Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Fimmti kafli

Líf mitt sem æðsti kvenprestur

um 10 mín. lestur

Elaine segir frá:

Er ég gegndi skyldum mínum sem æðsti kvenprestur áhrifamikillar og stórrar reglu naut ég mikilla forréttinda, en átökin voru einnig mikil. Ég lenti í átökum við Satan og við marga meðlimi reglunnar, vegna þess að það voru margir hlutir sem ég neitaði einfaldlega að eiga nokkurn þátt í.

Aðal skyldur mínar fólust í því að vinna með æðsta presti samtakanna að því að skipuleggja reglufundina sem voru haldnir mánaðarlega. Vinnufundir okkar voru algerlega leynilegir og venjulega haldnir nokkrum sinnum í mánuði. Við æðsti presturinn komum saman ásamt 13 voldugustu nornum og 13 voldugustu galdrakörlum (seiðmönnum) reglunnar. Við sátum í stjórn. Þessir fundir voru oftast haldnir á stórum og ríkmannlegum heimilum þar sem mögulegt var að koma fyrir mjög stóru borði, sem við gátum öll setið við. Æðsti presturinn og ég sátum hvort við sinn borðsendann. Síðan sátu nornirnar öðrum megin og galdrakarlarnir hinum megin, í röð eftir virðingu. Satan sá venjulega til þess að þar væru einnig nokkrir sem að okkar mati voru óvelkomnir. Það fólk var þekkt sem varúlfar og var alltaf hlédrægt og einangrað, alltaf á verði og alltaf ógnandi. Þeir voru þar í mannsmynd og breyttust ekki í önnur líki nema að Satan fyrirskipaði svo og þá venjulega eingöngu í refsingarskyni. Við hvorki snertum þá né töluðum við þá. Þeir tilheyrðu Satan algjörlega, þeir voru gjörsamlega ofurseldir honum, og allir aðrir í reglunni óttuðust þá og forðuðust. Þeir voru fyrst og fremst verðir og refsivendir, notaðir af Satan og djöflum hans til að sjá til þess að við hin fylgdum öllum reglum og skipunum.

Ráðið skipulagði samkomurnar og sá um fjármál reglunnar. Skipanir voru gefnar æðsta presti og /eða æðsta kvenpresti, annaðhvort beint, eða af djöflum þeirra. Við reyndum alltaf að hafa áhrifamiklar og spennandi samkomur – höfðum alltaf nóg af eiturlyfjum og áfengi á boðstólum. Ég notaði hvorugt, ég hafði ekkert með slíkt að gera. Það gerðu hins vegar óbreyttir reglumeðlimir sem notuðu það hvort sem var. Það var aldrei skortur á slíku fólki. Ég blandaði ekki geði við þetta fólk og mundi aldrei gera. Háttsettari meðlimir reglunnar vara sig alltaf á því sem gæti komið þeim í kast við lögin, og ekki neytir háttsettur meðlimur heldur dóps né alkóhóls í óhófi. Þeir þora ekki að sljóvga huga sinn, vegna þess að það eru einfaldlega of margir sem girnast stöður þeirra.

Við hittum einnig háttsetta meðlimi í öðrum dulspekireglum í nágrenninu. Margir Satanistahópar eru til sem tilheyra ekki Bræðralaginu og vita jafnvel ekki af tilvist Bræðralagsins. Bræðralagið fylgist hinsvegar vandlega með þeim hópum og stjórnar þeim.

Ein af þeim skyldum, sem ég þverkallaðist við að framkvæma, voru fórnir, bæði dýra og manna. Samt var enginn skortur á fólki sem vildi framkvæma fórnirnar. Vegna þrjósku minnar, refsuðu Satan og djöflar hans mér grimmilega mörgum sinnum. Hinir reglumeðlimirnir gátu ekki gert mér neitt, þar sem ég var þá of voldug, og Satan og djöflar hans urðu að sjá um refsingarnar. Yfirleitt var refsingin líkamleg. Ég hef verið pyntuð mörgum sinnum af djöflum, á ólýsanlegan hátt. Ég hef fengið marga sjúkdóma, þar á meðal fjórum sinnum krabbamein, með öllum þeim hryllingi sem samfara er lyfjameðferðinni. En ég neitaði að láta undan á þessu sviði. Ég gat einfaldlega ekki tekið líf annarrar manneskju.

Unga fólk, hlustið á mig! Öll þátttaka í hverskonar dulspeki er gildra! Það er engin auðveld leið út. Satan getur gert við þig það sama og hann gerði við mig, og meira til. Ég bið þess daglega að Drottinn muni á einhvern hátt sýna ykkur, sem fönguð eruð, að þið getið losnað. Satan á ykkur ekki, jafnvel þótt þið hafið undirritað samning. Þann samning er hægt að hylja með blóði Jesú Krist. Þú getur orðið frjáls frá þeim samningi, ef þú býður Jesú inn í líf þitt og biður hann um að fyrirgefa þér, hreinsa þig af öllum syndum og verða leiðtogi þinn, Drottinn og frelsari. Satan vinnur alltaf að tortímingu þinni - Jesús vill gefa þér líf.

Það voru ýmsar uppákomur sem ég hafði mjög gaman af. Stundum komum við saman bara til að spjalla og fara í leiki. Við notuðum valdið sem við höfðum til keppni, til dæmis að kveikja á kerti sem var í hinum enda herbergisins án þess að koma við það, o.s.frv.. Ég fór einnig ófáar ferðir til Kaliforníu til að taka þátt í keppnum og ráðstefnum. Yfirleitt hafði ég mikla ánægju af þessu.

Ég flaug með einkaþotu frá einkaflugvelli sem var í nágrenni við bæinn þar sem fyrsta útihátíðin var haldin. Enginn utan reglunnar og fáir innan hennar vissu hvar hann var staðsettur. Hann er vel falinn og hans er gætt af vopnuðum vörðum. Ég var vanalega sótt af æðsta presti og nokkrum æðri nornum og galdrakörlum. Það var alltaf út af einhverjum stórviðburðum. Tilgangurinn var að skiptast á skoðunum og að keppa um það hver væri voldugastur. Það var í gegnum þessar keppnir sem vald mitt jókst á landsvísu, þar til ég var orðin ein af brúðum Satans, og að lokum æðsta brúður Satans í Bandaríkjunum.

Þessar ferðir tóku að meðaltali um viku, og voru ráðstefnurnar yfirleitt haldnar rétt fyrir Svartan hvíldardag (Black Sabbath) þegar haldin var svört messa (Black Mass) um páskana. Ég fann mér alltaf einhverja afsökun til að snúa við heimleiðis fyrir svörtu messuna. Við fórum á sérstakan stað í hæðum Kaliforníu, rétt fyrir utan Los Angeles. Þar er stórt setur sem var sérstaklega byggt fyrir regluna. Ég gæti trúað að í því séu 30 svefnherbergi eða fleiri. Í því eru margir fallegir, steindir gluggar, sérstaklega skreyttir með ýmsum dulrænu mynstri og djöflatáknum. Innandyra er óhóflegur íburður og glæsileg húsgögn. Þar á meðal stór veislu og danssalur. Og auðvitað sundlaugar, tennisvellir, golfvellir o.s.frv. Það lítur út eins og sveitasetur milljónamæringa. Þar eru þrír kjallarar með stórum hvelfingum sem hafa að geyma bókasöfn með austurlenskri dulspeki og sögu. Hvelfingarnar höfðu einnig að geyma gull og silfur, og gjaldeyri frá öllum löndum heimsins. Allt svæðið er falið af trjágróðri og vandlega vaktað af vopnuðum vörðum, bæði á jörðu og úr lofti.

Í síðustu ferð minni þangað, háði ég þá hörðustu keppni sem ég hef á æfi minni upplifað. Á þeim tíma var ég æðsta brúður í landinu. Þetta var alþjóðleg keppni. Leiðtoginn þarna var æðsti prestur sem skar sig úr. Hann var hávaxinn, dökkur yfirlitum og myndarlegur ungur maður, en það var eitthvað forboðið vald sem streymdi frá honum, sem olli því að engum líkaði við hann og allir voru einnig hræddir við hann. Hann stjórnaði keppninni og var augljóslega alveg sama þótt einhver væri drepinn ef þeim mistókst að framkvæma það sem þau áttu að gera. Hann var með stingandi, svört augu sem gátu kælt mann inn að beini. Hann stjórnaði með harðri hendi, og jafnvel ég reyndi að forðast hann á allan hátt.

Keppnin fólst í gífurlega erfiðum atriðum sem voru sérstaklega gerð til að sýna vald keppendanna. Ég man, að í einu atriðinu þurfti ég að breyta ketti í kanínu, eingöngu með einum fingursmelli, og síðan aftur í fyrri mynd. Hin raunverulegu líkamsumskipti voru framkvæmd af djöflum og höfðu það í för með sér að dýrið drapst samstundis. Síðasta daginn var ég eini keppandinn sem eftir var, en æðsti presturinn hélt áfram að reyna mig. Ég átti engra kosta völ nema að uppfylla óskir hans. Síðasta atriðið hefði drepið mig ef djöflarnir í mér hefðu ekki verið nógu voldugir.

Ég var látin standa í um það bil sex metra fjarlægð frá manni sem var með .357 magnum skammbyssu. Ég kallaði upp djöflana og setti þá sem skjöld fyrir framan mig. Skyndilega hleypti byssumaðurinn af þeim sex skotum, sem voru í byssunni, beint að mér. Hann gat ekki komist hjá því að hitta. En djöflunum tókst að skýla mér, og kúlurnar duttu á jörðina fyrir framan mig og hringsnerust þar. Ég öðlaðist mikið lof og virðingu fyrir að vinna keppnina.

Gullkóróna var sett á höfuð á mér, og þeir, sem voru með mér í reglunni, hneigðu sig og beygðu, mér til heiðurs. Það var komið fram við mig eins og drottningu það sem eftir var af dvöl minni. Mér voru gefin öll þau fallegu föt sem ég gat látið mig dreyma um, ég var böðuð, hárið á mér lagað, og ég snyrt á höndum og fótum af þjónustufólki. Í veislum voru alltaf myndarlegir fylgdarsveinar mér við hlið, sem einnig voru lífverðir mínir. Við borðuðum á flottustu veitingastöðunum í Los Angeles. Fylgdarsveinarnir smökkuðu alltaf á matnum mínum áður en ég borðaði, til að ganga úr skugga um að hann væri ekki eitraður. Við fórum á brimbretti og í útreiðartúra. Meðlimir reglunnar máttu ekki berjast innbyrðis þennan tíma, vegna þess að þetta voru miklir hátíðisdagar í augum Satansdýrkenda. Ég var mjög stolt á þeim tíma, en fljótlega átti Drottinn eftir að lægja mig.

Það var í þessari síðustu heimsókn minni til Kaliforníu að einn af þeim atburðum gerðust, sem komu því til leiðar að ég fór að hugleiða að taka á móti Jesú, og ég byrjaði að efast um fullyrðingar Satans um það að hann væri voldugri en Guð. Æðsti presturinn safnaði mörgum okkar saman og sagði að það væri fjölskylda í næsta nágrenni, sem væri að blanda sér í málefni Satans. Þau höfðu verið að snúa mörgum meðlimum reglunnar til óvinarins Jesú Krists og lítilsvirtu þar með regluna. Satan hafði gefið út skipun um að drepa þau öll. Æðsti presturinn sagði okkur að við ættum öll að fara í andlega líkamann okkar (út úr líkamanum) og drepa þau. Við settumst niður í hring með kertin okkar fyrir framan okkur, og með fullri meðvitund yfirgáfum við líkama okkar og fórum í andlegum líkama okkar að húsinu, til að drepa þetta fólk. Ég var alls ekkert æst í þetta verkefni, en hafði ekkert val. Ef ég hefði óhlýðnast, hefði ég verið drepin.

Það sem kom okkur á óvart var, að þegar við komum að lóðamörkum fjölskyldunnar komumst við ekki lengra. Öll lóðin var umkringd risastórum englum. Englarnir stóðu hlið við hlið og héldust í hendur. Þeir voru klæddir í hvíta, síða kyrtla, og þeir stóðu svo þétt saman að axlir þeirra snertust. Enginn komst framhjá þeim - hversu mikið sem við reyndum. Allar tegundir af vopnum, sem við notuðum, skoppuðu bara af þeim án þess að skaða þá hið minnsta. Fyrst hlógu þeir að okkur fyrir það að reyna að komast framhjá þeim. Hinir reglumeðlimirnir urðu sífellt reiðari og reiðari eftir því sem tíminn leið. Skyndilega breyttist viðmót englanna, og eldleg augu þeirra neyddu okkur til þess að falla afturábak á jörðina. Mjög niðurlægjandi reynsla, vægast sagt!

Ég gleymi því ekki að á meðan ég sat á jörðinni og horfði upp til þeirra, leit einn af englunum beint í augun á mér og sagði við mig með elskulegustu rödd sem ég hafði nokkurn tíma heyrt, "Viltu ekki taka á móti Jesú sem frelsara þínum? Ef þú heldur áfram á þessari leið, sem þú hefur valið, verður þú drepin. Í raun og veru hatar Satan þig, en Jesús elskar þig svo mikið að hann dó fyrir þig. Ég bið þig, hugleiddu það að gefa Jesú líf þitt." Þannig endaði baráttan hvað mig snerti. Ég neitaði að halda áfram að reyna að komast í gegn. Mér var mjög brugðið. Hinir reyndu áfram litla stund, en náðu engum árangri. Ég efast um að fjölskyldan hafi orðið vör við baráttuna sem átti sér stað fyrir utan húsið þeirra. Þau voru algjörlega vernduð! Við kölluðum þessa sérstöku tegund engla "keðjuengla." Alls ekkert gat komist framhjá þeim. Með sjálfri mér var ég þakklát fyrir það að við komumst ekki í gegn og, keðjuenglarnir höfðu gefið mér eitthvað til að hugsa um.

Þrátt fyrir þessa reynslu af englunum liðu enn nokkur ár áður en ég snéri mér til Drottins Jesú. Ég þráði enn meira og meira vald og neitaði að horfast í augu við að valdið var að tortíma mér og dæma sál mína til eilífðar í Helvíti.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

5. kafli af 20 · 10 mín. eftirLíf mitt sem æðsti kvenprestur