Sjöundi kafli
Hið Guði gefna líf
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Þegar ég tala um að gefast Guði, kýs ég að kveða skýrt að orði. Það borgar sig stundum, sé farið út í smáatriði. Skýrt og einfalt ætla ég að ræða um þetta, svo að þú hafir ekki þokukennda hugmynd um, hvað ég er að fara. Guði gefið líf er það, að allt sé lagt á altari Guðs.
1. Þú sjálfur.
Hvað mundi karlmaður hugsa um unga stúlku, sem gæfi það svar við bónorði hans, að hann mætti eiga landeignir hennar og hús og allar hennar eigur aðrar? Mundi hann verða ánægður? Ekki eitt andartak. Hann er ekki að biðja um eignir hennar, heldur hana sjálfa. Ekkert getur komið í staðinn fyrir hana. Þannig er því farið með Jesúm Krist. Hann vill eiga okkur sjálf, líkama, sál og anda. Af þessu leiðir, að við verðum fyrst af öllu að leggja okkur sjálf á altarið og segja: „Ég fer, hvert sem þú vilt, að ég fari, kæri Drottinn, til að þjóna þér, hvort heldur er sem trúboði eða orðsins þjónn. Allt vil ég yfirgefa og hlýða kalli þínu.“
2. Ástvinir.
Er ég hefi lagt sjálfan mig á altari Guðs, legg ég þar einnig ástvini mína, son eða dóttur, föður eða móður. Vilji Drottinn fá dóttur mína og senda hana út á akur sinn, má hann fá hana. Krefjist hann þess, að ég yfirgefi föður eða móður, þá hlýði ég. Jafnvel, ef hann vildi taka ástvin minn heim til sín, þá voga ég ekki að mögla. „Verði þinn vilji.“
„Hví er ég ekki sæl?“ Þannig spurði auðug kona trúboðann mikla, Jónatan Goforth frá Kína, er hún stóð hjá honum heima hjá sér.
„Hafið þér gefið Guði allt?“ spurði þessi Guðs maður hóglátlega.
„Eftir því sem ég veit bezt, hefi ég gefið honum allt,“ svaraði konan.
„Eruð þér viss um, að allt, sem yðar er, sé á altari Guðs?“ hélt hann áfram.
„Ég held það sé allt á altarinu,“ svaraði hún.
„Væruð þér fúsar til, að Guð tæki litlu stúlkuna yðar hérna og sendi hana til Kína?“ spurði trúboðinn og lagði hönd sína á höfuð litlu stúlkunnar.
„Að Guð tæki dóttur mína og sendi hana til Kína! Ég held nú ekki. Ég vil hafa hana hjá mér!“ hrópaði móðirin upp.
„Þér segið mér, að þér hafið gefið Guði allt. Þó hafið þér ekki einu sinni gefið Guði barnið yðar. Hvernig getið þér vænzt þess, að njóta friðar Guðs og blessunar? Það er eins og þér standið á milli vilja Guðs og dóttur yðar og segið við hann: „Hingað skaltu fara og ekki lengra. Þú mátt eiga heimili mitt. Þú mátt eiga fjármuni mína. Þú mátt eiga mig, — en snertu ekki dóttur mína.“ Frú, kallið þér þetta að gefa Guði allt?“
3. Hæfileikar.
Hæfileikar voru oss aldrei gefnir til þess, að vér notuðum þá fyrir sjálfa oss. Gjafir Guðs á að nota fyrir hann. Hvaða rétt höfum vér til að nota þær á eigingjarnan hátt? Gefi Guð oss að sjá allt eins og hann sér það, notum vér ekki gáfur vorar framar að hætti heimsins. Þú getur átt framsagnargáfu, mælskugáfu, ræðumennskusnilld. Spurningin er, hvernig notar þú hana? Til að skemmta og vekja hlátur? Eða er hún notuð í þágu Guðs? Þú getur átt ritsnilldargáfu. Hvað ritar þú og handa hverjum? Er það fyrir heiminn eða Guð, til að græða fé eða efla Guðs ríki? Vera má þú eigir gáfu til að græða fé. Minnztu þess, að ritað er: „Það er Drottinn, sem gefur þér kraft til að afla þér auðæfa.“ Handa hverjum ertu að safna fé? Er það handa sjálfum þér eða Guði? Verið getur, að þú sért gæddur sönggáfu, að Guð hafi gefið þér söngrödd. Notar þú hana á samsöngum eða til að skemmta vinum þínum? Syngur þú söngva heimsins? Eða getur Jesús Kristur flutt boðskap sinn til byrðum hlaðinna, syndsjúkra sálna með sönggáfu þinni?
4. Tími.
„Notið hverja stundina.“ Hvílík ábyrgð! Hvernig notum vér tímann, tómstundirnar? Notum vér þær Guði til gagns eða í eigingjörnum tilgangi? Einhvern veginn er svo að sjá, að vér höfum tíma til alls nema þess, að nota hann fyrir Guð. Notum vér tímann til að bjóða vinum vorum heim, halda kostnaðarsöm kvöldboð og eyða heilum stundum í blaður? Eða lifum vér eins og gestir og útlendingar á jörðinni? Erum vér ólík heiminum? Eru hinar dýrmætu stundir notaðar til að tala um Drottin og ríki hans til gagns? En það verður, þegar Heilagur Andi kemur, fyllir oss.
5. Fjármunir.
Ekki tíundi hluti, heldur allt. Allt, sem vér höfum, tilheyrir Guði. Vér erum aðeins ráðsmenn hans. Því hæfir, að vér gefum gaum að, hvernig vér notum það. Fer fé vort í óhóf eða til trúboðs? Fyrir óþarfa eða til að boða heiminum fagnaðarerindið? Fer það handa sjálfum oss til að fullnægja eigingjörnum ílöngunum? Eða er það varðveitt og notað til Drottins starfs. Söfnum vér bankainnstæðum handa þeim, sem færir eru að sjá um sig sjálfir? Eða er fé vort notað fyrir Guð til frelsunar sálum manna. Byggjum vér oss miklu stærri hús en vér þurfum? Greiðum vér 100 dollara á mánuði fyrir húsaleigu, þó að 60 dollara húsnæði dygði alveg eins vel? Ekki er furða, þó að ekkert sé til handa Guði! Dagur uppgjörsins kemur óðum nær. Reikningsskilatíminn er að nálgast. Ég vildi ekki mæta Drottni og eiga stóra innstæðu í banka. Það væri hræðileg ógæfa. Hann væntir þess, að ég hafi notað fé mitt fyrir hann áður en ég dey. Ekki skal spyrja: „Hve mikið af fé mínu á ég að gefa Guði?“ Spyrja skal: „Hve mikið af peningum Guðs þarf ég að nota handa sjálfum mér?“ Dagurinn kemur, er hann krefur oss reikningsskila á ráðsmennsku vorri. Fyrir þá sök verður fé vort að vera lagt á altari Guðs.
Viltu þá leggja allt á altari Guðs? Ertu fús til að gefa honum, helga honum allt? Ó, að þú vildir stíga þetta fyrsta skref! Vertu ákveðinn. Haltu ekki í neitt. Gefðu honum vilja þinn og veit viðtöku vilja hans. Eigðu engin eigin áform. Farðu þangað, sem hann vill, að þú farir og vertu þar, sem hann vill, að þú sért. Ekkert getur komið í stað þess, að þú gefir honum þig. Kostnaðinn verður þú að greiða. Tilslökun kemur að engu haldi. Afhentu Guði líf þitt. Hann krefst að fá tómt ker. Hvernig á hann að fylla það, sé það þegar fullt? Getur stofa verið full af hreinu lofti og óhreinu samtímis?
6. Óskráðir skilmálar.
Hér er um að ræða að skrifa undir óskráða skilmála. Eins og þú settir nafn þitt neðst á blað og létir síðan Guð rita skilyrðin og samþykktirnar á eftir. Hann sýnir þér ekki nema eitt spor í einu. Er þú hefir stigið það, sýnir hann þér hið næsta. Treystu honum að ráðstafa ævi þinni. Hvernig, kemur þér ekki við. Þitt er að framkvæma vilja hans, þegar hann sýnir þér hann.
Þetta er að segja eilíft „já“ við Guð og eilíft „nei“ við sjálfan sig. Svo endanlegt þarf það að vera, að það standi alla þína ævi. „Drottinn, hvað á ég að gera? Hvert vilt þú, að ég fari?“ Hann skipar fyrir, þú hlýðnast. Þitt er að segja „já“ við Drottin, ævileiðina á enda.