Fara í efni
← BækurHann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Hann kom til að gefa fjötruðum frelsi

Rebecca Brown

Inngangur

Aðvörun

um 2 mín. lestur

Þetta verður ein erfiðasta bók sem þú hefur reynt að lesa. Satan vill ekki að þú lesir um þetta efni!

Himneski faðir, ég bið þig að skýla og vernda lesanda þessarar bókar og gefa honum ljósan skilning á öllu því sem þú hefur lagt okkur á hjarta að segja frá. Ég bið og ég þakka þér, í nafni þíns yndislega sonar, Drottins Jesú Krists. Amen.

Tilgangur þessarar bókar, er að sýna þér þær mörgu leiðir, sem Satan og hans illu andar eru að vinna eftir í veröldinni í dag, og sýna þér hvernig þú getur barist gegn þeim á áhrifaríkan hátt, og hvernig þú getur öðlast frelsi frá fjötrum Satans.

Satan mun gera allt sem hann getur til að koma í veg fyrir að þú lesir þetta. Hann mun trufla þig með yfirþyrmandi svefnhöfga, ringulreið, stöðugum truflunum og mörgu öðru. Ótti er eitt af öflugustu vopnum Satans. Hann mun nota ótta til að reyna að hindra þig í að lesa þessa bók. Þú þarft einfaldlega að hasta á óttann, upphátt í Jesú nafni til að yfirvinna hann. Biddu einnig um vernd þegar þú ert að lesa, til þess að þú skiljir efnið.

Ég vil færa Drottni mitt dýpsta þakklæti og síðan Elaine. Það hefði ekki verið mögulegt fyrir mig að skrifa þessa bók ef ég hefði ekki fengið upplýsingar frá Elaine, og styrk, leiðsögn og hugrekki frá Drottni. (Ég hef skrifað sögu Elainar eins og hún sagði mér hana en auðvitað get ég ekki sannreynt það sem hún sagði mér, en saga hennar er ekkert einsdæmi því þeir fjölmörgu, sem koma út úr ríki Satans hafa svipaða sögu að segja.)

Öllum nöfnum hefur verið breytt til að vernda þær persónur sem koma fyrir í þessari bók. Við biðjum í einlægni að Drottinn Jesús Kristur muni blessa þig ríkulega með hjálpræði sínu og skilningi er þú lest eftirfarandi blaðsíður.

“Hann [Jesús] kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn, þar sem ritað er:

Andi Drottins er yfir mér,af því að hann hefur smurt mig.Hann hefur sent mig til að flytjafátækum gleðilegan boðskap,boða bandingjum lausnog blindum sýn, láta þjáða lausaog kunngjöra náðarár Drottins.

Síðan lukti hann aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður, en augu allra í samkundunni hvíldu á honum. Hann tók þá að tala til þeirra: „Í dag hefur rætst þessi ritning í áheyrn yðar.” Lúkas 4 : 16 - 21

Hann kom til að gefa fjötruðum frelsi!

Um þessa útgáfu

Hann kom til að gefa fjötruðum frelsi (á ensku: He Came to Set the Captives Free). Rebecca Brown.

Íslensk þýðing.

Bókin kom fyrst út á ensku árið 1986.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Inngangur · 2 mín. eftirAðvörun