← BækurHugsaðu og auðgastu

Fimmtándi kafli

Hvernig þú snýrð á sex drauga óttans

um 57 mín. lestur

Gerðu úttekt á sjálfum þér, um leið og þú lest þennan lokakafla, og komstu að því hversu margir af „draugunum“ standa í vegi þínum

ÁÐUR en þú getur hagnýtt þér nokkurn hluta þessarar lífsspeki með góðum árangri verður hugur þinn að vera í stakk búinn til að taka við henni. Undirbúningurinn er ekki erfiður. Hann hefst á rannsókn, greiningu og skilningi á þremur óvinum sem þú verður að ryðja úr vegi. Þeir eru ÁKVARÐANAFÆLNI, EFI og ÓTTI!

Sjötta skilningarvitið mun aldrei virka á meðan þessir þrír neikvæðu þættir, eða einhver þeirra, dvelja í huga þínum. Meðlimir þessa óheilaga þríeykis eru nátengdir; þar sem einn er að finna eru hinir tveir skammt undan.

ÁKVARÐANAFÆLNI er fræsproti ÓTTANS! Mundu þetta á meðan þú lest. Ákvarðanafælni kristallast í EFA, þetta tvennt rennur saman og verður að ÓTTA! Þetta „samrunaferli“ er oft hægfara. Það er ein ástæða þess hve hættulegir þessir þrír óvinir eru. Þeir spíra og vaxa án þess að nærveru þeirra verði vart.

Það sem eftir lifir þessa kafla lýsir marki sem verður að nást áður en hægt er að hagnýta sér lífsspekina í heild sinni. Þar er einnig greint ástand sem hefur, nú fyrir skemmstu, steypt gríðarlegum fjölda fólks í fátækt, og settur fram sannleikur sem allir þeir er safna auðæfum verða að skilja, hvort sem þau eru mæld í peningum eða í hugarástandi sem er margfalt verðmætara en peningar.

Tilgangur þessa kafla er að beina kastljósi athyglinnar að orsökum og lækningu óttanna sex. Áður en við getum sigrast á óvini verðum við að þekkja nafn hans, venjur hans og bústað. Greindu sjálfan þig vandlega á meðan þú lest og skerðu úr um hvaða ótti af þessum sex algengu, ef nokkur, hefur tekið sér bólfestu í þér.

Láttu ekki venjur þessara lævísu óvina blekkja þig. Stundum liggja þeir í leyni í undirmeðvitundinni þar sem erfitt er að hafa uppi á þeim og enn erfiðara að uppræta þá.

ÓTTARNIR SEX

Óttarnir sex eru þess eðlis að sérhver manneskja þjáist af einhverri samsetningu þeirra á einum eða öðrum tíma. Flestir geta talist heppnir ef þeir þjást ekki af þeim öllum sex. Nefndir í röð eftir því hversu algengir þeir eru, þá eru þeir: –

Óttinn við FÁTÆKT

Óttinn við GAGNRÝNI

Óttinn við VANHEILSU

undirrót flestra áhyggna mannsins

Óttinn við AÐ GLATA ÁST EINHVERS

Óttinn við ELLI

Óttinn við DAUÐANN

Allir aðrir óttar eru minni háttar; þá má flokka undir þessa sex liði.

Útbreiðsla þessara ótta, sem bölvun yfir heiminum, gengur í hringrásum. Í nærri sex ár, á meðan kreppan stóð yfir, velktumst við í hringrás ÓTTANS VIÐ FÁTÆKT. Á tímum heimsstyrjaldarinnar vorum við í hringrás ÓTTANS VIÐ DAUÐANN. Beint í kjölfar stríðsins vorum við í hringrás ÓTTANS VIÐ VANHEILSU, eins og berlega kom í ljós í farsóttinni sem breiddist út um allan heim.

Óttar eru ekkert annað en hugarástand. Hugarástandi sínu getur maðurinn stjórnað og beint í ákveðinn farveg. Eins og allir vita eru læknar síður berskjaldaðir fyrir sjúkdómum en venjulegir leikmenn, af þeirri ástæðu að læknar ÓTTAST EKKI SJÚKDÓMA. Vitað er til þess að læknar hafi, án ótta eða hiks, komist í líkamlega snertingu við hundruð manna daglega sem þjáðust af smitsjúkdómum á borð við bólusótt, án þess að smitast. Ónæmi þeirra gegn sjúkdómnum fólst að miklu leyti, ef ekki eingöngu, í því að þeir voru algjörlega lausir við ÓTTA.

Maðurinn getur ekkert skapað sem hann ekki fyrst getur í huga sér í formi hugsanaboða. Í kjölfar þessarar fullyrðingar kemur önnur sem er enn mikilvægari, nefnilega sú að HUGSANABOÐ MANNSINS BYRJA ÞEGAR Í STAÐ AÐ UMBREYTAST Í EFNISLEGT JAFNGILDI SITT, HVORT SEM ÞÆR HUGSANIR ERU SJÁLFVILJUGAR EÐA ÓSJÁLFRÁÐAR. Hugsanaboð sem numin eru úr ljósvakanum af hreinni tilviljun (hugsanir sem aðrir hugir hafa sent frá sér) geta ráðið fjárhagslegum, viðskiptalegum, faglegum eða félagslegum örlögum manns alveg jafn örugglega og þau hugsanaboð sem maður skapar af ásettu ráði og yfirlögðu.

Hér erum við að leggja grunninn að framsetningu staðreyndar sem skiptir gríðarlegu máli fyrir þann sem skilur ekki hvers vegna sumir virðast vera „heppnir“ á meðan öðrum, sem búa yfir jafnmiklum eða meiri hæfileikum, þjálfun, reynslu og heilagetu, virðist ætlað að búa við ógæfu. Þessa staðreynd má skýra með þeirri fullyrðingu að sérhver manneskja hafi getu til að stjórna eigin huga til fulls, og með þeirri stjórn getur hver og einn augljóslega opnað huga sinn fyrir þeim flækingshugsanaboðum sem aðrir heilar senda frá sér, eða lokað dyrunum kyrfilega og aðeins hleypt inn hugsanaboðum að eigin vali.

Náttúran hefur gætt manninn algjörri stjórn yfir einu og aðeins einu, og það er HUGSUNIN. Þessi staðreynd, ásamt þeirri staðreynd að allt sem maðurinn skapar hefst í formi hugsunar, leiðir mann mjög nærri því lögmáli sem gerir manni kleift að sigrast á ÓTTA.

Ef það er satt að ÖLL HUGSUN HAFI TILHNEIGINGU TIL AÐ KLÆÐAST EFNISLEGU JAFNGILDI SÍNU (og það er satt, svo ekki verður um villst), þá er það jafn satt að hugsanaboð ótta og fátæktar geta ekki umbreyst í hugrekki og fjárhagslegan ávinning.

Bandaríkjamenn tóku að hugsa um fátækt í kjölfar hrunsins á Wall Street árið 1929. Hægt en örugglega kristallaðist sú fjöldahugsun í efnislegu jafngildi sínu, sem gekk undir nafninu „kreppa“. Þetta hlaut að gerast, það er í samræmi við lögmál náttúrunnar.

ÓTTINN VIÐ FÁTÆKT

Engin málamiðlun getur átt sér stað milli FÁTÆKTAR og AUÐÆFA! Vegirnir tveir sem liggja til fátæktar og auðæfa liggja í gagnstæðar áttir. Ef þú vilt öðlast auðæfi verður þú að neita að sætta þig við nokkrar þær aðstæður sem leiða til fátæktar. (Orðið „auðæfi“ er hér notað í sinni víðustu merkingu og nær yfir fjárhagsleg, andleg, hugræn og efnisleg gæði). Upphafspunktur vegarins sem liggur til auðæfa er ÞRÁ. Í fyrsta kafla fékkstu ítarlegar leiðbeiningar um rétta beitingu ÞRÁRINNAR. Í þessum kafla, um ÓTTA, færðu heildstæðar leiðbeiningar um hvernig þú býrð huga þinn undir að hagnýta ÞRÁNA í verki.

Hér er því rétti staðurinn til að setja þér prófraun sem sker örugglega úr um hversu mikið af þessari lífsspeki þú hefur tileinkað þér. Hér er sá punktur þar sem þú getur gerst spámaður og sagt nákvæmlega fyrir um hvað framtíðin ber í skauti sér handa þér. Ef þú ert fús til að sætta þig við fátækt eftir lestur þessa kafla geturðu alveg eins ráðið það við þig að hljóta fátækt. Þetta er ein sú ákvörðun sem þú getur ekki komist hjá að taka.

Ef þú krefst auðæfa skaltu ákveða í hvaða formi þau eiga að vera og hversu mikið þarf til að fullnægja þér. Þú þekkir veginn sem liggur til auðæfa. Þér hefur verið fengið vegakort sem mun halda þér á þeim vegi ef þú fylgir því. Ef þú vanrækir að leggja af stað, eða nemur staðar áður en þú kemst á leiðarenda, verður engum um að kenna nema ÞÉR. Þessi ábyrgð er þín. Engin afsökun mun hlífa þér við því að axla þá ábyrgð ef þér mistekst nú eða þú neitar að krefjast auðæfa af lífinu, því sú krafa kallar aðeins á eitt – sem vill svo til að er það eina sem þú getur stjórnað – og það er HUGARÁSTAND. Hugarástand er eitthvað sem maður tileinkar sér. Það verður ekki keypt, það verður að skapa.

Óttinn við fátækt er hugarástand, ekkert annað! En hann nægir til að eyðileggja möguleika manns á árangri í hvaða framtaki sem er, og sá sannleikur varð sárlega ljós á kreppuárunum.

Þessi ótti lamar rökhugsunina, eyðileggur ímyndunaraflið, drepur niður sjálfsbjargarviðleitnina, grefur undan eldmóði, dregur úr frumkvæði, leiðir til óvissu um tilgang, ýtir undir frestunaráráttu, þurrkar út eldmóð og gerir sjálfsstjórn ómögulega. Hann sviptir persónuleikann töfrum sínum, eyðileggur möguleikann á nákvæmri hugsun, dreifir einbeitingunni, bugar þrautseigjuna, gerir viljastyrkinn að engu, brýtur niður metnað, skyggir á minnið og býður mistökum heim í öllum hugsanlegum myndum; hann drepur ástina og myrðir fegurstu tilfinningar hjartans, letur til vináttu og kallar yfir mann ógæfu í hundrað myndum, leiðir til svefnleysis, eymdar og óhamingju – og allt þetta þrátt fyrir þann augljósa sannleika að við lifum í heimi allsnægta þar sem ofgnótt er af öllu sem hjartað getur þráð, og ekkert stendur á milli okkar og þráa okkar nema skortur á skýrum tilgangi.

Óttinn við fátækt er án efa sá eyðileggingarmesti sem óttarnir sex hafa að geyma. Hann hefur verið settur efst á listann vegna þess að erfiðast er að sigrast á honum. Talsvert hugrekki þarf til að segja sannleikann um uppruna þessa ótta, og enn meira hugrekki til að viðurkenna sannleikann eftir að hann hefur verið sagður. Óttinn við fátækt spratt af þeirri arfgengu tilhneigingu mannsins að GERA NÁUNGA SINN AÐ BRÁÐ SINNI EFNAHAGSLEGA. Nær öll dýr sem standa neðar manninum stjórnast af eðlisávísun, en geta þeirra til að „hugsa“ er takmörkuð og þess vegna gera þau hvert annað að bráð sinni líkamlega. Maðurinn, með sitt yfirburða innsæi og getu sína til að hugsa og álykta, étur ekki náunga sinn holdlega, heldur fær hann meiri fullnægju út úr því að „éta“ hann FJÁRHAGSLEGA. Maðurinn er svo ágjarn að öll hugsanleg lög hafa verið sett til að vernda hann fyrir náunga sínum.

Af öllum öldum veraldarinnar sem við höfum einhverja vitneskju um virðist sú öld sem við lifum á skera sig úr vegna peningabrjálæðis mannsins. Maður er talinn minna virði en duft jarðarinnar nema hann geti státað af digrum bankareikningi; en ef hann á peninga – SAMA HVERNIG HANN KOMST YFIR ÞÁ – þá er hann „konungur“ eða „stórlax“; hann er hafinn yfir lögin, hann ræður lögum og lofum í stjórnmálum, hann drottnar í viðskiptalífinu og allur heimurinn í kringum hann hneigir sig í virðingarskyni þegar hann á leið hjá.

Ekkert færir manninum jafnmikla þjáningu og auðmýkingu og FÁTÆKT! Aðeins þeir sem hafa reynt fátækt á eigin skinni skilja fulla merkingu þessa.

Það er engin furða að maðurinn óttist fátækt. Af langri röð arfgengrar reynslu hefur maðurinn lært, svo ekki verður um villst, að sumum mönnum er ekki treystandi þegar peningamál og jarðneskar eigur eiga í hlut. Þetta er nokkuð beitt ákæra, og það versta við hana er að hún er SÖNN.

Meirihluti hjónabanda kemst á vegna auðæfanna sem annar eða báðir aðilar eiga. Það er því engin furða að nóg sé að gera við skilnaðardómstólana.

Svo ákafur er maðurinn í að eignast auð að hann aflar hans með hvaða hætti sem hann getur – með löglegum aðferðum ef mögulegt er – en með öðrum aðferðum ef nauðsyn krefur eða það þykir henta.

Sjálfsgreining getur leitt í ljós veikleika sem manni er lítt gefið um að viðurkenna. Þessi tegund rannsóknar er nauðsynleg öllum sem krefjast meira af lífinu en meðalmennsku og fátæktar. Mundu, þegar þú ferð yfir eigin stöðu lið fyrir lið, að þú ert bæði dómstóllinn og kviðdómurinn, sækjandinn og verjandinn, og að þú ert bæði stefnandi og stefndi, og jafnframt að þú ert fyrir rétti. Horfðu beint framan í staðreyndirnar. Spyrðu sjálfan þig skýrra spurninga og krefstu hreinskilinna svara. Þegar rannsókninni er lokið muntu vita meira um sjálfan þig. Ef þú treystir þér ekki til að vera óhlutdrægur dómari í þessari sjálfsrannsókn skaltu fá einhvern sem þekkir þig vel til að vera dómari á meðan þú yfirheyrir sjálfan þig. Þú ert í leit að sannleikanum. Náðu í hann, hvað sem það kostar, jafnvel þótt hann kunni að koma þér í vandræðalega stöðu um stundarsakir!

Ef fólk væri spurt hvað það óttaðist mest myndi meirihlutinn svara: „Ég óttast ekkert.“ Svarið væri ónákvæmt, því fáir gera sér grein fyrir því að þeir eru bundnir, hamlaðir og hýddir andlega og líkamlega af einhvers konar ótta. Svo lævís og djúpstæð er óttatilfinningin að maður getur gengið í gegnum lífið klyfjaður henni án þess að verða nokkru sinni var við nærveru hennar. Aðeins hugrökk greining getur leitt í ljós nærveru þessa almenna óvinar. Þegar þú hefst handa við slíka greiningu skaltu skyggnast djúpt í skaphöfn þína. Hér er listi yfir þau einkenni sem þú ættir að leita að:

EINKENNI ÓTTANS VIÐ FÁTÆKT

SINNULEYSI.

Birtist venjulega í metnaðarleysi; fúsleika til að umbera fátækt; því að sætta sig möglunarlaust við hvaða umbun sem lífið kann að bjóða; andlegri og líkamlegri leti; skorti á frumkvæði, ímyndunarafli, eldmóði og sjálfsstjórn

ÁKVARÐANAFÆLNI.

Sá ávani að leyfa öðrum að hugsa fyrir sig. Að sitja „á girðingunni“.

EFI.

Kemur yfirleitt fram í afsökunum og fyrirsláttum sem ætlað er að breiða yfir, skýra burt eða biðjast velvirðingar á eigin mistökum, og birtist stundum í formi öfundar út í þá sem ná árangri, eða með því að gagnrýna þá.

ÁHYGGJUR.

Koma venjulega fram í aðfinnslum við aðra, tilhneigingu til að eyða um efni fram, hirðuleysi um eigið útlit, brúnaþunga og grettum; óhófi í áfengisneyslu og stundum neyslu fíkniefna; taugaóstyrk, skorti á yfirvegun, óöryggi í framkomu og skorti á sjálfsbjargarviðleitni.

OFURVARKÁRNI.

Sá ávani að leita að neikvæðu hliðinni á hverju máli, hugsa og tala um mögulegan ósigur í stað þess að einbeita sér að leiðum til að ná árangri. Að þekkja allar leiðir til glötunar en leita aldrei að áætlunum til að forðast mistök. Að bíða eftir „rétta tímanum“ til að hrinda hugmyndum og áætlunum í framkvæmd, þar til biðin er orðin að varanlegum ávana. Að muna eftir þeim sem hefur mistekist en gleyma þeim sem hafa náð árangri. Að sjá gatið á kleinuhringnum en sjá ekki kleinuhringinn sjálfan. Svartsýni sem leiðir til meltingartruflana, hægðatregðu, sjálfseitrunar, andfýlu og illrar lundar.

FRESTUNARÁRÁTTA.

Sá ávani að fresta til morguns því sem hefði átt að gera í fyrra. Að eyða nægum tíma í að búa til afsakanir og fyrirslátt til að hægt hefði verið að vinna verkið. Þetta einkenni er nátengt ofurvarkárni, efa og áhyggjum. Neitun á að axla ábyrgð þegar hægt er að komast hjá því. Fúsleiki til málamiðlana frekar en að veita harða mótspyrnu. Að sættast við erfiðleika í stað þess að virkja þá og nota sem stökkpall til framfara. Að prútta við lífið um smáaura í stað þess að krefjast velsældar, allsnægta, auðæfa, lífsfyllingar og hamingju. Að leggja á ráðin um hvað skuli gera EF OG ÞEGAR MISTÖK DYNJA YFIR, Í STAÐ ÞESS AÐ BRENNA ALLAR BRÝR AÐ BAKI SÉR OG GERA UNDANHALD ÓMÖGULEGT. Veikleiki í, og oft algjör skortur á, sjálfstrausti, skýrum tilgangi, sjálfsstjórn, frumkvæði, eldmóði, metnaði, ráðdeild og heilbrigðri rökhugsun. AÐ BÚAST VIÐ FÁTÆKT Í STAÐ ÞESS AÐ KREFJAST AUÐÆFA. Samneyti við þá sem sætta sig við fátækt í stað þess að leita félagsskapar þeirra sem krefjast auðæfa og hljóta þau.

PENINGAR TALA SÍNU MÁLI!

Sumir munu spyrja: „Hvers vegna skrifaðir þú bók um peninga? Hvers vegna að mæla auðæfi í dollurum einum saman?“ Sumir munu telja, og það með réttu, að til séu annars konar auðæfi sem eru eftirsóknarverðari en peningar. Já, vissulega eru til auðæfi sem ekki verða mæld í dollurum, en það eru milljónir manna sem munu segja: „Gefðu mér alla þá peninga sem ég þarf, og ég mun finna allt annað sem ég þrái.“

Helsta ástæða þess að ég skrifaði þessa bók um hvernig afla megi peninga er sú staðreynd að heimurinn hefur nýverið gengið í gegnum reynslu sem skildi milljónir karla og kvenna eftir lamaðar af ÓTTANUM VIÐ FÁTÆKT. Hvað slíkur ótti gerir manneskjunni var vel lýst af Westbrook Pegler í blaðinu New York World-Telegram, á þessa leið:

„Peningar eru ekki annað en skeljar, málmskífur eða pappírssnifsi, og til eru fjársjóðir hjarta og sálar sem ekki verða keyptir fyrir peninga, en flestir sem eru blankir geta ekki haft þetta hugfast og haldið móðnum. Þegar maður er kominn á vonarvöl og stendur á götunni, ófær um að fá nokkra einustu vinnu, gerist eitthvað innra með honum sem sést á því hvernig axlirnar síga, hvernig hatturinn situr, á göngulagi hans og augnaráði. Hann kemst ekki hjá minnimáttarkennd innan um fólk í fastri vinnu, jafnvel þótt hann viti að það standi honum alls ekki á sporði hvað varðar skapgerð, greind eða hæfileika.

„Þetta fólk – jafnvel vinir hans – finnur hins vegar til yfirburða og lítur á hann, ef til vill ómeðvitað, sem fórnarlamb sem fallið hefur í valinn. Hann getur slegið lán um tíma, en ekki nóg til að lifa á þann hátt sem hann á að venjast, og hann getur ekki haldið áfram að fá lánað mjög lengi. En lántakan sjálf, þegar maður fær lánað eingöngu til að draga fram lífið, er niðurdrepandi reynsla, og það fé hefur ekki þann mátt sem aflafé hefur til að blása honum nýjum móði í brjóst. Auðvitað á ekkert af þessu við um flækinga eða vanabundna ónytjunga, heldur aðeins um menn með eðlilegan metnað og sjálfsvirðingu.

„KONUR LEYNA ÖRVÆNTINGU SINNI.

„Konum í sömu sporum hlýtur að vera öðruvísi farið. Einhvern veginn hugsum við alls ekki til kvenna þegar við leiðum hugann að þeim sem eru komnir á vonarvöl. Þær sjást sjaldan í biðröðum eftir matargjöfum, þær sjást sjaldan betla á götum úti og þær þekkjast ekki í mannfjöldanum á sömu augljósu einkennunum og einkenna blanka karlmenn. Auðvitað á ég ekki við gömlu tötrakonurnar sem dragnast um borgargöturnar og eru hliðstæða hinna forhertu karlflækinga. Ég á við tiltölulega ungar, sómakærar og greindar konur. Það hlýtur að vera fjöldi þeirra, en örvænting þeirra er ekki sýnileg. Kannski svipta þær sig lífi.

„Þegar maður er kominn á vonarvöl hefur hann nægan tíma til að liggja í þungum þönkum. Hann ferðast kannski langar leiðir til að hitta mann út af vinnu en kemst þá að því að búið er að ráða í starfið, eða að þetta er eitt af þessum störfum án grunnlauna þar sem aðeins eru greidd sölulaun fyrir eitthvert gagnslaust glingur sem enginn myndi kaupa nema af vorkunnsemi. Þegar hann hafnar því stendur hann aftur úti á götu og hefur engan stað til að fara á nema bara eitthvað út í buskann. Hann gengur því og gengur. Hann horfir í búðarglugga á munaðarvörur sem eru ekki fyrir hann, finnur til vanmáttar og víkur fyrir fólki sem nemur staðar til að skoða af raunverulegum áhuga. Hann reikar inn á járnbrautarstöðina eða tyllir sér niður á bókasafninu til að hvíla lappirnar og fá í sig smá yl, en það er engin atvinnuleit, svo hann heldur af stað á ný. Hann veit það kannski ekki, en stefnuleysið myndi koma upp um hann jafnvel þótt líkamsburðurinn sjálfur gerði það ekki. Hann getur verið vel til fara í fötunum sem hann á enn frá þeim dögum þegar hann var í fastri vinnu, en fötin geta ekki dulið hvað hann er lotinn.

„PENINGAR GERA GÆFUMUNINN.

„Hann sér þúsundir annarra manna, bókara, afgreiðslumenn, efnafræðinga eða ekla, önnum kafna við störf sín og öfundar þá af öllu hjarta. Þeir hafa sjálfstæði sitt, sjálfsvirðingu og karlmennsku, og hann getur einfaldlega ekki sannfært sjálfan sig um að hann sé líka nýtur maður, þótt hann rökræði það við sjálfan sig og komist að hagstæðri niðurstöðu klukkustund eftir klukkustund.

„Það eru aðeins peningar sem valda þessum mun á honum. Með dálitla peninga milli handanna yrði hann samur við sig á ný.

„Sumir vinnuveitendur níðast með hreinum ódæmum á fólki sem er komið á vonarvöl. Vinnumiðlanirnar hengja út lítil, lituð spjöld þar sem blönkum mönnum eru boðin smánarlaun – tólf dollarar á viku, fimmtán dollarar á viku. Átján dollara vikulaun þykja hvalreki, og hver sá sem hefur tuttugu og fimm dollara á viku fram að bjóða hengir slíkt starf ekki út á lituðu spjaldi fyrir framan vinnumiðlun. Ég er með smáauglýsingu sem ég klippti út úr bæjarblaði þar sem óskað er eftir skrifstofumanni, góðum og snyrtilegum skrifara, til að taka við símapöntunum fyrir samlokustað frá klukkan ellefu fyrir hádegi til tvö eftir hádegi fyrir átta dollara á mánuði – ekki átta dollara á viku heldur átta dollara á mánuði. Í auglýsingunni stendur einnig: ,Takið fram trúfélag.‘ Getið þið ímyndað ykkur þá hrottalegu ósvífni að krefjast góðs og snyrtilegs skrifara fyrir ellefu sent á tímann og hnýsast í þokkabót í trúarskoðanir fórnarlambsins? En þetta er það sem blönku fólki stendur til boða.“

ÓTTINN VIÐ GAGNRÝNI

Hvernig maðurinn komst upphaflega yfir þennan ótta getur enginn sagt með vissu, en eitt er víst – hann býr yfir honum á háþróuðu stigi. Sumir telja að þessi ótti hafi fyrst gert vart við sig um það leyti sem stjórnmál urðu að „atvinnugrein“. Aðrir telja að rekja megi hann til þess tíma þegar konur fóru fyrst að velta fyrir sér „tísku“ í klæðaburði.

Þar sem höfundur þessarar bókar er hvorki gamanmálamaður né spámaður, hallast hann að því að rekja hinn djúpstæða ótta við gagnrýni til þess þáttar í arfgengu eðli mannsins sem knýr hann ekki aðeins til að hirða eigur og varning náungans, heldur einnig til að réttlæta gjörðir sínar með GAGNRÝNI á skapgerð hans. Það er alkunn staðreynd að þjófur gagnrýnir þann sem hann stelur frá – og að stjórnmálamenn sækjast eftir embættum, ekki með því að tefla fram eigin kostum og hæfni, heldur með því að reyna að ata andstæðinga sína auri.

Óttinn við gagnrýni birtist í mörgum myndum og eru flestar þeirra smásálarlegar og ómerkilegar. Sköllóttir karlmenn eru til dæmis sköllóttir af engri annarri ástæðu en ótta sínum við gagnrýni. Menn fá skalla vegna þröngra hattbanda sem loka fyrir blóðrásina til hárrótanna. Karlmenn ganga með hatta, ekki vegna þess að þeir þurfi í raun á þeim að halda, heldur fyrst og fremst vegna þess að „allir gera það“. Einstaklingurinn gengur í takt við hina og gerir slíkt hið sama, af ótta við að einhver annar GAGNRÝNI hann. Konur verða sjaldan sköllóttar, eða jafnvel þunnhærðar, vegna þess að þær bera hatta sem sitja laust á höfðinu og hafa þann eina tilgang að vera til skrauts.

En það má ekki ætla að konur séu lausar við óttann við gagnrýni. Ef einhver kona heldur því fram að hún standi karlmanninum framar hvað þennan ótta varðar skaltu biðja hana að ganga niður götuna með hatt frá árinu 1890.

Glöggir fataframleiðendur hafa ekki verið seinir á sér að færa sér í nyt þennan grundvallarótta við gagnrýni sem allt mannkyn er hrjáð af. Á hverri árstíð breytist tískan í mörgum tegundum fatnaðar. Hver ákveður tískuna? Vissulega ekki kaupandi fatanna, heldur framleiðandinn. Hvers vegna breytir hann tískunni svona oft? Svarið liggur í augum uppi. Hann breytir tískunni til þess að geta selt meira af fötum.

Af sömu ástæðu breyta bílaframleiðendur (með fáeinum sjaldgæfum og afar skynsamlegum undantekningum) útliti bílgerða á hverju ári. Enginn vill aka bíl sem er ekki af nýjustu gerð, þótt eldri gerðin geti í raun og veru verið betri bíll.

Við höfum verið að lýsa því hvernig fólk hegðar sér undir áhrifum óttans við gagnrýni þegar kemur að smávægilegum og ómerkilegum hlutum lífsins. Við skulum nú kanna mannlega hegðun þegar þessi ótti hefur áhrif á fólk í tengslum við mikilvægari þætti í mannlegum samskiptum. Tökum sem dæmi nánast hvaða manneskju sem er sem náð hefur „andlegum þroskaaldri“ (frá þrjátíu og fimm til fjörutíu ára að jafnaði), og ef þú gætir lesið þær hugsanir sem hún geymir sem leyndarmál í huga sínum, myndir þú finna mjög eindregna vantrú á flestum þeim skröksögum sem meirihluti kreddufullra kennimanna og guðfræðinga kenndi fyrir fáeinum áratugum.

Þú munt þó ekki oft finna manneskju sem hefur hugrekki til að lýsa skoðun sinni á þessu máli opinberlega. Ef nógu hart er gengið að fólki munu flestir frekar segja ósatt en að viðurkenna að þeir trúi ekki sögunum sem tengjast þeirri tegund trúarbragða sem hélt fólki í ánauð fyrir daga vísindalegra uppgötvana og menntunar.

Hvers vegna veigrar meðalmaðurinn sér við því, jafnvel á okkar upplýstu tímum, að afneita trú sinni á skröksögurnar sem voru grundvöllur flestra trúarbragða fyrir fáeinum áratugum? Svarið er: „Vegna óttans við gagnrýni.“ Karlar og konur hafa verið brennd á báli fyrir að voga sér að lýsa yfir vantrú á draugum. Það er engin furða að við höfum erft vitund sem fær okkur til að óttast gagnrýni. Sú var tíðin, og ekki svo langt síðan, að gagnrýni hafði í för með sér þungar refsingar – og svo er enn í sumum löndum.

Óttinn við gagnrýni rænir manninn frumkvæði hans, eyðileggur ímyndunaraflið, takmarkar sérkenni hans, sviptir hann sjálfsbjargarviðleitni og veldur honum tjóni á hundrað aðra vegu. Foreldrar vinna börnum sínum oft óbætanlegt tjón með því að gagnrýna þau. Móðir eins æskuvinar míns var vön að refsa honum með vendi nánast daglega og lauk verkinu ævinlega með orðunum: „Þú endar í tukthúsinu áður en þú verður tvítugur.“ Hann var sendur á betrunarhæli sautján ára gamall.

Gagnrýni er sú eina þjónusta sem allir eiga yfirdrifið nóg af. Allir liggja með birgðir af henni sem útbýtt er ókeypis, hvort sem eftir henni er leitað eða ekki. Nánustu ættingjar manns eru oft verstu sökudólgarnir. Það ætti að teljast glæpur (og í raun er það glæpur af verstu gerð) þegar foreldri vekur minnimáttarkennd í huga barns með óþarfri gagnrýni. Vinnuveitendur sem skilja mannlegt eðli laða fram það besta í fólki, ekki með gagnrýni, heldur með uppbyggilegum ábendingum. Foreldrar geta náð sama árangri með börn sín. Gagnrýni sáir ÓTTA í mannshjartað, eða þá gremju, en hún byggir hvorki upp ást né væntumþykju.

EINKENNI ÓTTANS VIÐ GAGNRÝNI

Þessi ótti er nánast jafn almennur og óttinn við fátækt, og áhrif hans eru alveg jafn banvæn fyrir persónulegan árangur, einkum vegna þess að hann brýtur niður frumkvæði og dregur úr notkun ímyndunaraflsins. Helstu einkenni þessa ótta eru:

ÓÖRYGGI Í FRAMKOMU.

Kemur almennt fram í taugaóstyrk, feimni í samræðum og þegar ókunnugum er mætt, klunnalegum hreyfingum handa og útlima og flöktandi augnaráði.

SKORTUR Á YFIRVEGUN.

Kemur fram í skorti á raddstjórn, taugaóstyrk í návist annarra, slæmri líkamsstöðu og lélegu minni.

PERSÓNULEIKI.

Skortur á festu í ákvörðunum, persónutöfrum og hæfni til að tjá skoðanir sínar afdráttarlaust. Sá ávani að víkja sér undan vandamálum í stað þess að horfast beint í augu við þau. Að taka undir með öðrum án þess að íhuga skoðanir þeirra vandlega.

MINNIMÁTTARKENND.

Sá ávani að hampa sjálfum sér í orði og verki til þess að breiða yfir minnimáttarkennd. Að nota „stór orð“ til að ganga í augun á öðrum (oft án þess að þekkja raunverulega merkingu orðanna). Að herma eftir öðrum í klæðaburði, tali og framkomu. Að gorta af ímynduðum afrekum. Þetta getur stundum litið út á yfirborðinu sem yfirlæti eða yfirburðakennd.

EYÐSLUSEMI.

Sá ávani að reyna að „vera ekki eftirbátur nágrannans“ og eyða um efni fram.

FRUMKVÆÐISSKORTUR.

Vanræksla á að grípa tækifæri til að koma sér áfram, ótti við að láta skoðanir sínar í ljós, vantrú á eigin hugmyndum, undanbrögð í svörum við spurningum yfirmanna, hik í framkomu og tali, undirferli í bæði orði og verki.

METNAÐARLEYSI.

Andleg og líkamleg leti, skortur á því að halda sínu fram, seinagangur við að taka ákvörðun, það að láta aðra auðveldlega hafa áhrif á sig, sá ávani að gagnrýna aðra að baki þeim en smjaðra fyrir þeim í opið geðið, sá ávani að sætta sig við ósigur möglunarlaust, að gefast upp á verki þegar aðrir leggjast gegn því, tilefnislaus tortryggni í garð annarra, skortur á háttvísi í framkomu og tali, tregða til að taka á sig sökina fyrir mistök.

ÓTTINN VIÐ VANHEILSU

Þennan ótta má rekja til bæði líffræðilegra og félagslegra erfða. Hvað uppruna varðar tengist hann náið orsökum óttans við elli og óttans við dauðann, því að hann leiðir manninn alveg út að landamærum „hræðilegra heima“ sem hann þekkir ekki, en hefur þó fengið að heyra ýmsar óhugnanlegar sögur af. Einnig er sú skoðun nokkuð almenn að tilteknir óvandaðir menn, sem hafa það að atvinnu að „selja heilsu“, hafi átt drjúgan þátt í að halda óttanum við vanheilsu lifandi.

Aðallega óttast maðurinn vanheilsu vegna hinna skelfilegu mynda sem gróðursettar hafa verið í huga hans af því sem kunni að gerast ef dauðinn skyldi hremma hann. Hann óttast hana einnig vegna þess fjárhagslega tolls sem hún kann að krefjast.

Virtur læknir áætlaði að 75% allra þeirra sem leita til lækna eftir faglegri þjónustu þjáist af ímyndunarveiki (ímynduðum veikindum). Sýnt hefur verið fram á það með afar sannfærandi hætti að óttinn við sjúkdóm, jafnvel þar sem ekki er hið minnsta tilefni til að óttast, kallar oft fram líkamleg einkenni þess sjúkdóms sem óttast er.

Öflugur og máttugur er mannshugurinn! Hann byggir upp eða hann tortímir.

Seljendur einkaleyfislyfja hafa rakað saman auðæfum með því að spila á þennan algenga veikleika, óttann við vanheilsu. Þessi blekking á auðtrúa mannfólki varð svo útbreidd fyrir um tuttugu árum að Colliers’ Weekly Magazine hélt uppi harðri herferð gegn nokkrum af verstu brotamönnunum í sölu einkaleyfislyfja.

Í „flensufaraldrinum“ sem braust út í heimsstyrjöldinni greip borgarstjórinn í New York til róttækra aðgerða til að stemma stigu við þeim skaða sem fólk var að vinna sjálfu sér vegna síns meðfædda ótta við vanheilsu. Hann kallaði blaðamennina á sinn fund og sagði við þá: „Herrar mínir, ég tel nauðsynlegt að biðja ykkur um að birta engar hræðslufyrirsagnir um ‚flensufaraldurinn‘. Ef þið vinnið ekki með mér mun skapast ástand sem við ráðum ekki við.“ Dagblöðin hættu að birta fréttir af „flensunni“ og innan mánaðar hafði tekist að hemja faraldurinn.

Með röð tilrauna sem gerðar voru fyrir nokkrum árum var sannað að gera má fólk veikt með sefjun. Við framkvæmdum þessa tilraun þannig að við fengum þrjá kunningja til að heimsækja „fórnarlömbin“ og spurði hver þeirra sömu spurningar: „Hvað amar að þér? Þú lítur hræðilega illa út.“ Fyrsti spyrjandinn kallaði venjulega fram glott og kæruleysislegt „Æ, ekkert, ég er í fínu lagi“ hjá fórnarlambinu. Öðrum spyrjandanum var jafnan svarað með orðunum: „Ég veit það ekki alveg, en mér líður vissulega illa.“ Þriðji spyrjandinn mætti svo venjulega hreinskilnislegri játningu um að fórnarlambinu liði í raun og veru illa.

Prófaðu þetta á kunningja ef þú efast um að það muni gera honum órótt, en gakktu þó ekki of langt í tilrauninni. Til er ákveðinn trúarsöfnuður þar sem safnaðarmeðlimir hefna sín á óvinum sínum með „galdraaðferðinni“. Þeir kalla það að „leggja álög“ á fórnarlambið.

Ótvíræðar sannanir liggja fyrir því að sjúkdómar hefjist stundum í formi neikvæðra hugsanaboða. Slík boð geta borist frá einum huga til annars með sefjun, eða orðið til í eigin huga einstaklingsins.

Maður nokkur, sem gæddur var meiri visku en þetta atvik gæti gefið til kynna, sagði eitt sinn: „Þegar einhver spyr mig hvernig mér líði langar mig alltaf til að svara með því að slá hann í gólfið.“

Læknar senda sjúklinga í nýtt loftslag heilsunnar vegna, af því að breytt „hugarfar“ er nauðsynlegt. Fræ óttans við vanheilsu býr í hverjum mannshuga. Áhyggjur, ótti, kjarkleysi, vonbrigði í ástum og viðskiptum verða til þess að þetta fræ spírar og vex. Nýafstaðin viðskiptakreppa hélt læknum á þönum, því að hvers kyns neikvæð hugsun getur valdið vanheilsu.

Vonbrigði í viðskiptum og ástum tróna efst á lista yfir orsakir óttans við vanheilsu. Ungur maður varð fyrir ástarsorg sem kom honum á sjúkrahús. Mánuðum saman sveif hann milli heims og helju. Sérfræðingur í sefjunarlækningum var kallaður til. Sérfræðingurinn skipti um hjúkrunarkonu og setti hann í umsjá afar hrífandi ungrar konu sem tók þegar á fyrsta starfsdegi (samkvæmt fyrirmælum læknisins) að gera hosur sínar grænar fyrir honum. Innan þriggja vikna var sjúklingurinn útskrifaður af sjúkrahúsinu, enn þjáður, en þó af allt öðrum kvilla. HANN VAR ÁSTFANGINN Á NÝ. Lækningin var blekkingarleikur, en sjúklingurinn og hjúkrunarkonan gengu síðar í hjónaband. Bæði eru við góða heilsu þegar þetta er ritað.

EINKENNI ÓTTANS VIÐ VANHEILSU

Einkenni þessa nánast almenna ótta eru:

SJÁLFSEFJUN.

Sá ávani að beita sjálfsefjun á neikvæðan hátt með því að leita að og búast við að finna einkenni allra handa sjúkdóma. Að „njóta“ ímyndaðra veikinda og tala um þau sem raunveruleg. Sá ávani að prófa allar „tískubólur“ og „stefnur“ sem aðrir mæla með og telja hafa lækningagildi. Að tala við aðra um skurðaðgerðir, slys og annars konar veikindi. Að gera tilraunir með mataræði, líkamsæfingar og megrunaraðferðir án faglegrar leiðsagnar. Að prófa húsráð, einkaleyfislyf og „skottulækningar“.

ÍMYNDUNARVEIKI.

Sá ávani að tala um veikindi, einblína í huganum á sjúkdóma og vænta þess að þeir geri vart við sig þar til taugaáfall brestur á. Ekkert sem kemur í flöskum getur læknað þetta ástand. Það er kallað fram með neikvæðri hugsun og ekkert nema jákvæð hugsun getur veitt lækningu. Ímyndunarveiki (læknisfræðilegt heiti yfir ímyndaðan sjúkdóm) er stundum sögð valda jafnmiklum skaða og sjúkdómurinn sem maður óttast gæti gert. Flest svokölluð tilfelli af „taugaveiklun“ stafa af ímynduðum veikindum.

LÍKAMSHREYFING.

Óttinn við vanheilsu kemur oft í veg fyrir hæfilega líkamshreyfingu og leiðir til ofþyngdar með því að fá fólk til að forðast útiveru.

NÆMNI.

Óttinn við vanheilsu brýtur niður náttúrulegt mótstöðuafl líkamans og skapar hagstæð skilyrði fyrir hvers kyns sjúkdóma sem maður kann að komast í tæri við.

Óttinn við vanheilsu tengist oft óttanum við fátækt, einkum hjá hinum ímyndunarveika, sem hefur sífelldar áhyggjur af þeim möguleika að þurfa að greiða læknisreikninga, sjúkrahúsreikninga o.s.frv. Slík manneskja ver miklum tíma í að búa sig undir veikindi, tala um dauðann, leggja fyrir til kaupa á legstað og fyrir útfararkostnaði o.s.frv.

SJÁLFSDEKUR.

Sá ávani að sækjast eftir samúð og nota ímynduð veikindi sem tálbeitu. (Fólk grípur oft til þessa bragðs til að komast hjá vinnu). Sá ávani að gera sér upp veikindi til að breiða yfir hreina leti eða sem afsökun fyrir metnaðarleysi.

ÓHÓFSEMI.

Sá ávani að nota áfengi eða deyfilyf til að deyfa sársauka á borð við höfuðverk, taugagigt o.s.frv., í stað þess að útrýma orsökinni.

Sá ávani að lesa um veikindi og hafa áhyggjur af þeim möguleika að verða þeim að bráð. Sá ávani að lesa auglýsingar um einkaleyfislyf.

ÓTTINN VIÐ AÐ GLATA ÁST

Upprunaleg rót þessa meðfædda ótta þarfnast lítillar skýringar, því að hann spratt augljóslega af þeim fjölkvænissið mannsins að ræna maka náungans og þeim ávana hans að ganga á lagið við hana hvenær sem hann gat.

Afbrýðisemi og önnur svipuð afbrigði geðklofa (dementia praecox) spretta af arfgengum ótta mannsins við að glata ást einhvers. Þessi ótti er sá sársaukafyllsti sem óttarnir sex hafa að geyma. Hann veldur líklega meiri usla á líkama og sál en nokkur hinna grunnóttanna, þar sem hann leiðir oft til varanlegrar geðveiki.

Óttinn við að glata ást á líklega rætur að rekja allt aftur til steinaldar, þegar karlar rændu konum með hreinu ofbeldi. Þeir halda áfram að ræna konum, en aðferðin hefur breyst. Í stað valdbeitingar nota þeir nú fortölur, loforð um falleg föt, bifreiðar og aðra „tálbeitu“ sem er mun áhrifaríkari en líkamlegt ofbeldi. Ávanar mannsins eru þeir sömu og þeir voru í árdaga siðmenningarinnar, en hann tjáir þá með öðrum hætti.

Vandleg greining hefur leitt í ljós að konur eru næmari fyrir þessum ótta en karlar. Þessa staðreynd er auðvelt að skýra. Konur hafa lært það af reynslunni að karlar eru fjöllyndir að eðlisfari og að þeim er ekki treystandi í höndum keppinauta.

EINKENNI ÓTTANS VIÐ AÐ GLATA ÁST

Helstu einkenni þessa ótta eru:

AFBRÝÐISEMI.

Sá ávani að tortryggja vini og ástvini án nokkurra skynsamlegra raka eða nægilegs tilefnis. (Afbrýðisemi er afbrigði af geðklofa sem verður stundum ofsafenginn án minnsta tilefnis). Sá ávani að saka eiginkonu eða eiginmann um ótryggð að ósekju. Almenn tortryggni í garð allra, fullkomin trú á engum.

AÐFINNSLUSEMI.

Sá ávani að finna að hjá vinum, ættingjum, viðskiptafélögum og ástvinum af minnsta tilefni, eða án nokkurrar ástæðu yfirhöfuð.

FJÁRHÆTTUSPIL.

Sá ávani að stunda fjárhættuspil, stela, svíkja og taka að öðru leyti háskalega áhættu til að útvega peninga handa ástvinum, í þeirri trú að kaupa megi ást. Sá ávani að eyða um efni fram eða stofna til skulda til að færa ástvinum gjafir í þeim tilgangi að slá um sig. Svefnleysi, taugaveiklun, skortur á þrautseigju, viljaleysi, skortur á sjálfsstjórn, skortur á sjálfsbjargarviðleitni, skapstyggð.

ÓTTINN VIÐ ELLI

Í meginatriðum sprettur þessi ótti af tveimur rótum. Í fyrsta lagi af þeirri hugsun að ellin kunni að hafa í för með sér FÁTÆKT. Í öðru lagi, og sú rót er langalgengust, af fölskum og grimmilegum kenningum fortíðarinnar sem hafa verið of ríkulega blandaðar „eldi og brennisteini“ og öðrum grýlum sem eru útsmoginn tilbúningur til að hneppa manninn í þrældóm með ótta.

Í grunnóttanum við ellina hefur maðurinn tvær mjög gildar ástæður fyrir ugg sínum – önnur sprettur af vantrausti hans til samferðamanna sinna, sem kynnu að hrifsa til sín hvaða veraldlegu eigur sem hann kann að hafa eignast, en hin á rætur í þeim hræðilegu myndum af lífinu handan grafar sem gróðursettar voru í huga hans í gegnum félagslegar erfðir áður en hann náði fullu valdi á eigin huga.

Möguleikinn á vanheilsu, sem verður algengari eftir því sem fólk eldist, á einnig sinn þátt í þessum útbreidda ótta við ellina. Kynhvötin kemur einnig við sögu sem orsök óttans við ellina, þar eð engum manni er sú tilhugsun ljúf að kynferðislegt aðdráttarafl hans dvíni.

Algengasta orsök óttans við ellina tengist möguleikanum á fátækt. „Fátækrahæli“ er ekki fallegt orð. Það vekur hroll í huga sérhvers manns sem stendur frammi fyrir þeim möguleika að þurfa að eyða ævikvöldinu á fátækrabýli.

Önnur orsök sem á þátt í óttanum við ellina er möguleikinn á því að glata frelsi og sjálfstæði, þar sem ellin getur haft í för með sér missi á bæði líkamlegu og fjárhagslegu frelsi.

EINKENNI ÓTTANS VIÐ ELLINA

Algengustu einkenni þessa ótta eru:

Tilneigingin til að hægja á sér og þróa með sér minnimáttarkennd á aldri vitsmunalegs þroska, í kringum fertugt, í þeirri ranghugmynd að manni sé farið að „hraka“ sökum aldurs. (Sannleikurinn er sá að gagnlegustu ár mannsins, vitsmunalega og andlega, eru árin milli fertugs og sextugs).

Sá ávani að tala í afsökunartón um sjálfan sig sem „gamlan“ eingöngu vegna þess að maður hefur náð fertugs- eða fimmtugsaldri, í stað þess að snúa dæminu við og láta í ljós þakklæti fyrir að hafa náð aldri visku og skilnings.

Sá ávani að kæfa frumkvæði, ímyndunarafl og sjálfsbjargarviðleitni í þeirri fölsku trú að maður sé orðinn of gamall til að beita þessum eiginleikum. Sá ávani fertugra karla eða kvenna að klæða sig í þeim tilgangi að reyna að virðast miklu yngri og taka upp tilgerðarlega takta æskunnar, og baka sér þannig aðhlátur bæði vina og ókunnugra.

ÓTTINN VIÐ DAUÐANN

Í hugum sumra er þetta grimmasti grunnóttinn af þeim öllum. Ástæðan er augljós. Hinar skelfilegu óttakvalir sem tengjast tilhugsuninni um dauðann má í flestum tilfellum rekja beint til trúarofstækis. Svonefndir „heiðingjar“ óttast dauðann síður en hinir „siðmenntaðri“. Í hundruð milljóna ára hefur maðurinn spurt hinna enn ósvöruðu spurninga, „hvaðan“ og „hvert“. Hvaðan kom ég og hvert fer ég?

Á hinum myrku öldum fortíðar voru hinir slægari og slungnari ekki lengi að bjóða fram svarið við þessum spurningum, GEGN GJALDI. Lítum nú á meginuppsprettu ÓTTANS VIÐ DAUÐANN.

„Komdu inn í tjaldið mitt, játastu trú minni, samþykktu kennisetningar mínar og ég mun gefa þér aðgöngumiða sem hleypir þér rakleiðis inn í himnaríki þegar þú deyrð,“ hrópar leiðtogi sértrúarstefnunnar. „Stattu fyrir utan tjaldið mitt,“ segir sami leiðtogi, „og megi þá djöfullinn hirða þig og brenna um alla eilífð.“

EILÍFÐIN er langur tími. ELDUR er skelfilegur hlutur. Tilhugsunin um eilífa refsingu í eldi veldur því ekki aðeins að maðurinn óttast dauðann, heldur verður hún oft til þess að hann missir vitið. Hún eyðileggur áhugann á lífinu og gerir hamingjuna ómögulega.

Í rannsóknum mínum fór ég yfir bók sem nefndist „Skrá yfir guðina“, þar sem taldir voru upp þeir 30.000 guðir sem maðurinn hefur tilbeðið. Hugsaðu þér! Þrjátíu þúsund talsins, í mynd alls mögulegs frá vatnakrabba til manns. Það er lítil furða að menn hafi orðið skelkaðir þegar dauðinn nálgast.

Þótt leiðtogi í trúmálum sé ef til vill ekki fær um að tryggja örugga för inn í himnaríki, né heldur að láta hinn ógæfusama stíga niður til helvítis ef slíka fyrirgreiðslu skortir, virðist síðari möguleikinn svo skelfilegur að sjálf tilhugsunin um hann grípur ímyndunaraflið svo raunverulegum tökum að hún lamar skynsemina og vekur óttann við dauðann.

Í sannleika sagt VEIT ENGINN MAÐUR, og enginn maður hefur nokkurn tíma vitað, hvernig himnaríki eða helvíti eru í raun, né heldur veit nokkur maður hvort annar hvor staðurinn er yfirhöfuð til. Einmitt þessi skortur á öruggri vitneskju opnar dyr mannsandans fyrir loddaranum svo að hann geti gengið þar inn og stjórnað huganum með sjónhverfingum sínum og margvíslegum guðrækilegum blekkingum og brögðum.

Óttinn við DAUÐANN er ekki jafn algengur nú og hann var á þeim tímum þegar engir stórir háskólar og æðri menntastofnanir voru til. Vísindamenn hafa beint kastljósi sannleikans að heiminum og þessi sannleikur er óðum að frelsa karla og konur undan þessum skelfilega ótta við DAUÐANN. Ungu mennirnir og ungu konurnar sem sækja háskólana láta ekki auðveldlega hræða sig með „eldi“ og „brennisteini“. Með hjálp líffræði, stjörnufræði, jarðfræði og annarra skyldra vísindagreina hefur ótta hinna myrku alda, sem hélt hugum manna í heljargreipum og eyðilagði skynsemi þeirra, verið bægt frá.

Geðveikrahæli eru full af körlum og konum sem hafa misst vitið vegna ÓTTANS VIÐ DAUÐANN.

Þessi ótti er tilgangslaus. Dauðinn mun koma, hvað sem hver og einn kann að hugsa um hann. Sættu þig við hann sem nauðsyn og vísaðu tilhugsuninni á bug úr huga þínum. Hann hlýtur að vera nauðsyn, annars myndi hann ekki vitja allra. Ef til vill er hann ekki eins slæmur og honum hefur verið lýst.

Allur heimurinn er einungis gerður úr tvennu, ORKU og EFNI. Í grunnatriðum eðlisfræðinnar lærum við að hvorki er hægt að skapa né eyða efni né orku (hinum einu tveimur veruleikum sem maðurinn þekkir). Bæði efni og orku má ummynda, en hvorugu er hægt að eyða.

Lífið er orka, ef það er þá nokkuð. Ef hvorki er hægt að eyða orku né efni getur lífið vitaskuld ekki heldur eyðst. Lífið, líkt og önnur form orku, getur gengið í gegnum ýmis stig umskipta eða breytinga, en því verður ekki eytt. Dauðinn er aðeins umskipti.

Ef dauðinn er ekki aðeins breyting eða umskipti, þá tekur ekkert við eftir dauðann nema langur, eilífur og friðsæll svefn, og svefninn er ekkert til að óttast. Þannig getur þú þurrkað út óttann við dauðann í eitt skipti fyrir öll.

EINKENNI ÓTTANS VIÐ DAUÐANN

Almenn einkenni þessa ótta eru:

Sá ávani að HUGSA um að deyja í stað þess að njóta LÍFSINS til fulls, sem stafar yfirleitt af skorti á tilgangi eða skorti á hæfilegu starfi. Þessi ótti er algengari meðal aldraðra, en stundum verður yngra fólk honum einnig að bráð. Besta lækningin við óttanum við dauðann er BRENNANDI ÞRÁ EFTIR ÁRANGRI, studd gagnlegri þjónustu við aðra. Önnum kafinn maður hefur sjaldan tíma til að hugsa um dauðann. Honum finnst lífið of spennandi til að hafa áhyggjur af dauðanum. Stundum tengist óttinn við dauðann náið óttanum við fátækt, þar sem dauði manns myndi skilja ástvini eftir í sárri fátækt. Í öðrum tilfellum stafar óttinn við dauðann af veikindum og því að líkamlegt mótstöðuafl bilar í kjölfarið. Algengustu orsakir óttans við dauðann eru: vanheilsa, fátækt, skortur á viðeigandi starfi, vonbrigði í ástum, geðveiki og trúarofstæki.

ÁHYGGJUKARLINN

Áhyggjur eru hugarástand sem byggist á ótta. Þær vinna hægt en þrautseigt. Þær eru lævísar og lúmskar. Skref fyrir skref „grafa þær um sig“ þar til þær lama rökhugsun manns og eyðileggja sjálfstraust og frumkvæði. Áhyggjur eru tegund viðvarandi ótta sem stafar af ákvarðanafælni og því eru þær hugarástand sem hægt er að hafa stjórn á.

Reikull hugur er hjálparvana. Ákvarðanafælni gerir hugann reikulan. Flesta einstaklinga skortir viljastyrk til að taka ákvörðun tafarlaust og standa við hana eftir að hún hefur verið tekin, jafnvel þegar eðlilegt ástand ríkir í viðskiptalífinu. Á tímum efnahagslegs óróa (líkt og heimurinn upplifði nýverið) stendur einstaklingurinn höllum fæti, ekki aðeins vegna þess meðfædda eðlis síns að vera seinn til að taka ákvörðun, heldur verður hann einnig fyrir áhrifum af ákvarðanafælni annarra í kringum sig sem hafa skapað ástand „allsherjar ákvarðanafælni“.

Á kreppuárunum var allt andrúmsloftið, um víða veröld, mettað af „óttapest“ og „áhyggjubólgu“, þessum tveimur hugarsýklum sem tóku að breiðast út eftir æðið á Wall Street árið 1929. Það er aðeins eitt þekkt móteitur við þessum sýklum; það er sá ávani að taka skjóta og fasta ÁKVÖRÐUN. Þar að auki er þetta móteitur sem sérhver einstaklingur verður að beita fyrir sjálfan sig.

Við höfum ekki áhyggjur af aðstæðum þegar við höfum á annað borð tekið ákvörðun um að fylgja ákveðinni stefnu í athöfnum. Ég tók eitt sinn viðtal við mann sem átti að taka af lífi í rafmagnsstól tveimur klukkustundum síðar. Hinn dauðadæmdi maður var sá rólegasti af um það bil átta mönnum sem voru á dauðadeildinni með honum. Rósemi hans varð til þess að ég spurði hann hvernig honum liði að vita til þess að hann væri á leið inn í eilífðina eftir skamma stund. Með öruggu brosi á vör sagði hann: „Mér líður vel. Hugsaðu þér bara, bróðir, bráðum verða allar mínar þrautir á enda. Ég hef ekki átt við annað en erfiðleika að stríða alla mína ævi. Það hefur verið basl að útvega mat og klæði. Brátt mun ég ekki þurfa á þessum hlutum að halda. Mér hefur liðið vel allt frá því að ég fékk að vita FYRIR VÍST að ég yrði að deyja. Þá einsetti ég mér að taka örlögum mínum af æðruleysi.“

Á meðan hann talaði hámaði hann í sig kvöldverð sem hefði dugað þremur mönnum, borðaði hvern einasta bita af matnum sem honum var færður og naut hans að því er virtist jafn vel og engin ósköp biðu hans. ÁKVÖRÐUN veitti þessum manni æðruleysi gagnvart örlögum sínum! Ákvörðun getur einnig komið í veg fyrir að maður sætti sig við óæskilegar aðstæður.

Óttarnir sex breytast í áhyggjuástand vegna ákvarðanafælni. Losaðu þig í eitt skipti fyrir öll við óttann við dauðann með því að taka ákvörðun um að sætta þig við dauðann sem óumflýjanlegan atburð. Kveðdu niður óttann við fátækt með því að taka ákvörðun um að láta þér nægja þann auð sem þú getur safnað ÁN ÁHYGGNA. Settu fótinn á háls óttans við gagnrýni með því að taka ákvörðun um AÐ HAFA EKKI ÁHYGGJUR af því hvað öðru fólki finnst, hvað það gerir eða segir. Útrýmdu óttanum við ellina með því að taka ákvörðun um að taka henni, ekki sem fötlun, heldur sem mikilli blessun er færir með sér visku, sjálfsstjórn og skilning sem æskan þekkir ekki. Losaðu þig undan óttanum við vanheilsu með þeirri ákvörðun að gleyma sjúkdómseinkennum. Náðu tökum á óttanum við að glata ást með því að taka ákvörðun um að komast af án ástar, ef þess gerist þörf.

Dreptu ávana áhyggjunnar, í öllum sínum myndum, með því að taka eina allsherjar ákvörðun um að ekkert sem lífið hefur upp á að bjóða sé þess virði að gjalda fyrir það með áhyggjum. Með þessari ákvörðun kemur yfirvegun, hugarró og kyrrð í hugsun sem mun færa þér hamingju.

Maður sem er fullur af ótta í huga sér eyðileggur ekki aðeins eigin möguleika á skynsamlegum athöfnum, heldur sendir hann þessar eyðileggjandi sveiflur inn í huga allra sem komast í snertingu við hann og eyðileggur einnig möguleika þeirra.

Jafnvel hundur eða hestur veit þegar húsbónda hans skortir hugrekki; þar að auki nemur hundur eða hestur sveiflur óttans sem berast frá húsbóndanum og hagar sér í samræmi við það. Neðar í þroskastiga vitsmunanna í dýraríkinu má finna þennan sama hæfileika til að nema sveiflur óttans. Hunangsfluga skynjar samstundis ótta í huga manns – af óþekktum ástæðum stingur býfluga mun frekar þann mann sem sendir frá sér sveiflur óttans úr huga sínum en að hún áreiti þann sem ber engan ótta í huga sér.

Sveiflur óttans berast frá einum huga til annars jafn hratt og örugglega og hljóð mannsraddarinnar berst frá útvarpsstöðinni til viðtækisins – og MEÐ NÁKVÆMLEGA SAMA MIÐLI.

Hugsanaflutningur er staðreynd. Hugsanir berast sjálfkrafa frá einum huga til annars, hvort sem sú staðreynd er viðurkennd af þeim sem sendir hugsanirnar frá sér eða þeim sem nema þær.

Sá sem ljær neikvæðum eða eyðileggjandi hugsunum orð er nánast öruggur um að upplifa afleiðingar þeirra orða í formi eyðileggjandi „bakslags“. Það eitt að senda frá sér eyðileggjandi hugsanaboð, án aðstoðar orða, veldur einnig „bakslagi“ á fleiri en einn veg. Í fyrsta lagi, og það er ef til vill mikilvægast að hafa í huga, hlýtur sá sem sendir frá sér hugsanir af eyðileggjandi toga að bíða tjón vegna þess að hæfileiki hins skapandi ímyndunarafls brotnar niður. Í öðru lagi veldur nærvera sérhverrar eyðileggjandi tilfinningar í huganum því að það mótast neikvæður persónuleiki sem hrindir fólki frá sér og gerir það oft að andstæðingum. Þriðja orsök tjónsins sem verður hjá þeim sem gælir við eða sendir frá sér neikvæðar hugsanir felst í þessari mikilvægu staðreynd – þessi hugsanaboð eru ekki aðeins skaðleg öðrum, heldur GREYPAST ÞAU Í UNDIRMEÐVITUND ÞESS SEM SENDIR ÞAU FRÁ SÉR og verða þar hluti af skapgerð hans.

Maður er aldrei laus við hugsun með því einu að senda hana frá sér. Þegar hugsun er send út dreifist hún í allar áttir í gegnum ljósvakann, en hún gróðursetur sig einnig varanlega í undirmeðvitund þess sem sendir hana frá sér.

Hlutverk þitt í lífinu er væntanlega að ná árangri. Til að ná árangri verður þú að finna hugarró, afla þér hinna efnislegu lífsnauðsynja og umfram allt að öðlast HAMINGJU. Öll þessi merki velgengninnar hefjast í formi hugsanaboða.

Þú getur stjórnað eigin huga, þú hefur valdið til að næra hann á hvaða hugsanaboðum sem þú kýst. Þessum forréttindum fylgir einnig sú ábyrgð að nota þau á uppbyggilegan hátt. Þú ert herra þinna eigin jarðnesku örlaga jafn örugglega og þú hefur valdið til að stjórna eigin hugsunum. Þú getur haft áhrif á, stýrt og að lokum stjórnað eigin umhverfi og gert líf þitt að því sem þú vilt að það verði – eða þú getur vanrækt að nýta þér þau forréttindi sem þér standa til boða til að móta líf þitt að eigin óskum, og kastað þér þannig út á hið víða haf „Aðstæðnanna“, þar sem þú munt velkjast fram og til baka líkt og spýtnabrak á öldum úthafsins.

SMIÐJA DJÖFULSINS

SJÖUNDA MEGINBÖLIÐ

Auk óttanna sex er til annað böl sem fólk þjáist af. Það myndar frjósaman jarðveg þar sem fræ mistakanna vaxa í ríkum mæli. Það er svo lúmskt að nærveru þess verður oft ekki vart. Þessa meinsemd er ekki með réttu hægt að flokka sem ótta. HÚN RISTIR DÝPRA OG ER OFTAR BANVÆN EN ALLIR ÓTTARNIR SEX. Vegna skorts á betra nafni skulum við kalla þetta böl NÆMNI FYRIR NEIKVÆÐUM ÁHRIFUM.

Menn sem safna miklum auðæfum verja sig ævinlega gegn þessu böli! Hinir fátæku gera það aldrei! Þeir sem ná árangri í hvaða köllun sem er verða að búa huga sinn undir að standast þetta böl. Ef þú lest þessa heimspeki í þeim tilgangi að safna auðæfum ættir þú að rannsaka eigið sjálf mjög vandlega til að skera úr um hvort þér hætti til næmni fyrir neikvæðum áhrifum. Ef þú vanrækir þessa sjálfsgreiningu glatar þú rétti þínum til að öðlast það sem þrá þín stendur til.

Láttu þessa greiningu rista djúpt. Eftir að þú hefur lesið spurningarnar sem samdar hafa verið fyrir þessa sjálfsgreiningu skaltu gera ströng reikningsskil í svörum þínum. Gakktu til verks af sömu vandvirkni og ef þú leitaðir einhvers annars óvinar sem þú vissir að sæti fyrir þér í launsátri, og taktu á eigin göllum eins og þú myndir taka á áþreifanlegri óvini.

Þú getur auðveldlega varið þig gegn stigamönnum, því að lögin tryggja skipulagða samvinnu þér til hagsbóta, en erfiðara er að ráða niðurlögum „sjöunda höfuðbölsins“, því að það ræðst til atlögu þegar þú veist ekki af nærveru þess, þegar þú sefur og á meðan þú vakir. Þar að auki er vopn þess óáþreifanlegt, því að það er ekki annað en – HUGARÁSTAND. Þetta böl er einnig hættulegt vegna þess að það birtist í jafnmörgum ólíkum myndum og mannleg reynsla er margbreytileg. Stundum smýgur það inn í hugann með vel meintum orðum eigin ættingja. Stundum nagar það innan frá, í gegnum eigið hugarfar manns. Ávallt er það jafnbanvænt og eitur, þótt það deyði kannski ekki jafnfljótt.

HVERNIG ÞÚ GETUR VARIÐ ÞIG GEGN NEIKVÆÐUM ÁHRIFUM

Til að verja þig gegn neikvæðum áhrifum, hvort sem þau eru þitt eigið verk eða afleiðing af athöfnum neikvæðs fólks í kringum þig, skaltu gera þér grein fyrir því að þú býrð yfir VILJASTYRK og beita honum stöðugt, þar til hann reisir ónæmismúr gegn neikvæðum áhrifum í eigin huga þínum.

Gerðu þér grein fyrir þeirri staðreynd að þér, og sérhverri annarri manneskju, hættir að eðlisfari til leti, skeytingarleysis og næmni fyrir öllum fortölum sem falla að veikleikum þínum.

Gerðu þér grein fyrir því að þú ert að eðlisfari berskjaldaður gagnvart öllu því sem óttarnir sex fela í sér, og temdu þér venjur í þeim tilgangi að vinna gegn öllum þessum óttum.

Gerðu þér grein fyrir því að neikvæð áhrif verka oft á þig í gegnum undirmeðvitund þína og eru því vandgreind, og haltu huga þínum lokuðum fyrir öllu fólki sem dregur þig niður eða tekur úr þér kjarkinn á einhvern hátt.

Hreinsaðu út úr lyfjaskápnum þínum, fleygðu öllum pilluglösum og hættu að dekra við kvef, verki, kvalir og ímynduð veikindi.

Leitaðu markvisst í félagsskap fólks sem hefur þau áhrif á þig að þú HUGSIR OG BREYTIR SJÁLFSTÆTT.

Ekki BÚAST VIÐ vandræðum, því að þau eiga það til að valda ekki vonbrigðum.

Án efa er algengasti veikleiki allra manna sá vani að skilja hugann eftir opinn fyrir neikvæðum áhrifum annars fólks. Þessi veikleiki er því skaðlegri sem flestir gera sér ekki grein fyrir að þeir séu haldnir þessari bölvun, og margir sem viðurkenna hana vanrækja eða neita að ráða bót á bölinu þar til það er orðið óviðráðanlegur þáttur í daglegum venjum þeirra.

Til hjálpar þeim sem vilja sjá sjálfa sig í réttu ljósi hefur eftirfarandi spurningalisti verið tekinn saman. Lestu spurningarnar og segðu svör þín upphátt, svo að þú heyrir eigin rödd. Það mun auðvelda þér að gæta fullrar hreinskilni við eigið sjálf.

PRÓFSPURNINGAR TIL SJÁLFSGREININGAR

Kvartar þú oft undan því að þér „líði illa“, og ef svo er, hver er þá orsökin?

Finnur þú að öðru fólki af minnsta tilefni?

Gerir þú oft mistök í starfi þínu, og ef svo er, hvers vegna?

Beitir þú kaldhæðni og móðgandi orðbragði í tali þínu?

Forðastu viljandi samneyti við einhvern, og ef svo er, hvers vegna?

Þjáist þú oft af meltingartruflunum? Ef svo er, hver er orsökin?

Virðist lífið þér tilgangslaust og framtíðin vonlaus? Ef svo er, hvers vegna?

Líkar þér við starf þitt? Ef ekki, hvers vegna? Finnur þú oft til sjálfsvorkunnar, og ef svo er, hvers vegna? Öfundar þú þá sem standa þér framar?

Hvoru helgar þú meiri tíma, að hugsa um VELGENGNI eða ÓSIGUR?

Eykst sjálfstraust þitt eða dvínar eftir því sem þú eldist?

Lærir þú eitthvað dýrmætt af öllum mistökum? Leyfir þú einhverjum ættingja eða kunningja að valda þér áhyggjum? Ef svo er, hvers vegna?

Ert þú stundum „uppi í skýjunum“ en í önnur skipti í hyldýpi vonleysis?

Hver hefur mest hvetjandi áhrif á þig? Hver er orsökin?

Umberð þú neikvæð eða letjandi áhrif sem þú getur komist hjá?

Sýnir þú hirðuleysi um persónulegt útlit þitt? Ef svo er, hvenær og hvers vegna?

Hefur þú lært að „drekkja áhyggjum þínum“ með því að hafa of mikið fyrir stafni til að láta þær angra þig?

Myndir þú kalla þig „hrygglaust dusilmenni“ ef þú leyfðir öðrum að hugsa fyrir þig?

Vanrækir þú innri hreinsun líkamans þar til sjálfseitrun vekur hjá þér skapillsku og pirring?

Hversu margar truflanir, sem hægt væri að koma í veg fyrir, angra þig, og hvers vegna umberð þú þær?

Grípur þú til áfengis, fíkniefna eða sígarettna til að „róa taugarnar“? Ef svo er, hvers vegna reynir þú ekki viljastyrkinn í staðinn?

Er einhver sem „nöldrar“ í þér, og ef svo er, af hvaða ástæðu? Áttu þér SKÝRT HÖFUÐMARKMIÐ, og ef svo er, hvert er það, og hvaða áætlun hefur þú um að ná því?

Hrjá óttarnir sex þig að einhverju leyti? Ef svo er, hverjir þeirra?

Hefur þú aðferð sem þú getur beitt til að skýla þér fyrir neikvæðum áhrifum annarra? Notar þú sjálfsefjun markvisst til að gera huga þinn jákvæðan?

Hvort metur þú meira, veraldlegar eigur þínar eða þau forréttindi að ráða yfir eigin hugsunum?

Lætur þú aðra auðveldlega hafa áhrif á þig, gegn eigin dómgreind?

Hefur dagurinn í dag bætt einhverju verðmætu við þekkingarforða þinn eða hugarástand?

Horfist þú hiklaust í augu við þær aðstæður sem valda þér óhamingju, eða víkur þú þér undan ábyrgðinni?

Greinir þú öll mistök og ósigra og reynir að draga af þeim lærdóm, eða tekur þú þá afstöðu að þetta sé ekki skylda þín?

Getur þú nefnt þrjá af skaðlegustu veikleikum þínum? Hvað gerir þú til að bæta úr þeim? Hvetur þú annað fólk til að bera áhyggjur sínar á borð fyrir þig í leit að samúð?

Velur þú úr daglegri reynslu þinni þann lærdóm eða þau áhrif sem stuðla að persónulegum framförum þínum?

Hefur nærvera þín að jafnaði neikvæð áhrif á annað fólk?

Hvaða venjur annarra fara mest í taugarnar á þér?

Myndar þú þér þínar eigin skoðanir eða lætur þú annað fólk hafa áhrif á þig?

Hefur þú lært að skapa þér slíkt hugarástand að þú getir skýlt þér fyrir öllum letjandi áhrifum?

Blæs starf þitt þér trú og von í brjóst?

Gerir þú þér grein fyrir því að þú býrð yfir andlegum kröftum sem eru nógu öflugir til að gera þér kleift að halda huga þínum lausum við allar birtingarmyndir ÓTTA?

Hjálpa trúarbrögð þín þér að halda eigin huga jákvæðum?

Finnst þér það skylda þín að taka þátt í áhyggjum annarra? Ef svo er, hvers vegna?

Ef þú trúir því að „sækjist sér um líkir“, hvað hefur þú þá lært um eigið sjálf með því að skoða vinina sem þú laðar að þér?

Hvaða tengsl, ef einhver eru, sérð þú á milli fólksins sem þú umgengst hvað nánast og þeirrar óhamingju sem þú kannt að upplifa?

Gæti verið að einhver manneskja, sem þú telur vera vin þinn, sé í raun og veru versti óvinur þinn vegna neikvæðra áhrifa sinna á huga þinn?

Eftir hvaða reglum metur þú hver er þér til gagns og hver til skaða?

Eru nánustu félagar þínir þér andlega fremri eða síðri?

Hversu miklum tíma af hverjum 24 klukkustundum verð þú í:

a. starf þittb. svefnc. leik og hvíldd. að afla þér nytsamlegrar þekkingare. hreina tímasóun

Hver úr hópi kunningja þinna,

a. hvetur þig mestb. varar þig mest viðc. letur þig mestd. hjálpar þér mest á annan hátt

Hvert er þitt mesta áhyggjuefni? Hvers vegna umberð þú það?

Þegar aðrir bjóða þér ókeypis, óumbeðin ráð, tekur þú þá við þeim án þess að spyrja spurninga, eða greinir þú hvað þeim gengur til?

Hvað ÞRÁIR þú mest, umfram allt annað? Hyggst þú eignast það? Hefur þú vilja til að láta allar aðrar þrár víkja fyrir þessari einu? Hversu miklum tíma verð þú daglega í að öðlast það?

Skiptir þú oft um skoðun? Ef svo er, hvers vegna? Lýkur þú venjulega öllu sem þú byrjar á?

Lætur þú auðveldlega heillast af starfs- eða embættistitlum annarra, háskólagráðum eða auðæfum? Lætur þú það sem aðrir hugsa eða segja um þig auðveldlega hafa áhrif á þig?

Reynir þú að geðjast fólki vegna þjóðfélagslegrar eða fjárhagslegrar stöðu þess?

Hver telur þú að sé mesta manneskja sem nú er á lífi? Að hvaða leyti stendur þessi manneskja þér framar?

Hversu miklum tíma hefur þú varið í að ígrunda og svara þessum spurningum? (Að minnsta kosti einn dagur er nauðsynlegur til að greina og svara listanum í heild sinni.)

Ef þú hefur svarað öllum þessum spurningum í fyllstu hreinskilni veist þú meira um eigið sjálf en meirihluti fólks. Ígrundaðu spurningarnar vandlega, taktu þær aftur fyrir einu sinni í viku í nokkra mánuði og þú munt verða agndofa yfir því hversu mikilli og dýrmætri viðbótarþekkingu þú hefur aflað þér með þeirri einföldu aðferð að svara spurningunum af hreinskilni. Ef þú ert í vafa um svörin við einhverjum spurninganna skaltu leita ráða hjá þeim sem þekkja þig vel, einkum þeim sem hafa engan hag af því að smjaðra fyrir þér, og sjáðu þig með þeirra augum. Sú reynsla verður undraverð.

Þú hefur ALGJÖRA STJÓRN á einu og aðeins einu, og það eru hugsanir þínar. Þetta er mikilvægasta staðreynd sem manninum er kunn og sú sem veitir mestan innblástur! Hún endurspeglar guðlegt eðli mannsins. Þessi guðlegi einkaréttur er eina tækið sem þú hefur til að stjórna eigin örlögum. Ef þér mistekst að hafa stjórn á eigin huga máttu reiða þig á að þú munt engu öðru stjórna.

Ef þú þarft endilega að sýna hirðuleysi um eigur þínar, láttu það þá snúa að efnislegum hlutum. Hugur þinn er þín andlega óðalseign! Verndaðu hann og notaðu af þeirri alúð sem guðlegri tign sæmir. Þér var gefinn VILJASTYRKUR í þessum tilgangi.

Því miður er engin lagaleg vernd til gegn þeim sem annaðhvort af ásettu ráði eða fáfræði eitra huga annarra með neikvæðum hugboðum. Slík eyðilegging ætti að varða þungum refsingum að lögum, því hún getur eyðilagt – og gerir það oft – möguleika manns á að eignast veraldleg gæði sem njóta lagaverndar.

Menn með neikvætt hugarfar reyndu að sannfæra Thomas A. Edison um að hann gæti ekki smíðað vél sem tæki upp og endurflytti mannsröddina, „vegna þess,“ sögðu þeir, „að enginn annar hefði nokkurn tíma smíðað slíka vél.“ Edison trúði þeim ekki. Hann vissi að hugurinn gæti skapað ALLT SEM HUGURINN GÆTI ÍMYNDAÐ SÉR OG TRÚAÐ, og sú vitneskja var einmitt það sem hóf hinn mikla Edison upp yfir fjöldann.

Menn með neikvætt hugarfar sögðu F. W. Woolworth að hann yrði „gjaldþrota“ ef hann reyndi að reka verslun með fimm og tíu senta vörur. Hann trúði þeim ekki. Hann vissi að hann gæti gert hvað sem væri, innan skynsamlegra marka, ef hann styddi áætlanir sínar með trú. Með því að nýta sér rétt sinn til að halda neikvæðum hugboðum annarra utan við huga sinn safnaði hann auðæfum sem námu meira en hundrað milljónum dala.

Menn með neikvætt hugarfar sögðu George Washington að hann gæti ekki gert sér vonir um sigur gegn margfalt fjölmennara liði Breta, en hann nýtti sér sinn guðlega rétt til að TRÚA, og fyrir bragðið var þessi bók gefin út undir verndarvæng bandaríska fánans, á meðan nafn Cornwallis lávarðar er svo gott sem gleymt.

Efasemdamenn hæddust fullir fyrirlitningar þegar Henry Ford prófaði fyrsta frumstæða bílinn sinn á götum Detroit. Sumir sögðu að þetta fyrirbæri yrði aldrei nothæft í reynd. Aðrir sögðu að enginn myndi borga peninga fyrir slíkt furðuverk. FORD SAGÐI: „ÉG MUN UMVAFJA JÖRÐINA ÁREIÐANLEGUM BIFREIÐUM,“ OG HANN GERÐI ÞAÐ! Ákvörðun hans um að treysta eigin dómgreind hefur nú þegar hlaðið upp auðæfum sem eru miklu meiri en svo að næstu fimm kynslóðir afkomenda hans geti sóað þeim. Þeim til gagns sem sækjast eftir miklum auðæfum skal þess minnst að nánast eini munurinn á Henry Ford og meirihluta þeirra rúmlega hundrað þúsund manna sem vinna hjá honum er þessi – FORD HEFUR HUGA OG STJÓRNAR HONUM, HINIR HAFA HUGA SEM ÞEIR REYNA EKKI AÐ STJÓRNA.

Henry Ford hefur ítrekað verið nefndur til sögunnar vegna þess að hann er stórkostlegt dæmi um það hverju maður með sjálfstæðan huga, og vilja til að stjórna honum, getur áorkað. Ferill hans kippir stoðunum undan hinni margþvældu afsökun: „Ég fékk aldrei tækifæri.“ Ford fékk heldur aldrei tækifæri, en hann SKAPAÐI TÆKIFÆRI OG STYDDI ÞAÐ MEÐ ÞRAUTSEIGJU ÞAR TIL ÞAÐ GERÐI HANN RÍKARI EN KRESUS.

Hugstjórn er ávöxtur sjálfsaga og vana. Annaðhvort stjórnar þú huga þínum eða hann stjórnar þér. Þar er enginn millivegur til. Hagnýtasta aðferðin af öllum til að stjórna huganum er sá vani að halda honum uppteknum við skýran tilgang sem studdur er skýrri áætlun. Kannaðu feril hvers þess manns sem nær eftirtektarverðum árangri og þú munt sjá að hann hefur vald á eigin huga, og ekki nóg með það, heldur beitir hann því valdi og beinir því að því að ná skýrum markmiðum. Án þessarar stjórnar er velgengni óhugsandi.

„FIMMTÍU OG SJÖ“ FRÆGAR AFSAKANIR

Eftir Karl EF

Fólk sem nær ekki árangri á eitt sérkenni sameiginlegt. Það þekkir allar ástæður fyrir mistökum og hefur það sem það telur vera skotheldar afsakanir til að útskýra eigið afreksleysi.

Sumar þessara afsakana eru snjallar og nokkrar þeirra má réttlæta með staðreyndum. En það er ekki hægt að nota afsakanir sem gjaldmiðil. Heimurinn vill aðeins vita eitt – HEFUR ÞÚ NÁÐ ÁRANGRI?

Mannþekkjari nokkur tók saman lista yfir algengustu afsakanirnar. Þegar þú lest listann skaltu rannsaka eigið brjóst vandlega og meta hversu margar af þessum afsökunum, ef einhverjar, eru þín eigin eign. Mundu líka að lífsspekin sem sett er fram í þessari bók gerir hverja einustu þessara afsakana úrelta.

EF ég ætti ekki eiginkonu og fjölskyldu ...

EF ég hefði nógu góð „sambönd“ ...

EF ég ætti peninga ...

EF ég hefði góða menntun ...

EF ég gæti fengið vinnu ...

EF ég hefði góða heilsu ...

EF ég hefði bara tíma ...

EF tímarnir væru betri ...

EF annað fólk skildi mig ...

EF aðstæðurnar í kringum mig væru bara öðruvísi ...

EF ég gæti lifað lífi mínu upp á nýtt ...

EF ég óttaðist ekki hvað „ÞAU“ myndu segja ...

EF mér hefði verið gefið tækifæri ...

EF ég hefði tækifæri núna ...

EF annað fólk hefði ekki „horn í síðu minni“ ...

EF ekkert gerist sem stöðvar mig ...

EF ég væri bara yngri ...

EF ég gæti bara gert það sem ég vil ...

EF ég hefði fæðst ríkur ...

EF ég gæti kynnst „rétta fólkinu“ ...

EF ég hefði þá hæfileika sem sumir hafa ...

EF ég þyrði að láta til mín taka ...

EF ég hefði bara nýtt mér fyrri tækifæri ...

EF fólk færi ekki í taugarnar á mér ...

EF ég þyrfti ekki að sjá um heimilið og hugsa um börnin ...

EF ég gæti sparað einhverja peninga ...

EF yfirmaðurinn kynni bara að meta mig ...

EF ég hefði bara einhvern til að hjálpa mér ...

EF fjölskyldan mín skildi mig ...

EF ég byggi í stórborg ...

EF ég kæmist bara af stað ...

EF ég væri bara frjáls ...

EF ég hefði þann persónuleika sem sumir hafa ...

EF ég væri ekki svona feitur ...

EF hæfileikar mínir væru þekktir …

EF ég fengi bara „heppilegt tækifæri“ ...

EF ég gæti bara losnað úr skuldum ...

EF mér hefði ekki mistekist ...

EF ég vissi bara hvernig ...

EF allir væru ekki á móti mér ...

EF ég hefði ekki svona miklar áhyggjur ...

EF ég gæti gifst réttu manneskjunni ...

EF fólk væri ekki svona heimskt ...

EF fjölskyldan mín væri ekki svona eyðslusöm ...

EF ég væri öruggur með mig ...

EF lukkan væri ekki á móti mér ...

EF ég hefði ekki fæðst undir óheillastjörnu ...

EF það væri ekki satt að „það verður sem verða vill“ ...

EF ég þyrfti ekki að strita svona mikið ...

EF ég hefði ekki tapað peningunum mínum ...

EF ég byggi í öðru hverfi ...

EF ég ætti mér ekki „fortíð“ ...

EF ég ætti bara mitt eigið fyrirtæki ...

EF aðrir vildu bara hlusta á mig ...

EF * * * og þetta er sú stærsta þeirra allra * * *

ég hefði hugrekki til að sjá mig eins og ég raunverulega er, þá myndi ég komast að því hvað amar að mér og bæta úr því, og þá ætti ég kannski kost á að hafa gagn af mistökum mínum og læra eitthvað af reynslu annarra, því að ég veit að það er eitthvað AÐ mér, annars væri ég núna þar sem ég HEFÐI VERIÐ EF ég hefði varið meiri tíma í að greina veikleika mína og minni tíma í að búa til afsakanir til að breiða yfir þá.

Að búa til afsakanir til að tala sig frá ósigrum er þjóðaríþrótt. Sá ávani er jafngamall mannkyninu og er banvænn allri velgengni! Hvers vegna rígheldur fólk í uppáhaldsafsakanir sínar? Svarið er augljóst. Það ver afsakanir sínar vegna þess að ÞAÐ SKAPAR þær! Afsökun manns er barn hans eigin ímyndunarafls. Það er í eðli mannsins að verja sitt eigið hugarfóstur.

Að búa til afsakanir er djúpstæður ávani. Erfitt er að venja sig af ávönum, einkum þegar þeir veita réttlætingu fyrir einhverju sem við gerum. Platon hafði þessi sannindi í huga þegar hann sagði: „Fyrsti og besti sigurinn er að sigra sjálfan sig. Að bíða ósigur fyrir sjálfum sér er af öllu hið smánarlegasta og auvirðilegasta.“

Annar heimspekingur hafði sömu hugsun í huga þegar hann sagði: „Það kom mér mjög á óvart þegar ég uppgötvaði að flest það ljóta sem ég sá í fari annarra var ekkert annað en endurspeglun á mínu eigin eðli.“

„Það hefur alltaf verið mér ráðgáta,“ sagði Elbert Hubbard, „hvers vegna fólk eyðir svona miklum tíma í að blekkja sjálft sig af ásettu ráði með því að búa til afsakanir til að breiða yfir veikleika sína. Ef þessum sama tíma væri varið öðruvísi myndi hann nægja til að ráða bót á veikleikanum, og þá væri engra afsakana þörf.“

Að skilnaði vil ég minna þig á að „lífið er taflborð og mótherji þinn er TÍMINN. Ef þú hikar áður en þú leikur, eða vanrækir að leika tafarlaust, mun TÍMINN sópa taflmönnum þínum af borðinu. Þú teflir við mótherja sem líður enga ÁKVARÐANAFÆLNI!“

Áður fyrr kannt þú að hafa haft rökrétta málsbót fyrir því að hafa ekki knúið Lífið til að láta af hendi hvaðeina sem þú baðst um, en sú afsökun er nú úrelt, því að þú hefur nú í höndum þér Höfuðlykilinn sem lýkur upp dyrum að ríkulegum auðæfum Lífsins.

Höfuðlykillinn er óáþreifanlegur, en hann er máttugur! Hann felst í þeim forréttindum að skapa, í þínum eigin huga, BRENNANDI ÞRÁ eftir ákveðinni tegund auðæfa. Engin refsing liggur við því að nota Lykilinn, en gjald verður þú að greiða ef þú notar hann ekki. Gjaldið er ÓSIGUR. Hins vegar eru stórkostleg verðlaun í boði ef þú færir þér Lykilinn í nyt. Þau felast í þeirri fullnægju sem hlotnast öllum sem sigra sjálfa sig og knýja Lífið til að greiða hvaðeina sem beðið er um.

Verðlaunin eru erfiðis þíns virði. Ætlar þú að hefjast handa og sannfærast?

„Ef við erum skyld,“ sagði hinn ódauðlegi Emerson, „munum við mætast.“ Að lokum langar mig að fá hugsun hans að láni og segja: „Ef við erum skyld, þá höfum við mæst á þessum síðum.“

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

15. kafli af 15 · 57 mín. eftirHvernig þú snýrð á sex drauga óttans