Áttundi kafli
Svört messa og mannfórnir
Elaine segir frá:
Mannfórnir eru málefni sem fáir eða engir fyrrverandi reglumeðlimir eru tilbúnir að tala um, af lagalegum ástæðum. Ég geri það eingöngu vegna þess að Drottinn býður mér það. Það er staðreynd að mannfórnir eru stundaðar í Bræðralaginu. Ég hef eytt mestum hluta lífs míns á sjúkrahúsum og skurðstofum vegna þess að ég neitaði staðfastlega að beygja mig fyrir Satan á þessu sviði. Ég neitaði einfaldlega að taka þátt í mannfórnum.
Vegna þess hve ógnarhratt mér miðaði upp valdastigann, komst ég fljótt í þá stöðu, að ég gat ákvarðað sjálf, hvað ég vildi gera og hvað ekki. Það er, hvað varðaði annað fólk. Ég var valdameiri en hinir Satanistarnir, og þeir gátu ekki gert mér neitt. Satan og djöflar hans gátu það aftur á móti. Mér hefur oft verið refsað og misþyrmt á hrottalegan hátt af djöflum, vegna óhlýðni minnar við Satan á þessu sviði. Ég hef fjórum sinnum fengið krabbamein og gengið í gegnum uppskurði og allan þann hrylling sem fylgir lyfjameðferðinni. Krabbameinið var af beinum völdum Satans sem refsing fyrir að neita að taka þátt í mannfórnum. Ég efast ekkert um að ég hefði fljótlega verið drepin ef Drottinn hefði ekki miskunnað mér og bjargað mér úr klóm Satans.
Siðir og athafnir í tengslum við fórnir manna og dýra eru örlítið mismunandi eftir svæðum. Á síðustu árum hefur fjöldinn allur af ungu fólki, sérstaklega á vesturströnd Bandaríkjanna, flækst í Satansdýrkun, í tengslum við rokktónlist, ýmiss konar dulspekilega hlutverkaleiki sem höfða til ímyndunaraflsins, (occultic role-playing fantasy games), og svo auðvitað vegna mikillar smölunar nýliða. Þessir sjálfstæðu hópar eru venjulega á kafi í dópi, mjög opnir, kærulausir og fyrirferðamiklir í gjörðum sínum og eru ekki í beinum tengslum við Bræðralagið. Margir af þeim vita ekki einu sinni um tilvist þess. Þetta eru hópar sem eru það kærulausir að margir af meðlimum þeirra eru teknir fastir fyrir glæpi á borð við misnotkun á börnum við helgiathafnir, mannfórnir, o.s.frv. Um það leyti sem ég sagði skilið við Satanismann, var kæruleysi þessa fólks vaxandi áhyggjuefni meðal leiðtoga Bræðralagsins. Þrátt fyrir þetta er Satan að verða svo djarfur að honum er í raun alveg sama, og svo sannarlega kærir hann sig kollóttan um, hve margt af þessu fólki endar í fangelsi fyrir glæpina sem það fremur. Satan veit að hann á ekki mörg ár eftir, og hann er að flýta sér að valda eins mikilli eyðileggingu á jörðinni og hann mögulega getur.
Í Bandaríkjunum eru átta “helgir dagar“ á ári hverju þar sem mannfórnir eru venjulega viðhafðar. (Mannfórnir eru einnig framdar á öðrum dögum af öðrum ástæðum, eins og í refsingarskyni og við frjósemisathafnir, o.s.frv.) Minni reglur, sem hafa ekki yfir nauðsynlegum aðstæðum að ráða, slást venjulega í hópinn með stærri reglum í nágrenninu við slík tilefni. “Helgu dagarnir” eru jól, páskar, hrekkjavaka, þakkargjörðarhátíðin, og dagar sem eru nálægt fyrsta degi vors, sumars, hausts og vetrar. (Satan vill óvirða hverja árstíð sem Guð gaf). Hrekkjavakan hefur, allt frá því að Drúídarnir hófu þann sið á Englandi, verið sérstakur helgidagur mannfórna fyrir Satan. Þannig er það enn í dag. Skyndileg fjölgun slysa í tengslum við hrekkjavökuna síðan krakkar byrjuðu á "trick-or-treat", er engin tilviljun. Þetta var vandlega skipulagt af Satanistum. Börnin, sem slasast eða deyja í tengslum við hrekkjavökuna, eru fórn til Satans.
Reglumeðlimum er sagt, að tilgangur fórnanna sé til "hreinsunar" svo að þeir geti tekið við "blessunum" Satans. Einnig að hver sem drekkur blóð fórnarlambsins eða etur hold þess, fái nýja djöfla og þar með aukið vald. Drykkja blóðs er mikilvægur þáttur í öllum athöfnum Satanista. Það er engin tilviljun, Satan reynir stöðugt að brjóta allar grundvallarreglur Guðs.
“Hver sá af húsi Ísraels og af útlendum mönnum, er búa meðal þeirra, sem neytir nokkurs blóðs, gegn þeim manni, sem neytir blóðs, vil ég snúa augliti mínu og uppræta hann úr þjóð sinni. Því að líf líkamans er í blóðinu, og ég hefi gefið yður það á altarið, til þess að með því sé friðþægt fyrir yður, því að blóðið friðþægir með lífinu. " 3. Mósebók 17: 10-11
Eins og reglufundirnir sjálfir, eru mannfórnir aldrei haldnar á sama stað tvisvar í röð. Flestir meðlimanna vita ekki af staðsetningunni, fyrr en fáum klukkustundum áður en þær hefjast. Fórnarathafnir eru alltaf haldnar á eins leynilegum og afviknum stöðum og hægt er. Í stærri borgum er þetta stundum vandamál, en yfirleitt er nóg af tómum eða yfirgefnum vöruhúsum og byggingum sem hægt er að nota. Bræðralagið heldur sjaldan mannfórnarathafnir utan dyra, nema þá helst á sérstaklega afviknum og einöngruðum stöðum, eins og á fenjasvæðum. Þetta á ekki við yngra og fífldjarfara fólkið, sem er á kafi í eiturlyfjum. Það hefur ekki miklar áhyggjur af öryggisráðstöfunum og þess vegna sér Bræðralagið til þess að margar af athöfnum þessara hópa séu uppgötvaðar af lögreglunni og þeir teknir höndum, eða þeim er einfaldlega útrýmt til þess að forðast vandræði. Því er alltaf haldið fram að þeir séu geðveikir, Bræðralagið kemur því til leiðar til þess að koma í veg fyrir að böndin beinist að Satanisma.
Sérstök nefnd er valin og starfrækt innan Bræðralagsins til að sjá um nauðsynleg tól og tæki og til þess að sjá um hreinsun eftirá. Satanistar innan lögreglunnar eru yfirleitt alltaf í þessum nefndum. Þeirra hlutverk er að koma í veg fyrir afskipti laganna varða. Tæki og tól, eins og altarið, í stórborgum gullaltari Satans, er flutt í venjulegum sendiferðabílum. Hægt er að setja það upp og taka niður á fljótlegan hátt. Líkin eru yfirleitt alltaf brennd. Frekar auðvelt er að losna við lík barna, og jafnvel er notast við sorpeyðingarstöðvar. Einstaka sinnum eru líkin brennd þar sem fórnarathöfnin átti sér stað, en þegar það er ekki unnt er venjulega ekkert vandamál að nota kirkjugarð í næsta nágrenni. Einnig eru líkbrennslur á dýraspítölum eða dýraathvörfum notaðar reglulega. Þessi öguðu og skipulegu vinnubrögð nefndarinnar við að skipuleggja fórnarathafnir og að hreinsa til á eftir, eru ástæðan fyrir því að mannfórnir hafa ekki komið fram fyrir sjónir almennings í fjölda ára.
Mikils öryggis er gætt við slíkar athafnir, og er fylgst stöðugt með lögreglurásinni allan tímann. Hver sem hefur orðið vitni að mannfórnarathöfn og reynir síðan að draga sig út úr reglunni, greiðir fyrir það með lífi sínu. Eina leiðin til að komast út er fyrir kraft Jesú Krists, og það er jafnvel ekki auðvelt. Djöflarnir fylgjast náið með öllum sem hafa einhvern tíman komið nálægt slíkum athöfnum, þó í litlum mæli sé.
Ég ætla hér á eftir að lýsa Svarta hvíldardeginum, sem einnig er kallaður Svarta messan þar sem ég var neydd til að vera viðstödd. Á þeim tíma var ég ekki orðin æðsti kvenprestur og mér var haldið fanginni. Svarti hvíldardagurinn er einu sinni á ári, þegar tungl er fullt um páskahelgina. Flestar keppnirnar í Kaliforníu, sem ég tók þátt í, voru haldnar rétt fyrir páska og náðu hámarki á Svarta hvíldardeginum á páskunum. Burtséð frá afleiðingunum, tókst mér alltaf að sleppa burtu rétt fyrir athöfnina. Satan sá til þess að ég fengi makleg málagjöld fyrir þá óhlýðni mína, en mér var alveg sama.
Ég var enn mjög ung þessa hræðilegu helgi, reyndar ennþá aðeins krakki, en minningarnar um hana kvelja mig ennþá og munu ætíð gera. Ég hafði verið meðlimur reglunnar í minna en ár. Æðsti kvenpresturinn tilkynnti mér að mjög mikilvæg athöfn væri í vændum og það væri “heiður” fyrir mig að mér væri “boðið,” en á sama tíma gerði hún mér ljóst að ég hefði ekkert val, að ég yrði viðstödd. Eingöngu þeir sem boðnir voru fengu að vera viðstaddir, og þeir urðu að vera viðstaddir. Fáir eru tilbúnir að kalla yfir sig reiði Satans með því að neita að vera viðstaddir, því þeir eru hræddir um að þeir endi þá sem altarisfórn á næstu “Svörtu messu”. Mér var ekki leyft að fara einsömul, en “meistarinn” minn (æðsti kvenpresturinn) og nokkrar aðrar nornir tóku mig með sér.
Samkoman var haldin í mjög stórri, afvikinni hlöðu sem hafði verið breytt lítillega sökum tilefnisins. Ég býst við að þar hafi verið um nokkur þúsund manns úr héraðinu í kring. Flestallir höfðu tekið einhver eiturlyf áður en þeir komu, og öllum var gefin drykkur, sem innihélt lyf og alkóhól, í byrjun samkomunnar. Ég forðaðist alltaf að neyta þessara eitruðu drykkja vegna þess að ég vissi um hættuna á því að sljóvgast. Of margir öfunduðu mig af því að vera í þjálfun sem æðsti kvenprestur. Háttsettir meðlimir reglunnar neyttu aldrei þessara lyfjadrykkja og fyrirlitu þá sem það gerðu.
Ég vissi ekki hvað var í vændum þegar ég gekk inn í hlöðuna með föruneyti mínu þetta kvöld. Það var föstudagskvöld - föstudagurinn langi. Samkoman átti að standa fram á sunnudag. Ég sá, að pallur var meðfram endilöngum veggnum í öðrum enda hlöðunnar. Uppi á pallinum var hásæti úr skíragulli. Hásætið var ætlað Satan. Þetta var auðsjáanlega mikilvæg uppákoma, fyrst Satan ætlaði að mæta í eigin persónu. Ég átti eftir að læra það seinna, að Satan krefst þess að tímasetning slíkra fórna sé hárnákvæm og að algjör samhæfing ríki á milli reglna vítt og breitt um Bandaríkin, vegna þess að Satan getur bara verið á einum stað á sama tíma. Tímasetningin verður að vera hárnákvæm, til þess að hann geti sinnt öllum samkomunum. Hann er ekki al-nálægur eins og Guð.
Þegar æðsti presturinn og æðsti kvenpresturinn stigu upp á pallinn, féll algjör þögn yfir viðstadda. Þögnin var svo algjör að heyra mátti saumnál detta. Þögnin stafaði af ótta. Allir voru hræddir um að verða valdir sem fórnarlamb. Á þeirri stundu var Satan ekki dýrlegum í augum neins og ekki í hávegum hafður. Kliður léttis fór um salinn þegar fórnarlambið var dregið sparkandi og öskrandi gegnum hliðardyr og upp á sviðið. Aðal páskafórnin er alltaf karlmaður. Einstaka sinnum er aukafórn, sem þá er kona, barn, eða dýr, en athöfnin snýst um fórn á karlmanni. Oft er puttaferðalangur gripinn nokkrum dögum fyrir athöfnina og er hans vandlega gætt þar til samkoman hefst. Þessi maður verður Jesús í augum Satans og alls lýðsins, og ímynduðum sigri Satans yfir Jesú á krossinum er fagnað.
Ég horfði með algjörum hryllingi á þegar kóróna með stórum, löngum þyrnum var keyrð inn í höfuðið á unga manninum. Þyrnarnir fóru það djúpt að þeir náðu inn að höfuðkúpu. Þá var hann afklæddur og laminn með svipu sem var með málmkúlum á endunum og kvalinn með göddum og rauðglóandi skörungi. Að endingu var hann negldur á viðarkross sem var reistur upp og settur ofan í holu í gólfinu beint fyrir framan miðjan pallinn. Ég gleymi aldrei fnyknum af brenndu og lemstruðu holdinu, öskrum fórnarlambsins, hvernig hann engdist angistarfullur og grátbað um miskunn. Lýðurinn urraði eins og hópur villidýra, og ómannlegar raddir margra djöfla, sem voru innan um lýðinn, tóku undir. Þeir hæddu og spottuðu manninn á meðan krossinn var reistur upp og látinn falla ofan í holuna. Þá var Satan kominn og sat hann í hásætinu og kinkaði kolli af velþóknun. Æðsti presturinn kastaði þvagi á fórnarlambið og meðlimir safnaðarins fleygðu saur í það, um leið og þeir fögnuðu ímynduðum sigri Satans og krupu síðan niður og tilbáðu Satan.
Satan birtist í mannsmynd eins og venjulega, klæddur í skínandi hvít klæði frá hvirfli til ilja. En í augunum var rauður eldsbjarmi, og hann kastaði höfðinu afturábak og spangólaði, öskraði og hló viðbjóðslegum sigurhlátri þegar æðsti presturinn keyrði langan nagla í gegnum höfuð mannsins, negldi það fast við krossinn og drap hann. Lýðurinn trylltist, öskraði, hrópaði og dansaði í brjálæðislegu algleymi út af "sigrinum." Hástöfum lýstu þeir því yfir, að faðir þeirra, Satan, ætti allan sigurinn og máttinn og heiðurinn. Satan lét sig svo hverfa stuttu síðar, til að vera viðstaddur aðra fórnarathöfn þessa Svarta hvíldardags.
Þegar hann var farinn, snérist samkoman upp í kynsvall. Fólk hafði samfarir við fólk, og djöflar við fólk. Allar mögulegar tegundir af kynferðislegum afbrigðileika voru stundaðar. Blóð fórnarlambsins var látið renna og blandað saman við eiturlyf og vínanda, og drukkið af æðsta prestinum og æðsta kvenprestinum og látið ganga á milli meðal lýðsins. Margir úr hópnum fóru upp á sviðið og vanvirtu líkið. Nóttin leið, meðan uppdópaður og djöfulóður skríllinn hélt áfram. Að lokum var höfuðið losað af búknum og fest upp, hluta af holdinu var blandað saman við eiturlyf og önnur efni. Þeir sem vildu fá meiri kraft átu hluta af blöndunni. Þriðja daginn, þegar víman byrjaði að renna af fólkinu, fór það að tínast heim, tveir og þrír í einu. Allir lýsandi því yfir að þeirra dýrðlegi faðir, Satan, hefði enn á ný unnið einn sigurinn enn yfir óvininum, Jesú Kristi.
Svartur hvíldardagur!- Þvílíkur skrípaleikur! Satan veit að þetta er bara skrípaleikur! Athöfnin sjálf á að tákna dauða Krists. Satan lýsir því yfir að Jesús Kristur hafi verið endanleg fórn fyrir hann, hann hafi sigrað Krist með því að drepa hann á krossinum. Satan lýgur því! Hann veit að hann var sjálfur sigraður á krossinum, ekki Jesús, og djöflarnir vita það líka. En fólkið veit það ekki. Ég er ein af þeim heppnu, ég uppgötvaði að þetta er allt saman lygi. Þetta er allt saman ólýsanleg, hræðileg lygi. Þú sem lest þessa bók, ég lýsi því hér með yfir, þú sem ert enn Satanisti, þú sem ekki hefur ennþá gert Jesú að Drottni og meistara, að SATAN VANN EKKI SIGUR Á KROSSINUM! Guðs orð lýsir því best:
“Hann fletti vopnum tignirnar og völdin, leiddi þau opinberlegafram til háðungar og hrósaði sigri yfir þeim í honum (vísar til dauðaJesú á krossinum).”Kólossusbréfið 2:15
JESÚS ER LIFANDI! Satan hefur ekki rétt á neinu okkar. Við getum verið frjáls frá ánauð Satans. Það eina, sem við þurfum að gera, er að biðja Jesú að gera okkur frjáls. Hann er búinn að greiða gjaldið. Því ekki að biðja til Jesú í dag? Á morgun gæti það verið of seint.