← BækurMaðurinn sem Guð notar

Tólfti kafli

Hagnýting ævinnar

um 5 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Guð hefir verk handa hverjum manni að vinna. Áður en Jeremía sá dagsins ljós, hafði Guð verk handa honum að vinna. (Jer. 1. 5.) Hann hefir verk handa þér, og hann hefir verk handa mér. Þess vegna getur enginn verið fullkomlega sæll fyrr en hann finnur það verk, sem Guð hefir ætlað honum. Ertu stundum óánægður, niðurdreginn eða líður þér illa? Vera má, að þú hafir neitað því verki, sem Guð ætlaði þér að gera, en sért að vinna að því, er þú sjálfur kaust. Þú munt spyrja: „Hvernig get ég þekkt það verk, sem mér er ætlað að vinna?“ Þessu get ég ekki svarað. Þitt er að finna það. Hins vegar get ég, með Guðs hjálp, gert þér léttara að finna það.

Sem lærisveinn Drottins Jesú Krists áttu eitt hátt markmið: útbreiðslu Guðs ríkis. Verk Guðs er mikilvægast af öllu. Allt annað verður að skipa lægra sess. Jesús Kristur fól ekki orðsins þjónum einum þetta verk. Hann hefir falið það sérhverjum sannkristnum manni, sérhverri sannkristinni konu. Sérhver trúuð sál hefir sínu hlutverki að gegna. Guð reiðir sig á þig. Hann reiðir sig á mig. Hann treystir okkur. Sé það markmið okkar að þjóna að konungsríki Guðs, leiðir af því, að

þjónustan sjálf er æðsta hvötin.

Það eru ekki krónur og aurar, heldur þjónustan sjálf. Maður, sem mælir hagnaðinn af lífinu á mælikvarða peninganna, hefir ekki skilið, hvað er hagnaður af lífinu. Það er annar mælikvarði til, miklu æðri. Ó, að við gætum séð þann mælikvarða. Hlustum á rödd Meistarans sjálfs, er hann hrópar: „Gætið þess að varast alla ágirnd, því að þótt einhver hafi alls nægtir, þá er líf hans ekki tryggt með eigum hans!“ (Lúk. 12. 15.)

Getir þú þjónað Guðs ríki bezt sem kaupmaður, eða lögfræðingur, eða ritari, eða læknir, vertu þá um fram alla muni kaupmaður, lögfræðingur, ritari eða læknir. En vei þeim manni, sem gerir peninga að markmiði sínu fremur en að verkfæri sínu, sem hrúgar þeim upp í eigingjörnum tilgangi fremur en til að efla Guðs dýrð. Gættu þess, að þú bjóðir honum ekki peninga, er hann biður um ævina þína!

Líklega ertu enn ungur að árum. Þig vil ég þá ræða við, því að framundan þér liggur víðlendur akur tækifæra og ábyrgðar. Þú ert kominn rétt að því að kjósa þér ævistarf. Ó, að ég gæti leiðbeint þér í vali þínu! Svo miklu máli skiptir, hvað þú telur velheppnað mannlíf, hvernig þú vilt hagnýta ævina. Þig langar til að nota hana á þann hátt, sem Guð vill, að þú hagnýtir hana. Vegurinn virðist óljós. Er leiðbeining að fá? Ég held það. Mér virðist, að ævin sé bezt hagnýtt

á þeim stað, þar sem þörfin er allra mest.

Vantar oss fleiri kaupsýslumenn eða fleiri Orðsins þjóna? Fleiri lögfræðinga eða fleiri trúboða? Fleiri lækna innanlands eða úti á akri trúboðsins? Ég vil beina augum ykkar út á akrana, þangað, sem hrópað er á starfsfólk, því að þörfin er meiri þar en annars staðar.

Þjónusta Orðsins.

Nefnum til að mynda þjónustu Orðsins. Þar er þörf á mönnum! Ég þekki enga köllun, sem gefur eins mikla gleði. Aldrei hefi ég iðrazt þess, að ég kaus þjónustu Orðsins að ævistarfi.

Hví gerist þú ekki þjónn fagnaðarerindisins? Vera má, að það sé verkið, sem Guð ætlar þér. Viðurkenna skal ég, að Orðsins þjónn verður aldrei ríkur sem slíkur. En hver vill segja mér, að D. L. Moody hafi illa varið ævi sinni, af því að hann varð aldrei auðugur? Eða að C. H. Spurgeon hafi lifað til einskis gagns, af því að hann dó fátækur. (Tveir af áhrifamestu starfsmönnum Guðs ríkis á 19. öld. Þýð.) Árangur ævinnar verður ekki talinn í krónum og aurum. Ungu menn, ég bið ykkur að athuga þetta með þjónustu Orðsins áður en þið leggið út á kaupsýslubrautina.

Trúboðsakurinn.

Hvað um trúboðsakurinn? Ég hika næstum við að minnast á hann. Þó verð ég að segja fáein orð. Gefi Guð, að þau nái til sérhvers hjarta!

Ég lít í bók, sem lýsir því ástandi, sem ríkir í hinum heiðna heimi, og hjarta mitt brennur í mér, er ég les um hið skelfilega myrkur. Tveir þriðju hlutar alls heimsins án Krists! Þúsundir manna deyja á hverjum degi, og þeir hafa aldrei heyrt nafnið Jesús.

Síðasta boðorð frelsarans var þó þetta: „Farið út um allan heiminn og prédikið gleðiboðskapinn allri skepnu.“ Síðan eru liðnar meira en nítján aldir, og vér höfum ekki hlýðnast þessu enn. Ó, ungu menn og ungu stúlkur, langar ykkur til að lifa ævi þjónustu og fórna, en einnig líka ósegjanlegrar gleði? Þá kalla ég á ykkur að svara hrópinu, sem hljómar handan um höfin. Ykkur er engin sú gáfa gefin, að Guð geti ekki notað hana þar.

Ungu menn og konur, ég kalla á ykkur í dag til kristilegrar þjónustu. Eruð þið fús til að vinna það verk, sem Guð vill fela ykkur? Þá munuð þið nota lífið til þjónustu og leitast við að finna þann stað, þar sem þörfin er mest. Jesús sleppti öllu vor vegna. Getum vér gefið honum nokkuð? Guð átti aðeins einn son, og hann gerði hann að trúboða. Getum vér gert nokkuð fyrir hann í staðinn? Hann hefir sagt oss sjálfur, hvað það er að vera sannur lærisveinn, þegar hann sagði: „Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér og taki upp kross sinn og fylgi mér. Því að hver, sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, en hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun finna það. Því að hvað mun það stoða manninn, þótt hann eignist allan heiminn, en fyrirgeri sálu sinni?“ (Matt. 16. 24.—26.)

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

12. kafli af 16 · 5 mín. eftirHagnýting ævinnar