Sautjándi kafli
Eyðilegging á kristnum söfnuðum
Elaine segir frá:
Á árum mínum í Bræðralaginu var ég vandlega þjálfuð, og þjálfaði ég síðar aðra, í því að laumast inn í kristna söfnuði til að eyðileggja þá. Markmið Satans er að gera hverja einustu kristna kirkju líka þeirri í Laódíkeu, sem Drottinn Jesús Kristur lýsir í Opinberunarbókinni 3:15-16:
“Ég þekki verkin þín, að þú ert hvorki kaldur né heitur. Betur að þú værir kaldur eða heitur. En af því að þú ert hálfvolgur og hvorki heitur né kaldur, mun ég skyrpa þér út af munni mínum." Opinberunarbókin 3:15-16
Kirkjur fullar af óvirku fólki, sem hefur ekki fyrir því að lesa eða rannsaka ritningarnar, sem “hefur yfirskin guðhræðslunnar en hafna krafti trúarinnar” eins og svo vel er lýst í öðru Tímóteusarbréfi 3:5, eru ekki ógnun í augum Satans.
Okkur var kennd árásaráætlun í átta grunnþrepum sem hægt var að aðlaga að hvaða kirkjudeild sem við vorum send til. Sú staðreynd, að flestallir hæstsettu Satanistarnir sóttu kristnar kirkjur reglulega, ætti ekki að koma neinum á óvart. Það er að segja, þeim sem gefa sér tíma til þess að lesa Orð Guðs. Við, hinir kristnu, erum eindregið vöruð við því að árásir Satans komi innan frá, úr kirkjunum sjálfum - sérstaklega á velmegunartímum.
Þegar Páll var að kveðja öldungana í Efesus, þá gaf hann þeim þessa viðvörun:
“Nú veit ég, að þér munuð ekki framar sjá mig, engir þér, sem ég hef komið til og boðað ríkið. Þess vegna vitna ég fyrir yður nú í dag, að ekki er mig um að saka, þótt einhver glatist, því að ég hef boðað yður allt Guðs ráð og ekkert dregið undan. Hafið gát á sjálfum yður og allri hjörðinni, sem heilagur andi fól yður til umsjónar. Verið hirðar Guðs kirkju, sem hann hefur unnið sér með sínu eigin blóði. Ég veit, að skæðir vargar munu koma inn á yður, þegar ég er farinn, og eigi þyrma hjörðinni. Og úr hópi sjálfra yðar munu koma fram menn, sem flytja rangsnúna kenningu til að tæla lærisveinana á eftir sér. Vakið því og verið þess minnugir, að ég áminnti stöðugt sérhvern yðar með tárum dag og nótt í þrjú ár." Postulasagan 20:25-31
"Því að slíkir menn eru falspostular, svikulir verkamenn, er taka á sig mynd postula Krists. Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna. Afdrif þeirra munu verða samkvæmt verkum þeirra." 2. Korintubréf 11:13-15
"Því að inn hafa læðst nokkrir menn, sem fyrir löngu var ritað um að þessi dómur biði þeirra. Þeir eru óguðlegir menn, sem misnota náð Guðs vors til taumleysis og afneita vorum einasta lávarði og Drottni, Jesú Kristi." Júdasarbréf 4
Þessi ritningarvers sýna ljóslega að árásir Satans á kirkjuna koma innan frá. Við erum ekki að reyna að hefja neinar nornaveiðar, heldur er þrá okkar sú að sýna þér þær meginaðferðir sem Satan notar, til þess að þú getir stöðvað allar slíkar athafnir í þinni eigin kirkju. Hver einstaklingur fyrir sig ber ábyrgð á því að vera athugull og vakandi og að skoða Orð Guðs (Biblíuna) með bæn, og hlusta vandlega á hvað kennt er innan kirkjunnar sem hann er í. Öllum kenningum, sem stangast á við orð Guðs, verður að standa í gegn, sama hver á í hlut. En það verður að gera í kærleika, ljúflega en ákveðið. Páll gaf Tímóteusi nokkur mjög góð ráð í þessu sambandi:
“Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega, heldur áminn hann sem föður, yngri menn sem bræður, aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur í öllum hreinleika." 1.Tímóteusarbréf 5:1-2
Gleymið aldrei, að Jesús elskar þetta fólk og dó fyrir það, á sama hátt og hann dó fyrir mig og þig. Tilgangur þinn er ekki að afhjúpa það, heldur að ná stjórn á þeim og fá þau til að frelsast.
Ekki gleyma reynslu minni. Fólkið í litlu kirkjunni, sem ég var send til þess að eyðileggja, vissi að ég var norn, en það afhjúpaði mig ekki opinberlega. Ef þau hefðu gert það, þá hefði ég samstundis verið drepin. Í stað þess, sýndu þau mér kærleika, náðu stjórn á mér, til þess að ég gæti ekki komið með niðurrífandi kenningar, og þau báðu fyrir mér þangað til ég frelsaðist að lokum.
Hér á eftir eru þær átta grunn-árásar-aðferðir, sem Satan kennir þjónum sínum til að eyðileggja kristnar kirkjur.
#1) Trúarjátning Fyrst af öllu þá verður Satanistinn að gera “trúarjátningu.” Hann eða hún verður að þykjast hafa frelsast, í þeim tilgangi að ná trausti fólksins í kirkjunni. Í kirkjum þar sem er farið fram til altaris, fer persónan fram, vanalega með tár í augunum og þykist “frelsast.” Ef tiltekin kirkja er náðargjafakirkja, sem leggur mikið upp úr þeirri gjöf að tala tungum, þá talar Satanistinn tungum. Það er ekkert vandamál, illir andar geta mjög auðveldlega talað tungum. Munið eftir því, að þegar Mann-Chan dvaldi í mér, þá gat ég ávarpað alla erlendu hefðarmennina reibrennandi á þeirra eigin tungumáli. Þess vegna leggur Drottinn svo mikla áherslu á útlistun tungutals.
“Hvernig er það þá, bræður? Þegar þér komið saman, þá hefur hver sitt fram að færa: Sálm, kenningu, opinberun, tungutal, útlistun. Allt skal miða til uppbyggingar. Séu einhverjir, sem tala tungum, mega þeir vera tveir eða í mesta lagi þrír, hver á eftir öðrum, og einn útlisti. En ef ekki er neinn til að útlista, þá þegi sá á
safnaðarsamkomunni, sem talar tungum, en tali við sjálfan sig og við Guð." 1. Korintubréf 14:26-28
Því miður verður mikill skaði, vegna þess að kirkjur fara ekki eftir þessum einföldu aðvörunum. Það er hefð í náðargjafakirkjum að margt fólk biðji og tali tungum samtímis, án þess að útleggja tungutalið, bæði á samkomum og bænastundum. Satanistar notfæra sér þetta mjög mikið. Á þeim tíma, sem ég þjónaði Satan, talaði ég tungum reglulega á samkomum og bænastundum, og það gerðu einnig hinir Satanistarnir sem ég vann með. Enginn útlagði tungutalið. Við vorum að bölva kirkjunni, prestinum, safnaðarmeðlimunum og Guði! Og enginn vissi það! Við skorum á kirkjur alls staðar, að fara eftir ritningunum. Þegar þið komið saman sem hópur, útleggið þá tungutalið eins og ritningarnar mæla með. Ef þið gerið það, þá hafið þið tekið stórt stökk í því að verjast árásum Satans.
Flestallar kirkjur líta framhjá þremur öðrum ritningarversum:
“Þér elskaðir, trúið ekki sérhverjum anda, heldur reynið andana, hvort þeir séu frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn. Af þessu getið þér þekkt anda Guðs: Sérhver andi, sem játar, að Jesús sé Kristur kominn í holdi, er frá Guði. En sérhver andi, sem ekki játar Jesú, er ekki frá Guði. Hann er andkristsins andi, sem þér hafið heyrt um að komi, og nú þegar er hann í heiminum." 1. Jóhannesarbréf 4:1-3
"Hann svaraði: „Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!` og ,Tíminn er í nánd!` Fylgið þeim ekki." Lúkas 21:8
"Ekki mun hver sá, sem við mig segir: ,Herra, herra,` ganga inn í himnaríki, heldur sá einn, er gjörir vilja föður míns, sem er á himnum. Margir munu segja við mig á þeim degi: ,Herra, herra, höfum vér ekki kennt í þínu nafni, rekið út illa anda í þínu nafni og gjört í þínu nafni mörg kraftaverk?` Þá mun ég votta þetta: ,Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn." Matteus 7:21-23
Þetta virðist vera það sem kristið fólk er hvað ráðvilltast yfir. Satanistar geta og þar af leiðandi nota nafn Jesú, þeir geta notað nafn Jesú í bæn, o.s.frv. Ritningarnar vitna um þetta í Lúkasi, og í Matteusi sýna þær fram á það. En prófið í 1. Jóhannesarbréfi 4. standast þeir ekki. Þeir geta ekki horft beint í augun á þér og sagt, “Jesús Kristur, sem er Guð og kom í holdi, dó á krossinum, reis upp á þriðja degi og situr nú við hægri hönd Guðs Föður, sá Jesús er Drottinn minn og Frelsari og Leiðtogi lífs míns.” Þeir geta sagt, “Jesús frelsaði mig.” En hvaða Jesú eru þeir að tala um? Jesús sagði sjálfur, að margir kæmu og héldu því fram að þeir væru hann. Þeir geta einnig lesið eða endurtekið trúarjátningar til Jesú Krists. Þeir geta lesið ritningarnar og þeir gera það. Ef þú spyrð þá, hvort Jesús Kristur, sem kom í holdi, sé frelsari þeirra, þá geta þeir logið og sagt “Já.” En þeir geta ekki, með eigin munni, sagt allt þetta hér að ofan. Guð gaf okkur próf til að nota, kæru systkini í Kristi. Förum eftir Guðs Orði.
#2) Byggja upp trúverðugleika Satanistar byggja upp trúverðugleika innan kristinna kirkna á margvíslegan hátt, allt eftir því hvaða kirkju er um að ræða. Þeir sækja kirkjuna reglulega. Það er hægt að treysta því að þeir séu alltaf reiðubúnir og viljugir til að hjálpa til á öllum sviðum. Þeir byggja ekki bara upp trúverðugleika á þennan hátt, heldur kynnast þeir einnig meðlimum kirkjunnar. Það tekur ekki langan tíma fyrir þá að finna út hver er raunverulega skuldbundinn Kristi og hver ekki.
Peningar eru annað stórt verkfæri. Ef kirkjan er stór og auðug þá gefa þeir reglulega, smám saman auka þeir upphæðina þar til þeir eru orðnir megin styrktaraðilar kirkjunnar fjárhagslega. Í litlum kirkjum, þar sem meðlimirnir eru aðallega fátækt fólk, eru þeir ekki að flagga miklu fjármagni, en hægt og örugglega hækka þeir framlögin þar til mikið af starfsemi kirkjunnar er orðið háð fjárframlögum þeirra. Auðvitað útvegar Bræðralagið þá peninga sem þeir gefa, og peningar tala! Því miður er þetta staðreynd, jafnvel í okkar kristnu kirkjum. Það er sjaldgæft að finna fátækt fólk í stjórn nokkurrar kirkju.
#3) Eyðileggja grundvöll bænarinnar
“Gjörið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Veriðþví árvakrir og staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum."Efesusbréfið 6:18
Eitt mikilvægasta markmið Satanista er að stöðva bænirnar í kirkjunum. Það eru svo mörg ritningarvers um bænir, að við gætum ekki komið með lista yfir þau öll. Sterk kirkja er bænakirkja. Bænir krefjast sjálfsaga, og því miður ver meirihlutinn af kristnu fólki litlum tíma til bæna. Leyfið mér að segja ykkur sanna sögu um það hvernig Satanistar eyðilögðu kraftinn í kirkjunni þar sem ég frelsaðist. Við Rebekka erum alveg eyðilagðar yfir því sem gerðist, en við fengum ekki leiðtoga kirkjunnar til þess að hlusta á okkur.
Stuttu eftir að ég varð fullkomlega frjáls, vorum við skelfingu lostnar yfir því að sjá æðsta prest stórrar og voldugrar Satanistareglu, sem var í sömu borg og heimakirkjan okkar, byrja að sækja kirkjuna okkar. Ég þekkti manninn og fjölskyldu hans persónulega þegar ég var Satanisti, og hann hótaði okkur Rebekku oftar en einu sinni. Innan tveggja ára hafði hann og samstarfsmenn hans gjörsamlega eyðilagt þessa yndislegu og kraftmiklu kirkju! Mörgum sinnum grátbáðum við prestinn og suma af öldungunum að stöðva það sem var að gerast innan kirkjunnar, en þeir vildu ekki hlusta á okkur. Við gátum ekki ásakað “Ragnar” um að vera Satanista, vegna þess að við höfðum engar sannanir. Það hefðu verið okkar orð gegn hans. En við reyndum að sýna prestinum og nokkrum öldunganna oftar en einu sinni að ávextirnir í lífi hans voru ekki samkvæmt ritningunum. Þetta er það, sem hann gerði.
Ragnar var mjög auðugur. Hann gekk í söfnuðinn rétt eftir að hann kom fyrst í kirkjuna. Hann sagðist vera vel grundvallaður og að hann þekkti vel ritningarnar, sem hann og gerði. Hann lagði fram stórar upphæðir í kirkjuna, sótti allar samkomur og tók þátt í öllu starfi innan kirkjunnar, þar með talið gekk hann í kórinn. Á þeim tíma hafði kirkjan geysilega öflugar bænasamkomur hvert miðvikudagskvöld. Í hverri viku sóttu 200-300 manns bænasamkomurnar og báðu saman eins og ein manneskja. Við höfum verið á svo öflugum bænasamkomum að kraftur Heilags anda bókstaflega hristi kirkjubygginguna. Þetta fólk tók í bænastrenginn af einhug og alvöru.
Þá, eins og ætla mætti, byrjaði kirkjan að vaxa mjög mikið. Meðlimum fjölgaði úr 300 manns upp í það að vera orðin yfir 1000 manna kirkja, á tæpu ári. Þetta er mjög hættulegur tími fyrir hvaða kirkju sem er. Presturinn og öldungarnir gátu ekki lengur þekkt alla meðlimina persónulega. Í stað þess að stofna systurkirkju til þess að halda fjöldanum í skefjum, bættu þeir við og kirkjan hélt áfram að vaxa hratt. Allir héldu að Drottinn væri að blessa þá ríkulega - og þannig var það. En margir af nýju meðlimunum voru Satanistar sem þóttust vera kristnir.
Innan sex mánaða eftir að Ragnar gekk til liðs við kirkjuna, steig hann fram og sagði að Guð hefði lagt á sig þunga byrði varðandi Bandaríkin. Hann sagði, að Guð vildi að karlmennirnir í kirkjunni kæmu saman einn eftirmiðdag í viku, klukkutíma í senn, til að biðja fyrir landinu okkar. Hann var tilbúinn til að leiða hópinn. Öllum fannst þetta yndislegt, og það var litið upp til Ragnars innan kirkjunnar. Innan nokkurra mánaða var hann gerður að öldungi, og skömmu síðar kosinn í framkvæmdastjórn.
Um það bil fjórum mánuðum eftir að hafa komið á fót “bæn fyrir Bandaríkjunum” hópnum, hóf hann næsta stig árásarinnar. Hann og konan hans, ásamt um það bil 20 kórmeðlimum, tilkynntu kórstjóranum það raunamædd að þau yrðu að hætta í kórnum vegna þess að þetta “tæki of mikinn tíma frá fjölskyldunni.” Þau lýstu því yfir að það væri of erfitt að mæta á bænastundirnar á miðvikudagskvöldum og fara síðan á kóræfingu eftir bænastundina. Þess þarf ekki að geta, að það tók ekki langan tíma fyrir kórstjórann að fara til öldunganna til þess að koma því til leiðar að hafa kóræfingarnar á þeim tíma sem bænasamkomurnar höfðu verið, og “auðvitað voru þeir með eigin bænastund fyrir æfinguna.” Öldungarnir samþykktu það, og þessir 20 meðlimir kórsins hættu við að hætta. Fyrsta árásin hafði heppnast. Vegna þess að kórinn var fjölmennur, var nú mjög stórt hlutfall kirkjumeðlima hvorki á bæn né að uppskera nokkuð vegna þessara öflugu bænastunda. Flestir af hinum kirkjumeðlimunum byrjuðu að spyrja sjálfa sig, hvort þessar bænasamkomur hefðu nokkuð verið svo mjög mikilvægar eftir allt saman.
Um það bil mánuði eftir sigurinn með kórinn, gerði Ragnar næstu atlögu á fundi með öldungunum og stjórninni. Ragnar sagði þeim að vegna þess hve meðlimum fjölgaði hratt, þá væri ekki nógu mikill tími til að kenna einstaklingum að vaxa í Guði, eða hvernig ætti að deila fagnaðarerindinu með öðrum. Hann sagði að Sunnudagaskólarnir önnuðu því einfaldlega ekki. Hann benti einnig á þá staðreynd að fólk þekktist ekki persónulega, eins og vanalegt var í litlu kirkjunum - allt saman rétt. En lausnin, sem hann kom með, var til þess gerð að stöðva stóra, samstillta bænahópinn og tvístra honum í marga litla “lærisveinahópa” þar sem hægt væri að hafa “einkakennslu” í því hvernig ætti að ”vaxa í fagnaðarerindinu”, og þar gæti fólkið kynnst betur. Presturinn, öldungarnir og stjórnarformenn kyngdu þessu hráu.
Bænasamkomurnar hættu, og litlir lærisveinahópar voru myndaðir í staðinn. Auðvitað stjórnaði Ragnar myndun hópanna. Fólkið sem hann valdi sem leiðtoga í hópunum, var að mestu leyti Satanistar. Bænamáttur kirkjunnar var eyðilagður!
Við Rebekka fórum grátandi til prestsins og nokkurra öldunganna, og reyndum að sýna þeim, út frá ritningunum, að þessar öflugu bænasamkomur væru grundvöllur kirkjunnar. Þeir vildu ekki hlusta á okkur. Við heyrðum sömu afsökunina frá þeim öllum, “Ragnar er sá fyrsti sem veit um nauðsyn þess að biðja, sjáið hvernig hann kom af stað "bæn fyrir Bandaríkjunum" hópnum.”
Margir af sterkustu kristnu einstaklingunum í kirkjunni byrjuðu að sækja önnur samfélög. Innan árs var kirkjan komin í svaðið. Presturinn missti móðinn og yfirgaf kirkjuna, og þeir meðlimir, sem voru eldri og vel grundvallaðir í trúnni, yfirgáfu hana einnig, kraftur kirkjunnar var eyðilagður.
Sérð þú, hvað þetta er auðvelt? Er þetta að gerast eða hefur þetta gerst innan þinnar eigin kirkju? Lausnin er ekki að yfirgefa kirkjuna, stattu og berstu gegn Satan. Komdu bæninni aftur inn í kirkjuna þína!
#4) Orðrómur Þegar grundvöllur bænarinnar í kirkjunni er eyðilagður, þá hafa Satanistarnir nánast frjálsar hendur til þess að aðhafast hvað sem þeim sýnist. Eitt af því auðveldasta, sem hægt er að nota, eru kjaftasögur. Slúður er eitt af megin verkfærum Satans. Mjög fátt fólk er nógu sterkt til bera ekki út orðróm sem það hefur heyrt. Satanistar geta auðveldlega eyðilagt mannorð prests eða sannkristins manns innan kirkjunnar með því að koma af stað orðrómi.
Við hvetjum alla kirkjuleiðtoga til þess að fara mjög varlega og fara aldrei einsamall heim til meðlims af gagnstæðu kyni, til þess að hjálpa eða leiðbeina þeim. Það er svo auðvelt að ásaka þig.
Jafnvel þó að þú hafir ekki gert neitt ósæmilegt eða rangt, hvernig er þá hægt að sanna það? Starfsferill margra presta hefur verið eyðilagður með slíkum gildrum sem lagðar hafa verið fyrir þá. Í 1.Þessalonikubréfi 5:22 stendur, “En forðist allt illt, í hvaða mynd, sem er.” Allir kristnir myndu vera í góðum málum ef, þeir færu vandlega eftir þessu ritningarversi.
#5) Að kenna og breyta kenningum Satanistar sækjast sérstaklega eftir kennarastöðum innan kirkjunnar. Þeir geta valdið gífurlegu tjóni í þeim stöðum. Veistu í raun og veru, hvar allir sunnudagaskólakennararnir standa í Drottni? Veistu í raun og veru, hvað þeir eru að kenna börnunum þínum? Eða hverjum sem er, ef farið er út í þá sálma. Ég var með sunnudagaskóla í stórri, Biblíutrúaðri náðargjafakirkju í heimabænum mínum í nokkur ár, og stjórnaði og kenndi barnakórnum, á sama tíma og ég þjónaði Satan. Hjarta mitt blæðir núna fyrir það, þegar ég hugsa um þau mörgu ungu líf, sem ég eyðilagði með því að leiða þau inn á braut Satanismans, gegnum sunnudagaskólann, og hversu ég sóaði tímanum fyrir fjölda annarra barna, með því að kenna þeim ekki hið sanna fagnaðarerindi um Jesú Krist.
Látið ekki leiða ykkur í villu. Fjölmargir þeirra, sem eru í þjónustu í stórum og auðugum kirkjum í landinu okkar, eru Satanistar. Áhrifamáttur þeirra er mikill, og þeir komast upp með það sem þeir gera, vegna þess að allsstaðar eru hinir kristnu of latir við að rannsaka sína eigin Biblíu til þess að athuga hvað þeir eru að segja!
Það er þrennt, sem Satanistar kenna aðallega:
(a) Bænin. Þeir gera bænina að mjög flóknu ferli. Þeir kenna oft, að það séu nokkur þrep sem hinn trúaði þurfi að fikra sig eftir, til þess að vera viss um að ná “réttu” sambandi við Guð, áður en þeir hafi nokkurn kraft til að biðja, eða jafnvel áður en Guð heyri í þeim. Þeir nota og umsnúa mörgum ritningarversum, til þess að þeirra eigin fölsku kenningar virðist réttar. Ótölulegur fjöldi fólks veigrar sér við að biðja, vegna þess að það hefur lært það að bænin sé svo erfitt og flókið fyrirbrigði. Við hvetjum alla til að lesa Hebreabréfið 4:14-16:
“Er vér þá höfum mikinn æðsta prest, sem farið hefur í gegnum himnana, Jesú Guðs son, skulum vér halda fast við játninguna. Ekki höfum vér þann æðsta prest, er eigi geti séð aumur á veikleika vorum, heldur þann, sem freistað var á allan hátt eins og vor, en án syndar. Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma." Hebreabréfið 4:14-16
(b) Ein af skaðlegustu kenningum Satans í dag er boðskapurinn um "heilsu, auðlegð og þægindi." Ein af bestu aðferðunum til þess að halda fólki frá því að vilja leggja einkvað á sig til hjálpar bróður, og draga kjarkinn úr sannkristnum mönnum, sem verða fyrir ofsóknum, er sú kenning að allir kristnir einstaklingar eigi alltaf að vera heilbrigðir og ríkir. Þeir, sem séu það ekki, séu að gera einhver mistök á einhverjum sviðum í lífinu. Ritningarversin, sem sýna fram á að þetta eru falskar kenningar, eru allt of mörg til þess að hægt sé að skrá þau hér. Eitt stutt vers segir allt sem segja þarf:
“Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða." 2. Tímóteusarbréf 3:12
Takið eftir, að það er ekki minnst á hvernig ofsóknirnar verða, en þær geta verið fjárhagslegar, líkamlegar eða tilfinningalegar.
(c) Kærleiksboðskapurinn - “Við getum ekki dæmt neinn.” Satanistar verja sjálfa sig með þessum boðskap, og óvirkir, kristnir einstaklingar vilja ekki stíga á tærnar á neinum. Þeir vilja einfaldlega ekki hafa fyrir því, vegna þess að ef þeir gera það, þá gæti þeirra litli, vel-skipulagði heimur velsældar hætt að vera rólegur og þægilegur.
#6) Tvístra fjölskyldum. Satan veit að ef honum tekst að tvístra fjölskyldunum, þá hverfur einnig eining kirkjunnar, og, ég mundi ætla, líka eining þjóðarinnar. Satanistar í kristnum kirkjum vinna mjög hart að því að aðskilja fjölskyldumeðlimi. Þeir stofna til allskyns námskeiða fyrir unglinga og börn á öllum aldri. Þeir skipuleggja kynskipt námskeið til þess að halda foreldrunum sem mest aðskildum.
Börn þurfa að hlusta á predikanir og vera með á bænastundum jafn mikið og foreldrarnir. Allsstaðar í Biblíunni er sú aðferð sýnd að börnin læri á þann hátt að vera með foreldrunum. Börnin læra að bera virðingu fyrir bæði Guði og kirkjunni með því að sitja hljóð í kirkjunni og hlusta á prestinn. Um leið og búin eru til sér námskeið eða samkomur fyrir unga fólkið, sem aðskilur þau frá megin kirkjustarfseminni, þá missa þau virðinguna fyrir prestinum og kirkjunni. Þau þurfa ekki að sitja og hlusta á prestinn, hann er einfaldlega of leiðinlegur. Þetta verður fljótt viðkvæðið.
Hvaða aðferð er betri fyrir börn, til að læra að biðja, heldur en að vera með foreldrum sínum í bæn? Hjónabandið verður fyrir stöðugum árásum Satans. Á þessum dögum auðveldra hjónaskilnaða, þá þurfa hjón að verja tíma sínum saman til þess að vera í einingu. Að aðskilja þau innan kirkjunnar með allskyns kynjaskiptum námskeiðum o.s.frv. er stórt skref í því að setja fleyg á milli hjóna.
#7) Stöðva alla nákvæma kennslu um Satan. “Til þess að vér yrðum ekki vélaðir af Satan, því að ekki er oss ókunnugt um vélráð hans." 2. Korintubréf 2:11
"Lýður minn verður afmáður, af því að hann hefir enga þekking. Af því að þér hafið hafnað þekkingunni, þá vil ég hafna yður, svo að þér séuð ekki prestar fyrir mig, og með því að þér hafið gleymt lögmáli Guðs yðar, þá vil ég og gleyma börnum yðar." Hósea 4:6
"Verið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um, semöskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt."1. Pétursbréf 5:8
"En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðumyrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond."Jóhannes 3:19
Eitt af megin markmiðum Satans og þjóna hans er að koma í veg fyrir alla kennslu um hann og athafnir hans. Svo lengi sem fólk er fáfrótt um Satan, þá getur hann í raun gert það sem hann vill, óhindrað. Satanistum er alltaf skipað að koma í veg fyrir alla kennslu um Satan í kirkjunum sem þeir sækja.
Afsakanirnar eru margar. Þeir segja að öll kennsla um hann gefi honum dýrðina, leiði hugi fólks frá Drottni, freisti fólks til að snúa sér til Satans, o.s.frv. og út í það óendanlega. Guðs orð kennir okkur mikið um Satan og varar okkur við því að láta eins og hann sé ekki til, því þá muni hann svo sannarlega vera í yfirburðarstöðu gagnvart okkur.
Ein einföld galdraþula þulin af háttsettum Satanista mun etja illum anda að hverri persónu, sem kemur til tiltekinnar kirkju. Tilgangur illu andanna er að standa vörð, og á þeirri stundu, sem einhver segir eitthvað um Satan, þá senda þeir þær hugsanir inn í huga þeirra, sem á hlýða, að hann eða hún ætti nú ekki að vera að hlusta á neitt varðandi Satan.
Varið ykkur, því sá safnaðarmeðlimur, sem hvað hæst kvartar um kennslu um Satan og aðferðir hans, gæti verið Satanisti sjálfur.
#8) Bein árás með göldrum á lykilmeðlimi kirkjunnar.
Þetta er önnur ástæðan fyrir því að bænir eru svo mikilvægar. Sérhver prestur og kirkjuleiðtogi og / eða kirkjumeðlimur, sem af alvöru stendur með Jesú og gegn Satan, mun verða fyrir miklum árásum af völdum galdra.
Allskyns sjúkdómar munu hrjá þá, einbeitingarerfiðleikar, uppnám, þreyta, erfiðleikar við að biðja, o.s.frv. Safnaðarmeðlimir verða stöðugt að halda uppi leiðtogum kirkjunnar með fyrirbænum. Ef bænirnar hætta, þurfa leiðtogarnir eða prestarnir að horfast í augu við þessar árásir einir. Oft eru þeir bugaðir. Þess vegna bað Páll hina kristnu félaga sína um að biðja fyrir sér, í lok flest allra bréfanna sem hann skrifaði.
.............................................
Hinn ótrúlegi fjöldi af kraftlausum, dauðum kristnum kirkjum í landi okkar í dag, er vitnisburður um árangursríkar og vandlega skipulagðar aðgerðir Satans. Bænir okkar eru þær að sérhver kristinn einstaklingur, sem les þessi orð, fari til Drottins í bæn og leiti handleiðslu í því hvernig eigi að berjast gegn slíkum árásum í sinni eigin kirkju.