← BækurMaðurinn sem Guð notar

Inngangur

Sálmur: Aleinn með þér

um 1 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Aleinn með þér, hve sálu stundin svalar,er svífur heimur brott, ég til þín fer.Í dularhljóðleik, Drottinn, rödd þín talar,er dvel ég þínu orði með og þér.

Kór:Aleinn, ó Drottinn, alveg einn með þér,minn andi frjáls, og hjartað rólegt er.Mín sorg er horfin, sálarbyrðar gleymdar,er svíf ég aleinn, heimi fjær, með þér.

Aleinn með þér, í önnum heims og stríði,hvað örlög geyma, fánýtt þykir mér.Þó geysi um veröld glaumur, strit og kvíði,samt geng ég aleinn, Herra kær, með þér.

Aleinn með þér, er vinir frá mér fara,ég finn mig einan, hversu sárt það er!En þó í lífsins hörðum harmaskara,mitt hjarta fann sig loksins eitt með þér.

Aleinn með þér, er æviþrautir líða,og eyðast skuggar, dagur ljóma fer.Ó, Drottinn, kom, mér órótt er að bíða,um eilífð vil ég dvelja einn með þér.

O. J. S.

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Inngangur · 1 mín. eftirSálmur: Aleinn með þér