← BækurVitranir frá öðrum heimi

Viðauki

Æviágrip Sundar Singh

um 7 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Sundar Singh fæddist 3. september árið 1889 í Rampur í ríkinu Patiala á Norður-Indlandi. Hann var yngsti sonur auðugra foreldra, og æskuheimilið var ríkmannlegt. Hann minntist oft þessa góða heimilis, er hann bar saman annars vegar þægilegt líf, sem verður ófullnægjandi vegna andlegs hungurs, og hins vegar óþægindin við að lifa eins og kristinn „sadhu“ (heilagur maður á indverska vísu), en það líf verður fullt af innri friði og gleði.

Foreldrar hans voru af trúflokki síka, en virðast þó hafa aðhyllst hindúatrú næstum jafn mikið. Þau sóttu oft helga staði, lásu helgirit og höfðu náin tengsl við bæði þessi trúarbrögð.

Það var einkum móðir hans, sem vakti og leiddi hina sterku trúarþrá hans. Hún dó, þegar hann var 14 ára. Líklegt er að móðurmissirinn skýri hina áköfu leit hans næstu tvö árin eftir því að finna frið í sálu sinni.

Móðir hans hafði vakið þessa þrá eftir innri friði, sem indversk trúarbrögð telja mjög eftirsóknarverðan. En þau ráð sem hún hafði gefið honum til þess að finna friðinn, brugðust honum algjörlega. Þegar hann var 7 ára, kunni hann utan að meiri hlutann af „Bhagavad Gita“, sem er talið háleitast af helgiritum Hindúa. Þegar hann var 16 ára, hafði hann lesið aðal helgirit síka eftir Granth Sahib og Kóraninn. En þetta nám varð allt árangurslaust.

Móðir hans hafði farið með hann til presta og „sadhúa“. Þeim var falið að útskýra fyrir honum helgiritin, sem áttu að vísa honum veginn. Um tíma æfði hann yoga undir handleiðslu meistara í þeim fræðum. Yoga er af Hindúum talin fullkomnasta aðferðin til þess að ná einbeitingu hugans og komast í hrifningarástand, svo manninum finnist hann sameinast guðdóminum og öðlist við það frið ― en allt varð þetta árangurslaust.

Hann kynntist Biblíunni í enskum trúboðsskóla þar í bænum. Honum virtist hún rífa niður trú feðra hans og vera fjandsamleg stoltum erfðavenjum þjóðarinnar. Varla mun honum hafa komið í hug, að þessi bók myndi að lokum veita honum þann frið, sem hann leitaði að.

Hann segir sjálfur svo frá: „Í nærveru föður míns reif ég Biblíuna og fleiri kristnar bækur í tætlur, hellti steinolíu yfir og brenndi. Mér virtist Kristindómurinn vera fölsk trúarbrögð og ég gerði allt, sem ég gat til að spilla fyrir honum. Ég treysti trúarbrögðum mínum.

En ég fann enga fullnægju né frið, þótt ég fylgdi öllum reglum og helgisiðum þeirra. Loks ákvað ég að losna frá þessu öllu með því að fremja sjálfsmorð“.

Þremur dögum eftir að ég brenndi Biblíuna, vaknaði ég kl. 3 að morgni. Ég fór í bað eins og ég var vanur. Ég tók síðan að biðjast fyrir: „Ó Guð! Ef þú ert til, þá sýndu mér hina réttu leið. Annars hlýt ég að fyrirfara mér“. Ef ég fengi engan frið, var það ætlun mín, að leggjast á járnbrautarteina í nágrenninu, áður en lestin færi hjá kl. 5. Þótt ég fyndi ekki frið í þessu lífi, vonaði ég að finna hann í næsta lífi. Ég bað og bað, en fékk ekkert svar.

Klukkan 4:30, sá ég það sem ég hafði aldrei kynnst áður. Mikið ljós fyllti herbergið, sem ég baðst fyrir í. Ég hélt að kviknað væri í húsinu, en sá þó engin merki þess. Þá datt mér í hug, að þetta hlyti að vera svar, sem Guð hefði sent mér. Þá bað ég enn og horfði inn í ljósið og sá þar mynd Jesú Krists. Ef það hefði verið einhver Hindúa-guð, hefði ég fallið fram á ásjónu mína fyrir honum. En þetta var sjálfur Jesús Kristur, sem ég hafði smánað fáum dögum áður. Ég fann að þessi sýn gat ekki hafa orðið til af ímyndun minni. Ég heyrði rödd mæla á Hindí: „Hve lengi ætlar þú að ofsækja mig? Ég er kominn til að frelsa þig. Þú baðst um að fá að þekkja hinn rétta veg. Hví vilt þú þá ekki fara hann?“

Þá flaug mér í hug: „Jesús Kristur er ekki dáinn. Hann lifir og þetta hlýtur að vera hann.“ Ég féll að fótum hans og fann hinn dásamlega frið, sem ég hafði hvergi fundið annars staðar. Það var sú gleði sem ég óskaði mér. Það var eins og himininn væri kominn. Þegar ég reis á fætur, var sýnin horfin. En þótt sýnin hyrfi, hefur gleðin og friðurinn ávallt síðan verið með mér.

Ég fór til föður míns og tjáði honum, að ég væri orðinn kristinn. Hann sagði: „Farðu og legðu þig og sofnaðu. Þú kristinn! Í fyrradag brenndir þú Biblíuna og nú segist þú vera kristinn!“ Ég svaraði: „Já, nú veit ég að Jesús Kristur lifir og ég hef ákveðið að fylgja honum. Í dag er ég lærisveinn hans og vil þjóna honum upp frá þessu“.

Faðir hans og ættingjar gerðu allt sem þau gátu, til þess að telja drenginn af að gerast kristinn. Honum var heitið auði og hárri stöðu, ef hann héldi við trú feðra sinna. Rækilega var lýst þeirri skömm og þeim vanheiðri, sem hann gerði ætt sinni, ef hann yrði kristinn. En ekkert gat breytt fyrirætlan hans. Þegar skynsamlegar fortölur og góð boð dugðu ekki voru ofsóknir reyndar. Í níu mánuði varð hann að þola háð og auðmýkingu. Loks reyndi einn vinur þeirra af konungsætt landsins að hafa áhrif á hann með því að benda á heiður hans og ættarstolt, en það breytti engu. Þá var honum að lokum útskúfað og var skipað að yfirgefa heimilið fyrir fullt og allt. Hann fór burt með ofurlítið af mat, sem eitri hafði verið blandað í. Betra var að hann myndi deyja, en að hann yrði ættinni til ævarandi smánar.

Hann segir svo frá: „Ég man alltaf eftir fyrstu nóttinni eftir að ég var rekinn burt af heimili mínu. Þegar ég hafði lært að þekkja Frelsara minn, sagði ég föður mínum, bróður mínum og öðrum ættingjum frá því. Í fyrstu virtist þeim þetta ekki skipta miklu máli, en brátt komust þeir á þá skoðun, að það væri mikil skömm, ef ég yrði kristinn og því var ég rekinn burt af heimili mínu.

Fyrstu nóttina varð ég að hafast við undir tré, og það var kalt í veðri. Ég hafði aldrei reynt slíkt áður, og ég tók að hugsa sem svo: „Undanfarið hefur mér liðið vel heima. Nú er ég hungraður og kaldur, matarlaus og klæðlítill. En ég minntist gleðinnar og friðarins í hjarta mínu. Það var dásamlegt. Það var návist Frelsara míns. Ég minnist þeirrar nætur, sem fyrstu nætur minnar í himnaríki. Ég bar þessa nótt saman við dvöl mína heima. Þar fann ég engan frið, þrátt fyrir óhóf og allsnægtir, en nærvera Frelsarans snéri þjáningum næturinnar í sælu. Síðan hef ég ávallt fundið návist Frelsara míns“.

Hann var skírður til kristinnar trúar í ensku trúboðskirkjunni í borginni Simla 3. september árið 1905, 16 ára að aldri.

Eftir þetta ákvað hann að lifa sem kristinn „sadhu“, þ.e. að hætti helgra manna á Indlandi. Næstu sjö árin gekk hann um og predikaði. Allar eigur hans voru kyrtillinn, sem hann gekk í, ein ábreiða og eintak af Nýja testamentinu. Hann varð að lifa af þeim mat, sem áheyrendur gáfu honum af þakklæti eða meðaumkun, en ella að lifa á rótum og villtum berjum. Hann þáði húsaskjól, ef það bauðst, en varð annars að sofa í hellum eða undir trjánum. Hann ferðaðist mest um norður hluta Indlands og til Tíbet, sem þá var útlendingum lokað land. Hann leit á Tíbet sem sérstakan trúboðsakur sinn. Hann starfaði þar á sumrum og lenti þar í mörgum hættum og ofsóknum. Meðal annars, var hann dæmdur þar til dauða fyrir að boða kristna trú, en bjargaðist á yfirnáttúrulegan hátt. Síðar ferðaðist hann um Suður-Indland, Ceylon, Burma, Malajalöndin, Kína og Japan, en fór þó oftast til Tíbet á sumrum.

Á árunum 1920 og 1922 ferðaðist Sundar Singh til Evrópu, Ameríku og Ástralíu. Honum var tekið sem heimsfrægum manni á Vesturlöndum. En þrátt fyrir það hélt hann áfram sömu lifnaðarháttum og í Indlandi. Hann predikaði víða og hvar sem hann kom, varð mikil trúarvakning.

Það vita menn síðast um hann, að hann fór í trúboðsferð til Tíbet í maí-júní árið 1929 og kom ekki aftur. Þar mun hann hafa látið lífið sem píslarvottur fyrir trú sína.

Hann hafði spáð því sjö árum áður í Sviss að svo myndi fara: „Ekki verkur sú hugsun mér hinn minnsta ótta, að ég verði að deyja í Tíbet. Ef sá dagur kemur, þá mun ég taka honum með fögnuði. ― Til Tíbet fer ég á hverju ári, og á næsta ári fáið þið, ef til vill þá fregn, að ég hafi látið lífið þar. Hugsið þá ekki: „Hann er dáinn“, heldur segið: „Hann er kominn heim til himins og genginn inn til lífsins. Nú á hann vist með Kristi í fullkomnu lífi“.

Sundar Singh sannaði með lífi sínu það sem segir í Markúsarguðspjalli 8, 34-35: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins, mun bjarga því.“

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Viðauki · 7 mín. eftirÆviágrip Sundar Singh