Fimmtándi kafli
Hin þrefalda skipun Krists
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Kristur hefir gefið þrefalda skipun. Hún er fullkomin dagskrá um allt, sem trúboði kemur við, meðan varir núverandi tímabil. Dagskráin er þrjú orð.
Litið.
„Segið þér ekki: Enn eru fjórir mánuðir, og þá kemur uppskeran. Sjá, ég segi yður: Hefjið upp augu yðar og lítið á akrana, þeir eru þegar hvítir til uppskeru.“ (Jóh. 4. 35.)
Þúsundir manna sjá hvorki né þekkja þörfina. Vegna þess er háum upphæðum eytt í dýrar kirkjubyggingar, og kirkjubúnað, meðan milljónir manna glatast án þess að hafa svo mikið sem leirkofa til að heyra í fagnaðarerindið. Ef vér gætum einu sinni litið á akrana með augum Jesú Krists, þá yrði ekki fé vort falið í múrsteini og steinlími, íburðarmiklum biblíukennsluskólum og dýrum stofnunum, heldur notað sálum manna til björgunar. Tjaldbúðir og samkomusalir mundu nægja oss við guðsþjónustur, svo að þessir „aðrir sauðir“ Krists fái sína hlutdeild í honum með oss. Lífið yrði lifað fyrir þá, sem aldrei hafa heyrt. Það er að segja, ef hjörtu vor væru hrærð af meðaumkun Jesú og augu vor smurð til að sjá eins og hann sá.
Lítum þá á, horfum meir en nokkru sinni fyrr. Alstaðar sjáum vér út um heiminn milljónagrúann í myrkrinu. Hlustum aftur á orð Meistarans og reynum að fá svolitla skímu, hve brýn er þörfin. „Sjá, ég segi yður: Hefjið upp augu yðar og lítið á akrana, þeir eru þegar hvítir til uppskeru.“
Maður, er litið hefir hveitiakra í Norðvestur-Canada, hann skilur, hvað átt er við, hve þörfin er brýn, að lestir komi fullar af verkamönnum. Uppskerunni verður að bjarga, bjarga henni tafarlaust. Annars er hún horfin, glötuð að eilífu.
Þannig er það einnig með hvíta akra sálnanna. Þessi kynslóð getur aðeins boðað þessari kynslóð fagnaðarerindið. Séu ekki verkamenn sendir þegar í stað, þá er þessi kynslóð glötuð og glötuð að eilífu. Rísum upp og tökum til starfa! Tækifærið hið síðasta er senn liðið hjá. Í Guðs nafni, hefjum upp augu vor og lítum á akrana, sem þegar eru hvítir til uppskeru.
Biðjið.
Sé talað að hætti manna, er hlutverkið alls ekki framkvæmanlegt. Heiðingjar eru fleiri í heiminum nú heldur en fyrir hundrað árum, þrátt fyrir allt, sem vér höfum gert. Hvað leysir þennan vanda? „Fjármagn,“ segir einhver. „Vér skulum safna hundruðum milljóna króna, og þá getum vér boðað heiminum fagnaðarerindið.“ „Menn,“ svarar annar. „Gefið oss nógu marga menn, sem geta farið, og vér skulum ljúka verkinu á dögum þessarar kynslóðar.“ Vinir, þetta er ekki aðferð Guðs, hvorki fjármagn né mannfjöldi leysir vandann.
Hlustið! „Uppskeran er mikil, en verkamennirnir fáir.“ Hér er komið vandamálið: Mikil uppskera, of fáir verkamenn. Hlustið lengur! Meistarinn heldur áfram að tala. Hann kemur með úrlausn þessa vandamáls. „Biðjið því herra uppskerunnar, að hann sendi verkamenn til uppskeru sinnar.“ (Matt. 9. 37.—38.)
Vér höfum allt of marga verkamenn nú, verkamenn af röngu tagi, á ég við. Þeir kunna hvorki verk sitt, né heldur að safna saman þroskaðri uppskeru. Með nýguðfræði sinni og þjóðfélagsumbóta-hugmyndum hafa þeir leitazt við að gera það, sem ekki er framkvæmanlegt. Ég vildi, að Guð gæfi, að þeir yrðu sendir heim! Hlutverk vort er að biðja herra uppskerunnar, að hann sendi verkamenn. Þegar Guð sendir menn, sendir hann ávallt menn af réttu tagi. Leyndardómurinn er þá þessi: BIÐJIÐ.
Farið
1. Til þjóðanna.
„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum.“ (Matt. 28. 19.)
Brúðguminn verður að fá nokkra af hverri tungu og kynkvísl. „Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum. Þeir stóðu frammi fyrir hásætinu.“ (Opinb. 7. 9.) Þetta kemur einnig fram í Post. 15. 14. „Guð lét sér umhugað um að taka nafni sínu lýð á meðal heiðingjanna.“ Vér höfum því í Mark. 13. 10. þessi spádómslegu orð: „Fagnaðarerindið verður fyrst að vera prédikað öllum þjóðum,“ ásamt fyrirheitinu hjá Matteusi: „Þá mun endirinn koma.“ Þannig lýsti Páll yfir því, að þetta væri markmið hans að boða „fagnaðarerindið hinum megin við yður.“ (II. Kor. 10. 16.) Þetta var líka starfsaðferð Jesú sjálfs. „Allir eru að leita að þér,“ sögðu menn við hann. „Vér skulum fara annað, í þorpin í grenndinni, að ég fái einnig prédikað þar.“ (Mark. 1. 35.—39.)
Þetta sé þá markmið vort. Ekki að troða oss þar niður, sem trúboð er fyrir, heldur að starfa á þeim stöðum, þar sem ekkert er starfað, á „ónumdum svæðum,“ „þar sem Kristur hefir ekki nefndur verið.“ „Lengra, lengra inn í náttmyrkrið,“ „út á vanræktu akrana.“ Þetta séu kjöryrði vor, vort dýrlega hlutverk.
2. Til einstaklinga.
„Farið út um allan heiminn og prédikið gleðiboðskapinn allri skepnu.“
Þetta er ábyrgð vor og skylda gagnvart einstaklingnum. „Ef ég segi við hinn óguðlega: „Þú hinn óguðlegi skalt deyja;“ og þú varar hann ekki við og segir ekkert til þess að vara hinn óguðlega við óguðlegri breytni hans, til þess að bjarga lífi hans, þá mun hinn óguðlegi að vísu deyja fyrir misgerð sína, en blóðs hans mun ég krefja af þinni hendi.“ Hvað mundi sagt um sekt þess manns, er sæi mann vera að drukkna, en vanrækti þó að rétta út höndina til að bjarga honum? Eða um manninn, er sæi kviknað í húsi, en vanrækti þó brunakallið?
Nú stöndum vér frammi fyrir ábyrgð einstaklingsins. Aftur kemur spurningin ægilega: „Á ég að gæta bróður míns?“ og heimtar svar. „Hverri skepnu.“ Það eru orð Meistarans.
Ó, Guðs barn! Hvað hefst þú að? Gerir þú ekkert? Boðorð Meistarans, augljóst og áherzluríkt, einnig neyðin ægilega, hefir verið lagt fyrir þig aftur og aftur. Samt hreyfir þú ekki einn fingur? Hvað gefur þú til trúboðs? Nokkur hundruð, nokkra tugi króna, ekki neitt árlega. Þú eyðir meiru á sjálfan þig á einni viku, á einum degi, en til trúboðs á heilu ári. Guð miskunni þér!
Hve miklum fjársjóðum hefir þú safnað á himni? Hvar er fé þitt? Í einhverjum jarðneskum banka, þar sem þú fyrr eða síðar verður að skilja það eftir? Hefir þú eytt öllu í og á sjálfan þig? Sé það svo, kemur þú til himins sem blásnauður maður. Enginn, sem mætir þér þar, af því að þú hefir ekki lagt fé þitt í að vinna sálir. Guð hjálpi oss til að safna oss fjársjóðum á himni, með því að leggja fé í að vinna sálir. „Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir, en safnið yður fjársjóðum á himni.“ (Matt. 6. 19.—20.) Þetta er boðorð Jesú Krists. Erum við reiðubúin að hlýða því?
Ég gleymi aldrei ungri stúlku, sem Grace hét. Hún er komin heim til dýrðar Guðs. Hún snerist á einni af samkomum mínum, og skömmu síðar fór hjarta hennar að brenna af eldi áhugans fyrir þeim, sem Kristur nefndi „aðra sauði.“ Móðir hennar hafði lofað að gefa henni nýja kápu. Sú, sem hún átti, hafði verið notuð í sex vetur og skýldi illa við nístandi kuldanum. Samt gat Grace talið móður sína á, að hún fengi að nota gömlu kápuna einn vetur enn, en gefa verðið til trúboðs. Þegar Grace lá á dánarbeði, lét hún móður sína lofa því, að föt hennar yrðu seld og andvirðið rynni til trúboðs, þar sem ekkert hefði verið starfað áður. Ég vildi fá að vera nærstaddur, þegar Drottinn afhendir Grace launin, sem hún fær. Hvílík sjón verður það! Hve hún var rík hjá Guði!
Mínir elskuðu! Ég hefi flutt ykkur boðskap minn. Ábyrgðin hvílir nú á ykkur. Hvað ætlar þú að gera? Hvern þátt tekur þú í verkinu? Hin þrefalda skipun Krists hefir verið lögð fyrir þig. Lítið! Biðjið! Farið! Þú getur litið, og þú getur beðið. En getir þú ekki farið, getur þú gert þeim kleift að fara, er Guð hefir, sem svar við bæn, sent út á hvíta akrana.