kirkju þar sem ég kenndi og söng og tók þátt í ýmislegri starfsemi. Ég var stöðugt þjökuð, aldrei frjáls eitt andartak, ég var í algjörri gildru.

Þá byrjaði ég að heyja orrustur við margar nornir. Orrustur eru háðar á ýmsan hátt. Algengast er að sterkari nornin kallar djöflana út úr veikari norninni og inn í sjálfa sig, sem gerir hana enn sterkari fyrir bragðið og hefur oftar en ekki þær afleiðingar að sú veikari tortímist vegna þess að hún hefur ekki lengur kraft til að verja sig. Djöflar hafa ekkert sem heitir tryggð. Þeir fara alltaf til þeirrar manneskju sem er sterkari. Allt konungsríki Satans byggist á samkeppni; andstætt við Guðsríkið þar sem allir þjóna hver öðrum.

Orrustur eru mjög sjaldan eða aldrei háðar á líkamlegan hátt, þó að nornir noti oft djöfla til að tortíma líkama veikari nornar. Það var einkum ein norn sem réðist á mig. Hún heitir Sara. Ég reyndi að skýra það út fyrir henni að ef hún léti mig ekki í friði, yrði ég að ganga frá henni. Hún trúði mér ekki og að lokum urðum við að hella okkur út í alvöru orrustu. Það sem ég sá var alveg hryllilegt. Ég sá hana verða veikari og veikari, þegar ég kallaði djöful eftir djöful út af henni og inn í mig. Fyrst börðust djöflarnir hennar á móti, og ég fann að mér var lyft upp, kastað í veggi og reynt var að kyrkja mig með ósýnilegum höndum. En hún sá Mann-Chan, Ri- Chan og fullt af öðrum djöflum koma á móti sér. Þeir voru að tæta líkama hennar í sundur. Loks skildi hún, að ég var sú útvalda. Ég átti að verða æðsti kvenpresturinn, og hún var búin að tapa orrustunni.

Hún dró sig í hlé nógu snemma til að halda lífi, og ég þakka Guði fyrir það. Hún endaði á sjúkrahúsi og var þar í þó nokkurn tíma vegna áverka sem hún fékk í viðureigninni. Mörgum árum síðar sagði hún mér, að þegar hún dvaldi á sjúkrahúsinu, hefði hún tekið á móti Jesú sem frelsara sínum og leiðtoga, og nú lifir hún af öllu hjarta fyrir Drottin. Trúið mér, breytingin er yndisleg.

Skömmu fyrir athöfnina, þar sem átti að vígja mig sem æðsta kvenprest, hitti ég Satan í fyrsta sinn. Hann kom til mín í líkamlegu gervi manns, og við settumst niður og töluðum saman. Hann sagði mér að ég ætti að verða hans æðsti kvenprestur, og ég væri mikils virði í augum hans. Hann sagði mér einnig að það yrði að vera fórnarathöfn; meira blóð þyrfti að renna til að “hreinsa” mig, svo ég gæti orðið æðsti kvenpresturinn hans. Mér var mjög illa við það, en mér létti þó við að þetta átti að vera dýrafórn.

Það sem ég sá var maður, framúrskarandi myndarlegur, mjög bjartur og skínandi. Hann virtist hafa mikla ást á mér og virtist ekki á nokkurn hátt vera mér hættulegur. Mann-Chan gaf ekki til kynna að um hættu væri að ræða og ekki heldur Ri-Chan. Ég var full lotningar vegna þessa fundar. Ég vildi að hann kæmi aftur, ég fann fyrir djúpri þrá eftir honum. Í fyrsta sinn á ævinni fannst mér ég vera elskuð. Hvílíkur misskilningur. Satan hataði mig. Hann vildi bara nota mig í eigin tilgangi og ætlaði síðan að tortíma mér.

Ég sótti fundi hreyfingarinnar þessi tvö ár sem ég var í þjálfun. Fundirnir voru haldnir í hlöðum, kirkjum, húsum, leiguhúsnæði, alls konar stöðum. Þegar Satan var viðstaddur í eigin persónu, dróst ég meira og meira að honum eins og náttfiðrildi að eldi. Hann vissi full vel að hann hafði mig í hendi sér.

Rétt áður en ég varð æðsti kvenprestur, sá ég mannfórn í fyrsta sinn. Við vorum í gamalli hlöðu og það voru að minnsta kosti þúsund manns viðstaddir. Fórnarlambið var ungabarn. Það var valið af því að móðir þess gaf það til fórnarinnar og fannst það mikill heiður. Slíkar fórnir koma aldrei til kasta laganna vegna þess að flest börnin eru getin utan hjónabands, fædd í heimahúsum, móðirin fer aldrei í mæðraskoðun, og barnið er hvorki skráð á fæðingavottorð né dánarvottorð.

Barnið var bundið niður á steinaltari sem var í laginu eins og kross á hvolfi. Ég mun aldrei gleyma hræðilegum hljóðum þess, þegar æðsti presturinn keyrði flugbeittan hníf í brjóstið á barninu og reif hjartað úr því. Blóðið var síðan látið renna úr barninu og drukkið, fyrst af æðsta prestinum og æðsta kvenprestinum, og síðan af öðrum meðlimum sem það vildu. Margir gerðu það, ekki aðeins til að fá nýja og sterkari djöfla, heldur einnig vegna þess að því er trúað að slík fórn auki frjósemi og að börn, sem komi undir við þær aðstæður verði sterk og gáfuð og öflugir Satanistar.

Ég komst ekki í burtu vegna hópsins. Ég var full af hryllingi, tómleika, kulda og örvæntingu. Mig undraði, hvers vegna Satan krefðist fórnar af þessu tagi. Var ekki blóð Krists nóg? Okkur var stöðugt sagt frá ósigri Krists á krossinum og að hann hefi verið hin fullkomna fórn fyrir Satan. En ég átti eftir að sjá að blóðþorsti Satans er óslökkvandi.

Síðasta og endanlega barátta mín við æðsta kvenprestinn var háð með beinu samþykki Satans. Hún átti sér stað á fjölmennri samkomu í kirkjunni þar sem ég hitti Systur Ljóssins fyrst. Satan var viðstaddur, og hann kinkaði kolli til merkis um að ég mætti ráðast á hana. Hún var mjög gömul og baráttan var stutt, varði aðeins í um 20 mínútur. Ég drap hana ekki. Ég gat það ekki, vegna þess að í mínum augum er lífið mjög dýrmætt. Hún hætti um leið og hún fann að hún var orðin of veikburða til að halda áfram. Ári seinna framdi hún sjálfsmorð.

Þá hófst vígsla mín til æðsta kvenprests. Færð var blóðfórn, og síðan var farið með mig fremst í kirkjuna. Fjölmargt fólk var viðstatt, vegna þess að þetta var mjög mikilvæg athöfn og Satan var sjálfur viðstaddur. Ég var klædd í hvítan kufl með gullnu og rauðu skrauti. Á höfuð mitt var sett kóróna úr skíragulli. Síðan undirritaði ég annan samning með blóði mínu, sem staðfesti að ég væri orðin æðsti kvenprestur Satans. Það heyrðist ekki þrusk í salnum á meðan ég undirritaði samninginn. Eftir merki frá Satan, lýsti æðsti presturinn því yfir að ég væri nú orðinn æðsti kvenprestur. Hann tilkynnti, að enginn annar í reglunni mætti snerta mig, hvorki djöflar, æðstu prestar, nornir eða æðstu kvenprestar úr öðrum reglum, því að ég væri “sú útvalda.” Lýðurinn varð frá sér numin, hrópaði, kyrjaði og dansaði. Sjálfur Satan virtist ákaflega glaður. Hann hafði aftur tekið á sig líkamlegt gervi mjög myndarlegs manns, manns sem ljómaði af og hafði mikið vald. Hann var klæddur í skínandi hvít klæði.

Söfnuðurinn kraup fyrir mér og lofaði mig eins og mikla drottningu, eins og drottningu Satans, “drottins guðs almáttugs.” Ég var og mundi að eilífu vera við hlið hans, og ég gæti tjáð þeim allar hans óskir og skipanir. Í fyrsta skipti á ævinni fannst mér eins og ég væri samþykkt. Ég var mjög stolt, mjög upprifin, og fannst ég vera svo voldug að enginn, þar með talinn Satan sjálfur, gæti tortímt mér.

Síðan var ég sett á steinaltarið, klædd úr öllum fötunum, og Satan átti mök við mig til að sanna að ég væri æðsti kvenprestur hans. (Æðsti presturinn og margir aðrir höfðu einnig mök við mig.) Söfnuðurinn trylltist. Margir voru í eiturlyfja-og áfengisvímu, og samkoman breyttist í kynsvall. Þá gaf Satan frá sér þann viðbjóðslegasta sigurhlátur, sem ég hef heyrt á ævi minni. Ég varð köld og stjörf. Ég man eftir óskaplegri sektarkennd minni, kvöl og sárindum. Kuldanum og tómleikanum, sem ég upplifði þá nótt, mun ég aldrei gleyma.

“Er mönnunum tók að fjölga á jörðinni og þeim fæddust dætur, sáu synir Guðs, að dætur mannanna voru fríðar, og tóku sér konur meðal þeirra, allar sem þeim geðjuðust… … Á þeim tímum voru risarnir á jörðinni, og einnig síðar, er synir Guðs höfðu samfarir við dætur mannanna og þær fæddu þeim sonu… ..” 1. Mósebók 6:1 2 & 4

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

4. kafli af 20 · 18 mín. eftirUpp valdastigann