Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Ellefti kafli

Andlegt stríð

um 23 mín. lestur

Ég hélt áfram að fylgjast með Elaine í mánuð eftir að hún fór af sjúkrahúsinu. Þá lét Satan til skarar skríða. Eitt kvöldið hringdi Elaine heim til mín, og ég skynjaði strax að hún var í miklu uppnámi. Hún hafði fyrr um daginn fengið bréf frá Bræðralaginu, og ég einnig.

Í bréfinu til mín var sagt í smáatriðum frá öllum gjörðum mínum síðastliðinn hálfan mánuð, það var meira að segja lýsing á því hvað ég hafði keypt úti í matvörubúð. Þeir vissu um heimilisfangið mitt og símanúmer. Þeir sögðu mér, að ef ég talaði nokkurn tíma við Elaine eða hitti hana aftur, myndu þeir koma og ná í mig, og mér yrði fórnað. Í bréfinu til Elaine var henni sagt, að ef hún myndi nokkurn tíma tala við mig, eða hitta mig og ef hún myndi ekki snúa við og iðrast og þjóna Satan aftur, þá myndu þeir ná í hana og fórna henni á næsta Svarta hvíldardegi, sem var fljótlega. Ein lína í báðum bréfunum var mjög svipuð bréfinu frá marskálki Assýríukonungs til Hiskía konungs. Þar stóð, "Þið tvær eruð heimskar, ef þið haldið að Guð ykkar geti verndað ykkur fyrir myrkrahöfðingjanum!" (sjá Jesaja 36 & 37 )

"Hvað eigum við að gera?" spurði Elaine. Hún vildi slíta öllu sambandi við mig í þeirri von að það kæmi í veg fyrir að ég yrði fyrir skaða, en ég var viss um að það væri ekki vilji Drottins. Mér var brugðið, en ég sagðist ætla að tjá Drottni stöðuna í bæn og spyrja hann, hvað hann vildi að við gerðum.

Ég vissi að við gætum ekki flúið. Þú getur ekki falið þig fyrir Satan. Ég vissi líka, rétt eins og Elaine, hversu megnugt þetta fólk er að fylgja eftir hótunum sínum. Ég mundi eftir unga prestinum sem hafði fallið í þeirra hendur og var næstum pyntaður til dauða. Ég vissi einnig hvað biði mín ef reglan klófesti mig. Ekki löngu áður hafði Drottinn opinberað mér í sýn, hvernig hreinni mey er fórnað í slíkum söfnuði. Dauðinn er kærkomin lausn fyrir fórnarlambið.

Ég sagði Drottni frá vandanum í bæn. Hann sagði mér að Elaine ætti að flytja samstundis til mín, þar sem hún hefði ekki nægilega trú til að standa ein. Hún hafði skilið fyrir mörgum árum og átti enga nána vini. Dóttir hennar bjó um stundasakir hjá stjúpsystur sinni, vegna sífelldra veikinda og sjúkrahúsdvalar hennar, þannig að hún var einsömul. Drottinn sagði mér að hún mundi frekar fremja sjálfsmorð en að lenda í klónum á Bræðralaginu. Hún vissi allt of vel hvaða örlög biðu sín. Ef Elaine flytti heim til mín, myndu árásirnar beinast beint að heimili mínu.

Ég var bókstaflega veik af ótta í tvo daga á meðan ég var að ákveða mig. Í stuttu máli sagt, þá er ég ekki efni í píslarvott! Ég gat ekki horfst í augu við þær líkamlegu þjáningar sem svo sannarlega biðu mín ef Bræðralagið kæmi höndum yfir mig. Á þeim tíma þótti mér orðið það vænt um Elaine, að ég gat ekki hugsað mér að henni yrði misþyrmt heldur. Ég gerði mér líka ljóst, að í hartnær tvö ár hafði ég verið að biðja Drottin að leyfa mér að fylla upp í skarðið á þessu svæði, (eins og í Esekíel 22: 30-31.) Ég vissi að sem "múrskarðsfyllir" yrði jafnvel nauðsynlegt fyrir Drottin að leyfa Satan að gera árás á mig, eins og hann hefur gert í gegnum aldirnar, alveg frá fyrsta píslarvottinum, Stefáni, og til okkar daga. (Postulasagan 7:54-60)

Ég vissi að það þýddi ekki neitt að fara með vandamálið til lögreglunnar, þar sem svo margir innan hennar voru viðriðnir Bræðralagið á þessu svæði. Við Elaine vorum hjálparlausar andspænis stórum og vel þjálfuðum her Satans. Á sama tíma vissi ég samt, að ef ég neitaði vilja Föðurins, þá væri ég að hafna Jesú. Loks seinni nóttina varð ég hreinskilin við Drottin. Ég fleygði mér flatri fram fyrir Föðurinn, grét úr mér augun og sagði:

"Faðir, Faðir, ég er svo hræðilega hrædd. Ég get ekki horfst í augu við svo hryllilegar líkamlegar kvalir og þann möguleika að ég þurfi að horfa upp á að Elaine verði misþyrmt. En ég get heldur ekki hafnað Jesú og þér. Ég get það bara ekki! Ég skal gera þinn vilja, en hjálpaðu mér, ég er svo hrædd!"

Á þessu stigi byrjaði Drottinn að tala inn í líf mitt. Ótti minn minnkaði raunar ekkert, en einhvern veginn fékk ég styrk til að halda áfram og gera það sem ég vissi að ég átti að gera. Ég hringdi í Elaine morguninn eftir og sagði henni að ég væri á leiðinni að ná í hana seinni partinn eftir vinnu, að hún yrði að koma og flytja til mín. Henni brá, og hún sagði mér að ég hlyti að vera kolbrjáluð, og hún vildi ekki gera það. En ég sagði að Drottinn hefði skipað svo fyrir, og hún hefði ekki um neitt annað að velja ef hún meinti það raunverulega að hún vildi fylgja og þjóna Jesú. Þann dag flutti Elaine inn til mín, og við höfum búið og þjónað Drottni saman síðan.

Við þurftum að bíða í tvær vikur áður en Svarti hvíldardagurinn rynni upp hjá Bræðralaginu. Þeir voru ævareiðir yfir því að Elaine skyldi flytja inn til mín, og þeir létu okkur vita það á óyggjandi hátt með ýmsu áreiti. Símhringingar á öllum tímum sólarhringsins, húsið lamið utan og barið á dyrnar um miðjar nætur, steinum kastað í gegnum gluggana á nóttunni. Þeir skutu jafnvel göt á veggi hússins.

Á þessum tíma fann ég að baráttan var andlegs eðlis. Guð einn gat háð þetta stríð. Ég las og deildi sögunni af Jósafat konungi í 2. Króníkubók 20, með Elaine. Mjög fjölmennur her marseraði gegn Jósafati konungi. Hann hafði enga möguleika á að standast árás hans. Hann og lýður hans lögðu vandann fram fyrir Drottin í bæn, og Drottinn svaraði þeim því, að baráttan væri hans og að hann, Drottinn, myndi vernda þau. Ég sagði Elaine að okkar eina von væri að standa í þeirri trú að Drottinn berðist fyrir okkur. Við þurftum bara að treysta því, að ef svo færi að hann myndi ekki velja að gera það, þá gæfi hann okkur styrk til að þola það sem hann ætlaði okkur. Bæn mín var sú að ef hann leyfði Bræðralaginu að pynta okkur, þá mundi hann gefa okkur styrk til að afneita ekki nafni Jesú, hvað sem þeir gerðu við okkur. Hver sem niðurstaðan yrði, þá vissi ég að ég átti að standa við hlið Elaine og styrkja hana í trúnni allt til enda.

Ég sagði foreldrum mínum ekki frá þessu, þar sem ég vildi ekki kalla reiði Bræðralagsins yfir þau. Staðreyndin var sú að við gátum ekki leitað hjálpar hjá neinum nema Drottni. Ég varð að segja herbergisfélaga mínum frá því hvað um væri að vera, og hún varð svo hrædd að hún flutti að heiman þessar tvær vikur.

Eftir því sem leið á vikurnar tvær, og árásirnar færðust í aukana, settumst við Elaine oftar niður og lásum versin í 2. Krónikubók. Daginn fyrir Svarta hvíldardag sat ég á bókasafni sjúkrahússins, þegar ein af læknanemunum, sem var kristin, kom til mín og lét miða í kjöltu mér. Á honum voru ritningarvers. Hún sagði mér, að hún vissi ekki hvers vegna hún léti mig fá þau, en Drottinn hefði staðfastlega sett það í hjarta hennar síðustu þrjá dagana að skrifa þau niður og láta mig fá þau. Ég á miðann ennþá. Á honum stendur nákvæmlega þetta.

"Hræðist eigi né skelfist fyrir þessum mikla mannfjölda, því aðeigi er yður búinn bardaginn, heldur Guði. En eigi þurfið þér aðberjast við þá, skipið yður aðeins í fylkingu, standið kyrrir ogsjáið liðsinni Drottins við yður.``2. Krónikubók 20:15&17.

Þetta voru versin sem við Elaine höfðum staðið á! Ég gæti aldrei lýst því, hvernig mér leið á þeirri stundu. Í fyrsta sinn vissi ég, án efa, að Drottinn ætlaði að berjast fyrir okkur og að okkur yrði óhætt, og þannig varð það.

Kvöldið sem Bræðralagið hafði tilgreint, sátum við Elaine til miðnættis, hlustuðum á tónlist, sungum og lofuðum Drottin. Þegar klukkan sló 12 á miðnætti vorum við að hlusta á Bill og Gloriu Gaither. Lagið sem þau voru að syngja var It is finished (Það er fullkomnað), og við stóðum og lofuðum Drottin fyrir að þetta væri búið. Hann stóð við orð sín. Hann hafði barist fyrir okkur. Ekkert hafði skaðað okkur. Þá fórum við í rúmið og sváfum í friði það sem eftir var nætur.

Daginn eftir Svarta hvíldardag Bræðralagsins byrjaði baráttan fyrst fyrir alvöru. Djöflarnir í Elaine reyndu að drepa hana og voru ekki að fela sig. Fram að því hafði hún þvertekið fyrir að neinir djöflar væru í sér, en það kvöld var henni skyndilega skellt í gólfið og var hún með mikinn verk í brjóstinu eins og hún væri að fá hjartaáfall. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, svo að ég kallaði á Drottin og bað hann að grípa inn í málið. Hann gerði það, og verkurinn hvarf.

"Elaine, þetta hlýtur að hafa verið illur andi! Af hverju neitar þú að viðurkenna það? "

"Já, þetta var Mann-Chan. Hann er að reyna að láta mig fá hjartaáfall."

"Hver er Mann-Chan?"

"Mann-Chan er djöfullinn sem hefur verið leiðsöguandi minn um árabil. Satan skipaði honum að drepa mig."

Ég vissi mjög lítið um baráttu við djöfla á þessu stigi málsins. Ég hélt að það væri hægt að berjast gegn þeim á sama hátt og Drottinn hafði kennt mér að berjast gegn Satan, það er að segja upphátt og í Jesú nafni. Ég sagði Elaine frá því og sagði henni að hún ætti skipa honum upphátt að hætta og fara í Jesú nafni. Elaine fannst sú tillaga mjög vandræðaleg og neitaði algjörlega að ávarpa Mann-Chan upphátt. Aftur og aftur henti Mann-Chan Elaine í gólfið næstu tvo daga. Alltaf neitaði hún að opna munninn, og að lokum skipaði ég honum að hætta, í Jesú nafni, og hann gerði það.

Ég vissi að Elaine yrði einnig að læra að berjast, því Drottinn mundi ekki leyfa mér að berjast fyrir hana alla tíð. Ég stóð frammi fyrir þrjóskunni sem hafði gert henni kleift að lifa af öll þessi ár, en nú beindist hún í öfuga átt. Loksins, þriðja daginn sem Mann-Chan réðist á Elaine, gekk ég í mikilli örvæntingu með hana að útidyrunum, opnaði þær og sagði:

"Ef þú lægir ekki sjálfa þig og ávarpar Mann-Chan upphátt eins og Drottinn vill og stendur ekki upp og berst gegn honum, drepur hann þig. Nú skalt þú fara út þar sem enginn getur heyrt í þér og ekki koma aftur fyrr en þetta mál er leyst! Ef þú leyfir honum að drepa þig, þá vil ég ekki að hann geri það inni í stofunni hjá mér!"

Hún fór út og samstundis varð ég skelfingu lostin. Hvað var ég búin að gera? Gerum ráð fyrir að hann dræpi hana? Það vildi ég svo sannarlega ekki. Hafði ég verið of hörð við hana? Ég féll á hnén og bað innilega fyrir henni. Á meðan ég var að biðja, kom Elaine nokkrum mínútum seinna, hálf kindarleg á svip til baka inn í húsið. Mér létti ofboðslega við það að sjá að hún var í heilu lagi!

"Jæja, hvað gerðist?"

"Ég gerði eins og þú sagðir og skipaði honum að fara, og hann gerði það."

Frá þeirri stundu jókst baráttan. Ri-Chan og margir aðrir djöflar byrjuðu að þjaka hana. Áður en vikan var liðin, þá vissi ég að ef þeim yrði ekki kastað út af henni, myndu þeir drepa hana. Ég hafði aldrei komið nálægt því að kasta út illum öndum og var ekki viss, hvernig átti að gera það. Á miðvikudagsmorgninum hafði ég samband við Pat prest og sagði honum frá ástandinu. (Ég talaði ekki við prest þeirrar kirkju, sem ég sótti venjulega, vegna þess að mér fannst eins og hann gæti ekkert hjálpað mér. Seinna sönnuðu viðbrögð hans að sú greining, sem Drottinn gaf mér, var rétt). Ég sagði Pat að mér fyndist að ef Elaine yrði ekki leyst þann dag, yrði hún drepin. Hann sagði mér að koma með hana á bænasamkomu um kvöldið. Að henni lokinni myndum við eiga við illu andana, samkvæmt leiðsögn Drottins.

Það var mikil barátta að koma Elaine til kirkjunnar, þar sem illu andarnir í henni gerðu allt sem þeir gátu til að koma í veg fyrir það. Ég varð næstum að bera hana út í bílinn og síðan að tjóðra hana niður með sætisólunum. Þær þjáningar, sem Elaine þurfti að ganga í gegnum meðan bænastundin stóð yfir, veit enginn um nema Drottinn. Illu andarnir rifu og tættu í líkama hennar innanfrá og reyndu að drepa hana áður en þeim yrði kastað út af henni. Ég dáðist stórlega að hugrekki Elaine og því hve staðráðin hún var að öðlast lausn. Hún kvartaði aldrei yfir þeim þjáningum sem hún þurfti að ganga í gegnum.

Eftir bænasamkomuna bað Pat okkur Elaine að koma með sér og tveim öldungum kirkjunnar inn á skrifstofuna sína. Ég held að hvorugur öldunganna hafi áður tekið þátt í að kasta út illum öndum. Pat hafði aftur á móti gert það. Hann byrjaði með bæn. Hann bað Drottin að innsigla herbergið með englum sínum til þess að ekkert kæmist inn og að við kæmumst ekki út, fyrr en það verk sem við höfðum komið til að vinna, yrði fullkomnað. Við Elaine horfðum hvor á aðra. Ég vissi að hún var að hugsa það sama og ég: "Vá!! Hvað gerist nú?"

Eftir bænina, ávarpaði presturinn Elaine og bað hana um að staðfesta það að hún hefði gert Jesú að Frelsara sínum, Drottni, og Leiðtoga lífs síns, að hún hafnaði Satan og öllu því sem hann hefði upp á að bjóða og að hún þráði að djöflarnir færu. Hún gerði það. Á þeirri stundu byrjaði baráttan. Djöflarnir tóku að koma í ljós og töluðu í gegnum Elaine. Ég hafði aldrei séð neitt þvílíkt. Augu hennar, röddin og allt andlitið breyttust. Ég gleymi aldrei fyrsta djöflinum. Skyndilega sagði kotroskin karlmannsrödd, "Ég er Yaagogg, djöfull dauðans, og þið eruð öll fífl. Þið getið ekki sigrað; við munum drepa þetta svikula fífl. Hún tilheyrir Satan, og hann leyfir henni ekki að lifa."

Pat blikkaði ekki auga.

"Þú lýgur, lygaandinn þinn! Elaine er núna á heilagri jörð, hún tilheyrir Drottni, og þú veist það! Ég skipa þér í Jesú nafni að koma út af henni!"

Baráttan stóð yfir í átta klukkustundir. Mjög margir djöflar komu upp á yfirborðið, neyddust til að auðkenna sig og síðan var þeim kastað út. Þetta var þó yndisleg reynsla. Heilagur andi stjórnaði þessu á stórkostlegan hátt og samhæfði okkur til verksins til skiptis. Við fundum öll fyrir nærveru Drottins. Við skipuðum djöflunum að koma út af Elaine, í valdi Jesú nafns, lásum ritningarvers upphátt, sungum lofgjörðarlög og báðum og lofuðum Jesú fyrir fullkominn sigur yfir Satan. Djöflarnir kvöldust vegna lofgjörðar okkar til Drottins, og þeir virtust fljótlega missa mátt sinn vegna hennar. Flestir komu þeir út með ruddalegum hósta.

Þvílíka gleði og fagnaðarstund áttum við þegar þessu lauk að lokum. Við grétum öll, klöppuðum höndum okkar og lofuðum Drottin í fullkomnum, yndislegum samhug. Uppgefnar en ofsaglaðar, lofuðum við Elaine Drottin alla leiðina heim.

Vikurnar, sem fylgdu á eftir þessari miklu lausn, voru vikur mikilla ákvarðana, sem höfðu áhrif á líf okkar beggja til frambúðar. Drottinn talaði til mín í byrjun fyrstu vikunnar. Hann spurði mig, hvort ég vildi skuldbinda líf mitt honum á alveg nýjan hátt. Hvort ég vildi leyfa honum að nota mig á allan þann hátt sem hann kysi í beinni baráttu við Satan og fylla í "skarðið" þannig að margar sálir mættu bjargast, sérstaklega fólk innan Bræðralagsins. Drottinn sagði við mig, að ef ég myndi velja það, gæti ég átt von á þjáningum og ofsóknum. Hann sagði einnig, að ég mundi þurfa að fórna starfsframa mínum. Hann sýndi mér að ég gæti átt von á miklum einmanaleika og höfnun, og ég þyrfti jafnvel að leggja niður allar áætlanir um að verða læknir, en hann yrði alltaf með mér. Hann sagði mér einnig að ég mundi missa alla fjölskyldu mína, og það hefur ræst.

Þetta var stór ákvörðun. Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á krabbameinsrannsóknum, og aðeins mánuði áður hafði umsókn mín um þátttöku í þjálfunarprógrammi í krabbameinsrannsóknum við eina af elstu og virtustu stofnun Bandaríkjanna, verið samþykkt. Að vera valin í þetta sérstaka verkefni er álitið mjög mikill heiður. Mig langaði mjög mikið til þess að sérhæfa mig á þessu sviði. Drottinn sagði við mig að hann gæfi börnum sínum alltaf valmöguleika, og ef ég kysi ekki að tileinka líf mitt baráttunni gegn Satan, þá mundi hann samt blessa mig.

Ákvörðunin var mjög erfið. Drottinn vildi að ég ynni áfram að lyflækningum og að ég ætti að opna mína eigin læknastofu til þess að ég hefði breiðari hóp sjúklinga. Það var nauðsynlegt til þess að hann gæti komið með það fólk til mín sem ég átti að þjóna og vitna fyrir, einkum reglumeðlimi. Þegar ég hugsaði um það, komst ég að því að ég elskaði Drottin of mikið til þess að ég gæti valið eitthvað annað en það sem hann hafði valið sem besta valkost fyrir mig. Þegar ég minntist á þetta við nokkra af "kristnum" vinnufélögum mínum á sjúkrahúsinu og þá staðreynd að ég þyrfti að hafna stöðunni í læknanefndinni, sögðu þau öll að ég væri ekki með öllum mjalla, að láta mér detta í hug að hafna slíkri stöðu.

Einnig voru margir af vinum mínum farnir að þrýsta á að ég léti Elaine flytja út. Þeir sem vissu ekki að ég hafði beðið Elaine að flytja til mín, byrjuðu að snúast gegn mér af óútskýranlegum ástæðum. Satan vann á þann hátt, að í vikulokin átti ég ekki einn vin eftir. Fjölskylda mín og herbergisfélagi voru einnig farin að þrýsta á að láta Elaine fara. Þau héldu að ég misskildi Drottin.

Jafnvel safnaðarhirðir kirkjunnar, sem ég var í, sendi eftir mér og ráðlagði mér að láta Elaine flytja út frá mér. Hann sagði mér einnig að ég ætti ekki að blanda mér í málefni fólks, sérstaklega ekki málefni Elaine. Þá hélt hann áfram og sagði að ég væri ekki velkomin í kirkjuna hans, fyrr en ég hefði losað mig við Elaine!

Mér var brugðið, og ég byrjaði að efast um að ég hefði heyrt rétt frá Drottni. En á sama tíma setti Heilagur andi í huga mér á mjög skýran hátt ritningarvers í 1.Pétursbréfi 1:22,"...Elskið því hver annan af heilu hjarta." Það hljómaði sannarlega ekki eins og orðin tóm. Einnig sendi Heilagur andi mér beint í hjartastað Galatabréfið 6:2, "Berið hvers annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists." Enn einu sinni hafði ég frið í hjarta og anda og þar með fullvissu um að ég hefði heyrt rétt frá Drottni.

Áður en vikan var liðin var ég samt sem áður orðin óörugg og niðurlút. Ég hitti Pat prest aftur næsta sunnudag, og ég sagði honum hvað hefði gerst og einnig frá þunglyndi mínu. Ég gleymi því ekki þegar hann leit beint í augun á mér og sagði:

"Rebekka, að skuldbinda sig til svo andlegrar baráttu og þú hefur verið að lýsa, mun hafa í för með sér mikla höfnun og þjáningar. Ef þú heldur að þú þolir það ekki, er eins gott að þú komir þér út úr þessu strax."

Mér fannst ég verða agnarsmá! En þetta var það sem ég þurfti að heyra. Næsta dag tók ég mínar ákvarðanir. Ég sagði við Drottin, að ég gæfi honum líf mitt til þess að hann gæti notað það á þennan hátt. Ég skuldbatt mig heilshugar til þess að hann gæti notað mig á hvern þann hátt sem hann taldi nauðsynlegan í beinni baráttu við Satan í þeim tilgangi að sálum yrði bjargað og að Jesús yrði vegsamaður.

Þá settist ég niður og skrifaði formanni læknanefndarinnar og sagði honum að eftir að hafa leitað Drottins í bæn, vissi ég að það væri ekki vilji hans að ég tæki þessa stefnu í starfsvalinu og ég kæmi því ekki. Þvílíkt fjaðrafok sem þessi ákvörðun hafði í för með sér á spítalanum! Nefndarformennirnir urðu reiðir og gátu ekki skilið mig. Ég reyndi að skýra fyrir þeim að það væri ekki vilji Drottins að ég legði stund á krabbameinsrannsóknir. Þeim fannst ég vera biluð, þar sem "Guð talar ekki við fólk á þennan hátt."

Flestu kristnu fólki er ekki bara ókunnugt um andaheiminn, heldur gerir það sér ekki grein fyrir þeirri staðreynd að sérhver athöfn okkur í hinum efnislega heimi hefur áhrif á andaheiminn. Charles G. Finney lýsir þessu samspili orsakar og afleiðingar á milli efnis og anda á fallegan hátt.

"Sérhver kristin manneskja hefur áhrif með hegðun sinni og vitnar annaðhvort með eða á móti. Útlit hennar, hvernig hún klæðir sig, öll framkoma, vitnar stöðugt með eða á móti. Ósjálfrátt vitnar hún með eða á móti trúnni. Hún safnar annaðhvort saman með Kristi, eða sundurdreifir. Í hverju skrefi slærðu á streng sem hljómar að eilífu. Hvert skref, sem þú tekur, slær á nótu sem ómar um allar hlíðar og dali himins og í gegnum alla myrka hella og klefa heljar. Með hverju skrefi lífs þíns hefur þú geipileg áhrif á eilífan hag sálnanna sem eru allt í kringum þig.

The Last Call ........ For Real Revival, eftir J.T.C., Bls.31.

Ákveðinn atburður gerði þessa staðreynd að veruleika fyrir mér. Ég hafði ekki gert mér ljóst hvaða samhengi er á milli orsaka og afleiðinga í andaheiminum og atburða í mínu eigin lífi. Í fyrsta lagi hafði ég verið að nota kraft Jesú Krists til að hefta galdra í einu af hinum sérstöku sjúkrahúsum Satans. Síðan hafði Drottinn blandað mér inn í baráttuna þar sem Satan hafði misst eina æðstu brúði sína. Það var atburður sem svo sannarlega olli því að Satan setti niður í konungsríki sínu. Stuttu seinna mistókst Satan og hinum illu öndum hans að fórna okkur Elaine, vegna þess að Drottinn hafði blandað sér í málið og verndað okkur. Ég býst við að kornið sem fyllti mælinn hafi verið þegar ég helgaði líf mitt algjörlega Drottni í baráttunni gegn Satan.

Algjörlega ómeðvituð um þann "usla" sem þetta olli í andaheiminum fór ég dag einn út í bakgarðinn minn til að borða hádegismat í ró og næði við garðborðið undir trjánum. Þar sem ég sat þarna og naut sólarinnar, þá leyfði Drottinn að skilunum milli andaheimsins og efnisheimsins væri svipt frá sem snöggvast.

Skyndilega birtist skínandi vera og settist á móti mér við borðið. Hún var í mannsmynd. Þar sem ég sat og starði á hana í hljóðri undrun, opinberaði Heilagur andi mér hver hún var! Þetta var síðasta veran sem ég bjóst við að ég ætti eftir að hitta persónulega. Þessi skínandi vera, sem kynnti sig á geislandi hátt sem "ljósengill", var reyndar Myrkrahöfðinginn, valdhafinn í loftinu, engill undirdjúpsins - Satan sjálfur! Ég man ekki eftir neinum smáatriðum í varðandi útlit hans, vegna þess að ég virtist ekki geta slitið augu mín frá augum hans, í þeim var slík illska. Þau voru eins og svartir kolamolar, og djúp þeirra, myrkur og illska, voru slík að þau virtust hóta að gleypa mig. Eitt andartak fannst mér ég vera að sogast inn í svart díkið sem var í þessum augum, en eitthvað hélt aftur af mér og gaf mér jafnvægi. Ég sá að Satan var reiður - mjög reiður.

"Satan!" sagði ég. Í staðinn fyrir að taka undir snubbótta kveðju hans þar sem ég vissi hver hann var, þá spurði ég, "Hvað vilt þú?"

"Kona, dirfist þú að koma í gegn mér?"

"Ég hef gert sáttmála."

"Ég veit það, en dirfist þú í raun að koma í gegn mér?"

Mér var mjög brugðið og undrandi yfir ítrekaðri spurningu hans. Það var augljóst að reiði hans jókst með hverju augnabliki, en Heilagur andi fyllti mig með fullkomnum friði, og eftir á furðaði ég mig á að ég hafði ekki fundið fyrir neinum ótta.

"Satan, ég kem ekki í gegn þér í mínum eigin mætti, heldur í mætti og valdi Jesú Krists."

"Þú hefðir betur reiknað út kostnaðinn eins og þessi Jesús sem þú þjónar ráðleggur fylgjendum sínum."

"Hver yðar sest ekki fyrst við, ef hann ætlar að reisa turn, og reiknar kostnaðinn, hvort hann eigi nóg til að ljúka verkinu? Ella má svo fara, að hann leggi undirstöðu, en fái ekki við lokið, og allir, sem það sjá, taki að spotta hann og segja: Þessi maður fór að byggja, en gat ekki lokið. Eða hvaða konungur fer með hernaði gegn öðrum konungi og sest ekki fyrst við og ráðgast um, hvort honum sé fært að mæta með tíu þúsundum þeim er fer á móti honum með tuttugu þúsundir? Sé svo ekki, gerir hann menn á fund hans, meðan hann er enn langt undan, og spyr um friðarkosti. Þannig getur enginn yðar verið lærisveinn minn, nema hann segi skilið við allt sem hann á." Lúkas 14:28-33

"Kona, þú hefðir betur reiknað út kostnaðinn vegna þess að ég segi þér, ég mun láta þig kynnast þjáningu og angist í lífinu, sem þú vissir ekki einu sinni að væru til!"

Ég vissi að þessari voldugu veru var dauðans alvara, og þar sem ég hafði falið allt mitt í Drottins hendur (allar eignir, frama, fjölskyldu, sjálft líf mitt), þá var enginn efi í huga mér um að Satan mundi krefja Drottin um allt þetta, alveg eins og hann hafði gert fyrir mörgum árum við Job. Ég hugleiddi þetta vel. Loksins svaraði ég:

"Ég hef reiknað út kostnaðinn eins og ég get, og ég veit að hvað sem gerist í framtíðinni, þá verður það undir fullkominni stjórn Guðs míns, og ég einfaldlega treysti því að náð hans muni nægja mér. Já, Satan, ég dirfist að taka upp valdið og máttinn sem Jesús hefur gefið mér, og ég dirfist að koma gegn þér í nafni Jesú Krists, Drottins míns!"

Augu mín límdust við augu Satans í langri þögn. Aftur fékk ég þá sérstæðu tilfinningu, að ef eitthvað hefði ekki haldið í mig, hefði ég sogast inn í hræðilegu illskuna sem blasti við mér. Þá hreytti hann hryssingslega út úr sér, "Svo skal það verða." Með þeim orðum hvarf hann.

Ég sat og velti vöngum yfir þessari reynslu; furðaði mig á því að sólin hélt áfram að skína hlýlega, vindblærinn bærði ljúflega laufblöðin á trjánum, og fuglarnir héldu áfram að syngja. Ég skynjaði á einhvern hátt, að ég hafði verið að taka stórt og óafturkallanlegt skref. Þegar ég skrifa þetta, hefur kostnaðurinn svo sannarlega verið mikill. Ég hef misst alla fjölskyldu mína, starfsframa og allt það sem ég átti á veraldarvísu. Ég hef einnig þjáðst mikið líkamlega. En í gegn um allt þetta hefur Drottinn verið með mér, og því sem Satan ætlar mér til falls, snýr Drottinn upp í sigur.

Vegurinn hefur sannarlega verið langur og þyrnum stráður frá þessum fyrsta fundi með Satan, hann hefur látið mig kynnast angist og þjáningu sem ég hafði aldrei kynnst áður, og ég veit einnig að það er meira í vændum. En ég hefði aldrei fengið að kynnast Drottni eins og ég þekki hann nú, þótt ég sé rétt að byrja, en það að kynnast honum þetta mikið er verðmætara en allt annað! Ég skil nú merkinguna í Matteus 6:19-21 þar sem Jesús segir:

"Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela. Safnið yður heldur fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela. Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera."

Hinn verðmætasti fjársjóður, sem nokkur getur eignast, er að kynnast Jesú, Föðurnum og Heilögum anda persónulega!

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

11. kafli af 20 · 23 mín. eftirAndlegt stríð