Þrettándi kafli
Mikilvægasta starf vort
Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.
Því meir sem ég rannsaka Guðs orð, því sannfærðari verð ég, að mikilvægasta hlutverk safnaðar Guðs er að vinna glatað fólk fyrir Jesúm Krist.
Meðal margra annarra ritningargreina eru fjórar, sem öllum öðrum betur sýna þetta, svo að ekki verður um deilt.
Skoðað frá sjónarmiði Guðs, finnum vér fyrst, að „Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn.“ (I. Tím. 1. 15.), að „Manns-sonurinn er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það.“ (Lúk. 19. 10.) Helzti tilgangur komu Krists í heiminn var því sá: að leita að hinu týnda og frelsa það. Markmið hans var ekki hjálparstarf og endurbætur, heldur hjálpræði og endurfæðing.
Af hálfu mannsins er hlutverkið þetta: „að opna augu þeirra, svo að þeir snúi sér frá myrkri til ljóss, frá Satans valdi til Guðs.“ (Post. 26. 18.) Menn eru í myrkri. Augu þeirra verður að opna og leiða þá út í ljósið. Þeir eru í valdi Satans, þess vegna verður að frelsa þá og leiða til Guðs. Þetta var hlutverk Páls.
Tilgangi þessa alls er svo skýrt og greinilega lýst í Post. 15. 14. Þar er sagt, að Guð hafi vitjað heiðingjanna til „að taka nafni sínu lýð á meðal“ þeirra. Þetta er það, sem Guð hefir verið að gera nú í meira en 1900 ár. Þetta er hlutverk Heilags Anda nú á tímum. Hann er að safna fólki saman í líkama Krists, kirkju hans. Af sérhverri kynkvísl og tungu er hann að kalla saman þennan mikla söfnuð.
Sé nú þetta markmið Guðs með því að vitja heiðingjanna, og hann segir, að það sé þetta, og sé það hlutverk Heilags Anda í heiminum, þá er það vilji Guðs, að við skulum vinna að þessu með honum — hann notar mannleg verkfæri — og leitast við að leysa af hendi okkar þátt í þessu: að safna saman söfnuði hans.
Til er fólk, sem reynir að komast hjá ábyrgðinni að vinna sálir með því að segja: „Einn sáir, annar uppsker.“ En Drottinn hefir ljóslega og með áherzlu staðhæft, að það er vilji hans, að sérhver þjónn hans beri ávöxt. „Ég hefi útvalið yður, og ég hefi sett yður, til þess að þér farið og berið ávöxt,“ segir hann. (Jóh. 15. 16.)
Sé það, að vinna sálir, mikilvægasta hlutverk safnaðar Krists, þá er það eðlileg afleiðing, að Satan mun gera allt, sem hann getur, til að leiða oss frá því eða gera oss ánægð með eitthvað annað. Og þetta á sér stað.
Mikill fjöldi manna gefur sig að því, sem almennt er kallað kirkjulegt starf. Þeir vinna að hljómleikum og munasölum, þeir eru í alls konar nefndum, þeir eru í hvers konar félögum. Á þessu slíta þeir sér út og halda, að þeir séu að gera Guði þægt verk. Samt vilja þeir ekki taka fimm mínútur til þess eftir guðsþjónustu að reyna að benda einhverri sál til Krists. Það væri ekki vinnandi verk að sannfæra þá um, að þeir mundu vinna langtum meira verk fyrir Guð með því að taka eina stund til að ganga hús úr húsi og gefa kristileg smárit, sem flytja fagnaðarerindið, og tala um Jesúm heldur en á heilli viku með aðgöngumiðasölu að hljómleikum. Svo önnum kafnir eru þeir í „kirkjulegu starfi“ sínu, að þeir hafa jafnvel ekki tíma til að leita að hinu týnda til að reyna að vinna það fyrir Krist. Guð frelsi oss frá slíkum röngum hugmyndum um starf hans. Hví skyldum vér eyða tímanum í hluti, sem ekki eru nauðsynlegir?
Þá er það ágreiningurinn um kenningarnar, sem vér heyrum á allar hliðar, og vér sjáum klofning, gagnrýni og afbrýði, sem af þeim sprettur, og vér verðum sjúk í hjarta; vér vildum, að slíkir smámunir gætu gleymzt vegna kærleika og áhuga að bjarga sálum, kraftinum eina, er sameinar oss. Skoðanamismunur á kenningum, safnaðarstjórn og starfsaðferðum, þetta skilur kristna menn að, rænir þá krafti, frystir kærleika Krists í hjörtum þeirra og drepur áhugann fyrir frelsun sálna.
Eigum vér að vera sameinaðir á himnum, en ekki hér? Er það satt, að vér séum bræður í Kristi? Hví liggur oss þá svo mjög á hjarta að troða vorum skoðunum og skýringum á orði Guðs upp á aðra? Ábyrgur er hver einstaklingur að fylgja Drottni eftir því ljósi, sem Heilagur Andi gefur við lestur Orðsins og bæn. Sumir þeirra manna, sem flestar sálir hafa leitt til Krists og ávaxtaríkustu trúboðarnir, hafa haft mjög ólíkar skoðanir á ýmsum spádómum. Samt hafa þeir varðveitt innilegasta samfélag hver við annan, af því að kærleikur Guðs brann í hjörtum þeirra og kom þeim til að setja hið fyrsta fyrst.
Ef vér viljum mæla andlegt lífsmagn safnaðar, verðum vér að gera það með því að komast eftir, hver er afstaða hans til þeirra, sem eru að glatast. Ársskýrslan getur sýnt, að mikið hafi verið starfað og mikið fé komið inn til góðgerðastarfs, en sé ekki skýrt frá sálum, sem hafi unnizt, er andlegt líf hans áreiðanlega á lágu stigi. Menn eru glataðir og þá verður að frelsa. Söfnuður, sem gengur framhjá þessari grundvallarstaðreynd, er ákaflega afvegaleiddur. Raunverulegur andlegleiki leiðir ávallt af sér, að sálir vinnast fyrir Krist.
Vér skulum hverfa aftur, hverfa aftur til fyrri kærleika vors til týndra sálna! Hvar, ó, hvar er byrði horfinna ára? Hve einlæglega báðum vér áður fyrr vegna sálna, sem voru að glatast! Með ákefð væntum vér árangurs! Höfum vér misst allar mannlegar tilfinningar? Hrærir oss ekki lengur hræðilegur dómur yfir þeim, sem ekki snúa sér? Hefir Satan leitt oss svo á hliðarbrautir, að vér höfum gleymt mikilvægasta verki voru? Sé það svo, þá opni Guð af mikilli miskunn sinni augu vor og leiði oss af þessum hliðarbrautum, er Satan hefir svo slæglega lagt, til hins mikilvægasta verks safnaðarins: að vinna sálir fyrir Jesúm Krist.