← BækurVitranir frá öðrum heimi

Inngangur

Formáli höfundarins

um 4 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ég hef reynt í bók þessari að lýsa nokkrum þeim sýnum, sem Guð hefur leyft mér að sjá. Sjálfum hefði mér verið næst skapi að skýra ekki frá þeim opinberlega meðan ég var á lífi, en nokkrir vinir mínir, sem ég met mikils, hafa lagt hart að mér að birta þær nú þegar, öðrum til andlegrar hjálpar. Er það því til þess að verða við óskum þeirra, að bók þessi er nú gefin út.

Það var fyrir 14 árum síðan, í Kotgarh, að augu mín opnuðust svo að ég sá inn í himininn. Ég var á bæn. Svo lifandi og raunverulegt var það sem ég sá, að ég hélt, að ég væri dáinn og sál mín komin inn í dýrð himneskrar tilveru. En síðan hefur líf mitt stöðugt verið auðgað með slíkum sýnum. Ég get ekki kallað þær fram sjálfur, en oft (stundum 8 eða 10 sinnum á mánuði), opnast augu mín og ég sé inn í himininn og ég dvel þar í 1-2 stundir í himneskri dýrð með Jesú Kristi og tala við engla og anda. Kemur það helst fyrir þegar ég er á bæn eða í djúpri íhugun.

Svör þeirra við spurningum mínum eru mikill hluti efnisins í bókum þeim, sem ég hef þegar skrifað. Og hin ósegjanlega hrifning, sem ég nýt í hinu andlega samfélagi við þessar verur, hefur komið mér til að þrá mjög þá stund, þegar ég fæ fyrir fullt og allt að stíga inn í sælu og samfélag hinna endurleystu.

Sumum kann að virðast, að þessar sýnir séu ekki annað en eins konar spíritismi, en ég vil leggja áherslu á, að þar er mjög verulegur munur. Spíritisminn staðhæfir að vísu að hann flytji mönnum boð og tákn utan úr myrkrinu, en þessi boð og tákn eru venjulega svo sundurlaus og óskiljanleg, ef ekki algerlega röng, að þau leiða menn frekar burt frá sannleikanum heldur en til hans.

Í sýnum þessum sé ég hins vegar skýrt og greinilega jafnvel hið smávægilegasta í dýrð hins andlega heims, og ég fæ að njóta þeirrar uppbyggilegu reynslu sem raunverulegt samfélag hinna heilögu er, mitt í ólýsanlega björtu og fögru umhverfi annars heims. Það er frá þessum englum og hinum heilögu sem ég hef fengið skýr og greinileg svör við mörgum þeim spurningum sem ollu mér áhyggjum, en aldrei sundurlaus eða óákveðin boð frá ósýnilegum heimi.

Þetta samfélag heilagra, var svo viðurkenndur veruleiki á dögum hinna fyrstu kristnu safnaða, að það er gert að einu trúaratriðinu og af þeirri nauðsyn tekið upp í postullegu trúarjátninguna.

Eitt sinn, meðan á vitrun stóð, bað ég einn af englunum að gefa mér sönnun úr ritningunni fyrir „samfélagi heilagra“ og mér var sagt, að hana væri að finna í Sakaría 3,7. Þar segir engillinn við Jósúa: „... ég heimila þér að ganga meðal þessara þjóna minna.“ Þar er ekki átt við engla, eða menn, heldur hina heilögu í dýrðinni. Það sem Guð lofar Jósúa, er að hann „heimili honum gang meðal þessara þjóna sinna“. Ef hann gangi á vegum hans, skulu þeir (hinir heilögu) vera „félagar“ hans, og þar er átt við mannssálir sem hafa náð fullkomnun. Með þeim á hann að hafa samfélag.

Hér verður oft talað um Anda, Hina heilögu og Engla. Með þessari skiptingu er átt við, að andar eru bæði góðir og vondir, og þeir búa á eins konar millistigum milli himnaríkis og helvítis. „Hinir heilögu“ eru þeir einstaklingar sem komnir eru yfir þessi millistig á æðri svið í hinum andlega heimi og gegna þar sérstökum störfum, sem þeim eru falin. Englar eru dýrðlegar verur, sem gegna alls konar æðri störfum, og meðal þeirra eru margir helgir menn bæði frá öðrum hnöttum og þessari jörð, og þeir lifa allir saman sem ein fjölskylda. Þeir þjóna hver öðrum í kærleika og eru eilíflega sælir í þeirri dýrð, sem streymir út frá Guði.

Andaheimurinn táknar það millisvið, sem sálirnar fara til eftir viðskilnaðinn við líkamann. En hinn „andlegi heimur“ umlykur hins vegar allar andlegar verur á hvaða þroskastigi sem er, milli hins dýpsta vítis og hásætis Guðs, sem býr í ljósinu.

Ég vil færa einlæga þökk Séra T.E. Riddle í Kharar sem þýddi bókina úr frummálinu (Urdu) á ensku. Einnig vil ég þakka Frk. E. Sanders fyrir að hafa leiðrétt prófarkir.

Subathu í júlí 1926

Sundar Singh

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Inngangur · 4 mín. eftirFormáli höfundarins