← BækurMaðurinn sem Guð notar

Fimmti kafli

Sigurlífið

um 11 mín. lestur

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Hið sorglegasta, sem er við líferni margra kristinna manna, er nálægð og kraftur syndarinnar. Menn eru til, sem glaðir gæfu allt, aleigu sína, gætu þeir aðeins staðizt freistingar og lifað í órofnu samfélagi við Guð.

Það er sár, en alkunn, staðreynd, að til eru þúsundir manna, karla og kvenna, um allan heim, sem þekkja Jesúm sem frelsara sinn, en hafa aldrei reynt annað en afturhvarfið. Kristur er ekki hjartna þeirra heitasta þrá. Í lífsreynslu þeirra skiptist á sigur og ósigur, sjöundi kafli Rómverjabréfsins í stað hins áttunda.

Þegar allt gengur vel, og ekkert truflar samhljóma lífsins, lifa þeir fullkomnu sigurlífi. En gangi allt öfugt, áform þeirra misheppnist, ertni og andstaða leggist á braut þeirra, þegar dimm og illspá ský dregur upp á sjóndeildarhring þeirra, þegar erfiðleikar og andstreymi umkringja, þá grípur sigur þeirra flugið og svífur á brott.

En það er unnt að lifa, lof sé Guði, á svo langtum hærra sviði en venjulegt er, að því verður helzt jafnað til ljóma hádegissólarinnar í samanburði við kvöldstjörnuskin. Það er æðra öllum vonum og draumum fjölmargra vonsvikinna og óánægðra kristinna manna.

Öllum er þó unnt að öðlast þetta. Meir en það, þetta er vilji Guðs sérhverju barni hans til handa. „Synd skal ekki drottna yfir yður,“ (Róm. 6. 14.) er yfirlýsing Guðs innblásna orðs. Þegar Páll hrópaði upp: „Ég aumur maður! hver mun frelsa mig frá þessum dauðans líkama?“ þá gat hann svarað með algerri fullvissu: „Ég þakka Guði fyrir Jesúm Krist, Drottin vorn.“ (Róm. 7. 24.—25.)

Hvílík gleði að vera frjáls! Fjötrarnir brostnir, syndavaldið brotið! Viðloðandi ávani, sem hélt mér svo lengi í fjötrum, vanheilög löngun, sem vann á mér sigur aftur og aftur, — hvílík gleði að vita, að hlekkirnir eru farnir! Hvað eftir annað reyndi ég sjálfur að losa mig. Ég vann heit og gerði góð áform, en árangurslaust. Ég var svo lengi fjötraður og hlekkjaður, að lausnarvonin virtist engin. Syndgun og iðrun, bænir og hrösun, grátur og aftur tilslökun. Þetta var reynsla mín. Hve syndin er beisk!

En loksins, lof sé Guði, varð ég frjáls! Frjáls eins og Ísraelsmenn, er þeir stóðu á ströndinni og horfðu á, hvar óvinir þeirra fórust í hafinu. Frjáls að lokum! „Ég þakka Guði fyrir Jesúm Krist, Drottin vorn.“ Halelúja! Hvílíkur frelsari!

Syndum þeim, er menn drýgja, má skipta í tvo flokka. Má kalla þær „ytri syndir“ og „innri syndir.“ Oss gæti verið gagnlegt að spyrja sjálfa oss nokkurra og nærgöngulla spurninga. Vér spyrjum ekki um ytri syndir, morð, þjófnað, hórdóm, því að séum vér Krists á annað borð, gerumst vér ekki sekir um þær. Vér spyrjum um hinar innri syndir, sem augað sér ekki, en ræna oss þó sigrinum, sem Kristur keypti oss til handa. Þær valda oss bæði vansælu og ósigrum.

1. Er ég leystur frá áhyggjum og kvíða?

Áhyggjur eru synd. „Verið ekki hugsjúkir um neitt.“ (Fil. 4. 6.) „Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar.“ (Matt. 6. 25.—34.) Það, að bera áhyggjur, er brot á skýru boði Guðs. Áhyggjur lýsa skorti á trausti. Einhver hefir sagt: „Áhyggjur eru gagnslaus byrði, þung af vantrausti á Guði.“ Jesús hafði aldrei neinar áhyggjur. Hann var stilltur, rólegur, fullur trausts í öllum kringumstæðum. Í æðandi stormi og ölduróti „svaf hann á koddanum.“

2. Er ég leystur frá kjarkleysi og örvæntingu?

Kjarkleysi! Það var synd Elía. Það er skæðasta vopn Satans. Því var oft beitt við Ísraelsmenn, er þeir voru á ferðinni um eyðimörkina. Til eru örvona trúaðir menn, menn, sem hafa glatað gleði sinni og djörfung, glaðværð sinni og von. Jesús var aldrei kjarklaus eða örvona.

3. Er ég laus við stirt skap og óánægju?

Kemst ég í illt skap út af smámunum? Eru þeir mér til skapraunar? Er í mér óánægja? Mögla ég yfir hlutskipti mínu? (Fil. 4. 11.) Þetta var hin viðloðandi synd Ísraelsmanna í eyðimörkinni. Jesús sýndi aldrei minnstu merki um stirt skap eða óánægju.

4. Er ég laus við reiði og illvilja?

Býr nokkur illvilji, mannvonzka, hatur eða óvinátta í hjarta mínu? Ber ég kala til einhvers, og hefi ég neitað að sættast? Hitnar mér í skapi hið innra? Er það satt, að ég missi stundum stjórn á mér? Nær reiði stundum tökum á mér? Slíkt var ekki hjartalag Jesú Krists.

5. Er ég leystur frá afbrýði og hroka?

Ef annar er tekinn fram yfir mig, veldur það mér öfund og vanlíðan? Verð ég afbrýðissamur gagnvart þeim, er geta beðið, talað eða gert hlutina betur en ég? Hrokast ég upp? Finnst mér til um stöðu mína og athafnir? Hve Jesús var laus við þetta.

6. Er ég leystur frá girndum og saurugleika hugans?

Læt ég huga minn geyma óhreinar og vanheilagar hugrenningar? Á hljóðum stundum næturkyrrðar, á einverustundum, gef ég mig þá slíkum löstum á vald? Hvernig gæti oss komið í hug, að slíkt hefði fundizt í hjarta Jesú?

Hér er ekki um að ræða syndlausan algerleik eða upprætingu syndugs eðlis. Þau orðatiltæki finnast ekki í ritningunni, og þau hafa ekki sézt í reynslu kristinna manna. Vér trúum, að til sé kristileg fullkomnun, það stig heilagleika, sem maðurinn getur komizt á, sem Guð væntir, að börn hans nái. Vér trúum ekki á niðurbæling, hemil á reiðinni.

Sú saga er sögð af gamalli kvekarakonu, sem brosað hafði blíðasta brosi við óþægilegustu skapraun. Ung kona, sem hjá henni var, sagði svo við hana:

„Ekki skil ég, hvernig þú gazt haft stjórn á þér.“

„A!“ kallaði kvekarakonan uppyfir sig, „þú sást ekki, hvernig sauð í mér niðri fyrir.“

Þetta hélt hún, að væri sigur. Hún hafði getað bælt niður tilfinningar sínar og haft þann hemil á reiði sinni, að enginn gat vitað um hana. Það skipti samt engu máli. Hún var synd eigi að síður. Guð sá suðuna niðri fyrir. Sú suða var í raun og veru opinberun syndarinnar. Þótt hemill væri hafður á reiðinni, var syndin hin sama. Þetta var enginn sigur. En Guði séu þakkir, það er til lausn frá öllum innri syndum. Það þarf ekki að sjóða í börnum Guðs.

Mér er sagt, að dr. Simpson (einn af frábærum þjónum Drottins, þýð.) hafi eitt sinn hlýtt á rökræður milli manna, sem trúðu á syndlausan algerleik, og hinna, sem trúðu á niðurbælingu. Eftir því sem meiri hiti komst í umræðurnar mátti sjá, að allmjög gerðust aðilar báðir rauðir í andliti. Einmitt það, sem þeir, er héldu fram syndlausum algerleik eða upprætingu syndugs eðlis, staðhæfðu, að væri ekki til í sér, tók að koma fram í heitum orðum og vaxandi roða ræðumanna. Og hinir, sem héldu fram niðurbælingu, virtust einhvern veginn ekki taka eftir því, að lokið var farið af, svo þetta, sem átti að vera alveg niðurbælt, var það ekki lengur, að minnsta kosti ekki til fulls.

Loksins reis dr. Simpson á fætur og mælti: „Bræður, það er ekki uppræting, og það er ekki niðurbæling, heldur er það „bústaður.“

Þökk sé Guði fyrir „bústaðinn!“ Ó, sú gleði! „Kristur í yður.“ „Kristur lifir í mér.“ „Ég í yður.“ Guð er íbúinn. „Bústaður Guðs fyrir Andann.“ (Efes. 2. 22.) Þetta er leyndardómurinn. Kristur vor sigur! Halelúja!

Fengi ég sigur forðum daga, kostaði hann áreynslu. Nú kostar sigurinn enga áreynslu. Annar er tekinn við orrustunni. „Ekki er yður búinn bardaginn, heldur Guði.“ Ég er undir stjórn nú, ekki sjálfs mín eða viljakraftar, heldur annars. „Þegar óvinurinn kemur inn eins og flóð, mun Andi Drottins hefja upp hermerki gegn honum.“ (Jes. 59. 19. ensk þýð.) Gáið að, það er Andinn, sem gengur fram til að mæta óvininum nú, og ég fel mig bak við hermerkið. Lítil stúlka var nýfrelsuð. Jesús, sagði hún, var í hjarta hennar. Er hún var spurð, hvað hún mundi gera, ef Satan kæmi og berði að dyrum, svaraði hún: „Hvað, ég mundi senda Jesúm til dyranna.“ Hún þekkti leyndardóminn. „Eigi þurfið þér að berjast við þá.“ „Standið stöðugir, og munuð þér sjá hjálpræði Drottins, er hann í dag mun láta fram við yður koma.“

Það er ekki barátta vor að losa oss við verk holdsins né tilraunir mannsins að verða laus við synd, heldur er það þetta, að fyllast af Heilögum Anda, að Guð búi svo í oss, að hjá oss verði ekkert rúm fyrir synd. Til þess að bjart verði í stofu þurfum vér ekki að reka myrkrið út. Vér hleypum ljósinu inn, og þá hverfur myrkrið. Vér leggjum ekki á oss þá fyrirhöfn á vorin að tína öll dauðu laufin brott af trjánum. Upp trjástofninn streymir lífgefandi safi. Ný blöð koma í ljós, og hin eldri falla af sjálfu sér. Hið sterkara eyðir hinu veikara. Sætan rekur beiskjubragðið brott. Ljósið hrekur myrkrið í burtu. „Sá er meiri, sem í yður er, en sá, sem er í heiminum.“ Það er annar en ég, sem gefur mér sigurinn. Í Róm. 7. kap. er „ég,“ „mig,“ „mér,“ „mínu“ um fjörutíu sinnum. En í Róm. 8. er Heilagur Andi nefndur nítján sinnum. Það er hann, sem dvelur í hinum trúaða og heyir baráttur hans.

Sjálfs-áreynsla, viljamáttur, viðleitni og barátta, — þetta eru aðferðir vorar. En Guð segir oss að leggja frá oss þessi vopn, hætta þessum tilraunum, þessari baráttu, og láta sig taka við. Vér erum engir jafnokar óvinar vors. Guð einn getur unnið sigur. „Kristur í yður,“ — það er hin eina von vor. Hann sigraði Satan á krossinum. Hann getur sigrað hann auðveldlega aftur.

Eigum vér þá ekki að kannast við eigið fánýti og veikleika, að fela Drottni frá þessari stundu að taka við, sjá um sigurinn handa oss. Hann einn er fær um það. Drukknandi manni, sem brýzt um, er örðugt að bjarga. En jafnskjótt sem hann hættir, gefst upp, leggur sig á vald þeim, sem vill bjarga honum, þá er góð von um, að björgun takist. Sjálfstilraunir gagna ekkert. Ég lifi, af því að „Kristur lifir í mér.“ Hann er sigur minn! Ég treysti honum. Lof sé Drottni!

Oft er spurt, hvort sigurinn geti orðið varanlegur. Það veltur allt á varðveitandi krafti Krists. Er Kristur nógu máttugur? Getur hann varðveitt manninn eina mínútu, eina stund? Geti hann það í eina stund, hví þá ekki í heilan dag? Og megni Kristur að varðveita barn sitt sigrandi í heilan dag, hví þá ekki í heilt ár? Þökk sé Guði, að það er til óslitinn sigur!

Hið eina, sem gildir í þessu máli, er að „horfa á Jesúm.“ Pétur leit á öldurnar, og þá fór hann að sökkva þegar í stað. Jafnskjótt sem hann leit á Jesúm aftur, var hann óhultur. Hve oft gerist það, að vér horfum á þá erfiðleika, sem umlykja oss á allar hliðar. Þar sem vér getum ekki litið í gagnstæðar áttir samtímis, þá leiðir af því, að vér lítum af Jesú til að geta séð vandamál vor. Er vér lítum á hann aftur, lítum vér af vandkvæðum vorum. Haltu því áfram að horfa á Jesúm, og sigurinn verður viðvarandi.

Svo lengi sem raftækin njóta rafmagnsins, halda þau áfram að starfa. En rofni straumurinn, stöðvast þau óðar. Vér erum ekkert lík rafgeymum. Guð hleður oss ekki, svo að vér getum haldið áfram óháð honum. Vér verðum að vera í sambandi við hann, í lífssamfélagi við hann, ávallt stöðugt, því að vér „erum með krafti Guðs varðveittir fyrir trúna.“ (I. Pét. 1. 5.) Þetta er líf í trú. „Án mín, frágreindir mér, skildir frá mér, getið þér alls ekkert gert,“ sagði Jesús.

Svo lengi sem Heilagur Andi ræður öllu hjá oss, svo lengi mun sigurinn vara við. En það er unnt að lítilsvirða hann, hryggja hann og slökkva, unz hann ræður ekki lengur lögum og lofum hjá oss. „Þér munuð öðlast kraft,“ var yfirlýsing Jesú, „þegar Heilagur Andi kemur yfir yður.“ Svo er boðið: „Framgangið í Andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins.“ Hans er kraftur til að sigra syndina, viðvarandi kraftur með viðvarandi framgöngu í Heilögum Anda, þar sem maðurinn hefir lagt sig undir vald hans og lætur stjórnast af honum.

Þetta er þá sigurlífið, sem Guð kallar oss til, sigur yfir syndinni fyrir kraft Heilags Anda, sem dvelur í oss. Höfum vér gengið inn til þessa lífs? Ég hefi reynt að lýsa þessu með einföldum orðum og skýrri framsetning þess. Nú er komið að þér að taka til notkunar eignir þínar í Kristi. Þú getur haldið áfram að lifa í ósigri, og þú getur frá þessum degi lifað dýrlegu sigurlífi. Kristur getur gert þig frjálsan og veitt þér að verða meira en sigurvegari. Þú þarft ekki að hrasa. „Þeir, er . . . eigi fremja ranglæti,“ er skýr staðhæfing heilagrar ritningar. (Sálm. 119. 3.) „Þetta skrifa ég yður, til þess að þér skuluð ekki syndga.“ (I. Jóh. 2. 1.) „Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.“ (Sálm. 119. 11.) Sé nokkur merking í þessum orðum, þá merkja þau það, að við, þú og ég, þurfum ekki að drýgja vísvitandi, kunna synd. Ef við gerum það, lifum við ekki sigurlífi. „En Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist.“ (I. Kor. 15. 57.)

Um þessa útgáfu

Maðurinn sem Guð notar (á ensku: The Man God Uses). Oswald J. Smith.

Þýðing Sæmundar G. Jóhannessonar, 1961.

Þýðingu og útgáfu annaðist Sæmundur G. Jóhannesson, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1961.

Textinn er óbreyttur frá prentuðu útgáfunni og heldur stafsetningu hennar.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

5. kafli af 16 · 11 mín. eftirSigurlífið