Inngangur
Formáli útgefanda
ÞESSI bók miðlar reynslu meira en 500 stórauðugra manna sem byrjuðu með tvær hendur tómar og höfðu ekkert að láta af hendi í staðinn fyrir auðæfi nema HUGSANIR, HUGMYNDIR og SKIPULAGÐAR ÁÆTLANIR.
Hér hefur þú í höndunum alla heimspeki fjáröflunar, nákvæmlega eins og hún var byggð upp út frá raunverulegum afrekum farsælustu manna sem bandaríska þjóðin hefur þekkt síðastliðin fimmtíu ár. Hún lýsir því HVAÐ Á AÐ GERA, og einnig HVERNIG Á AÐ GERA ÞAÐ!
Hún hefur að geyma tæmandi leiðbeiningar um HVERNIG ÞÚ SELUR PERSÓNULEGA ÞJÓNUSTU ÞÍNA.
Hún færir þér fullkomið kerfi til sjálfsgreiningar sem leiðir fljótt og örugglega í ljós hvað hefur staðið á milli þín og „stórfjár“ hingað til.
Hún lýsir hinni frægu formúlu Andrews Carnegie að persónulegum árangri, sem færði honum sjálfum hundruð milljóna dala og gerði eigi færri en tuttugu milljónamæringa úr mönnum sem hann kenndi leyndarmál sitt.
Kannski þarftu ekki á öllu því að halda sem finna má í bókinni – enginn þeirra 500 manna sem lögðu til reynslu sína í hana þurfti þess – en þú gætir þurft EINA HUGMYND, ÁÆTLUN EÐA ÁBENDINGU til að koma þér af stað í átt að markmiði þínu. Einhvers staðar í bókinni munt þú finna þennan nauðsynlega hvata.
Bókin varð til fyrir innblástur frá Andrew Carnegie, eftir að hann hafði eignast milljónir sínar og dregið sig í hlé. Hún var rituð af manninum sem Carnegie ljóstraði upp fyrir hinu undraverða leyndarmáli auðæfa sinna – sama manni og hinir 500 auðugu menn opinberuðu uppsprettu auðs síns.
Í þessu riti er að finna þær þrettán meginreglur fjáröflunar sem eru nauðsynlegar hverjum þeim sem safnar nægilegu fé til að tryggja sér fjárhagslegt sjálfstæði. Áætlað er að þær rannsóknir sem lágu til grundvallar undirbúningnum áður en bókin var skrifuð, eða gat yfirhöfuð verið skrifuð – rannsóknir sem spanna meira en tuttugu og fimm ára samfellt starf – yrðu ekki endurteknar fyrir minna fé en 100.000,00 dali.
Þar að auki er ómögulegt að afla þeirrar þekkingar sem bókin geymir á nýjan leik, hvað sem í væri kostað, af þeirri ástæðu að meira en helmingur þeirra 500 manna sem lögðu til upplýsingarnar í henni er fallinn frá.
Auðæfi verða ekki alltaf mæld í peningum!
Peningar og efnisleg gæði eru nauðsynleg fyrir frelsi líkama og hugar, en sumir munu þó telja að hin mestu auðæfi verði aðeins metin í varanlegri vináttu, farsælum fjölskyldutengslum, samkennd og skilningi milli viðskiptafélaga og þeirri innri sátt sem veitir manni hugarró sem einungis verður mæld í andlegum verðmætum!
Allir sem lesa, skilja og tileinka sér þessa heimspeki verða betur í stakk búnir til að laða að sér og njóta þessara æðri lífsgæða sem öllum hefur ávallt verið og mun ávallt verða neitað um, nema þeim sem eru reiðubúnir fyrir þau.
Búðu þig því undir það, þegar þú opnar hug þinn fyrir áhrifum þessarar heimspeki, að upplifa BREYTT LÍF sem getur ekki aðeins hjálpað þér að feta vegferð lífsins í sátt og skilningi, heldur einnig búið þig undir að safna efnislegum auðæfum í ríkum mæli.