Þrettándi kafli
Heilinn
SENDI- OG MÓTTÖKUSTÖÐ FYRIR HUGSANIR
Tólfta skrefið til auðs
FYRIR meira en tuttugu árum tók höfundur þessarar bókar, í samstarfi við dr. Alexander Graham Bell heitinn og dr. Elmer R. Gates, eftir því að sérhver mannsheili er bæði sendi- og móttökustöð fyrir sveiflur hugsana.
Fyrir milligöngu ljósvakans, með svipuðum hætti og gildir um lögmál útvarpssendinga, er sérhver mannsheili fær um að nema sveiflur hugsana sem aðrir heilar senda frá sér.
Í tengslum við staðhæfinguna í málsgreininni hér á undan skaltu bera saman og íhuga lýsinguna á hinu skapandi ímyndunarafli eins og hún var dregin upp í kaflanum um ímyndunaraflið. Hið skapandi ímyndunarafl er „móttökutæki“ heilans sem tekur við hugsunum sem heilar annarra leysa úr læðingi. Það er samskiptatækið milli hins meðvitaða eða rökhugsandi huga manns og þeirra fjögurra uppsprettna sem maður getur sótt hugsanahvöt til.
Þegar hugurinn er örvaður, eða „keyrður upp“ í háa sveiflutíðni, verður hann móttækilegri fyrir þeim sveiflum hugsana sem berast honum um ljósvakann frá utanaðkomandi uppsprettum. Þessi „uppkeyrsla“ á sér stað fyrir tilstilli jákvæðra tilfinninga eða neikvæðra tilfinninga. Með tilfinningunum má auka sveiflur hugsana.
Sveiflur af afar hárri tíðni eru einu sveiflurnar sem ljósvakinn nemur og ber frá einum heila til annars. Hugsun er orka sem ferðast á afar hárri sveiflutíðni. Hugsun sem hefur tekið breytingum eða verið „keyrð upp“ fyrir tilstilli einhverrar af megintilfinningunum sveiflast á miklu hærri tíðni en venjuleg hugsun, og það er þessi tegund hugsana sem berst frá einum heila til annars í gegnum útsendingarvélar mannsheilans.
Kyntilfinningin trónir efst á lista mannlegra tilfinninga hvað varðar ákafa og drifkraft. Heili sem hefur verið örvaður af kyntilfinningunni sveiflast miklu örar en hann gerir þegar sú tilfinning liggur í dvala eða er fjarri.
Afleiðing umbreytingar kynorku er sú að sveiflutíðni hugsana eykst í slíkar hæðir að hið skapandi ímyndunarafl verður afar móttækilegt fyrir hugmyndum sem það nemur úr ljósvakanum. Á hinn bóginn, þegar heilinn sveiflast ört, laðar hann ekki aðeins að sér hugsanir og hugmyndir sem aðrir heilar senda frá sér um ljósvakann, heldur ljær hann eigin hugsunum manns þá „tilfinningu“ sem er nauðsynleg áður en undirmeðvitundin tekur við þeim hugsunum og bregst við þeim.
Þannig máttu sjá að útvarpslögmálið er sá þáttur sem gerir þér kleift að blanda tilfinningu eða geðhrifum saman við hugsanir þínar og koma þeim áfram til undirmeðvitundar þinnar.
Undirmeðvitundin er „sendistöð“ heilans, en í gegnum hana er sveiflum hugsana útvarpað. Hið skapandi ímyndunarafl er „móttökutækið“, en í gegnum það eru sveiflur hugsana numdar úr ljósvakanum.
Samhliða þessum mikilvægu þáttum, undirmeðvitundinni og hæfileika hins skapandi ímyndunarafls, sem mynda sendi- og móttökutæki hins hugræna útvarpsbúnaðar þíns, skaltu nú íhuga lögmál sjálfsefjunar, sem er sá miðill sem þú notar til að gangsetja „sendistöð“ þína.
Í leiðbeiningunum sem lýst var í kaflanum um sjálfsefjun var þér gerð skýr grein fyrir þeirri aðferð sem nota má til að umbreyta ÞRÁ í peningalegt jafngildi hennar.
Rekstur hinnar hugrænu „sendistöðvar“ þinnar er tiltölulega einfalt ferli. Þú þarft aðeins að hafa þrjú lögmál í huga og beita þeim þegar þú vilt nota sendistöð þína – UNDIRMEÐVITUNDINA, HIÐ SKAPANDI ÍMYNDUNARAFL og SJÁLFSEFJUN. Þeir hvatar sem þú notar til að virkja þessi þrjú lögmál hafa þegar verið útskýrðir – ferlið hefst með ÞRÁ.
MESTU ÖFLIN ERU „ÓÁÞREIFANLEG“
Kreppan leiddi heiminn alveg að mörkum þess að skilja þau öfl sem eru óáþreifanleg og ósýnileg. Í gegnum aldirnar sem liðnar eru hefur maðurinn treyst of mikið á líkamleg skilningarvit sín og takmarkað þekkingu sína við efnislega hluti sem hann gat séð, snert, vegið og mælt.
Við göngum nú inn í hina undursamlegustu allra alda – öld sem mun kenna okkur sitthvað um hin óáþreifanlegu öfl í heiminum í kringum okkur. Kannski munum við læra, þegar við förum í gegnum þessa öld, að „hitt sjálfið“ er máttugra en hið líkamlega sjálf sem við sjáum þegar við lítum í spegil.
Stundum tala menn af léttúð um hið óáþreifanlega – þá hluti sem þeir geta ekki skynjað með neinu af skilningarvitunum fimm, og þegar við heyrum til þeirra ætti það að minna okkur á að við lútum öll stjórn afla sem eru ósýnileg og óáþreifanleg.
Allt mannkynið hefur hvorki mátt til að ráða við né stjórna því óáþreifanlega afli sem býr í veltandi öldum úthafanna. Maðurinn hefur ekki getu til að skilja hið óáþreifanlega afl þyngdarlögmálsins, sem heldur þessari litlu jörð svífandi í lausu lofti og kemur í veg fyrir að maðurinn falli af henni, og því síður vald til að stjórna því afli. Maðurinn er algjörlega undirorpinn því óáþreifanlega afli sem fylgir þrumuveðri, og hann er alveg jafn hjálparvana frammi fyrir hinu óáþreifanlega afli rafmagnsins – nei, hann veit ekki einu sinni hvað rafmagn er, hvaðan það kemur eða hver tilgangur þess er!
Og þar með er vanþekking mannsins á ósýnilegum og óáþreifanlegum hlutum síður en svo upptalin. Hann skilur ekki hið óáþreifanlega afl (og þá visku) sem býr í jarðvegi jarðarinnar – aflið sem sér honum fyrir hverjum matarbita sem hann borðar, hverri flík sem hann klæðist, hverjum dal sem hann ber í vasa sínum.
HIN STÓRBROTNA SAGA HEILANS
Síðast en ekki síst skilur maðurinn, þrátt fyrir alla sína marglofuðu menningu og menntun, lítið sem ekkert í hinu óáþreifanlega afli hugsunarinnar (sem er mest allra óáþreifanlegra afla). Hann veit afar lítið um hinn líkamlega heila og hið víðfeðma net flókins vélbúnaðar hans þar sem krafti hugsunarinnar er snúið í efnislegt jafngildi sitt, en hann gengur nú inn í öld sem mun varpa ljósi á þetta viðfangsefni. Vísindamenn eru þegar farnir að beina sjónum sínum að rannsóknum á þessu stórkostlega fyrirbæri sem kallast heili, og þótt þeir séu enn á barnsskónum í rannsóknum sínum hafa þeir grafið upp næga þekkingu til að vita að í aðalskiptiborði mannsheilans jafngildir fjöldi þeirra lína sem tengja heilafrumurnar hverja við aðra tölunni einum og fimmtán milljónum núlla þar á eftir.
„Þessi tala er svo yfirþyrmandi,“ sagði dr. C. Judson Herrick við University of Chicago, „að stjarnfræðilegar tölur sem snúast um hundruð milljóna ljósára verða ómerkilegar í samanburði ... Komið hefur í ljós að það eru frá 10.000.000.000 til 14.000.000.000 taugafrumur í heilaberki mannsins, og við vitum að þeim er raðað í ákveðin mynstur. Þessi uppröðun er ekki tilviljanakennd. Hún er reglubundin. Nýþróaðar aðferðir í raflífeðlisfræði nema boðstrauma frá mjög nákvæmlega staðsettum frumum eða þráðum með örskautum, magna þá upp með útvarpslömpum og skrá spennumun upp á milljónasta hluta úr volti.“
Það er óhugsandi að slíkt net flókins vélbúnaðar sé til í þeim eina tilgangi að sinna líkamlegri starfsemi sem fylgir vexti og viðhaldi líkamans. Er ekki líklegt að sama kerfi, sem gerir milljörðum heilafrumna kleift að eiga samskipti sín á milli, leggi einnig til leiðir til samskipta við önnur óáþreifanleg öfl?
Eftir að þessi bók var skrifuð, rétt áður en handritið fór til útgefandans, birtist ritstjórnargrein í New York Times sem sýndi að að minnsta kosti einn virtur háskóli, og einn glöggur rannsakandi á sviði hugrænna fyrirbæra, stunda nú skipulagðar rannsóknir sem hafa leitt til niðurstaðna sem eru um margt hliðstæðar þeim sem lýst er í þessum kafla og þeim næsta. Í ritstjórnargreininni var gerð stutt grein fyrir því starfi sem dr. Rhine og samstarfsmenn hans við Duke University hafa unnið, sem hér segir:
„Hvað er ‚hugsanalesning‘?
„Fyrir mánuði vitnuðum við á þessari síðu í nokkrar af þeim merkilegu niðurstöðum sem prófessor Rhine og samstarfsmenn hans við Duke University hafa náð úr meira en hundrað þúsund prófunum til að skera úr um tilvist ‚hugsanalesningar‘ og ‚skyggnigáfu‘. Þessar niðurstöður voru dregnar saman í fyrstu tveimur greinunum í Harpers Magazine. Í síðari greininni, sem nú er komin út, leitast höfundurinn, E. H. Wright, við að draga saman hvað menn hafa lært, eða hvað virðist eðlilegt að álykta, um hið nákvæma eðli þessara tegunda ‚yfirskynjunar‘.
„Raunveruleg tilvist hugsanalesningar og skyggnigáfu virðist nú í augum sumra vísindamanna afar sennileg í ljósi tilrauna Rhines. Ýmsir þátttakendur voru beðnir um að nefna eins mörg spil í sérstökum stokki og þeir gætu án þess að horfa á þau og án þess að komast í tæri við þau með öðrum skilningarvitum. Um tuttugu karlar og konur fundust sem gátu að staðaldri nefnt svo mörg spil rétt að ‚það var ekki einn möguleiki á móti mörgum milljón milljónum að þau hefðu unnið þessi afrek af heppni eða tilviljun‘.
„En hvernig fóru þau að þessu? Þessir hæfileikar, ef gert er ráð fyrir að þeir séu til, virðast ekki bundnir skilningarvitunum. Ekkert þekkt líffæri er til fyrir þá. Tilraunirnar gengu alveg jafn vel þegar nokkur hundruð mílur voru á milli eins og þegar verið var í sama herbergi. Þessar staðreyndir gera einnig út af við allar tilraunir, að mati herra Wrights, til að skýra hugsanalesningu eða skyggnigáfu með einhverri eðlisfræðilegri kenningu um geislun. Allar þekktar tegundir geislaorku dofna í öfugu hlutfalli við fjarlægðina í öðru veldi. Það gera hugsanalesning og skyggnigáfa ekki. En þær breytast hins vegar af líkamlegum orsökum rétt eins og aðrir hugrænir hæfileikar okkar. Þvert á útbreidda skoðun eflast þær ekki þegar þátttakandinn er sofandi eða í hálfgerðu móki, heldur þvert á móti þegar hann er sem mest glaðvakandi og vel á verði. Rhine uppgötvaði að deyfilyf lækkar undantekningarlaust árangur þátttakandans, en örvandi efni hækkar hann alltaf. Hinn áreiðanlegasti þátttakandi getur að því er virðist ekki náð góðum árangri nema hann leggi sig allan fram.
„Ein ályktun sem Wright dregur af nokkru öryggi er sú að hugsanalesning og skyggnigáfa séu í raun ein og sama gáfan. Það er að segja, sá hæfileiki sem ‚sér‘ spil sem liggur á grúfu á borði virðist vera nákvæmlega sá sami og ‚les‘ hugsun sem býr aðeins í öðrum huga. Nokkrar ástæður eru til að ætla þetta. Til þessa hafa til dæmis báðar gáfurnar fundist í sérhverri manneskju sem býr yfir annarri hvorri þeirra. Hjá öllum hingað til hafa þær báðar verið nánast nákvæmlega jafn sterkar. Skilrúm, veggir og vegalengdir hafa alls engin áhrif á hvoruga þeirra. Wright gengur út frá þessari ályktun og setur fram það sem hann kallar ekki annað en blátt áfram ‚hugboð‘ um að önnur reynsla af yfirskynjun, forspáir draumar, fyrirboðar um stórslys og annað slíkt kunni einnig að reynast hluti af sama hæfileika. Lesandinn er ekki beðinn um að fallast á neina af þessum ályktunum nema hann telji það nauðsynlegt, en þau sönnunargögn sem Rhine hefur hlaðið upp hljóta að teljast áhrifamikil.“
Í ljósi yfirlýsingar dr. Rhines varðandi þær aðstæður þar sem hugurinn bregst við því sem hann nefnir „yfirskynjun“ tel ég mér nú skylt og ljúft að bæta við vitnisburð hans með því að greina frá því að ég og samstarfsmenn mínir höfum uppgötvað það sem við teljum vera kjöraðstæður til að örva hugann þannig að hægt sé að láta sjötta skilningarvitið, sem lýst er í næsta kafla, starfa á hagnýtan hátt.
Þær aðstæður sem ég vísa til felast í nánu starfsbandalagi milli mín og tveggja úr starfsliði mínu. Með tilraunum og æfingu höfum við uppgötvað hvernig við getum örvað huga okkar (með því að beita því lögmáli sem notað er í tengslum við „hina ósýnilegu ráðgjafa“ sem lýst er í næsta kafla) þannig að við getum, með því að bræða þrjá huga okkar saman í einn, fundið lausn á afar fjölbreyttum persónulegum vandamálum sem viðskiptavinir mínir leggja fyrir mig.
Aðferðin er mjög einföld. Við setjumst niður við fundarborð, gerum skýra grein fyrir eðli þess vandamáls sem við höfum til umfjöllunar og hefjum síðan umræður um það. Hver og einn leggur til þær hugsanir sem upp kunna að koma. Hið undarlega við þessa aðferð til hugarörvunar er að hún setur hvern þátttakanda í samband við óþekktar uppsprettur þekkingar sem liggja tvímælalaust utan hans eigin reynsluheims.
Ef þú skilur lögmálið sem lýst var í kaflanum um hugarbandalagið berðu auðvitað kennsl á þessa hringborðsaðferð sem hér er lýst sem hagnýta beitingu á hugarbandalaginu.
Þessi aðferð til hugarörvunar, með samlyndri umræðu þriggja manna um skýrt afmörkuð málefni, sýnir hina einföldustu og hagnýtustu notkun hugarbandalagsins.
Með því að tileinka sér og fylgja svipaðri áætlun getur hver sá sem nemur þessa heimspeki komist yfir hina frægu formúlu Carnegies sem lýst var stuttlega í innganginum.
Ef þetta segir þér ekkert á þessari stundu skaltu merkja við þessa blaðsíðu og lesa hana aftur þegar þú hefur lokið við síðasta kaflann.