Þrettándi kafli
Dyragáttir
Rebekka segir frá:
Ritningarnar eru alveg skýrar, öll samskipti við Satan opna satanískum krafti og innsetningu illra anda leið inn í líf viðkomandi persónu. Hvort persónan er kristin eða ekki, skiptir ekki máli. Í þriðju Mósebók 19:31 stendur, “Leitið eigi til særingaranda né spásagnaranda, farið eigi til frétta við þá, svo að þér saurgist ekki af þeim. Ég er Drottinn, Guð þinn.”
Þótt Bræðralagið sé mjög öflugur og vaxandi dulspekihópur, er það fámennt í samanburði við þann gríðarlega fjölda fólks, sem haldið er í fjötrum af alls konar daðri við dulspeki og öðrum syndum, sem hafa opnað leið fyrir satanískan kraft inn í líf þeirra. Þessar dyragáttir (sem opnast vegna syndar) gefa Satan lagalegan rétt, samkvæmt orði Guðs (Biblíunni), til að beita valdi sínu í lífi þeirra. Hinir kristnu eru ekki verndaðir, vegna þess að með opnun þessara dyragátta eru þeir að taka þátt í synd, annað hvort meðvitað eða í ómeðvitað:
“Hvað þá? Eigum vér að syndga, af því að vér erum ekki undir lögmáli, heldur undir náð? Fjarri fer því. Vitið þér ekki, að ef þér bjóðið öðrum sjálfa yður fyrir þjóna og hlýðið honum, þá eruð þér þjónar þess, sem þér hlýðið, hvort heldur er syndar til dauða eða hlýðni til réttlætis?” Rómverjabréfið 6:15-16
“Lýður minn verður afmáður, af því að hann hefir enga þekking......”Hósea 4:6
Ekki einungis þarf sérhver manneskja að vera á varðbergi gagnvart áhrifum þessara hluta í lífi sínu, heldur einnig þeir, sem þrá að deila hinu dýrðlega fagnaðarerindi um Jesú Krist með öðrum.
Mjög margir geta ekki tekið á móti Kristi þegar vitnað er fyrir þeim, vegna þess að vilji þeirra og hugur er bókstaflega bundinn af valdi myrkursins sem streymir gegnum einhverjar opnar dyr í lífi þeirra, annað hvort í nútíð eða fortíð.
“En ef fagnaðarerindi vort er hulið, þá er það hulið þeim, sem glatast. Því guð þessarar aldar hefur blindað huga hinna vantrúuðu, til þess að þeir sjái ekki ljósið frá fagnaðarerindinu um dýrð Krists, hans, sem er ímynd Guðs. 2. Korintubréf 4:3-4
Öll afskipti af dulspeki, hversu lítil eða skammvinn sem þau eru, er dyragátt. Ég er að tala um hluti eins og stjörnuspeki, heimsókn til spákonu vegna forvitni, telaufalestur, lófalestur, spá í bolla, o.s.frv. Hve oft er ekki boðið upp á einhverskonar spádóma á fjáröflunarsamkomum í skólum okkar og kirkjum? Ekkert slíkt er skaðlaust! Ungir, saklausir krakkar fá að fara til þessa fólks á slíkum samkomum, vegna þess að þau þurfa að hafa "eitthvað skemmtilegt að gera." Hversu mörg af þessum börnum geta svo seinna ekki einu sinni tekið á móti Jesú sem persónulegum frelsara sínum eða, ef þau eru þegar frelsuð, missa áhugann eða verða ófær um að vaxa í trúnni? Við yrðum óttaslegin, ef við þekktum raunverulegan fjölda fórnarlamba af þessum völdum einum og sér. Ég hef persónulega séð fleiri dæmi um þetta heldur en ég kæri mig um að hugsa um, hvað þá meir. Ég endurtek: ritningarnar geta ekki verið skýrari:
“Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi, eða töframaður eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drottinn Guð þinn þá burt undan þér.” 5. Mósebók 18:10-12
Ein einasta heimsókn til miðils, sakir forvitni, er nóg til að hafa áhrif á allt þitt líf. Sömuleiðis að lesa bækur um dulspeki, að leika sér í andaglasi, prófa ESP (skynjun handan hins efnislega), skyggnilýsing, að fara úr líkamanum, öll hugleiðsla sem miðar að því að tæma eða “hreinsa” hugann (clearing), að spá fyrir um vatn, leita að olíu með sprota eða pendúl. Jafn hættulegt er að taka þátt í göldrum af hvaða tagi sem er, svífa í lausu lofti, einnig að færa til hluti án þess að snerta þá með líkamanum, leita ráða hjá miðli í þeim tilgangi að finna týndan hlut, öll iðkun austurlenskrar bardagalistar eða yoga. Og auðvitað, hverskonar iðkun galdra, þar með talið að leggja á álög og að fara með seið o.s.frv. Hvað eina af þessu mun opna dyrnar fyrir satanískan kraft og fyrir illa anda.
Öll notkun eiturlyfja og misnotkun áfengis eru einnig dyragáttir. Kynferðisleg misnotkun á börnum endar hér um bil alltaf með andsetningu. Þess vegna verða misnotuð börn, nema þau frelsist, venjulega sjálf foreldrar sem misnota börnin sín. Hvers kyns alvarlegt tilfinningalegt og/eða líkamlegt áfall getur lamað tímabundið náttúrulegar varnir, þannig að illir andar komist inn. Þetta getur gerst bæði hjá börnum og fullorðnum.
Önnur stór dyragátt eru kynmök. Illir andar fara á milli fólks við samfarir. Það er vegna þess að tvær manneskjur, sem eiga í kynferðissambandi, verða “eitt hold.”
“Vitið þér ekki, að sá er samlagar sig skækjunni verður ásamt henni einn líkami? Því að sagt er: „Þau tvö munu verða eitt hold.” En sá er samlagar sig Drottni er einn andi ásamt honum. Flýið saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn drýgir, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama. Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin. Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar.” 1. Korintubréf 6:16-18
Orðið saurlifnaður er notað í íslensku þýðingunni en fornication í þeirri ensku, sem þýðir samræði á milli manns og konu sem eru ekki gift hvort öðru.
Það er vegna þess sem Guð hefur gefið lýð sínum svo margar skipanir um að eiga ekki í kynferðissambandi við neinn utan hjónabands. Það er okkur til verndar gegn illum öndum. Nauðganir og kynferðislegt ofbeldi, sérstaklega á börnum, er dyragátt sem ég hef rekist á hvað eftir annað í starfi mínu sem læknir. Afleiðingar þess eru bólfesta hinna öflugustu illu anda sem ég hef nokkurn tíma mætt á lífsleiðinni. Sifjaspell innan fjölskyldu og öll þátttaka í kynvillu leiðir alltaf til andsetningar. Einnig allar úrkynjaðar kynferðisathafnir sem eru fordæmdar í Biblíunni og eru notaðar í klámiðnaðinum í dag.
Ég hef oft verið spurð um vandamál sem geta komið upp vegna samfara hjóna, þegar annar aðilinn er ófrelsaður og lifir í augljósri synd. Í slíku tilfelli trúi ég því staðfastlega að trúaði aðilinn geti staðið á loforðum sem gefið er í 1. Korintubréfi 7:12-16:
“Ef bróðir nokkur á vantrúaða konu og hún lætur sér það vel líka að búa saman við hann, þá skilji hann ekki við hana. Og kona, sem á vantrúaðan mann og hann lætur sér það vel líka að búa saman við hana, skilji ekki við manninn. Því að vantrúaði maðurinn er helgaður í konunni og vantrúaða konan er helguð í bróðurnum. Annars væru börn yðar óhrein, en nú eru þau heilög. En ef hinn vantrúaði vill skilja, þá fái hann skilnað. Hvorki bróðir né systir eru þrælbundin í slíkum efnum. Guð hefur kallað yður að lifa í friði: Því að hvað veist þú, kona, hvort þú munir geta frelsað manninn þinn? Eða hvað veist þú, maður, hvort þú munir geta frelsað konu þína?”
Í slíkum tilfellum þarf kristni aðilinn aðeins að biðja Drottin um að helga hjónasængina og þann aðila sem ekki er trúaður. Loka þarf öllum dyragáttum með blóði Jesú, til þess að hinn trúaði verði ekki andsetinn vegna hins, í gegnum samræði.
Dáleiðsla er enn ein stór dyragátt. Persónan, sem er dáleidd, afsalar dávaldinum vilja sínum og er síðan opin fyrir hverju því sem dávaldurinn kýs að setja inn í hann eða hana. Það eru sérstakir illir andar sem halda dyrunum opnum fyrir áhrifum dávaldsins. Dáleiðsla til að hætta að reykja eða til að stjórna mataræði til að grennast er lækning fyrir tilstuðlan illra anda.
Nálastunguaðferðin er einnig lækning sem kemur frá illum öndum. Austurlensk trúarbrögð eru öll einhverskonar tilbeiðsla á illum öndum. Almenningur veit ekki að nálarnar, sem notaðar eru við nálarstungurnar, eru blessaðar af hinum ýmsu leiðtogum austurlenskra trúarbragða, áður en þær eru notaðar, og eru þar með orðnar bein inngönguleið fyrir illa anda. Ég hef séð mikið af undarlegum sýkingum sem hafa komið frá nálunum, ásamt andsetningu. Allar yfirnáttúrulegar lækningar aðrar en þær sem koma beint frá Jesú Kristi sjálfum, eru lækningar illra anda, og afleiðing þeirra er andsetning eða ánauðarok. Guð sjálfur gaf mönnum þá þekkingu að gjöf sem notuð er af læknum okkar í dag. Munið að Lúkas, sem skrifaði tvær bækur Nýja testamentisins, var sjálfur læknir.
Öll iðkun austurlenskra trúarbragða, eins og til dæmis Innhverf íhugun (T.M. =Transcendental Meditation ), Yoga, o.s.frv., endar í andsetningu og ánauð illra anda. Ef við skoðum vandlega kenningar hvaða trúarbragða sem er, í samanburði við Orð Guðs, kemur mismunurinn mjög fljótt í ljós.
Í flestum austurlenskum trúarbrögðum er iðkuð hugleiðsla. Flestir kristnir menn misskilja tilgang hugleiðslunnar, og Satan hefur komið inn villukenningum um hugleiðslu og heimfært þær upp á kristna menningu. Það eru fjöldinn allur af tilvísunum í ritningunum um hugleiðslu, en það er stór munur á Guðlegri hugleiðingu og á satanískri hugleiðslu. Það fer vel á því að skoða grundvallarmuninn hér á eftir.
Eitt helsta ritningarversið, sem vísar til hugleiðslu, er að finna í Jósúabók 1:8:
“Eigi skal lögmálsbók þessi víkja úr munni þínum, heldur skalt þú hugleiða hana um daga og nætur, til þess að þú gætir þess að gjöra allt það, sem í henni er skrifað, því að þá munt þú gæfu hljóta á vegum þínum og breyta viturlega.”
Ég vil benda á að hér er talað um að hugleiða og það merkir þann verknað að lesa, læra og leggja á minnið lög Guðs sem voru gefin Ísraelsmönnum. Jósúa átti að læra lögin það vel að þau yrðu hluti af honum. Davíð fór eftir sömu meginreglu - hann skrifaði um það í Sálmi 119:9-11
“Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum?Með því að gefa gaum að orði þínu.Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.Ég geymi orð þín í hjarta mínu,til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.”
Hér var Davíð að gera eitthvað - það er að segja, hann var að læra og leggja á minnið lög Guðs, til þess að hann myndi ekki villast frá þeim. Hvergi í allri Biblíunni er talað um hugleiðslu sem einhverja hlutlausa, óvirka iðkun. Satanísk hugleiðsla er hlutlaus og óvirk. Satan vill að fólk tæmi hugann og reyni til að þurrka út allar hugsanir. Það opnar beinlínis illum öndum inngöngu og áhrif, því að staðreyndin er sú að Guð skipar okkur að stjórna hverri hugsun, en ekki að við tæmum hugann! Ef þú stjórnar ekki huga þínum, þá gerir Satan það.
“Þótt vér lifum jarðnesku lífi, þá berjumst vér ekki á jarðneskan hátt, -því að vopnin, sem vér berjumst með, eru ekki jarðnesk, heldur máttug vopn Guðs til að brjóta niður vígi. Vér brjótum niður hugsmíðar og allt, sem hreykir sér gegn þekkingunni á Guði, og hertökum hverja hugsun til hlýðni við Krist.” 2. Korintubréf 10:3-5
… .og hefir stöðugt hugarfar. Þú veitir ævarandi frið, því að þeir treysta á þig.” Jesaja 26:3
Þessi ritningarvers sýna okkur berlega að okkur er skipað að stjórna huga okkar, en ekki tæma hann. Hver sú hugleiðslukenning sem segir þér að tæma hugann og hreinsa hann af öllum hugsunum eða endurtaka sérstaka frasa eða orð (möntrur) aftur og aftur, til að gera þér kleift að “hreinsa hugann” er frá Satan.
“[Jesús talar] Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja.. .” Matteus 6:7
“Forðast þú hinar vanheilögu hégómaræður, því að þeim, er leggjastund á þær, skilar lengra áfram í guðleysi.”2. Tímóteusarbréf 2:16
Það er hættulegur lærdómur sem sumar náðargjafakirkjurnar (charismatic) kenna, þar sem meðlimum er sagt að endurtaka sérstakan texta aftur og aftur, eða að “tæma hugann og láta Heilagan anda taka yfir.” (Þetta er gert sérstaklega í þeim tilgangi að láta einhvern tala tungum). Það er rétt að tómur hugur verður yfirtekinn af anda, en til allrar óhamingju, vanheilögum anda - ekki Heilögum anda.
Önnur tegund af dulspeki, sem bindur fólk í ánauð og er mjög raunveruleg en lítt þekkt, er þegar persóna leggur “álög (Hex)” eða “töfra” eða “voodoo” á aðra persónu. Jafnvel kristin manneskja getur orðið fyrir hræðilegum skakkaföllum af völdum slíkra galdra, sem beitt er gegn henni. Mín reynsla er ágætis dæmi um slíkt. Mér var ókunnugt um hvað var að gerast þar til Drottinn opinberaði það fyrir prestinum mínum. Síðan hef ég hitt marga sjúklinga sem voru hrjáðir vegna galdra. Oft þekktu þeir einhvern eða voru í vinfengi við persónu sem var flækt í einhverja dulspeki, lentu síðan upp á kant við viðkomandi og datt aldrei í hug að þess yrði hefnt með “álögum.” Af þessum ástæðum er mjög brýnt að kristið fólk lifi í nánu samfélagi við Drottin svo hann geti gefið því skarpskyggni í slíkum tilfellum.
Illir andar og ánauð illra anda ganga í arf. Erfðir eru dyragátt, sem mönnum sést yfir oft á tíðum. Þótt við séum ekki lengur undir gamla sáttmálanum, vegna nýja sáttmálans í blóði Krists, þá getum við fundið mörg afar mikilvæg grundvallaratriði með því að skoða Gamla testamentið. Við verðum einnig að hafa það í huga að sérhver synd, sem við færum ekki undir blóð Krists, er lögleg jörð fyrir Satan.
Það eru margir ritningarstaðir í Gamla testamentinu sem segja að syndir feðrana færist yfir á börnin. Nokkrar eru í 2. Mósebók 20:5, 34:7, 4. Mósebók 14:18 og 5. Mósebók 5:9. Í annarri Mósebók 34:6-7 stendur:
“Drottinn gekk fram hjá honum og kallaði: „Drottinn, Drottinn, miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður, gæskuríkur og harla trúfastur, sem auðsýnir gæsku þúsundum og fyrirgefur misgjörðir, afbrot og syndir, en lætur þeirra þó eigi með öllu óhegnt, heldur vitjar misgjörða feðranna á börnum og barnabörnum, já í þriðja og fjórða lið.`` Mósebók 34:6-7
Við sjáum einnig, að í hvert sinn sem mikil vakning varð í Ísrael, kom fólkið saman til að biðja og fasta og ekki aðeins til að játa sínar eigin syndir, heldur einnig syndir forfeðranna. Til dæmis segir í Nehemía 9:1-2:
“Á tuttugasta og fjórða degi þessa mánaðar söfnuðust Ísraelsmenn saman og föstuðu og klæddust hærusekk og jusu mold yfir höfuð sér. Og niðjar Ísraels skildu sig frá öllum útlendingum, og þeir gengu fram og játuðu syndir sínar og misgjörðir feðra sinna.”
Aðrar tilvitnanir eru 2. Kronikubók 29:1-11 í valdatíð Hiskía konungs, 2. Kronikubók 34:19-21, og margar aðrar tilvitnanir í viðbót.
Syndir forfeðra okkar hafa örlagarík áhrif á okkar eigið líf, og dyragáttum erfða verður að loka með bæn, játningu og með hreinsandi blóði Jesú Krists. Sérstakir hæfileikar og illir andar fara frá einni kynslóð til annarrar. Algengt viðurkennt dæmi um þetta er hæfileikinn til að spá fyrir um vatn (“water-witch.”). Að taka þátt í einhverjum dulrænum iðkunum er alveg sérstaklega niðurbrjótandi, hverskonar tilbeiðsla á skurðgoðum, sem er í raun tilbeiðsla á illum öndum ( l. Korintubréf 10:14-21 ), allt andavald, allir eiðar sem teknir hafa verið af foreldrum eða forfeðrum, sem eru bindandi fyrir eftirlifendur ( þannig eru flestir eiðar í dulspeki, og á meðal mormóna, frímúrara og í heiðnum sið) o.s.frv.
Eitt stærsta verkfæri Satans í landi okkar í dag (USA 1990) eru dulrænir hlutverkaleikir, sem eru orðnir mjög vinsælir. Satan notar þessa leiki til að koma á fót gríðarstórum her með greindustu ungmennum landsins; her sem Anti-kristur mun geta yfirtekið og stjórnað á augabragði. Vegna þátttöku sinnar í þessum leikjum, geta illir andar stjórnað mönnum án þess að þeir viti nokkurn tíma hvað er að gerast. Í mörgum fylkjum Bandaríkjanna eru slíkir leikir notaðir sem hluti af námi fyrir greindari nemendur. Næstum því hver einasti skóli er með sérstaka námsklúbba þar sem leikirnir eru leiknir. Kjarni málsins er sá að slíkir leikir eru skyndikennsla í göldrum. Því miður vita þátttakendurnir ekki af því fyrr en of seint.
Í flestum leikjunum er foringi sem leggur línurnar í hverjum leik. Leikurinn er ævintýri þar sem margar baráttur eru háðar við “skrímsli” og “verur” sem hafa sérstaka hæfileika og persónueinkenni. Hægt er að fá fjöldann allan af þykkum bæklingum með myndum og lýsingum á eiginleikum hinna ýmsu “karaktera” . Ætlast er til að þátttakendur sjái fyrir sér leikflétturnar í huganum. Því betri sem þeir verða í því að sjá fyrir sér atburðina og geta þar með séð við leikfléttum “skrímslanna” og annarra leikmanna, því betri verða þeir í leiknum.
Það sem fólk gerir sér ekki grein fyrir í fyrstu er að þessi skrímsli eru í rauninni illir andar. Það sem þeir halda að þeir séu að ímynda sér í huganum, er í rauninni sýn inn í andaheiminn. Þeim mun betri sem leikmaðurinn er í því að “sjá fyrir sér” leikinn, þeim mun nánari tengsl hafa þeir við andaheiminn. Ímyndunaraflið er lykilþrepið í því að ná sambandi við andaheiminn. Ég veit ekki á hvaða stigi leikmaðurinn verður andsetinn, en ég hef unnið með miklum fjölda ungs fólks sem hefur tekið þátt í þessum leikjum og ég hef ekki ennþá hitt leikformann, sem ekki er andsettur og veit ekki af því. Þeir ljúga auðvitað um þetta. Margir hafa sagt mér að illu andarnir komi og tali við þá, og buðu þeir greindari öndunum að koma inn í sig til þess að fá meira vald.
Þróaðri leiðbeiningabæklingarnir innihalda galdraþulur og satanísk skrif sem notuð eru af og kennd nornunum og galdramönnum sjálfs Bræðralagsins. Allir þeir, sem spila leikina, finna fyrir undarlegum spenningi og krafti. Fáir gera sér grein fyrir hvílík gildra þetta er; menn eru gjörsamlega blekktir. Hversu mikið af unga fólkinu okkar, sem áður var athafnasamt og áhugasamt kristið fólk, er nú búið að missa áhugann á Drottni vegna leikja af þessari tegund? Ófáir aðrir munu aldrei ná því að komast til þekkingar á hjálpræði Jesú vegna ánauðar illra anda sem þeir hleyptu inn í sig með því að taka þátt í þessu.
Dulræn áhrif hverskonar eru hömlulaus í leikföngum fyrir lítil börn, jafnt og í teiknimyndum sjónvarpsins. Lítil börn hafa vitaskuld mjög frjótt ímyndunarafl. Satan veit, að ef hann getur beint ímyndunarafli þeirra að andaheiminum, munu þau fljótlega læra að sjá og hafa samskipti við illu andana hans. Foreldrar þurfa að vera sérstaklega aðgætnir varðandi hvaða leikföngum þeir leyfa litlu krílunum að leika sér að og hvaða teiknimyndir þeir leyfa þeim að horfa á í sjónvarpinu.
Biofeedback (tækni til að fylgjast með og stjórna ósjálfráðri líkamsstarfsemi) hefur bókstaflega verið eins og sprengja í heimi læknavísindanna á síðari árum. Vöxtur þess hefur verið ótrúlegur. Það er aðallega notað til að stilla sársauka, blóðþrýsting, og til að stjórna misnotkun á eiturlyfjum og alkóhóli. Þeir í Bræðralaginu notuðu “biofeedback” í mjög mörg ár, áður en það komst í almenna notkun. Þeir komust að því að það er fljótvirkasta aðferðin í þjálfun norna við að ná meðvitaðri stjórn á andalíkama sínum og þar með hafa samband við andaheiminn. Í stuttu máli þjálfar “biofeedback” fólk í að stjórna þeirri líkamsstarfssemi og líkamssviðum sem Guð hefur ekki ætlað okkur að stjórna. Það kennir persónunni meðvitaða stjórnun á andlegum líkama hennar, sem síðan stjórnar og breytir því sem gerist í líkamanum sjálfum. Enn og aftur skal ítrekað að mjög fáir, sem fara í slíka meðferð, gera sér nokkra grein fyrir hverju þeir eru að taka þátt í. Kristið fólk ætti aldrei að hafa neitt með “biofeedback” að gera. Það er ekkert annað en nútímayoga, satanísk hugleiðsla og galdrar.
Annað svið sem oft er horft framhjá, en er mjög öflugt, er rokktónlistin. Rokkið er tónlist Satans. Eins og svo margt annað, þá var öll þróun rokktónlistarinnar vandlega skipulögð og framkvæmd af Satan og þjónum hans allt frá upphafi. Rokkið var ekki eitthvað sem “gerðist bara,” það var vandlega úthugsað af engum öðrum en Satan sjálfum.
Eins og minnst var á fyrr í bókinni, hefur Elaine hitt persónulega mjög margar af rokkstjörnunum. Þær hafa allar samþykkt að þjóna Satan í skiptum fyrir peninga og frægð. Þær hafa fengið allt það sem þær þráðu, en einnig margt sem þær bjuggust ekki við. Allt líf þeirra og sálarlíf er í rúst. Þessar rokkstjörnur vita nákvæmlega hvað þær eru að gera. Þær eru, skref fyrir skerf, að kenna ótöldum milljónum ungmenna að tilbiðja og þjóna Satan.
Elaine tók þátt í sérstökum athöfnum í fjölda hljóðvera út um öll Bandaríkin í þeim tilgangi að veita blessun Satans þeirri rokktónlist sem verið var að hljóðrita. Hún og fleiri fóru með galdraseið sem settu illa anda á hverja einustu hljómplötu og kassettu með rokktónlist sem seldist. Það kom einnig fyrir að kallað var á sérstaka illa anda sem voru látnir tala á hljómplötunum og þá sérstaklega aftur á bak. Einnig voru Satanistarnir sjálfir í bakgrunni í fjölmörgum upptökum, fremjandi galdraseið til þess að vekja upp fleiri illa anda í hvert sinn sem hljómplatan, kassettan eða videóið er spilað. Þegar tónlistin er spiluð, eru þessir andar kallaðir inn í herbergið og látnir hafa áhrif á þá sem eru að spila og hlusta á tónlistina.
Tilgangur alls þessa? Stjórnun hugans! Stjórnun hugans, ekki aðeins til að gefa áheyrendum skilning á boðskap um Satan í tónlistinni, heldur einnig til þess að koma í veg fyrir að áheyrendur kannist við þörf sína fyrir Jesú og endurlausnina sem hann vann okkur er hann dó á krossinum okkar vegna.
Margir af textum laganna eru í sjálfu sér galdraseiðir sem kalla upp illa anda þegar lagið er sungið. Tilgangur þess er tvíþættur: Ná valdi yfir áheyrandanum og að gefa áheyrandanum kost á alvöruseið til þess að hún eða hann geti sent illa anda á aðra persónu. Það er gert til að ná fram hefndum með sjúkdómum, slysum, o.s.frv. Textarnir hjálpa einnig til við að veiða fólk í fjötra rokksins.
Við mælum eindregið með bókinni The Devil´s Disciple-The Truth About Rock, eftir Jeff Godvin, sem gefin er út af Chick Publications, Inc., til að skoða dýpra hvað býr að baki rokktónlistar. Þessi bók er kjörin fyrir foreldra sem vilja skilja þá tónlist sem börnin þeirra eru á kafi í.
Öllum þessum dyragáttum verður að loka.
“Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hannfyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.”Jóhannesarbréf 1:9.
Ef þú hefur tekið þátt í einhverjum af þessum hlutum, þá getur þú einfaldlega lokað dyragáttunum með bæn, eins og þessari t.d.:
“Faðir, Ég játa fyrir þér að hafa tekið þátt í _____________. ‘Ég kannast við að slíkt athæfi er móðgun við þig og viðurstyggð í augum þínum. Ég bið þig auðmjúklega að fyrirgefa mér þessa synd mína. Ég bið þig um að lyfta af mér allri ánauð illra anda, sem kann að stafa af athæfi mínu og ég bið þig um að hreinsa mig af synd minni og loka öllum dyragáttum að eilífu með dýrmætu blóði Jesú Krists.”
Þá mæli ég með því að þú ávarpir Satan og hans illu anda upphátt á svipaðan hátt og eftirfarandi:
“Satan og þið illu andar, ég er búin að biðja Föður minn á himnum að fyrirgefa mér þátttöku mína í _________________. og ég hef tekið við henni. Í trú loka ég hér með dyragáttum þessarar syndar í lífi mínu fyrir þér að eilífu með blóði Jesú Krist sem rann niður krossinn fyrir mig. Í Jesú nafni skipa ég þér, vík burt!”
Í þeim tilfellum þar sem voldugri andar eiga í hlut þarf oft að fá hjálp frá öðru fólki til að losna. Ef þú biður í einlægni og þráir að losna, sama hvað það kostar þig, þá mun Drottinn leiðbeina þér í því hvað gera skal og hann mun gefa þér frelsi.
Ég ætla að nefna nokkur dæmi um fólk sem ég hef þurft að sinna á læknastofunni, fólk sem varð fyrir hræðilegum árásum vegna þess að það var með opnar dyragáttir. Öllum nöfnum er breytt, til þess að vernda þá sem eiga í hlut. Við hinir kristnu verðum að skilja eina meginreglu sem ég hef aldrei heyrt kennda í nokkurri kirkju. Margt af því fólki, sem við erum að deila fagnaðarerindinu með, er bókstaflega í ánauð illra anda, annað hvort af frjálsum eða ófrjálsum vilja, þannig að vilji þeirra er ekki frjáls. Það nær ekki að “vilja” taka á móti Jesú sem frelsara sínum og hugur þess er á svipaðan hátt í ánauð, þannig að það getur ekki skilið boðskap fagnaðarerindisins.
“En ef fagnaðarerindi vort er hulið, þá er það hulið þeim, sem glatast. Því guð þessarar aldar hefur blindað huga hinna vantrúuðu, til þess að þeir sjái ekki ljósið frá fagnaðarerindinu um dýrð Krists, hans, sem er ímynd Guðs.” 2. Korintubréf 4:3-4
Þetta fólk segir þér ekki að það sé í ánauð, vegna þess að ánauðin er svo algjör að í flestum tilfellum veit það ekki einu sinni af því að það er bundið. Afsakanirnar sem þú heyrir, ef þú spyrð einhvern beint út hvort hann vilji biðja með þér og taka á móti Jesú, eru: “Ég er ekki tilbúinn til þess,” eða “ég geri það seinna,” eða “ég get það bara ekki núna, ekki vera að ýta á eftir mér,” og margar, margar fleiri.
En Jesús kom til að láta bandingjana lausa.
“Andi Drottins er yfir mér, af því að Drottinn hefir smurt mig. Hann hefir sent mig til að flytja nauðstöddum gleðilegan boðskap og til að græða þá, sem hafa sundurmarið hjarta, til að boða herteknum frelsi og fjötruðum lausn.” Jesaja 61:1
Við hinir kristnu þurfum einfaldlega að taka það vald og þá stöðu sem Jesús hefur gefið okkur og nota það til að leysa þá sem eru í slíkum viðjum. Hér á eftir eru nokkur dæmi úr mínu eigin lífi.
#1) Jóhanna er 35 ára gömul hjúkrunarkona frá heimabæ mínum. Við unnum saman fyrir um það bil 10 árum, þegar ég var ennþá hjúkrunarkona. Ég hitti hana aftur fyrir skömmu síðan. Hún var undrandi á þeirri breytingu sem hafði orðið á mér og það varð til þess að ég gat sest niður með henni einn eftirmiðdag og deilt því með henni, sem Drottinn hafði gert í lífi mínu. Viðbrögð hennar voru þessi:
“Veistu, ég hef átt tvær vinkonur síðustu fimm árin sem einnig gáfu líf sitt Jesú. Þær breyttust á þann dramatíska hátt, frá því að hafa verið óánægðar og óhamingjusamar í það að verða glaðlyndar og fullar af friði. Ég hef oft hugsað um það að mig langi einnig til þess sama, en ég get það bara ekki, svo ég hugsa bara ekkert um það meira.”
“Af hverju getur þú ekki gefið Jesú líf þitt?” spurði ég.
“Ja, ég get séð tilganginn, en ég get það bara ekki. Í rauninni verð ég kvíðin og óróleg þegar við tölum um þetta. Ég held að við ættum að stoppa núna, ég vil ekki tala meira um þetta.”
Ekki löngu áður hefði ég stoppað þarna. En dýrð sé Drottni, þökk sé þjálfun hans, ég sá auðveldlega öll einkennin. Þannig að ég hélt ótrauð áfram.
“Leyfðu mér bara að spyrja þig einnar spurningar í viðbót - þegar þú reynir að hugsa um Jesú, er það þá eins og að þú komir að auðum vegg, og það verður svo erfitt að halda áfram að hugsa um það, að þú bara gefst upp?”
“Já, þannig er það! Hvernig vissir þú það?”
“Ja, ég hef verið í þjálfun hjá Guði. Segðu mér, hvaða dulspeki hefur þú tekið þátt í?” Hún varð undrandi.
“Hvernig vissir þú um það? Ég hef ekki verið í mörgu, en ég heimsótti lófalesara fyrir um það bil átta árum síðan, bara að gamni. Ég hef farið aftur til lófalesara og spákonu nokkrum sinnum síðan þá, og nýlega var ég að gera stjörnuspákort fyrir mig. En ekkert mjög alvarlegt.”
“Jóhanna, þetta hefur verið nóg til þess að setja þig í ánauð illra anda sem kemur út á þann hátt að þú getur ekki tekið á móti Jesú. En ég hef góðar fréttir að færa þér. Jesús kom til að láta þá lausa sem eru í fjötrum og af því að ég er hans, þá hefur hann gefið mér vald yfir Satan og hans illu öndum. Þið illu andar sem bindið og blindið Jóhönnu, ég bind ykkur í Jesú nafni, þið megið ekki lengur starfa í lífi hennar!”
Jóhönnu virtist bregða, eins og hún væri að hugsa um að ég væri nú ekki með öllum mjalla. En ég skipti um umræðuefni og fór að tala um eitthvað annað í næstu 10 mínútur. Þá spurði ég:
“Jóhanna, ég spurði þig áðan hvort að þú vildir taka á móti Jesú sem frelsara þínum. Þú veist að það er það sem þú þarft að gera, hvernig væri að við myndum biðja saman núna?”
Hún virtist undrandi, síðan streymdi friður yfir andlit hennar.
“Veistu hvað, ég mundi bara vilja biðja með þér núna. Ég get tekið á móti Jesú. Ég veit ekki hvers vegna ég gerði það ekki fyrr.”
Við krupum saman á kné, og enn einn fanginn var látinn laus úr myrkum viðjum konungsríkis Satans og kom inn í ríki Guðs. Ég sagði henni síðan frá dyragáttunum sem hún hafði opnað, og hún bað og lokaði þeim fyrir Satan að eilífu með blóði Jesú Krists.
#2) Tvítug stúlka kom á bráðavaktina þar sem ég var að vinna kvöld eitt. Hún kvartaði yfir því að hún væri hrædd um að ef hún fengi ekki hjálp, mundi hún fremja sjálfsmorð. Hún var niðurdregin og hrædd, henni fannst hún ekki hafa neitt að lifa fyrir, líf hennar var innantómt og tilgangslaust. Eftir að hafa talað við hana um hríð, sagði ég henni einfaldlega að það sem hana vantaði væri Jesús Kristur, og ég deildi með henni fagnaðarerindinu. Viðbrögð hennar voru: “Foreldrar mínir eru kristnir og ég var alin upp í kirkju. Ég veit að það sem þú segir er satt, en ég er bara ekki tilbúin til þess ennþá.”
“Þið illu andar sem haldið þessari stúlku, ég bind ykkur núna í Jesú nafni, þið megið ekki lengur starfa í lífi hennar!” Þegar ég hafði sagt þetta þá leit hún á mig eins og ég væri brjáluð en gleymdi því fljótt þegar ég skipti um umræðuefni og talaði um annað í nokkrar mínútur. Þá sagði ég:
“ Svava, þú viðurkenndir fyrir nokkrum mínútum að þú vissir að það sem ég var að segja væri sannleikur, að þú þyrftir á Jesú að halda í lífi þínu. Hvernig væri að við myndum biðja hann saman um að frelsa þig og verða Drottinn þinn og leiðtogi?”
“Já, ég myndi vilja það. Það hefur í rauninni enginn beðið mig um að gera það áður. Vilt þú hjálpa mér? Ég veit ekki hvað ég á að segja.”
Svava bað með mér og hóf þannig göngu sína á vit eilífs lífs. Þegar ég spurði hana nánar varlega, uppgötvaði ég að opna dyragáttin í lífi hennar hafði verið ein stutt helgi þegar hún hafði verið að prófa eiturlyf, 13 ára gömul í náttfatapartíi. Það þurfti ekki meira til að binda huga hennar með andavaldi. Út frá því hvernig hún lýsti lífi sínu, efast ég ekki um að áður en við hittumst hafði hún haft mörg tækifæri til þess að taka á móti Jesú, en var bundin og gat það ekki.
#3) Áttræður maður var fluttur á gjörgæsludeildina eftir mjög alvarlegt hjartaáfall þar sem ég var vakthafandi aðstoðarlæknir. Eftir að hafa skoðað hann, vissi ég að hann mundi sennilega ekki lifa mjög lengi. Hann spurði mig hvernig ástand sitt væri og ég sagði honum að þetta væri frekar alvarlegt, hann hefði fengið hjartaáfall. Hann snéri sér undan og byrjaði að gráta. Samræðurnar í kjölfarið urðu á þessa leið:
“Ó læknir, gerðu það, ekki segja mér það, ég get ekki tekið því!”
“Herra, hvað er að, ert þú hræddur við að deyja?”
“Já.”
“Veist þú, hvað verður um þig eftir að þú deyrð?”
“Já, fröken, ég fer beinustu leið til helvítis!”
Ég varð mjög undrandi, þar sem mjög fáir eru svo hreinir og beinir. “Gerðu það, herra, leyfðu mér að segja þér hvernig þú forðast þann stað.”
“Nei, nei! Ég hef heyrt það allt saman áður og það gagnar ekki neitt. Ómakaðu þig ekki við það."
“Jæja, hvort sem þú vilt það eða ekki, þá skalt þú fá að heyra um Jesú einu sinni enn.” Þá deildi ég fagnaðarerindinu með honum í um það bil fjórum setningum. Í svona tilfellum er nauðsynlegt að vera stuttorður.
“Ég veit þetta allt saman, ég veit að þetta er rétt en ég bara get þetta ekki.”
“Herra, endurtaktu bara þessi þrjú orð: Jesús, bjargaðu mér.”
“Ég get það ekki, ég get það ekki. Farðu burt!”
“Herra, ég veit að það er hindrun, þú hefur rétt fyrir þér, þú getur ekki sagt þessi orð. Segðu mér, veist þú hvað það er sem hindrar þig?”
Þá var það sem hann snéri sér að mér og horfði beint í augu mér og sagði, “Satan og djöflarnir hans!”
“Ég hef góðar fréttir að færa. Jesús kom til að veita fjötruðum lausn, og þú ert svo sannarlega fjötraður. En ég er barn Konungsins og mér hefur verið gefið vald yfir Satan og illu öndum hans.”
Þá ávarpaði ég Satan upphátt og hans illu anda og batt þá í Jesú nafni. Ég mun aldrei gleyma gleðinni sem skein úr andliti þessa gamla manns. Hann tók í hönd mína, og tár streymdu niður andlit okkar þegar hann bað til Jesú og bað hann um að vera Drottin sinn og frelsara. Ég gat séð friðinn færast yfir hann. Hann leit upp og sagði, “Fröken, ég er búinn að bíða og leita og vera á leiðinni til Jesú í um það bil 50 ár, en hef aldrei getað það.”
Ég talaði við hann um stund og hann sagði mér að þegar hann hefði verið um þrítugt, þá hefði hann verið sjómaður. Skipið hans lagðist við bryggju í Filippseyjum. Í landi lenti hann í þrætum við innfædda. Þeir lögðu á hann voodoo-álögur með þeim afleiðingum að hann hafði verið að leita að Jesú í 50 löng ár, en verið bundinn á þann hátt að hann gat ekki tekið á móti honum, vegna þess að enginn, sem hann hafði talað við, kunni að notfæra sér þann gífurlega mátt og vald sem Jesús hefur gefið okkur, né þekkti einkenni þeirrar ánauðar sem maðurinn var í. Næsta dag þegar ég fór til að hitta hann, var hann miklu verri líkamlega, en hann ljómaði. Síðustu orð hans við mig voru: “Fröken, ég á fullkominn frið.” Hann féll í dá og dó stuttu seinna.
#4) Komið var með fjörutíu og fjögurra ára konu á skrifstofuna mína. Vinir hennar komu með hana vegna þess að hún var komin að því að fremja sjálfsmorð, og þeir vissu að ég var kristinn læknir og vonuðust til þess að ég gæti hjálpað henni. Saga hennar var ekkert öðruvísi en svo margra annarra sem ég hafði heyrt. Hún var alin upp af kristnum foreldrum sem elskuðu hana, og hún vissi það. En af einhverjum ástæðum byrjaði líf hennar að fara úrskeiðis á unglingsárunum. Hún fór að umgangast óæskilega félaga í skólanum og álpaðist inn í alls kyns óleyfileg kynferðissambönd. Hún sagði svo frá:
“Ég vissi að það sem ég var að gera, var rangt, og innst inni vildi ég ekki gera þessa hluti, en ég virtist ekki geta ráðið við mig. Ég var alin upp við kirkjurækni, og ég vissi hvað var rétt og hvað var rangt. Ég virtist aldrei almennilega geta tekið við Jesú og gefið honum líf mitt, eins og systkini mín gerðu, ég vissi aldrei af hverju, ég býst við að ég hafi bara ekki verið tilbúin.”
Þegar hún var 17 ára hafði hún eignast barn utan hjónabands, sem foreldrar hennar létu hana gefa til ættleiðingar. Seinna það ár tókst henni næstum að fremja sjálfsmorð og dvaldi í þrjá mánuði á geðspítala. Eftir það var hún tíðum á geðveikrastofnunum, gekk til ótal geðlækna og sálfræðinga og tók inn óteljandi lyf, þar á meðal róandi geðlyf. Ekkert hjálpaði. Hún var ófær um að stofna til varanlegra tengsla og upplifa nokkurn kærleika. Hún eignaðist annað barn utan hjónabands og hljóp að heiman þegar hún var 19 ára, vegna ótta um að foreldrar hennar myndu neyða hana í aðra ættleiðingu. Að lokum, tveim árum áður en hún kom til mín, fór hún að sækja kirkju og tók meira að segja á móti Jesú. Líf hennar lagaðist næsta ár. Hún hætti að drekka og gat haldið föstu starfi. Hún eignaðist sanna kristna vini sem eyddu miklum tíma með henni, hjálpuðu henni að breytast og hreinsa til í lífi sínu. Hún fann gleði í því að lesa Biblíuna og biðja. Þá var það skyndilega dag einn:
“Mér fannst eins og einhver hefði skellt á mig hurð, og allt varð svart. Ég gat ekki lengur lesið Biblíuna eða beðið. Ég gat ekki lengur skynjað nærveru Drottins. Ég fékk áfall. Ég hélt áfram að fara í kirkju, af því að ég vissi að það var eina svarið. Ég var orðin gleðisnauð. Ég hef talað við marga safnaðarleiðtoga sem sögðu mér allir að það hlyti að vera einhver ójátuð synd í lífi mínu eða að Drottinn væri að prófa mig . En ég veit að það er verið að leggja líf mitt í rúst. Ég hef ekki lengur neinn lífsvilja. Eina leiðin fyrir mig út úr þessu er sjálfsmorð.”
Ég spurði hana, hvort henni hefði einhvern tíma fundist eins og eitthvað væri innra með henni sem væri ekki hún sjálf, en stjórnaði gjörðum hennar og hugsunum. Það lifnaði yfir henni.
“Ó já, það hefur mér oft fundist. Ég held raunar að það sé eitthvað inni í mér sem er ekki ég. Ég hef spurt marga presta, hvort illur andi geti verið í mér, en þeir sögðu mér að “kristnir menn geta ekki verið með illa anda.” Ég held að ég sé bara brjáluð, hvort heldur sem er. Geðlæknarnir sögðu mér að ég væri geðklofi, þegar ég reyndi að segja þeim frá þessu.”
Æ, hversu margir eru ekki fáfróðir um þessa hluti! Sara var sannarlega með illan anda í sér, mjög öflugan með marga lægri setta undir sér. Drottinn leiðbeindi mér við að finna lykilinn, dyragáttina sem hafði verið opin fyrir illu andana. Með leiðsögn Drottins, spurði ég Söru hvort hún myndi eftir einhverju atviki í frumbernsku sem hefði valdið henni áfalli. Eftir að hafa hugsað sig um stund, sagði hún:
“Veistu hvað, það er fyndið að þú skulir spyrja slíkrar spurningar. Ég man óljóslega eftir því að mamma minntist á það einu sinni að mér hefði verið nauðgað þegar ég var lítil stúlka. Hún vildi aldrei tala um það við mig, sagði að það væri best að gleyma því. Ég man eftir manni sem greip í mig og henti mér á jörðina, en það eina sem ég man var að ég lá á jörðinni og horfði á fallegt, laufgað eplatré. Ég man ekki eftir neinu öðru varðandi þetta atvik."
Þetta var dyragáttin. Illi andinn, sem kom inn í hana meðan henni var nauðgað, hafði fengið að vera þar óáreittur í mjög mörg ár og hafði eyðilagt líf hennar. Hann var af sérstakri tegund, sem ég mun fjalla um seinna, er getur hafst við í líkamanum, sálinni og andanum, öllum þessum stöðum á sama tíma. Hann er með þúsundir griparma sem hann vindur upp á og fléttar saman djúpt niður á hverju svæði. Það var hann sem skellti aftur hurðinni í anda hennar með þeim afleiðingum að hún gat ekki lengur skynjað nærveru Guðs. Það að Heilagur andi skyldi vaxa og taka yfir, gat hann ekki þolað, þannig að hann reyndi að snúa Söru frá skuldbindingum hennar við Drottin.
En Drottinn sneri ekki baki við Söru, og næstu tvo tímana var þessum illa anda og mörgum öðrum undir hans stjórn kastað út. Eftir mörg, mörg ár var Sara að lokum leyst og orðin frjáls. Aftur upplifði hún nærveru Drottins, las Orð hans með gleði, og í fyrsta sinn á lífsleiðinni byrjaði hún að lifa eðlilegu, heilbrigðu lífi og hún upplifði kærleika Jesú Krists, Drottins vors. Ég var aftur minnt á Hósea 4:6 en þar stendur: “Lýður minn verður afmáður, af því að hann hefur enga þekking...”
#5) Vel byggður 35 ára gamall maður kom á stofuna mína með eftirfarandi kvartanir:
“Líf mitt er í rúst, það er að liðast í sundur fyrir framan augun á mér. Ég get ekki bent á neitt sérstakt, en ég veit að sú er raunin. Ég er að deyja.”
Ég talaði við hann og spurði hann spurninga í meira en klukkutíma, leitandi að lyklinum að vandamáli hans. Heilsa hans var mjög góð. Hann var ekki með nein vandamál í sambandi við sjúkdóma, fann ekki fyrir neinum sjúkdómseinkennum á neinn hátt. Hann var kristinn, þó að hann væri ekki í nánu samfélagi við Drottin. Hjónaband hans var hamingjuríkt, börnin heilbrigð, samskiptin við alla fjölskylduna góð. Hann var í góðu starfi þar sem hann var ánægður. Að lokum, þegar ég spurði hann um alla líkamsstarfsemina, sagði hann:
“Ég átti í vandræðum með ennisholurnar þangað til fyrir um það bil þremur árum, en hef verið góður síðan.”
Athyglisvert, hann hafði sagt mér að það hefði verið síðustu þrjú árin sem honum hefði liðið eins og líf hans væri í rúst.
“Hvað gerðist fyrir þremur árum sem varð til þess að ennisholurnar læknuðust?”
“Ó, ég fór til nálastungulæknis. Það hreif. Ég hef ekki átt í neinum vandræðum síðan.”
Þetta var lykillinn! Á meðan ég rannsakaði líkama hans, tók ég af honum hjartalínurit. Skyndilega fann ég fyrir yfirþyrmandi illri nærveru í herberginu. Um leið stoppaði hjarta unga mannsins! Ég var ekki viss um hvað hér væri á ferðinni, en ég hastaði á illskuna í Jesú nafni, og hjartað byrjaði strax að slá aftur. Hjarta hans hafði hætt að slá í fulla mínútu! Eftir á opinberaði Drottinn mér að illskan, sem ég hafði fundið fyrir væri andi nálastungulæknisins. Hann tók kraft frá sjúklingnum, sem nægði til að hjartað hætti að slá. Drottinn hafði leyft þetta á þessum tíma, mér til leiðbeiningar. Dyragáttir illra anda höfðu verið skildar eftir opnar í þessum unga manni með nálum læknisins, og í gegnum þær gat nálastungulæknirinn stjórnað honum á svipaðan hátt og með dáleiðslu. Nálastungulæknirinn dró kraft frá unga manninum til eigin þarfa. Þess vegna fannst honum eins og líf sitt væri að fara í rúst. Og svo var! Ég gat ekki sagt honum hvað væri að gerast. Hann hefði haldið að ég væri brjáluð. Hann var kristinn á yfirborðinu, en ekki reiðubúinn að samþykkja þá staðreynd að illir andar væru til. Ég spurði Drottin hvað ég gæti gert í slíku tilfelli.
“Notaðu öflugasta vopnið sem þú hefur,” var svar hans. “Biddu kröftuglega fyrir honum.”
Næsta árið fastaði ég mörgum sinnum og bað fyrir honum. Loksins eftir ár talaði Drottinn til mín dag einn og sagði mér sem svar við bænum mínum, að hann hefði leyst hann án þess að maðurinn hefði einu sinni vitað hvað hefði gerst. Stuttu seinna sá ég hann aftur vegna smá vandamáls, og hann sagði mér að honum liði miklu betur. Jesús hafði leyst enn einn fangann.
#6) 24ra ára maður kom í meðferð hjá mér vegna þess að hann hafði reynt að fremja sjálfsmorð. Rikki kom frá kristnu og ástríku heimili. Hann tók á móti Jesú sem unglingur og átti mjög náið samfélag við Drottin. Hann var mjög greindur, ungur maður, og eftir menntaskóla útskrifaðist hann úr guðfræðideild til þess að gerast prestur. Drottinn var hans yndi.
Um það bil ári áður en ég hitti hann fyrst, gat hann allt í einu ekki lengur átt samfélag við Drottin. Hann gat ekki lengur lesið Biblíuna né beðið og gat ekki lengur skynjað nærveru Drottins. Hann þjónaði og bað með fjölda fólks, en fékk enga lausn. Hann fór að eiga í miklum vandræðum með að einbeita sér við námið og kolféll á prófunum. Hann varð svo fullur af örvæntingu að hann hætti í skólanum mánuði fyrir sjálfsmorðstilraunina. Honum fannst hann ekki hafa neitt til þess að lifa fyrir lengur.
Ég lagði fyrir hann spurningar og reyndi að finna dyragáttina. Að lokum, þegar ég bað hann um að segja mér frá öllu því sem hann hafði gert rétt áður en vandræðin hófust, sagði hann mér eftirfarandi sögu:
“Rétt áður en skólinn hófst um haustið fyrir ári síðan, keyrði ég til Denver í Colorado. Móðir mín hringdi í mig og bað mig um að koma vegna þess að móðir hennar var alvarlega veik á sjúkrahúsi þar í bæ. Ég tók mér nokkurra daga frí frá vinnu og keyrði þangað út eftir. Þegar ég kom til borgarinnar fór ég beinustu leið í áttina að sjúkrahúsinu og þegar ég var að aka í gegnum borgina þá skynjaði ég skyndilega eitthvað dökkt, eins og ský, sem steypti sér niður á mig. Þetta stóð bara yfir í nokkrar sekúndur og hvarf síðan. Ég hugsaði ekkert meira um þetta. Þegar ég kom á sjúkrahúsið komst ég að því að amma mín hafði dáið rétt áður en ég kom. Ég var þarna, þangað til jarðarförin var yfirstaðin og fór síðan heim.
Eftir nánari grennslan sagði hann mér að amma hans hefði verið djúpt sokkin í galdra. Margir meðlimir fjölskyldunnar höfðu reynt að opna augu hennar fyrir því að hún þyrfti á Jesú að halda, en án árangurs. Þarna var dyragáttin - erfðir. Við dauða ömmunnar voru voldugu, illu andarnir sem bjuggu í henni, fluttir yfir í annan meðlim fjölskyldunnar. Auðvitað valdi Satan Rikka, þar sem hann var að undirbúa sig undir að starfa í fullri þjónustu fyrir Drottin. Eftir lausn hans endurnýjaðist samfélag hans við Drottin að fullu. Einföld bæn foreldra hans beðin í trú, þar sem þau hefðu brotið aftur erfðatengsl við ömmu Rikka, hefði getað verndað hann gegn þessu - en þau skorti þekkingu.
Ég veit að fjöldi fólks mun segja að Rikki hefði átt að vera varinn fyrir slíkum hlutum, vegna þess að hann er kristinn. En Biblían segir það ljóslega að syndir forfeðrana verði fluttir yfir á börnin þeirra, jafnvel yfir á þriðju og fjórðu kynslóð. Þess vegna varaði Guð Ísraelsmenn sterklega við hvers konar þátttöku í dulhyggju. Kristnir menn þurfa að vera meðvitaðir um þessa hluti. Ef þeir vita af einhverjum í fjölskyldunni, sem hefur tekið þátt í einhverju kukli, þá ættu þeir að biðja Drottin um að loka þeim dyragáttum erfða, sem þar opnast, með blóði Jesú, bæði fyrir sjálfa sig og fyrir börnin sín
.....................................
Hér á eftir langar mig til að lýsa þeim fjórum meginskrefum sem kristið fólk getur tekið, þegar það berst fyrir lausn einhvers sem haldinn er illum öndum. Margir foreldrar þurfa að standa í slíkri baráttu fyrir trúlaus börn sín, sem eru á kafi í rokktónlist, dulrænum hlutverkaleikjum, dópi, áfengi o.s.frv. Þessi skref geta einnig verið gagnleg öllum kristnum mönnum, sem bera umhyggju fyrir einhverjum og vilja berjast þeim til frelsis.
#1) Ef ófrelsaða manneskjan býr í sama húsi og sá kristni, verður fyrsta skrefið að vera það að hreinsa húsið, það er að segja, ef hinn kristni er húsráðandi. Börn geta ekki, eins og gefur að skilja, gert þetta ef þau búa hjá foreldrum sínum. Talað verður um þær aðstæður síðar.
Allir hlutir sem notaðir eru í þjónustu við Satan (hlutir notaðir við hverskonar kukl, rokkhljómplötur, efni tengt dulrænum hlutverkaleikjum, o.s.frv.) eru “Þjónustuhlutir.” (sjá 20. kafla) Þá verður að fjarlægja úr húsinu, þar sem þeir gefa illum öndum lagalegan rétt til þess að halda áfram að veita illum öflum inn í húsið.
Í þeim tilfellum þar sem kristnir foreldrar eru að glíma við uppreisnargjarna unglingana sína, myndi ég vara ykkur við að fara inn í herbergið og sópa öllu út sem ykkur finnst vera þjónustuhlutur. Þið verðið að ræða málið við þá fyrst. Þú skalt binda andana í þeim, síðan skalt þú setjast niður og tala við þá. Hlustaðu með þeim á rokktónlistina þeirra, farðu vandlega í gegnum textana. Ég ábyrgist að krakkarnir ykkar skammast sín, vegna þess að þeir vita innst inni að rokktónlist er rotin. Ef þeir eru í dulhyggjuleikjum, sestu þá niður og skoðaðu bæklinginn og farðu í gegnum leikinn með þeim, til þess að þú fáir skilning á hvað þeir eru að gera. Síðan getur þú bent þeim á, út frá ritningunum, af hverju þetta er rangt. Þegar þú ert búinn að þessu öllu, skaltu eyðileggja allar hljómplöturnar (diskana), kassetturnar, leikjabæklingana, o.s.frv.
Eins og minnst er á hér á undan geta kristin börn, sem búa hjá trúlausum foreldrum, beðið Drottin í trú um að innsigla slíka hjálparhluti, þannig að illu andarnir geti ekki lengur starfað í gegnum þá.
#2) Þið verðið að gera ykkur grein fyrir því að börnin ykkar eru, blinduð og bundin af illum öndum. Þið getið sagt þeim árum saman að þau þurfi á Jesú að halda, en þau vilja einfaldlega ekki skilja ykkur. Þau geta jafnvel haft orð þín eftir, en það er eins og það sé “ruglari” á milli þess sem þú segir og huga þeirra, þannig að þau skilja í raun ekki inntakið. “Ruglarinn” er illur andi. Einnig er vilji þeirra bundinn, þó að þau skilji þörf sína fyrir að frelsast, svo þau megna ekki að “vilja” biðja hann um að vera Drottinn sinn og Frelsari.
Ef þau búa í sama húsi og þú, verður þú að ávarpa illu andana í þeim upphátt og standa ákveðið gegn þeim á hverjum einasta degi. Þú getur gert þetta í einhverju öðru herbergi, þar sem þau heyra ekki til þín. Ekki gleyma því, að illir andar hafa mjög skarpa heyrn. Þú getur sagt eitthvað í þessa átt:
“Þið illu andar sem bindið ________________ , ég tek vald yfir ykkur í nafni Jesú Krists, Drottins míns. Ég bind ykkur í Jesú nafni, þið megið ekki starfa í lífi _________________ í dag. Hús mitt er tileinkað Drottni og er heilög jörð. Þið eruð með yfirtroðslu og
hafið ekki leyfi til að starfa hérna. Ég bind ykkur og skipa ykkur aðfara í Jesú nafni.
Þessi barátta verður daglegt brauð. Ég get ekki sagt ykkur hversu lengi þessi barátta varir, aðeins Drottinn veit það. Hafðu það hugfast, að illi andinn getur talað í gegnum aðra persónu, oft mjög dónalega og móðgandi til þess að reyna að hrekja þig í burtu. Í mörgum tilfellum er nauðsynlegt að hasta beint á andann þegar hann er að tala í gegnum aðra manneskju og skipa honum að vera hljóðum. Drottinn leiðbeinir þér.
#3) Þú getur beðið Drottin um að leyfa þér að “fylla í skarðið” fyrir þá persónu sem er ófrelsuð. Nánar verður farið í þetta í 14. kafla. Sjá Esekíel 22:30-31. Biddu Drottin um að skipa þér í skarðið fyrir þessa persónu til þess að augu hennar megi opnast og vilji hennar verði frjáls til að taka við Jesú.
#4) Að lokum verður þú að skilja hversu yndislega valdastöðu Drottinn hefur sett okkur í. Hebreabréfið segir:
“Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma.”
Hebreabréfið 4:16
Ritningarnar segja okkur að Satan komi fram fyrir Guð og krefji hann um fólk. Dæmið sem okkur er gefið í Jobsbók 1. Kafla, sýnir okkur ljóslega hvernig þetta gerist. Auðsjáanlega krafðist Satan einnig Péturs af Guði.
[Drottinn sagði] "Símon, Símon, Satan krafðist yðar að sælda yðureins og hveiti. En ég hef beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki. Ogstyrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.``Lúkas 22:31-32
Satan er ekki varpað úr himnaríki, fyrr en í 12. kafla í Opinberunarbókinni.
“Þá hófst stríð á himni: Míkael og englar hans fóru að berjast við drekann. Drekinn barðist og englar hans, en þeir fengu eigi staðist og eigi héldust þeir heldur lengur við á himni. Og drekanum mikla var varpað niður, hinum gamla höggormi, sem heitir djöfull og Satan, honum sem afvegaleiðir alla heimsbyggðina, honum var varpað niður á jörðina, og englum hans var varpað niður með honum. Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors, og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt. “ Opinberunarbókin 12:7-10
Þú verður að skilja, að Satan stendur frammi fyrir hásæti Guðs og krefur okkar himneska föður um ófrelsaða ástvini okkar. Satan bendir með ásakandi fingri og segir, “Sjáðu, þessi er á kafi í rokktónlist (eða einhverju öðru), og þar með hef ég löglegan rétt til sálar hans / hennar og til að hafa áhrif á líf hans / hennar og að senda illu andana mína inn í hann / hana.”
Þar sem að Guð er algjörlega réttlátur, verður hann að láta Satan fá það sem hann krefst, ef það er óvéfengjanlegt. En við, sem erfingjar og samerfingjar Jesú Krists, höfum meiri rétt til að krefja Guð Föður en Satan hefur. Við verðum að ganga fram fyrir hásætið “með djörfung” og krefja á móti Satan. Við getum beðið eitthvað á þessa leið:
“Guð og Faðir, ég stend gegn Satan. Ég kem til þín í nafni Jesú Krists, Drottins míns, og lyfti þessari persónu fram fyrir þig. Ég krefst hennar sem þess erfingja, sem þú hefur lofað að gefa mér (ef persónan er barnið þitt eða ættingi). Satan má ekki fá hann/hana. Ég bið þig að opna augu hans/hennar, svo að þau sjái ljós fagnaðarerindisins um Jesú Krist.”
Ef persónan, sem þú ert að krefjast, er ekki ættingi þinn getur þú krafist hennar á þeim forsendum að Jesús Kristur skipaði okkur að gera allan heiminn að lærisveinum og þá getum við krafist þessarar persónu sem lærisveins Jesú Krists.
Enn og aftur verður þú að skilja að þetta er raunveruleg barátta. Þú sigrar ekki á einni nóttu, en þú hefur mátt og vald Jesú Krists, svo þú sigrar að lokum.