← BækurMaðurinn sem Guð notar

Fyrsti kafli

Afmælis bæn

um 7 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Hinn 8. nóvember 1927, á 38. afmælisdegi mínum, bar ég fram þessa bæn: „Drottinn, gerðu mig að manni eftir þínu hjarta.“ Starfið hvarf mér sýnum; hlutir, sem mér þóttu áður mikils verðir, hurfu; allt, sem ég hafði áhuga fyrir áður, var sett skör lægra. Hið innra líf mitt frammi fyrir Guði var hið eina, sem raunverulega skipti nokkru máli. Meðan ég gekk um gólf í lesstofu minni þennan dag, bað ég og bað í Andanum: „Drottinn, gerðu mig að manni eftir þínu hjarta.“

Ég sá betur en nokkru sinni fyrr, að kjarni málsins var ekki starfið, sem ég var að vinna að, bækurnar, sem ég var að rita, ræðurnar, sem ég var að flytja, fólksfjöldinn, sem safnaðist saman, eða árangur sá, er hafði náðst; miklu fremur var það: lífernið, sem ég lifði, hugsanir þær, sem ég hugsaði, heilagleiki hjartans, réttlæti í verki. Sagt með einu orði: það var umbreyting mín, fyrir Andann, í líkingu Krists.

Þá komu til mín með nýrri og dýpri merking en nokkru sinni fyrr orðin: „Ó, að geta gengið nær Guði!“ Hjarta mitt hrópaði í angist að fá slíka reynslu. „Að ég geti þekkt hann.“ Þannig bað postulinn mikli. Og síðan, „Kristur lifir í mér.“ Já, „Nói gekk með Guði,“ „Enok gekk með Guði.“ Gæti ég ekki gert það? Er ég ekki dýrmætari Guði en starf mitt, eignir mínar? Guð vildi fá mig, ekki tóma þjónustu mína. „Taktu sjálfan mig, og ég mun verða ávallt, eingöngu, ALLUR handa þér.“

Eftir þetta leiddi hann mig til að biðja bænar, sem mundi gera mig að manni eftir hans hjarta. Þetta voru beiðnir mínar: „Drottinn, hér eru hendur mínar; ég helga þær þér. Megi þær aldrei snerta neitt, sem þú vilt ekki láta þær snerta, eða gera nokkuð, sem mundi vanheiðra þig. Og hér eru fætur mínir; ég helga þá þér. Megi þeir aldrei fara þangað, þar sem þú vildir ekki láta sjá þig. Hér, Drottinn, eru augu mín. Megi þau aldrei horfa á neitt, sem hryggt gæti þinn Heilaga Anda. Megi eyru mín aldrei hlusta á neitt, sem vanheiðrar nafn þitt. Megi munni mínum aldrei verða lokið upp til að mæla orð, sem ég mundi ekki vilja láta þig heyra. Megi hugur minn aldrei geyma hugrenning eða ímyndun, sem myrkvað gæti tilfinning fyrir nálægð þinni. Megi hjarta mitt aldrei þekkja ást eða tilfinning, sem ekki er frá þér. Amen.“

Meðan ég bað, komu til mín þessi orð: „Svo áminni ég yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram líkami yðar að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn, og er það skynsamleg guðsdýrkun af yðar hendi. Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjun hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.“ (Róm. 12. 1.—2.) Síðan komu þessi orð: „Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama yðar, svo að þér hlýðnist girndum hans. Frambjóðið ekki heldur syndinni limi yðar að ranglætisvopnum, heldur frambjóðið sjálfa yður sem lifnaða frá dauðum og limi yðar Guði sem réttlætisvopn. Því að synd skal ekki drottna yfir yður.“ (Róm. 6. 12.—14.)

Ég sá, að Guð krafðist óskiptrar hollustu minnar. Allt annað varð að skipa lægra sess. Vinir og nánustu ástvinir, heimili, fjármunir, starfið, — allt, þótt það væri algerlega lögmætt, — allt varð að víkja til hliðar fyrir Kristi. Dag og nótt varð ég að sýna honum óskipta hollustu. Guð fyrstur! Það varð að vera afstaða mín gagnvart honum. Aðeins með því móti gat hann blessað mig og notað mig. Aðeins með því móti gat ég fullnægt kærleika hans. Því að ég sá, að í sambandi mínu við Guð mátti hvorki nokkur annar né nokkuð annað nokkru sinni komast að á milli okkar. Guð varð að koma fyrst í hjarta mínu, alveg eins og eiginmaðurinn skipar æðsta sessinn í tilfinningum konunnar hans og gagnkvæmt. Alveg eins og hjónabandið verður aldrei farsælt hjónaband, nema hjónin sýni hvort öðru óskipta hollustu, þannig gat samfélag mitt við Guð því aðeins orðið fullkomið, að hann ætti óskipta hollustu mína. Hann vildi hafa mig til að veita sér stöðuga þjónustu.

Það, sem hann vildi fá hjá mér þennan dag, það vill hann eins fá hjá öllum. Getur það verið, að vér viljum neita honum um rétt hans? Er nokkuð til í þessum heimi, sem er þess virði, að því sé gefinn sá gaumur, sem hann vill fá? Hví synjum vér honum þá um það, sem hann vill fá? Er sanna gleði að finna utan Guðs? Getum vér orðið sæl með nokkuð, sem vér „eigum?“ Geta „eigur“ veitt fullnægju? „Líf hans er ekki tryggt með eigum hans.“ (Lúk. 12. 15.) Guð hefir skapað oss handa sjálfum sér. Hann þráir samfélag vort. Það er tilgangur hans og áform með oss, að vér göngum með honum hér, frá andartaki til andartaks, einmitt hér, mitt á meðal rangsnúinnar og gerspilltrar kynslóðar, í þeim heimi, sem lætur sig engu varða mannlíf, sem lifað er frágreint honum í Heilögum Anda. Guð þessa heims er Satan, en vér eigum að ganga með Guði vorum, eins og hans heilögu gerðu fyrr á tímum, að lifa hér sem gestir og útlendingar í þeim heimi, sem krossfesti Drottin vorn. Hvernig getum vér fengið af oss að valda honum vonbrigðum og bregðast því að hljóta viðurkenning hans?

Guð vill, að vér séum algerlega, hundrað af hundraði, fyrir hann. Þannig vaknar spurningin: Erum vér að fullu og öllu fyrir Jesúm Krist? Erum vér Guðs algerlega? Ekki níutíu af hundraði, gáið að, heldur hundrað af hundraði, fullkomlega gefin Guði? Biðjum hann þess vegna að leysa oss frá „eignum“, frá heiminum; leysa oss frá fjölskyldum vorum og heimilum, frá öllu því, sem átt er við með orðinu „hold;“ að venja oss svo, að vér getum gefið honum ódeilda athygli. Það er margt við holdið, sem er lögmætt. Getum vér afneitað sjálfum oss gagnvart því, sem er lögmætt, vegna himnaríkis, ef þjónusta vor skyldi gera það nauðsynlegt, að vér yrðum að vera skilin frá ástvinum vorum, jafnvel langtímum saman, til þess að vér gætum verið algerlega Guðs? Getum vér fyrir náð hans svo svifið ofar heimi og holdi, verið svo leyst frá þessu, að vér finnum, að Jesús sjálfur, fyrir Anda hans, sem í oss býr, sé fullnægur til að gera oss fær um að vera alveg og óskipt fyrir hann, svo að vér hrópum af hjarta, meir en barmafullu af lofgerð: „Jesús er fullnægur!“? Þetta var það, sem hann kenndi mér, og þetta er það, sem ég á við, þegar ég er að tala um að vera algerlega Guðs, vera alveg og óskiptur fyrir Jesúm Krist, hundrað af hundraði fyrir hann, og verða þannig maður eftir Guðs hjarta.

Það, að vera maður eftir Guðs hjarta, merkir það, að setja Guð fyrstan; ganga hvert andartak með honum; að gera ekkert, sem honum gæti verið vanþóknanlegt, og að leyfa sér ekkert, sem gæti hryggt hann; að lifa í verki lífi í réttlæti og heilagleika frammi fyrir honum; að veita honum óskipta athygli vora og að elska hann framar öllu öðru.

Þú manst, að Davíð var maður eftir Guðs hjarta. Ef Davíð gat verið það, get ég það þá ekki? getur þú það ekki? Daníel einsetti sér að saurga sig ekki. (Dan. 1. 8.) Vér skulum „einsetja“ oss þetta, og Guð mun gefa kraftinn til þess.

Því að það er með þessu móti, að vér verðum líkir Kristi; og það er æðsta markmið Guðs með oss, að vér verðum líkir syni hans, umbreyttir í sömu mynd og hann. Það er sorglegt að hafa verið trúaður í tíu ár og vera þá ekkert orðinn líkari Kristi heldur en á tíma afturhvarfsins. Sumir, sem frelsazt hafa, voru orðnir líkari Kristi eftir sex mánuði heldur en aðrir eftir sex ár. Aðeins þeir, sem nota mikinn tíma í návist hans, verða nokkru sinni líkir honum. Aðeins þeir, sem veita honum óskipta hollustu, ná í raun og veru að þekkja hann.

Til þess að eignast hið bezta, sem hann hefir, verðum vér að gefa honum hið bezta, sem vér höfum. Til að sigra verðum vér að gefast upp. Til að lifa verðum vér að deyja. Til að öðlast verðum vér að gefa.

Hve yndislegt er slíkt líf, gleðin í samfélagi hans! Ekkert á jörðinni líkist því. Allur sá ávinningur, sem unnt er að öðlast í heiminum, kemur ekki í þess stað. Hann er „sem apaldur meðal skógartrjánna,“ „ber af tíu þúsundum,“ „allur er hann yndislegur.“ Vinir líkjast honum aldrei. Ástvinir jafnvel geta brugðizt. Auður skapar byrðar, og frægðin er beisk. En hann, hann fullnægir. Guð verður engum að vonbrigðum. Að ganga með honum er indælast af öllu. Að vita allt afmáð, ekkert ský á milli, ekkert svart syndaský, sem byrgir auglit hans, — ó, það er í sannleika himnaríki.

Vér skulum því biðja í einlægni og lifa samkvæmt því: „Drottinn, gerðu mig að manni eftir þínu hjarta.“

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

1. kafli af 16 · 7 mín. eftirAfmælis bæn