Hugsaðu og auðgastu
Napoleon Hill
Inngangur
Frá Omega
Hugsaðu og auðgastu kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1937 og er ein þekktasta bók síðustu aldar um velgengni. Höfundurinn, Napoleon Hill, var blaðamaður. Hann segist hafa rætt við hundruð manna sem náðu langt, meðal annars Andrew Carnegie og Thomas Edison, og skráð hvað þeir áttu sameiginlegt.
Við gefum bókina út vegna þess að margt í henni er gott og hagnýtt: að vita hvað maður vill, gera áætlun, taka ákvörðun og gefast ekki upp þótt á móti blási. Hill minnir líka á að auður sé meira en peningar og að enginn fái eitthvað fyrir ekkert.
En þetta er ekki kristin bók og það viljum við segja strax. Þegar Hill talar um „Óendanlega visku“ á hann ekki við Guð Biblíunnar. Það sem hann segir um bænina, um Krist og um aðra trúarleiðtoga er hans skoðun, ekki okkar. Sama gildir um „ósýnilegu ráðgjafana“ sem hann segist hafa haldið fundi með í huganum á hverju kvöldi.
Við þýddum bókina í heild sinni og breyttum engu í hugsun hennar, svo þú getir lesið hana eins og hún var skrifuð. Taktu það sem gott er og leggðu hitt til hliðar. Páll postuli orðar það svo: „Prófið allt, haldið því, sem gott er.“ (1. Þess. 5:21)
Upphæðir eru í dollurum, eins og þær voru á fjórða áratug síðustu aldar.