Sextándi kafli
Hið tvíþætta starf vort
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Þörfin er brýn, að vér höfum skýran og glöggan skilning á, hver ábyrgð vor er. Vér verðum að vinna Guðs verk, og vér verðum að vinna það á Guðs hátt. Oss stafar, ef til vill, mest hætta af því, að auka svo skipulagið og víkka svo út starfsgrundvöllinn, að hið mikilvæga og nauðsynlega verk, sem vér eigum að vinna, er annaðhvort horfið sjónum eða það er enginn tími til að sinna því.
Hvað vér eigum að vinna, er ekki erfitt að sjá. Leiðbeiningar vorar eru ljósar. Í Post. 6. 4. höfum vér þessi orð: „Vér munum halda oss stöðugt að bæninni og þjónustu orðsins.“ Fyrri þáttur starfs vors er því „bæn,“ en án hennar verður starf vort áhrifalaust. Síðari þátturinn er „þjónusta orðsins.“
Í Post. 1. 8. nefnir Drottinn oss „votta“ sína, og í Mark. 16. 15. misskilur enginn fyrirmælin: „Farið út um allan heiminn og prédikið gleðiboðskapinn allri skepnu.“ Og enn er boðið: „Prédika þú orðið.“ II. Tím. 4. 2.
Ef vér rækjum þessa tvo þætti vel, „fyrirbæn“ og „vitnisburð“, munum vér ávallt hafa meira en nóg að gera.
Bænastarf vort getum vér leyst af hendi, bæði í einrúmi og opinberlega. Orðið má boða hverri skepnu með mörgu móti: úr ræðustólnum, í samtölum, með því að gefa smárit, o. s. frv.
Til að rækja vel þetta tvíþætta starf, þurfum vér að losna við allt, sem er vélrænt, skipulagsfjötrað og þá framkvæmdasemi, sem leysir ekki af hendi það verk, sem Guð hefir svo greinilega tilskipað. Hins vegar, ef vér bætum þessu áðurnefnda við starf vort, mun það blinda oss og þoka til hliðar starfinu tvíþætta, sem söfnuðinum hefir verið falið.