Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Annar kafli

Elaine

um 8 mín. lestur

Elaine segir frá:

Hjónaband foreldra minna var mjög ótraust. Faðir minn var drykkjumaður, sem trúði því að hann væri guðsgjöf til kvenna. Hann lék móður mína mjög grátt. Þegar ég fæddist, stóð hann við fótagaflinn á rúminu hennar og sagði henni hvað eftir annað að hann vildi að ég væri dauð, þangað til hún henti í hann vasa.

Fæðing mín var eins og hver önnur fæðing, eins og fjöldi annarra fæðinga um allan heim þann daginn, nema að því leyti að ég var vansköpuð. Ég var neflaus, án efrivarar, og það vantaði í mig efri góminn. Þetta heitir að vera með klofna vör og holgóma. Móðir mín vildi fá að sjá mig strax eftir fæðinguna, og í hennar augum var ég yndislegt barn, þrátt fyrir vansköpun mína. Hennar fyrsta spurning var, “Er ekki hægt að laga þetta? “

Hún lifði í algjörri fátækt. Hún átti enga peninga og hafði enga möguleika til að afla þeirra. Í þá daga var ekki hægt að leita til hins opinbera um aðstoð á sama hátt og hægt er að gera í dag, en móðir mín gafst ekki upp þrátt fyrir fátæktina.

Þannig vildi til, að á fæðingardeildinni var hjúkrunarkona sem hét Helena og hún hafði hjálpað til við fæðingu mína. Helena þekkti kringumstæður móður minnar og einnig hatursfulla afstöðu föður míns. Helena var ekki bara venjuleg hjúkrunarkona, hún var einnig mjög valdamikil norn og meðlimur í lítt þekktri en einni öflugustu trúarreglu í Bandaríkjunum í dag. Þessi trúarregla kallar sig Bræðralagið og er regla Satans-dýrkenda. Á þessum tíma gegndi Helena hlutverki svokallaðs "tengiliðs" innan reglunnar.

Tengsl hennar við móður mína áttu eftir að hafa afgerandi áhrif á allt mitt líf, og einnig líf Rebekku.

Daginn eftir fæðingu mína, gerði Helena móður minni tilboð. Ef móðir mín gæfi Helenu leyfi til að fá örlítið af blóði mínu, myndu hún og “vinir“ hennar sjá um að fjármagna og útvega bestu skurð-og lyflæknisþjónustu, sem völ væri á fyrir mig. Móðir mín skildi ekki af hverju Helena vildi gera allt þetta í staðinn fyrir það sem henni virtist aðeins smáræðis viðvik. Hún virtist aldrei hafa skilið þær útskýringar sem Helena gaf henni á blóðtökunni. En þar sem hana vantaði sárlega hjálp og Helena fullvissaði hana hvað eftir annað um að hún myndi ekki skaða mig neitt, samþykkti hún að lokum tilboðið, þar sem engin önnur lausn virtist í sjónmáli. Helena var aðlaðandi ung kona sem virtist hafa einlægan vilja til að hjálpa bæði mér og móður minni.

Það sem Helena útskýrði ekki fyrir móður minni var að þessi "kaup" á blóði mínu voru mjög mikilvæg fyrir hana. Þetta litla magn sem tekið var úr mér, var gefið annarri konu, sem heitir Grace. Grace var einnig í Satansreglunni. Hún var svokallaður æðsti kvenprestur. Kaupin á blóði mínu áttu að gefa Grace meira vald, meira svigrúm og hærri stöðu innan reglunnar. Helena öðlaðist einnig meiri kraft gegnum þessi viðskipti.

Helena tók blóðið og lét Grace fá það. Grace drakk síðan blóðið úr mér með viðhöfn, sem gaf bæði Grace og Satan yfirráð yfir mér og gerði mig að bústað margra djöfla frá þeirri stundu. Grace sendi, með leiðsögn Satans, marga sérhæfða djöfla inn í mig, til þess að móta og hafa áhrif á líf mitt, persónuleika og framtíð.

Móðir mín var ekki kristin, og ekki vissi hún heldur að það sem hún gerði myndi gera mig að "merktri" persónu, sem Satanistar gætu fylgst vandlega með, og að seinna í lífi mínu yrði það til þess að ég gengi í regluna sjálf. Hefði hún vitað það, myndi móðir mín aldrei hafa sagt, “Allt í lagi, þú getur fengið örlítið af blóðinu hennar.” Seinna á ævinni, þegar ég var sjálf orðin meðlimur í reglunni, varð ég vitni að mörgum slíkum viðskiptum, og ég varð alltaf mjög hrygg þegar ég hugsaði til þess hvaða afleiðingar það hefði fyrir framtíð barnsins.

Satan hafði nú keypt sér yfirráð. Nýfætt barn, þar sem djöflaandar áttu sér bústað og gætu vaxið og orðið mjög öflugir og virkir í lífi mínu. Eftir því sem ég varð meira og meira meðvituð um sjálfa mig, vissi ég jafnvel sem barn að eitthvað öðruvísi og sérstakt var að gerast innra með mér, en ég vissi ekki hvað það var.

Fjórum dögum eftir fæðingu mína, var haft samband við móður mína og sagt að hún gæti farið með mig á barnaspítala sem var í stórri heilsugæslustöð í nágrenninu. Þar myndi ég gangast undir marga uppskurði, mjög marga. Í raun tók það sextán ár að móta andlit mitt með lýtaaðgerðum. Einnig þurfti ég að eyða ófáum klukkutímum í tal-og heyrnarkennslu, einnig hjá tannsmiðum, og ýmislegt fleira. Þetta var byrjunin á margra ára þjáningu, einmanaleika og höfnun. Þjáningu, vegna þess að það var mjög kvalafullt í nokkra daga á meðan sárin voru að gróa eftir hvern uppskurð. Einmanaleika, vegna þess að ég var ekki eins og önnur börn. Höfnun, vegna viðbragða þeirra við vansköpun minni. Ég átti mjög fáa vini. Ég varð mjög ruddaleg og mikill slagsmálahundur. Ég lærði að slást og varð mjög fær í að verja mig. Það varð svo mikil röskun á skólagöngu minni vegna uppskurðanna að ég átti í erfiðleikum með að halda í þau fáu vináttusambönd sem ég hafði myndað.

Börnin í skólanum virtust hafa yndi af því að pikka, pota og hrinda, og þau gerðu gys að mér þangað til ég gat ekki þolað þetta lengur. Við fluttum frá einum skólanum til annars, svo að ég var aldrei í sama skólanum tvö ár í röð. Foreldrar mínir héldu að það myndi hjálpa til, ef ég þyrfti aldrei að standa augliti til auglits við sömu skólakrakkana tvö ár í einu. En ég þurfti þess samt, ár eftir ár. Allir skólarnir voru eins, viðbrögðin voru þau sömu, ekkert breyttist. Ár eftir ár leið í örvæntingu.

Móðir mín gifti sig aftur stuttu eftir að ég fæddist. Foreldrar mínir fóru aldrei í kirkju. Þau bönnuðu mér ekki að fara, en þau fóru ekki sjálf. Þau hafa sjálfsagt bæði beðið eftir að hinn aðilinn myndi stíga fyrsta skrefið, og eins og gerist hjá flestum, verður ekki neitt úr neinu ef þú bíður nógu lengi eftir því að einhver annar taki fyrsta skrefið.

Ég gerðist loks þátttakandi í unglingastarfi í kirkju nokkurri. Þetta var nokkuð athafnasamur hópur í Hvítasunnukirkju. Ég var þá sextán ára gömul, og ég var tekin inn í unglingastarf kirkjunnar af því að ég gat sungið og spilað, bæði á gítar og trommur. Ég hafði ýmsa hæfileika á tónlistarsviðinu, og einnig á öðrum listasviðum. Þetta var frekar ánægjulegur tími fyrir mig en stuttur.

Er ég óx úr grasi uppgötvaði ég að innra með mér voru einhver óútskýranleg öfl, sem ég vissi ekki hvað ég átti að gera við og vissi ekki hvað var eða hvaðan krafturinn kom. Sumt fólk sagði mér að ég hefði sérstakar “gáfur.“ Ég átti frænku, sem var djúpt sokkin í galdra og spíritisma. Hún var vön að fá okkur krakkana yfir til sín, svo hún gæti sýnt okkur dulspekileiki.” Allt fráupphafi sýndi ég yfirburða færni í andaglasi, tarotspilum o.s.frv. Þegar ég komst á unglingsárin, gerði ég mér grein fyrir að ég átti alltaf auðveldara og auðveldara með að stjórna öðrum. Einnig var ég óvenju sterk líkamlega.

Ég man eftir því, að í fyrsta bekk í menntaskóla var lesbísk stelpa að abbast upp á mig eftir einn leikfimistímann. Ég fylltist óstjórnlegri bræði og var næstum búin að drekkja henni í klósettskál. Hún var miklu stærri en ég, en ég hefði drepið hana ef nokkrir kennarar hefðu ekki blandað sér í málið.

Ég var í sama skólanum öll menntaskólaárin mín. Krakkarnir þar gerðu einnig grín að mér. Verst af öllu er þegar jafnaldrar manns niðurlægja og gera grín að manni. Og það kom að því að ég fékk nóg. Þegar ég var í 12. bekk, var ég eitt sinn á gangi í skólanum, þegar einn aðalleikmaðurinn í fótboltaliðinu hrópaði upphátt, "Sjáiði ljótu vör.” Ég man að ég sleppti skólabókunum mínum og hljóp á eftir honum. Það næsta sem ég man var að fimm kennarar voru að toga mig af honum. Ég hafði næstum því barið hann til dauða. Ég nefbraut hann, kjálkabraut, og mörg önnur bein í andliti hans voru einnig brotin. Ég var óeðlilega sterk. Þessi strákur var hátt í 90 kg. en ég var aðeins um 49 kg. á þessum tíma. Ég var ekki með skrámu eftir átökin, ekki einu sinni á hnefunum.

Mér fannst þessi kraftur ógnvænlegur, en samt naut ég þess búa yfir honum. Það var eingöngu hans vegna sem ég fékk smávegis frið. Enginn komst upp með að stugga við mér. Í dag minnist ég þessa með hryggð, en á þeim tíma virtist þetta vera þess virði, þó ekki væri nema til þess að fá smá frið. En fljótlega komst ég að því að allur friðurinn var úti vegna lyga Satans, og iðraðist ég þess lengi á eftir og geri reyndar enn þann dag í dag. Ég er mjög þakklát fyrir að Jesús elskaði mig allan tímann, þrátt fyrir að ég gerði mér það ekki ljóst þá. Ég elskaði þennan kraft sem ég vissi ekki hvaðan kom, og mig langaði til að vita hvernig ég gæti fengið meira af honum. Þá eignaðist ég vinkonu sem hét Sandy. Við kynntumst í unglingahópnum í kirkjunni og við sóttum einnig sama menntaskólann. Sandy, sem var 17 ára eins og ég, var meðlimur í Satanistareglu. Hún hafði það hlutverk í reglunni að safna nýliðum, og þá var komið að næsta skrefi sem Satan hafði fyrirhugað mér.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

2. kafli af 20 · 8 mín. eftirElaine