Tuttugasti kafli
Skilgreiningar
Rebekka segir frá:
Kannski væri gott að skilgreina algengustu heiti eða fyrirbæri sem tengjast dulspeki. Þessi listi gæti verið mjög langur, en við höfum ákveðið að takmarka hann og skilgreina aðeins algengustu hugtökin sem kristið fólk gæti rekist á.
Þjónustuhlutir
Þetta eru hlutir sem illir andar tengja sig við. Allir hlutir, sem eru notaðir við að tilbiðja eða í þjónustu við Satan, eru lögleg jörð, ef svo má segja, fyrir illa anda. Með öðrum orðum, illir andar hafa rétt til þess að tengjast eða nota slíka hluti. Við skulum skoða nokkur ritningarvers sem fjalla um þetta:
“Skurðlíkneski guða þeirra skalt þú brenna í eldi. Þú skalt eigi girnast silfrið og gullið, sem á þeim er, né taka það handa þér, svo að það verði þér eigi að tálsnöru, því að slíkt er andstyggilegt fyrir Drottni Guði þínum. Og eigi skalt þú færa andstyggilegan hlut inn í hús þitt, svo að þú fallir ekki í sama bannið, sem hann er í. Þú skalt hafa megnan viðbjóð og andstyggð á því, því að það er bannfærður hlutur." 5. Mósebók 7:25-26
"Hvað segi ég þá? Að kjöt fórnað skurðgoðum sé nokkuð? Eða skurðgoð sé nokkuð? Nei, heldur að það sem heiðingjarnir blóta, það blóta þeir illum öndum, en ekki Guði. En ég vil ekki, að þér hafið samfélag við illa anda." 1. Korintubréf 10:19-20
Þessi tvö ritningarvers sýna að skurðgoð tengjast illum öndum. Versið í 5. Mósebók sýnir vel að allir slíkir hlutir, sem eru notaðir í þjónustu við Satan, eru andstyggilegir í augum Drottins, meira að segja gullið og silfrið má ekki nota - það verður að eyða því öllu.
Guð hefur tilgang með öllum tilskipunum sínum. Hann vildi ekki að Ísraelsmenn færu með slíka “óhreina, bölvaða” hluti heim til sín, vegna þeirra áhrifa sem þeir mundu hafa á þá. Guð varaði þá við því, að þeir yrðu sjálfir óhreinir og þar með bölvaðir. Af hverju? Vegna þeirra öflugu áhrifa sem stafa frá illu öndunum og gætu orðið til þess að þeir færu sjálfir að tilbiðja illa anda.
Það kemur aftur og aftur fram í ritningunum, hve Guði er mikil alvara varðandi þessa hluti sem notaðir voru í þjónustu við Satan. Lesið söguna af Akan í 7. kaflanum í Jósúabók. Guð skipaði Ísraelsmönnum að taka ekki herfang í borginni Jeríkó. Öll Jeríkóborg var morandi í Satansdýrkun. En Akan tók með sér hluta af herfanginu úr borginni. Guð sagði Jósúa:
“Ísrael hefir syndgað, þeir hafa rofið sáttmála minn, þann er égbauð þeim að halda. Þeir hafa tekið af hinu bannfærða, þeir hafastolið, þeir hafa leynt því og lagt það hjá sínum munum."Jósúa 7:11
Afleiðingarnar af gjörðum Akans urðu þær að allur her Ísraels var sigraður í næstu orrustu. Þetta er mjög alvarleg aðvörun fyrir okkur. Ef við hreinsum ekki til í híbýlum okkar, eins og í lífi okkar almennt, þá verðum við sigruð í hvert sinn sem við reynum að berjast gegn Satan.
Algengir þjónustuhlutir eru meðal annars: allir hlutir tengdir dulspekikukli, allar rokkhljómplötur eða geisladiskar, kassettur, plaggöt, bolir o.s.frv., allir hlutir sem tengjast dulspekilegum hlutverkaleikjum öll listaverk tengd austrænum trúarbrögðum, eins og t.d. litlu stytturnar af gyðjum og goðum sem oft eru keyptar sem minjagripir á ferðalögum, öll talnabönd eða hlutir sem notaðir eru í kaþólskum sið, allt sem tengist iðkun frímúrarareglunnar, öll list eða kassettur sem tengjast dulhyggju eða heiðnum trúarbrögðum, og þannig út í það óendanlega - listinn er því næst endalaus. Allt slíkt efni verður að eyðileggja. Ég held að Efeseusmenn hafi gefið okkur gott fordæmi í Postulasögunni:
“Þetta varð kunnugt öllum Efesusbúum, bæði Gyðingum og Grikkjum, og ótta sló á þá alla, og nafn Drottins Jesú varð miklað. Margir þeirra, sem trú höfðu tekið, komu, gjörðu játningu og sögðu frá athæfi sínu. Og allmargir er farið höfðu með kukl, komu með bækur sínar og brenndu þær að öllum ásjáandi. Þær voru samtals virtar á fimmtíu þúsundir silfurpeninga." Postulasagan 19:17-19
Það er einnig til önnur tegund af þjónustuhlutum. Þjónar Satans geta sært upp illa anda og fest þá við aðra hluti en þá, sem tengdir eru dulspekiiðkunum, og síðan geta þeir notað þann hlut sem sérstaka gjöf til einhvers, og þar með eru þeir búnir að koma illum anda beint inn á heimili hans, án þess að hann viti af því. Hlutverk þessara djöfla er að koma af stað hjónaerjum, illindum á meðal fjölskyldumeðlima, veikindum, þunglyndi, erfiðleikum við að biðja og lesa Biblíuna, og svo má lengi telja. Þessa hluti þarf vanalega ekki að eyðileggja. Að smyrja hlutinn með olíu og bæn til Drottins um að hann helgi og hreinsi hlutinn, er vanalega nægjanlegt. Þetta er samhljóða þeim reglum sem Guð gaf Móse í 2. Mósebók 40:9-:
“Þá skalt þú taka smurningarolíuna og smyrja búðina og allt, sem í henni er, og vígja hana með öllum áhöldum hennar, svo að hún sé heilög. Og þú skalt smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, og þú skalt vígja altarið og skal altarið þá vera háheilagt.”
"Ský og vindur, og þó engin rigning - svo er sá, sem hrósar sér af gjafmildi, en gefur þó ekkert." Orðskviðirnir 25:14
Kristið fólk verður að vera mjög vakandi og gætið, ef það þiggur gjafir frá ókunnugum eða einhverjum sem það þekkir lítið, því það veit ekki hvar gefendurnir standa í Drottni. Á þessu sviði verðum við að vera næm á handleiðslu Drottins.
Þjónustuandar eða spásagnarandar
“Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi, eða töframaður eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drottinn Guð þinn þá burt undan þér. 5. Mósebók 18:10-11
Spásagnaandi er illur andi sem norn hefur náin samskipti við. Slíkir illir andar eru notaðir á marga vegu. Á okkar tímum eru spásagnaandar einkum notaðir til njósna og til upplýsingaöflunar ýmiskonar. Til dæmis getur norn notið aðstoðar þeirra í tengslum við dýr. Í þannig tilfelli er illa andanum komið fyrir í dýrinu, og getur nornin þá, með því að hafa samband við andann, bæði stjórnað dýrinu og séð og heyrt allt sem dýrið sér og heyrir. Einnig getur nornin farið úr líkama sínum og farið í andalíkamanum í dýrið og stjórnað því eftir eigin vild. Dulspekiiðkendur mynda oft mjög náin tengsl við dýr eða fugl sem er notað á þennan hátt. Gamlar sögur segja að nornir noti svarta ketti. Þetta er lygi sem þjónar Satans hafa dreift til þess að blekkja fólk. Nornir geta og nota iðulega ketti í slíkum tilgangi, en þær kjósa að nota skjannahvíta ketti, af því að hvítt stendur fyrir hreinleika.
Atvik varðandi spásagnaanda eða þjónustuanda átti sér stað á læknastofunni minni nýverið. Ég er mikill dýravinur. Ég á tvo ketti, sem elska að ferðast í bílnum mínum, og vanalega tek ég annan eða báða með mér í vinnunna á daginn. Venjulega lokum við þá inni þar sem þeir komast ekki nálægt sjúklingunum. Einn af síðustu sjúklingunum mínum, þetta tiltekna kvöld, var mjög voldugur seiðkarl. Ég held að hann hafi ekki, á þeirri stundu, haft hugmynd um að ég vissi hver hann væri í raun og veru.
Einhvern veginn slapp Jósúa, kötturinn minn, út þetta kvöldið og kom inn í herbergið þar sem sjúklingurinn var. Ég greip hann áður en sjúklingurinn hafði tækifæri til að snerta hann, og sagði:
“Afsakaðu, Jósúa hefur einhvern veginn sloppið, ég vona að þér sé ekki illa við ketti?”
“Nei, alls ekki, við eigum meira að segja kött sjálf, sem okkur þykir mjög vænt um.”
Þegar ég bar Jósúa út úr herberginu, opinberaði Drottinn mér að ég hefði verið of sein. Sjúklingnum hafði tekist að setja í hann þjónustuanda. Ein sekúnda, það þurfti ekki meira!
Eftir að allir sjúklingarnir voru farnir, var ég að tala við tvær vinkonur inni á einkastofunni minni. Breytingarnar á Jósúa voru hreint og beint merkilegar. Vanalega er hann mjög rólegur og hljóður köttur. En þar sem við sátum og töluðum saman, þá ráfaði hann viðstöðulaust á milli okkar og horfði á okkur til skiptis meðan við töluðum. Ég útskýrði fyrir þeim, hvað hafði gerst. Sjúklingurinn var að nota augu og eyru kattarins til að fylgjast með öllu, sem við sögðum og gerðum. Ég tók Jósúa upp og leit beint í augun á honum, sem voru óvenju glansandi, og sagði:
“Hlustaðu á mig, Janus (nafn sjúklingsins). Leiðtogi þinn, Satan, er lygari. Hann er ekki sterkari en Jesús. Jesús Kristur er Guð, og hann dó á krossinum fyrir þig, eins og mig. Jesús er sá, sem þú ættir að vera að þjóna, ekki Satan. Nú ætla ég að sanna fyrir þér, að það sem ég er að segja er sannleikurinn. Við ætlum að kasta þjónustuandanum þínum út af þessu dýri með krafti Jesú Krists. Ef Satan er eins sterkur og hann segist vera, þá ætti okkur ekki að takast þetta.”
Síðan tók ég olíu og smurði Jósúa, og við sameinuðumst í bæn og báðum Drottin Jesú Krist að kasta illa andanum út. Aftur urðu snögg umskipti. Glansinn hvarf úr augunum, hann hætti að æða um, og með djúpu andvarpi lagðist hann niður og sofnaði fljótt.
Ef þú átt gæludýr, vertu þá alltaf vakandi yfir þeim möguleika að þau gætu verið haldin þjónustuanda, en vertu viss um að deila fagnaðarerindinu í nokkrum orðum áður en þú kastar andanum út, eða biður Drottin um að fjarlægja andann, ef það er mannsandi. Vanalega getur þú ekki vitað, hvort þú ert að eiga við mannsanda eða illan anda, og hvenær sem þú getur, þá vilt þú að Satanistinn, sem á í hlut, heyri fagnaðarerindið. Við biðjum daglega um sérstaka vernd fyrir dýrin okkar.
Það er vanalega auðvelt að hreinsa út af dýrum, vegna þess að þau syndga ekki og þess vegna hefur Satan engan rétt á þeim á sama hátt og á okkur mönnunum. Hins vegar hefur bölvun syndarinnar náð til þeirra. Ritningarnar tala skýrt um þetta.
“Vér vitum, að öll sköpunin stynur líka og hefur fæðingarhríðir allt til þessa." Rómverjabréfið 8:22
Að lokum verður öll sköpun, þar með dýrin, endurnýjuð fyrir Jesú Krist, til þess að fjarlægja bölvun syndarinnar.
"Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyllingu sína búa og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum, með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi." Kólossusbréfið 1:19-20
Á þeim tímum sem Biblían er skrifuð, virðist hugtakið þjónustuandi fremur eiga við norn í samvinnu við illan anda. Lang athyglisverðasta dæmið er að finna í 1. Samúelsbók 28. Sál var kominn á enda ferils síns. Hann var kominn svo langt í uppreisn sinni gegn Drottni, að hann ákvað að leita uppi konu, sem hefði þjónustuanda til að reyna að komast að því hvernig orrustan færi daginn eftir. Það athyglisverðasta í þessari sögu er sú staðreynd að Sál bað konuna um að nota illu andana sína til að vekja upp anda Samúels spámanns. Auðsjáanlega hikaði konan ekki við að gera það, og hefur búist við því að illu andarnir hennar kæmu fram og líktu eftir Samúel. En Guð sendi Samúel! Í versi 12 í kafla 28 segir að þegar konan sá að hinn raunverulegi Samúel var þarna kominn í staðinn fyrir illa andann, þá hljóðaði hún upp yfir sig og varð skelfingu lostin.
Hinir mörgu miðilsfundir, sem haldnir eru til að ná sambandi við framliðna, eru allir blekkingin ein. Þessar nornir geta ekki í alvöru náð sambandi við hina dauðu. Eftirfarandi ritningarvers sýna okkur að þær nota bara illa anda sem líkja eftir látnu persónunni. Satan getur drepið fólk líkamlega, en hann getur ekki stjórnað sálum þeirra eða anda eftir dauðann. Jesús sagði:
“Það segi ég yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða og fá að því búnu ekki meira að gjört. Ég skal sýna yður, hvern þér eigið að hræðast. Hræðist þann, er hefur vald til að deyða og að því búnu varpa í helvíti. Já, ég segi yður, hræðist hann." Lúkas 12:4-5
"Ótti Drottins er upphaf viskunnar og að þekkja Hinn heilaga eru hyggindi." Orðskviðirnir 9:10
Drottinn segir okkur skýrt og skorinort að óttast ekki þann líkamlega dauða sem Satan getur valdið okkur, en hræðast frekar Guð sem hefur vald til að varpa sál og anda í helvíti eftir dauðann. Ég trúi því að þessi ritningarvers og önnur sýni, svo að ekki verður um villst, að Satan og djöflar hans hafa enga stjórn á sál og anda fólks, þegar það er dáið. Annað ritningarvers, sem tengist þessu að hluta til er að finna í Opinberunarbókinni.
[Jesús talar] “Vertu ekki hræddur, ég er hinn fyrsti og hinn síðasti og hinn lifandi. Ég dó, en sjá, lifandi er ég um aldir alda, og ég hef lykla dauðans og Heljar." Opinberunarbókin 1:18
Álögur, galdraseiðir, galdrar & bölbænir
Allt hefur þetta sama tilganginn - það er, að særa fram illan anda eða illa anda, til þess að láta þá gera eitthvað ákveðið. Algengt er að galdraseiðir séu í ljóðrænu formi, þeir eru mjög margvíslegir og hafa gengið frá einni kynslóðinni til annarrar. Oftast eru þeir talaðir út upphátt (munið, illir andar geta ekki lesið hugi manna), en stundum talar andi nornarinnar galdraseiðinn inn í andaheiminn og þá heyrist það ekki með líkamlegum eyrum.
Hugtakið að “leggja álögur eða bölvun“ á einhvern, vísar til þess gjörnings að kalla upp illan anda, sem síðan er sendur af stað til einhverrar persónu til þess að hafa ákveðin áhrif eða valda henni skaða á einhvern hátt. Allar álögur o.s.frv. eru framkvæmdar af illum öndum, jafnvel svo kallaðar “góðar” álögur, eins og t.d. þær sem eiga að örva ást einhvers. Annað hugtak, sem er notað, er að vera “bewitched,” (töfraður eða heillaður), það er þegar einhver er undir áhrifum eða stjórn ills anda sem sendur er af norn.
Valdamestu nornirnar þurfa ekki að fara með langa og flókna galdraseiði. Þær eða þeir hafa einfaldlega bein samskipti við illu andana í andaheiminum eða í gegnum “Leiðsöguandann sinn.”
Leiðsöguandi
Leiðsöguandi er yfirleitt valdamikill illur andi sem norn biður sérstaklega að dvelja í sér, í þeim tilgangi að fá allskonar dulræna hæfileika og mátt, og einnig til að auka samskipti við aðra illa anda. Mann-Chan var leiðsöguandi Elaine. Hann stjórnaði öllu hennar lífi. Hann gaf henni alla þá “hæfileika”, sem áður er lýst í bókinni.
Skurðgoð, töfragripir, verndargripir
Þessi þrjú hugtök þýða öll eiginlega það sama. Þau vísa öll til einhverra hluta sem fólk ber oftast utan á sér eða sem settir er fyrir ofan dyr á heimilum þess og eiga að vernda og / eða færa eigandanum "gæfu" á einhvern hátt.
Verndargripir og skurðgoð eru oft búin til, til þess að vernda persónu fyrir einhverjum sérstökum óvini, eins og t.d. annarri norn. Í þeim tilfellum er eitthvað frá óvininum (vanalega hár) sett inn í gripinn. Það er mjög mismunandi hvernig þessu er háttað, en valdið á bak við er alltaf það sama, Andavald! Drottinn hefur enga slíka hluti! Vald kristinna manna gefast aðeins fyrir Drottin vorn Jesú Krist og verk hans á krossinum. Hver einasti kristinn maður, sem tekur við eða notar slíka hluti, er að nota illa anda. Það er stórfurðulegt hvað margir kristnir einstaklingar, sem taka við slíkum hlutum, eins og til dæmis krossum eða jafnvel Biblíum, sem eiga að vernda á sama hátt og verndar- og töfragripir eiga að gera. Þetta er í algjörri andstöðu við Orð Guðs.
Kennimörk
Kennimörk hafa mismunandi nöfn á mismunandi stöðum í heiminum. Kennimark er í rauninni auðkennandi tákn. Þegar norn vill senda illan anda gegn einhverri persónu, þá veit illi andinn ekki sjálfkrafa hver sú persóna er. Fljótasta og árangursríkasta aðferðin er að leggja fyrir illa andann einhvern hlut sem tengist persónunni á einhvern hátt, til dæmis hár, afklippur af nöglum viðkomandi, o.s.frv. Stundum eru föt notuð, en þau eru ekki eins áhrifarík og hlutar af manneskjunni sjálfri. Þessi kennimörk þjóna þeim tilgangi að auðkenna manneskju á sama hátt og fingraför gera.
Við höfum oft og mörgum sinnum lent í vandræðum þegar Satanistar hafa reynt að drepa gæludýrin okkar með göldrum. Í þeim tilfellum höfum við tekið eftir því að veiðihárin hafa verið klippt af köttum okkar og hundum, en bara öðrum megin. Við höfum misst sum þeirra, þegar illir andar hafa gert þau veik, en við höldum áfram að vera vel vakandi yfir þessum möguleika og biðjum fyrir þeim og smyrjum með olíu og biðjum Drottin um að setja sérstaka hlíf yfir þau. Veiðihárin, sem tekin voru af dýrunum okkar, voru þá orðin kennimörk fyrir illu andana, til þess að þeir gætu fundið þau.
Nornasteinar
Þetta eru oftast einhvers konar onyx (afbrigði af kvarsi, notað í skartgripi), en geta verið úr hvaða krystal sem er, eða gimsteini. Tilgangurinn með nornasteinum eru samskipti. Þeir eru mjög oft bornir sem skartgripir. Sérstakir seiðir eru þuldir yfir þessum steinum ásamt því að þeir eru nuddaðir á ýmsa vegu, o.s.frv. til að kalla fram nauðsynlega illa anda til að hafa samband við aðra persónu. Oft veldur andinn því að steinninn lýsir, til að gefa nærveru sína til kynna.
Öfl og kraftar
Hvítigaldur inniheldur fullt af fyrirheitum og skírskotunum um krafta og um hin ýmsu öfl. Lítum á klausu úr bók um hvítagaldur, sem heitir Ritual White Magic Tape Instruction Book, eftir Dick Stephens.
“Töfrar (magic) vinna í samhljómi við náttúrulögmálin og taka þá krafta í þjónustu sína. Meiningin er að þeir geri okkur að betri og vitrari manneskjum og víkki vitund okkar. Endalegur tilgangur töfra er að iðkandinn skapi sinn eigin veruleika. Og þú ert um það bil að opna dyrnar að þeim stórkostlega krafti sem neyðir þig nákvæmlega til þess.” bls. 3.
Margar aðrar lýsingar á þessu fyrirbæri eru til, en lokaniðurstaða allra lýsinga á hvítagaldri eru, “að sameina persónuna öflum alheimsins.” En það sem höfundar þessara rita tala auðvitað ekki um, er sú staðreynd að þessi svokölluðu öfl eru djöflar, og “útvíkkun meðvitundarinnar” eða “hærri vitundarstig” er í rauninni það að komast í snertingu við andaheiminn.
Fyrir óupplýsta lesendur virðist þetta allt svo gott og blessað, en varið ykkur, þetta eru galdrar (witchcraft), og þá er það Guði andstyggð.
Að lokum
Við Elaine biðjum í einlægni Drottinn drottna og Konung konunga, okkar elskaða Jesú Krist, að opna andlegan skilning þinn á öllu því sem við höfum reynt að koma á framfæri í þessari bók. Munið, að það skiptir engu máli hvað kemur fyrir þig í orrustu, eða hvaða afleiðingar það hefur fyrir þig að fara inn í andlegt stríð, jafnvel þó að þú örvæntir um líf þitt; þá munt þú alltaf vera í miðjum kærleika og í vörslu Guðs vors. Sálmur 116:15 sannfærir okkur um það: “Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans.” Guð verndar líf þitt með afbrýði.
Að lokum viljum við tileinka þessa bók, af öllum þeim kærleika sem hjarta okkar getur borið, þeim sem við elskum meira en allt annað: Guði Föður, Guðs Syni, og Guðs Heilögum anda. Megi allur kærleikur og dýrð og lof og heiður og þakklæti verða gefið honum að eilífu! Amen.
Komdu skjótt, Drottinn Jesús!