Sjötti kafli
Hvað virðist Guði um mig?
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Vér ætlum að láta Guð rannsaka oss. Vér viljum komast að því, sé það kleift, hvað einmitt honum virðist um oss. Vér biðjum með Davíð: „Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt; rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar; og sjá þú, hvort ég geng á glötunar (spillingar) vegi.“ Hann snúi kastljósi síns Heilaga Anda að oss, unz vér getum séð sjálf oss eins og hann sér oss. „Mennirnir líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað.“ Vér þráum það eitt að vita, hvað Guði virðist um oss.
Stundin kemur, er vér stöndum frammi fyrir Guði. Þá munum vér, fyrir augum alls alheimsins, afhjúpuð verða, og huldustu launungarmál hjartans verða opinber. Hjúpur sá, er skýlt hefir oss fyrir augum manna, hylur oss ekki frammi fyrir Guði. Er því ekki betra að komast að því nú, hvað honum virðist um oss? Er oss ekki betra, að hann vegi oss nú á vogarskálum, svo að vér verðum léttvæg fundin, til þess að vér getum þegar í stað bætt það upp, sem á vantar, og gert upp við Guð?
Þess vegna spyr ég: „Hvað virðist Guði um mig?“ Þegar Guð, sem rannsakar hjörtun, horfir inn í hjarta mitt, hvað sér hann þar? Er ég þóknanlegur í augum hans? Hvað virðist honum um mig?
1. Hvað virðist Guði um starf mitt?
Finnur hann, að ég sé falslaus og einlægur, laus við alla táldrægni og ókunnur hræsni? Glappaskot mín skipta ekki máli. Spurningin er: Er mér alvara? Er ég einlægur? Ef hvatir mínar eru réttar, mun hann ganga fram hjá mistökum mínum. Er ég honum hollur, trúr? Er hjarta mitt í starfinu, eða er ég aðeins atvinnumaður? Er ég að hugsa um, hvað ég hagnist á því? Er ég eigingjarn? Hafa peningar nokkur áhrif á áform mín og ákvarðanir? Mundi ég þjóna Guði jafn kappsamlega, þótt ég hefði engan hag af því? Eru engin svik í mér?
Er gagn að starfi mínu fyrir Guð? Er líf mitt vitnisburður um Jesúm? Er ég fær um að leiða aðra til lífs kraftar og sigurs? Get ég unnið sálir fyrir Krist? Reyni ég það nokkurn tíma? Hefi ég talað við nokkurn mann um sál hans á síðastliðnu ári? Hefi ég boðskap að flytja, eða er mín reynsla svo yfirborðskennd, að hún sé öðrum til einskis gagns? Vita þeir vinir mínir, sem ófrelsaðir eru, að ég er kristinn?
2. Hvað virðist Guði um félagslíf mitt?
Hefi ég hlýðnazt skipunum hans: „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum“ og „farið burt frá þeim og skiljið yður frá þeim?“ Er það, sem ég geri, honum þóknanlegt? Getur bros hans hvílt yfir mér? Tek ég þátt í nokkrum unaði, sem rekur hann brott úr hjarta mínu og lokar úti nálægð hans? Er samvizka mín róleg, eða ónáðar hún mig, þegar ég aðhefst sumt eða kem á vissa staði? Er ég fús til að sleppa öllu vegna Jesú og taka hann fram yfir heiminn? Hann sleppti öllu vegna mín. Langar mig til að þóknast honum, eða vil ég rökræða við hann um vafasöm mál? Eyði ég þeim tíma, sem með réttu heyrir honum til? Nota ég kvöldin í félagslífið, þar sem svo mikil þörf er á þeim í starfi hans?
3. Hvað virðist Guði um guðrækni mína?
Tek ég nægan tíma til að dvelja með honum í einrúmi? Er ég þá að flýta mér? Er ég aleinn með Guði? Er mér unun að mæta honum í leyndum? Er mér unun að samfélagi hans? Er Jesús mér raunverulegur? Fullnægir hann mér?
Er ég að nema Guðs orð? Íhuga ég það í einrúmi eða aðeins opinberlega? Lýkur hann upp leyndardómum þess fyrir mér og gerir mér það lifandi? Tek ég á móti fyrirheitum hans, tileinka ég mér þau?
Er líf mitt þrungið af bæn? Bið ég, og fæ ég bænasvör? Hefi ég lært, hvernig á að biðja? Les ég bænir, eða biðst ég fyrir? Áorka bænir mínar nokkru? Er bænin mér raunveruleg og lifandi?
4. Hvað virðist Guði um framfarir mínar í trúarlífinu?
Er ég að taka framförum í andlegum efnum? Er ég kristinn maður í vexti? Er ég betri í ár en í fyrra? Er Jesús mér raunverulegri? Sjá vinir mínir einhvern mismun hjá mér? Eru gamlir veikleikar og hrasanir míns gamla eðlis að hverfa? Og er ávöxtur Andans að verða meir og meir mín eign?
Er ég í framför með sigur yfir synd, einkanlega viðloðandi synd minni? Hefi ég fengið sigur yfir syndinni, sem áður sigraði mig? Vil ég losna við hana? Geymi ég í mér eitthvert skurðgoð, sem fælir brottu frið Drottins og kraft, nálægð hans, sólskin og kærleika? Trúi ég því, að hann megni að varðveita mig frá hrösun, að mátturinn allur sé hans?
Nú, er vér höfum í einlægni athugað þessar fjórar lífsnauðsynlegu spurningar, hver eru svörin? Vér vitnum oft um það, að Jesús sé fullnægur. En setjum sem svo, að vér snúum þessu við og spyrjum: „Hefi ég fullnægt honum? Er Guð ánægður með mig?“ Það eitt skiptir máli. Það eitt er mikilvægt, hvað Drottni virðist um oss. Höfum vér valdið honum vonbrigðum, eða erum vér þóknanleg í augum hans? Hefir hann unun af oss? Hvað virðist Guði um mig?