Fimmtándi kafli
Hvers vegna þurfum við að berjast?
Rebekka segir frá:
Spurningin, sem svo margir spyrja okkur, er: “Hvers vegna ættum við að berjast?” Mjög margt kristið fólk í dag lifir við mikil þægindi og velmegun og kærir sig náttúrulega ekki um neina röskun á högum sínum. Það segir: “Því ættum við að þurfa að berjast? Kristur vann fullkominn sigur fyrir okkur á krossinum. Hvers vegna ættu þá kristnir menn að þurfa að verða baráttufólk og stríðsmenn? Það eina sem kristnir menn þurfa að gera, er að lýsa því yfir að Jesús sé þegar búinn að sigra.” Hér á eftir mun ég fjalla um þetta málefni.
Fyrst skulum við sjá, hvað Jesús sjálfur hafði um þetta að segja þegar hann var hérna á jörðinni. Ég held að við finnum ekki betri uppsprettu þekkingar.
“Ætlið ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki að færa frið, heldur sverð. Ég er kominn að gjöra son andvígan föður sínum, dóttur móður sinni og tengdadóttur tengdamóður sinni. Og heimamenn manns verða óvinir hans. Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður. Hver sem tekur ekki sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður. Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það." Matteus 10:34-39
Takið eftir því sem Jesús segir í versi 34: “Ætlið ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki að færa frið, heldur sverð.” Þetta er í andstöðu við “friðar-og kærleiksboðskapinn,“ sem er kenndur svo víða. Þá segir Jesús í versi 39, “Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það.” Kristindómurinn hefur “ofbeldi” í för með sér ef við stundum hann eins og Guð vill að við gerum. Að týna lífi sínu, hefur ekki í för með sér friðsæla sambúð við heiminn..
“Sjá, ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur. Varið yður á mönnunum. Þeir munu draga yður fyrir dómstóla og húðstrýkja yður í samkundum sínum. Þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna þeim og heiðingjunum til vitnisburðar. En þá er menn draga yður fyrir rétt, skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því, hvernig eða hvað þér eigið að tala. Yður verður gefið á sömu stundu, hvað segja skal. Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur andi föður yðar, hann talar í yður. Bróðir mun selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða. Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða. Þegar þeir ofsækja yður í einni borg, þá flýið í aðra. Sannlega segi ég yður: Þér munuð ekki hafa náð til allra borga Ísraels, áður en Mannssonurinn kemur. Ekki er lærisveinn meistaranum fremri né þjónn herra sínum." Matteus 10:16-24
Við verðum að “standa allt til enda.” Jesús býður okkur aldeilis ekki upp á “dans á rósum” eins og svo margt fólk virðist halda.
“Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi ogblóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessamyrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum."Efesus 6:12
Hérna leggur Páll áherslu á að barátta okkar sé háð í andaheiminum. Í Matteusarguðspjalli 10:16-24 er Jesús að tala um efnisheiminn og ofsóknirnar í honum en Páll leggur hér áherslu á andlega heiminn og þessir tveir heimar eru tengdir. Í dag er ekki enn orðið mikið um beinar líkamlegar ofsóknir, að minnsta kosti ekki víða í hinum vestræna heimi, en ég efast um að það líði á löngu þar til slíkar beinar, líkamlegar ofsóknir verði að veruleika. En þangað til er barátta okkar aðallega á andlega sviðinu.
“Þú skalt og að þínu leyti illt þola, eins og góður hermaður KristsJesú. Enginn hermaður bendlar sig við atvinnustörf. Þá þóknasthann ekki þeim, sem hefur tekið hann á mála."2. Tímóteusarbréf 2:3-4
“Þér elskaðir, mér var það ríkt í huga að rita yður um sameiginlegt hjálpræði vort. En nú kemst ég ekki hjá því að skrifa og hvetja yður til að berjast fyrir þeirri trú, sem heilögum hefur í eitt skipti fyrir öll verið í hendur seld." Júdasarbréfið 3
Af hverju ættum við að berjast? Svarið er augljóslega, vegna þess að Guð vill að við gerum það. Þessi og mjög mörg önnur ritningarvers sýna berlega vilja Guðs. En margir spyrja: “Af hverju vill Guð að við berjumst, þar sem hann er þegar búinn að berjast fyrir okkur?”
Ég hef leitað í einlagni eftir svari við þessari spurningu. Auðvitað hugsa ég um allt þetta, ég þurfti að spyrja sjálfa mig þessarar sömu spurningar. Hvers vegna hef ég þjáðst og tapað svona miklu til þess að geta barist, ef það er ekki nauðsynlegt? Ég vil deila því svari með ykkur sem Drottinn gaf mér við þessari spurningu.
Aðalástæðan er sú, að vegna þess að ég hef gert sáttmála. Það vill svo óheppilega til, að þegar fagnaðarerindið er boðað á okkar dögum, þá er það á þennan hátt: “Jesús dó fyrir syndir þínar, biddu hann um að fyrirgefa þér syndir þínar og allt verður dásamlegt.” Ekkert er sagt um þá staðreynd að þú getur ekki fengið Jesú til að fyrirgefa syndir þínar nema þú gefist honum. Guðs orð hefur verið predikað í svo mörg ár á þann hátt, að það að frelsast sé eins og einstefnugata. Jesús gerir allt, og þú þarft ekki að gera neitt.
Þetta er ekki rétt. Það er ekki það sem Jesús sagði sjálfur. Hann sagði að ef þú tekur ekki upp krossinn og afneitar sjálfum þér og fórnar jafnvel lífinu fyrir trúna á hann, þá ert þú ekki hans verður. Hann segist gefa þeim endurlausn sem þreyja allt til enda. Hann lofar engu um það að endurleysa og gefa þeim eilíft líf, sem halda ekki út allt til enda. Þessi hugsun kemur fram nokkrum sinnum hjá Páli postula, til dæmis í Hebreabréfinu:
“en Kristur eins og sonur yfir húsi hans. Og hans hús erum vér, efvér höldum djörfunginni og voninni, sem vér miklumst af."Hebreabréfið 3:6
"Því að vér erum orðnir hluttakar Krists, svo framarlega sem vér höldum staðfastlega allt til enda trausti voru, eins og það var að upphafi." Hebreabréfið 3:14
Við frelsumst ekki fyrir verk, en endurlausn er meira heldur en að segja aðeins, “Jesús, fyrirgefðu mér”, og ganga síðan ánægð okkar veg. Hún er falin í því að skuldbindast Jesú fullkomlega og heilshugar. Við bókstaflega seljum okkur Guði, á sama hátt og fólk í Satanisma selur sjálft sig Satan. Síðan erum við lánþegar. Við erum keypt og það er borgað fyrir okkur og við tilheyrum ekki lengur okkur sjálfum. Við erum réttlaus. Við erum þjónar. Orðið sáttmáli er hvorki kennt né ástundað í dag, flestir vita ekki einu sinni hvað orðið skuldbinding þýðir.
Sáttmáli er ekki “verknaður.” Sáttmáli er samningur, og þú selur sjálfan þig. Páll segir í Rómverjabréfinu að hann sé í skuld (Rómverjabréfið 1:14). Kristur keypti Pál á sama hátt og hann keypti okkur. Endurlausnin er sölumennska, hún er viðskipti. Sáttmáli er ekki eitthvað sem við gerum, heldur er það sala. Jesús keypti og greiddi fyrir okkur, að öðrum kosti myndum við tilheyra Satan og fara til helvítis. Eina leiðin út, er í gegnum sölu. Þvílíkt og hræðilegt verð sem Jesús þurfti að borga fyrir okkur!
Ég held að það séu ekki nógu margir sem skilja þetta. Það, hversu miklar árásir Satan gerir á okkur, virðist vera í beinum tengslum við hversu mikið eða lítið við erum gefin Drottni.
Job var fullkomlega skuldbundinn. Guð einn getur vitað að hve miklu marki þú ert seldur Jesú. Guð þekkti hjarta Jobs, hann vissi að Job var fullkomlega gefinn honum. Þess vegna var Guð tilbúinn að taka áskorun Satans, vegna þess að hann vissi að Job myndi standast. Guð vissi að Jesús myndi standast, vegna þess að þegar Jesús var hér í líkamanum, (Filippí. 2) var hann fullkomlega gefinn Föðurnum. Þess vegna vissi Guð Faðir, að sonur hans Jesús Kristur, myndi standast allt til dauða, sem hann og gerði, og ekki aðeins síns eigin dauða, heldur þjáðist hann á hræðilegan hátt fyrir okkur öll líka.
Satan hatar Jesú meira en nokkuð annað, vegna þess að núna hefur Jesús löglegan eignarrétt á jörðinni og innan skamms mun hann taka við stjórninni og svipta Satan konungsveldi sínu. Við getum ekki ímyndað okkur, hversu mikið og ákaft Satan hatar Guð. Þú sérð það, að á þeirri stundu sem við tökum trúarskref, gefum okkur alveg og biðjum Jesú um að kaupa okkur, þá verðum við eign Jesú - og þá hatar Satan okkur jafn mikið og hann hatar Jesú. Það er ástæðan fyrir því að á samri stundu og við frelsumst erum við komin á kaf í stórmerkilega baráttu. Satan hefur í hyggju að eyða okkur. Jesús sagði okkur það.
“Ef heimurinn hatar yður, þá vitið, að hann hefur hatað mig fyrr en yður. Væruð þér af heiminum, mundi heimurinn elska sitt eigið. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum, heldur hef ég útvalið yður úr heiminum. Minnist orðanna, sem ég sagði við yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans. Hafi þeir ofsótt mig, þá munu þeir líka ofsækja yður. Hafi þeir varðveitt orð mitt, munu þeir líka varðveita yðar. En allt þetta munu þeir yður gjöra vegna nafns míns, af því að þeir þekkja eigi þann, sem sendi mig. Hefði ég ekki komið og talað til þeirra, væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir ekkert til afsökunar synd sinni". Jóhannes 15:18-22
Hér eru tvö lykilatriði. Jesús er að segja okkur á mjög skýran hátt, að um leið og við þekkjumst sem fólk hans, eins og mun gerast þegar við verðum eign hans (þ.e.a.s. þjónar), þá mun heimurinn, sem er ennþá undir stjórn Satans, hata okkur nákvæmlega á sama hátt og hann hatar Jesú. Í öðru lagi er fullt af fólki sem segir: ”Hvers vegna skyldi ég þurfa að þjást eða deyja, þegar Jesús vann sigur á krossinum og þjáðist fyrir mig, þar með er ekki nauðsynlegt að ég þjáist.” En hvað sagði Jesús? Hann sagði: “Ég hef sagt við yður, þjónninn er ekki meiri en Herra hans. Hafi þeir ofsótt mig, þá munu þeir líka ofsækja yður....” (vers 20). Hver sem segir mér að hann eigi ekki að þurfa að þjást vegna þess að Jesús gerði það allt á krossinum, er í rauninni að segja að hann sé meiri en Herra hans! Herrann, í þessu tilfelli, er Jesús Kristur. Sá gengur gjörsamlega þvert á orð Jesú sjálfs. Þessi kenning, “frábær heilsa, auðlegð og þægindi”, sem er kennd um allt land, er kenning illra anda, við skulum kalla þetta réttum nöfnum.
Fagnaðarerindið er ekki boðað á nógu skýran og afgerandi hátt. Hvenær hefur þú heyrt nokkurn vakningarpredikara standa upp og segja, “Þið getið frelsast, en bara undir einum kringumstæðum, það er þegar þið gefið ykkur algjörlega og seljið Jesú ykkur sjálf, en þá hafið þið engin persónuleg réttindi, þið tilheyrið ekki sjálfum ykkur og hafið þar af leiðandi ekki rétt á neinu. Þið verðið þjónar. Þið eruð í rauninni að undirrita ykkar eigin dauðadóm vegna þess að Satan mun hata ykkur og reyna að drepa. Þið munuð öðlast eilíft líf og þegnréttindi á himnum. Þið afsalið ykkur lífinu á jörðu til að öðlast eilíft líf á himnum.” Hvað þekkirðu marga predikara sem boða fagnaðarerindið á þennan hátt? Hvað margir bæklingar kynna kristindóminn á þennan hátt? Enginn!
Hvers vegna hata Satan og heimurinn Jesú svona mikið? Vegna þess að hann kom, og þá “...hafa þeir ekkert til afsökunar synd sinni.” (vers 22)
[Jesús segir] “Þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond." Jóhannes 3:19
Við verðum að skilja, að þegar við tökum á móti Jesú sem frelsara okkar, Drottni og leiðtoga, erum við að samþykkja vist á himnum og dauða hérna á jörðu. Persónulega trúi ég því ekki að við getum frelsast í alvöru undir nokkrum öðrum skilmálum. Rauði þráðurinn í guðspjöllunum er krafa Jesú um fullkomna skuldbindingu. Ég er hrædd um að mjög margt fólk eigi eftir að komast að því, að það er í raun ekki frelsað. Fagnaðarboðskapurinn hefur aldrei verið boðaður þeim að öllu leyti.
Það er vegna þessa sem þú getur aldrei aðskilið frelsun frá andlegum hernaði. Sönn frelsun mun etja þér í bein átök við Satan. Ég veit að ég var komin í bein átök við Satan, daginn sem ég gerði sáttmála við Krist, á fyrsta árinu mínu í læknanáminu. Fjórum árum síðar, þegar Drottinn spurði mig hvort ég vildi skuldbinda líf mitt þannig að hann mætti nota mig á allan þann hátt sem hann vildi í baráttunni við Satan, var ég ekki að gera annan sáttmála. Drottinn var að ögra mér til að sjá hversu viljug ég væri að standa við hina upphaflegu skuldbindingu. Hann var að opna augu mín fyrir því hvað væri innifalið í þeirri skuldbindingu. Með því að samlagast Kristi, þá hafði ég gert Satan að svörnum óvini.
Aftur og aftur segir Jesús okkur, að við verðum að fylgja honum allt til dauða. Lítum á nokkur ritningarvers í viðbót. “Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður, konu og börn, bræður og systur og enda sitt eigið líf, sá getur ekki verið
lærisveinn minn. Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér, getur ekki verið lærisveinn minn." Lúkas 14:26-27
Hvað felst í því að bera sinn kross? Flestir túlka þetta á þann veg, að þeir þurfi að sætta sig við “slæma” hluti sem verða á vegi þeirra, ef þeir hugsa þá nokkuð um það á annað borð. Við skulum skoða Matteus 16:
“Þá mælti Jesús við lærisveina sína: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans." Matteus 16:24-27
Hugmynd mín er sú að krossinn sé verkfæri dauðans. Krossinn felur ekki aðeins í sér að við þolum erfiðleika í jarðlífinu, heldur sjálfan dauða okkar. Hvað merkir þá að deyja? Fyrir mig hefur það þá merkingu, að með skuldbindingu minni við Guð hef ég falið allt, sem mér eru kærast, í hans hendur. Allt tilheyrir honum. Um leið og ég geri þetta, þá veit ég að Satan mun krefja Guð alls þessa og, eins og í tilviki Jobs, þá gæti Faðirinn tekið áskorun Satans. Að deyja daglega, hefur þá merkingu í mínum huga, að ég á bókstaflega, hvern einasta dag, eftir að missa allt það sem ég elska í þessum heimi. Guð krefst þess ekki alltaf af öllum, en flest fólk vill einfaldlega ekki skuldbinda sig á þennan hátt, það vill ekki taka sinn kross.
Eftir að Kristur hefur keypt okkur, verðum við útlendingar hér á jörð, og hindrun mun vera á milli okkar og alls, þess sem jarðneskt er - Jesús Kristur. Ekkert á jörðinni tilheyrir okkur. Þetta er mjög sársaukafullt. Krossinn er sennilega hinn sársaukafyllsti dauðdagi sem til er. Við erum að skuldbinda okkur til að lifa í sársauka, að taka upp krossinn daglega er sársaukafullt; það er einfaldlega þannig. Það eru ekki margir sem vilja boða fagnaðarerindið í þessu ljósi, en á þennan hátt predikaði Jesús það. Leyfið mér að gera eitt ljóst, þú getur ekki framkvæmt verk krossins, aðeins Guð getur það. Með öðrum orðum, það fólk sem kvelur sjálft sig og heldur að krossgangan felist í því, er algjörlega á rangri leið. Við erum þjónar, við hlýðum einfaldlega fyrirmælum herra okkar, við ákveðum ekki hvaða þjáningar við berum.
Ég mæli með því að allir þeir, sem skuldbinda sig Drottni, setjist niður og skrifi á blað öll svið lífs síns, sem þeim koma í hug. Hluti eins og skólaganga, starfsframi, hverjir verða vinir þínir, hvort þú munir eiga einhverja vini, hvað mun gerast í sambandi við fjölskyldu þína, hvað verður um líkama þinn, hvar og hvernig munt þú lifa, hvað verður um orðstír þinn, hvort þú munir eiga einhverja peninga, o.s.frv. Það er ekki auðvelt að gera þessa skuldbindingu. Um leið og þú gerir slíka skuldbindingu, verður þú prófaður og reyndur.
Þú munt ekkert vaxa að ráði í trúnni ef þú skuldbindur þig ekki. Samt er trúin hrein gjöf frá Guði, til þess að þú getir skuldbundið þig. Þetta tvennt tengist á undarlegan hátt. Ef þú stendur við skuldbindingar þínar, þegar verið er að reyna þig, er ég sannfærð um að Guð gefur þér meiri og meiri trú, eftir því sem á líður. Trú þín vex og styrkist. Trúin segir: “Ég hef gert þessa skuldbindingu, ég gerði þennan sáttmála, og ég ætla að standa við hann.”
Þú getur ekki leyft efasemdum Satans að dvelja í huga þínum varðandi skuldbindingar þínar. Þú verður að hafna öllum efasemdum hið bráðasta. Þegar þú ert prófaður og reyndur, þá þarft þú að skilja, að allt sem gerist í efnisheiminum hefur áhrif á andaheiminn. Í hvert sinn sem Satan segir, “Ég krefst foreldra þessarar persónu” til dæmis, og Faðirinn segir “Allt í lagi, taktu þau” (þetta gæti varðað líkamlegan dauða þeirra, Satan má ekki snerta við sálum þeirra) og hún þjónar Drottni samt, þá er sigur unninn í andaheiminum, sem heldur aftur af andaverum vonskunnar, og fleiri sálir komast til Jesú Krists. Allt hefur áhrif á andaheiminn. Við höfum ekki hugmynd um hvað gerðist þar, þegar Satan varð að láta í minni pokann í tilfelli Jobs.
Job var sviptur öllu í einni svipan. Þegar allt er tekið burt á einum degi, þá er ljóst að um yfirnáttúrulegan atburð er að ræða. Vanalega starfar Satan ekki á þann hátt í lífi okkar. Hann tekur einn hlut hér, einn ástvin þar, þú ert rétt farinn að ná þér eftir sorgina, þegar hann tekur annan. Hann er meistari í því að valda þjáningu.
Ef þú lætur engan bilbug á þér finna, hverjar sem kringumstæðurnar eru, og heldur áfram að lofa Drottin, mun þér skiljast að þetta er þáttur í hinum holdlega dauða, sem fylgir því að bera krossinn og að vera hataður útlendingur í þessum heimi. Við lifum bókstaflega í dauðanum frá þeirri stundu sem við tökum á móti Jesú, vegna þess að líf okkar er orðið grundvallað í hinu andlega og við eigum eilíft líf í gegnum sál okkar og anda. En líkamleg tilvera okkar er komin í dauðann. Þess vegna áttu í stríði við Satan, frá þeirri stund er þú frelsaðist. Um annað er ekki að ræða.
“...komnir í dauðan en samt lifum vér."2. Korintubréf 6:9
Fólk mun segja, “Þú ert kominn langt af leið.” Guð segir í Jesaja:
“Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn. Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum." Jesaja 55:8-9
Staðreyndin er einfaldlega sú að Guð er Guð. Við megum ekki efast um hann.
“Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: „Hörð er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?``........Upp úr þessu hurfu margir af lærisveinum hans frá og voru ekki framar með honum." Jóhannes 6:60&66
Hvað varð um Job? Hvað gerðist þegar allt þetta hafði komið yfir hann? Athugið, að allt þetta varð til þess að Job fékk að líta Guð, og á sömu stundu skipti ekkert annað máli. Þegar Job hafði fengið að líta Guð, varð honum sama um allt það sem hafði komið fyrir hann. Í Opinberunarbókinni stendur að Faðirinn muni þerra burt öll tár af augum okkar, og ég veit af eigin reynslu, að þegar við fáum að líta Guð sjálfan, þá skipta aðrir hlutir nákvæmlega engu máli. Hann er stórkostlegur. Guð er ótrúlega yndislegur og langt frá öllu sem við getum ímyndað okkur. Guð er hreinn máttur, hrein ást, hreint réttlæti, hreinn heilagleiki, hrein fegurð, hann er hreint stórkostlegur. Eftir eina leiftursýn af honum, þá verða öll samskipti, allt sem við kunnum að eiga eða allt sem skipti okkur máli, ófullnægjandi. Ekkert sem tilheyrði okkur skiptir máli eftir eina leiftursýn af Guði.
“Þá svaraði Job Drottni og sagði: Ég veit, að þú megnar allt, og engu ráði þínu verður varnað fram að ganga. „Hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs í hyggjuleysi?`` Fyrir því hefi ég talað án þess að skilja, um hluti, sem mér voru of undursamlegir og ég þekkti eigi. „Hlusta þú, ég ætla að tala. Ég mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig.`` Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig! Fyrir því tek ég orð mín aftur og iðrast í dufti og ösku." Jobsbók 42:1-6
Takið eftir því að Job segir, “Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig! Fyrir því tek ég orð mín aftur og iðrast í dufti og ösku” (vers 5-6). Job hafði einskis að iðrast. Fyrri hluti Jobsbókar sýnir það augljóslega, að í öllu þá syndgaði Job ekki.
“Í öllu þessu syndgaði Job ekki, og ekki átaldi hann Guðheimskulega."
Jobsbók 1:22
“… … … .Í öllu þessu syndgaði Job ekki með vörum sínum."Jobsbók 2:10
En um leið og Job upplifði Guð í allri sinni dýrð, þá skipti ekkert annað máli. Alls engu máli.
Bæn mín er sú, að Drottinn muni opinbera sig á þann hátt, sem aðeins hann er fær um, bæði fyrir mér og hverjum þeim, sem les þessa bók. Við gætum ekki fengið meiri blessun. Drottinn kallar margt fólk til margskonar þjónustu, en öll munum við einhvern tímann verða fyrir grimmilegri árás Satans. Þegar sá dagur kemur, verðum við að vera reiðubúin að standa upp og berjast. Ef við gerum það, og ef við þreyjum allt til enda, þá mun Jesús gefa okkur kórónu lífsins og við munum öðlast þá ólýsanlegu blessun að fá að sjá Guð í allri sinni dýrð.
“Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu, er sagði: „Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.`` Opinberunarbókin 21:3-4