Fjórtándi kafli
Farið og segið öðrum
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Rökkurblæja breiðist yfir landið. Úti fyrir borgarhliði Samaríu sitja fjórir líkþráir menn. Úr borginni heyrist öðru hvoru mæðulegur grátur, líklega hungurgrátur lítils barns. Sýrlendingar sitja um borgina. Mat er naumast eða ekki að fá, ein móðir hefir þegar deytt son sinn og etið hann.
Líkþráu mennirnir eru magnvana af hungri. Sitji þeir kyrrir, munu þeir deyja. Fari þeir inn í borgina, fá þeir engan mat þar. Hvað er unnt að gera? Þeir geta farið til óvinanna, Sýrlendinga. Ef til vill drepa þeir þá ekki.
Þeir leggja af stað og dragnast áfram þreytulega, unz þeir koma að herbúðunum. En þar er allt svo undarlega hljótt. Sýrlendingar eru farnir, flúnir. Mennirnir ganga inn í eitt tjaldið og fleygja sér eins og hungraðir úlfar yfir matinn, sem þeir finna þar. Þeir rændu sér líka klæðum og fjármunum. Loks er sem samvizkan vakni skyndilega, er þeir minnast þúsundanna innan borgar, sem eru að farast af hungri, þótt matur sé rétt við höndina.
„Því næst sögðu þeir hver við annan: Þetta er ekki rétt gert af oss, þessi dagur er dagur fagnaðartíðinda. En ef vér þegjum og bíðum þangað til í býti á morgun, mun það oss í koll koma. Vér skulum því fara og flytja tíðindin í konungshöllina.“ (II. Kon. 7. 9.) Þeir ákváðu að láta aðra vita. Þetta gerðu þeir, og borginni var borgið.
„Farið og segið öðrum!“ Það er boðskapurinn, sem Kristur sjálfur gaf söfnuði sínum, þegar hann sagði: „Farið út um allan heiminn og prédikið gleðiboðskapinn.“ Þetta er vilji hans hverjum kristnum manni til handa. Ég trúi því, að væri hann hér nú, að vegna allra milljónanna, sem aldrei hafa heyrt nafn hans nefnt, mundi brýnasta boð hans vera til þín og mín: „Farið og segið öðrum frá.“
Ég vil því knýja þann streng, að við förum og segjum öðrum frá
vegna þess, hvað það er, sem við eigum.
Þessir fjórir líkþráu menn höfðu fengið allt, sem þeir þörfnuðust. Þeir höfðu soltið, en höfðu fengið fæðu. Þeir höfðu verið vonlausir, en höfðu fyllzt von. Þeir höfðu verið hryggir og kjarklausir, nú voru þeir glaðir og sælir. Var það nokkur furða, þótt þeir segðu: „Þetta er ekki rétt gert af oss, þessi dagur er dagur fagnaðartíðinda.“
Hvað áttu þeir í samanburði við það, sem vér eigum í Jesú Kristi? Björgun þeirra var líkamleg og tímanleg. Frelsun vor er andleg og eilíf. Þeir voru lausir við hungurkvalir. Vér erum leyst frá valdi syndarinnar. Hugsið um þetta! Oss hefir verið fyrirgefið, hjörtu vor hreinsuð í blóði Jesú Krists; nálægð Guðs er alltaf með oss, gleði, friður, huggun, von um líf bak við gröfina, samfundir við þá, sem vér höfum elskað og misst um stundarsakir, himinninn með allri sinni dýrð, vér eigum Jesúm Krist sjálfan, huggara í sorgum, leiðtoga í myrkri, styrk vorn og von í dauða. Áreiðanlega eigum vér eitthvað, sem er þess virði, að öðrum sé gefið það. Eigum vér að vera eigingjörn? Eigum vér að geyma þetta allt handa sjálfum oss? Eða eigum vér að gera hið sama og líkþráu mennirnir gerðu fyrir sveltandi borgina?
En ef vér eigum að segja öðrum frá, vegna þess hvað það er, sem vér eigum, þá er það vissulega skylda vor að fara og segja öðrum frá
vegna þess, hvers þeir þarfnast.
Innan veggja Samaríu var fólkið þúsundum saman að deyja úr hungri. Fæða var það, sem það þarfnaðist. Þetta vissu líkþráu mennirnir, og þeir ákváðu að fara og segja öðrum, hvernig þeir sjálfir hefðu fengið hjálp.
Vinir mínir! Alstaðar er fólk að farast, af því að það vantar brauð lífsins. Vér getum bætt úr þörfum þess. Verið getur, að maðurinn, sem vinnur við hlið vora dag eftir dag, þekki ekki Drottin Jesúm Krist. Samt höfum vér aldrei sagt honum frá Jesú. Ekki heldur vinum vorum, sem vér erum með. Vér höfum sjálfir heyrt „gleðifréttirnar,“ og Jesús er orðinn oss frelsari. Höfum vér nokkurn tíma sagt þeim, hvað Jesús er oss?
Úti um heiminn eru milljónir dýrmætra sálna, sem hann er dáinn fyrir. Samt hafa þær aldrei heyrt nafnið hans. Þær hungrar eftir gleðiboðskapnum. Heimili þeirra eru oft léleg hreysi. Hallæri og dauði hafa sótt lönd þeirra heim. Óskírlífi er staðfest af trúarbrögðum þeirra. Skurðgoð eru guðir þeirra. Menn lifa þar í sífelldum ótta við illa anda og hvers konar djöfla. Trúarbrögð þeirra veita þeim enga von. Lífið sjálft er byrði. Vér höfum það, sem þá skortir. Eigum vér að fara og segja þeim frá? Vissulega þarfnast þeir vor! Síðasta boðorð hans, sem vér elskum og þjónum, var: „Farið.“ Samt hafa nítján aldir liðið, og heiminum öllum hefir enn ekki verið boðað fagnaðarerindið. Eigum vér að fara og segja öðrum frá?
Og að lokum verðum vér að fara og segja öðrum
vegna þess, að hætta vofir yfir, ef vér bregðumst.
Ég á við hættuna, sem vofir yfir sjálfum oss. „Ef vér þegjum og bíðum, .. þá mun það oss í koll koma.“ Þeir þorðu ekki að bíða. Þeir þorðu ekki að þegja yfir „gleðifréttunum.“ Refsing mundi bíða þeirra, ef þeir þegðu.
Fagnaðarerindið er komið til vor. Vegna friðþægingarblóðs Jesú Krists höfum vér frelsazt. Ef vér þegjum, erum vér í hættu. Vér getum ekki staðið í stað. Leyndardómur framfara í trúarlífinu er athafnasemi. Ef vér leggjumst útaf og gerum ekkert fyrir Krist, verðum vér alltaf þróttminni og þróttminni, kaldari og kaldari, unz að lokum áhugi vor er farinn og oss hrekur brott frá söfnuðinum út í heiminn, þangað sem vér vorum áður. Þá verður síðara ástand vort verra hinu fyrra. Eitt hið nauðsynlegasta í kristilegu lífi er þjónusta. Vér verðum að fara að starfa fyrir Krist. Guð frelsaði oss ekki eingöngu vegna þess, sem vér gætum hagnazt á því; vér vorum ekki frelsaðir aðeins til þess, að vér gætum umflúið helvíti og komizt til himnaríkis. Það er hrein eigingirni. Vér vorum frelsaðir til að þjóna, og finnum vér ekki eitthvað til að gera, þá deyjum vér af athafnaleysi.
Það eru þúsundir trúaðra manna, sem aldrei segja orð um Meistara sinn. Á vitnisburðarsamkomum þegja þeir, þótt nógu séu þeir tölugir heima. Við aðra geta þeir talað um allt, nema Guð. Þeir eiga ástvini heima, sem þekkja ekki Krist, samt óttast þeir að segja eitt orð við þá. Guð sjái aumur á þeim! Þeir skammast sín fyrir Krist! Sá dagur kemur, er þeir finna, að Kristur blygðast sín fyrir þá. Staðreyndin er, að þeir trúa því ekki, að kunningjar þeirra og ástvinir séu glataðir. Ef þeir tryðu því, mundu þeir engrar hvíldar unna sér dag eða nótt fyrr en þeir væru frelsaðir. Hví þegja þeir? Hvílík eigingirni!
Ef vér höfum eignazt gleðina í Kristi, hví skyldum vér ekki segja öðrum frá? Ef vér vitum í hjörtum vorum, að ástvinir vorir séu glataðir og verði skildir frá oss um alla eilífð, hvers vegna biðjum vér þá ekki að veita Jesú Kristi viðtöku?
Ef vér förum ekki og látum aðra vita um Krist, kólnum vér og missum áhugann. Aðrir fá þá laun vor, og vér bíðum ósegjanlegt tjón. „Ef ég segi við hinn óguðlega: „Þú skalt deyja!“ og þú varar hann ekki við og segir ekkert til þess að vara hinn óguðlega við óguðlegri breytni hans til þess að bjarga lífi hans, þá mun hinn óguðlegi að vísu deyja fyrir misgerð sína, en blóðs hans mun ég krefja af þinni hendi.“ (Esek. 3. 18.) Hve alvarleg varnaðarorð: „Blóðs hans mun ég krefja af þinni hendi!“
„Þetta er ekki rétt gert af oss,“ sögðu líkþráu mennirnir, „þessi dagur er dagur fagnaðartíðinda. En ef vér þegjum og bíðum þangað til í býti á morgun, mun það oss í koll koma. Vér skulum því fara og flytja tíðindin í konungshöllina.“ Vér skulum fara og segja öðrum frá. Sálir eru að glatast án Krists. Oss ber einum og sérhverjum að fara og segja öðrum frá Kristi.