← BækurMaðurinn sem Guð notar

Annar kafli

Maðurinn, sem Guð notar

um 9 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Ég hefi reynt að hugsa, hvaða eiginleikar það eru, sem gera Guði kleift að nota mann til kristilegrar þjónustu. Mér virðist, að þeir séu átta, sem eru alveg nauðsynlegir. Ég er ennfremur sannfærður um, að sérhver maður, sem er fús til að greiða kostnaðinn, geti orðið notaður af Guði, hvað sem líður hæfileikum og gáfum. Vera má, að hann verði ekki notaður eins mikið og sumir aðrir, en áreiðanlega svo mikið sem hann megnar, og verði það ekki, er sökin hans.

Þetta getur kostað mikið. Guð sýnir ekki alltaf fyrirfram, hve kostnaðurinn verður mikill. En þegar vér verðum fús til að fórna hverju, sem vera skal, þá getur Guð byrjað að nota oss.

Vel man ég eftir því, er ég gekk fram og aftur um herbergi mitt og hrópaði í bæn minni: „Ó Guð, notaðu mig, notaðu mig! Engu máli skiptir, hvað það kostar! Ég er fús, að það kosti hvað sem er, aðeins að þú notir mig.“ Ertu fús til að gjalda kostnaðinn?

1. Maðurinn, sem Guð notar, hefir aðeins eitt markmið í lífinu.

Hjarta, sem er tvískipt, veitir aldrei algera fullnægju. Maður sá, er á sundurleit áhugamál, nær sjaldan góðum árangri. Manninum, sem ýmist er við spilaborðið eða verk sitt, heppnast ekki vel fyrirtæki sín. Deili maður ást sinni milli eiginkonunnar og hjákonu fer hjónabandið út um þúfur. Ekki verður unnustinn ánægður, nema hann skipi æðstan sess í hjarta þeirrar meyjar, sem hann kýs að eiga.

Sama gildir um manninn, sem vill verða notaður af Guði, nema í hálfu ríkara mæli. Starfið krefst óskiptrar kostgæfni. „Eitt geri ég,“ hrópaði Páll. Það var lykillinn að árangri hans. Tímóteusi ritaði hann: „Stunda þetta, ver allur í þessu.“

Gallinn er, að áhugi manna beinist að of mörgu, svo að Guð getur ekki notað þá. Og það skal ég taka fram, að engan ungan mann getur Guð notað mikið, ef hann stöðugt eyðir kvöldum sínum, tíma sínum og hugsunum í félagsskap kvenna.

Ég þekki þjóna orðsins, sem reka líka kaupsýslu. Tími þeirra er ekki allur lagður í hið mikla verk, sem þeir eiga að vinna. Ég keypti eitt sinn óbyggða lóð til að braska með hana. En er ég hafði tekið vígslu, seldi ég hana eins fljótt og auðið var, til þess að ég gæti lagt hug á starfið eitt.

Ég er ekki að knýja það fram, að þú hafir engin önnur áhugamál. Til eru skyldur, sem þér ber að gefa gaum. En ég krefst þess, að þú hafir þau eins fá og unnt er. Og um fram allt, að þú látir þau skipa lægri sess, svo að þú setjir Guð og starf hans fyrst og lítir á það sem hið eina mikla markmið þitt í lífinu.

2. Maðurinn, sem Guð notar, er sá maður, sem fyrir Guðs náð hefir rutt brott hverri hindrun.

Þú þarft ekki að segja mér, hvað það er, sem hindrar Guð að nota þig. Guð veit það, og þú veizt það. Það getur verið einhver byrði eða ákveðin synd, líklega hin viðloðandi synd þín. Ef til vill er það óhreinleiki í hugsunum, orðum eða athöfnum. Líka getur það verið hroki, afbrýði, illgirni, ágirnd, vantrú eða gamla eðlið í einni eða annarri mynd. Það getur verið tóbakið. Hvað svo sem það er, það verður að fara áður en Guð getur notað þig. Minnstu þess, að það var Akan, er sök bar á falli Ísraels. Jósúab. 7. Er einhver Akan í hjarta þér, hilla á bak við hurðina, synd, sem enginn sér nema Guð. Þekkir fólk þig eins og þú ert í raun og veru? Þorir þú að svipta hulunni af þér og láta allt sjást? (Jes. 59. 1.—2.)

3. Guð notar manninn, sem hefir lagt sig algerlega undir yfirráð hans.

Vér breytum sumir eins og vér værum hræddir við Guð, hræddir við að láta hann ráða alveg yfir oss. Drottinn segir: „Ef sá er nokkur, sem vill gera vilja hans.“ Hvað gæti leirkerasmiðurinn gert, ef leirinn neitaði að hlýða? Hvað gæti læknirinn gert, ef sjúklingurinn vildi ekki treysta honum? Hvaða gagn gera óhlýðnir hermenn? „Sá, sem gengur grandvarleikans vegu, hann skal þjóna mér.“ (Sálm. 101. 6.)

Hefir þú gefið þig Guði á vald? Hefir þú helgað þig Guði? Hefir þú lagt þig algerlega undir hann? Hefir þú hafnað sjálfs þín vilja og kosið, að vilji hans skuli ráða yfir þér um ævina? Vilt þú fara, hvert sem hann sendir þig, og vera það, sem hann vill að þú sért?

4. Maðurinn, sem Guð notar, hefir lært að sigra í bæn.

Mennirnir, sem Guð hefir notað mikillega, hafa allir verið máttugir í bæn. Þegar ævisögur þeirra eru lesnar, kemur í ljós, að bænarandinn yfirgnæfir. Jakob hrópar: „Ég sleppi þér ekki, nema þú blessir mig,“ og heyrir Guð segja: „Þú hefir glímt við Guð og menn og fengið sigur.“ Jesús fer mitt úr annríkinu og þjónustunni frá fólksfjöldanum út á óbyggða staði til að biðja, jafnvel heilar nætur. Hann biður með slíkri angist, að sveiti hans verður sem blóðdropar. Þetta er saga sérhvers manns, sem Guð hefir notað. Ertu fús til að taka á þig kostnaðinn?

Þú getur verið gæddur dásamlegum gáfum og undirbúinn vel til þjónustu Guðs, en hafir þú ekki lært að sigra í bæn, getur þú aldrei vænzt blessunar Guðs yfir erfiði þitt. Það er fullkomin nauðsyn að biðja sigrandi bænar í leyndum, bænar, sem nær takmarki sínu, fær svar.

5. Maðurinn, sem Guð notar, nemur og hugleiðir orð Guðs.

Orð Guðs er vopn þitt. Efist þú um mátt þess, hvaða orku hefir þú þá til að sveifla því? Það er fræðslulind þín. Þegar orð Guðs verður þér matur og drykkur, daglegt viðfangsefni og hluti af sjálfum þér, þá, en ekki fyrr, getur þú notað það eins og Guð ætlast til. Trúir þú því, að orðið, sem þú boðar, sé hið lifandi, innblásna orð Guðs? Treystir þú því örugglega, að það hverfi aldrei tómt aftur? Guð getur ekki notað mann, sem efast um orð hans.

6. Maðurinn, sem Guð notar, hefir lífsnauðsynlegan, lifandi boðskap handa glötuðum heimi.

Ætlar þú út á trúboðsakurinn? Hvað ætlar þú að segja þeim þar? Hefir þú boðskap? Hvers vegna ferðu?

Það er aðeins einn boðskapur nógu mikilfenglegur til að taka oss að heiman og setja oss þar, sem eru ofsóknir, spott, sjálfsfórn og einmana-tilfinning, boðskapurinn: „Kristur dó vegna vorra synda;“ boðskapurinn: „Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Það er boðskapur krossins. Ekkert minna gagnar. „Farið út og prédikið gleðiboðskapinn.“ Annað en þetta getur ríkið annazt.

Hvaða boðskap hefir þú handa fólkinu heima? Hvers vegna ætlar þú að starfa fyrir Guð? Ef þú ætlar að skemmta fólki, skaltu láta leikhúsin annast um það. Þau geta gert það betur en þú. Verkið, sem þú átt að vinna, er miklu æðra. Hið æðsta, dýrlegasta, mikilfenglegasta hlutverk er köllun þín. Þitt er að flytja þann boðskap, sem Guð hefir falið þér að flytja, boðskapinn, sem gildir líf eða dauða. Hann mun láta þig lúka reikning fyrir ráðsmennsku þína.

Vér stöndum ekki í ræðustólnum til að skemmta fólki og stytta því stundir né til að sýna sjálfa oss. Hvað virðist mönnum um oss? Segja þeir: „Þetta var mikil ræða!“ Eða segja þeir: „Hve Kristur er mikill!“ „Hve dásamlegur frelsari!“

Hlustið vinir! Séuð þið sannfærðir um það, að „allir hafa syndgað,“ að menn séu glataðir og að Jesús Kristur sé hinn eini, sem getur frelsað þá, og þið farið til að flytja þann boðskap, þá óska ég ykkur blessunar Guðs.

Hafið þið boðskap, sem Heilagur Andi staðfestir? Sannfærir hann um synd, þegar þið prédikið? Frelsast sálir og uppbyggjast hinir trúuðu? Flytjið þið ræður samanteknar af mönnum eða boðskap, sem Guð hefir gefið? Sé boðskapur ykkar gefinn af Heilögum Anda, munuð þið aldrei verða til skammar. Ótti er ástæðulaus. Gangið fram og talið, fullvissir um kraft Andans.

7. Maðurinn, sem Guð notar, er trúarinnar maður og væntir árangurs.

Vandræðin miklu með okkur flesta eru þau, að við væntum ekki árangurs. Við gerum okkur ánægða með að hjakka í sama farinu. Ef einhver sál skyldi hrópa í angist: „Hvað á ég að gera, til þess að ég verði hólpinn?“, þá mundum við standa agndofa.

Ég hefi ekki ennþá orðið ánægður með það, að hlutirnir gangi sinn vanagang. Ég hefi alltaf vænzt hins óvenjulega, og ég hefi ekki orðið fyrir vonbrigðum.

Þið munið eftir prédikaranum unga, sem kom til hr. Spurgeons, niðurbeygður, af því að hann sá engan árangur.

„Hvað, þú ætlar þó ekki að segja mér, að þú væntir árangurs í hvert skipti, sem þú prédikar,“ sagði Spurgeon.

„Jæja, nei,“ svaraði ungi maðurinn, sem varð dálítið bilt við.

„Það er þá þess vegna, sem þú sérð hann ekki,“ var hið dálítið napra svar.

Í knattspyrnu sé ég menn keppast við að skora mark. Guði sé þökk, við höfum einnig mark að skora. Í kapphlaupi sé ég ekki keppendurna hlaupa í ýmsar áttir. Þeir stefna á markið. Vér erum líka í kapphlaupi, en Guði sé þökk, mark vort er að vinna sálir.

Á stríðstímanum voru haldnar samkomur, ætlaðar nýliðum, ekki til skemmtunar, heldur til að fá nýliða. Næðist ekki sá árangur, var samkoman gagnslaus. Leitum vér að nýliðum handa Konungi vorum, og væntum vér þess, að sumir gegni kallinu? Vér skulum hafa trú til að öðlast ákveðinn árangur.

8. Maðurinn, sem Guð notar, er sá maður, sem starfar í krafti Heilags Anda.

„Þér skuluð vera kyrrir í borginni (Jerúsalem), unz þér íklæðizt krafti frá hæðum.“ „Þér munuð öðlast kraft, er Heilagur Andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir.“ Sú hugsun, að fara að vitna án þessa kraftar, kom þeim aldrei í hug.

Lesið sögur af ævi manna, sem verið hafa Guðs menn, og þið munuð sjá, að sérhver þeirra leitaði kraftarins frá hæðum og fékk hann. Ein ræða, flutt í krafti Andans, er á við þúsund fluttar í krafti holdsins.

Þetta er þá maðurinn, sem Guð notar. Hann á aðeins eitt markmið í lífinu. Sérhverri hindrun hefir verið rutt úr vegi. Hann leggur sig alveg undir yfirráð Guðs. Hann hefir lært að sigra í bæn. Hann nemur og hugleiðir orð Guðs. Hann hefir lífsnauðsynlegan, lifandi boðskap handa glötuðum heimi. Hann væntir árangurs, og hann starfar í krafti Andans. Gefum gaum að því, að vér uppfyllum þessi átta skilyrði, til þess að Guð geti notað oss á hinn allra fyllsta hátt. Þá verður þjónusta vor sannarlega dýrleg.

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

2. kafli af 16 · 9 mín. eftirMaðurinn, sem Guð notar