← BækurMaðurinn sem Guð notar

Áttundi kafli

Hið helgaða líf

um 9 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Það er ekki ætlun mín að ræða um helgun sem kenningu. Það er unnt að þekkja eitthvað sem kenningu, en geta ekki notfært sér það á hagnýtan hátt. Ég ætla því að vera mjög skýr í máli og ræða um hið helgaða líf sem reynslu.

Fyrst þarf ég að segja þér þrennt, sem líf í helgun er ekki, svo að þú skiljir betur, hvað það er.

Fyrst og fremst, það er ekki lausn frá freistingum. Sennilegast er, að þú mætir meiri freistingum en nokkru sinni fyrr, er þú fer að lifa Guði helguðu lífi. Fram að þeim tíma hefir þú ekki verið hættulegur ríki Satans, þess vegna hefir hann lítið skipt sér af þér. En jafnskjótt sem helgun fer að verða reynsla þín, mun hann gera allt, sem stendur í hans valdi, til þess að þú bíðir ósigur. Því tryggir helgun ekki lausn frá freistingum. Gæti sá að sér, sem andlegur er, að hann freistist ekki líka.

Þar næst er það ekki trygging fyrir því, að þú getir ekki syndgað. „Því gæti sá, er hyggst standa, vel að sér, að hann ekki falli.“ Ávallt er hugsanlegt, að kristinn maður geti syndgað, meðan hann lifir hér í heimi. Forðastu þá hið falska öryggi, því að helgun tryggir þig ekki gegn hugsanlegri synd.

Loks er helgun ekki smávaxandi lausn frá valdi syndar. Það er ekki sigurleið Guðs. Syndin er tekin til meðferðar, gerð upp og henni hafnað í eitt skipti fyrir öll. Ef drykkjumaður ætlar að hætta að drekka, þá veiztu, að úrslitastund verður að renna upp, þegar hann af ásettu ráði snýr alveg baki við áfengi. Þannig er helgun farið. Vald syndar er brotið á bak aftur, og þú lætur aldrei framar undan því.

Þar sem ég hefi nú minnzt á þrennt, sem helgun er ekki, þá skal ég nefna þrennt, sem hún er.

Fyrst og fremst gerist hún snögglega á úrslitastund. Þetta merkir, að hún á sér upphafsstund, enda þótt hún sé skoðuð sem ævilöng reynsla. Hún á sér upphaf. Slík var reynsla Ísraelsmanna, er þeir fóru yfir um Jórdan. Um morguninn voru þeir eyðimerkurmegin við ána, um kvöldið á bakka hins fyrirheitna lands.

Þar næst er hún líf með sigur yfir synd. Annaðhvort er hún það, eða þá alls ekki neitt. Guð hefir ábyrgzt lausn frá valdi syndarinnar. „Synd skal ekki drottna yfir yður.“ Helgun er spottið eitt, sé hún ekki líf með sigur yfir synd.

Loks er hún ævilöng umbreyting til líkingar Krists. „Allir vér, sem með óhjúpuðu andliti sjáum endurskinið af dýrð Drottins, ummyndumst til hinnar sömu myndar, frá dýrð til dýrðar, með því að það kemur frá Drottni, Andanum.“ (II. Kor. 3. 18.) Vér förum að líkjast honum meir og meir, unz hann kemur, og vér berum líkingu hans.

Hvenær fer helgunin fram? Samkvæmt áformi Guðs við afturhvarfið, en samkvæmt mannlegri reynslu seinna meir, venjulegast. Ég trúi því ekki, að Guð ætli börnum sínum að reika um, svo að segja eins og í eyðimörku, árum saman. Það er hans tilgangur, að þau gefist honum svo algerlega við afturhvarfið og lifi svo full af Heilögum Anda eftir það, að fráfall ætti ekki að þekkjast. Því miður gera fáir þetta. Þess vegna þarf sú stund að renna upp, að þau snúi frá hrösun og vonbrigðum með algerri uppgjöf til Guðs til að lifa eingöngu og algerlega fyrir hann.

Hvað merkir „helgun“? Orðið sjálft merkir að vera „tekinn frá“ og er notað um eitthvað, sem tekið er úr venjulegri notkun, en notað til heilagra hluta. Allt, dautt eða lifandi, tekið frá handa Guði, er helgað. Líf þitt tilheyrir Guði. Hann vill láta þig kannast við þetta, samþykkja það og taka sjálfan þig frá sér til handa í þeim háa og heilaga tilgangi, sem hann ætlast til.

Það eru þrjú spor eða stig í helguninni og tvær hliðar á þeirri reynslu að öðlast hana. Ég ræði þetta ekki frá sjónarmiði guðfræðinnar, heldur reynslunnar, hinni verklegu hlið. Þessar tvær hliðar eru það, sem maðurinn gerir frá sinni hlið og Guð frá sinni.

Vér finnum þetta boðorð í Jós. 3. 5.: „Helgið yður.“ Vera má þú segir: „Ég hefi alltaf haldið, að helgun væri verk Heilags Anda. Sé það svo, hvernig skýrir þú þá þetta greinilega og ákveðna boð: „Helgið yður“? Þessa gátu er létt að leysa. Þetta er hlið mannsins, þáttur hans. Áður en Guð með nokkru móti getur framkvæmt sinn þátt, verður maðurinn að gera þetta, helga sjálfan sig.

Ég hefi líka staðhæft, að það væru þrjú spor eða stig í helguninni. Tvö hin fyrstu eru tekin af mannsins hálfu, hið þriðja er Guðs. Þessi þrjú stig eru, sögð með einföldum orðum: (1) Frágreining. (2) Helgun, tileinkun. (3) Fylling. Hið fyrsta er að greina sig frá synd, annað að helga sig, tileinka sig Guði, þriðja að fyllast af Andanum.

Frágreiningin er hið neikvæða spor og helgun hið jákvæða. Þetta eru sporin tvö, þættirnir tveir af mannsins hálfu í helguninni. „Helgið yður.“ Þú framkvæmir þinn þátt, Guð mun framkvæma sinn þátt. Þriðja stigið, sporið, er að fyllast, en það á Guð að sjá um. Ástæðan fyrir því, að svo margir biðja og bíða til ónýtis, er blátt áfram sú, að þeir hafa aldrei stigið bæði sporin, sem Guð krefst, en þeim er hið þriðja háð.

Vér skulum því fyrst af öllu vera viss um, að frágreining vor sé algjör. Guð krefst algers skilnaðar frá synd í hverri mynd og gervi, frá heiminum og öllum ginningum hans, frá öllu, sem hryggir Heilagan Anda og lamar kraft vorn. Vér getum ekki blekkt hann. Hann veit, hvort oss er alvara eða ekki í því, sem vér segjum.

Vér skulum þar næst helga Guði líf vort. Frágreiningin er ófullkomin, nema þetta spor sé innifalið í henni. Vér greinum oss frá gamla lífinu og öllu því, sem Guði er vanþóknanlegt, til þess að vér megum vera teknir frá honum til handa. Helgun er þá það, að taka sjálfan sig frá handa Guði. Vér eigum að vera heilagir. Það er: vér erum teknir frá handa Guði í heilögum tilgangi. Vér verðum að reyna þessa helgun á virkilegan, raunverulegan hátt.

Er þá allt vort eigið lagt á altarið? Höfum vér helgað oss Guði og allt, sem vér eigum? Um enga „fylling“ er að ræða fyrr en vér höfum helgað Guði allt og það að eilífu. Þá fyrst getur Guð fyllt oss með Heilögum Anda. Þegar allt vort er á altarinu, mun eldur Guðs falla.

Þegar þú veizt ákveðið, ert algerlega viss um, að þú hefir stigið þessi tvö spor, er þú hefir beðið nógu lengi frammi fyrir Guði, til þess að Heilagur Andi hefði tíma til að rannsaka þig, þá skalt þú með einfaldri trú, án nokkurra ytri tákna, trúa orði Guðs, rísa á fætur, þar sem þú kraupst niður, og vera þess fullviss, að Guð hefir gert sinn hluta verksins.

Hlýðið á! „Hvers sem þér biðjið og beiðizt, þá trúið, að þér hafið öðlazt það, og þér munuð fá það.“ (Mark. 11. 24.) Drottinn segir þér ekki að trúa, að þú munir fá það, heldur að trúa, að þú fáir það þegar í stað, á því andartaki, sem þú trúir.

Láttu nú ekki Satan hafa þessa blessun af þér með því að koma þér til að bíða eftir einhverri yfirnáttúrlegri opinberun eða tilfinningu. Þú munt læra að þekkja gleði og huggun Heilags Anda, þegar þú gengur út í trú, vitnandi og breytandi eftir trú þinni. Reglan eða röðin hjá Guði er hin sama við helgunina eins og við hjálpræðið. Fyrst „staðreynd,“ næst „trú,“ loks „tilfinningar.“ Satan snýr ávallt þessari guðdómlegu röð við og segir þér að vonast eftir tilfinningum. Hvernig má það verða, að þú eignist tilfinningu áður en þú trúir? Og hvernig getur þú trúað áður en þú veizt, að eitthvað er til, sem má trúa?

Hér eru nokkrar staðreyndir: „Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.“ (I. Jóh. 1. 9.) Skilyrðið er þetta: að þú játir. Hefir þú uppfyllt þetta skilyrði? Hví að gera Guð að lygara með því að trúa þessu ekki? „Ef vér framgöngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan, og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.“ (I. Jóh. 1. 7.) Hvert er skilyrðið? „Ef vér framgöngum í ljósinu.“ Hvað gerist þá? „Blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.“ Þú segir: „Ég finn ekki, að ég sé hreinsaður.“ Þú munt aldrei fá þá tilfinningu, nema þú trúir fyrst og breytir eftir trú þinni. Hér er þriðja mikla staðreyndin. „Hversu miklu fremur mun þá Faðirinn af himni gefa þeim Heilagan Anda, sem biðja hann?“ (Lúk. 11. 13.) Skilyrðið? „Biðja.“ Hefir þú samvizkusamlega stigið fyrstu sporin tvö? Þá skaltu biðja. Áttu að öðlast tilfinningu? Nei, trúðu aðeins. Guð er sá, sem gefur. Unun hans er að blessa. „Hversu miklu fremur!“

„Drottinn Jesús, ég skil mig frá, greini mig frá öllu, sem vanþóknanlegt er í þínum augum, og ég helga sjálfan mig þér og allt, sem ég á. Drottinn, ég trúi orði þínu. Þú hefir sagt: „Hvers sem þér biðjið og beiðizt, þá trúið, að þér hafið öðlazt það, og þér munuð fá það.“ Drottinn, ég bið, að frá þessu andartaki lifi ég helguðu lífi, leystur frá valdi syndarinnar, fylltur Heilögum Anda og algerlega fyrir þig.

„Drottinn Jesús, án nokkurra tilfinninga, án nokkurrar sönnunar eða sérstakrar opinberunar, er ég nú hefi stigið fyrstu tvö sporin og uppfyllt skilyrðin, trúi ég því hér og nú, að mér sé fyrirgefið, að blóðið hreinsi mig, jafnvel mig, frá allri synd, að Heilagur Andi komi, og ég veiti honum viðtöku í hjarta mitt og líf til að fylla mig alveg til fulls. Þú veitir mér viðtöku, þú, Kristur, ert helgun mín, og ég er alger í þér. Lofað sé þitt nafn!“

Guði sé lof, ég hefi séð tugi manna öðlast þessa reynslu með því að stíga þessi einföldu spor. Þetta dugir, og það er allra bezt. Maður, til dæmis, er fjarska skapbráður. Hann krýpur niður, skemur en í tíu mínútur, og stígur þessi spor, sem ég hefi nefnt, hvert á fætur öðru. Síðan, án allra tilfinninga af nokkru tagi, vitnar hann um það, sem Guð hefir gert. Hrífur þetta og verður það varanlegt? Halelúja! Viku eftir viku ber hann fram skínandi vitnisburð og lýsir yfir því, að bráðlyndi hans er horfið, að hann lifi í helguninni dag eftir dag. Í lífi hans hefir orðið gerbylting, alger umskipti.

Megi Guð gera þig færan um að stíga þessi einföldu spor og þannig öðlast þessa dýrlegu reynslu hins helgaða lífs.

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

8. kafli af 16 · 9 mín. eftirHið helgaða líf