← BækurMaðurinn sem Guð notar

Maðurinn sem Guð notar

Oswald J. Smith

Inngangur

Leiðarorð

um 1 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Um höfund þessarar bókar ritar dr. Billy Graham á þessa leið:

„Nafnið, Oswald J. Smith, er táknmynd trúboðs um allan heim. Heilagur Andi hefir notað bækur hans til að brenna mig niður í djúp sálar minnar, og hafa þær haft geysileg áhrif á einkalíf mitt og þjónustu.

„Sagan mun geta dr. Smiths sem þess manns á vorum tímum, er öðrum fremur sameinaði hirðinn, sálmaskáldið, trúboðs stjórnvitringinn og trúboðann. Enginn annar maður hefir haft áhrif á svo margt fólk með svo margvíslegu móti. Hans elskaða Peoples Church (Kirkja þjóðanna) hefir orðið fyrirmynd þess, sem söfnuður og safnaðarhirðir eiga að vera. Herferðir hans við trúboð, bæði heima og erlendis, hafa verið meðal hinna stærstu og árangursmestu í sögu kristinnar kirkju. Trúboðsáhugi hans og glöggskyggni á það, sem gera þarf, hafa engan jafnoka átt eða jafnvel hliðstæðu á 20. öldinni.

„Ég tel það eitt hið mesta happ, sem Drottinn hefir veitt mér um dagana, að þekkja þennan mann og að kalla hann „vin.“ Okkur öll, sem þekkjum hann og elskum hann, furðar á lífsfjöri hans, áhuga og viðvarandi styrk fyrir Meistarann, sem hann hefir svo trúlega þjónað í meira en 50 ár.“

A. A. Thomas, trúboði í Afríku, ritaði dr. O. J. Smith þetta:

„Er ég las bók þína „Maðurinn, sem Guð notar,“ fékk ég köllun frá Guði til trúboðs. Á þeim tíma var ég í fráfalls ástandi, en bók þín kom mér til að hverfa aftur til Drottins. Ég verð Guði eilíflega þakklátur fyrir „Manninn, sem Guð notar.“

Áhugasamur prédikari og fráfallinn lærisveinn Drottins hafa báðir fengið blessun af boðskap þeim, er dr. Oswald J. Smith flytur. Guð gefi, að allir þeir, sem bók þessa lesa, öðlist við það einhverja andlega blessun.

S. G. J.

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Inngangur · 1 mín. eftirLeiðarorð