← BækurHugsaðu og auðgastu

Áttundi kafli

Ákvörðun

um 21 mín. lestur

SIGUR YFIR FRESTUNARÁRÁTTUNNI

Sjöunda skrefið til auðs

NÁKVÆM greining á yfir 25.000 körlum og konum sem höfðu beðið ósigur leiddi í ljós þá staðreynd að SKORTUR Á ÁKVÖRÐUN var meðal þess sem trónði efst á listanum yfir 30 meginorsakir ÓSIGURS. Þetta er engin tóm kenning – þetta er staðreynd.

FRESTUNARÁRÁTTA, andstæða ÁKVÖRÐUNAR, er sameiginlegur óvinur sem nánast hver einasti maður verður að sigrast á.

Þú færð tækifæri til að prófa hæfni þína til að komast að skjótri og skýrri ÁKVÖRÐUN þegar þú lýkur lestri þessarar bókar og kemur að því að byrja að hrinda í FRAMKVÆMD þeim meginreglum sem hún lýsir.

Greining á nokkur hundruð manns, sem höfðu safnað auðæfum langt umfram milljón dollara markið, leiddi í ljós þá staðreynd að hvert og eitt þeirra hafði vanið sig á AÐ TAKA ÁKVARÐANIR SKJÓTT, og breyta þeim ákvörðunum HÆGT, ef og þegar þeim var á annað borð breytt. Fólk sem tekst ekki að safna peningum hefur án undantekninga þann vana að taka ákvarðanir mjög hægt, EF ÞAÐ TEKUR ÞÆR Á ANNAÐ BORÐ, og breyta þessum ákvörðunum bæði fljótt og oft.

Einn af mest áberandi eiginleikum Henrys Ford er sá vani hans að taka hverja ákvörðun skjótt og ákveðið, og breyta þeim hægt. Þessi eiginleiki er svo ríkur í fari herra Fords að hann hefur getið sér orð fyrir þrjósku. Það var þessi eiginleiki sem fékk herra Ford til að halda áfram að framleiða sína frægu „T“-gerð (ljótasta bíl heims), þegar allir ráðgjafar hans og margir kaupendur bílsins lögðu hart að honum að breyta honum.

Ef til vill dró herra Ford það of lengi að gera breytinguna, en hin hliðin á málinu er sú að þessi fasta ákvörðun herra Fords skilaði honum gríðarlegum auðæfum áður en nauðsynlegt reyndist að breyta um bílgerð. Lítill vafi leikur á því að sú venja herra Fords að vera svo fastur í ákvörðunum sínum jaðrar við þvermóðsku, en sá eiginleiki er þó æskilegri en seinagangur við að taka ákvarðanir og fljótfærni við að breyta þeim.

Meirihluti þess fólks sem tekst ekki að safna nægum peningum fyrir þörfum sínum lætur almennt auðveldlega stjórnast af „skoðunum“ annarra. Það leyfir dagblöðunum og „slúðurgjörnum“ nágrönnum að „hugsa“ fyrir sig. „Skoðanir“ eru ódýrasta söluvara á jörðinni. Allir liggja á heilu safni skoðana sem þeir eru boðnir og búnir að pranga inn á hvern þann sem vill þiggja þær. Ef þú lætur „skoðanir“ hafa áhrif á þig þegar þú tekur ÁKVÖRÐUN mun þér ekki vegna vel í neinu fyrirtæki, og allra síst í því að umbreyta ÞINNI EIGIN ÞRÁ í peninga.

Ef þú lætur skoðanir annarra hafa áhrif á þig munt þú enga eigin ÞRÁ eiga.

Haltu ráðagerðum þínum fyrir þig þegar þú byrjar að hrinda í framkvæmd þeim meginreglum sem hér er lýst, með því að taka þína eigin ákvörðun í hverju máli og fylgja þeim eftir. Trúðu engum fyrir málum þínum NEMA félögum í „hugarbandalagi“ þínu, og gættu þess í hvívetna við val á þeim hópi að velja AÐEINS þá sem eru í FULLKOMINNI SAMSTÖÐU OG SAMHLJÓMI VIÐ TILGANG ÞINN.

Nánir vinir og ættingjar hamla manni oft, án þess þó að ætla sér það, með „skoðunum“ sínum og stundum með háði sem er meint í gamni. Þúsundir karla og kvenna bera með sér minnimáttarkennd alla ævi vegna þess að einhver velviljuð en fáfróð manneskja eyðilagði sjálfstraust þeirra með „skoðunum“ eða spotti.

Þú hefur þinn eigin heila og huga. NOTAÐU HANN og taktu þína eigin ákvörðun í hverju máli. Ef þú þarfnast staðreynda eða upplýsinga frá öðru fólki til að gera þér kleift að taka ákvarðanir, eins og líklega mun koma fyrir í mörgum tilvikum, skaltu afla þessara staðreynda eða tryggja þér upplýsingarnar sem þú þarft í kyrrþey, án þess að ljóstra upp um tilgang þinn.

Það er einkennandi fyrir fólk sem hefur aðeins yfirborðskennda vitneskju eða þunna skán af þekkingu að reyna að gefa í skyn að það búi yfir mikilli þekkingu. Slíkt fólk talar yfirleitt OF MIKIÐ og hlustar OF LÍTIÐ. Hafðu augu og eyru galopin – en munninn LOKAÐAN, ef þú vilt temja þér þann vana að taka skjóta ÁKVÖRÐUN. Þeir sem tala of mikið gera fátt annað. Ef þú talar meira en þú hlustar sviptir þú þig ekki aðeins mörgum tækifærum til að safna gagnlegri þekkingu, heldur ljóstrar þú einnig upp ÁÆTLUNUM þínum og TILGANGI við fólk sem mun hafa mikla ánægju af því að koma þér á kné vegna þess að það öfundar þig.

Mundu líka að í hvert sinn sem þú opnar munninn í návist manneskju sem býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu, þá sýnir þú henni nákvæmlega hversu mikil þekking þín er – eða hversu MIKILL SKORTUR er á henni! Sönn viska einkennist yfirleitt af hógværð og þögn.

Hafðu hugfasta þá staðreynd að sérhver manneskja sem þú umgengst er, rétt eins og þú, að leita tækifæra til að safna peningum. Ef þú talar of frjálslega um áætlanir þínar gætir þú rekið upp stór augu þegar þú kemst að því að einhver annar hefur orðið fyrri til að ná markmiði þínu með því að HRINDA Í FRAMKVÆMD Á UNDAN ÞÉR þeim áætlunum sem þú talaðir svo óvarlega um.

Láttu eina af fyrstu ákvörðunum þínum vera þá að HALDA MUNNINUM LOKUÐUM EN EYRUM OG AUGUM OPNUM.

Til að minna þig á að fylgja þessu ráði mun reynast gagnlegt að skrifa eftirfarandi spakmæli upp með stórum stöfum og hengja það upp þar sem þú sérð það daglega.

„SEGÐU HEIMINUM HVAÐ ÞÚ ÆTLAR AÐ GERA, EN SÝNDU ÞAÐ FYRST Í VERKI.“

Þetta jafngildir því að segja að „athafnir, en ekki orð, séu það sem mestu máli skiptir.“

FRELSI EÐA DAUÐI VELTUR Á ÁKVÖRÐUN

Gildi hverrar ákvörðunar ræðst af því hugrekki sem þarf til að taka hana. Þær miklu ákvarðanir sem lögðu grunninn að siðmenningunni voru teknar með því að taka mikla áhættu, sem fól oft í sér hættuna á dauða.

Ákvörðun Lincolns um að gefa út sína frægu frelsisyfirlýsingu um afnám þrælahalds, sem veitti lituðu fólki í Ameríku frelsi, var tekin í fullri vitund um að sú gjörð myndi snúa þúsundum vina og pólitískra stuðningsmanna gegn honum. Hann vissi líka að framkvæmd þeirrar yfirlýsingar myndi kosta þúsundir manna lífið á vígvellinum. Að lokum kostaði hún Lincoln sjálfan lífið. Það krafðist hugrekkis.

Ákvörðun Sókratesar um að tæma eiturbikarinn frekar en að slaka á persónulegri sannfæringu sinni var hugrökk ákvörðun. Hún færði tímann fram um þúsund ár og gaf óbornum kynslóðum réttinn til hugsana- og málfrelsis.

Ákvörðun Roberts E. Lee hershöfðingja, þegar hann stóð á vegamótum gagnvart Sambandsríkjunum og tók upp málstað Suðurríkjanna, var hugrökk ákvörðun, því hann vissi mætavel að hún gæti kostað hann sjálfan lífið og að hún myndi vafalaust kosta aðra lífið.

En mesta ákvörðun allra tíma, hvað sérhvern bandarískan ríkisborgara varðar, var tekin í Fíladelfíu hinn 4. júlí 1776, þegar fimmtíu og sex menn rituðu nöfn sín undir skjal sem þeir vissu mætavel að myndi annaðhvort færa öllum Ameríkumönnum frelsi eða láta hvern einasta þeirra fimmtíu og sex hanga í gálganum!

Þú hefur heyrt um þetta fræga skjal, en ef til vill hefur þú ekki dregið af því þann mikla lærdóm um einstaklingsbundinn árangur sem það kenndi svo skýrt.

Við munum öll dagsetningu þessarar örlagaríku ákvörðunar, en fá okkar gera sér grein fyrir hvaða hugrekkis sú ákvörðun krafðist. Við munum sögu okkar eins og hún var kennd; við munum ártöl og nöfn mannanna sem börðust; við munum Valley Forge og Yorktown; við munum George Washington og Cornwallis lávarð. En við vitum lítið um hina raunverulegu krafta á bak við þessi nöfn, ártöl og staði. Við vitum enn minna um þann óáþreifanlega KRAFT sem tryggði okkur frelsi löngu áður en herir Washingtons náðu til Yorktown.

Við lesum sögu byltingarinnar og ímyndum okkur ranglega að George Washington hafi verið landsfaðir okkar, að það hafi verið hann sem ávann okkur frelsið, þegar sannleikurinn er sá að Washington kom aðeins til sögunnar eftir að teningnum var kastað, því sigur herja hans hafði verið tryggður löngu áður en Cornwallis lávarður gafst upp. Þessu er ekki ætlað að ræna Washington neinu af þeirri dýrð sem hann verðskuldaði svo ríkulega. Tilgangurinn er öllu heldur sá að beina athyglinni betur að þeim undraverða KRAFTI sem var hin raunverulega orsök sigurs hans.

Það er ekkert minna en harmleikur að sagnaritarar skuli algerlega hafa látið hjá líða að minnast svo mikið sem einu orði á þann ómótstæðilega KRAFT sem ól af sér og frelsaði þá þjóð sem átti fyrir höndum að setja öllum þjóðum jarðar ný viðmið um sjálfstæði. Ég segi að það sé harmleikur vegna þess að þetta er sami KRAFTUR og sérhver einstaklingur verður að beita sem sigrast á erfiðleikum lífsins og knýr lífið til að greiða það verð sem beðið er um.

Rifjum stuttlega upp þá atburði sem ólu af sér þennan KRAFT. Sagan hefst á atviki í Boston hinn 5. mars 1770. Breskir hermenn voru á eftirlitsgöngu um strætin og ógnuðu borgurunum opinberlega með nærveru sinni. Nýlendubúum gramdist að vopnaðir menn gengju fylktu liði mitt á meðal þeirra. Þeir tóku að láta gremju sína opinberlega í ljós og köstuðu bæði grjóti og skammaryrðum að hermönnunum, þar til foringinn gaf skipunina: „Setjið byssustingi á... Áhlaup!“

Orrustan var hafin. Hún leiddi til þess að margir féllu og særðust. Atvikið vakti slíka reiði að héraðsþingið (sem skipað var virtum nýlendubúum) boðaði til fundar í þeim tilgangi að grípa til ákveðinna aðgerða. Tveir af fulltrúunum á því þingi voru John Hancock og Samuel Adams – LIFI NÖFN ÞEIRRA! Þeir tóku hugrakkir til máls og lýstu því yfir að hefjast yrði handa við að reka alla breska hermenn burt úr Boston.

Mundu þetta – ÁKVÖRÐUN í huga tveggja manna mætti með réttu kalla upphaf þess frelsis sem við í Bandaríkjunum njótum nú. Mundu líka að ÁKVÖRÐUN þessara tveggja manna kallaði á TRÚ og HUGREKKI, vegna þess að hún var hættuleg.

Áður en þinginu var slitið var Samuel Adams falið að ganga á fund Hutchinsons, landstjóra héraðsins, og krefjast þess að breska herliðið yrði kvatt á brott.

Orðið var við kröfunni, herliðið var flutt á brott frá Boston, en málinu var ekki lokið. Það hafði skapað ástand sem átti eftir að breyta allri framvindu siðmenningarinnar. Er það ekki undarlegt hvernig stórbrotnar breytingar, líkt og bandaríska byltingin og heimsstyrjöldin, eiga sér oft upptök í kringumstæðum sem virðast lítilvægar? Það er einnig áhugavert að veita því athygli að þessar mikilvægu breytingar hefjast venjulega í formi SKÝRRAR ÁKVÖRÐUNAR í huga tiltölulega fárra manna. Fá okkar þekkja sögu lands okkar nógu vel til að gera sér grein fyrir því að John Hancock, Samuel Adams og Richard Henry Lee (frá Virginíuhéraði) voru hinir raunverulegu landfeður okkar.

Richard Henry Lee varð mikilvægur þáttur í þessari sögu sökum þess að þeir Samuel Adams voru í tíðum samskiptum (með bréfaskriftum) og deildu þar í fullri hreinskilni ótta sínum og vonum varðandi velferð fólksins í héruðum sínum. Út frá þessari venju kviknaði sú hugmynd hjá Adams að gagnkvæm bréfaskipti milli nýlendnanna þrettán gætu stuðlað að þeirri samhæfingu krafta sem svo brýn þörf var á til að leysa vandamál þeirra. Tveimur árum eftir átökin við hermennina í Boston (í mars 1772) lagði Adams þessa hugmynd fyrir þingið í formi tillögu um að komið yrði á fót bréfaskiptanefnd milli nýlendnanna, með sérstaklega skipuðum bréfriturum í hverri nýlendu, „í þeim tilgangi að efla vinsamlegt samstarf til heilla fyrir nýlendur bresku Ameríku.“

Taktu vel eftir þessu atviki! Þetta var upphafið að skipulagningu hins víðfeðma KRAFTS sem átti eftir að færa þér og mér frelsi. Hugarbandalagið hafði þegar verið myndað. Það var skipað þeim Adams, Lee og Hancock. „Enn fremur segi ég yður, að ef tveir yðar verða einhuga á jörðu um hvaðeina sem þér biðjið um, mun það hlotnast yður frá föður mínum, sem er á himnum.“

Bréfaskiptanefndin var sett á laggirnar. Taktu eftir því að þessi ráðstöfun ruddi brautina til að auka mátt hugarbandalagsins með því að bæta í það mönnum frá öllum nýlendunum. Veittu því athygli að þessi tilhögun fól í sér fyrstu SKIPULÖGÐU ÁÆTLANAGERÐ hinna óánægðu nýlendubúa.

Í sameiningunni felst styrkur! Borgarar nýlendnanna höfðu háð óskipulagðan hernað gegn bresku hermönnunum með uppþotum í líkingu við óeirðirnar í Boston, en ekkert gagnlegt hafði áunnist. Einstakar umkvartanir þeirra höfðu ekki verið sameinaðar undir einu hugarbandalagi. Enginn hópur einstaklinga hafði lagt hjörtu sín, huga, sálir og líkama saman í eina skýra ÁKVÖRÐUN um að útkljá deilur sínar við Breta í eitt skipti fyrir öll, fyrr en þeir Adams, Hancock og Lee tóku höndum saman.

Á meðan sátu Bretar ekki auðum höndum. Þeir stunduðu líka sína ÁÆTLANAGERÐ og beittu „hugarbandalagi“ á eigin vegum, og höfðu það forskot að búa yfir bæði fjármunum og skipulögðum herafla.

Krúnan skipaði Gage í stað Hutchinsons sem landstjóra í Massachusetts. Eitt af fyrstu embættisverkum nýja landstjórans var að gera út sendiboða á fund Samuels Adams í þeim tilgangi að reyna að kveða niður andstöðu hans – með ÓTTA.

Við getum best skilið anda þess sem gerðist með því að vitna í samtalið milli Fentons ofursta (sendiboðans sem Gage gerði út) og Adams.

Fenton ofursti: „Gage landstjóri hefur falið mér að fullvissa yður um það, herra Adams, að landstjóranum hafi verið veitt umboð til að láta yður í té slík hlunnindi sem þér munuð una vel við [tilraun til að vinna Adams á sitt band með loforði um mútur], gegn því skilyrði að þér skuldbindið yður til að láta af andstöðu yðar við ráðstafanir stjórnvalda. Það er heilræði landstjórans til yðar, herra minn, að baka yður ekki frekari vanþóknun hans hátignar. Framferði yðar hefur verið með þeim hætti að þér eruð sakhæfur samkvæmt lögum Hinriks VIII., sem heimila að menn séu sendir til Englands og dregnir þar fyrir dóm fyrir landráð, eða yfirhylmingu landráða, að mati landstjóra í héraði. En MEÐ ÞVÍ AÐ BREYTA PÓLITÍSKRI STEFNU YÐAR munuð þér ekki aðeins njóta mikils persónulegs ávinnings, heldur munuð þér einnig sættast við konunginn.“

Samuel Adams stóð frammi fyrir tveimur ÁKVÖRÐUNUM. Hann gat látið af andstöðu sinni og þegið persónulegar mútur, eða hann gat HALDIÐ ÁFRAM OG TEKIÐ ÞÁ ÁHÆTTU AÐ VERÐA HENGDUR!

Ljóst var að nú var runnin upp sú stund að Adams neyddist til að taka tafarlaust ÁKVÖRÐUN sem hefði getað kostað hann lífið. Flestum mönnum hefði reynst erfitt að taka slíka ákvörðun. Meirihlutinn hefði sent loðið svar til baka, en ekki Adams! Hann krafðist þess að Fenton ofursti gæfi drengskaparorð sitt fyrir því að ofurstinn myndi færa landstjóranum svarið nákvæmlega eins og Adams myndi gefa honum það.

Svar Adams var: „Þá megið þér segja Gage landstjóra að ég treysti því að ég hafi fyrir löngu gert frið við Konung konunganna. Engir persónulegir hagsmunir munu fá mig til að yfirgefa réttlátan málstað föðurlands míns. Og SEGIÐ GAGE LANDSTJÓRA AÐ ÞAÐ SÉ RÁÐ SAMUELS ADAMS TIL HANS að hætta að særa tilfinningar langþreyttrar þjóðar.“

Athugasemdir um skapgerð þessa manns virðast óþarfar. Það hlýtur að vera öllum ljóst sem lesa þessi stórmerkilegu skilaboð að sendandi þeirra bjó yfir hollustu af æðstu gerð. Þetta er mikilvægt. (Fjárkúgarar og óheiðarlegir stjórnmálamenn hafa selt til skammar þann heiður sem menn á borð við Adams dóu fyrir).

Þegar Gage landstjóri fékk þetta napra svar frá Adams brást hann hinn versti við og gaf út yfirlýsingu þar sem sagði: „Ég býð hér með og heiti, í nafni hans hátignar, hans náðarsamlegustu sakaruppgjöf öllum þeim sem þegar í stað leggja niður vopn og hverfa aftur til skyldustarfa friðsamra þegna, og undanskil frá slíkri sakaruppgjöf þá eina, SAMUEL ADAMS OG JOHN HANCOCK, en brot þeirra eru svo svívirðileg í eðli sínu að ekki kemur annað til greina en makleg refsing.“

Eins og sagt væri á nútímamáli voru Adams og Hancock komnir „upp að vegg!“ Hótun hins ævareiða landstjóra neyddi tvímenningana til að taka aðra ÁKVÖRÐUN sem var engu hættuminni. Þeir boðuðu í skyndi til fundar með sínum dyggustu stuðningsmönnum og héldu honum sem leyndarmáli. (Hér tók hugarbandalagið að komast á skrið). Eftir að fundur hafði verið settur læsti Adams dyrunum, stakk lyklinum í vasa sinn og tilkynnti öllum viðstöddum að brýna nauðsyn bæri til að stofna þing nýlendubúa og að ENGINN MAÐUR FENGI AÐ YFIRGEFA HERBERGIÐ FYRR EN ÁKVÖRÐUN UM SLÍKT ÞING HEFÐI VERIÐ TEKIN.

Mikil geðshræring greip um sig. Sumir veltu fyrir sér mögulegum afleiðingum slíkrar róttækni. (Gamli óttinn á kreiki). Sumir lýstu yfir þungum efasemdum um að það væri viturlegt að taka svo afdráttarlausa ákvörðun í trássi við krúnuna. Læstir inni í þessu herbergi voru TVEIR MENN sem voru ónæmir fyrir ótta og blindir á þann möguleika að þeim gæti mistekist. Hancock og Adams. Fyrir áhrif hugarstyrks þeirra tókst að telja hina á að samþykkja að fyrir milligöngu bréfaskiptanefndarinnar skyldi gerður undirbúningur að fundi fyrsta meginlandsþingsins í Fíladelfíu hinn 5. september 1774.

Mundu þessa dagsetningu. Hún er mikilvægari en 4. júlí 1776. Ef engin ÁKVÖRÐUN hefði verið tekin um að halda meginlandsþing hefði aldrei komið til þess að sjálfstæðisyfirlýsingin væri undirrituð.

Fyrir fyrsta fund hins nýja þings sat annar leiðtogi í öðrum hluta landsins sveittur við að gefa út ritið „Yfirlit yfir réttindi hinnar bresku Ameríku“. Það var Thomas Jefferson frá Virginíu-héraði, en samskipti hans við Dunmore lávarð (fulltrúa krúnunnar í Virginíu) voru jafn stirð og samskipti þeirra Hancocks og Adams við sinn landstjóra.

Skömmu eftir að hið fræga yfirlit hans um réttindin kom út var Jefferson tilkynnt að hann ætti yfir höfði sér ákæru fyrir landráð gegn ríkisstjórn hans hátignar. Innblásinn af þeirri hótun talaði einn af samherjum Jeffersons, Patrick Henry, tæpitungulaust og lauk máli sínu með setningu sem mun um aldur og ævi lifa sem fleyg orð: „Ef þetta eru landráð, gerið þá sem mest úr þeim.“

Það voru menn á borð við þessa sem, án valds, án umboðs, án herstyrks, án fjármuna, sátu á hátíðlegum ráðstefnum um örlög nýlendnanna, allt frá setningu fyrsta meginlandsþingsins og með hléum í tvö ár – uns Richard Henry Lee reis úr sæti hinn 7. júní 1776, ávarpaði forseta og bar upp þessa tillögu fyrir hið agndofa þing:

„Herrar mínir, ég legg til að þessar sameinuðu nýlendur séu, og eigi með réttu að vera, frjáls og óháð ríki, að þær verði leystar undan allri hollustu við bresku krúnuna og að öll stjórnmálatengsl milli þeirra og ríkisins Stóra-Bretlands séu, og eigi að vera, að fullu rofin.“

Hin stórfenglega tillaga Lees var rædd af miklum ákafa og svo lengi að hann tók að missa þolinmæðina. Að lokum, eftir margra daga rökræður, kvaddi hann sér aftur hljóðs og lýsti yfir með skýrri og fastmótaðri röddu: „Herra forseti, við höfum rætt þetta mál dögum saman. Þetta er eina leiðin sem okkur er fær. Hví tefjum við þá enn, herra minn? Hví erum við enn að velta vöngum? Látum þennan farsæla dag fæða af sér amerískt lýðveldi. Látum það rísa upp, ekki til að eyða og sigra, heldur til að endurreisa ríki friðar og laga. Augu Evrópu hvíla á okkur. Hún krefst af okkur lifandi fordæmis um frelsi, sem sýni í farsæld borgarans skýra andstæðu við sívaxandi harðstjórn.“

Áður en tillaga hans var loks borin undir atkvæði var Lee kallaður heim til Virginíu vegna alvarlegra veikinda í fjölskyldunni, en áður en hann hélt á braut lagði hann málstað sinn í hendur vinar síns, Thomasar Jeffersons, sem hét því að berjast þar til málið næði fram að ganga. Skömmu síðar skipaði forseti þingsins (Hancock) Jefferson formann nefndar sem átti að semja sjálfstæðisyfirlýsingu.

Nefndin vann langtímum saman og af miklu kappi að skjali sem myndi þýða, þegar þingið hefði samþykkt það, að HVER SÁ MAÐUR SEM UNDIRRITAÐI ÞAÐ VÆRI AÐ UNDIRRITA SINN EIGIN DAUÐADÓM ef nýlendurnar biðu lægri hlut í þeirri baráttu við Stóra-Bretland sem óhjákvæmilega myndi fylgja í kjölfarið.

Skjalið var samið og hinn 28. júní voru fyrstu drögin lesin upp fyrir þingið. Í nokkra daga var það rætt, því breytt og það fullgert. Hinn 4. júlí 1776 stóð Thomas Jefferson frammi fyrir þinginu og las óttalaust upp örlagaríkustu ÁKVÖRÐUN sem nokkru sinni hefur verið fest á blað.

„Þegar sú stund rennur upp í rás mannlegra viðburða að einni þjóð reynist nauðsynlegt að leysa þau stjórnmálabönd sem hafa tengt hana annarri, og taka sér meðal valda jarðar þá sjálfstæðu og jafnréttháu stöðu sem lögmál náttúrunnar og Guð náttúrunnar veita henni rétt til, krefst tilhlýðileg virðing fyrir áliti mannkyns þess að hún geri grein fyrir þeim ástæðum sem knýja hana til aðskilnaðarins ...“

Þegar Jefferson hafði lokið máli sínu var skjalið borið undir atkvæði, samþykkt og undirritað af fimmtíu og sex mönnum, og lagði hver og einn þeirra líf sitt að veði með þeirri ÁKVÖRÐUN að rita nafn sitt á blaðið. Með þeirri ÁKVÖRÐUN varð til þjóð sem átti það fyrir höndum að færa mannkyninu um alla framtíð þau forréttindi að fá að taka ÁKVARÐANIR.

Með ákvörðunum sem teknar eru í svipuðum anda trúar, og aðeins með slíkum ákvörðunum, geta menn leyst sín persónulegu vandamál og áunnið sér ríkuleg veraldleg og andleg gæði. Gleymum þessu ekki!

Greindu atburðina sem leiddu til sjálfstæðisyfirlýsingarinnar og sannfærstu um að þessi þjóð, sem nú nýtur óskoraðrar virðingar og valds meðal allra þjóða heims, varð til fyrir ÁKVÖRÐUN sem mótuð var af hugarbandalagi fimmtíu og sex manna. Taktu vel eftir þeirri staðreynd að það var ÁKVÖRÐUN þeirra sem tryggði sigur herja Washingtons, því að andi þeirrar ákvörðunar bjó í brjósti hvers einasta hermanns sem barðist með honum og virkaði sem andlegur kraftur sem viðurkennir ekkert sem heitir ÓSIGUR.

Taktu einnig eftir því (þér til mikils persónulegs ávinnings) að sá KRAFTUR sem færði þessari þjóð frelsi sitt er sami kraftur og hver sá einstaklingur verður að beita sem vill ráða eigin vegferð. Þessi KRAFTUR er samsettur úr þeim meginreglum sem lýst er í þessari bók. Það verður ekki erfitt að greina í sögunni af sjálfstæðisyfirlýsingunni að minnsta kosti sex af þessum meginreglum; það eru ÞRÁ, ÁKVÖRÐUN, TRÚ, ÞRAUTSEIGJA, HUGARBANDALAGIÐ og SKIPULÖGÐ ÁÆTLANAGERÐ.

Allt í gegnum þessa heimspeki er að finna þá ábendingu að hugsun, studd sterkri ÞRÁ, hafi tilhneigingu til að umbreyta sér í efnislegt jafngildi sitt. Áður en lengra er haldið vil ég skilja eftir hjá þér þá ábendingu að í þessari sögu, sem og í sögunni af stofnun United States Steel Corporation, megi finna fullkomna lýsingu á þeirri aðferð sem hugsunin notar til að framkalla þessa undraverðu umbreytingu.

Í leit þinni að leyndarmáli aðferðarinnar skaltu ekki leita að kraftaverki, því þú munt ekki finna það. Þú munt aðeins finna hin eilífu lögmál náttúrunnar. Þessi lögmál standa hverjum þeim til boða sem hefur TRÚ og HUGREKKI til að nota þau. Þeim má beita til að færa þjóð frelsi eða til að safna auðæfum. Fyrir þau er ekkert gjald tekið annað en sá tími sem þarf til að skilja þau og tileinka sér.

Þeir sem taka hverja ÁKVÖRÐUN fljótt og afdráttarlaust vita hvað þeir vilja og fá það yfirleitt. Leiðtogar á öllum sviðum mannlífsins ÁKVEÐA fljótt og af festu. Það er meginástæða þess að þeir eru leiðtogar. Heimurinn hefur þann vana að rýma til fyrir þeim manni sem sýnir í orðum og verki að hann veit hvert förinni er heitið.

ÁKVARÐANAFÆLNI er ávani sem hefst venjulega í æsku. Ávaninn festist í sessi þegar ungmennið gengur í gegnum grunnskóla, framhaldsskóla og jafnvel háskóla án SKÝRS TILGANGS. Helsti veikleiki allra menntakerfa er sá að þau hvorki kenna né hvetja til þess ávana að taka SKÝRA ÁKVÖRÐUN.

Það væri til bóta ef enginn háskóli leyfði innritun nokkurs nemanda nema og þar til nemandinn hefði gert grein fyrir megintilgangi sínum með náminu. Enn meiri bót væri þó í því ef hver einasti nemandi sem gengur í grunnskóla væri skyldaður til að hljóta þjálfun í þeim ÁVANA AÐ TAKA ÁKVÖRÐUN og látinn standast fullnægjandi próf í þeirri grein áður en honum væri leyft að færast upp um bekk.

Sá ávani ÁKVARÐANAFÆLNI sem nemandinn tileinkar sér vegna ágalla skólakerfis okkar fylgir honum út í það starf sem hann velur sér ... EF ... hann þá í raun og veru velur sér starf.

Yfirleitt leitar ungmennið sem er nýsloppið úr skóla að hvaða vinnu sem hugsast getur. Það tekur fyrsta starfið sem býðst vegna þess að það hefur vanist ÁKVARÐANAFÆLNI.

Níutíu og átta af hverjum hundrað launþegum nútímans eru í þeim störfum sem þeir gegna vegna þess að þá skorti SKÝRA ÁKVÖRÐUN til að GERA ÁÆTLUN UM ÁKVEÐIÐ STARF og þekkingu á því hvernig eigi að velja sér vinnuveitanda.

SKÝR ÁKVÖRÐUN krefst alltaf hugrekkis, stundum afar mikils hugrekkis. Mennirnir fimmtíu og sex sem undirrituðu sjálfstæðisyfirlýsinguna lögðu líf sitt að veði með þeirri ÁKVÖRÐUN að setja nafn sitt undir það skjal.

Sá sem tekur SKÝRA ÁKVÖRÐUN um að hreppa tiltekið starf og láta lífið greiða það verð sem hann setur upp leggur ekki líf sitt að veði með þeirri ákvörðun; hann leggur FJÁRHAGSLEGT FRELSI sitt að veði.

Fjárhagslegt sjálfstæði, auðæfi og eftirsóknarverðar stöður í viðskiptum og sérfræðistörfum eru ekki innan seilingar þess manns sem vanrækir eða neitar að VÆNTA, ÁÆTLA og KREFJAST þessara hluta. Sá sem þráir auðæfi í sama anda og Samuel Adams þráði frelsi handa nýlendunum mun vafalaust safna auði.

Í kaflanum „Skipulögð áætlanagerð“ finnur þú tæmandi leiðbeiningar um hvernig markaðssetja á hvers kyns persónulega þjónustu. Þar finnur þú einnig ítarlegar upplýsingar um hvernig þú getur valið þann vinnuveitanda sem þú helst vilt og það tiltekna starf sem þú þráir. Þessar leiðbeiningar munu ekki koma þér að neinu gagni NEMA ÞÚ TAKIR SKÝRA ÁKVÖRÐUN um að skipuleggja þær í framkvæmdaáætlun.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

8. kafli af 15 · 21 mín. eftirÁkvörðun