Tíundi kafli
Kynnin
Innan tveggja vikna frá þeim degi, er ég gerði Jesú að Drottni mínum og leiðtoga í stað Satans, varð ég alvarlega veik. Ég hafði flúið í aðra borg og það vildi svo til að það var borgin þar sem Memorial-sjúkrahúsið var staðsett. Ég féll saman í vinnunni, og það var farið með mig á bráðavaktina í sjúkrabíl. Ég þekkti ekki neinn lækni í þessari borg og var þess vegna í umsjá þeirra lækna sem voru á vakt í það og það skiptið. Ég var hræðilega veik, með mikla verki, og mjög einmana og hrædd. Það var í þessu ástandi, er ég lá þarna á óþægilegum vagni inni á bráðavaktinni, sem Rebekka kom inn í líf mitt.
Mér var brugðið. Í fyrsta lagi hafði ég aldrei haft lækni sem var kvenmaður. Í öðru lagi var hún bæði ung og falleg. Meira en það, það geislaði eitthvað frá henni sem ég gat ekki hent reiður á, en fann engu að síður sterklega fyrir. Djöflarnir í mér fundu einnig fyrir þessu, og þeim líkaði það alls ekki. Ég fann að þeir byrjuðu að hlykkjast og engjast til og frá, nöldrandi við mig um það að ég skyldi ekki hafa neitt með þessa persónu að gera.
Mér leið ömurlega, meðan hún talaði við mig, en augu mín virtust vera negld við kragann á hvíta sloppnum hennar, þar sem hún var með gullnælu sem á stóð, "Jesús er lífið." Að lokum varð forvitni mín feimninni yfirsterkari, og ég teygði mig til að snerta hana og spurði,
"Ert þú kristin?"
"Já," svaraði hún, brosandi, "en þú?"
Ég kinkaði kolli. "Ég varð kristin fyrir tveim vikum síðan."
"Gott hjá þér!" sagði hún hlýlega, "Það er sú mikilvægasta ákvörðun sem manneskja getur nokkurn tíma tekið."
Í annað sinn talaði hin hlýja, hljóða rödd innra með mér og sagði, "Hlustaðu vel á þessa ungu konu, hún er þjónn minn, og hún mun kenna þér margt af því sem þú þarft að vita." Ég vissi þegar að þetta var rödd Drottins, en ég var enn of hrædd og óörugg til þess að treysta því fullkomlega. Þetta var mörgum mánuðum áður en ég náði því stigi að treysta Drottni og Rebekku. Rebekka skráði mig á sjúkrahúsið þetta kvöld. Næsta morgun komst ég að því, mér til mikilla vonbrigða, að hún átti ekki að vera aðallæknirinn minn. Ég var skráð hjá ungum manni, sem var lægra settur en hún, og mér líkaði skelfilega illa við. Ég býst við því að honum hafi ekki líkað við mig heldur. Hann trúði ekki að ég væri kvalin, eða að ég væri veik yfirleitt. Ég var sárkvalin og grét margar nætur og daga út af afstöðu og afskiptaleysi þessa unga manns.
Á öðrum degi eftir skráningu mína, kom Rebekka aftur til að tala við mig. Hún kom með Biblíu, sem hún gaf mér. Aftur var mér brugðið. Læknar ganga ekki bara um og gefa sjúklingunum Biblíur! Að minnsta kosti vissi ég ekki til þess. Hún gaf mér ekki einungis Biblíu, heldur setti hún mér fyrir hvað ég ætti að lesa og bað með mér!
Það fyrsta sem hún sagði mér að lesa var Jakobsbréfið. Þegar ég las það varð ég stöðugt reiðari og reiðari, þar sem það kom við samvisku mína hvað eftir annað. Djöflunum líkaði ekki við það heldur. Við vorum öll í sérstaklega fúlu skapi, þegar hún kom aftur næsta dag. Reyndar var ég svo reið, að ég henti Biblíunni í átt til hennar. Hún vék sér bara undan, tók hana upp, hló, og sagði:
"Hvað er að? Var orð Guðs að hreyfa við einhverju óþægilegu? Þetta skaltu lesa næst...."
Bæði djöflarnir og ég vorum alveg öskurreið yfir því að reiði okkar virtist ekki hafa hin minnstu áhrif á hana! Þetta var fyrsta stundin af mörgum þar sem við Rebekka skoðuðum orð Guðs saman.
Hægt og sígandi hófst andlegur vöxtur minn. Djöflarnir voru í miklu uppnámi vegna þess. Eftir þetta yfirgnæfðu djöflarnir mig hér um bil alltaf þannig, að þeir töluðu við Rebekku en ekki ég. Þeir voru allt annað en kurteisir þegar þeir reyndu að hrekja hana frá mér. Hvern dag, hélt ég að ég mundi örugglega ekki sjá hana aftur, en hún hélt alltaf áfram að koma aftur.
Rebekka segir frá:
Þegar ég hitti Elaine í fyrsta sinn, hafði ég ekki hugmynd um hver hún var, eða um tengsl hennar við Satanisma. Ég keypti Biblíuna handa henni, vegna þess að Drottinn sagði mér að gera það. Ég gerði mér ekki grein fyrir því þá, að mestallan tímann var ég að tala við illu andana innra með henni en ekki við Elaine sjálfa. Hún var viðurstyggileg! Eða illu andarnir voru það, öllu heldur. Hún gerði mig reiða, þess vegna lét ég hana lesa Jakobsbréfið fyrst, vegna þess að í því er mikið talað um að temja tunguna.
Elaine dvaldist fyrst á sjúkrahúsinu í sex vikur. Við settum hana í allar þær rannsóknir sem völ var á, og samt gátum við ekki fundið hvað var að. Þá hafði ég ekki lært neitt um sjúkdóma vegna illra anda, og öllum bænum mínum um handleiðslu í málefnum hennar, virtist af ásettu ráði ekki vera svarað. Hinir læknarnir komust allir að þeirri niðurstöðu að ekkert væri að henni, en ég var ekki sátt við þá niðurstöðu. Engu að síður var hún að lokum útskrifuð.
Tveim dögum síðar, um helgi þegar ég var á vakt, kom Elaine á bráðavaktina. Ég bar ábyrgð á henni þar til undirmaður minn kæmi aftur á mánudeginum. Hún kvartaði um sömu verki og sjúkdómseinkenni. Þetta var erfið staða. Ég var viss um að hún væri veik, en vissi ekki hvað gæti verið að. Hún spurði mig krefjandi spurningar: “Læknir, hvers vegna er ég veik ennþá? Ég hef jafnvel beðið öldungana um að smyrja mig með olíu og biðja Guð um lækningu. Hvers vegna svarar hann ekki? Hef ég gert eitthvað rangt? “
Þetta var áskorun. Ekki einungis það að ég vissi ekki hvað var að gerast í líkama hennar, heldur hafði Drottinn kosið að vera undarlega hljóður um málefni hennar, þrátt fyrir allar bænir mínar þegar ég leitaði eftir handleiðslu hans. Ég sagði Elaine, að ég vissi ekki af hverju Drottinn valdi að lækna hana ekki, en ég væri viss um að Drottinn hefði ástæðu fyrir því. Ég skrifaði niður fyrirmæli varðandi hana og hélt að ég gæti einfaldlega látið hana í hendurnar á læknanemanum mínum og einum af sérfræðingunum og ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af henni meir. En Drottinn og Elaine höfðu aðra áætlun!
Elaine segir frá:
Fram til þessa hafði ég verið tiltölulega örugg á sjúkrahúsinu. Satan og djöflarnir eru ekki alnálægir eins og Drottinn, og því berast fréttir ekki alltaf mjög hratt á milli í ríki hans. Enginn á sjúkrahúsinu hafði vitað um brotthlaup mitt frá Satan yfir til Krists. En nú var það breytt. Margir af læknunum og hjúkrunarkonunum voru Satanistar, og sögurnar voru komnar á kreik. Það átti að drepa mig fyrir að svíkja Satan. Ég eyddi öllum tíma mínum í að berjast fyrir lífi mínu. Ég var miklu sterkari en allir Satanistarnir þar og sigraði þá auðveldlega.
Ég vissi ekki að það var ekki rétt að nota vald mitt, en Satan og djöflarnir héldu áfram að láta mig nota það vegna þess að á meðan ég gerði það, þá gat ég ekki vaxið andlega eins og ég átti að gera. Auðvitað sagði ég Rebekku ekki frá neinu af þessu. Ég treysti henni ekki ennþá, en hún var svo ólík öðrum læknum sem ég hafði kynnst, að ég var fastákveðin í því að gera hana að lækninum mínum.
Næsta dag, þegar sérfræðingurinn kom til að líta á mig, þá kannaðist ég strax við hann. Hann var einn af háttsettustu Satanistum borgarinnar. Mér hafði aldrei líkað við hann. Viljandi fór ég í baráttu við hann og djöflarnir í mér tóku hann rækilega í gegn. Í sannleika sagt, þá var hann svo illa farinn líkamlega eftir þessi fyrstu átök að hann gat ekki komið til vinnu á sjúkrahúsinu í þrjá daga. Það tók bara eina viku að fá hann til að hata mig og hræðast svo mikið að hann neitaði að líta á mig aftur, sem var nákvæmlega það sem ég vildi. Það var annað mál með læknanemann. Hann var ekki Satanisti og ekki heldur kristinn. Honum líkaði illa við mig, en hann var skyldugur til að sinna mér.
Ég gerði honum lífið eins erfitt og ég gat. Ég fór úr líkamanum, inn í íbúðina hans og skrifaði út um alla veggina mjög dónaleg skilaboð með svörtum tússpenna, síðan skrifaði ég nafn mitt undir. Ég fleygði diskum í hann þegar hann var heima og mörgum sinnum tók ég ísskápinn úr sambandi, þannig að allur maturinn í honum eyðilagðist. Í hvert sinn sem hann reyndi að sýna einhverjum skilaboðin á veggjunum, sagði einn af djöflunum mínum mér frá því með fyrirvara. Þá gat ég sent hann til að hreinsa veggina algjörlega, áður en einhver annar gat séð skriftina. Hann lærði það fljótt að hann gat ekki sagt neinum frá því sem gerðist, vegna þess að allir héldu að hann væri að verða geðveikur.
Hann lærði að hata og óttast mig það mikið, að innan tveggja vikna neitaði hann einnig að koma nálægt mér. Þá var bara Rebekka eftir. Frá henni streymdi kærleikur sem ég skildi ekkert í, en dróst samt sem áður að. Mér fór fljótlega að þykja vænt um hana og innst inni vissi ég að hún var sú eina sem gat veitt mér svörin við því, hvernig ég gæti orðið frjáls.
Rebekka segir frá:
Léttir minn vegna málefna Elaine stóð ekki lengi yfir. Það liðu ekki tvær vikur frá því hún var lögð inn þar til læknaneminn kom til mín og sagði að sér væri sama hverjar afleiðingarnar yrðu, hann vildi ekkert meira hafa með Elaine að gera, og eftir fyrstu vikuna kom sérfræðingurinn og sagði mér að honum væri sama hvað ég gerði við Elaine. Hann hefði þvegið hendur sínar og kæmi ekki nálægt henni meira. Ég var í vanda! Ég vissi ekki heldur hvað ég átti að gera við hana!
Þótt ég hitti Eleaine á hverjum degi, þá virtumst við bara komast á einhvern tiltekinn stað í hennar andlega vexti, en þá kom alltaf einhver hindrun. Oftast var hún alveg andstyggileg . Ég vissi ekki að djöflarnir hið innra með henni voru að reyna að hrekja mig í burtu. Ég vissi ekki einu sinni að hún var andsetin! Oft og mörgum sinnum þegar ég var alveg ráðalaus, vildi ég bara segja við hana að hún væri útskrifuð og það væri ekkert meira sem ég gæti gert til að hjálpa henni. Alltaf þegar ég komst að þessari niðurstöðu, leyfði Drottinn Satan að freista mín þannig að ég félli og mistækist og þyrfti að biðja Drottin auðmjúklega fyrirgefningar. Þegar ég gerði það, þá sagði hann alltaf við mig, “Sjáðu nú þolinmæðina, sem ég þarf að sýna þér. Getur þú ekki sýnt þessa sömu þolinmæði gagnvart barninu mínu, Elaine?” Auðvitað sigraði Drottinn alltaf! Aftur bað ég Drottin að gefa mér sinn kærleika gagnvart Elaine, og næsta dag fór ég aftur að hitta hana.
Eftir um það bil þrjár vikur tók ég þetta að lokum föstum tökum og eyddi heilli helgi í bæn og föstu, ég bað Drottin að gefa mér lykilinn að málefnum Elaine. Seint á sunnudagskvöldið talaði Drottinn við mig og sagði, "Þú hefur ekki talað við Elaine um þátttöku hennar í dulspekinni." Þá virtist þetta allt svo auðskilið. Ég hefði átt að þekkja einkennin, en Satan hafði blindað mig.
Á mánudagsmorguninn fór ég til Elaine og sagði við hana að það væri eitt málefni, sem við hefðum ekki enn talað um.
"Hvað er það?"
"Djúp tengsl þín við dulspekina."
Henni brá augljóslega. Hún sat og starði á mig hljóð í heila mínútu.
"Hvernig vissir þú um það?"
"Ég eyddi helginni í föstu og bæn og bað Föðurinn að opinbera það fyrir mér, hver væri lykillinn að máli þínu. Hann sagði mér það."
Ég sagði henni, að sem kristin kona yrði hún að játa alla aðild sína að dulspeki fyrir Drottni, viðurkenna hana sem synd og biðja hann síðan um fyrirgefningu og biðja hann að taka þetta allt í burtu og loka öllum dyrum með dýrmætu blóði sínu. Hún var algjörlega á móti því. Að lokum sagði ég í örvæntingu: “Elaine, ég get ekkert gert. En ég veit hver getur það, og það er Drottinn. Ég ætla að biðja núna og fela þig í hans hendur og biðja hann um að kljást við þig.” Ég gerði það og fór.
Elaine segir frá:
Mér hefur aldrei brugðið eins mikið á ævinni eins og þegar Rebekka gekk rólega inn þennan dag og spurði mig um aðild mína að dulspeki. Ég vissi að það gat bara verið frá tveim stöðum sem hún hefði fengið þær upplýsingar. Annað hvort frá Satan eða frá Guði. Þetta voru mikil umskipti í lífi mínu. Þegar Rebekka bað Drottin um að “kljást við mig,” gerði hann það svo sannarlega! Staðreynd málsins var sú að Rebekka bað þessarar bænar daglega frá þeirri stundu. Mér var meinilla við það, en Drottinn braut á bak aftur öll afskipti djöflanna, og næstu daga og vikur byrjaði ég smám saman að skilja, að sem kristin kona yrði ég að gera Jesú að algjörum leiðtoga lífs míns, jafnt og frelsara.
Traust mitt og væntumþykja á Rebekku óx stöðugt. Ég gerði mér ljóst, hve mjög hún var trúföst Drottni og reyndi að taka hana mér til fyrirmyndar. Ég komst að því hjá henni, að samningurinn, sem ég hafði undirritað með blóði mínu nokkrum árum áður, væri algjörlega fallinn úr gildi vegna blóðs Jesú. Baráttan var ekki auðveld, hvorki fyrir mig né Rebekku. En á hverjum degi óx ég smám saman meira á andlega sviðinu, og líkamlegu vandamálin löguðust, vegna náðar Guðs. Að lokum kom sá dagur að Rebekka sagði mér að hún hefði fengið leiðbeiningu frá Drottni um að það væri kominn tími fyrir mig að læra að standa á eigin fótum gegn Satan, utan spítalans. Og ég var útskrifuð í síðasta sinn.