Níundi kafli
Drottinvald Jesú
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Þeir eru margir, sem eiga Jesúm Krist að frelsara, en ekki sem Drottin; margir, sem Jesús hefir frelsað, en hafa þó aldrei viðurkennt hann sem Herra sinn. En honum nægir ekki minna en að fá þá stöðu.
Í Lúk. 14. 25.—27. setur hann fram skilmálana fyrir lærisveinsstöðu. En áður en ég nefni þá, vil ég segja, að það að vera lærisveinn í sönnum skilningi orðsins táknar miklu meira en fyrirgefningu. Lærisveinn er sá, sem lærir, sem viðurkennir annan sem meistara sinn.
Ennfremur vil ég taka það fram, að Drottinn Jesús hefir algeran rétt til að segja, með hvaða skilmálum hann tekur við mönnum, til þess að þeir fylgi honum sem lærisveinar. Þú, vinur minn, getur tilheyrt Jesú Kristi, þó að þú hafir ekki enn viðurkennt hann sem Drottin þinn og Meistara, til að hlýða með gleði fyrirmælum hans. Þú getur verið frelsaður, og samt ekki verið lærisveinn. (Þetta er umdeilt atriði. Þýð.)
Lítum nú á Lúk. 14. 25.—27., sem hljóðar þannig: „En mikill fjöldi fólks var honum samferða, sneri hann sér þá við og sagði við þá:“ Hvað mundir þú hafa sagt? Ef ég þekki manneðlið nokkuð, mundir þú hafa sagt eitthvað til að þóknast þeim, sem fylgdu þér. En Jesús Kristur fól aldrei krossinn, væri vegurinn þyrnóttur, sagði hann það.
„Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður og konu og börn og bræður og systur, og jafnvel einnig sitt eigið líf, hann getur ekki verið lærisveinn minn.“ „Hvað er þetta,“ segir þú, „á Jesús Kristur við það, að maðurinn verði að hata ástvini sína, til þess að geta verið lærisveinn hans?“ Við skulum líta á Matt. 10. 37. Þar eru sömu skilmálarnir, en ofurlítið öðruvísi orðaðir. „Hver, sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og hver, sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður.“
Hverjir eru þá skilmálarnir fyrir því að geta verið lærisveinn? Svara má með tveimur orðum: „GUÐ FYRST.“ Ef ég gæti, skyldi ég skrá þau á merkisblæju og láta hvern söfnuð í heimi hafa þau fyrir augum: GUÐ FYRST.
Spyrjum nú sjálf oss: Set ég Guð fyrstan eða atvinnu mína? Er Guð fyrstur eða skemmtanir? Er Guð fyrstur eða peningarnir? Hvor kemur fyrst, fjölskylda mín eða Guð? Þannig má leysa alla vora erfiðleika, öll vor vandamál. Ég þarf ekki að spyrja framar: Er rétt af mér að fara þangað? Get ég tekið þátt í þessari skemmtun? Ákvörðunin: Guð fyrst, nægir.
Ég man eftir einni móður, sem vildi ekki setja Guð fyrst. Dóttir hennar spurði hana, hvort hún mætti svara kalli Guðs og fara út á trúboðsakurinn. Móðirin samþykkti það, ef hún ynni hjá sér enn í þrjá eða fjóra mánuði. Þegar sá tími var liðinn, sveik hún loforð sitt og leyfði ekki dóttur sinni að fara. Áður en ár var liðið, tók Guð þessa dóttur hennar til sín, og lík hennar hvílir nú í kirkjugarðinum.
Síðasta skilyrðið fyrir því að vera lærisveinn finnst í Lúk. 14. 33.: „Þannig getur þá enginn af yður, er eigi sleppir öllu, sem hann á, verið lærisveinn minn.“
Bezta dæmi þessa, að sleppa öllu, finnst í Post. 4. 32.: „Enginn þeirra taldi neitt vera sitt, er hann átti.“
Ekkert, sem ég er, eða á, er mitt. Allt er Guðs. Hann leyfir mér að nota það, eins og honum þóknast. En hann á fyrsta eignarrétt á því. Ég viðurkenni þetta, legg allt í hendur hans og viðurkenni hann sem Drottin. Er ég þannig hefi sleppt öllum eignarréttarkröfum, sný ég baki við því öllu. Það er ekki lengur mitt, heldur Guðs. Upp frá þessu hefir hann algeran rétt á því öllu, til að gera, hvað sem hann vill, með það. Skyldi hann kalla mig til að yfirgefa það allt, get ég hvorki möglað eða kvartað. Ég gef honum börnin mín öll. Hann má senda þau út á trúboðsakurinn og þannig krefjast þess, að ég yfirgefi það, sem ég hefi þegar sleppt tilkallinu til í hendur hans. Sama gildir um fé mitt og sérhvað annað.
Ég hefi ekki fyrr sleppt öllu en Guð mun reyna mig, svo að það komi í ljós, hvort ég er einlægur í þessu. Þannig var það með Abraham. Guð krafðist þess, að hann fórnaði Ísak á fjallinu Móría. Abraham hikaði ekki eitt andartak. Með því kom einlægni hans í ljós. Hafi öllu verið sleppt í raun og veru, mun reynslustundin ekki verða þung. Hafi verið uppgerð í því, að sleppa öllu, verður reynslan hræðileg. Líklegast tekur maðurinn aftur það, er hann taldi sig hafa sleppt. Það, að vera lærisveinn, krefst þess, að öllu sé sleppt.
Minnstu þess, að Jesús verður að vera Drottinn alls, eða hann er alls ekki Drottinn. Enginn þjónar tveimur herrum samtímis. „Leyfðu mér fyrst,“ sagði maðurinn við Jesúm. Ekki „mér fyrst,“ Guð fyrst. Áhugamál mín mega aldrei koma fyrst, heldur hans. „Leitið fyrst ríkis hans (Guðs).“
Dr. Graham Scroggie frá Edinborg var eitt sinn að tala um þetta efni. Er samkoman var úti, kom til hans ung stúlka, mjög hrærð, sem játað hafði trú á Krist.
„Hví gefið þér yður ekki Guði á vald?“ spurði dr. Scroggie.
„Ég er hrædd um, að ég yrði að gera tvennt, ef ég gerði það,“ svaraði stúlkan.
„Hvað er það?“ spurði hann.
„Ég leik á slaghörpu í hljómlistarsal. Ég er hrædd um, að ég yrði að hætta við það,“ mælti hún.
„Og hitt er?“
„Ég er hrædd um, að Guð mundi senda mig til Kína sem trúboða.“
Dr. Scroggie breytti viturlega við þessa kvíðandi sál. Hann lauk upp biblíunni, í 10. kap. 14. versi í Postulasögunni, og skýrði fyrir stúlkunni, hve fjarstætt svar Péturs var: „Nei, Drottinn, engan veginn.“ Þræll setur aldrei skilmála, Að segja „Drottinn,“ og „engan veginn“ var alger fjarstæða.
„Nú,“ mælti dr. Scroggie, „vil ég, að þér strikið út orðin tvö „engan veginn“ og látið „Drottinn“ standa óhreyft. Eða þá að þér strikið yfir orðið „Drottinn,“ en látið „engan veginn“ vera kyrrt.“
Hann rétti henni ritblýið sitt og gekk hljóðlega á brott.
Í tvær stundir barðist hún við sjálfa sig. Þá kom hann aftur. Hann leit yfir öxl hennar og sá tárumstokkna blaðsíðu, en orðin „engan veginn“ voru strikuð út. Með gleðibjarma í augum gekk hún heim og endurtók aftur og aftur orðið eina: „Drottinn.“ Héðan í frá ætlaði hún ekki að skipa fyrir. Nú var hún lærisveinn hans, og hann var Drottinn hennar og herra. Upp frá þessu yrði sagt: „Faðir, ekki sem ég vil,“ og „Herra, hvað á ég að gera?“
Eigum við ekki að leggja allt í hendur hans og krýna hann sem Drottin?