Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Fjórtándi kafli

Andi mannsins, að skipa sér í skarðið og andaheimurinn

um 32 mín. lestur

Rebekka segir frá:

Mannlegir andar

Í þessari bók er oft talað um mannlega anda. Það er mjög mikilvægt að kristið fólk skilji hvað átt er við. Þetta er það vald sem Elaine og margir hennar líkar þróa og nota. Við skulum skoða ritningarvers sem varðar þetta atriði.

“En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. 1. Þessalonikubréf 5:23

Páll kennir okkur hér að manneskjan sé þríþætt vera. Það er að segja, við erum þrír aðgreindir hlutir - líkaminn, sálin ( sem er meðvitaðir vitsmunir, vilji og tilfinningar), og andinn. Hann heldur því einfaldlega fram að þessa þrjá hluta verði að hreinsa og helga í Jesú, og að Jesús sjálfur verði að gera okkur kleift að varðveita alla þrjá hlutana “vammlausa” þangað til hann komi aftur.

1. Mósebók 2:7 segir:

“Þá myndaði Drottinn Guð manninn af leir jarðar og blés lífsanda í nasir hans, og þannig varð maðurinn lifandi sál."

Það er að segja, Adam varð til og varð meðvitaður um sjálfan sig. Í innsta kjarna okkar býr sál okkar sem opinberar sig í huga okkar, vilja okkar og tilfinningum.

“Ef jarðneskur líkami er til, þá er og til andlegur líkami.”1. Korintubréf 15:44

Oft er horft framhjá þessu versi. Andi okkar hefur form eða lögun, líkama sem samsvarar efnislíkama okkar. Fáir aðrir en Satanistar eða þeir, sem eru viðriðnir hluti eins og að fara úr líkamanum, skilja þetta. (sjá mynd A.)

mynd A

“Mér er kunnugt um mann, hann tilheyrir Kristi, sem fyrir fjórtán árum, (hvort það var í líkamanum eða utan líkamans, veit ég ekki, Guð veit það), var hrifinn burt allt til þriðja himins. Og mér er kunnugt um þennan mann, (hvort það var í líkamanum eða án líkamans, veit ég ekki, Guð veit það), að hann var hrifinn upp í Paradís og heyrði ósegjanleg orð, sem engum manni er leyft að mæla." 2. Korintubréf 12:2-4

“Eftir þetta sá ég sýn: Opnar dyr á himninum og raustin hin fyrri, erég heyrði sem lúður gylli, talaði við mig og sagði: „Stíg upphingað, og ég mun sýna þér það, sem verða á eftir þetta. Jafnskjóttvar ég hrifinn í anda. Og sjá: Hásæti stóð á himni og einhver sat íhásætinu."Opinberunarbókin 4:1-2

Þessi ritningarvers og önnur segja frá andlegri reynslu fólks og því að andlegi líkaminn aðskildist frá efnislíkamanum.

“Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raustmikla, sem lúður gylli........."Opinberunarbókin 1:10

“Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverjutvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda......."(enska þýðingin segir: skilur á milli sálar og anda.)Hebreabréfið 4:12

Hafið þið einhvern tíma hugleitt hvers vegna það er nauðynlegt að skilja á milli anda okkar og sálar?

Fyrir syndafallið gat hinn fyrsti Adam séð andaheiminn jafn auðveldlega og hinn náttúrulega heim. Hvernig? Með því að nota andalíkama sinn. Sýnt er fram á þetta með því hversu auðvelt hann átti með að ganga með og tala við Guð í garðinum Eden. Hann var meðvitaður um andalíkama sinn á sama hátt og hann skynjaði hinn jarðneska. Sál hans (meðvitaðir vitsmunir og vilji) stjórnaði bæði andlegum og jarðneskum líkama hans. En við syndafallið átti sér stað andlegur dauði - það er að segja, Adam og afkomendur hans voru ekki lengur meðvitaðir um andalíkama sinn og gátu ekki átt samfélag við Drottin á sama hátt og áður. (Sjá myndir B &C Þegar Heilagur andi kemur inn, þegar við endurfæðumst og tökum á móti Jesú sem Drottni og frelsara, endurfæðist andalíkami okkar eða endurnýjast þannig að við getum átt samfélag við Drottin og lofað hann eins og Adam gerði fyrir syndafallið. Sú staðreynd, að það er í gegnum anda okkar sem við eigum samfélag við Guð (með hjálp Heilags anda), kemur ljóslega fram í eftirfarandi versum:

[Jesús segir] "En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra, er þannig tilbiðja hann. Guð er andi, og þeir, sem tilbiðja hann, eiga að tilbiðja í anda og sannleika. Jóhannes 4:23-24

Takið eftir því, að í ensku King James þýðingunni þegar talað er um Anda Guðs í þessum tveimur versum þá er notað stórt “A.” En um anda mannsins gegnir öðru máli, því þá er skrifað lítið “a” (þannig er það reyndar ekki í íslensku Biblíunni, en í ensku King James þýðingunni er það eins og höfundurinn talar um). Þannig að það er einungis andi okkar sem getur átt samskipti við andaheiminn, í þessu tilfelli tilbeðið Guð Föður, sem er andi. (sjá mynd D).

Í Biblíunni eru englar skilgreindir sem andar: “En við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt: Set þig mér til hægri handar, uns ég gjöri óvini þína að fótskör þinni? Eru þeir ekki allir þjónustubundnir andar, útsendir í þeirra þarfir, sem hjálpræðið eiga að erfa? Hebreabréfið 1:13-14.

Satan og hans illu andar eru einnig andar, eins og nafnið gefur til kynna, þeir voru þjónustubundnir englar Guðs, áður en þeir gerðu uppreisn. Jesús sjálfur skilgreinir þessar verur sem engla og þar með anda. Í Matteusi 25: 41 segir Jesús:

“Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: ,Farið frá mér,bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans."Matteus 25:41

og í ensku King James þýðingunni:

“Then shall he say also unto them on the left hand, Depart from me, ye cursed, into everlasting fire, prepared for the devil and his angels.” Matteus 25:41

Við sjáum af þessum ritningarversum og mörgum öðrum, að það er ekki bara Guð, sem er andi, heldur eru einnig aðrar andaverur sem kallaðar eru englar - sumir í þjónustu Guðs, aðrir í þjónustu Satans.

Okkar andlegi líkami er hlekkurinn á milli okkar og andaheimsins, vegna þess að andaheiminn er ekki hægt að sjá eða mæla út á holdlegan, eða efnislegan hátt.

Fyrir Heilagan anda getur andi okkar átt samfélag við og tilbeðið Guð, en Hebreabréfið 4:12 sýnir okkur að það er ekki Guðs vilji að við náum meðvitaðri stjórn á andlegum líkama okkar á meðan við erum hér á jörðinni í okkar synduga ástandi. Þess vegna þarf sverð andans að skilja á milli sálar og anda. Þegar þessi aðskilnaður hefur átt sér stað getur sálin (hugur, vitsmunir, vilji) ekki lengur stjórnað okkar andlega líkama. Þetta er einnig ástæðan fyrir því hvers vegna Drottni er svo umhugað um, í 1. Þessalonikubréfi 5:23, að andi okkar verði að vera undir fullkominni stjórn Jesú Krists, rétt eins og sál okkar og hold.

Það er áhugaverður ritningarstaður í Opinberunarbókinni 18:11 & 13:

[ Í tengslum við fall Babýlonar ] “Og kaupmenn jarðarinnar gráta og harma yfir henni, því að enginn kaupir nú framar vörur þeirra,........... kanilbörk og balsam, ilmjurtir og smyrsl, reykelsi, vín og olíu og fínt mjöl, og hveiti og eyki og sauði og hesta og vagna og mann (líkama) og mannasálir."

Af hverju er gerður greinarmunur á líkama og sál manna? Vegna þess að andlegur líkami mannsins býr yfir gríðarlegu valdi og vitsmunum, sérstaklega þegar hann er undir stjórn sálarinnar. Satan hefur verið að vinna að því í gegnum aldirnar, eða síðan Adam féll, að ná stjórninni á andalíkama mannsins til sinna eigin illu athafna. Efnislíkamar manna eru gagnslitlir fyrir Satan, en um andlegan líkama þeirra undir meðvitaðri stjórn sálarinnar, gegnir öðru máli.

Markmið Satans er að kenna fólki að ná aftur meðvitaðri stjórn á andalíkama sínum. Margir geta það. Þegar því er náð, getur þetta fólk skynjað andaheiminn á sama hátt og efnisheiminn. Það getur talað við illa anda eins og ekkert sé, yfirgefið efnislíkamann í andalíkamanum, farið á milli staða með fullri meðvitund og framkvæmt ýmislegt, sem venjulegu fólki finnst vera yfirnáttúrulegt. Það var með andalíkama sínum sem hinar ýmsu nornir og galdrakarlar, án þess að vera nálægir í efnislíkamanum, drógu okkur Elaine út úr rúminu, fleygðu okkur þvert yfir herbergið, o.s.frv. Við gátum ekki séð þetta fólk vegna þess að líkamleg augu okkar geta ekki séð andaheiminn. Guð vill ekki að fólkið hans stjórni andalíkama sínum á þennan hátt. Ef við gætum það, myndum við ekki einungis verða opin fyrir yfirþyrmandi freistingum til að syndga, heldur værum við ekki eins háð honum og myndum einnig vera stöðugt meðvituð um Satan og konungsríki hans.

Til er sérstök tegund illra anda sem vitna iðulega um sig sem “kraft anda (power demons)” og virðast, ef svo má að orði komast, framleiða “límið” sem festir hlekkinn á milli sálarinnar og andalíkamans og gera fólki kleift að hafa meðvitaða stjórn á andalíkama sínum. Ímyndunaraflið er lykillinn sem þarf til að koma á tengslum milli sálar og anda. Þess vegna er svo mikilvægt að hertaka hverja hugsun til fylgis við Krist (2.Kor. 10:3-5). Gott dæmi um ímyndunaraflið sem hlekk við andaheiminn eru dulspekilegu hlutverkaleikirnir. (sjá mynd E, F, G & H)

Við höfum komist að því að við getum sparað okkur mikinn tíma og erfiði við að leysa fólk, sem hefur verið viðriðið ýmiskonar, dulspeki ef við gerum því ljóst að þessir kraft-andar eru fyrstu illu andarnir sem við biðjum Drottin að kasta út. Ef einhverjum er ekki nógu mikil alvara í því að fá lausn, eða eru að blekkja okkur, munu þeir fljótlega hætta við þegar þeir komast að því að þeir munu strax missa hæfileikann til að nota andalíkama sinn.

Ég hef einnig komist að því að þetta er mjög vanmetið svið í sambandi við að leysa fólk og ósjaldan eru þessar dyragáttir skildar eftir opnar. Afleiðingarnar eru miklar þjáningar, þar sem Satan og illu andarnir hans munu stöðugt hrella persónuna. Ef persónan, sem stöðugt er verið að misþyrma, biður Drottin einfaldlega að fjarlægja hæfileika hennar til að skynja og athafna sig í andaheiminum og biður hann um að skilja á milli sálar og anda (eins og talað er um í Hebreabréfinu 4:12), mun hún öðlast mikinn létti og losna við þessar misþyrmingar. Eftir þetta mun persónan eingöngu skynja andaheiminn, þegar Drottinn leyfir. Andi hennar mun frá þeirri stundu lúta fullkomnu drottinvaldi Jesú Krists.

Við hinir kristnu verðum einnig að gæta þess að biðja Drottin um að taka fullkomna stjórn yfir anda okkar. Margir kristnir hafa fallið í þá gryfju að læra að stjórna anda sínum. Ég hef heyrt marga segja: ”Ég hugleiði það þangað til ég fæ andlega reynslu eða upplifi Guð.” Kristnir fá að upplifa í anda sínum - sýnir og opinberanir - en þetta er alltaf undir stjórn Drottins vors Jesú Krists og er aldrei stjórnað, né komið af stað, af persónunni sjálfri. Ef kristin manneskja getur stjórnað því hvenær hún upplifir slíka andlega reynslu yrði ég að segja henni að ég hefði alvarlegar efasemdir um að reynsla hennar kæmi frá Drottni. Líklega kæmu þær frá Satan.

Allt of margir kristnir halda að þeir þurfi að “tæma” hugann til þess að Heilagur andi geti talað í gegnum þá, eða “stjórnað” þeim. Biblían kennir okkur að við eigum að vinna með Heilögum anda á virkan hátt. Í hvert sinn sem við tæmum huga okkar er hætt við því að sá andi, sem talar til okkar, sé ekki Heilagur andi. Óteljandi margir kristnir eru, og hafa verið, afvegaleiddir vegna þess að þá skortir þekkingu á grundvallarreglum Guðs varðandi anda þeirra. Margir af svokölluðum spádómum, sem eru gefnir af fólki sem tæmir huga sinn og heldur að það sé að afhenda Heilögum anda stjórnina, eru spádómar illra anda. Allt of margir kristnir eru afvegaleiddir á þessu sviði og taka við slíkum spádómum, vegna þess að persónan sem spáir þekkir staðreyndir sem varða þá eða líf þeirra, sem þeir halda að aðeins Guð geti þekkt. Þeir gleyma því að Satan veit um allt í lífi okkar, það eina sem hann veit ekki um, eru hugsanir og áætlanir hjartna okkar.

Í dag er ein vaxandi kenning meðal kristinna manna í Bandaríkjunum sem ég tel vera mjög hættulega. Það er að segja, að “okkar sálræni maður ætti að lúta valdi okkar andlega manns, vegna þess að eftir að Heilagur andi komst inn, er andi okkar syndlaus.” Það eru tvö atriði í þessari kenningu sem eru ekki rétt. Það fyrra : Eina leiðin til þess að sálin lúti valdi andans, er að koma á meðvituðum tengslum sálar og anda. Það eru hreinræktaðir galdrar. Í 1. Pétursbréfi 1:22 stendur:

“Þér hafið hreinsað sálir yðar með því að hlýða sannleikanum fyrirAndann og berið hræsnislausa bróðurelsku í brjósti."(King James Biblían)

Takið eftir að hér (þ.e. í King James Biblíunni.) er Andinn með stóru “A” og vísar því til Heilags anda. Sálir okkar hreinsast við það að lúta og hlýða Heilögum anda, en ekki okkar eigin mannlega anda.

Í öðru lagi: 1. Þessalonikubréf 5:23 sýnir okkur berlega að anda okkar er hætt við að syndga. Því verður Jesús að varðveita hann, þangað til hann kemur aftur. Varðveislan verður stöðugt að eiga sér stað.

“En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists." 1. Þessalonikubréf 5:23

1. Jóhannesarbréfið 1:8-9 er heldur ekki í samhljóðan við þessa kenningu. En þar stendur:

“Ef vér segjum: „Vér höfum ekki synd,`` þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss. Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti." 1. Jóhannesarbréf 1:8-9

Takið eftir því að Guð gerir anda okkar ekki ónæma fyrir syndinni, hvorki í þessu versi eða í nokkru öðru ritningarversi sem ég veit um. Tilgangur þess að skilja á milli anda og sálar er að skilja anda okkar frá áhrifum frá öllum okkar náttúrulegu ástríðum sem búa í sálum okkar, eða ”sjálfinu.” Þótt kristinn einstaklingur gangi með Guði, þá kemur hann engu af stað sjálfur. Þess í stað bíður hann hljóður eftir rödd Heilags anda og bregst við í samræmi við leiðbeiningu hans. Kristinn einstaklingur, sem er í meðvituðum tengslum við sinn eigin anda, bíður ekki í undirgefni eftir því að Heilagur andi tali til sín. Hann tekur frumkvæðið, og þá verða raddirnar sem hann heyrir í anda sínum að öllum líkindum ekki frá Heilögum anda.

Það er eitt annað málefni varðandi anda okkar sem ekki er talað um í kirkjunum en hefur skelfileg áhrif á fjölda fólks. Það er sú staðreynd, að hvenær sem Satan hefur færi á, mun hann nota andalíkama fólks án þess að það viti af því. “Hver sem hatar bróður sinn er manndrápari ......" 1. Jóhannesarbréf 3:15

Ég undraðist oft þetta vers áður en ég skildi þetta með andalíkamann. Hvernig gat nokkur verið morðingi vegna tilfinningar, haturs, ef hann skaðaði ekki líkamlega manneskjuna sem hann hataði?

Hatur er meðvituð synd. Og sem slík gefur hún Satan löglegan grundvöll í lífi okkar, ef við leyfum því að búa í hjarta okkar. Ef þú hatar einhvern, getur Satan komið inn og notað andalíkama þinn til að ráðast á manneskjuna sem þú hatar. Slík árás getur valdið allskyns veikindum, slysum, tilfinningavandamálum og jafnvel líkamlegum dauða. Persónan, sem hatar, verður yfirleitt aldrei vör við að Satan sé að nota andalíkama hennar. Persónan, sem er hötuð, veit yfirleitt aldrei hvaðan vandamálin koma í raun og veru. Þess vegna þurfum við að gæta þess vel að biðja Jesú að hreinsa og varðveita líkama, sál, og anda. Það er þess vegna sem Drottinn Jesús gaf okkur svo mörg boð um að fyrirgefa hvort öðru. Fyrirgefning stöðvar hatur. Sem kristið fólk ættum við að biðja Jesú reglulega um að hreinsa hjarta okkar af sérhverri synd.

“Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda." Sálmur 51:12

Auðsjáanlega hefur syndin í hjarta Davíðs haft áhrif á anda hans.

Ágætis útlistun á persónulegri reynslu kristins fólks, sem hefur orðið fyrir hatri frá öðru kristnu fólki, er að finna í bókinni The Latent Power Of The Soul, eftir Watchman Nee.

Að skipa sér í skarðið

Ert þú tilbúinn að skipa þér í skarðið fyrir einhvern?

“Og ég leitaði að einhverjum meðal þeirra, er hlaða vildi garð eða skipa sér í skarðið móti mér, landinu til varnar, til þess að ég legði það ekki í eyði, en ég fann engan. Þá úthellti ég reiði minni yfir þá, gjöreyddi þeim með eldi gremi minnar, ég lét

athæfi þeirra þeim í koll koma, segir Drottinn Guð."Esekíel 22:30-31

Hægt er að “skipa sér í skarðið” á nokkra mismunandi vegu. Oft getur verið nauðsynlegt að biðja Drottin um að fá að skipa sér í skarðið fyrir einhverja tiltekna persónu til þess að hún fái tækifæri til að heyra fagnaðarerindið án afskipta illra anda. Ég minni aftur á 2. Korintubréf 4:3-4:

“En ef fagnaðarerindi vort er hulið, þá er það hulið þeim, sem glatast. Því guð þessarar aldar hefur blindað huga hinna vantrúuðu, til þess að þeir sjái ekki ljósið frá fagnaðarerindinu um dýrð Krists, hans, sem er ímynd Guðs."

Í Esekíel 22:30-32 var Guð að leita af einhverjum sem væri tilbúinn til að berjast við Satan og hans illu anda, og hindra þá í því að blinda fólkið, svo að það sæi þörf sína fyrir frelsara. Vegna þess að Drottinn gat ekki fundið slíka persónu, þá sagðist hann verða að úthella reiði sinni og refsingu yfir fólkið vegna synda þeirra. Að endingu er það Jesús Kristur sem skipar sér í skarðið fyrir alla syndara. Þess vegna kom hann til jarðarinnar og dó - og bar refsinguna fyrir syndir okkar. Hvað sem því líður, þá gaf Jesús okkur fordæmi. Við getum ekki borgað fyrir syndir okkar né nokkurra annarra, en við getum barist fyrir aðra. Í þeim skilningi trúi ég því, að við getum skipað okkur í skarðið fyrir aðra.

Sem kristnir hermenn verðum við að vera reiðubúin til að skipa okkur í skörðin og berjast andlegri baráttu til þess að brjóta á bak aftur vald illra anda sem bindur hina ófrelsuðu. Páll setur þetta fram á auðskilinn hátt í Efesusbréfinu 6:12 :

“Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum."

Við biðjum oft á þennan hátt :

“Drottinn, láttu mig skipa skarðið fyrir __(persónuna)__ og berjast fyrir hana til þess að augu hennar opnist og hún verði frjáls frá ánauð illra anda og geti séð þörf sína fyrir Jesú.

Drottinn hefur sýnt okkur enn aðra leið til þess að skipa okkur í skarðið. Lítum á eftirfarandi vers:

“Nei, sú fasta, sem mér líkar, er að leysa fjötra rangsleitninnar, láta rakna bönd oksins, gefa frjálsa hina hrjáðu og sundurbrjóta sérhvert ok." Jesaja 58:6

“Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists.”Galatabréfið 6:2

“Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína." Jóhannes 15:13

Ritningarversin hér að ofan sýna okkur að Drottinn ætlast til þess af okkur að við hjálpum til við að bera byrðar og sár okkar kristnu bræðra og systra, og að berjast, hvenær sem nauðsynlegt er, til að losa þau undan oki. Að skipa sér í skarðið er ein leiðin til þess.

Ertu tilbúinn til þess að standa í skarðinu fyrir safnaðarleiðtogann eða prestinn þinn? Ef hann er í raun að boða Jesú og fletta ofan af Satan, eins og hann ætti að vera að gera, mun hann verða fyrir mikilli andstöðu. Þjónar Satans, sem þykjast vera kristnir, munu ráðast á hann með andalíkama sínum og mörgum illum öndum í hvert sinn sem hann stendur upp til að predika og einnig á öðrum stundum. Þessir þjónar Satans eru oft í háum valdastöðum innan kirkjunnar. Það er mikil þörf fyrir sterkt, heilbrigt, ungt fólk, sem er tilbúið að skipa sér í skörðin fyrir safnaðarhirðinn eða prestinn sinn, og biður Drottin um að leyfa sér að berjast fyrir hann. Með öðrum orðum, allt vald illra anda verður fyrst að komast fram hjá þér áður en það kemst að safnaðarhirðinum eða prestinum. Þetta hefur í för með sér þjáningar fyrir þig - bæði líkamlegar og tilfinningalegar. Þér mun kannski ekki alltaf takast að fara hvern sunnudag til kirkju, vegna þess að þú verður einfaldlega of veikur til þess. Þetta gæti haft í för með sér falskar ásakanir kirkjumeðlima sem segja, “Þú ert veikur vegna þess að þú ferð ekki í kirkju.” Ert þú tilbúin til að mæta slíkum fölskum ásökunum og tala ekki einu sinni um hverjar hinar raunverulegu ástæður fyrir fjarveru þinni eru? Að vera “múrskarðsfyllir” fyrir einhvern annan, er ein af leiðunum til að “fórna lífi sínu fyrir vin.”

Ég vil að eitt sé alveg ljóst. Með því að skipa sér í skarðið, tekur þú ekki við neinu frá illu öndunum. Tilgangur þinn er að standa í valdi Jesú Krists. Þú átt ekki að “taka við” veikindum né einhverri annarri ánauð. Þú verður að hasta á alla ánauð í nafni Jesú Krists og banna henni að hafa áhrif á þig eða á þá persónu sem þú ert að berjast fyrir. Sá er einmitt tilgangurinn með því að “skipa sér í skarðið.”

Þú getur ekki skipað þér sjálfur í skarðið. Eingöngu Drottinn getur gert það, vegna þess að hann einn stjórnar andalíkama þínum. Það sem þú verður að gera er að biðja Föðurinn um að setja þig þar, ef það er hans vilji að svo verði. Þú verður að vera tilbúinn að leyfa Föðurnum að nota þig á hvern þann hátt sem hann vill, öðrum til hjálpar. Þú getur ekki ákveðið sjálfur, hvernig þú verður notaður.

Eitt atriði verður að vera alveg ljóst. Þú verður varla var við þegar þú “skipar þér í skarðið.” Það er vegna þess að Drottinn hefur fullkomna stjórn á andalíkama okkar. Við “sjáum” ekki andaheiminn hvenær sem er, eins og efnisheiminn. Aðeins í sérstökum tilfellum leyfir Drottinn einstaklingum að sjá andaheiminn og þá aðeins í leiftursýn eða í stutta stund. Þú veist að þú ert eða hefur verið í skarðinu eingöngu þegar Drottinn opinberar það fyrir þér, eða vegna hinna margvíslegu líkamlegu vandamála, sem Drottinn mun staðfesta að séu vegna þess sem gerðist, þegar andalíkami þinn fyllti skarðið.

Hefur þú einhvern tíma upplifað tímabil ákafrar fyrirbænarneyðar og verið gjörsamlega uppgefinn á eftir? Það stafar af því að á meðan þú varst að biðja með holdlegum líkama þínum og huga, fór Guð með andalíkama þinn í styrjöld gegn valdi illra anda, sem þú varst að biðja gegn á vígvelli andaheimsins. Þreytan sem þú fannst fyrir er aðallega endurkast átaka andalíkamans. Áverkar sem andalíkami þinn verður fyrir, koma oft einnig í ljós sem ýmis einkenni á efnislíkamanum. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að efnislíkaminn geti breyst mikið vegna árása synda og þolir ekki að meðvitundin sé í andaheiminum nema í mjög stuttan tíma, án þess að verða mjög máttlaus. Nornir og seiðkarlar verða líkamlega gömul á mjög skömmum tíma. Þetta fólk borgar það dýru verði með líkama sínum, að samlagast andaheiminum svo oft.

Margir athyglisverðir ritningarstaðir staðfesta þetta. Sumir þeirra eru í Daníelsbók. Til dæmis í 8. kafla Daníelsbókar, þar sem Daníel segir okkur að hann hafi fengið sýn þar sem hann sá andaheiminn og talaði við engilinn Gabríel. Í lok þeirrar reynslu, segir Daníel: “En ég, Daníel, varð sjúkur um hríð. Því næst komst ég á fætur aftur og þjónaði að erindum konungs, og ég var mjög undrandi yfir sýn þessari, en skildi hana eigi." ( 8: 27 )

Einnig í kafla 10: “Ég, Daníel, sá einn sýnina, og mennirnir, sem með mér voru, sáu ekki sýnina, en yfir þá kom mikil hræðsla, og flýðu þeir í felur. Ég varð þá einn eftir og sá þessa miklu sýn. En hjá mér var enginn máttur eftir orðinn, og yfirlitur minn var til lýta umbreyttur, og ég hélt engum styrk eftir. Og ég heyrði hljóminn af orðum hans, og er ég heyrði hljóminn af orðum hans, hné ég í ómegin á ásjónu mína, með andlitið að jörðinni. Og sjá, hönd snart mig og hjálpaði mér óstyrkum upp á knén og hendurnar. Og hann sagði við mig: „Daníel, þú ástmögur Guðs, tak eftir þeim orðum, er ég tala við þig, og statt á fætur, því að ég er nú einmitt til þín sendur.`` Og er hann mælti til mín þessum orðum, stóð ég upp skjálfandi. Því næst sagði hann við mig: „Óttast þú ekki, Daníel, því að frá því er þú

fyrst hneigðir hug þinn til að öðlast skilning og þú lítillættir þig fyrir Guði þínum, eru orð þín heyrð, og ég er vegna orða þinna hingað kominn. En verndarengill Persaríkis stóð í móti mér tuttugu og einn dag, en sjá, Míkael, einn af fremstu verndarenglunum, kom mér til hjálpar, og hann skildi ég eftir þar hjá Persakonungum. Og nú er ég kominn til að fræða þig á því, sem fram við þjóð þína mun koma á hinum síðustu tímum, því að enn á sýnin við þá daga.`` Og er hann talaði þessum orðum til mín, leit ég til jarðar og þagði. Og sjá, einhver í mannslíki snart varir mínar, og ég lauk upp munni mínum, talaði og sagði við þann, sem stóð frammi fyrir mér: „Herra minn, sökum sýnarinnar eru kvalir þessar yfir mig komnar, og kraftur minn er þrotinn. Og hvernig ætti ég, þjónn þinn, herra, að geta talað við slíkan mann sem þú ert, herra? Og nú er allur kraftur minn að þrotum kominn, og enginn lífsandi er í mér eftir orðinn.`` Sá sem í mannslíki var, snart mig þá aftur, styrkti mig … ." Daníel 10:7-18

Þegar við berjumst með andalíkama okkar, þá tekur það einnig gífurlegan toll af okkar holdlega líkama. Og þegar við berjumst gegn valdi illra anda, gerum við það með andalíkama okkar frekar en okkar holdlega líkama. Þess vegna talar Páll svo oft um þá staðreynd, að barátta okkar sé ekki við hold og blóð. Við getum auðsjáanlega ekki barist í andaheiminum með holdlegum líkama. En þeir eru tengdir saman af Guði, svo að það sem kemur fyrir andalíkamann hefur óhjákvæmilega áhrif á efnislíkama okkar.

Barátta í andaheiminum

Við höfum nú þegar talað um helstu atriðin í sambandi við andlega baráttu okkar í andaheiminum, að hluta til þegar fjallað var um að “skipa sér í skarðið.” Það getur verið erfitt að skilja þessa hluti, vegna þess að þetta er eitthvað sem við fáum engu um ráðið og varla skynjum.

Ég vona að þið skiljið, að við erum sjálfar ennþá að læra um þessa hluti. Það er mikil dýpt í því sem skrifað er um í ritningunum. Við erum ennþá að leita og reyna að finna þekkingu frá Guði, við lítum ekki á okkur sem “sérfræðinga”, heldur fylgjum einfaldlega skipunum Meistara okkar um að deila því sem við höfum lært hingað til.

Þegar þú hefur skilið það að andi þinn er lifandi, virkur hluti af þér, sem getur gengið, talað, sungið, hugsað, beðið, lofað Drottin og barist í andaheiminum, þá verða mörg ritningarvers, sem erfitt er að ráða í, skiljanlegri. Til dæmis þegar við höfum í huga þá staðreynd að stór hluti af hugsunum okkar og líkamlegri orku fer í það að breyta rétt og vinna fyrir okkur, sjá um fjölskylduna o.s.frv., hvernig getum við þá framkvæmt eftirfarandi ritningarvers?

“Og þess vegna þökkum við líka Guði án afláts,...”1.Þessalonikubréf 2:13“Biðjið án afláts.”1.Þessaloníkubréf 5:17

Hugur okkar getur einfaldlega ekki beðið eða þakkað Guði án afláts í 24 tíma á dag, en þótt hugur okkar geti það ekki, þá getur andi okkar það.

“....mættu lifa í andanum með Guði.”1. Pétursbréf 4:6

Hvernig getum við lifað í andanum á þennan hátt? Með því að skuldbinda anda okkar Guði til þess að hann geti notað hann á þann hátt sem hann kýs.

Andalíkamar okkar geta hreyft sig, hugsað og talað, alveg eins og efnislíkamar okkar, og persónuleiki þeirra og hugarfar taka mið af efnislíkama okkar og sál. Ef þú kannt til dæmis ekki eitthvert ritningarvers, kann andalíkaminn það ekki heldur, en munurinn er sá að hann er miklu samstilltari Heilögum anda. Pétur segir okkur nokkrum sinnum að barátta okkar sé “ekki við hold og blóð”, heldur við andaverur. Þar sem efnislíkami okkar getur ekki barist gegn öndum í andaheiminum, verður andalíkami okkar að berjast. Þess vegna er það svo áríðandi að biðja Guð daglega um að færa okkur í herklæðin hans. Þessi barátta er stöðug og óvægin, og ef andalíkami okkar er ekki klæddur í herklæði Guðs þegar við berjumst, munum við fá margar hryllilegar skrámur frá “eldlegum skeytum” óvinarins (Efesusbréfið 6).

Sjálf getum við ekki tekið ákvörðun um það að fara að berjast í andaheiminum vegna þess að andi okkar er fullkomlega undir stjórn Jesú, meistara okkar. Við segjum Drottni einfaldlega að við séum reiðubúin að leyfa honum að nota anda okkar á þann hátt, ef hann vill. Oft bið ég Föðurinn um að fá að skipa mér í skarðið og berjast fyrir einhverja sérstaka persónu, en lokaákvörðunin er Föðurins. Þú munt fljótt læra að þekkja einkenni þreytu, sársauka, þunglyndis eða annarra veikinda í líkama þínum sem benda til þess að andalíkami þinn standi í harkalegri baráttu.

Það er skrýtin tilhugsun að andi okkar geti verið aðgreindur frá efnislíkamanum á rúmfræðilegan hátt, og það er mjög erfitt að veita því viðtöku. Páll lýsir slíkum kringumstæðum á heillandi hátt í eftirfarandi ritningarversi:

“Það er mér sagt að saurlifnaður eigi sér stað á meðal yðar, og það slíkur saurlifnaður, sem jafnvel gerist ekki meðal heiðingja, að maður heldur við konu föður síns. Og svo eruð þér stærilátir, í stað þess að hryggjast og gjöra gangskör að því, að manninum, sem þetta hefur drýgt, yrði útrýmt úr félagi yðar! Ég fyrir mitt leyti, fjarlægur að líkamanum til, en nálægur að andanum, hef þegar, eins og ég væri nálægur, kveðið upp dóm í nafni Drottins vors Jesú yfir manni þeim, sem þetta hefur drýgt: Þegar þér og minn andi eruð saman komnir með krafti Drottins vors Jesú." 1. Korintubréf 5:1-4 Það sem er mikilvægast hér, er sú staðreynd að andi Páls var þarna í Korintu eingöngu fyrir “kraft Drottins vor Jesús Krists.” (1. Kor. 5:4). Andi Páls var undir fullkominni stjórn Drottins, en ekki undir stjórn sálar sinnar.

Venjulega dvelur andi mannsins innan náttúrulega líkamans. Samt sem áður sýna margir ritningarstaðir að mannslíkaminn getur lifað áfram, þrátt fyrir að andinn aðskiljist frá honum. Því er ekki svo farið með sálina. Þegar sálin hefur yfirgefið líkamann, deyr hann. Því er það að margir ritningarstaðir, sem vísa til þess þegar líkaminn deyr, vísa líka til sálarinnar. Hvað sem því líður, á sér stað undarleg uppþornun í líkamanum þegar andinn er ekki til staðar.

Á þeim árum sem ég hef verið viðriðin þessa þjónustu, hefur Drottinn sýnt mér að uppþornun líkamans er alveg sérstök, á þann hátt að hún veldur bráðum prótínskorti. Ef við gætum okkar ekki á því að auka inntöku okkar á hágæða prótíni þann tíma sem við erum í harðri, andlegri baráttu, verðum við máttfarin. Ritningarnar hafa margt um þetta að segja.

Allt frá því er Guð gerði sáttmála við Nóa, þar sem hann skipaði honum að borða kjöt, hefur Satan verið að reyna að koma í veg fyrir að við mennirnir borðum kjöt. Það er athyglisvert, að Hindúar og iðkendur annarra austræna trúarbragða (misjafnar leiðir til að dýrka illa anda), trúa því að allur árangur iðkunarinnar fari eftir því hvað mikið af svokölluðu “akasa” sé í líkamanum. Telja þeir að það eyðist fljótt og að andarnir geti ekki starfað án þess. Þessu dularfulla "efni" segja Hindúarnir að sé eingöngu hægt að viðhalda í líkamanum með því að neyta grænmetisfæðu og lifa skírlífi.

Ef við hugsum málið, þá sjáum við að dropinn sem fyllti mælinn, ef svo má að orði komast, og varð til þess að dómur Guðs reið yfir sem Nóaflóðið, voru samfarir á milli manna og illra anda (1. Mósebók kafli 6). Ég trúi því ekki, að það hafi verið einhver tilviljun að Guð skipaði Nóa að byrja að borða kjöt eftir flóðið, þar sem hann vissi um þá andlegu baráttu sem Nói og afkomendur hans áttu eftir að ganga í gegnum til að halda illu öndunum í skefjum.

Þegar við skoðum Gamla testamentið og þau lög sem Guð gaf fólkinu sínu, Ísraelsmönnum, sjáum við að andlegir hermenn þeirra daga voru Levítar Ísraels. Ljóst er að í fæðu þeirra var mikið af nauta-og lambakjöti.

Ef nautakjöt er svona skaðlegt, hvers vegna tilreiddi Abraham þá nautakjöt Guði sjálfum til matar þegar hann kom að heimsækja hann? Abraham hefur örugglega borið fram það besta sem hann átti (sjá 1. Mósebók 18:1-7).

Ef við skoðum hina ýmsu andlegu hermenn, sem frægir eru í Gamla testamentinu, þá munum við komast að því að í hvert sinn er þeir fóru í stríð, undirbjó Guð þá með kjötmáltíð. Til dæmis Elía. Takið eftir því að máltíðin var tilreidd persónulega af Drottni, þegar Elía var að búa sig undir að standa frammi fyrir öllum spámönnum Baals.

“Og orð Drottins kom til hans, svolátandi: „Far þú héðan og hald austur á bóginn, og fel þig við lækinn Krít, sem er fyrir austan Jórdan. Og þú skalt drekka úr læknum, og hröfnunum hefi ég boðið að fæða þig þar.`` Hann gjörði sem Drottinn bauð honum, fór og settist að við lækinn Krít, sem er fyrir austan Jórdan. Og hrafnarnir færðu honum brauð og kjöt á morgnana og brauð og kjöt á kveldin, og úr læknum drakk hann." 1. Konungabók 17:2-6

Drottinn talar tæpitungulaust í Nýja testamentinu um þetta, og það er Páll sem skrifar.

“Andinn segir berlega, að á síðari tímum muni sumir ganga af trúnni og gefa sig að villuöndum og lærdómum illra anda. Þessu valda hræsnisfullir lygarar, sem eru brennimerktir á samvisku sinni. Það eru þeir, sem meina hjúskap og bjóða mönnum að halda sér frá þeirri fæðu, er Guð hefur skapað til þess að við henni sé

tekið með þakkargjörð af trúuðum mönnum, er þekkja sannleikann. Allt sem Guð hefur skapað er gott, og engu ber frá sér að kasta, sé það þegið með þakkargjörð. Það helgast af orði Guðs og bæn." 1. Tímóteusarbréf 4:1-5

Ég hef leitað vandlega í lyfjafræðiritum, og þrátt fyrir alla umræðu um þessi mál, eru einfaldlega engar áreiðanlegar rannsóknir sem sýna á afgerandi hátt að kjöt sé skaðlegt. (Athugið að ég er að tala um magurt kjöt, en ekki feitt. Drottinn sagði Ísraelsmönnum að borða ekki fitu, þegar hann gaf þeim lögmálið). Staðreyndin er sú, að mikið hefur verið gert af því að sýna fram á að prótín valdi mörgum sjúkdómum. En Satan hefur það mikil ítök í lyfjageiranum, að það er mjög erfitt að fá hinn almenna lækni til að beina sjónum sínum að gildi og nauðsyn prótíns.

Ef þú staldrar aðeins við og hugleiðir það, munt þú sjá að rauði þráðurinn í allri tísku og kennslu í heilsufæði, er að neyta ekki kjöts. Þetta er engin tilviljun. Þetta er vandlega úthugsuð ráðagerð Satans, vegna þess að hann veit mjög vel hver prótínsþörf líkamans er og hversu gífurlegum prótínmissi líkaminn verður fyrir vegna þátttöku í andlegum hernaði. Ef Satan getur haldið hermönnum Guðs frá kjötáti, þá veldur það miklu máttleysi og veikindum meðal þeirra vegna prótínskorts. Líkaminn missir fljótt hæfileikann til að berjast gegn sjúkdómum, ef skortur verður á prótíni. Margt fólk deyr að óþörfu á þessum tímum “nútíma læknavísinda”, vegna þess að læknar þeirra ráðleggja því ekki að auka prótínskammtinn.

Á þeim tíma, sem við vorum í hvað mestri baráttu, fannst okkur oft nauðsynlegt að borða kjöt, að minnsta kosti tvisvar á dag. Ef við gerðum það ekki, misstum við fljótt þrótt og urðum oft veikar líkamlega. Ég hef unnið með fjölda fólks sem varð mjög máttfarið þegar það varð fyrir miklum galdraárásum, og jafnvel veikt, einfaldlega vegna þess að það þekkti ekki grundvallarreglur Guðs varðandi inntöku prótíns. Því skánaði öllu mjög mikið þegar það jók kjötneyslu sína.

Þegar þú upplifir sársauka eða þunglyndi eða ert uppgefinn vegna þess að þú hefur verið á vígvelli andaheimsins, (eða út af einhverju öðru), gleymdu þá ekki einu mikilvægasta vopninu okkar - lofgjörðinni. Ég gleymi aldrei nóttinni, þegar Faðirinn kenndi mér þá lexíu. Ég var nýfarin upp í rúm og snéri mér og bylti og gat ekki sofnað. Ég var mjög niðurdregin. Ég var úrvinda af þreytu, með verki, og allt virtist ómögulegt. Reyndar var ég í minni eigin “sjálfsvorkunnarveislu”. Skyndilega leyfði Faðirinn mér að sjá með mínum andlegu augum að ég var á vígvelli, (það er að segja andalíkami minn), en ég var ekki að berjast. Ég var niðri á jörðinni, umkringd mörgum illum öndum sem hæddu mig og hentu í mig steinum. Mér var sama. Ég var svo þreytt að ég vonaðist til að þessir púkar myndu drepa mig, ég vildi ekki lifa. Það var ekki hægt að flýja, engin leið út úr þessum aðstæðum nema að standa upp og berjast, en á þessari stundu var ég of þreytt og niðurbeygð til þess.

Ég veit ekki hvort Elaine vissi hvað var að gerast, en ég veit að hún kom inn í svefnherbergið á þessari stundu vegna skipunar frá Drottni og setti eina af kassettunum okkar með kristilegri tónlist á. Ég var ekki í neinu skapi til að hlusta á tónlist, sérstaklega ekki kassettuna með öllum lofgjörðarsálmunum sem hún valdi. Elaine sagði ekki neitt. Hún sat bara og hlustaði á tónlistina. Ljúfur og þrautseigur sýndi Heilagur andi mér hversu rangt það væri að láta það eftir sér að vera með sjálfsvorkunn. Enn einu sinni furðaði ég mig á því hversu kærleiks- og náðaríkur Drottinn er, þegar okkur mistekst og við föllum. Ég gat ekki að því gert en ég varð að bregðast við svo stórkostlegum kærleika. Þegar ég byrjaði að syngja með lögunum, þá sá ég að ég byrjaði að rísa á fætur í andanum, og ég sagði við illu andana að mér væri sama hvað þeir gerðu, ég ætlaði að lofa Drottin fyrir hans stórkostlega kærleika.

Ég lyfti höfðinu og höndunum til himins og söng um þann kærleika, tilbeiðslu og lof, sem í hjarta mínu bærðist (bæði með anda og líkama). Þegar ég gerði það, kom skyndilega inn í andaheiminn skært, hvítt ljós, sem umvafði mig. Ég sá alla illu andana detta kylliflata á jörðina, og einn og einn hörfuðu þeir inn í myrkrið. Satan og illir andar hans geta ekki verið þar sem Drottinn er lofaður. Ég er viss um að það er þess vegna sem Páll skrifaði í 1. Þessalonikubréfinu 5:16

“Þakkið alla hluti...”

Því verri sem kringumstæður okkar eru, því öruggari getum við verið um að Satan og illir andar hans séu allt í kring um okkur. Þegar við færum þakkir og lofum Drottin, þá mun uppspretta vandamála okkar, Satan, fljótlega missa kraftinn, og við munum fá mikla blessun.

Þegar þú berst í ríki andans, mundu þá að sérhvert vopn og baráttuaðferð, sem minnst er á í Biblíunni, er tiltækt fyrir okkur. Sálmarnir eru sérstaklega gagnlegir. Ekki gleyma að biðja Föðurinn um að setja fætur þína á “Klettinn.” Drottinn sýnir þér og kennir þér, skref fyrir skref, það sem þú þarft að vita.

Ert þú viljugur að þjóna Drottni á þennan hátt?

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

14. kafli af 20 · 32 mín. eftirAndi mannsins, að skipa sér í skarðið og andaheimurinn