Fjórði kafli
Prófraunin mesta
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
„Elskar þú mig?“
Þetta var óvænt spurning. Hópurinn litli, sem sat í kringum eldinn, er brann á strönd Galíleuvatnsins, leit í skyndi á þann, sem mælti þessi orð.
„Elskar þú mig?“
Það er Pétur, sem spyrjandinn ávarpar, hinn mikli, fljótfæri Pétur, lærisveinninn, er svo nýlega hafði afneitað honum, en svo „gekk útfyrir og grét beisklega.“ Spyrjandinn ætlaði að reyna hann. Þrisvar verður Pétur að játa hollustu sína, af því að þrisvar hafði hann afneitað. Nú yrði hann mældur á mælikvarðann mikla, reyndur með æðstu prófrauninni.
„Símon Jóhannesson, elskar þú mig meir en þessir?“ Hann spyr um hinn æðri kærleika, kærleika vitsmunanna eða viljans, fremur en elsku mannlegra tilfinninga. En Pétur ber ekki traust til sín lengur. Einu sinni hefir hann brugðizt. Hann getur gert það í annað sinn. Ófús að gera þá æðri kærleiksjátning, sem fólst í orðum Meistarans, notar hann orð, sem lætur aðeins í ljós elsku mannlegra tilfinninga, persónulega væntumþykju.
„Já, Herra, þú veizt, að þú ert mér kær.“
„Símon Jóhannesson, elskar þú mig?“ Svarið er hið sama. Þegar því Meistarinn sér, að Pétur vill ekki koma upp til hans, nota sama orð, notar hann sama orð og Pétur og spyr í þriðja skiptið:
„Símon Jóhannesson, er ég þér kær?“
Og þá svarar Pétur, hinn mikli og göfugi Pétur, sem finnst hjarta sitt ætla að bresta af hryggð, er hann hugsar um, að Drottinn hans efist um tryggð hans: „Herra, þú þekkir allt: þú veizt, að þú ert mér kær.“
Spurning þessi er kölluð hér „prófraunin mesta.“ Jesús vissi, hvað hann var að gera. Hann vissi, að hann var að spyrja hinnar mikilvægustu spurningar, sem finnst á mannlegu máli. Og enn, eftir meira en nítján aldir, megum vér líta svo á, að spurning þessi sé hin mesta prófraun á andlegt líf vort.
Það er í þrennu, sem þessi spurning verður oss hin mesta prófraun. Hún er í fyrsta lagi
HIN MESTA PRÓFRAUN Á LÆRISVEINSSTÖÐU VORA.
Dag eftir dag, í allar þessar aldir, hefir Jesús Kristur verið að tengja fólk, karla og konur, við sig, ekki með valdi, ekki með ótta, heldur með kærleika. Satan var fús til, að Kristur skyldi hljóta öll konungsríki þessa heims, ef hann aðeins leggði sig undir vald hans. En Jesús vissi, að það var ekki vilji föðurins, að menn væru knúðir til hlýðni við hann. Nei, hann ætlaði að draga þá, ekki reka, laða þá, ekki knýja. Af fúsum vilja skyldu menn kjósa hann; með kærleika skyldu þeir vinnast. Slík sameining yrði nánari, sterkari og endingarbetri miklu heldur en þvinguð hlýðni gæti komið til vegar. Kærleikur leiddi hann til jarðarinnar, kærleikurinn kom honum til að deyja á krossinum fyrir glatað mannkyn, og kærleikurinn skyldi draga fólkið, karla og konur, til hans. Var til nokkur hollustueiður, sem sterkari væri prófrauninni einföldu, sem hann valdi: — „Elskar þú mig?“
Hann spyr einskis um kenningar, kreddur, játningar, guðfræði — ekki eitt orð; synd, iðrun, þjónustu — ekki neitt. Aðeins er spurt einnar spurningar. Minnizt þess, að þetta er bezta tækifærið, sem hann hafði, til að gefa að skilnaði leiðbeiningar og aðvaranir. Eru þá engin önnur skilyrði fyrir lærisveinsstöðu? Þarf þá ekki að gangast undir neinar játningar eða kirkjureglur? Nei, engar. Hvers vegna? Af því að „Elskar þú mig?“ innifelur og umlykur allt. Hitt kemur á sínum stað. „Elskar þú mig?“ leiðir til alls, sem nauðsynlegt er.
Þúsundir manna nú á dögum eru starfsamir kirkjunnar menn, ágætir starfsmenn, en þeir bera ekki persónulegan kærleika til Jesú Krists. Form og siðvenjur nægja ekki. Enda þótt afstaða sú, er þú tekur til grundvallarsanninda trúarinnar, sé rétt, þá sannar það ekki, að hjarta þitt sé rétt gagnvart Jesú. Mikill fjöldi manna er það, sem hefir réttar skoðanir, en hjörtu þeirra eru ekki rétt. Það er af þessu, sem svo mikið er um þrætur og þykkju nú á dögum. Það er jafnvel unnt að deyja fyrir trú sína, en elska þó ekki Jesúm Krist.
Þú manst, hvað Jesús sagði, að væri hið fyrsta og mikla boðorð, sem ásamt öðru boðorði allt lögmálið væri fólgið í: „Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum.“ Ef vér elskum Drottin Jesúm Krist í einlægni, þá höfum vér uppfyllt lögmálið allt. Það er hjartað, sem verður að vera rétt. Ef vér eigum elskandi hjarta, hjarta, sem þráir að þóknast honum og fylgja honum, þá er framhaldið öruggt.
Spurningin er einnig
MESTA PRÓFRAUN Á HEGÐUN VORA.
Vér munum ekki þurfa að spyrja sem áður fyrr: „Er þetta rangt?“ „Er synd að gera það?“ Vér látum allar athafnir vorar ganga undir „prófraunina mestu.“ Þar verður að verki útrýmingarafl nýs kærleika. Maður fyllist svo Anda Guðs, verður svo gagntekinn af kærleika Krists, svo annt um að þjóna og þóknast honum, sem unnið hefir hjarta hans, að hjá honum verður ekkert rúm fyrir syndina, ekkert rúm fyrir heiminn. Hann hefir alls enga löngun til þeirra hluta, sem unun eru ófrelsuðu fólki. Mun maðurinn vilja vinna mein þeim, sem hann ann af hjarta. Langt frá því!
Seg þú mér: Elskar þú hann? Elskar þú HANN? Sé það svo, þá langar þig til að þóknast honum og fylgja honum. Sé það svo, fullnægir hann þér algerlega, hann einn. Heimurinn mun hætta að draga þig. Jesús, Jesús sjálfur, mun verða þér allt í öllu. Þú munt nærast á honum, dvelja hjá honum, vera stöðugur í honum, elska hann og krýna hann sem konung hjarta þíns. „Jesús, með þér allt ég á, allt, sem brestur, meira en það.“
„Elskar þú mig?“ er
MESTA PRÓFRAUN ÞJÓNUSTU VORRAR.
Með öðrum orðum: Kærleikur fremur en skylda er hvöt vor til starfs. Lærisveinn Jesú Krists þjónar honum, af því að hann elskar hann, en ekki af ánauðarkvöð.
Hvað var það, sem knúði Davíð Brainerd út til villtra Indíána? Hvað var það, sem kom honum til að fara að heiman, þegar hann var 24 ára gamall? Hvað lét hann dvelja í veglausum frumskógum landsins? Hvað hélt honum uppi, þótt hann væri að deyja úr tæringu? Hvað knúði hann, veikan og magnvana af matarskorti og langferðum á hestbaki, til að liggja úti í úrhellisrigningum og að halda áfram mánuð eftir mánuð? Hví var hann að segja sínum elskuðu Indíánum, að Guð elskaði þá og það svo heitt, að hann hefði gefið son sinn, einkason sinn, í dauðann fyrir þá? Hvað var þetta? Ég spyr. Skyldukvöð? Því fer víðs fjarri. Enginn maður teldi sér skylt að leggja svo mikið á sig. Nei, það var kærleikur. Davíð Brainerd elskaði Drottin og vildi sýna það í verki.
Þannig var því farið með Judson, Livingstone, Morrison, Taylor, Carey og allar aðrar trúboðshetjur liðinna tíma. Þannig mundi þér og verða farið, ef þú í sannleika elskaðir hann. Þú mundir jafnvel leggja lífið í sölurnar, ef þörfin krefði, — það er að segja, ef þú í sannleika elskar hann. Gerir þú það?
Hvílík er breidd og lengd, hæð og dýpt hins mikla hjarta óendanlegs kærleika og samúðar hans! Kærleikur spyr eftir kærleika. Hjarta, sem elskar, fullnægir ekkert nema elska. Þannig er því farið með hann. Af því að hann elskar svo mikið, getur ekkert fullnægt honum nema kærleikur fylgjenda hans. Sá, sem þráir ást, vill hann þiggja í staðinn auðæfi, húseignir og landeignir, óhóf og annað, sem peningar geta veitt? Kærleikur, kærleikurinn einn, er hið eina, sem Kristur gerir sig ánægðan með. Af því leiðir, að „elskar þú mig?“ er mesta prófraun sérhvers kristins manns.
Eiginkona auðugs Frakka ætlaði að fremja sjálfsmorð. Hún sagði þessa sögu:
„Það var hér um daginn, að ég kvartaði við manninn minn. Undrandi og óánægður svaraði hann:
„Hvað, hvað eiginlega gengur að þér? Þú hefir bankaávísanaheftið mitt; þú hefir heimili mitt; þú matast við borð mitt. Allt það, sem auður og staða getur veitt þér, tilheyrir þér. Samt kvartar þú.“
„Ég þrái hjarta þitt,“ svaraði ég. „Ég þrái, að þú elskir mig.“
„Ó!“ hrópaði hann. „Það getur þú ekki fengið. Þú getur fengið allt annað, en hjarta mitt, ást mína, — það er ómögulegt.“
Þannig getum vér boðið Jesú Kristi allt, sem vér höfum, án þess að honum sé fullnægt. Ást spyr eftir ást. Ekkert annað nægir. Með sömu mildu, biðjandi röddinni, sömu þrá hjartans, kemur hann til þín og mín. Vér heyrum hann spyrja þeirrar spurningar, sem er hin mesta prófraun „Elskar þú mig?“ Hún heimtar svar.
Þú svarar: „Ég elska Jesúm!“ Hvað kemur næst? „Gæt þú sauða minna.“ Sýndu það í verki! Þú varst á ágætu móti. Þú endurnærðist þar. Var það allt og sumt? Er þá allt búið? Þá hefir mótið þitt brugðizt. Hvað er um hina „aðra sauði?“ Er ekkert útstreymi frá þér? Á glataður heimur enga kröfu á hendur þér? Það er vegna þessa, að ég er svo þreyttur á hinum venjulegu trúaðramótum. Það gerist ekkert. Vatnið verður að stöðupolli, af því að útstreymið er ekkert. Ástæðan fyrir því, að ég nýt þess að vera á trúboðssamkomum og trúboðamótum, er sú, að þaðan streymir andlegur straumur út um heiminn og færir alstaðar með sér líf. Menn leggja sjálfa sig á altari Drottins og fé er lagt þar. Fólki er gefið tækifæri til að sýna kærleika sinn í verki.
Ef Jesús Kristur skyldi birtast okkur persónulega og leggja þessa spurningu: „Elskar þú mig?“ fyrir okkur hvert og eitt, hvað mundum við segja? Hverju mundum við svara? Hve rannsakandi yrði þessi spurning? Mundum við reyna að koma okkur hjá því að svara? Eða elskum við Jesúm Krist? „Vér elskum hann,“ sagði Jóhannes postuli. Gerir þú það? Geri ég það?