Inngangur
Umsagnir um höfundinn
Frá miklum bandarískum leiðtogum
„HUGSAÐU OG VERÐU RÍKUR“ var 25 ár í smíðum. Hún er nýjasta bók Napoleons Hill, byggð á hinni frægu Law of Success heimspeki hans. Verk hans og rit hafa hlotið lof mikilla leiðtoga í fjármálum, menntamálum, stjórnmálum og stjórnsýslu.
Hæstiréttur Bandaríkjanna, Washington, D. C.
Kæri herra Hill:--
Ég hef nú fengið tækifæri til að ljúka við lestur kennslubóka þinna, Law of Success, og mig langar að láta í ljós þakklæti mitt fyrir það glæsilega starf sem þú hefur unnið við skipulagningu þessarar heimspeki.
Það væri til mikilla bóta ef sérhver stjórnmálamaður í landinu tileinkaði sér og færi eftir þeim 17 grundvallarreglum sem kennslustundir þínar byggjast á. Þar er að finna afar vandað efni sem sérhver leiðtogi á sérhverju sviði mannlífsins ætti að skilja.
Ég er glaður að hafa notið þeirra forréttinda að geta veitt þér örlitla aðstoð við skipulagningu þessa glæsilega námskeiðs í heimspeki „heilbrigðrar skynsemi“.
Þinn einlægur
(Fyrrverandi forseti og fyrrverandi forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna)
KONUNGUR FIMM OG TÍU SENTA VERSLANANNA
„Með því að hagnýta margar af hinum 17 grundvallarreglum Law of Success heimspekinnar höfum við byggt upp stóra keðju farsælla verslana. Ég tel að það væru engar ýkjur þótt ég segði að með réttu mætti kalla Woolworth-bygginguna minnisvarða um traust gildi þessara meginreglna.“
F. W. WOOLWORTH
MIKILL STÓRÚTGERÐARMAÐUR
„Ég tel mig standa í mikilli þakkarskuld fyrir þau forréttindi að fá að lesa Law of Success eftir þig. Ef ég hefði búið að þessari heimspeki fyrir fimmtíu árum hygg ég að ég hefði getað áorkað öllu því sem ég hef gert á minna en hálfum þeim tíma. Ég vona innilega að heimurinn eigi eftir að uppgötva þig og launa þér.“
ROBERT DOLLAR
FRÆGUR BANDARÍSKUR LEIÐTOGI VERKALÝÐSINS
„Að ná valdi á Law of Success heimspekinni jafngildir tryggingu gegn ósigri.“
SAMUEL GOMPERS
FYRRVERANDI FORSETI BANDARÍKJANNA
„Má ég ekki óska þér til hamingju með þrautseigju þína. Hver sá maður sem ver svo miklum tíma ... hlýtur óhjákvæmilega að gera uppgötvanir sem eru öðrum mikils virði. Ég er djúpt snortinn af túlkun þinni á meginreglum ‚hugarbandalagsins‘ sem þú hefur lýst svo skýrt.“
WOODROW WILSON
STÓRKAUPMAÐUR
„Ég veit að hinar 17 grundvallarreglur þínar um velgengni eru traustar vegna þess að ég hef beitt þeim í viðskiptum mínum í meira en 30 ár.“
JOHN WANAMAKER
STÆRSTI MYNDAVÉLAFRAMLEIÐANDI HEIMS
„Ég veit að þú gerir ómetanlegt gagn með Law of Success.
Ég myndi ekki vilja meta þessa þjálfun til peningalegs verðmætis vegna þess að hún færir nemandanum eiginleika sem ekki verða mældir í peningum einum saman.“
GEORGE EASTMAN
LANDSKUNNUR FORYSTUMAÐUR Í VIÐSKIPTALÍFINU
„Alla þá velgengni sem ég kann að hafa öðlast á ég alfarið að þakka hagnýtingu hinna 17 grundvallarreglna þinna í Law of Success. Ég tel mig hafa þann heiður að vera fyrsti nemandi þinn.“