Fyrsti kafli
Rebekka
Allt frá því er hún gekk inn um dyrnar á húsinu í fyrsta sinn, fann hún að það var eitthvað sérstakt við staðinn. Eitthvað myrkt, sem hún gat ekki áttað sig á en vissi samt að var þarna. Hún vissi líka, að það var eitthvað sem hún hafði aldrei kynnst áður.
Rebekka er læknir. Hún var að koma á Memorial-sjúkrahúsið í fyrsta sinn, til að hefja þjálfun í innvortis lækningum. Hún hafði lokið læknanáminu mánuði áður og var nú flutt að heiman í fyrsta sinn á 30 ára ævi sinni. Hún hafði enga hugmynd um að þeir harmleikir, sem hún átti eftir að sjá á spítalanum, myndu eiga eftir að breyta bæði lífi hennar og tilgangi að eilífu. Yfirþyrmandi myrkrið, sem hún skynjaði í anda sínum, virtist bíða, vaka og bíða. Það átti eftir að reiða snöggt til höggs og steypa Rebekku út í atburðarás sem reyndi til hins ýtrasta á hollustu hennar við frelsara hennar, Drottin Jesú Krist.
Fyrsta reynslan kom fljótt, eða þegar Rebekka hafði verið starfandi læknir við spítalann í um það bil tvo mánuði. Nótt eina, þegar hún var að vinna á bráðadeildinni, var komið með mann á þrítugsaldri um klukkan tvö eftir miðnætti. Rebekka hrökklaðist frá í hryllingi er hún sá lemstraðan og tættan líkama mannsins. Hún hafði að baki 6 ára starfsreynslu sem hjúkrunarkona á bráðadeild á stórum sjúkrahúsum áður en hún hóf læknanámið, en hún hafði aldrei séð þvílíkt og annað eins! Á meðan hún og annar starfsmaður á bráðadeildinni reyndu í skyndi að bjarga lífi unga forstöðumannsins, hugsaði hún: "Hvernig gat þetta átt sér stað? Hver gæti gert svona lagað?" Hann hafði auðsjáanlega verið pyntaður. Að hluta til hafði húðinni verið flett af honum, hann var með mörg bruna-og stungusár og með för eftir svipu og það sem var hryllilegast af öllu, göt í lófunum eftir nagla, sem reknir höfðu verið í gegn. Hann var meðvitundarlaus og í alvarlegu losti.
Eftir að bráðahjálpinni var lokið og jafnvægi komið á sjúklinginn, og hann hafði verið fluttur á gjörgæsludeildina, leitaði Rebekka að lögreglumönnunum, sem höfðu komið með hann á spítalann. Þeir höfðu lítið að segja annað en að þetta hefði verið mannrán. Þeir höfðu fundið manninn og haldið í fyrstu að hann væri dáinn. Þeir neituðu að tala nánar um atvikið, fóru skyndilega og afsökuðu sig með því að þeir þyrftu að fylla út skýrslur.
Allir aðrir á bráðadeildinni héldu áfram störfum sínum eins og ekkert óvenjulegt hefði gerst. Ástand sjúklingsins virtist ekki koma neinum sérstaklega á óvart eða úr jafnvægi, og aftur fann Rebekka fyrir þessu yfirþyrmandi myrkri. Hún var alveg forviða og mjög brugðið, en fljótlega gleymdi hún við vinnuna. Engin reynsla í fortíð hennar hefði getað undirbúið hana undir áfallið sem hún fékk þegar hún heyrði vitnisburð unga forstöðumannsins um hvað hefði komið fyrir hann sem leiddi til þess að hann lenti á bráðadeildinni þetta kvöld. Hún vissi ekki að næsta atlaga myndi beinast gegn einum sjúklingi hennar, sem var henni mjög kær.
En fyrst skulum við sjá, hvernig Drottinn þjálfaði Rebekku til undirbúnings fyrir allt það sem framundan var.
Rebekka naut þeirra miklu forréttinda og blessunar að vera alin upp af sannkristnum foreldrum, sem báðu fyrir henni daglega. Hún hafði tekið við Jesú sem frelsara sínum þegar hún var mjög ung að aldri, en þekkti ekkert til hins persónulega samfélags við hann. Hún var alin upp í mjög samheldnum og þröngum trúarsöfnuði, og henni var ekki leyft að eignast vini eða umgangast nokkurn utan safnaðarins. Henni var hafnað bæði innan og utan safnaðarins - smánuð og gerð að aðhlátursefni í skólanum og af öðrum safnaðarmeðlimum; hún var mjög einmana í uppvextinum.
Hún var einnig mjög veik og eyddi æskuárunum að miklu leyti inni á sjúkrahúsum. Þegar hún varð eldri uppgötvaðist að hún var haldin ólæknandi taugavöðvasjúkdómi, sem dró úr henni mikinn mátt. En ástríkir foreldrar hennar héldu utan um líf hennar, og bænir þeirra umluktu og vernduðu hana og forðuðu henni vafalaust frá heimi dulspekinnar, sem fangar svo margt ungt fólk með svipaðan bakgrunn.
Á fyrsta ári læknanámsins gafst hún loks Drottni fullkomlega þegar hún tók við Jesú sem frelsara sínum og gerði hann að leiðtoga lífs síns. Þessi fjögur ár í læknanáminu voru ár stöðugrar innri baráttu, bæði vegna sjúkdómsins og vegna fjárhagserfiðleika. Á þessum árum lærði Rebekka að treysta Drottni, ganga með honum dag eftir dag, þekkja rödd Heilags anda og fara eftir leiðbeiningum hans, síðan fékk hún að reyna það að hann mætti öllum hennar þörfum.
Hún hafði verið hjúkrunarkona í sjö ár þegar Drottinn mætti henni á áhrifaríkan hátt með röð kraftaverka. Eftir það hætti hún í hjúkrun, byrjaði aftur í skóla og hóf læknanám.
Þegar Rebekka kom á Memorial sjúkrahúsið, vissi hún alls ekkert um Satanisma eða um Elaine, sem var voldug norn og átti heima í nágrenninu. Rebekka hefði ekki getað látið sig dreyma um að ganga hennar með Jesú myndi valda þvílíkum usla og reiði hjá hinum myrku öflum andaheimsins á þessu sjúkrahúsi. Hún dróst inn í gífurlega baráttu þegar Elaine, ein af æðstu nornum Bandaríkjanna, leiddi skipulagða árás margra norna er notuðu allann sinn galdramátt til að reyna að drepa Rebekku.
Þeir læknakandídatar, sem ætla að halda áfram og sérhæfa sig, ganga í gegnum sérstakt þjálfunarár eftir útskrift, sem í Bandaríkjunum kallast “internship year”. Þetta er langerfiðasta árið í þjálfuninni og það ár sem læknakandídatar kvíða mest fyrir.
Og það var ekkert öðruvísi hjá Rebekku en hjá öðrum á Memorial-spítalanum, nema það að hún var stöðugt vör við að eitthvað var undarlegt og dularfullt við þennan spítala. Enginn annar virtist taka eftir þessu, ekki heldur þeir fáu vinir hennar sem voru kristnir. Alveg frá byrjun fann hún fyrir yfirþyrmandi andrúmslofti haturs, baktals og baráttu innan veggja deildarinnar, og reyndar á sjúkrahúsinu öllu. Þetta var sérstaklega kalt andrúmsloft. Drottinn notaði þetta ásamt gífurlegu líkamlegu og tilfinningalegu álagi þessa árs, til að færa Rebekku nær sér.
Alveg frá byrjun fann hún að það var óvenjulega mikil andstaða gegn fagnaðarerindinu. Aftur og aftur neitaði fólk, sem hún reyndi að segja frá Jesú, að hlusta á hana. Ekki nóg með það heldur hafði stjórn spítalans, innan sex mánaða frá því að hún hóf þjálfunina, fjarlægt allar Gídeon biblíurnar úr sjúkrastofunum og rak, þegar í stað, hvern þann starfsmann, sem uppvís varð að því að boða sjúklingum fagnaðarerindið. Þeir prestar sem komu á sjúkrahúsið að heimsækja sjúklinga, fengu ekki að tala við aðra sjúklinga en þá, sem þeir komu sérstaklega að þjónusta. Ef hjúkrunarkonurnar komu að þeim að boða öðrum sjúklingum fagnaðarerindið, var kallað á öryggisverði til að fylgja þeim út af sjúkrahúsinu, og voru þeir beðnir um að koma ekki aftur. Aðrar prestþjónustur voru einnig bannaðar, sem er óvenjulegt. Í raun og veru var eins og það væri gert í því að stöðva allt tal um kristna trú innan veggja stofnunarinnar.
Rebekka var fyrst látin vinna á gjörgæsludeildinni og var strax komin í hringiðuna. Hún vann allt að 120 klukkutíma á viku á sjúkrahúsinu. Vegna þessa mikla álags versnaði líkamlegt ástand hennar þar til hún var orðin örmagna.
Þá lagði Drottinn stöðuglega á hjarta hennar að hún yrði að mæta fyrr á morgnana á sjúkrahúsið til að biðja fyrir stofnuninni og fyrir borginni og að fagnaðarerindið mætti breiðast út og bera ávöxt.
Þegar hún hlýddi Drottni og bað hvern morgun í klukkutíma áður en hún byrjaði að vinna, fann hún hvað eftir annað, knúin af Heilögum anda, að hún ætti að biðja Drottin um að hamla valdi myrkursins á þessum stað. Aftur og aftur fór hún með tilvitnunina í fjórðu Mósebók 10:35 þar sem Móse sagði:
“Rís þú upp, Drottinn, svo að óvinir þínir tvístrist og fjendur þínirflýi fyrir þér.”
Hún vissi ekki af hverju hún bað á þennan hátt, og henni fannst stundum jafnvel undarlegt að hún skildi gera það, en aftur og aftur knúði Heilagur andi hana til þess að biðja þannig.
Eftir því sem Drottinn jók byrðina á hjarta hennar fyrir sálunum á vinnustað hennar, bað hún daglega um að Drottinn gerði henni kleift að standa í skarðinu fyrir sjúkrahúsið og borgina, eins og stendur í Esekíel 22:30-31:
“Og ég leitaði að einhverjum meðal þeirra, er hlaða vildi garð eða skipa sér í skarðið móti mér, landinu til varnar, til þess að ég legði það ekki í eyði, en ég fann engan. þá úthellti ég reiði minni yfir þá, gjöreyddi þeim með eldi gremi minnar, ég lét athæfi þeirra þeim í koll koma, - segir Drottinn Guð.”
Hún var ekki viss um í hverju það fælist, að “skipa sér í skarðið”, en hún bað Drottin um að nota sig ef hann gæti.
Á fyrstu mánuðum Rebekku á sjúkrahúsinu, kenndi Drottinn henni mjög dýrmæta lexíu um að treysta sér algjörlega varðandi læknisstarfið. Kvöld eitt, frekar seint, var sjúklingur fluttur á hjartadeild, með mikinn verk í brjósti, of háan blóðþrýsting og hættu á hjartaslagi. Rebekka bar ábyrgð á að rannsaka sjúklinginn og annast hann það kvöldið. Hann afhenti henni lista yfir þau lyf sem hann þurfti að taka og eitt af þeim var gott lyf til að lækka blóðþrýstinginn og létta þar með álagið af hjartanu. Hann var gallharður á því að hann tæki ráðlagðan skammt og Rebekka treysti orðum hans. Hún ákvað að gefa honum það í þeirri von að hann slyppi við hjartaáfall. Það, sem hún vissi ekki, var að þessi skammtur var mjög hættulegur nema hún hefði áður unnið sjúklinginn upp í þoli gagnvart lyfinu.
Einum klukkutíma síðar kallaði hjúkrunarkonan á hana og sagði henni að blóðþrýstingur sjúklingsins væri orðinn mjög lágur, og hann væri í losti og það liti út fyrir að hann væri að deyja. Hún varð skelfingu lostin, kallaði á yfirmann sinn og sagði honum hvernig staðan væri, og spurði hvað hægt væri að gera til að koma í veg fyrir áhrif lyfsins, sem hún hefði gefið. Hann sagði henni kuldalega að hún hefði gert heimskuleg mistök og það væri ekkert hægt að gera, nema bíða og sjá til hvort sjúklingurinn myndi lifa eða deyja. Engin lyf voru til, sem gætu verkað á móti þeim sem gefin höfðu verið. Hann hélt áfram og staðhæfði að hann hefði einnig gert svipuð mistök sem kandídat, og að sjúklingur í hans umsjá hefði orðið fyrir varanlegum hjartaskaða vegna þess að hann fékk lost og var næstum dáinn.
Margar neikvæðar hugsanir þutu gegnum huga Rebekku á leiðinni til sjúklingsins það kvöldið niður einmanalegu, dimmu gangana sem lágu að hjartadeildinni. Samviskubit, ótti og sjálfsásakanir voru meðal þeirra. Kaldur sviti rann niður bakið á henni þegar hún í angist sinni hugsaði til þess að hún hefði að öllum líkindum drepið sjúklinginn. Skyndilega sýndi Heilagur andi henni að þetta væri ekki rétt hugsun. Hún hafði verið að hugsa, "Guð skapaði alheim þar sem allt er í röð og reglu og lögmál orsaka og afleiðinga er ríkjandi. Vegna þinna heimskulegu mistaka mun þessi maður sennilega deyja. Fyrst það er ekki til neitt mótefni gegn þessu lyfi, mun verkun þess verða óhjákvæmileg, svo það þýðir ekki að biðja að Guð taki í taumana og breyti sínu lögmáli eingöngu fyrir þig."
Heilagur andi fyllti hana ljúflega þeirri fullvissu, að hún væri í öðruvísi stöðu! Hún var barn Konungsins! Og þar af leiðandi hafði hún sérstök forréttindi, sem aðrir læknar höfðu ekki. Hún hafði rétt til þess að biðja Guð, Föðurinn, í Jesú nafni, að leiðrétta mistök sín. Það var eitt þeirra mörgu atriða, sem dauði Jesú á krossinum ávann okkur.
Hún snéri sér skyndilega við, hljóp út í kapelluna og féll á kné og bað Drottin af einlægni að leiðrétta mistök hennar. Hún lagði áherslu á þá staðreynd að hún væri barn Konungsins og stóð á orðinu í Hebreabréfinu 4:16:
“Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma.”
Hún stóð á fætur og fór til baka á hjartadeildina. Þegar hún kom þangað komst hún að því að blóðþrýstingur sjúklingsins var orðinn eðlilegur og hann var verkjalaus. Nýr hjartariti sýndi að hjarta hans sló eðlilega. Hann útskrifaðist af sjúkrahúsinu tveim dögum síðar með heilbrigt hjarta.
Rebekka lærði einnig að hlusta á leiðsögn Drottins af meiri nákvæmni í dagsins önn. Oft og mörgum sinnum talaði hann á þennan ljúfa hátt við hana, vakti athygli hennar á mistökum áður en þau höfðu alvarlegar afleiðingar, eða minnti hana á eitthvað sem hún hafði gleymt eða sýndi henni eitthvað sem henni hafði yfirsést, eða lesið og lært um í fortíðinni. Hún lærði að fasta og biðja og bað Drottinn um að opinbera sér greiningu á mjög óljósum sjúkdómstilfellum. Hún lærði einnig að treysta því að Drottinn gæfi henni verklega hæfileika. Hún bað Drottin Jesú, lækni læknanna, alltaf um að stýra höndum sínum þegar hún þurfti að nota þær við lækningar. Öll ár hennar hingað til, hefur hann alltaf verið trúfastur, og hún hefur aldrei lent í neinum alvarlegum erfiðleikum vegna vinnu sinnar.
Þegar um það bil sex mánuðir voru liðnir af þjálfun hennar, var Rebekka færð aftur á gjörgæsludeildina. Á sama tíma var ungi presturinn, sem hún sá í bráðamóttökunni, loksins búinn að ná sér nógu mikið til þess að hægt væri að tala við hann. Rebekka hafði fylgst náið með framförum hans, beðið stöðugt fyrir honum og oft lagði Drottinn á hjarta hennar að stoppa við rúmið hans til að tala við hann. Dag einn sagði hann henni hvað hafði í raun og veru gerst sem olli komu hans á sjúkrahúsið.
Bob var prestur í lítilli, kristinni kirkju í borginni. Hann hafði tekið þátt í að boða fólki, sem dýrkaði Satan, fagnaðarerindið. Hann sagði Rebekku, að það væri mjög stórt samfélag Satanista í nálægri borg og að það ætti sér stað hömlulaus Satansdýrkun í því fylki. Hann hafði stöðuglega, leiddur af Drottni, verið að leiða fjöldann allan af þessu fólki til Jesú. Það hefði snúið sér frá því að þjóna Satan og gert Jesú Krist að leiðtoga sínum og frelsara. Hann hjálpaði þeim einnig að reka út þá illu anda, sem þau höfðu boðið að dvelja í sér, til að öðlast galdramátt. Kvöldið sem Rebekka sá hann fyrst, hafði honum verið rænt af Satanistum og farið var með hann á eina af samkomum þeirra. Þar var farið með hann upp á svið fyrir framan hópinn, og hann pyntaður. Þeir voru að negla hann á kross þegar einn meðlimurinn hrópaði að einhver hefði séð eitthvað grunsamlegt og kallað á lögregluna (Satanistarnir voru með tæki til að hlusta á öll lögregluútköll). Það hafði liðið yfir Bob þegar hann var krossfestur og hann vissi ekki af sér þar til hann vaknaði á sjúkrahúsinu.
Rebekka var furðu lostin, hún hafði aldrei heyrt um neitt þessu líkt. Kannski var þetta skýringin á þessu yfirþyrmandi myrkri sem hún fann fyrir á sjúkrahúsinu? Næsta opinberun kom skjótt.
Þegar hún byrjaði í annað sinn á gjörgæsludeildinni, varð vinna hennar smám saman erfiðari. Öll kvöld, þegar hún var á vakt, bar hún ábyrgð á öllum sjúklingum sem voru í lífshættu. Hún bað mikið fyrir sjúklingunum og komst fljótlega að því að mörg dauðsföllin voru óútskýranleg, að hennar mati.
Venjulega eru sjúkdómar og / eða dauði sjúklings fyrirsjáanlegir. Til dæmis ef einhver fær lost (of lágur blóðþrýstingur) vegna blæðinga, þá á blóðþrýstingurinn ekki að halda áfram að lækka eftir að sjúklingnum hættir að blæða, vegna skurðaðgerðar eða einhvers annars, og honum hefir verið bættur blóðmissirinn, nema þá að honum byrji að blæða á ný, eða vegna annarra skýranlegra ástæðna eins og til dæmis mikillar sýkingar.
Samt sem áður var það þannig að margir af sjúklingunum, sem Rebekka annaðist, náðu því að komast í jafnvægisástand, en skyndilega, án nokkurra skýringa, versnaði þeim á ný og hjartað hætti að slá, eða þeir hættu að anda, eða blóðþrýstingurinn lækkaði niður í núll. Margir þeirra dóu snögglega þrátt fyrir að allar lyfjameðferðir væru reyndar til að bjarga þeim. Rebekka fylgdist með niðurstöðum krufninga á mörgum af þessum sjúklingum og henni var mjög brugðið. Engin skýranleg ástæða fannst, önnur en sjúkdómurinn sem sjúklingurinn hafði er hann var lagður inn.
Hin vandamálin sem hún hafði áhyggjur af voru, hversu algengt það var að sjúklingar sæju "ofsjónir“ og hvað það var sem þeir sáu. Þegar sjúklingur gengur í gegnum það gífurlega álag, sem alvarlegur sjúkdómur hefur í för með sér, er hann lagður inn á gjörgæsludeildina í nokkra daga, venjulega með ljósin kveikt 24 tíma á sólarhring, tengdur við "mónitora", og með byrgt fyrir alla glugga til að hann sjái ekki út. Vegna alls þessa er alltaf visst hlutfall sjúklinga, sem ruglast í ríminu og fara að sjá ofsjónir. Engu að síður var þetta ofskynjunarhlutfall miklu hærra á þessu sjúkrahúsi en Rebekka hafði nokkurn tíma vitað til á þeim sjúkrahúsum, sem hún hafði unnið á, bæði sem hjúkrunarkona og sem læknakandídat.
Rebekku fannst eins og Drottinn vildi að hún tæki sér tíma til að tala við marga sjúklingana um hvað þeir sæju í þessum ofsjónum. Henni til undrunar, sögðust flestallir sjá illa anda í sjúkrastofunni sinni!
Rebekka var mjög áhyggjufull út af þessu og fór að minnast á dauðsföllin og ofskynjanirnar á fundum sem haldnir voru með öllum læknakandídötunum og aðstoðarlæknunum á hverjum morgni. Enginn annar virtist hafa áhyggjur af þessu eða trúa henni. Eftir þriðju tilraun hennar til að vekja máls á þessum vandamálum, var hún kölluð niður á skrifstofu yfirmanns þjálfunarinnar, og henni sagt að þegja um þessi málefni, því hún hefði ekki nægilega reynslu til að vita um hvað hún væri að tala. Þegar Rebekka benti honum á að hún hafði einnig tíu ára reynslu sem hjúkrunarkona auk læknanámsins, var henni sagt að ef hún héldi áfram að skapa vandræði, yrði henni vikið af þjálfunarnámskeiðinu.
Á morgunbænastundum sínum, sem urðu nú enn innilegri, bað hún Drottin um að opinbera fyrir sér, hvað væri að gerast. Fyrsta gegnumbrotið kom síðan gegnum einn af sjúklingum hennar.
Perla var gömul blökkukona frá Suðurríkjum Bandaríkjanna. Hún hafði verið í umsjá Rebekku í um það bil sex mánuði. Perla var sannkristin kona og Rebekka hafði kynnst henni mjög vel og þótti mjög vænt um hana. Kvöld eitt kom Perla fársjúk á sjúkrahúsið, og Rebekka flutti hana á gjörgæsludeildina. Morguninn eftir, þegar Rebekka hóf vinnu sína, sögðu hjúkrunarkonurnar henni að Perla væri með “ofsjónir”. Rebekku var brugðið, vegna þess að hún vissi að Perla var mjög trúuð kristin kona sem hafði gengið í gegnum miklar þjáningar og missti ekki auðveldlega stjórn á sér.
Er hún kom inn á sjúkrastofu Perlu, var hún grátandi. Þegar hún spurði hana um ástæðuna, sagði Perla henni að ef hún yrði ekki flutt af gjörgæsludeildinni strax þennan dag, "myndi hjúkrunarkonan á næturvaktinni drepa sig." Síðan sagði Perla Rebekku frá því hvernig hjúkrunarkonan, sem annaðist hana nóttina áður, hefði komið til hennar og sagt að það væri engin ástæða fyrir hana að halda áfram að berjast við að halda lífi. Hún myndi auðveldlega endurfæðast inn í annað líf. Hjúkrunarkonan sagði Perlu einnig að hún myndi kalla á “æðri krafta“ til að fylgja henni inn í næsta “yndislega líf”. Þegar hjúkrunarkonan lagði hendur sínar yfir Perlu og talaði á framandi tungumáli, áttaði hún sig á því að þetta var galdraseiður. Perla þekkti til “vúdú”, svartagaldurs og illra anda vegna uppruna síns, og hún staðhæfði að hún hefði séð illa anda inni í sjúkrastofunni. Hún sagði Rebekku að hún væri of máttfarin til að berjast á móti, og ef að það sama myndi gerast næstu nótt, þá vissi hún að hún myndi deyja.
Rebekka var alveg forviða! Hún þekkti Perlu nægilega mikið til að álíta að hún væri ekki að ljúga þessu, og hún var viss um að hún væri ekki orðin rugluð á nokkurn hátt. Hjúkrunarkonan, sem Perla talaði um, var sú sem sá um næturvaktirnar á gjörgæsludeildinni. Hún var eldri kona, þægileg, aðlaðandi og frábær hjúkrunarkona. Hún var vel skipulögð, vel að sér og sá til þess að sjúklingarnir fengu gott atlæti. Hún var mjög virt af læknunum og hinum hjúkrunarkonunum. Rebekku hafði alltaf fundist hún svolítið köld og hlédræg, en hafði hugsað sem svo að það væri vegna vinnuálagsins. Hún gat ekki fundið neitt að vinnu hennar á nokkurn hátt.
Rebekka vissi að hún gat ekki talað við neinn af vinnufélögum sínum um vandamálið, vegna þess að þeir myndu allir segja að hún væri brjáluð. Ekki gat hún heldur ákært hjúkrunarkonuna, því hún hafði engar sannanir. Á þessum tíma vissi Rebekka mjög lítið um nornir, og hún vissi sama og ekkert um illa anda. Það var bara eitt sem hún gat gert. Hún lagði vandamálið fyrir Drottin í bæn. Hverri frístund þann daginn eyddi hún á hnjánum í bæn, í kapellunni. (Hún hafði kapelluna út af fyrir sig, vegna þess að enginn annar kom þangað.) Seinna um daginn sannfærði Drottinn hana um að Perla væri að segja sannleikann. Drottinn skipaði Rebekku einnig að fara og sitja yfir Perlu alla næstu nótt, þar sem Perla var of veik til að hægt væri að flytja hana af gjörgæsludeildinni. Þetta var mögulegt vegna þess að Rebekka var ekki á vakt þessa sömu nótt.
Það sem gerðist þessa nótt, breytti lífi Rebekku að eilífu. Þar sem hún sat við rúmið hennar Perlu, og bjóst ekki við að neitt sérstakt myndi gerast, fann hún svo ekki varð um villst fyrir undirokun illra anda á þann hátt, sem hún hafði aldrei fundið áður. Helena hjúkrunarkonan sem var í forsvari fyrir deildina, kom alls ekki þessa nótt. Rebekka fann ótrúlegt, ósýnilegt afl koma gegn sér. Henni fannst eins og risavaxin hönd, sem hún gat þó ekki séð, reyna að þrýsta sér í litla klessu á gólfið, og ósýnilegt afl reyna að sjúga úr sér líftóruna. Hún reyndi að útskýra þetta á vísindalegan hátt, reyndi að sannfæra sig um að þetta væri bara hennar eigin ímyndun, en ekkert af því hjálpaði. Hún fann hvernig líkami sinn missti smám saman allan mátt, þar til að hún gat varla setið upprétt. Perla fann fyrir þessu líka. Þær tókust í hendur, og Rebekka bað hljóðlega um að Drottinn verndaði þær með dýrmætu blóði Jesú.
“Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orðvitnisburðar síns....”Opinberunarbókin 12:11
Þetta var nótt gífurlegrar baráttu, en Perlu var borgið, og Rebekka útskrifaði hana af gjörgæsludeildinni morguninn eftir.
Næstu opinberanir komu einnig fljótlega. Rebekka kenndi vikulega á biblíunámskeiði fyrir nokkrar hjúkrunarkonur, sem hún hafði leitt til Drottins. Ein af þessum hjúkrunarkonum, Jóna að nafni, sagði henni loks einn daginn frá Satanistahreyfingunni sem hún hafði verið meðlimur í áður en hún frelsaðist. Hún sagði Rebekku frá því að Helena hefði þjálfað hana til að verða miðill og hún hefði verið tilbúin til að vígjast inn í Satanistahreyfinguna, þegar Rebekka kom á sjúkrahúsið og byrjaði að vitna fyrir henni um Drottin. Það varð til þess að hún gerði Jesú að Drottni sínum og frelsara, og neitaði að hafa nokkuð saman að sælda við Helenu eða hinar nornirnar. En Jóna var augljóslega mjög hrædd við Helenu og vinkonur hennar.
Jóna sagði Rebekku að hún vissi að ætlunarverk Helenu væri að sjá sjálf um veikustu sjúklingana á gjörgæslunni. Og um leið og hún annaðist þá, mundi hún tala við þá og segja þeim að það væri engin ástæða til að berjast við að halda lífi, þar sem þeir gætu svo einfaldlega endurfæðst inn í annað líf og losnað þannig undan öllum þjáningum. Þá, með eða án samþykkis þeirra, lagði hún hendur yfir þá og ákallaði illa anda sem hún kallaði “æðri krafta”, til að koma og vísa þessum sjúklingum inn í þeirra næsta líf. Oft versnaði þessum sjúklingum fljótlega og þeir dóu. Jóna var hrædd við að segja öðrum frá þessu, því Helena var í miklum metum hjá yfirhjúkrunarkonunni og öðrum yfirvöldum stofnunarinnar, og hún vissi að þau myndu ekki trúa sér. Í raun og veru hafði hún látið færa sig á aðra vakt eftir að hún snérist til kristinnar trúar, til þess að þurfa ekki að vinna með Helenu.
Jóna sagði Rebekku einnig frá dulspekifélagi í nálægri borg, sem rak eina stærstu dreifingamiðstöð dulrænna bókmennta í Bandaríkjunum, mjög stóra þjálfunarmiðstöð fyrir nornir og Satanskirkju. Rebekka fékk staðfestingu á öllu, sem ungi presturinn hafði sagt henni, og Jóna var hrædd um að það færi eins fyrir sér og honum. Enginn í grenndinni virtist taka félagið mjög alvarlega, en það var auðvitað einmitt það sem Satan vildi.
Þá fékk Rebekka að vita, frá nokkrum öðrum heimildarmönnum, um aðrar hjúkrunarkonur og lækna á sjúkrahúsinu, sem voru viðriðin dulspeki, og um Satanistareglur og samfélög. Enn einu sinni lagði hún málefnið fyrir Drottin og fékk staðfestingu. Hún byrjaði að lesa Biblíuna af gaumgæfni til að læra meira um Satan og hans illu anda. Hún komst að því að illir andar gátu tekið sér bólstað í fólki, og fólk gat notað djöfullega krafta til að gera ýmsa hluti. Á þessum tímapunkti hóf hún raunverulegan hernað gegn Helenu og öðrum Satanistum, sem unnu á sjúkrahúsinu.
Í morgunbænum sínum bað hún Drottin um að binda það djöfullega vald sem var á staðnum og bjó í því fólki sem hún vissi um. Á hverju kvöldi áður en Rebekka yfirgaf sjúkrahúsið, gekk hún gegnum gjörgæsludeildina svo og aðrar deildir, og lýsti því yfir upphátt en mjög hljóðlega, að hún tæki vald yfir hverjum þeim djöfli, sem væri á staðnum eða ætti eftir að koma þangað síðar um daginn eða um nóttina, og batt þá í nafni Jesú Krists. Einnig bað hún Drottin að setja sérstaka vörn í kringum sjúklingana, til að verja þá gegn valdi illra anda.
Margar nætur, þegar hún var á vakt, var hún kölluð á gjörgæsluna eða einhverja aðra deild, til að sinna sjúklingi, sem hafði skyndilega versnað. Þá gaf Guð Rebekku skarpskyggni til að greina, hvort um var að ræða afskipti illra anda eða ekki, og hún lærði að standa staðföst á 19. versinu í 10. kafla Lúkasar:
“Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun yður mein gjöra.”
og Markús 16:17:
“En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeirreka út illa anda,..”
Oft stóð hún við rúm sjúklings í baráttu og hljóðri bæn, bindandi djöflana og skipandi þeim að víkja, biðjandi um skjöld trúarinnar í Jesú nafni yfir sjúklinginn, á sama tíma og Helena (eða einhver önnur hjúkrunarkona og norn) stóð við hina hlið rúmsins, sigandi öllu því djöfullega valdi sem hún réði yfir, annað hvort á Rebekku eða á sjúklinginn. Auðvitað notaði Rebekka líka alla þekkingu sína sem læknir til að fyrirbyggja að sjúklingnum versnaði, en hún sá fljótlega að öll kunnátta hennar í læknisfræði gerði lítið gagn ef hún beitti ekki andlegum hernaði með í bæn.
Að sjálfsögðu voru Helena, Satan og hinar nornirnar ekki allt of ánægð með þessa tilburði Rebekku og baráttan jókst. Rebekka reyndi að segja nokkrum kristnum samstarfsmönnum sínum frá því hvað um væri að vera, en þeir neituðu að trúa henni og sögðu henni að hún væri bara sjúk og yfir sig þreytt, hún væri bara að ímynda sér þetta.
Eftir því sem baráttan harðnaði, versnaði taugavöðvasjúkdómur Rebekku. Hún var í umsjá eins færasta læknisins á sjúkrahúsinu. En þrátt fyrir allar bænir hennar og lyfjameðferð, sem hún gekk í gegnum, þá var hún að deyja, og hún vissi það. Að lokum, á síðasta degi sínum sem læknakandídat, varð hún of veik til að geta unnið. Ráðgjafafundur var haldinn með nokkrum sérfræðingum, sem höfðu með málefni hennar að gera, og henni var sagt að hún ætti ekki langt eftir, og það væri ekkert sem þeir gætu gert. Þeir spurðu hana hvort hún vildi láta leggja sig inn á þetta sjúkrahús, eða hvort hún vildi fara heim. Hún ákvað að fara heim. Rebekka yfirgaf borgina og sjúkrahúsið, og hún hélt að hún ætti aldrei eftir að sjá það aftur, en það lá þung byrði á hjarta hennar og sorg, vegna alls fólksins sem var haldið föngnu af valdi myrkursins á þessum stað.
Nú leið mánuður angistar, þar sem veikindi hennar þróuðust á þann hátt að hún gat ekki gengið og komst jafnvel ekki fram úr rúminu hjálparlaust. En þrátt fyrir allt þetta átti hún fullkominn og yndislegan frið. Jesús var við stjórn, það var það eina sem skipti máli. Nótt eftir nótt er hún lá vakandi, með of miklar kvalir til að geta sofið, átti hún yndislegt samfélag við Drottin og vonaði innilega að það væri hans vilji að hún kæmi fljótlega heim til hans.
Dag einn, í lok þessa langa mánaðar, kom prestur að nafni Pat í heimsókn til hennar. Hann var prestur kirkjunnar sem hún sótti í heimabæ hennar. Þar sem hann var maður Guðs var hann ekki tilbúinn að samþykkja það sem staðreynd að Rebekka væri að deyja, og hann hafði lagt málefnið fram fyrir Drottin. Hann kom til að tala við hana og segja henni að Drottinn hefði opinberað það fyrir sér, að það væri alls ekki hans vilji að hún ætti að deyja.
Síðan sagði hann, “Ég veit að þetta hljómar ótrúlega, en ég trúi því að Guð hafi sýnt mér að það sem að þér er, er að þú ert ofsótt af hópi mjög öflugra norna. Veikindi þín eru komin á þetta stig vegna þess að þær siga á þig djöfullegum öflum. Getur verið að þetta sé satt? Hefur þú verið í tengslum við einhverjar nornir, svo þú vitir?”
Skyndilega skildi Rebekka allt saman! Af hverju hafði hún ekki sett samasemmerki á milli veikinda sinna og baráttunnar, sem hún átti í við Satanistana á sjúkrahúsinu? Hún hafði aldrei talað um þetta við Pat prest, en nú sagði hún honum allt sem gerst hafði síðastliðið ár. Hann horfði niður á gólfið í þungum þönkum og snéri sér síðan að henni og sagði, “Ég veit að það er ekki vilji Guðs, að þú deyir. Ég efast ekki lengur um að veikindi þín eru beinar afleiðingar galdra. Við verðum að biðja, og loka fyrir vald þessara norna."
Og svo sannarlega var beðið! Ekki aðeins presturinn, heldur öldungarnir og um 200 meðlimir safnaðarins föstuðu og báðu stöðugt í heila viku. Þeir báðu Drottin um náð og miskunn fyrir Rebekku og að hann myndi brjóta vald nornanna á bak aftur.
Kvöld eitt í lok þessarar viku, þegar Rebekka lá í rúminu, hálf meðvitundarlaus, minnti Drottinn hana á kafla sem hún hafði lesið í bók eftir Watchman Nee:
“Kristinn maður skyldi berjast gegn dauðanum með öllum ráðum, nema honum sé ljóst að hann hafi lokið verki sínu og Drottinn ætlist ekki til að hann lifi lengur. Hafi dauðinn sett mark sitt á líkama hans, áður en ætlunarverki hans er lokið, ætti hann vissulega að berjast gegn honum og einkennum hans. Að trúa því að líf okkar sé á enda vegna aðstæðna. Líkamsástands, eða tilfinningar er misskilningur af okkar hálfu; í stað þess að byggja á slíku, skyldum við æskja óyggjandi vísbendingar frá Drottni. Þar sem við lifum fyrir Hann, hljótum við einnig að deyja fyrir Hann. Við skyldum hunsa hvert það burtfarakall úr þessum heimi, sem ekki er frá Drottni sjálfum komið. Til að sigrast á dauðanum, skyldu hinir trúuðu breyta undirgefni sinni við hann í beina andstöðu gegn honum. Ef við veitum enga mótspyrnu, munum við ekki geta yfirbugað dauðann, heldur mun hann hæðast að okkur og verða okkur loks að aldurtila áður en tími er til þess kominn. Á okkar dögum halda fjölmargir hinna heilögu að mótspyrnuleysi sé trú. Þeir styðja skoðun sína með því, að þeir hafi lagt allt sitt ráð í hendur Guðs. Ef þeir eigi ekki að deyja, muni Hann sannarlega forða þeim frá því; ef þeir eigi að deyja, hljóti Hann vafalaust að leyfa því að gerast; verði Guðs vilji. Þessi röksemdafærsla virðist góð og gild, en er þetta trú? Alls ekki. Í rauninni er þetta ekkert annað en mótspyrnuleysi letinnar. Þegar við vitum ekki, hver vilji Guðs er, þá er við hæfi að biðja: "En verði þó ekki minn heldur þinn vilji" (Lúkas 22:42). Þetta þýðir ekki að við eigum ekki að biðja með markvissum hætti og kunngjöra Guði óskir okkar. Við ættum ekki að lúta dauðanum aðgerðalaus, því að Guð býður okkur að aðhafast kappsamlega í samræmi við vilja Sinn. Ef við búum ekki yfir öruggri vissu um að Guð vilji að við deyjum, megum við ekki vera sinnulaus og leyfa dauðanum að
undiroka okkur. Við eigum, þvert á móti, að aðhafast í samræmivið vilja Guðs og standa í gegn dauðanum. Hvers vegna skyldumvið framganga í þessari skoðun? Vegna þess að Biblían segirdauðann vera óvin okkar."(1.Kor.15:26)
Úr bókinni The Spiritual Man (Hinn andlegi maður)Eftir Watchman Nee, bls. 216-219.
Þegar Drottinn minnti hana á kaflann hér að ofan, talaði Heilagur andi hljóðlega til Rebekku og sagði henni að það væri ekki vilji Föðurins að hún myndi deyja, hún ætti mikið verk fyrir höndum. Hún yrði að byrja á því að rísa upp og standa í gegn Satan, og neita að taka við veikindum eða dauða frá honum. Hún þverkallaðist við þessu litla stund, vegna þess að í hjarta sínu vildi hún ekki lifa lengur. Hún vildi ekki berjast lengur, hún vildi fara til himna og vera með Drottni sínum og fá allan friðinn og gleðina, sem hún vissi að biði sín þar. En hljóð og þýð rödd Heilags anda var harðákveðin.
Hágrátandi setti hún loks fætur sínar á “Klettinn” og byrjaði að hasta á Satan og skipa honum, í Jesú nafni, að víkja burt. Hún samþykkti ekki lengur að hann reyndi að gera hana veika, og hún hafnaði einnig dauðanum. Seinna opinberaði Drottinn Rebekku það, að eina ástæðan fyrir því að hann hefði getað brotist í gegn þessa nótt og opinberað henni að hann vildi að hún stæði upp og berðist og stæði gegn dauðanum, væri öflugar bænir Pat prests og safnaðar hans.
Rebekka var með svo miklar vöðvaskemmdir að það tók hana þrjá mánuði að jafna sig, en Drottinn reisti hana upp og læknaði fullkomlega. Þá fór hún aftur á Memorial-sjúkrahúsið til að klára tvö síðustu þjálfunarárin, loksins tilbúin til fundarins, sem Drottinn hafði ráðgert með Elaine höfuðnorninni, sem hafði stjórnað morðtilræðinu við hana.