Níundi kafli
Umskiptin
Elaine segir frá:
Fyrstu raunverulegu umskiptin í lífi mínu, urðu um það bil ári eftir að ég varð staðbundin brúður Satans. Draumur minn um að það væri einhver sem raunverulega elskaði mig, og það Satan sjálfur var lagður í rúst á grimmilegan hátt.
Að því er virtist hafði ég gert eitthvað smávegis af mér gegn Satan, reyndar það lítið að ég hafði ekki hugmynd um það. Dag einn var ég alein heima, þegar fjórir risavaxnir djöflar líkömnuðust skyndilega inni hjá mér. Þeir voru allir dökkir, um það bil tveir og tuttugu á hæð og þaktir svörtum hreistursflögum, svipuðum og voru á Ri-Chan. Þeir voru með grimmdarleg andlit, langar vígtennur og jafnvel lengri neglur sem voru beittar sem rakvélarblöð.
Þeir réðust á mig, án viðvörunar. Þeir klóruðu mig með löngum nöglum sínum og rifu hold mitt. Þeir börðu mig og hentu mér fram og til baka á milli sín, eins og hverjum öðrum gúmmíbolta. Ég öskraði og grét og grátbað þá um að hætta að meiða mig, og segja mér af hverju þeir gerðu þetta, en þeir svöruðu mér ekki einu einasta orði. Þeir urruðu bara og hlógu viðbjóðslegum hlátri. Mann-Chan og Ri-Chan, verndarar mínir, stóðu bara hjá og hreyfðu sig ekki, hvorki til að hjálpa mér né til að gefa mér skýringu á því hvers vegna þeir gerðu mér þetta. Eftir um það bil hálftíma hurfu þeir jafn skyndilega og þeir höfðu komið.
Ég var skilin eftir liggjandi á gólfinu, úrvinda og kvalin. Bak mitt var sundurtætt, ég var með stór sár frá hvirfli til ilja. Húsgögnin lágu út um allt, og allt var útatað í blóði. Þar sem ég lá þarna snöktandi og stynjandi og reyndi að ná mér örlítið, gekk Satan í gegnum lokaðar dyrnar. Eins og venjulega var hann í uppáhalds gervinu sínu sem óviðjafnanlega myndarlegur ungur maður. Hann stóð og horfði niður á mig, síðan reigði hann höfuðið aftur og hló! Hann hélt áfram að hlæja á meðan ég lá þarna snöktandi og spurði hann hvers vegna djöflarnir hefðu misþyrmt mér á svona grimmilegan hátt. Hann gaf mér aldrei annað svar en það, að þetta hefði verið ögun. Hann hélt áfram og lýsti því yfir að djöflarnir hefðu bara gert þetta nokkuð vel. Síðan hvarf hann, án þess að hreyfa sig mér til hjálpar.
Ég fann bara eina skýringu, og hún var sú að Satan hataði mig og var lygari. Sú vitneskja særði mig dýpra en nokkurt sár á líkama mínum. Ég var skilin ein eftir og þurfti að þrífa mig og laga til í íbúðinni eftir bestu getu. Á þessum tíma var ég hjúkrunarkona. Ég þurfti að nota alla þekkingu mína og hæfileika sem hjúkrunarkona til þess að komast lífs af. Ég gat ekki leitað til neins eftir hjálp, þar sem ég gat ekki sagt frá því hvað hefði komið fyrir mig. Engum þótti nægilega vænt um mig til að koma og athuga hvað væri að, eða til að hjálpa mér. Þegar sár mín voru loks gróin, sáust engin ör. Satan sá til þess. Hann skildi ekki eftir nein sönnunargögn sem ég gæti notað gegn honum í framtíðinni.
Eftir þetta vissi ég með fullri vissu að Satan hataði mig og fyrirleit, en elskaði mig ekki eins og hann hafði sagt. Ég gerði mér það einnig ljóst að djöflarnir notuðu mig líka í eiginhagsmunaskyni. Það voru Mann-Chan og hinir djöflarnir sem höfðu kjaftað frá þessu lítilræði sem ég hafði gert. Oft og mörgum sinnum hafði ég haldið hlífiskildi yfir þeim vegna einhvers sem þeir höfðu gert, til þess að vernda þá fyrir reiði Satans. Þeir höfðu svikið mig!
Það var þá sem ég ákvað að fara úr reglunni ef þess væri nokkur möguleiki. Þó var þetta nokkrum árum áður en Guð vísaði mér leiðina. Mér fannst ég vera í algjörri gildru. Alls staðar í kringum mig og inni í mér voru djöflar. Á þeim tíma hélt ég líka að þeir gætu lesið hugsanir mínar. Ég dirfðist varla að hugsa um að mig langaði út úr þessu, og ég gat heldur ekki talað um það, því þá myndu djöflarnir vita það. Ég vissi ekki, hvar ég gæti fengið hjálp. Hvar í veröldinni gæti ég fengið mátt til að standa gegn Satan og djöflum hans, það er að segja ef ég mundi þá lifa nógu lengi til að reyna það? Ég varð að þykjast vilja vera áfram í reglunni. Ég vissi, að á endanum hugðust Satan og djöflarnir tortíma mér. Ef Mann-Chan eða einhverjir hinna djöflanna kæmust að því hvað ég væri að hugsa, þá mundi það þýða dauða, og það kvalafullan dauða.
Tveimur árum eftir þetta atvik þar sem mér var refsað, byrjaði kona sem ég var að vinna með, að bjóða mér með sér í kirkjuna sína. Ég afþakkaði það, hvað eftir annað. Ég var í nógu miklum vandræðum, þó að ég bætti ekki þessum öfgum við. Satan kom til mín aftur sem myndarlegur ungur maður. Hann tók utan um mig, var mjög elskulegur og sagði mér að hann, eiginmaðurinn minn, hefði verið móðgaður á hræðilegan hátt, og að ég væri sú eina sem gæti náð fram hefndum fyrir sig.
Hann vissi, að Ester (konan í vinnunni) hafði boðið mér í kirkju. Hann vildi að ég færi og eyðilegði kirkjuna, því að fólkið þar dirfðist að halda því fram að hann, Satan, væri ekki aðeins lifandi og í fullu fjöri, heldur að hann væri illur og það ætti að berjast gegn honum og það væri gerlegt. Ég átti að ganga í söfnuðinn og síðan átti ég að splundra honum og eyðileggja. Hann vildi að ég notaði átta liða áætlunina, sem þjónar hans (að mér meðtalinni) höfðu notað og nota enn á svo árangursríkan hátt út um allan heim, til eyðileggingar kristnum söfnuðum. (Fjallað verður nánar um þessar aðferðir í 17.kafla.)
Ég reyndi tvisvar að fara. Í fyrra skiptið komst ég ekki einu sinni út úr bílnum, vegna þess að kraftur Guðs var svo sterkur þar. Ég hafði aldrei áður upplifað annað eins. Í seinna skiptið komst ég að dyrunum, en gat ekki tekið í hurðarhúninn. Aftur var það krafturinn og nærvera Drottins sem var of sterk. Djöflarnir innra með mér fundu einnig fyrir honum og aftóku að fara inn. Ég veit ekki, hvort ég hefði nokkurn tíma farið inn, ef Ester hefði ekki hvatt mig til þess. Hún skoraði á mig að fara! Ester þekkti mig nógu vel þá, til að vita að ég hafnaði aldrei áskorun.
Að lokum fór ég og settist laumulega á aftasta bekk. Ester var að fylgjast með því hvort hún sæi mig ekki, og þegar hún sá mig koma hvatti hún mig til þess að koma fremst með sér, en ég hafnaði því. Þá kom hún til mín þar sem ég sat aftast og settist hjá mér og sagði, "það er allt í lagi, Guð er hérna aftast, alveg eins og fremst!" Ég var nú ekkert sérstaklega þakklát fyrir það!
Þannig vildi til, að ungi maðurinn, sem predikaði það kvöldið, var að sækjast eftir að verða forstöðumaður safnaðarins. Það eina, sem ég og djöflarnir gátum gert, var að sitja kyrr meðan á predikuninni stóð. Þá gerði það hlutina ennþá erfiðari, að strax á eftir predikuninni myndaði hann bænalínu að aftasta bekk þar sem við Ester sátum. Hann talaði við mig og reyndi að fá mig til að gefa Jesú líf mitt. Ég sagði honum ákveðið að ég hvorki vildi né þyrfti á Jesú að halda. Þá brosti hann bara og sagði, "Jæja, ég er viss um að þú hefur ekki neitt á móti því að ég biðji fyrir þér." Minnug þess að ég átti að ganga í söfnuðinn gat ég hamið viðbrögð mín og muldraði, "Nei, ég hef ekkert á móti því."
Mér til mikillar skelfingar lagði hann hönd sína á axlir mér og byrjaði að biðja fyrir mér upphátt! Ég þoldi ekki að nokkur snerti mig, sérstaklega ekki hann, og djöflarnir þoldu það ekki heldur! Ég engdist, en það virtist ekki hafa áhrif á hann, hann hélt bara áfram að biðja. Ég þeyttist út úr kirkjunni eins fljótt og ég gat, eftir að hann var búinn. En eitthvað hafði snert mig. Á leið minni heim, sagði ég Drottni að ef hann væri til og vildi að ég yrði hans, þá yrði hann að láta unga manninn verða forstöðumann safnaðarins. Næsta sunnudag var hann kjörinn forstöðumaður. Þetta gerðist næstum því ári áður en ég stóð við minn hluta samningsins.
Þetta sama ár átti sér stað annar atburður sem sannfærði mig betur um að Satan væri lygari, að til væri kraftur sem er honum æðri og að Jesús hlyti að vera svarið. Fljótlega eftir að ég fór að sækja samkomur í kirkjunni, kom Satan til mín, auðsjáanlega mjög reiður. Hann sagði mér, að það væri "ungur oflátungs-læknir" við "einkasjúkrahúsið" hans í nálægri borg. Þessi læknir væri ekki bara að skipta sér stórlega af með því að "predika og biðja alls staðar," heldur hafði hann dirfst að skipta sér af mörgum háttsettum nornum og vinnu þeirra á stofnuninni.
Satan skipaði mér að skipuleggja átak meðal allra æðstu norna landsins, um að tortíma þessum lækni. Honum væri alveg sama hvernig við gerðum það, en það yrði að drepa þennan lækni, og það fljótt. Ég vissi það ekki fyrr en um tveimur árum seinna, að Rebekka var læknirinn sem við reyndum að tortíma með göldrum. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda, ef okkur hefði tekist það. Dýrð sé Guði, að okkur tókst það ekki!
Af skyldurækni tók ég upp símann og hringdi í Helenu, sem var á þeim tíma aðalnornin á þessu tiltekna sjúkrahúsi. Ég sagði henni frá skipunum Satans og tilnefndi hana til að sjá um framhaldið. Ég hugsaði lítið um þetta málefni í nokkra mánuði, fyrir utan að þylja nauðsynlegar galdraþulur um tíma. Skyndilega, eftir um það bil sex mánuði, gerði ég mér grein fyrir að í hvert skipti sem ég fór með seið gegn þessum lækni, komu djöflarnir til mín aftur vegna þess að þeir komust ekki í gegn. Þeir voru ekki ánægðir! Ég hafði ekki beinlínis óskað mér slíkra vandræða! Mér var brugðið, þar sem slíkt hafði aldrei komið fyrir áður. Ég talaði ekki um þetta vandamál við neinn, því það var lífshættulegt fyrir mig að viðurkenna að kraftur minn hefði brugðist.
Þá gerðist það, um þremur vikum áður en ég tók á móti Jesú, að Helena hringdi í mig. Læknirinn, sem hafði yfirgefið spítalann vegna þess að hún hafði verið við dauðans dyr nokkrum mánuðum áður, var að koma aftur til vinnu þennan sama dag. Hún var ekki bara komin aftur til vinnu, heldur var hún algjörlega læknuð! Mér brá. Hvernig gat þetta verið? Þá gerði ég mér grein fyrir því, að kraftur, miklu öflugri en ég hafði nokkurn tímann kynnst, hafði haldið okkur fjarri, og ég mundi aftur eftir keðjuenglunum í Kaliforníu. Þessi læknir hlyti að búa yfir sama krafti og sú fjölskylda. Ég vissi, að sá kraftur var Jesús Kristur.
Seinna þennan sama dag komi Satan aftur, mjög óánægður, og spurði mig af hverju okkur hafði mistekist. “Veist þú ekki af hverju?” spurði ég. “Jú,” svaraði hann, “en ég vil vita, hvort þú veist það.”
“Ja, ég geri ráð fyrir að einhver hafi hindrað okkur með bænum.”
“Það er rétt,” svaraði hann stuttur í spuna, síðan hvarf hann.
Á þessu tímabili fór ég reglulega í litlu kirkjuna. Fljótlega gerði ég mér grein fyrir að ég hafði ekki vald til að eyðileggja hana. Fólk þar sá við öllum brögðum sem ég notaði, en það hélt samt áfram að elska mig og biðja fyrir mér. Mér fór að þykja vænt um þau. Þetta fólk var einstakt. Það elskaði Drottin svo mikið, að því var sama hver ég var, hvaðan ég kom, hvernig ég klæddist eða talaði. Það eina sem skipti þau máli var sála mín. Þeim var svo annt um mig, að þau héldu áfram að biðja og biðja.
Þau báðu, þar til ég fór upp að altarinu eitt sunnudagskvöldið og sagði loksins, “Jesús, ég vil þig og ég þarfnast þín, gerðu það fyrirgefðu mér og komdu inn í hjarta mitt og líf. “ Þvílík barátta. Mann-Chan og hinir djöflarnir reyndu að halda munni mínum lokuðum. Þeir öskruðu í huga mér, að verið væri að ljúga að mér, Guð væri ekki til og Jesús væri dauður. En ég vissi að þeir voru lygarar, og ég hlustaði ekki á þá.
Þá höfðu Mann-Chan og hinir djöflarnir nóg að tala um og nóg að gera. Það fyrsta sem þeir gerðu var að skjótast til að segja Satan hvað ég hefði gert. Þá byrjuðu illindin!
Þegar ég var komin heim þetta kvöld, kom Satan til þess að tala við mig, en á einhvern undarlegan hátt voru hlutirnir breyttir. Venjulega kom Satan alveg upp að mér og tók utan um axlirnar á mér, eða hann hélt utan um mig. Í þetta sinn stóð hann álengdar. Ég sá, að með honum voru margir mjög öflugir djöflar, en þeir stóðu einnig álengdar frá mér. Satan var öskureiður! Hann öskraði á mig!
“Hvað í fjandanum heldur þú að þú sért að gera?!!”
“Ég er að yfirgefa þig,” svaraði ég.
“Þú getur það ekki!”
“Get ég það ekki? Ég er búin að því, fjandinn hafi það!”
“Þú ert brúður mín, ég sigraði þig, og ef þú gerir ekki eins og ég segi þér, þá drep ég þig. Þú getur ekki rofið samninginn!”
“Ég mundi miklu frekar deyja fyrir Drottin heldur en að vera áfram brúður þín. Þessi samningur gildir ekki lengur, því að hann er hulinn blóði Jesú. Þú hefur ekkert að bjóða mér, nema lygar og tortímingu.”
“Þú hefur tekið ranga ákvörðun, ég skal sanna það fyrir þér fljótlega.”
“Þú!*#?* farðu út úr húsinu mínu!”
“Sjáðu, þú ert ekki kristin í raun og veru!”
“Hvað meinarðu?”
“Þeir kristnu bölva ekki.”
Ég hafði ekki hugsað út í það, en þá hafði ég bara verið kristin í nokkra klukkutíma og var vön að tala á hvern þann hátt sem mér sýndist, utan kirkjunnar.
“Hvað með það, ég veit að ég er það vegna þess að ég bað Jesú að fyrirgefa mér syndir mínar og að koma inn í hjarta mitt, og ég veit að hann gerði það!”
“Þú heldur það bara, það gerðist ekki í raun og veru.”
Þá varð ég svo reið, að ég reyndi að færa mig nær Satan til að gefa honum einn á hann, en af einhverri ástæðu gat ég ekki hreyft á mér fæturna. Þá var Satan orðinn svo reiður að hann var farinn að hóta mér öllu illu. Skyndilega fann ég yndislega friðartilfinningu flæða yfir mig alla og ég heyrði, á óyggjandi hátt, rödd Drottins tala til hjarta míns og inn í anda minn í fyrsta sinn. Hann sagði:
“Óttastu ekki, barnið mitt, Ég er hér, hann getur ekki skaðað þig.” Aftur sagði ég Satan að fara, en í þetta sinn notaði ég nafnið Jesús, og hann hvarf samstundis.
Ég giska á að Satan hafi komið um tuttugu sinnum á næstu tveimur vikum. Stundum var hann heillandi, þóttist vera elskhugi, en oftast kom hann í reiði. Hann reyndi að sannfæra mig um að skipta um skoðun. Hann sagði mér að Jesús væri dauður. Hann hótaði mér hinu og þessu, en aldrei kom hann nálægt mér. Hann stóð alltaf í fjarlægð, og það gerðu djöflarnir líka.
Mörgum sinnum komu margir djöflar, augljóslega í þeim tilgangi að misþyrma mér eins og djöflarnir fjórir höfðu gert áður, en alltaf stoppuðu þeir rétt áður en þeir komu að mér, urðu ráðvilltir og skelfdir, snéru sér við og fóru, án þess að segja orð. Smám saman gerði ég mér það ljóst, að ég hlyti að hafa einhverja sérstaka vörn frá Drottni. Jafnvel Mann-Chan, sem hrelldi mig stöðugt, virtist ekki geta þjakað mig á sama hátt og hann hafði gert áður, og ég hafði meiri stjórn á honum en hann hafði á mér.
Þrátt fyrir þessa sérstöku vernd, tókst Mann-Chan að gera mig mjög sjúka, og innan tveggja vikna endaði ég á sjúkrahúsi í annarri borg, langt frá heimili mínu. Ég gerði mér ekki ljóst þá, að Drottinn hafði leyft þetta. Hinn langi vegur að fullkomnu frelsi frá djöflunum og fullkominni skuldbindingu við Jesú sem Drottin, leiðtoga og frelsara, átti eftir að hefjast á þessum stað. Ég endaði sem sjúklingur á ókunnu sjúkrahúsi, í ókunnri borg. Ég missti nánast allt, sem ég hafði öðlast í gegnum Satanismann innan tveggja vikna frá því ég tók á móti Jesú. En dýrð sé Guði, hann vissi hvað hann var að gera og hafði stjórn á þessu öllu. Ég byrjaði hið nýja líf mitt með Jesú, og að lokum hitti ég þá manneskju, sem ég hafði reynt svo mjög að drepa – Rebekku.