← BækurMaðurinn sem Guð notar

Ellefti kafli

Boðum Krist

um 4 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Tvennt er lífsnauðsynlegt við útbreiðslu fagnaðarboðskaparins: Boðberinn og boðskapurinn. Því meir sem ég gef gaum að kristilegu starfi og árangri þess, því sannfærðari verð ég, að áhrifamesti þáttur þess sé persónuleiki. Persónan er sá möndull, sem hjól kristindómsins snúast á. Boðberinn sjálfur er fyrst og fremst sá lykill, sem læsir eða opnar. Til eru menn, sem allt blessast hjá, næstum því hvar sem þeir starfa, og hjá öðrum fer allt út um þúfur, hvar svo sem þeir eru. Sé ekki boðberinn guðsmaður, kemst hann ekki hjá því fyrr eða síðar að sjá, að strit hans allt er til ónýtis.

Nú skal ekki rætt um manninn, svo mikilvægur sem hann er. Orðin, sem ég vil draga athygli ykkar að, eiga ekki við boðberann, heldur við boðskapinn. „En Filippus fór norður til borgarinnar í Samaríu og prédikaði þeim Krist.“ (Post. 8. 5.)

Hvað er átt við með að „prédika Krist?“

Það að prédika Krist er meira en að prédika um Krist. Maðurinn getur þekkt allt um hinn sannsögulega Krist án þess samt að þekkja Krist. Hann getur verið kunnugur öllum atvikum ævi hans frá jötu til grafar, hann getur talið áreiðanlegt hvert atvik um Krist, sem ritningin skýrir frá; eigi að síður getur verið, að hann þekki Krist ekki.

Menn reiða sig á og trúa með höfðinu á kenningar, játningar, helgisiði og helgiathafnir kirkjunnar í stað þess að trúa á persónu Jesú Krists sjálfs. Sá maður, sem hvílir á þessu sem eilífðargrundvelli, mun einhvern tíma vakna til vitundar um, að hann hefir reist hús sitt á hviksandi. Þetta getur aldrei komið í stað hins lifandi Krists.

Ég veit um menn, sem koma aðeins til kirkju, þegar drottinleg kvöldmáltíð er höfð um hönd. Sé þetta prófsteinn á andlegt ástand þeirra, er meira en lítið að. Komi menn til kirkju aðeins fyrir venju sakir, óttast ég, að þeir hafi aldrei, aldrei reynt náð Guðs. Þegar Jesús Kristur frelsar einhvern, leggur hann ávallt löngun til að þjóna Kristi í hjarta hans.

Hafið þið gleymt, að nálega allur hinn menntaði heimur trúir með höfðinu á Krist? Gerið þið ykkur ljóst, að djöflarnir sjálfir trúa og skelfast? Og ætli menn sér, vinir mínir, að reiða sig á trúarjátningar og kenningar, siðvenjur, helgisiði eða jafnvel helgiathafnir kirkjunnar, eða á nokkra þekking, sem þeir kunna að hafa um Krist, þá vil ég segja með mikilli áherzlu, að þeir hafa aldrei þekkt Krist. Það, að prédika þessa hluti, er ekki það að „prédika Krist.“

Þetta, að „prédika Krist“ er ekki það að lesa trúfræðiritgerðir, flyja vinsæla fyrirlestra, segja frá nýjum bókum, spjalla um nútíðarstjórnmál, sósíalisma eða hagfræði. Þetta er allt nauðsynlegt, en ég fyrirdæmi að fara með þetta upp í prédikunarstólinn.

Bræður mínir, að „prédika Krist“ er að boða hann krossfestan, upprisinn, uppstiginn og lifandi frelsara. Þið gefið því gaum, að ég legg áherzlu á hvert orð: krossfestan, uppstiginn og lifandi frelsara! Ég geng ekki framhjá jarðlífi hans, verkum hans, kenningu og eðlisfari. Ég legg einungis áherzlu á almikilvægustu staðreyndirnar: dauða hans og upprisu. Hann er ávallt lifandi, hefir allan mátt og er reiðubúinn að koma í lífssamband við hvern mann. Hann er nálægur frelsari. Frelsari, sem á þessu andartaki getur komið inn í örvona hjarta hins vonlausasta manns í heimi, breytt honum svo og umskapað, að maðurinn lifi upp frá þessu nýju lífi. Jesús er hér í dag, og hann er hér til að frelsa. Skiljið þið, hvað ég á við? Þegar ég á þennan hátt boða ykkur Krist, er ég að „prédika Krist“ fyrir ykkur.

Hví á að boða Krist?

Hvers vegna á að boða Krist? Tvær eru ástæður fyrir því, og báðar einkar áríðandi. Hin fyrri er sú, að þetta er starf vort. Starf bóndans er að vera bóndi, ekki bankastjóri. Starf lögfræðingsins er að vera lögfræðingur, ekki læknir. Ef þú lentir í málaferlum, mundir þú líklega leita til lögfræðings. En bili hjá þér vatnsleiðslan, ferðu þá til lögfræðings? Þá ferð þú til pípulagningamanns. Hvers vegna? Af því að það er starf hans. Þannig er það og starf kristins manns að boða Krist.

Lítum snöggvast á Post. 8. 4.: „Þeir fóru alstaðar og boðuðu orðið.“ Hverjir fóru? Postularnir? Alls ekki. Þeir voru kyrrir í Jerúsalem. Það voru hinir trúuðu, óbreytta fólkið, þúsundum saman. Hvað gerðu þeir? Földu sig, höfðu hljótt um sig? Þeir fóru alstaðar og boðuðu orðið. Þetta var starf þeirra. Hvergi lýsir Guð yfir því, að prestar einir eigi að boða Góðu Fréttirnar. Boð hans nær til allra.

Hin ástæðan fyrir að boða Krist er þessi: Krist ber að boða, af því að hann er hin eina lækning við synd. Öldum saman hafa menn reynt, og það með öllu hugsanlegu móti, að losa sig við synd, en hafa ekki getað það. Það var vegna þess, að þeir þekktu ekki hinn eina, hinn ALEINA, sem megnugur var að leysa þá. Múhameð getur ekki frelsað. Búddha getur ekki frelsað. Konfúsíus getur ekki frelsað. Jesús Kristur GETUR það! Það, sem meira er, hann VILL það! Til þess kom hann. Þess vegna dó hann. Til hans, og hans eins, býð ég ykkur að koma, því að „eigi er heldur annað nafn undir himninum, sem menn kunna að nefna, sem oss er ætlað fyrir hólpnum að verða.“ (Post. 4. 12.) Sé það satt, hvílir sú skylda á oss öllum jafnt, prestum sem leikmönnum: að BOÐA KRIST.

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

11. kafli af 16 · 4 mín. eftirBoðum Krist