Tíundi kafli
Aðeins nógu snemma
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
„Gætuð þér komið og heimsótt veika konu?“
„Liggur mikið á því?“
„Já, mjög mikið. Það er ekki víst hún lifi nóttina af.“
„Allt í lagi. Ég skal koma þegar í stað,“ og ég lagði frá mér talsímatækið.
Ég lagði af stað, fann brátt húsið og var óðar vísað inn til sjúklingsins. Kona, hrygg á svip, leit á mig, er ég kom inn. Ég fann ég var í návist dauðans. Vonleysi var skráð á andlit hennar, meðan hún beið þess ég færi að tala. Engan tíma mátti missa í það, að tala um hluti viðkomandi þessum heimi. Eilíf velferð hennar var í veði.
„Frú C.., eruð þér tilbúin að fara héðan, eigið þér nokkra von?“ spurði ég og beygði mig niður að henni.
„Nei, enga,“ muldraði hún og hristi höfuðið, en langdregið andvarp leið yfir varir hennar.
Eins skýrt og ég gat lýsti ég fyrir henni vegi hjálpræðisins, kraup niður, bað með henni og söng með veikum og lágum rómi:
„Svo aumur sem ég er, til þínég óðar flý, því vegna mínþú bera máttir beiska pín,Guðs blessað lamb, ég kem!
Ég get ei bætt mig, bið er hál,en blóð þitt hreinsar mína sál,til þín að flýja er meira en mál,Guðs milda lamb, ég kem!“
Meðan ég söng síðara versið, heyrði ég hana með veikri, slitróttri röddu reyna að syngja með. Stundum gat ég greint orðin, en oftast voru þau óskiljanleg, unz hún kom að síðustu línunni, þá söng hún með hjarta og rómi:
„Guðs milda lamb, ég kem.“
Hún kom, kom í fullri vissu trúarinnar. Ég fór frá henni, vissi, að allt var gott, og að hún var að fara heim til Guðs.
Hún var meðlimur kirkjunnar, en ófrelsuð samt. Afturhvarfið var hin eina, mikla þörf hennar, því að orð Guðs segir skýrt og með áherzlu: „Nema þér snúið við... komizt þér alls ekki inn í himnaríki.“ (Matt. 18. 3.) Þegar ég gekk heim, var ég hryggur í hjarta, og ég stundi hátt, er ég hugsaði um þá hræðilegu ábyrgð, sem hvílir á kirkjunnar þjónum, sem gera menn að kirkjunnar meðlimum, án þess að þeir hafi endurfæzt.
Ég sá ekki frú C. aftur fyrr en ég stóð við kistu hennar. Og er ég flutti líkræðuna, varð ég ákveðnari en nokkru sinni fyrr að leggja allt annað til hliðar og gefa mig óskiptan að hinu eina, mikla starfi, að gera fólk undirbúið fyrir himininn. Orð Guðs lýsir yfir því, að „Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn.“ (I. Tím. 1. 15.) Þetta var hinn æðsti tilgangur hans, ekki að siðbæta þá eða betra þá, heldur að frelsa þá. Er nokkuð annað svo brýnt, eins lífsnauðsynlegt, sem hjálpræði ódauðlegrar sálar? Lýsti ekki frelsarinn sjálfur yfir því, að „nema þér snúið við, komizt þér alls ekki inn í himnaríki.“? Vér skulum trúa orði Guðs og gefa gaum aðvörun þess.
Tveir eða þrír dagar liðu. Aftur hringdi síminn. Í þetta sinn var það ungur maður. Hann var einnig fárveikur og hafði þjáðst ákaflega.
„Hví hafið þér sent eftir mér?“ spurði ég.
„Af því að ég er ekki tilbúinn að fara. Ég er ekki frelsaður, og ég vil gera upp við Guð,“ sagði hann eða eitthvað í þá átt.
Aftur sagði ég gömlu söguna, og hve hann drakk hana í sig! Ég tilgreindi hverja ritningargreinina af annarri og skýrði þær, unz hann að lokum skildi og trúði. Þá kraup ég niður, bað og söng að lokum aftur hinn óviðjafnanlega sálm:
„Svo aumur sem ég er, þú viltmitt eðli hreinsa syndumspillt.Þitt orð mig lífgar líknarmilt.Guðs lamb, til þín ég kem.
Þín guðdómselska eilíflegmér opnar gegnum þrautir veg,til þín af hjarta þrái ég,til þín, Guðs lamb, ég kem.“
Hann söng líka þessi trúarvekjandi orð, orð, sem gera veginn svo ljósan. Einnig hann kom til Jesú, kom sem sekur og glataður syndari og gaf sig frelsara syndarans. Þá fór ég frá honum. Honum var fullnægt, hann var alveg ánægður, og sál hans var lauguð kærleika Guðs.
Þegar ég kom næst, var hann meðvitundarlaus, og næst var það, að ég jarðaði hann. Aðeins eitt tækifæri. Ef ég hefði talað um annað og látið hann liggja þar ófrelsaðan, og vænzt þess, að ég sæi hann aftur? Enn einu sinni ákvað ég að nota líf mitt til að vinna að frelsun sálna, og að boða á allar hliðar með jafnvel enn meiri alvöru hina ægilegu, alvöruþrungnu aðvörun: „Nema þér snúið við, komizt þér alls ekki inn í himnaríki.“
Vér skulum trúa biblíunni, þá verðum vér ekki lengur áhugalausir. Andspænis svo alvarlegum sannindum, hljótum vér að fyllast alvöru. Fólki er nógu mikil alvara, þegar kviknað er í húsinu. Það gefur sér þá ekki tíma til að þvo börnunum og klæða þau, áður en þau eru borin á óhultan stað. Hróp þess er: „Bjargið þeim, eða þau farast!“ Þegar vér í sannleika trúum orði Guðs, trúum þessu: „Nema þér snúið við, ... komizt þér alls ekki í himnaríki,“ trúum því, að sálir séu að farast alstaðar umhverfis oss, trúum því, að þær séu eilíflega glataðar, — þegar vér í sannleika trúum þessu í hjörtum vorum, þá munum vér ekki hafa mikinn áhuga fyrir öðru en því, að þær frelsist og það eins fljótt og auðið er.