← BækurMaðurinn sem Guð notar

Þriðji kafli

Frágreining trúaðra

um 9 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Vafi leikur á því, að nokkru sinni fyrr hafi verið sá tími, er meiri þörf var að boða frágreining trúaðra frá vantrúuðum, heldur en nú. Heimurinn er orðinn svo kirkjulegur og kirkjan svo heimsleg, að erfitt er að greina hvort frá öðru.

Veraldleiki hinnar játandi kristni er ekkert nema ennþá eitt merki þess, að endir þessarar heimsaldar er í nánd. Spádómar Guðs orðs eru að rætast bókstaflega. Það getur ekki liðið langt, þangað til Drottinn kemur.

Svo er að sjá, að fólk hafi þá hugmynd, að vér verðum að blanda oss saman við heiminn og líkjast honum, til þess að vér getum unnið sálir og haft áhrif á menn til að leiða þá til Guðs. Fjarstæða! Þeir menn, sem unnið hafa sálir og leitt menn til Guðs, hafa verið menn, sem gengu með Guði, langt fyrir ofan fjöldann. Þaðan, úr hæðum andlegleikans, drógu þeir aðra upp á sitt svið. Eina leiðin til að ávinna aðra er sú, að vera ekki líkur þeim, heldur sýna, að vér eigum eitthvað, sem þeir eiga ekki, og draga þá þannig að, sigra í bæn frammi fyrir Guði og sigra þar með menn.

Hefði Abraham farið að dvelja með Lot í Sódómu, mundu áhrif hans hafa megnað lítið. Með því að greina sig frá syndurum og standa langt frá, á hæðum trúarinnar með Guði, urðu bænir hans Lot til frelsunar. Vér skulum vera frágreindir. Vér verðum að dvelja með Guði.

Heimurinn býst við því, að trúaður maður sé ólíkur öðrum. Hann á sinn mælikvarða á það, hvernig trúað fólk á að vera. Og takist honum að draga oss niður á sitt svið, gerir hann gys að oss og hlær að ástandi voru.

Ung stúlka, sem sá enga hættu við að dansa, ákvað að tala við einhvern um Krist, meðan hún væri að dansa. Meðan hún sveif um gólfið með dansfélaga sínum, spurði hún hann, hvort hann tryði á Krist, væri kristinn.

„Kristinn! Nei! Ert þú það?“ spurði hann forviða.

„Já,“ svaraði unga stúlkan, „ég er kristin.“

„Jæja þá, í Guðs bænum, hvers vegna ertu hér?“ var hið óvænta svar.

Heimurinn væntir þess, að hinn trúaði, hinn kristni, sé ólíkur sér. Sé merkjalínan engin, hvernig á þá fólk að vita, hvorum megin við erum? Ef við öpum heiminn í klæðaburði og breytni, hvernig getur þá nokkur vitað, að við erum Krists?

Frágreining er það, sem Guð hefir ávallt krafizt. Abraham varð að yfirgefa ættland sitt og hús föður síns og fara, algerlega skilinn frá þeim, til lands, sem hann þekkti ekki. Móse hafnaði því, að vera talinn dóttursonur Faraós, og kaus fremur illt að þola með lýð Guðs en njóta skammvinns synda-unaðar. Hann áleit vanvirðu Krists meiri auð en fjársjóðu Egiptalands. Þannig var og um Ísraelsmenn. Þeir voru lýður, sem bjó einn sér, greindir frá þjóðunum umhverfis til að vera sem fulltrúar Guðs. Vér sjáum af Esra 9.—10. og Nehemía 13. kap., að engin hlífð var sýnd, er markalína frágreiningar þjóðanna var að engu orðin, þegar Ísraelsmenn tóku að kvænast heiðnum konum. Þeir urðu að reka þær frá sér, og frágreining af strangasta tagi var aftur sett.

Frágreining er ennþá kall Guðs til vor. „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum.“ „Farið burt frá þeim og skiljið yður frá þeim.“ (II, Kor. 6. 14.—18.) Heiminn verður að yfirgefa og frágreining að haldast við.

Minnumst þess, hverjir vér erum. Samkvæmt orði Guðs erum vér „gestir og útlendingar,“ „aðkomandi,“ himneskur lýður í annarlegu landi. Heimkynni vort er ekki hér.

Óvinátta og hatur er afstaða heimsins gagnvart sönnu barni Guðs. „Ef þér heyrðuð heiminum til, þá mundi heimurinn láta sér þykja vænt um sitt eigið; en af því að þér heyrið ekki heiminum til, . . þess vegna hatar heimurinn yður.“ (Jóh. 15. 19.) Hatar heimurinn þig eða ekki? Komi það skýrt í ljós, að þú ert hér aðeins sem gestur og aðkomandi, þá muntu fljótt verða var við hatur heimsins. Afstaða heimsins til þín fer eftir afstöðu þinni til hans.

Afstaða hjartans sýnir, en ekki verkin, hvort lífið er frágreint heiminum eða ekki. „Elskið ekki heiminn, ekki heldur þá hluti, sem í heiminum eru. Ef einhver elskar heiminn, þá er kærleiki til föðurins ekki í honum.“ (I. Jóh. 2. 15.) Langar þig til að taka þátt í þeim hlutum, sem heimsins eru? Togar heimurinn í þig? Sé það svo, þá er hjartað ekki fráskilið honum. „Þér ótrúu! Vitið þér ekki, að vinátta við heiminn er fjandskapur gegn Guði? Hver sem því vill vera vinur heimsins, hann gerir sig að óvini Guðs.“ (Jak. 4. 4.) Guð lýsir yfir því, að vinur heimsins sé óvinur sinn. Maður, sem elskar heiminn, elskar ekki Guð. Hver er afstaða hjarta míns? Elska ég heiminn, eða elska ég Guð?

Setjum svo, að kona byggi saman við mann sinn alla sunnudaga, en byggi svo með öðrum mönnum aðra daga vikunnar. Hvað mundum við halda um hana, kalla hana? Á þennan hátt breytir hinn veraldlega sinnaði trúaði maður við Drottin Jesúm Krist. Sex daga í heiminum og einn með Kristi. Er nokkur furða, að hann er kallaður „Hinn ótrúi.“ (Jak. 4. 4.) Í augum Guðs er hinn veraldlega sinnaði kristni maður sem ótrú kona. Vill nokkurt Guðs barn láta jafna sér við skækju? Tíður er slíkur samanburður hjá spámönnum gamla testamentisins. Skilnaður frá heiminum er eina svarið.

Maður, sem lifir greindur frá heiminum, greinir sig frá:

1. Skemmtunum heimsins.

Þetta var það, sem Móse kaus, þegar hann hafnaði skammvinnum synda-unaði. (Hebr. 11. 24.—26.)

Dansinn, leikhúsið og spilasamkvæmið er ekki frá Guði, heldur frá heiminum. Heimsins menn, ekki heilagir menn, fundu þetta upp. Þetta er gegnsýrt af anda heimsins. Bæn og lestur biblíunnar kemur ekki til mála samhliða þessum hlutum. Þeir, sem sinna slíkum skemmtunum, sækja ekki bænasamkomur né sinna andlegum málum kirkjunnar. Fyrir því verður sú stund að renna upp í ævi sannkristins manns, að hann verði fús að hlýða skipuninni: „Farið burt frá þeim og skiljið yður frá þeim.“

2. Bandalag við heiminn.

„Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum.“ Engin orð eru skýrari né skipun ákveðnari. Guð getur ekki heiðrað hið ósamkynja ok.

(1) Félagsskapur um kaupsýslu.

Hver sá kristinn maður, sem gengur í félag við vantrúaðan mann eða jafnvel heimslega sinnaðan kristinn mann, leggur sig í stórhættu. Hve mikið sem hann biður, þá á hann þó ekkert fyrirheit um blessun í orði Guðs. Óhlýðnin, að hlýða ekki skýrum orðum heilagrar ritningar, hrópar yfir sig ógæfu. Guð getur ekki blessað það, sem hann hefir fordæmt.

(2) Félagsskapur í leynifélögum.

Leynifélög eru hvarvetna bölvun kirkjunnar. Þau geta verið nógu góð fyrir heimsins börn, en fyrir Guðs barn ætti kirkja Jesú Krists að nægja.

Í leynifélögum eru bæði Únítarar og Gyðingar, menn, sem afneita guðdómi Jesú Krists. Það er jafnvel ekki leyft að nefna nafn Jesú, til þess að enginn hneykslist. Mig langar til að segja, að staður sá, sem er ekki nógu góður fyrir Drottin minn, er ekki nógu góður fyrir mig. Þangað, þar sem hann er lokaður úti, get ég ekki farið.

Guð hefir sagt greinilega: „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum.“ Gyðingar og Únítarar eru með sanni vantrúarmenn. „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum,“ segir Drottinn.

En þú segir: „Einu sinni frímúrari, alltaf frímúrari.“ Nei, alls ekki! Þetta er mannaboðorð, sem Guð hefir aldrei staðfest. Nei, bróðir minn, þú getur skilið við þetta, hafnað því öllu, rofið hvert rangt heit, sem þú vannst áður en augu þín opnuðust, og þú getur gengið út í hið skýra ljós orðs Guðs, skilinn að eilífu frá öllum leyndum viðurstyggðum.

(3) Félagsskapur hjónabandsins.

Ó, hve margir hafa játað, að rótin að ófarsæld þeirra í hjónabandinu sé sú staðreynd, að þeir hlýddu ekki Guði, en gengu undir hið ósamkynja ok. „Henni er frjálst að giftast hverjum, sem hún vill, aðeins að það sé trúaður maður.“ (Orðrétt: í Drottni.) (I. Kor. 7. 39.) Óhlýðni við Drottin stofnar til vonbrigða. Hvernig getur blessun hans hvílt yfir því heimili, þar sem orð hans var einskis virt?

Mörg er sú mærin, sem þurft hefir að horfast í augu við þetta vandamál og slíta sinni trúlofun. Aðrar hafa þráazt við, óhlýðnazt og iðrast þess síðar í lífinu meir en orð fá lýst. Ástæðan sú, að hún ætli að vinna manninn fyrir Krist, gagnar ekki hið minnsta. Mærin, sem vinnur ekki tilvonandi eiginmann sinn, vinnur hann varla síðar.

Þú, starfsmaður Krists, óhlýðnast ekki orði Guðs, gakktu ekki undir hið ósamkynja ok. Það getur virzt erfitt, en vertu viss um þetta: Guð hefir ætlað þér eitthvað annað og langtum betra. Það er ávallt hættulaust að hlýða orði Guðs. Um árangurinn er enginn vafi. Þess vegna: „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum.“

3. Félagsskapur heimsins.

Úr félagsskap heimsins verður að skilja sig. Heimsins menn njóta ekki bænastunda kristins manns, og Guðs barnið, finnur það unað í skemmtunum þeirra? Fyrr eða síðar verður það, að tónninn í félagsskap þeirra svæfir hið andlega líf. Erfitt er að leika með eldinn án þess að brenna sig.

Þú segir, hvernig get ég yfirgefið þá? Guðs barn, þú þarft ekki að yfirgefa þá. Lifðu þínu andlega lífi, og þeir munu bráðlega yfirgefa þig. Fljótlega mun þeim líða eins illa með þér eins og þér með þeim.

Vingast þú við börn Guðs. Þú munt finna, að félagsböndin, sem tengja þig og þau, eru dýrmætari og fastari en jafnvel jarðnesk ættarbönd án Krists. Þau munu skilja þig, þegar nánir ættingjar þínir geta það ekki. Slík vinátta dvínar aldrei. Dauðinn mun ekki skilja ykkur að. Vingastu því við þá, sem þú getur verið með um alla eilífð.

Leyndardómur þess, að lifa hinu frágreinda lífi, liggur í krafti hins nýja kærleika, sem útrýmir hinu gamla. Ég gleymi aldrei deginum þeim, þegar Grace Armstrong sneri sér til Krists. Hún féll á kné og grét eins og hjarta hennar ætlaði að bresta. Enginn gat huggað hana. Þegar hún gekk út eftir samkomuna, sögðu vinstúlkur hennar við hana, að þetta mundi bráðum líða frá.

„Nei, stúlkur,“ svaraði Grace, „þetta líður aldrei frá.“

Svo þegar ungu mennirnir símuðu og buðu henni með sér í leikhúsið, þá svaraði hún án þess að hika eitt andartak: „Nei.“ Hið gamla hafði horfið á einu augabragði. Skemmtunum heimsins unni hún ekki lengur. Allt var orðið nýtt. Kristur var nú kominn í hjarta hennar. Þar ríkti nýr kærleikur. Þegar Kristur kom inn í dýrlegri fyllingu sinni, fór heimurinn út.

Guði séu þakkir fyrir það, að vér öðlumst innri fullnægju, þegar vér öðlumst endurfæðing og Heilagan Anda. Vér þráum þá ekki lengur það, sem heimsins er. Þannig verður aðskilnaðurinn léttur. Það er ekki erfitt að neita sér um það, sem þig langar ekkert í. Kærleikurinn nýi útrýmir hinu gamla. Láttu Jesúm Krist ganga inn í allri sinni fyllingu, opna hjarta þitt fyrir Heilögum Anda, vertu maður, sem Guð býr í, og þá mun þér ekki finnast örðugt að ganga út fyrir herbúðirnar og bera vanvirðu hans.

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

3. kafli af 16 · 9 mín. eftirFrágreining trúaðra