Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Nítjándi kafli

Hreinskilið spjall við þá sem vilja komast út úr kuklinu

um 17 mín. lestur

Rebekka segir frá:

Ég vil tala beint til þeirra lesenda þessarar bókar sem eru flæktir í hverskonar dulspeki-kukl (occult - t.d. Satanisma ) og vilja hverfa frá því. Það sem ég hef að segja ykkur virðist harkalegt, en það er sannleikurinn byggður á orði Guðs. Það er engin auðveld leið út. Jesús er ekki auðveld flóttaleið. Jesús hefur allt vald, þar með talið yfir Satan og illu öndunum hans, og það vald getur þú fengið að nota, en þú kaust að þjóna Satan, og Satan sleppir ekki þjónum sínum auðveldlega. Þetta er bara hrein og skýr staðreynd. Þú verður að berjast, til þess að verða frjáls. Eina von þín felst í því að berjast með krafti og með valdi Jesú Krists. En baráttan er raunveruleg. Að hætta þátttöku í dulspekikukli er skref sem þú annaðhvort “tekur eða tekur ekki.” Þú getur ekki sagt skilið við Satanismann að hluta til eða smám saman. Þú verður að gera það upp við þig hvort þú ætlir að yfirgefa hann í eitt skipti fyrir öll. Ef þér snýst hugur á ný, þá verður þú mjög sennilega drepinn, og þú færð aldrei annað tækifæri til þess að sleppa út. Þetta er mjög alvarlegt mál.

“Því að það er ómögulegt, að þeir sem eitt sinn eru orðnir upplýstir og hafa smakkað hina himnesku gjöf, fengið hlutdeild í heilögum anda og reynt Guðs góða orð og krafta komandi aldar, en hafa síðan fallið frá, þá er ógerlegt að endurnýja þá til afturhvarfs. Þeir eru að krossfesta Guðs son að nýju og smána hann." Hebreabréfið 6:4-6

Ef þú hefur einu sinni smakkað á krafti og yndisleika Jesú Krists og frelsun hans og ferð svo aftur í kuklið, þá geturðu aldrei iðrast aftur, og munt dvelja til eilífðar í hinni mestu angistarkvöl í Helju.

“Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig." Jóhannes 14:6

Það er aðeins ein leið til Guðs Föður og að frelsast frá konungsveldi Satans, og það er í gegnum Jesú Krist. Ef þú vilt brjóta ánauðarhlekki Satans, þá getur þú einungis gert það með því að gera Jesú að Drottni þínum og Frelsara og að fullkomnum Leiðtoga. Þú getur ekki þjónað Jesú og Satan á sama tíma, og ef þú ert ekki að þjóna Jesú fullkomlega, þá ert þú að þjóna Satan. Allt sem þú þarft að gera er að tala út og biðja Jesú að fyrirgefa þér, hreinsa burt allar syndir þínar með dýrmætu blóði sínu, sem rann á krossinum, og biðja hann að taka fullkomna stjórn á lífi þínu. Illu andarnir í þér og í kringum þig munu gera allt til þess að hindra þig í að taka þetta skref, en þeir geta ekki stoppað þig.

“„hver sá, sem nefnir nafn Drottins, haldi sér frá ranglæti." (illu)2.Tímóteusarbréf 2:19b

Þú verður að aðskilja þig algjörlega frá öllu illu. Ég geri mér grein fyrir því að þetta getur verið mjög erfitt, þar sem næstum því allt, sem þú átt, hefur Satan gefið þér. Þú verður að leggja frá þér allan galdramátt - sérstaklega alla hæfileika þína til þess að tengjast andaheiminum. Þú verður að biðja Drottin að taka frá þér allt andlegt vald, taka það svo gjörsamlega í burtu frá þér, að þótt þú gerir uppreisn og viljir fá það til baka, þá sé það ekki hægt. Þú verður að biðja Drottin að skilja á milli anda og sálar, svo að þú að eilífu missir hæfileikann til að hafa samband við Satan og illu andana, eða til að nota andalíkama þinn og getir ekki notað galdramátt þinn, jafnvel ekki til þess að vernda sjálfan þig.

“Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans. Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert og öndvert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra." Hebreabréfið 4:12-13

Þú getur ekki falið neitt fyrir Guði! Þú verður að skilja gjörsamlega við allt hið illa. Ef þú býrð ennþá með fólki, sem er flækt í Satanisma, til dæmis í kommúnu, þá verður þú að flytja út, sama hvað það kostar. Þú verður að skilja, að þú getur ekki einu sinni haldið áfram að umgangast vini eða ættingja sem eru ennþá í þjónustu Satans. Þú munt verða fyrir miklum áhrifum og árásum, sérstaklega frá fjölskyldumeðlimum þínum sem enn eru í Satanisma.

“Þegar þeir ofsækja yður í einni borg, þá flýið í aðra."Matteus 10:23

Þegar þú hefur beðið Jesú Krist að fyrirgefa þér og hreinsa, og að verða Drottinn þinn og Leiðtogi, þá munt þú hafa vald hans og yfirráð yfir óhreinu öndunum, bæði innra með þér og í kringum þig.

Ekki reyna að blekkja sjálfan þig. Illu andarnir segja ekki bara “Bless, bless”, og hoppa svo út af þér, vegna þess að þú baðst Jesú að frelsa þig. Þú bauðst þeim inn með því að þjóna Satan, nú ætlast Drottinn til þess að þú takir upp það vald, sem býr í Jesú nafni og sparkir þeim út. Þú verður að skilja það, að illu andarnir í þér eru skyldugir til þess að drepa þig, jafnvel þó að Satanistarnir geti ekki klófest þig.

Láttu ekki illu andana stjórna þér. Nú verður þú að stjórna þeim. Hastaðu á þá upphátt í Jesú nafni og skipaðu þeim að koma út af þér og fara í Jesú nafni.

“En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum," Markús 16:17

"Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfiröllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun yður mein gjöra."Lúkas 10:19

Þú þarft hjálp. Með bæn skaltu biðja Drottin um að leiða þig til kristinna systkina, sem vilja og geta hjálpað þér, en farðu varlega. Satan á marga þjóna í kristnum kirkjum, og margt kristið fólk er ekki að fullu skuldbundið Drottni. Leitaðu eftir staðfestingu Drottins og handleiðslu áður en þú treystir einhverjum. Sennilega þarftu að fá hjálp til að losna fullkomlega við illu andana innra með þér. Fullkomin lausn frá þeim er möguleg - láttu engan segja þér annað. Leitaðu fullkominnar lausnar eins fljótt og mögulegt er. Ef þú leitar Drottins í einlægni, þá mun hann heyra í þér og hjálpa.

Þú verður að lesa og rannsaka og læra Guðs orð. Að beygja sig undir Guð er algjörlega nauðsynlegt.

[Jesús sagði] “Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín."Jóhannes 14:15

[Jesús talar] "Ef þér haldið boðorð mín, verðið þér stöðugir í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans." Jóhannes 15:10

"Ekki mun hver sá, sem við mig segir: ,Herra, herra,` ganga inn í himnaríki, heldur sá einn, er gjörir vilja föður míns, sem er á himnum." Matteus 7:21

Besta vörn þín gegn árásum Satans er að hlýða samstundis skipunum Drottins - ekki bara þeim skipunum, sem eru í Biblíunni, heldur einnig þeim, sem Heilagur andi gefur þér beint. Þú verður að skilja að þú ert að eðlinu til uppreisnarseggur, annars hefðir þú ekki leitað í dulspekikuklið til að byrja með. Satanisminn laðar til sín fólk, vegna þess að það vill fá vald til að stjórna lífi sínu og annarra. Satan mun ráðast hvað harðast gegn því að Jesús sé orðinn leiðtoginn í lífi þínu. Hann mun vekja alls konar spurningar í huga þínum, eins og “Hvers vegna skyldi ég gera allt eins og Drottinn segir mér? Þetta er nú einu sinni mitt líf, þegar allt kemur til alls.” Nei, það er það ekki. Ekki gleyma því, að þú varst keyptur dýru verði - með þjáningum Jesú á krossinum. Nú tilheyrir þú Drottni. Ritningarnar eru ljósar hvað þetta varðar.

“Þrjóska er ekki betri en galdrasynd, og þvermóðska er ekki betrien hjáguðadýrkun og húsgoð.``1. Samúelsbók 15: 23

Þú verður að rannsaka og leggja Guðs orð á minnið. Það er björgunarvestið þitt. Guð mun sjálfur gefa þér skilning á ritningunum. Ekki taka við neinu, sem einhver annar segir þér, án þess að bera það saman við Biblíuna, og spyrja Drottin um það.

Þú munt sennilega upplifa algjör umskipti í öllum aðstæðum lífs þíns - þá sérstaklega fjárhagslegum. Ekki gleyma því að allt, sem þú átt, fékkstu frá Satan, allt tilheyrir það honum, og hann hefur rétt til þess að taka það af þér. Guð er algjörlega réttlátur við Satan, eins og hann er við okkur. En vertu hugrakkur, ríkidómurinn, sem Drottinn gefur þér, er langtum meira virði en það sem Satan getur nokkurn tíma gefið þér.

“Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela. Safnið yður heldur fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela. Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera." Matteus 6:19-21

Að þekkja Guð persónulega er besti fjársjóður sem hægt er að eignast. Þú skalt biðja Hann um að opinbera sjálfan sig fyrir þér.

Jesús spurði Pétur, og spyr sérhvert okkar í dag, þessarar ákveðnu spurningar:

“ elskar þú mig meira en þessir?" Jóhannes 21:15b

Herradómur Jesú er algjör:

“Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður. Hver sem tekur ekki sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður." Matteus 10:37-38

Satan mun ögra þér bein, hvað þetta atriði varðar. Ert þú viljugur eða viljug til þess að taka Drottin Jesú Krist fram yfir allt annað, bæði menn og málefni? Ef þú tekur ekki Jesú fram yfir ástvini þína, áttu enga von um að sleppa frá Satan. Satan mun nota ástvini þína til að halda þér í ánauð. Leyfið mér að gefa ykkur dæmi um það sem ég er að tala um.

Við höfðum þau forréttindi að vinna með yndislegum blökkuhjónum sem við skulum kalla “Karl og Kolbrúnu.” Þau voru bæði á þrítugsaldri, voru mjög greind, og orðin mjög háttsett innan Bræðralagsins í þessari borg. Þau gáfu síðan Jesú líf sitt og neituðu að þjóna Satan lengur. Við ráðlögðum þeim að flytja burt úr fylkinu en, eins og skiljanlegt er, voru þau hikandi við að gera það, þar sem Karl var mjög tekjuhár. Þau áttu tvö börn, fjögurra ára stúlku og tveggja ára strák. Þau þurftu að ganga í gegnum hræðilega prófraun varðandi skuldbindingu sína við Jesú.

Um það bil hálfu ári eftir að þau sögðu skilið við Satanismann, rændi Bræðralagið þeim, ásamt dótturinni. Farið var með þau á samkomu þar sem húðinni á litlu stúlkunni þeirra var bókstaflega flett af henni lifandi. Skelfingu lostin þurftu þau að horfa á þetta. Þeim var sagt aftur og aftur að misþyrmingunni á dóttur þeirra yrði einungis hætt ef þau myndu afneita Jesú Kristi og ákalla Satan sem drottin, og þjóna Satan að nýju.

Þrátt fyrir þá ólýsanlegu angist, sem þau upplifðu þegar þau neyddust til að horfa á barninu sínu, sem þau elskuðu, misþyrmt, og hlusta á angistarvein þess, þá stóðu þau stöðug. Þau höfðu sett Jesú í fyrsta sæti í lífi sínu og ætluðu ekki að afneita Drottinvaldi hans. Að lokum dó litla stúlkan þeirra og þeim var sleppt úr haldi. Viku seinna varð sonur þeirra fárveikur. Hann var færður á sjúkrahús og rannsakaður af færustu sérfræðingum borgarinnar, en án árangurs. Hann dó innan 48 klukkutíma, læknarnir fundu aldrei hvað var að honum. Hann var augljóslega drepinn með göldrum. Aftur stóðu hjónin stöðug og héldu áfram að þjóna Jesú.

Stuttu eftir þessar hörmungar, fluttu þau burt úr fylkinu. Við vorum í sambandi af og til. Tveimur árum seinna fæddi Kolbrún tvíbura, strák og stelpu. Karl var að læra til prests.

Þú gætir sagt: “Hvernig getur þetta átt sér stað, af hverju verndaði Drottinn ekki börnin þeirra, þar sem þau voru orðin kristin?” Þetta er ekki leikur! Þegar þú skuldbindur þig Drottni fullkomlega, þá gefur þú honum allt. Þú getur verið viss um að Satan krefst þess að fá að reyna á þessa skuldbindingu, á sama hátt og hann gerði við Job forðum. Guð gæti gefið Satan leyfi til þess að taka það sem hann krefst.

“Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn. Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum" Jesaja 55:8-9

Guð er Guð. Við getum ekki skilið hugsanir hans, eða ástæðurnar fyrir gjörðum hans. Eins hræðileg og hún var, þá var fórnin sem blökkuhjónin færðu, fyrir að þjóna Jesú nánast ekkert í samanburði við þá fórn sem Jesús færði, og þjáningarnar sem hann leið okkar vegna á krossinum. Jesús segir okkur berlega:

“Kvíð þú ekki því, sem þú átt að líða. Sjá, djöfullinn mun varpa nokkrum yðar í fangelsi, til þess að yðar verði freistað, og þér munuð þrenging hafa í tíu daga. Vertu trúr allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins." Opinberunarbókin 2:10

“Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða, en fá ekki deytt sálina. Hræðist heldur þann, sem megnar að tortíma bæði sálu og líkama í helvíti." Matteus 10:28

Eitt ætla ég að gera ykkur ljóst. Þessi barátta er mjög svo raunveruleg og lífshættuleg. Ég geri mér fyllilega ljóst, að margir munu vera algjörlega ósammála mér og harðneita að taka við þessum boðskap. En ég, fyrir mitt leyti, verð að tala það út, sem leiðtogi minn, Jesús Kristur, hefur skipað mér, burtséð frá allri andstöðu.

Hver einasta kristin manneskja, sem lendir í andlegu stríði í alvöru, og hver einasta kristin manneskja, sem þjónar Jesú Kristi og var áður í þjónustu Satans, verður að vera viðbúin ofsóknum, þjáningum og stríðssárum. Og, þú munt sennilega ekki fá lausn eða lækningu undan neinu af þessu samstundis.

“Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða." 2. Tímóteusarbréf 3:12

Hve mikið ertu tilbúinn til að þjást fyrir Drottin? (Ég er að tala um að þjást líkamlega, sálarlega, andlega, tilfinningalega, og fjárhagslega). Hvernig verðleggur þú sál? Hvaða verð ert þú tilbúinn að greiða til þess að koma því til leiðar að sál frelsist, eða hafna því að þjóna Satan, og heiðra Drottin Jesú Krist sem frelsaði þig undan ánauð Satans? Jesús var tilbúinn að greiða mjög hátt verð - ótrúlegar þjáningar og dauða!

“Hann [Jesús] var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur. Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi. Fyrir

því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn." Filippíbréfið 2:6-11

En fólk mun segja: “Í Kristi höfum við sigur, ekki ósigur.” Það er satt. Tilgangurinn með þessari bók og lífi okkar Elaine er að vitna um þann sigur. En sá sigur vinnst ekki alltaf samstundis í efnisheimi okkar, þar sem tíminn ræður ríkjum. Oft þurfum við fyrst að ganga í gegnum mikla erfiðleika, baráttu og þjáningar. Að lokum munum við sigra með Jesú, hvert tár mun Guð sjálfur þerra burt, og við munum, um alla eilífð, vera í samfelldum, gleðilegum fögnuði yfir þeim sigri.

En þangað til, þegar við erum í miðjum þjáningum, sem eru meiri en við getum staðist, hver er þá von okkar? Hvernig spjörum við okkur? Í þannig kringumstæðum virðist eilífðin oft vera óljós og langt í burtu, þannig að það verður lítil huggun í því að hugsa um hana. Hversu oft hef ég ekki þurft að hlusta á þessi huggunarorð: “Ó, hafðu ekki áhyggjur, Guð leggur ekki þyngri byrðar á þig en þú getur borið!” Það er ekki rétt og mistúlkun á ritningunum. Ritningarversið, sem vitnað er í, er eftirfarandi:

“Sá, er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki. Þér hafið ekki reynt nema mannlega freistingu. Guð er trúr og lætur ekki freista yðar um megn fram, heldur mun hann, þegar hann reynir yður, einnig sjá um, að þér fáið staðist." 1. Korintubréfið 10:12-13

Það er mikill munur á freistingu og þjáningu. Páll ritaði mjög afdráttarlaust í 2. Korintubréfi 1:8:

“Vér viljum ekki, bræður mínir, að yður sé ókunnugt um þrenging þá, sem vér urðum fyrir í Asíu. Vér vorum aðþrengdir langt um megn fram, svo að vér jafnvel örvæntum um lífið."

Hugleiðið eftirfarandi ritningarvers:

“Þar kom, að vér þoldum ekki lengur við og réðum þá af að verða einir eftir í Aþenu, en sendum Tímóteus, bróður vorn og aðstoðarmann Guðs við fagnaðarerindið um Krist, til að styrkja yður og áminna í trú yðar, svo að enginn láti bifast í þrengingum þessum. Þér vitið sjálfir, að þetta er oss ætlað. Þegar vér vorum hjá yður, þá sögðum vér yður fyrir, að vér mundum verða að þola þrengingar. Það kom líka fram, eins og þér vitið." 1. Þessalonikubréf 3:1-4

Hver er hjálpin, eða vonin, eða hvert er svarið? Ég tala út frá minni eigin reynslu, þar sem ég hef þurft að þjást í meira en þrjú ár, og álagið hefur verið langtum meira en ég get borið, og engin lausn er í sjónmáli. Það er enginn efi í mínum huga um að ég muni öðlast “kórónu lífsins” og ólýsanlega gleði í eilífðinni. En í hreinskilni sagt, þá deyfir það ekki sársaukann mikið núna. Ég hef enga “patentlausn.” Allt sem ég get sagt er að þegar ég staðfastlega set fætur mína á “Klettinn” (Jesú Krist), dag eftir dag, með tárin í augunum, bið Drottin um að gefa mér hans styrk og náð til að halda áfram að standa, þá upplifi ég raunveruleika þessara yndislegu versa :

“Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunnsemdanna og Guð allrar huggunar, sem huggar oss í sérhverri þrenging vorri, svo að vér getum huggað alla aðra í þrengingum þeirra með þeirri huggun, sem vér höfum sjálfir af Guði hlotið. Því að eins og þjáningar Krists koma í ríkum mæli yfir oss, þannig hljótum vér og huggun í ríkum mæli fyrir Krist." 2. Korintubréf 1:3-5

Þegar ég held áfram að standa stöðug, þá hjálpar Drottinn mér að bera þjáningarnar og álagið og sorgina, til þess að það beri mig ekki ofurliði; og þá get ég haldið áfram því verki sem mér var falið að inna af hendi, í fullri vissu um eftirfarandi:

“því að ég veit á hvern ég trúi. Og ég er sannfærður um, að hann er þess megnugur að varðveita það, sem mér er trúað fyrir, þar til dagurinn kemur." 2. Tímóteusarbréf 1:12b

Oft erum við í aðstæðum, þar sem við erum búin að gera allt sem við gátum, og samt virðist ástandið enn vera vonlaust. Þá verðum við að muna eftir viturlegum ráðleggingum Páls í Efesusbréfinu:

“Takið því alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu áhinum vonda degi og haldið velli, þegar þér hafið sigrað allt."Efesusbréfið 6:13

Að standa stöðug á Klettinum og bíða eftir að Jesús Kristur grípi inn í aðstæður, er það erfiðasta sem við þurfum nokkurn tíma að gera. Þannig að við skulum standa, kæru systkini í Kristi. Stöndum saman með þá vitneskju að:

“Þótt ég sé staddur í þrengingu, lætur þú mig lífi halda, þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér. Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig, Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef eigi verk handa þinna." Sálmur 138:7-8

Það skiptir engu máli hvað gerist, hinn stórkostlegi Guð alheimsins hefur tilgang fyrir þig. Fyrir ÞIG! Þig sem einstakling og hann mun uppfylla það. Allur máttur Satans og hans gríðarstóra hers getur ekki hindrað Guð í að uppfylla tilgang sinn með þig. Það er margt sem þú skilur ekki og munt aldrei skilja, á meðan þú ert hér á jörðinni. Hver sem útkoman verður, líf, dauði, eða áframhaldandi þjáningar allt til enda, þá er eitt sem þú getur verið viss um: Dag eftir dag, einhvern veginn, og á þann hátt, sem þú kannske ekki skilur, þá er Guð að uppfylla tilgang sinn með þig, og ást hans á þér varir að eilífu!

Ekki gefast upp! Drottinn mun leysa þig úr ánauð Satans. Aðeins Drottinn getur leyst þig - þú ert ekki sterkari eða greindari en illu andarnir! Þú getur ekki gert neitt sjálfur eða sjálf, en Jesús getur það og vill! Jesús kom til að frelsa okkur úr fjötrum!

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

19. kafli af 20 · 17 mín. eftirHreinskilið spjall við þá sem vilja komast út úr kuklinu