Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Þriðji kafli

Bræðralagið

um 18 mín. lestur

Elaine segir frá:

Sandy varð vinkona mín, og var hún eiginlega eina vinkonan sem ég átti. Ég kynntist henni í unglingastarfinu í kirkjunni, eins og ég minntist á áður. Ég fór ekki í kirkju til að heyra um Drottin, heldur til að taka þátt í því sem krakkarnir voru að gera. Við Sandy unnum saman að ýmsum verkefnum í kirkjunni, og í skólanum vorum við mikið saman, lærðum og drukkum kók.

Sandy var falleg stúlka. Hún var ríkari en ég, mjög smekklega klædd og mjög vinsæl. Hún virtist ekki setja það fyrir sig, hverjar aðstæður mínar voru. Ég hélt að hún væri vinkona mín út af vorkunnsemi frekar en öðru, en það var vegna þess að ég vissi ekki að hún starfaði fyrir Bræðralagið sem “nýliðafangari.” Stuttu eftir slagsmál mín við fótboltamanninn, minntist Sandy á það við mig, að hún hefði tekið eftir því að ég hefði sérstakan kraft sem fáir aðrir höfðu. Hún sagðist vita hvar ég gæti lært að auka þennan kraft.

Hún sagði einnig, “Heyrðu, ég veit að þú er einmana og langt niðri, og ég held að ég hafi dálítið, sem getur hjálpað þér. Það er öllum alveg sama um þig í kirkjunni, og Guði þykir ekkert vænt um þig. Ef honum þætti það, þá hefðir þú ekki fæðst eins og þú varst.” Síðan bauð hún mér með sér í unglingabúðir sem haldnar væru á vegum hópsins sem hún og fjölskylda hennar tilheyrðu. Hún kallaði það “kirkjubúðir.” Þær voru í litlum bæ nokkrar mílur utan við borgina. Þetta var að sumri til. Skólinn var búinn, og ég hafði ekkert annað að gera, svo ég ákvað að fara.

Ég sagði foreldrum mínum að ég væri að fara í sumarbúðir á vegum kirkjunnar - þeim var í raun alveg sama hvað ég gerði. Ég bæði kveið fyrir og hlakkaði til. Ég hélt að ég hefði loksins eignast vin og þetta væri jafnvel svarið við bæði einmanaleikanum og þessum skrýtna krafti sem ég fann innra með mér. Sandy talaði um mótið í marga daga áður en við lögðum loks af stað. Hún lýsti því sem kjörnum stað fyrir mig þar sem mér yrði vel tekið og þörf væri fyrir mig. Það væri not fyrir kraftana sem ég hafði, og hægt væri að fullkomna þá. Ég myndi verða merkileg og fræg, jafnvel rík, ég gæti fengið hvað sem ég vildi. Þegar hún talaði um þetta, þá fann ég hvernig þessi skrýtni kraftur hrærðist og magnaðist innra með mér.

Það sem Sandy gerði ekki, var að nota orðið “dulspeki“ eða að segja mér sannleikann um þennan hóp. Ég geri hér hlé á lýsingu atburðarásarinnar og lýsi hópnum í stuttu máli.

Þessi hópur, sem leynilega kallar sig Bræðralagið, samanstendur af fólki sem dýrkar Satan og lýtur beinni stjórn hans. Þetta er ört vaxandi og mjög hættulegur dulspekihópur. Hann hefur tvær aðal bækistöðvar í Bandaríkjunum,- á vesturströndinni, aðallega á Los Angeles-San Francisco svæðinu, og hina í mið-vesturríkjum Bandaríkjanna, þar sem ég bjó. Þeim er skipt niður í staðarhópa eða hluta sem kallast nornaþing (covens). Fjöldi meðlima á nornaþingi getur verið á bilinu 5-10 manns til nokkurra þúsunda. Þetta er sami dulspekihópurinn og Hal Lindsey skrifar um í bók sinni, Satan is Alive And Well On Planet Earth, (Satan er lifandi og í fullu fjöri á jörðinni) og Mike Warnke skrifar um í bók sinni, The Satan Seller (Sölumaður Satans). Þetta er einnig bandaríski hluti ensku reglunnar sem skrifað er um í bók Doreen Irvine, Freed From Witchcraft (Frelsuð frá göldrum).

Regla þessi er mjög leynileg. Engin rituð félagaskrá er geymd. Jafnvel þeir samningar, sem gerðir hafa verið við Satan og undirritaðir með blóði meðlimanna, eru brenndir af æðstu prestunum. (Þetta vita lágt settir meðlimir ekki). Satanistarnir í þessari reglu koma alls staðar að úr þjóðfélaginu - ríkir og fátækir, menntafólk, fólk úr lögreglunni, úr stjórnmálaheiminum, fjármálamenn og -konur, og meira að segja nokkrir svokallaðir kristnir predikarar. Flest allt fólkið sækir kristnar kirkjur og er álitið “góðir þjóðfélagsþegnar” vegna þátttöku sinnar í ýmsum félagsmálum. Allt er þetta yfirhylming. Þetta fólk lifir tvöföldu lífi og er sérfræðingar í því - meistarar í táli.

“Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sigljósengilsmynd. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sigmynd réttlætisþjóna...”2. Korintubréf 11:14 -15.

Á fundunum ganga allir undir dulnefni, þannig að ef þeir hittast á förnum vegi þá vita þeir oftast ekki hvað hinn aðilinn heitir. Þeir gangast undir strangan aga Satans og djöfla hans. Þeir stunda mannfórnir nokkrum sinnum á ári og dýrafórnir mánaðarlega. Manneskjurnar sem fórnað er eru oftast börn - fædd utan hjónabands af ýmsum meðlimum reglunnar í umsjá lækna og hjúkrunarkvenna innan reglunnar, þannig að móðirin sést aldrei á sjúkrahúsi - barnsfæðingin er ekki skráð, og heldur ekki dauði barnsins. Öðrum fórnarlömbum hefur verið rænt, eða eru meðlimir reglunnar sem hafa brotið eitthvað af sér, eða sjálfboðaliðar, sennilega vegna þess að þeir geta ekki lifað með sjálfum sér lengur. Margir af þeim eru kaldrifjaðir morðingjar, sérstaklega hæfir sem slíkir.

Hvert nornaþing (coven) er leitt af æðsta presti (karli eða konu). Þetta fólk fær stöðu sína með því að þóknast Satan á ýmsan hátt og með því öðlast meiri og meiri galdramátt. Innan hópsins er mikið um illdeilur. Innan reglunnar eru nornir sem eru æðri öðrum nornum og eru þær kallaðar Systur Ljóssins.

Það eru nokkrir dulspekihópar í Bandaríkjunum sem kalla sig Hina upplýstu, (The Illuminati) og flestir þeirra tilheyra ekki Bræðralaginu. Einnig er hópur sem kallar sig Hina upplýstu sem er beinlínis leifar af hinum fornu spá- og galdramönnum Englands, Drúídum. Þeir eru mjög máttugt og hættulegt fólk og tengjast Bræðralaginu. Þeir stunda tíðar mannfórnir.

Systur Ljóssins komu fyrst til Bandaríkjanna frá Evrópu seint á 18. öld. Þær rekja sögu sína aftur til hinna myrku miðalda í Evrópu, en eiga reyndar rætur sínar að rekja til galdranorna í hinu forna Egyptalandi og Babýlóníu, og voru þær nægilega voldugar til þess að endurvekja þrjár af þeim tíu plágum sem voru sendar á Egypta á tímum Móse. (Sjá Aðra Mósebók, 7. kafla.) Þessar nornir eru gífurlega máttugar. Þær geta framkallað sjúkdóma og drepið, án þess að snerta fórnarlambið jafnvel í mörg þúsund kílómetra fjarlægð. Þetta er auðvitað framkvæmt með hjálp illra anda, en fólkið er látið halda að það stjórni illu öndunum, þegar það eru í rauninni Satan og djöflar hans sem eru að nota það.

Ótrúleg grimmdarverk eru framin innan reglunnar af fólki sem er svo undirokað af djöflum sem hafa tekið sér bólfestu í því, að það er búið að glata allri samúð og ást og virðist varla mannlegt lengur. Fjallað verður um sumt af þessu seinna í bókinni.

Hraður vöxtur Bræðralagsins er tákn um að við lifum á hinum síðustu tímum og er beinlínis uppfylling á spádómum Biblíunnar.

Í Bandaríkjunum og úti um allan heim eru þúsundir dulspekireglna og hópa, sem dýrka og þjóna Satan, undir fjölmörgum mismunandi nöfnum. Margir nefna Satan ekki því nafni, heldur nota eitthvað annað nafn. Margir vitna einfaldlega til hans sem “Húsbónda” (Master). Einnig eru til margir sjálfstæðir hópar af sjálflærðum nornum og Satanistum. Venjur og yfirbragð á tilbeiðslu í einstaka hópum og hreyfingum er mjög mismunandi.

Ég gekk beint inn í þennan hóp þegar ég fór í sumarbúðirnar með Sandy. Ég var mjög spennt þegar við komum á leiðarenda. Þegar maður er spenntur, þá tekur maður ekki eftir smáatriðum. Það var farið með okkur beint á svefnstaðinn þar sem við áttum að vera, og okkur átti að finnast við vera mjög velkomnar. Í búðunum voru margar vistarverur, listasöfn, bókasöfn, mismunandi hús þar sem maður gat farið í skyggnilýsingu, dáleiðslu, lófalestur, þar voru tarot-spákonur og voodoo-sérfræðingar, o.s.frv. Sumt af fólkinu bjó þarna árið um kring, aðrir ekki. Á þessum stað átti að koma á formlegum tengslum milli hreyfingarinnar og óupplýsts lýðsins.

Við tókum þátt í mörgum námskeiðum þar sem við lærðum að efla og nota “kraftana” okkar. Sandy kynnti mig fyrir Systrum Ljóssins. Löngu seinna komst ég að því að þær höfðu fylgst náið með mér alla barnæsku mína, eða frá því að salan á blóði mínu átti sér stað milli Helenu og Grace.

Sandy fór með mig inn í stóra Satanskirkju sem var á svæðinu, tveimur tímum fyrir aðal kvöldsamkomuna. Sólin var að setjast og það var dimmt allstaðar í kirkjunni, nema ljós frá 13 kertum, sem voru inni í hring á gólfinu fremst í kirkjunni og vörpuðu óhugnanlegum skuggum á 13 verur sem sátu á gólfinu, ein við hvert kerti. Þegar við komum nær, sá ég að verurnar voru 13 konur, allar eins klæddar í síða hvíta kufla með samfastar hettur dregnar yfir höfuðið. Þær sátu allar með krosslagða fætur á háglansandi viðargólfinu, beinar í baki, með handleggina krosslagða yfir brjóstkassann, starandi með algjörri einbeitingu inn í kertaljósið fyrir framan sig.

Kertin voru hvert fyrir sig um tvö fet á hæð og þrjár tommur að sverleika. Þau voru úr svörtu vaxi, og hvert þeirra stóð á löngu og mjóu pappírsblaði sem var þakið fínlegri skrift. Vaxið lak af kertunum og ofan á blöðin. Konurnar báru ekki skartgripi eða skraut af nokkru tagi. Þær voru allar hreyfingarlausar, en þær söngluðu og hummuðu stöðugt og hljóðlega er þær báðu til Satans. Þarna var kraftur sem bæði heillaði mig og fyllti mig ótta. Ég fann fyrir máttugri hræringu óútskýranlega kraftsins, á meðan ég sat og horfði á þær þessa tvo tíma sem athöfnin tók.

Kvöldið eftir fann ég mig knúna til að horfa á sömu athöfnina aftur. Ég vissi að þær voru Systur Ljóssins, eingöngu vegna þess að Sandy hafði sagt mér það. Aðrir reglumeðlimir töluðu um þær sem “Mæðurnar,” og fáir vissu að þær voru þessi útvaldi hópur. Þær kynna sig aldrei fyrir karlmönnum, þar sem þeir fá ekki að vera með í hópnum. Samt eru þær aðaldriffjöðrin og styrkur hreyfingarinnar og vel varið leyndarmál, jafnvel innan félagsins. Þær umbera engan veikleika hjá hvor annarri, og ef einhver sýnir veikleikamerki, þá er henni tortímt. Mjög fáar ungar konur eru meðal þeirra.

Eftir athöfnina annað kvöldið, kom ein af konunum til mín. Hún sagði, að þær hefðu tekið eftir áhuga mínum og að þær vissu af mínum óvenjulega krafti og að þær myndu gjarnan vilja fá mig á þjálfunarnámskeið. Þær voru óformlegar og vingjarnlegar, og þær sögðu mér að þær gætu þjálfað mig í að stórauka og efla þennan kraft meira en nokkur annar hópur gæti. Ég gleypti beituna, krókinn, línuna og sökkuna.

Fyrst sögðu þær mér frá mikilleikanum, sem ég gæti öðlast, hvernig ég gæti notað kraftinn innra með mér til að fá það sem ég þurfti, þær sögðu einnig, að ég gæti öðlast allt sem ég vildi. Þessi kraftur væri frá Satan, ekki frá Guði. Þær voru fyrstar til að segja mér það, og þær sögðu mér einnig að Satan væri hinn eini sanni guð. Þær kenndu mér að söngla og humma. Sögðu mér að ef ég vildi eitthvað, þá þyrfti ég bara að kveikja á kertinu mínu og setja bænirnar mínar undir það. Ekki bara bænir fyrir sjálfa mig, auðvitað ekki, af því að ég mátti ekki vera sjálfselsk. Ég gat beðið annaðhvort fyrir upphefð eða niðurlægingu annarrar persónu. Það skipti engu máli. Svo framarlega sem það var eitthvert annað nafn á miðanum ásamt mínu eigin.

Síðasti dagur mótsins rann loks upp, og ég bjó mig undir að fara heim. Skyndilega horfðist ég í augu við þá staðreynd að öll vinalæti fólksins á mótinu voru bara á yfirborðinu og að þátttaka mín var ekki lengur leikur eða af frjálsum vilja. Þegar ég hitti Sandy, áður en við lögðum af stað heim á leið, sagði hún mér að hún væri með skilaboð til mín frá Systrum Ljóssins um að þær byðu upp á sérstaka þjálfun fyrir mig og nokkrar aðrar, sem hefðu “Sérstaka hæfileika.” Sandy sagði, að þær og æðsti presturinn og kvenpresturinn vildu tala við mig stuttlega í kirkjunni áður en við færum.

Ég fór yfir í kirkjuna og gekk inn ásamt nokkrum öðrum. Eftir að við komum inn í kirkjuna, sáum við að vopnaðir verðir stilltu sér upp fyrir framan dyrnar, og okkur var sagt að standa fyrir framan litla hópinn fremst í kirkjunni. Æðsti presturinn sagði okkur síðan að við hefðum verið valin til að ganga í Bræðralagið, sem þýddi að skrifa undir samning við Satan með okkar eigin blóði á samkomu kvöldið eftir. Ég spurði, hvað fælist í þeim samningi og var sagt að ég yrði að gefa líkama minn, sál og anda “okkar mikla föður Satan” í staðinn fyrir margar “blessanir” frá honum. Okkur var einnig sagt að ef við vildum ekki gera þetta, þá myndu þeir nota sérstakar “fortölur“ til að láta okkur skipta um skoðun. Ég sagði þeim, að undir engum kringumstæðum myndi ég skrifa undir slíkan samning. Þegar hér var komið sögu, tók æðsti kvenpresturinn við og tilkynnti mér að ég hefði ekkert val. Ég horfði beint í augun á henni og sagði, ”Farðu til Helvítis! Tíkin þín! Þið eruð öll rugluð! Ég geri það ekkert.” Um leið kom stórvaxinn vörður með hríðskotabyssu aftan að mér og greip í höndina á mér við úlnliðinn og sveigði hana aftur fyrir bak og upp af slíku afli að ég hélt að hann hefði brotið hana. Hann sagði mér að ég ætti að beygja mig fyrir æðsta kvenprestinum og biðja hana fyrirgefningar á óvirðingunni, og ef ég vildi það ekki þá myndi hann lemja mig þangað til ég hlýddi. Ég öskraði í uppnámi, “Gerðu svo vel og byrjaðu bara, því ég beygi mig ekki neitt fyrir einhverri kerlingu!”

Hann sló til mín, hnefi hans skall með fullu afli á gagnauga mínu. Ég man ekki meira þangað til ég vaknaði í litlum klefa, um 1.5 x 1.5 m að stærð. Hann var algerlega tómur, með harðviðargólfi. Á dyrunum var lítill gluggi og sá ég fram á gang. Það var næstum því niðamyrkur. Ég var í þessum klefa í 24 klukkutíma. Það var eins og margir dagar. Mér var ekki leyft að sofa því það glumdi í hátölurum látlaust. Mér var sagt, aftur og aftur, að öll dýrð og heiður og lotning tilheyrði Satan. Að ég þyrfti að biðja Satan fyrirgefningar. Að Satan væri guð alheimsins. Mér var einnig sagt að það væri fylgst með fjölskyldu minni, og ef ég myndi ekki fylgja reglum og reglugerðum og undirrita samninginn, yrðu þau öll pyntuð og drepin. Mér var ekki gefinn matur eða vatn allan tímann.

Kvöldið eftir var ég sótt úr klefanum af tveim vörðum og farið með mig í annað herbergi þar sem ég hitti tvær af Systrum Ljóssins. Þær hjálpuðu mér að baða mig, og síðan huldu þær nakinn líkama minn hvítum satínkufli. Kuflinn náði niður á gólf og var þrengdur um mittið með hvítum streng. Hann var með hettu og löngum víðum ermum. Á honum var ekkert skart af neinu tagi. Konurnar sögðu mér að ég skyldi ekki streitast á móti lengur, og ég gæti ekki forðast örlög mín. Þær sögðu mér hvílíka “yndislega” blessun ég hlyti, ef ég gæfi sjálfa mig “föður mínum Satan.”

Ég var flutt á samkomuna í lokuðum sendibíl, til þess að ég sæi ekki hvert við værum að fara. Þessi samkoma var ekki haldin í Satanskirkjunni á mótsstaðnum. Ég sá aðeins smávegis af útliti byggingarinnar þar sem ég var færð með hraði inn fyrir. Það voru engir gluggar á byggingunni og hún var inni í skógi. Þetta virtist vera einhverskonar geymsluskemma á afskekktu bóndabýli, og það voru strá á viðargólfinu.

Dauf lýsingin inni fyrir barst frá mörgum, stórum kertum sem flöktu meðfram veggjunum. Kertin voru þrjú og þrjú saman, svart, rautt og hvítt í hverjum hóp. Tvö til þrjúhundruð manns voru viðstaddir og sátu á látlausum viðarbekkjum og snéru fram í salinn. Fremst í salnum var viðarpallur með brennandi kyndlum allt um kring, á eins og hálfs metra háum stöngum. Það var grófhuggið steinaltari fyrir miðjum pallinum, sem leit út fyrir að hvíla á búkkum (seinna komst ég að því að svo var raunin, til þess að auðveldara væri að flytja það.) Steinninn var grár, með mörgum brúnum blettum, sem voru blóð hinna mörgu fórnarlamba, sem fórnað hafði verið á altarinu, bæði manna og dýra.

Þrátt fyrir að ég væri dauðuppgefin og hrædd, varð ég mjög spennt þegar ég fann fyrir hinum gífurlega, ósýnilega krafti í salnum og því hvernig samsvarandi kraftur hrærðist innra með mér. Reykelsi brunnu og fylltu salinn af reykjarstybbu. Ég held að einhverjum eiturlyfjum hafi verið blandað saman við, því mig fór fljótlega að svima. Það var algjör þögn í salnum, og verurnar í hettukuflunum horfðu eftirvæntingarfullar á autt sviðið. Ósýnilegt merki var gefið, og margar litlar handbjöllur byrjuðu að klingja, og stigu þá æðsti kven- og karlpresturinn hljóðlaust út úr skuggunum og upp á sviðið.

Æðstuprestarnir voru í eins kuflum. Kuflarnir voru báðir úr svörtu satínefni, í laginu eins og minn, skreyttir með rauðri líningu og þrengdir með gulllitaðri snúru um mittið. Þau voru berfætt eins og allir aðrir þarna inni. Hvort þeirra bar veldissprota sem var tæplega metri að lengd. Sproti æðsta kvenprestsins var úr gulli. Á efri endanum var öfugur kross með höggormi sem hlykkjaðist í kringum handfangið og upp á krossinn. Veldissproti æðsta karlprestsins var eins útlits en úr silfri. Veldissprotarnir voru bornir með lotningu. Prestarnir voru valdsmannslegir, og ég gerði mér grein fyrir því í fyrsta sinn, hversu gífurlegt vald þau höfðu, og ég öfundaði þau.

Það voru margir vopnaðir verðir á samkomunni, bæði inni og fyrir utan bygginguna. Þetta var fyrsta alvöru dulspekimótið sem ég var viðstödd. Allt hitt hafði bara verið leikaraskapur og til sýningar, aðeins plat.

Að loknum setningarorðum fóru verðirnir tveir með mig fram fyrir altarið. Ég og öll hin vorum kynnt fyrir söfnuðinum sem nýir, “mjög áhugasamir“ meðlimir. Æðsti presturinn beindi fyrst athygli sinni að mér. Hann sagði, “Bræður og systur Satans, við færum ykkur þetta barn, sem kallað er Systir Hugrekki (það var nýja nafnið mitt). Við færum ykkur hana, vegna þess að hún hefur óskað eftir því að verða ein af okkur, og við segjum við drottnara okkar, guð og meistara, drottnara alheimsins, og einnig eyðanda, Satan; þetta barn, Systir Hugrekki, gefum við þér til að ákveða hvað þú vilt að hún verði. Við höfum heitið henni blessunum þínum eins og þú hefur gefið okkur leyfi til.”

Mér var síðan réttur hnífur sem ég átti að skera fingur minn með, en ég neitaði að gera það. Samstundis barði einn af vörðunum mig harkalega í bakið með svipu, svo ég riðaði af sársauka, en ég var ákveðin í að beygja mig ekki fyrir þeim. Með smá handahreyfingu gaf æðsti kvenpresturinn verðinum til kynna að hætta að lemja mig. Hún sagði í miklum fyrirlitningartón að það væri til miklu áhrifaríkari leið til að sýna mér fram á villu mína. Ég fylgdist forviða með þegar hún og æðsti presturinn tóku sér stöðu sitt hvoru megin við stóran fimmhyrning (fimm arma stjörnu) sem teiknaður var á gólfið á miðju sviðinu. Fimmhyrningurinn var teiknaður inn í hring, og svart kerti var yst á hverjum armi stjörnunnar. Með örlítilli handahreyfingu kveikti æðsti kvenpresturinn á öllum kertunum í einu, án þess að koma við neitt þeirra. Þá byrjaði hún á töfraþulu, sem æðsti presturinn þuldi með henni. Áhorfendurnir þuldu einnig með þeim og hringlað var í litlu bjöllunum.

Skyndilega var fimmhyrningurinn á kafi í reyk og blindandi ljósum. Salurinn fylltist samstundis óþef eins og af brennisteini. Stór, illur andi (djöfull) líkamnaðist í miðjum hringnum, logar voru allt í kringum hann. Hann var risavaxinn, um tveir og hálfur metri á hæð. Hann hvessti augun ógnandi á mig, og óð fram og aftur. Æðsti kvenpresturinn (Grace) snéri sér að mér og sagði að ef ég hlýddi ekki og skrifaði undir samninginn, þá yrði ég gefin þessum djöfli á vald, og hann myndi kvelja mig og drepa að lokum. Þetta var nóg fyrir mig! Ég hafði aldrei fundið fyrir þvílíkum ótta, en á sama tíma girntist ég kraftinn sem ég hafði séð hjá Grace. Ég var ákveðin í að verða eins voldug og hún, til þess að ég gæti hefnt mín á þessu fólki vegna þess sem það hafði gert mér.

Þegar ég hafði gefið merki um að ég ætlaði að skrifa undir samninginn, stigu tvær konur fram og færðu mig í svartan kufl yfir þann hvíta. Sá svarti var úr bómullarefni og með sama sniði og sá hvíti. Svart var tákn þess að ég væri ekki lengur nýliði. Ég tók hnífinn svo sem mér var boðið og skar djúpt í fingur mér. Síðan dýfði ég fjaðrapenna í blóð mitt og undirritaði samninginn með nafni mínu og staðhæfði að ég gæfi Satan sjálfa mig, bæði líkama, anda og sál..

Um leið og ég hafði undirritaði samninginn var ég hrifin af einhverskonar raforku frá toppi til táar. Hún var svo öflug að ég hentist í gólfið. Meðan ég lá á gólfinu og reyndi að jafna mig, tók ég eftir að Grace fór með aðra töfraþulu. Ég staulaðist á fætur og uppgötvaði að hún hafði kallað fram annan illan anda. Sá líkamnaðist þar sem ég stóð og sagði mér að hann ætlaði að búa í mér. Hann teygði höndina fram og greip harkalega um axlir mér áður en ég gat sagt nokkuð. Samstundis engdist ég um af kvölum, brennandi hiti fór um líkama minn, og ég fann aftur sterkan brennisteinsfnyk. Í miðri kvöl minni leið yfir mig, og ég vissi ekki af mér fyrr en ég var sett inn í sendibílinn og keyrð aftur á mótssvæðið. Þá var ég svo uppgefin og með svo mikinn svima sökum svefnleysis, barsmíða, matar-og vatnsleysis, að ég gerði mér ekki fyllilega ljósa þýðingu þess sem var að gerast.

Ég dvaldist í búðunum í viku eftir þetta, til þess að sem flestir sýnilegir áverkar mínir myndu gróa. Þegar ég fór heim fannst mér ég vera ein af öflugustu persónum á jörðinni. Ég vissi að ég hafði vald sem var handan ímyndunarafls alls þorra fólks. Ég hélt að ekkert og enginn gæti eyðilagt mig.

Þvílík blekking!

4. kafli.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

3. kafli af 20 · 18 mín. eftirBræðralagið