Inngangur
Hvað þráir þú mest?
Er það Peningar, Frægð, Völd, Ánægja, Persónuleiki, Hugarró, Hamingja?
Þau þrettán skref til auðæfa sem lýst er í þessari bók bjóða upp á stystu áreiðanlegu heimspeki um einstaklingsbundinn árangur sem nokkru sinni hefur verið lögð fram til heilla fyrir þann karl eða þá konu sem leitar að ákveðnu markmiði í lífinu.
Áður en þú byrjar á bókinni mun það verða þér til mikils gagns ef þú viðurkennir þá staðreynd að bókin var ekki skrifuð til skemmtunar. Þú getur ekki melt efni hennar sem skyldi á einni viku eða einum mánuði.
Eftir að hafa lesið bókina gaumgæfilega sagði dr. Miller Reese Hutchison, landsþekktur ráðgjafarverkfræðingur og samstarfsmaður Thomas A. Edison í mörg ár –
„Þetta er ekki skáldsaga. Þetta er kennslubók um einstaklingsbundinn árangur sem sprottin er beint af reynslu hundruða farsælustu manna Bandaríkjanna. Hún ætti að vera lesin til hlítar, melt og ígrunduð. Ekki ætti að lesa meira en einn kafla á einu kvöldi. Lesandinn ætti að strika undir þær setningar sem hafa mest áhrif á hann. Síðar ætti hann að hverfa aftur að þessum merktu línum og lesa þær á ný. Sannur nemandi mun ekki láta sér nægja að lesa þessa bók, heldur mun hann drekka í sig innihald hennar og gera það að sínu eigin. Þessa bók ætti að taka til kennslu í öllum framhaldsskólum og engum pilti né stúlku ætti að leyfast að útskrifast án þess að hafa staðist próf í henni með fullnægjandi hætti. Þessi heimspeki kemur ekki í stað þeirra námsgreina sem kenndar eru í skólum, en hún gerir manni kleift að skipuleggja og hagnýta þá þekkingu sem aflað hefur verið, og breyta henni í gagnlega þjónustu og fullnægjandi endurgjald án tímasóunar.“
Dr. John R. Turner, deildarforseti við Borgarháskólann í New York, sagði eftir að hafa lesið bókina –
„Allra besta dæmið um traustleika þessarar heimspeki er þinn eigin sonur, Blair, en áhrifamikla sögu hans hefur þú rakið í kaflanum um Þrá.“
Dr. Turner vísaði þarna til sonar höfundarins, sem fæddist án eðlilegrar heyrnargetu en komst ekki aðeins hjá því að verða heyrnarlaus og mállaus, heldur breytti fötlun sinni í raun í ómetanlegan styrk með því að beita þeirri heimspeki sem hér er lýst. Eftir að hafa lesið söguna (sem hefst á blaðsíðu 52) munt þú gera þér grein fyrir því að þú ert í þann mund að eignast heimspeki sem hægt er að ummynda í veraldleg auðæfi, eða nýta jafn auðveldlega til að færa þér hugarró, skilning, andlegt samlyndi, og í sumum tilvikum, líkt og í tilviki sonar höfundarins, getur hún hjálpað þér að sigrast á líkamlegu meini.
Höfundurinn uppgötvaði, með því að greina persónulega hundruð farsælla manna, að þeir höfðu allir þann sið að skiptast á hugmyndum á því sem almennt er kallað samráðsfundir. Þegar þeir höfðu vandamál sem þurfti að leysa settust þeir niður saman og ræddu málin frjálslega þar til þeir fundu, með sameiginlegu hugmyndaframlagi sínu, áætlun sem þjónaði tilgangi þeirra.
Þú, sem lest þessa bók, munt fá mest út úr henni með því að hrinda í framkvæmd meginreglunni um Hugarbandalagið sem lýst er í bókinni.
Þetta getur þú gert (líkt og aðrir gera með svo góðum árangri) með því að stofna leshring, skipaðan þeim fjölda fólks sem óskað er og sem er vinsamlegt og samlynt. Leshringurinn ætti að halda fundi með reglulegu millibili, svo ört sem einu sinni í viku.
Fyrirkomulagið ætti að vera þannig að lesinn sé einn kafli bókarinnar á hverjum fundi, og að því loknu ættu allir félagar að ræða efni kaflans frjálslega. Hver félagi ætti að skrifa hjá sér punkta og skrá niður ALLAR SÍNAR EIGIN HUGMYNDIR sem kvikna út frá umræðunum.
Hver félagi ætti að lesa og greina hvern kafla vandlega nokkrum dögum áður en hann er lesinn upphátt og tekinn til sameiginlegrar umræðu í leshringnum. Upplesturinn á fundinum ætti að vera í höndum einhvers sem les vel og kann að leggja lit og tilfinningu í línurnar.
Með því að fylgja þessari áætlun mun sérhver lesandi ekki aðeins fá af síðum bókarinnar samansafn bestu þekkingar sem skipulögð hefur verið upp úr reynslu hundruða farsælla manna, heldur, og það sem er langtum mikilvægara, mun hann virkja nýjar lindir þekkingar í eigin huga ásamt því að öðlast ómetanlega þekkingu FRÁ HVERJUM ÖÐRUM EINSTAKLINGI SEM VIÐSTADDUR ER.
Ef þú fylgir þessari áætlun af staðfestu er nánast víst að þú munir uppgötva og tileinka þér formúlu þess leyndarmáls sem Andrew Carnegie nýtti til að afla sér hinna gríðarlegu auðæfa sinna, eins og vísað er til í inngangi höfundarins.